Tíminn - 27.10.1942, Síða 1

Tíminn - 27.10.1942, Síða 1
RITSTJÓRI: ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON. PORMAÐUR BLAÐSTJÓRNAR: í JÓNAS JÓNSSON. ! ÚTGEPANDI: FRAMSÓKNARFLOKKURINN. ^ RITST JÓRASKRIPSTOFUR: EDDUHÚSI, Lindargötu 9 A. Símar 2353 og 4373. AFGREIÐSLA, INNHEIMTA OG AUGLÝSINGASKRIFSTOFA: EDDUHÚSI, Lindargötu 9 A. Sími 2323. PRENTSMIÐJAN EDDA hJ. Símar 3948 og 3720. 26. ár. Reykjavík, þriðjudagiim 27. okt. 1942 128. blað Sósíalístar eínír græddu á ^æsabröltinu SjálfstæðísQokkurínn heiir tapað 4709 atkv., en grætt eítt pingsætí, síðan 1937 Alþýðuflokkurinn hefir tapað 2724 atkv. og einu þingsæti síðan 1937 Framsóknarflokkurinn hefir bætt við síg 1312 atkv.; en tapað f jórum þingsætum vegna kjördæmabreytingarínnar Páll Zóphóníasson Seínustu úrslítín í kosníngunum Páll Zóphoniasson vann annað sætið í Norður-Múlasýslu Sjálfstæðismenn urðu af „gæsinni" í Norður-Múla- sýslu. Páll Zóphóníasson vann þar glæsilegan sigur. Náði hann kosningu sem annar maður á lista Fram- sóknarflokksins. Kosningaúrslitin þar og i Suð- ur-Þingeyj arsýslu urðu ekki kunn fyrr en á laugardag. Urðu úrslitin þar þessi: Norður-Múlasýsla: Kosnir voru af B-lista Páll Hermannsson og Páli Zóphón- íasson. B-listi fékk 769 (752) atkv., D-listi 358 (322), C-listi 68 (53), A-listi 14 (48). í kosningunum 1937 fengu Framsóknarmenn 714 atkv., en kosningabandalag íhaldsins og Bændaflokksins 586. Sósíalista- flokkurinn og Alþýðuflokkurinn' höfðu þá enga í kjöri þar. Suður-Þingeyjarsýsla: Kosinn var Jónas Jónsson (F) með 1157 (1180), Kristinn And- résson (Sós.) 336 (279), Júlíus Havsteen (S) 298 (348), Oddur Sigurjónsson (A) 74 (79). Samkvæmt þeim bráðabirgða- tölum, sem fyrir liggja, fá Sósí- alistar sex uppbótarsæti, í- haldsmenn tvö og jafnaðar- menn þrjú. Þingmannatala flokkanna verður þá þessi: Framsóknar- flokkurinn 15, Sjálfstæðis- flokkurinn 20, Sósíalistaflokk- urinn 10 og Alþýðuflokkurinn 7. Uppbótarmenn verða: Sósíal- istar: Sigurður Guðnason, Þórður Benediktsson, Steingr. Aðalsteinsson, Lúðvík Jósefsson, Kristinn Andrésson, Sigurður Thoroddsen. Jafnaðarmenn: Haraldur Guðmundsson, Barði Guðmundsson, Guðm. I. Guð- mundsson. íhaldsmenn: Pétur Magnússon, Gísli Sveinsson. BiíreiSasamgöngur við Akureyri stöðvaðar Vegurinn yfir Öxnadalsheiði er orðinn ófær bifreiðum vegna snjóþyngsla og bifreiðasam- göngunum við Akureyri þar með lokið um tíma. í fyrradag fóru bifreiðar í síðasta skipti yfir heiðina. Voru það langferðabifreiðar frá (Framh. á 4. síðu) Úrslitin í þingkosningunum um fyrri helgi eru nú kunn orðin. Hafa þau vissulega orðið á annan veg en höfundar gæsastjórnarskrárinnar, Sjálfstæðis- flokkurinn og Alþýðuflokkurinn, ætluðust til. Þegar gerður er samanburður við kosningarnar 1934, hefir Sjálfstæðisflokkur- inn raunverulega tapað tveimur þingsætum og Alþýðuflokkurinn þremur þingsæt- um, en þingmannatala Framsóknarflokksins er söm og þá. Ef gerður er samanburður við kosningarnar 1937 hefir Sjálfstæðisflokkurinn unnið eitt þingsæti, en Alþýðuflokkurinn tapað einu. En síðan þá hefir Sjálfstæð- isflokkurinn tapað 4709 atkv. og Alþýðuflokkurinn 2724 atkv., en Framsóknar- flokkurinn bætt við sig 1312 atkv. Þannig hefir þessum flokkum tekizt „gæsasóknin“, sem átti að ríða Fram- sóknarflokknum að fullu, en tryggja sigurför þeirra í landinu. Þeir einu, sem hafa grætt á „gæsabröltinu“, eru kommunistar, enda var alltaf vitanlegt, að upplausnin, sem því fylgdi, yrði vatn á myllu þeirra. Fylgi Framsóknarfl. örnggt og vaxaadi. Framsóknarmenn mega vel una» úrslitunum. Öll barátta andstöðuflokkanna, bæði í vor- kosningunum og haustkosning- unum, beindist gegn þeim.í vor- kosningunum hafði flokkurinn þá sterku aðstöðu, að barist var um bezta kosningamál hans 1 dreifbýlinu, kjördæmamálið, og margir gerðu sér vonir um, að hann næði stöðvunarvaldi. Þetta • bætti stórum aðstöðu flokksins gegn hinni hatrömu ásókn andstæðinganna. í haust- kosningunum hafði flokkurinn misst þessa sterku aðstöðu. Hann hafði beðið fullan ósigur í kjördæmamálinu. Slíkir ósigr- ar valda oft undanhaldi, ef flokksmennirnir eru ekki ör- uggir. Auk þess var aðstaðan öll verri til kjörsóknar á þeim stöðum, þar sem fylgi flokksins er mest. Veður var verra, ferða- lög erfiðari, annríki meira og mörg heimili mannfærri en i vor. Þrátt fyrir allt þetta held- ur flokkurinn nær sömu at- kvæðatölu og í vor, tapar aðeins 165 atkv., og fær nú 1312 atkv. atkvæði fleira en í kosningun- um 1937. Sýnir það bezt, að fylgi flokksins er öruggt og vax- andi. Hin smávægilega atkvæða- lækkun flokksins í nokkrum kjördæmum síðan í vor er fólg- in í nokkru lakari sókn í tor- færustu sveitunum. Þar sem flokkurinn hefir bætt atkvæð- um við sig, er aukninguna að- allega að finna í sjóþorpunum. Sýnir það, að fólkinu þar er að skiljast, að Framsóknarflokkur- inn er alhliða umbótaflokkur, sem vinnur að bættum kjörum alþýðu jafnt til sjávar og sveita. Kjósendur Framsóknarflokks- ins hafa í þessum kosningum orðið að leggja á sig meira erf- iði og mæta illskeyttari áróðri en nokkuru sinni fyrr. Þessar raunir hafa þeir staðizt með prýði. Trú þeirra á Framsókn- arflokkinn hefir reynzt traust og þeim skal líka verða að trú sinni. Einhverjir kunna að hafa gert sér vonir um, að Framsóknar- flokkurinn myndi hagnast á upplausn þeirri, sem skapazt hefir undir stjórn Ólafs Thors. Slíkt voru tyllivonir. Meðan allt leikur í lyndi, finnur fjöldi fólks ekki til hrunsins, sem bíður framundan. Aðeins annar flokkur til, Só- síalistaflokkurinn, hefir aukið atkvæðamagh sitt síðan 1937. En aðstaða hans var næsta ó- lík. Hann hafði verið í ábyrgð- jarlausri stjórnarandstöðu, en 1 Framsóknarflokkurinn hefir hátt á annan tug ára, þegar lengstum hefir annað hvort ríkt kreppa eða styrjaldarástand, orðið að annast stjórnarforustu landsins. Það er næsta fátítt, að flokkur,' sem hefir stjórnar- forustuna jafn lengi, skuli halda fylgi sínu óbreyttu hvað þá auka það. Framsóknarflokkur- inn má sannarlega una vel i þessari dómsniðurstöðu. }’ í tveimur tvímenningskjör- ' dæmum vann Framsóknar- flokkurinn þann glæsilega sig- ur að halda báðum þingsætun- um, þrátt fyrir hlutfallskosn- inguna og þróunin í hin- um tvímenningskjördæmunum bendir hiklaust í þá átt, að ekki líði á löngu þangað til þau bæt- ast við í hópinn. — Þannig munaði ekki nema 89 atkvæð- um á Framsóknarflokknum og Sjálfstæðisflokknum í Skaga- fjarðarsýslu I kosningunum 1937, en nú er þessi munur orð- inn 347 atkvæði. í Árnessýslu var munurinn 248 atkv. í kosn- ingunum 1937, en nú 461 atkv. Þó eru horfurnar hagstæðari í Eyjafjarðarsýslu. Andstæðingarnir reyna að túlka þingmannafækkun þá, sem flokkurinn hefir orðið fyr- ir, sem tap hans. Þetta er vissu- lega hrein firra, þar sem hún er afleiðing af kj ördæmabreyt- ingunni, en ekki fylgistapi. Flokkurinn hefir nú sömu þing- mannatölu og 1934—37, þegar hann hafði stjórnarforustuna, en 4500 fleiri kjósendur að baki sér en þá. Hann er því miklu sterkari nú en þá. Raunveru- lega hefir flokkurinn aldrei ver- ið sterkari en nú, því að hann hefir aldrei haft jafnmarga kjósendur að baki sér. Framsóknarflokkurinn geng- Atkvæðamagn og þingmanna tala ílokkanna 1934-1942 f seinustu fjórum kosningum til Alþingis á tímabilinu 1934—42 hefir atkvæðatala flokkanna orðið sem hér segir: Framsóknarfl. Sjálfstæðisfl. Bændafl........ Alþýðufl....... Sósíalistafl. . 24/6. 1934 20/6. 1937 5/7. 1942 18/10. 1942 11.377 21.974 3.348 11.269 3.098 14.556 24.132 3.578 11.084 4.932 16.033 22.975 8.979 9.423 15.868 23.001 8.460 11.060 Þingmenn skiptust þannig menn einskonar deild í Sjálf- milli flokkanna: stæðisflokknum, voru I kosn- ingabandalagi við hann 1937 og 1934 1937 1942 1942 fylgdu lionum eftir það, unz Fram.fi. 15 19 20 15 þeir sameinuðust honum alveg Sjálf.fl. 20 17 17 20 síðastl. vor. Bændafl. 3 2 Ásgeir Ásgeirsson var utan- Alþ.fl 10 8 6 7 flokka 1934—37, en fylgdi raun- Sós.fl. 3 6 10 verulega Alþýðuflokknum, svo Strax eftir kosningarnar 1934 telja má honum 11 þingmenn gerðust tveir Bændaflokksþing- þá. ur því sterkur og öruggur til þess starfs, sem nú er fyrir höndum. Hrakfarir Sjálfstæðisflokksins. Sjálfstæðismenn látast vera mjög kampakátir yfir úrslitun- um. Sannleikurinn er sá, að enginn flokkur má vera hrygg- ari yfir þeim. Ef Sjálfstæðis- flokkurinn hefði haldið svip- aðri atkvæðatölu og 1937, hefði hann náð 24—25 þingsætum. í stað þess fær hann einu þing- sæti meira en hann hafði fyrir stjórnarskrárbröltið, en 4709 atkv. færra. Hann hefir nú tveimur þingsætum færra en 1934—37. í kosningunum 1934 fékk Sjálfstæðisflokkurinn 20 þing- menn kjörna. Bændaflokkur- inn, sem raunverulega hafði þá samstöðu með Sjálfstæðis- flokknum, fékk 3 þingmenn. Einn þingmaður Bændaflokks- ins snerist strax til fylgis við andstöðuflokka íhaldsins, en hinir tveir, Þorsteinn Briem og Stefán í Fagraskógi, gengu strax í lið þess. Sjálfstæðis- flokkurinn réði því raunveru- lega yfir 22 þingsætum árin 1934 —37. í kosningunum 1937 gerðu Sjálfstæðismenn og Bænda- flokksmenn með sér bandalag, sem fékk 27.700 atkvæði og 19 þingmenn kosna. Fyrir kosning- arnar í vor fullkomnaðist þetta bandalag á þann hátt, að Bændaflokkurinn gekk form- lega inn í Sjálfstæðisflokkinn. Sjálfstæðisflokkurinn fékk nú 23.001 atkv. eða 4.709 atkv. færra en bandalag hans og Bændaflokksins í kosningunum 1937. Aðeins hið bjálfalega á- kvæði gæsastjórnarskrárinnar, að minnihlutinn í tvímenn- ingskjördæmunum skuli hafa sama rétt og meirihlutinn, hef- ir forðað flokknum frá því að tapa. enn stórlega þingsætum. Úrslitin í tvímenningskjör- dæmunum sýna, að gæsastjórn- arskráin mun ekki ver aSjálf- stæðisflokknum til langvinns framdráttar. Hann missti nú þegar af „gæsinni" í Suður- Múlasýslu og Norður-Múlasýslu. Slæm uppdráttarsýki er auðsjá- anlega byrjuð í *,gæsunum“ í Eyjafjarðarsýslu, Árnessýslu og Skagafjarðarsýslu, enda munu þær áreiðanlega horfalla í næstu kosningum. Eina kjördæmið, þar sem Sjálfstæðisflokkurinn hefir unnið á, síðan 1937, er Barða- strandarsýsla. Alls staðar ann- ars staðar hefir hann tapað og í heild nemur tapið 4709 atkv. Það er ekki að furða, þó slíkur flokkur þykist geta verið sigur- gleiður! Tap Alþýðuflokksins. Alþýðuflokkurinn getur rak- (Framh. á 4. siöu) Á víðavangi FLYTUR ÁRNI FRÁ MÚLA VANTRAUST Á BORGAR- STJÓRA? Árni frá Múla lýsir yfir þvl i Þjóðólfi, að hann muni halda sæti sínu í bæjarstjórn Reykja- víkur, þótt hann sé farinn úr Sjálfstæðisflokknum. Réttlætir hann þessa ákvörðun með því, að Þjóðveldismenn eigi rétt til fulltrúa í bæjarstjórn sam- kvæmt því atkvæðamagni, sem listi þeirra fékk í síðustu kosn- ingum. Ef ástæða er tíl að skoða Árna annað en Múlakvísl úr íhaldinu, sem eigi í flestu sam- leið með því, hefir íhaldsflokk- urinn þar með misst meiri hluta í bæjarstjórn. Þar eru þá aðeins 7 fulltrúar af 15 á algerðu bandi borgarstjóra. Nú hefir Árni lýst Bjarna borgarstjóra þannig, að ætla mætti, að hann tryði honum ekki alls kostar vel fyrir mál- efnum bæjarins. Það væri því ekki ólíklegt, að hann neytti oddaaðstöðu sinnar til þess að knýja fram vantraust á Bjarna í bæjarstjórn eða neyddi með því jafnaðarmenn til að koma opinberlega til liðs við borgar- stjóra. Kunnugir hafa það fyrir satt, að Bjarni Ben. sé kominn að þeirri niðurstöðu, að borgar- stjórastarfið sé heldur um- fangsmikið til að hafa það 1 hjáverkum með þingstörfum. Hins vegar eru til menn í Al- þýðuflokknum, sem munu telja sig ekki með öllu óhæfa til að vera borgarstjórar. Árna mundi sjálfsagt þykja gaman að verða eins konar „giftekniv" fyrir í- haldið og kratana í bæjarstjórn Reykjavíkur. ÞEIR VORU STRYKAÐIR ÚT! Sagt er eftir góðum heimild- um, að ekki færri en 600 kjós- endur hafi gert breytingar á lista Sjálfstæðisflokksins I Reykjavík um leið og þeir kusu. Ekki færri en 500 kjósendur strykuðu Jakob Möller út og rúm 400 afmáðu nafn efsta manns á listanum, nafn Magn- úsar Jónssonar sálnahirðis. Bjarni Ben. fékk líka margar útstrykanir. Þessar útstrykanir sýna bezt, hve margir eru orðnir „leiðir á íhaldinu" og kjósa það með hangandi hendi, en því aðeins að þeir geti látið í ljós vanþókn- un sína og litilsvirðingu á ráð- herrum flokksins fyrir óstjórn þeirra og heimskupör. „STEIKTU GÆSIRNAR." Sjálfstæðismenn hafa til- kynnt með miklu yfirlæti, að þeir hafi „unnið“ 7 þingsæti í þessum kosningum. En tala þingmanna þeirra hefir aðeins aukizt úr 17 í 20, eða fjölgað um þrjá. Þetta hefir komið mörgum frómum sálum í Sjálfstæðis- flokknum mjög á óvart. Þeim var lofað 6 steiktum gæsum í vor, þeir gerðu sér jafnvel vonir um 2 nýja þingmenn í Reykja- vík, þeir unnu Barðastrandar- og N.-ísafjarðarsýslu, þeir höfðu 17 þingmenn fyrir. Hinar frómu sálir sáu loks hilla undir hreinan meiri hluta íhaldsins á Alþingi. Því var um að gera að halda nú vel saman, „þegar úr- slitaátökin við Framsóknar- flokkinn“ voru fyrir höndum, eins og Morgunbl. komst að orði í eftirmælum sínum um Árna í Múla, þegar hann hafði vistaskipti. Nei, steiktu gæsirnar urðu til lítilla búdrýginda hjá Sjálf- stæðisflokknum, og þeir eru gramir yfir úrslitunum. Ekki hækkaði heldur hagur krat- anna, en þeir áttu ekki á miklu völ, hvort sem var. En sósíalistar hafa notið góðs af gæsaveiðum íhaldsins og (Framh. á 4. síöu)

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.