Tíminn - 29.10.1942, Qupperneq 4
513
TÍMINIV, fimmtndaginn 39. okt. 1943
139. blað
tn BÆNUM
Háskóli íslands
var settur síðastliðlnn laugardag,
fyrsta vetrardag. Var viðhöfn mikil og
ríkisstjóri íslands og fulltrúar erlendra
ríkja viðstaddir. — Pyrst var sunginn
kafli úr kantötu Hallgríms Helgasonar
við kvæði Jóns Magnússonar, „Heilög
vé“. Því næst flutti Jón Hjaltalín
Sigurðsson prófessor, rektor skólans,
ræðu. Gat hann og athafna, er gerð-
ar hefðu verið í umboði háskólans, og
annars þess, er markverðast var úr
sögu háskólans liðið skólaár. Að lok-
inni ræðu rektors flutti Sigurður pró-
fessor Nórdhl erindi um manndráp.
Síðan var sunginn annar kafli úr kan-
tötu Hallgríms Helgasonar, rektor á-
varpaði stúdenta og áminnti þá um
eljusemi og hófsemi, og að lokum var
þjóðsöngurinn sunginn.
Hjúskapur.
Á fyrsta vetrardag voru gefin sam-
an í hiónaband, ungfrú Ragnheiður
Jóhannesdóttir frá Núpum í Ölfusl og
Engilbert Hannesson, Bakka i sömu
sveit.
Blaðamannafélag íslands
efnir til kvöldvöku í Oddfellowhús-
inu næstkomandi föstudagskvöld og
hefst hún kl. 9 stundvíslega. Valtýr
Stefánsson ritstjóri stjórnar kvöldvök-
unni, en skemmtiskráin er mjög fjöl-
breytt. Soffía Guðlaugsdóttir og Jón
Sigurðsson skrifstofustjóri Alþingis
lesa upp, Kristján Guðlaugsson rit-
stjóri talar um daginn og veginn, Ágúst
Biamason og Jakob Hafstein syngja
tvísöng og Jón Sen leikur á fiðlu. Að
lokum verður dansað. Þetta er önnur
kvöldvakan, sem Blaðamannafélag ís-
lands efnir til á þessu hausti. Á fyrstu
kvöldvökunni var húsfyllir og vafalaust
verður eins á þessari kvöldvöku, því
að þessar skemmtanir B. í. eru ein-
hverjar þær vinsælustu, sem bæjarbú-
ar eiga kost á.
Ekið inn i Laufahúsið.
Sá atburður skeði í fyrradag, að
vörubifreið R. 1936, ók á rúðu í húsinu
nr. 26 við Laugaveg, Laufahúsinu, og
braut hana í mask. Laufahúsið er
nýtt verzlunarhús og rúðumar i búð-
arrfugeunum mjög stórar. Þessi atburð-
ur varð með þeim hætti, að vörubif-
reiðin kom akandi austan Laugaveg-
inn. Allt í einu beygði bifreið, sem
stóð við gangstéttina, út á götuna í
veginn fvrir vörubifreiðina og til að
forða árekstri ók vörubifreiðin upp á
gangstéttina, en vegna þess, að hemlar
bifreiðarinnar voru mjög lélegir, tókst
bifreiðarstjóranum ekki að stöðva bif-
reiðina fvTr en hún lenti á húsinu og
braut rúðuna eins 0g áðior segir.
9 mánaða fangelsi og svifting
ökuleyfis æfilangt.
í sumar tók maður nokkur bifreið
í heimildarleysi og ók hennl ölvaður
um bæinn. Á þessu ferðalagl ók hann
á mann og beið sá bana af. í fyrra-
dag kvað lögregluréttur upp dóm yfir
þessum manni. Var hann dæmdur i
9 mánaða faneelsi, sviftur ökuleyfi
æfilanet og auk þess sviftur rétti tll
að kaupa og nevta áfengis í 5 ár eftir
afplánun refsingarinnar.
Þýzk flugvél yfir Reykjavík.
í fyrradag var gefið hættumerki, sem
stóð í 45 mínútur. Engum sprengjum
var vamað, en þýzkrar flugvélar mun
hafa orðið vart yfir bænum og var
hún hrakin burtu með skothrið úr loft-
varnabyssum.
Gjafir til nýja stúdenta-
garðsins.
Áður birt kr. 315.170,50. Hagn. af
sumarskemmtun stúdenta kr. 62.994,82.
Söfnun og gjafir: Verzl. Bjöm Kristj-
ánssonar, 500,00, Ásgarður hf. 500,00,
Pípuverksm. h,f. 300,00, Hamar h.f.
500,00, Penninn, ritfangaverzl. 300,00,
Sæm. Stefánsson & Co. h.f. 200,00, Pr.
Bertelsen & Co. h.f. 500,00, G. J. Foss-
berg 300,00, Skipasmíðastöð Rvíkur
300,00, Geir Stefánsson & Co. h.f. ý00,00
Vélsm Héðinn 300,00, Slippfél. í Rvik
500,00, R. H. Blöndhl 300,00, Samtr. isl.
botnvömunga 300,00, Lýsissaml. botn-
vörpunga 300,00, ísaga h.f. 500,00, Verð-
andi h.f 300,00, Kr. G. Gíslason & Co.
h.f. 300,00, J. B. Pétursson 300,00, Nýja
Bíó h.f. 500,00, Nathan & Olsen 1000,00,
Ól. Gíslason w Co 300,00, V. Thorsteins-
son w Co 300,00, Heildverzl. Edda 500,00,
H. Benediktsson & Co 2000,00, Verksm.
Reykdals, Hafn.f. 2000,00, Einar Am-
órsson, hæstar. dóm. 500,00, Söfnun
meðal stúdenta á Ak. 335,00, söfnun
meðal stúdenta i Rvík 800,00. Alls kr.
393.200,32,
Á víðavangi.
(Framh, af 2. siBu)
Þetta má víst til sanns vegar
færa„ ef það er tekið fram um
leið, að það er Sjálfstæðisflokk-
urinn, sem hefir orpið þessum
„soðnu egjum“ handa sósíalist-
um. Um Sjálfstæðismenn má
annars segja í þessu máli: Þið
þóttust vitrir, en urðuð heimsk-
ingjar.
Hrun Frakklands
(Framh. af 1. síOu)
getu til að jafna deilurnar um
hin efnalegu verðmæti, þótt
hann hefði lengstum valdaað-
stöðu og .hefði innan vébanda
sinna hinar dugandi, bjargálna
millistéttir, sem sjálfar voru
bezta táknið um það, hvert veg-
urinn átti að liggja.
Aðalfundut F. U. F.
í Reykjavík
Aðalfundur Félags ungra
Framsóknarmanna í Reykjavík
var haldinn síðastliðið mánu-
dagskvöld. Formaður félagsins,
Sveinn Gamalíelsson, gerði
grein fyrir starfsemi félagsins
síðastliðið ár, fjárhag þess og
áhugamálum.
Síðan fóru fram kosningar.
Formaður félagsins var endur-
kosinn Sveinn Gamalíelsson, en
meðstjórnendur Haukur Jósefs-
son, Gunnlaugur Pétursson,
Karl Sveinsson og Karl Einars-
son.
í fulltrúaráð Framsóknarfé-
laganna í Reykjavík voru þess-
ir menn kosnir af hálfu F. U. F.:
Ólafur Jóhannesson, lögfræð-
ingur, Jón Helgason, blaðamað-
ur, Benedikt Bjarklind, stud.
jur, Gunnlaugur Pétursson,
skrifstofumaður, Þórarinn Þór-
arinsson, ritstjóri, Eiríkur Páls-
son, lögfræðingur, Benedikt
Sigurjónsson, fulltrúi, Svelnn
Gamalíelsson, verkamaður, Þor-
gerður Þorvarðsdóttir, skrif-
stofumær, Daníel Ágústinusson,
erindreki. — Til var voru kjörn-
ir Karl Sveinsson, verkamaður,
Guðmundur V. Hjálmarsson,
bankamaður, Ingvar Brynjólfs-
son, menntaskólakennari, Arn-
aldur Jónsson, blaðamaður,
Haukur Jósefsson, verzlunar-
maður, Karl Einarsson, skrif-
stofumaður, Kolbeinn Jóhann-
esson, skrifstofumaður, Krist-
ján Friðriksson, forstjóri.
Að kosningum þessum lokn-
um hófust umræður um stjórn-
málaviðhorfið og afstöðu Fram-
sóknarflokksins til annarra
stjórnmálaflokka. Tóku margir
til máls og stóð fundurinn fram
á nótt. Var umræðum og álykt-
unum að lokum frestað til
seinni funda.
KramvörusteSnan . » .
(Framh. af 1. tUu)
þau leigja okkur. Það er líka
bezt, að þjóðin viti það, að
stjórnarvöldin í Washington
hafa þegar kvatt íslenzka
sendiherrann á fund sinn og
skýrt frá því, að þau hafi ann-
að með skipakost Bandamanna
að gera, en að flytja luxusvörur
og einkabíla til íslands. íslend-
ingar geta fengið skip til að
flytja nauðsynjavörur, en ekki
óhófsvörur.
Til eru þeir íslendingar, sem
halda það í yfírlæti sínu, að
það sé álitin merki um velmeg-
un hér á landi, að framleiðsla
ýmissa luxusvara vestra, eins og
t. d. samkvæmisfata, skuli nú
eingöngu byggjast á íslenzkri
eftirspurn. En þetta er hrapal-
legasta firra. Amerískir fjár-
málamenn vita vel, að stundar-
gróði íslendinga byggist á setu-
liðsvinnu og háu fiskverði.
Hvorttveggja þetta hverfur eft-
ir stríðið. Ef íslendingar hafa
því ekki framsýni til að geyma
gróða sinn, heldur eyða honum
í prjál og óþarfa, geta þeir ekki
aflað sér þeirra nýju skipa og
véla, sem þurfa að verða undir-
staða atvinnuveganna eftir
styrjöldina.
Frá sjónarmiði útlendinga
hafa íslendingar því alveg eins
mikla þörf fyrir sparsemi nú og
stríðsþjóðirnar. Þeir þurfa að
safna sjóðum til að fullnægja
verkefnum komandi ára. —
Eyðslusemi íslendinga getur því
ekki orðið til annars en van-
virðu og álitshnekkis. Hún gref-
ur undan tiltrú þeirra til þess
að vera fjár síns ráðandi, enda
mun hún valda fullkomnu
hruni í stríðslokin, ef viðnámið
verður ekki hafið tafarlaust.
Allir ábyrgir menn verða því
að sameinast gegn kramvöru-
stefnunni. Það verður að koma
í veg fyrir, að hún stimpli okk-
ur sem tiltrúlausa óhófs- og
eyðsluþjóð. Það verður að koma
í veg fyrir, að hún glati mögu-
leikum okkar til að fá leiguskip.
Það verður að koma i veg fyrir,
að hún eyði í fánýta hluti þeim
fjármunum, sem eiga að vera til
viðreisnar eftir styrjöldina. Það
verður að hefja merkl hófsemi
og sparnaðar, sem endurrelsi
glatað traust þjóðarinnar og
trygglr henni bjartari framtið.
Þetta er eitt þeirra verkefna,
sem næsta þing verður að taka
föstum tökum.
ÚTSÖLUSTAÐIR TÍMAJVS 1 REYKJAVÍK
Verzluninn Vitinn, Lauganesvegi 52 ................ Sími 2260
Þorsteinsbúð, - Hringbraut 61...................... — 2803
Flöskubúðin, Bergstaðastræti 10 ................... — 5395
Leifskaffi, Skólavörðustíg 3 ...................... — 2139
Bókaskemman, Laugaveg 20 B.........................
Bókabúð KRON, Alþýðuhúsinu ........................ — 5325
Söluturninn, Hverfisgötu .......................... — 4175
Sælgætisbúðin Kolasundi ...........................
Verzlunin Ægir, Grófinni...........................
Bókaverzlun Finns Einarssonar, Austurstræti 1 ..... — 1336
Bókastöð Eimreiðarinnar, Aðalstræti 6 ............. — 3158
Ólafur R. Ólafs, Vesturgötu 16 .................... — 1754
Konfektgerðin Fjóla, Vesturgötu 29 ................ — 1916
Jafet Sigurðsson, Bræðraborgarstíg 29 ............. — 4040
f...... GAMXiA *ÍÓ—____
Tom, Dick og
Harry
Amerisk gamanmynd.
Aðalhlutverkin leika.
GINGER ROGERS
GEORGE MIJRPHY
ALAN MARSHALL.
Sýnd kl. 7 og 9.
Framhaldssýning 3V2-6y2:
TÖKUBARNIÐ
(Mexican Spitfire’s Baby).
Leon Errol — Lupe Valez.
——~~NÝJA BÍÓ---------
Sðngvagatan
(Tin Pan Alley).
Svellandi fjörug söngva-
mynd.
Aðalhlutv. leika:
ALICE FAYE,
John PAYNE,
BETTY GRABLE,
JACK OAKIE.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Hjartans pakkir til allra, nœr og fjœr, sem heiör-
uöu okkur á gulVbrúÖkaupsdegi okkar.
Sigríöur Sigtryggsdóttir, Einar Magnússon.
Grávara
Vér kaupum og tökum 1 umboðssölu allar tegundir af grá-
vöru, svo sem:
ftcfaskinn,
Minkaskinn,
Nelskinn.
ÞAKKARÁVARP
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og
jarðarför föður mins og tengdaföður,
Helga Einarssonar,
Vatnshól.
Maria Helgadóttir. Oddur Þórðarson.
imáiölftverð
ATH. — Vegna erfiðra söluskilyrða, munið að drepa refina
og minnkana ekkl of snemma, þar eð feldurinn af slikum dýrum
þolir illa geymzlu og er því verðminni.
G, Helgason & Melsted h.í.
Glerkýr og sam-
kvæmisföt
(Framh. af 1, síðu)
legar aðgerðir til að verja sæmd
innan íslenzks þjóðfélags, eiga
með réttu bróðurpartinn af
þeirri lítilsvirðingu, sem land-
inu er sýnd með kvikmyndinni
um „Hotel Jorg“.
Tvö af dagblöðum bæjarins
prentuðu í gær eða fyrradag
greinar amerískra blaða, þar
sem létt og skemmtilega var
gert gys að lífsstefnu tilhalds-
fólksins á íslandi. Þar er sagt,
að þeir kiæðagerðarmenn í
Bandaríkjunum, sem fást við að
gera samkvæmisföt handa körl-
um og konum, myndu nú ekki
hafa neitt að gera við þá iðju,
ef ekki væru til íslendingar. Frá
þeim komi svo stórfelldar pant-
anir um dýran veizlufatnað
karla og kvenna í Reykjavík, að
iðnaðurinn lifir á þessum skipt-
um.
Nú er svo ástatt í Bandaríkj-
unum, eins og í Englandi, að
allt óhóf og tilhald er fordæmt
með öllu. Alvara og starf ein-
kennir allt líf þjóðarinnar. j
Menn, sem koma í heimsókn til
Bandaríkjaforseta koma í jakka-
fötum og konur klæðast að
sama skapi. Þegar pantanir
koma frá íslandi um óhóf, sem
jafnvel ríkasta fólk 1 hinum
enskumælandi löndum lætur sér
ekki detta í hug að viðhafa,
þegar fiestum stærstu og vold-
ugustu þjóðum heims blæðir
nálega til ólifs af hörmungum
stríðsins, þá vckja pantanir
eyðslufólksins f Reykjavík leið-
iniegar tilfinningar gagnvart
íslenzku þjóðinni. Hér eru dag-
lega auglýst í blöðum dýrustu
tegundir af gólfteppum, sem
unnt er að fá á heimsmarkaðin-
um og konur hinna fávísu, ný-
ríku manna draga að sér marga
Ioðfeldi hver, vöru, sem einu
sinni var í móð, en er það ekki
lengur.
Þær þjóðir, sem við eigum
mest skipti við, og örlög okkar
eru bundin við, spara, vinna og
fórna. Allt, sem mönnum er dýr-
mætast, er lagt í sölurnar.
Meðan þessu fer fram, dregur
hinn nýríki uppiausnarlýður á
íslandi nafn og heiður lands og
þjóðar niður f svaðið, með létt-
STÚLKUR
sem hafa 1 hyggju að taka að
sér aðstoðarstörf á helmilum
hér í bænum eða utanbæjar,
ættu í tíma að tala við
Ráðningarstofu
Reykjavíkurbæjar.
Þar eru úrvalsstöður á beztu
heimilum á hverjum tima.
RÁÐNINGARSTOFA
REYKJAVÍKURBÆJAR.
Bankastræti 1 Sfmi 4966.
10-15%
a í sláttur
á herra- og dömu-
R YKFRÖKKUM,
Drengj avetrarfrökkum,
Dömu- og telpukápum,
Nokkrum kjólum.
VESTA,
Laugaveg 40.
Stúlku
vantar i eldhúsið á Vífilsstöð-
um. Upplýsingar gefur ráðs-
konan í síma 5611.
Það er fljótlegt
að matreiða
„Freía“ fiskfars,
auk þess er það hollur, 6-
dýr og góður matur.
úðugri eyðsiu og með heimsku-
legri framkomu. Glerkýrnar og
samkvæmisfötin frá New York
handa fslenzkum eyðslu- og
letilýð eru verðugir minnisvarð-
ar þess ástands, sem upplausn-
in hefir skapað hér á landi.
á Yindlinguni
Útsöluverð á enskiun vindlingum má eigi
vera hserra en hér segir:
Players N/C med. 20 stk. pk............. kr. 2.50 pakkinn
May Blossum 29 — — — 2.25 -
De Reszke, Virgtnia 20 — — — 1.90 -
Commander 20 — — — 1.90 -
De Reszke, tyrkn. 20 — — — 2.00 -
Teofani 20 — — — 2.20 -
Derby 10 — — — 1.25 -
Soussa 20 — — — 2.00 -
Melachrino nr. 25 20 — — — 2.00 -
Utan Reykjavíkur og Hafnarfjarðar má útsöluverðið vera 3%
hærra en að framan greinir, vegna flutningskostnaðar.
Tóhakseinkasala ríkisins.
Tilkynning:
Srá rikissij órninni.
Hernaðaryfirvöldin hafa talið nauðsynlegt tll varúðar að setja
reglur því til varnar, að íslenzk skip, sem stödd eru úti fyrir
ströndum íslands eða í íslenzkum höfnum, yrðu fyrir árásum ef
til hernaðaraðgerða kæmi milli ófriðaraðilja á sjó í námunda við
strendur landslns.
Öll skip, þar á mðal litlir mótorbátar, sem ganga til fiskiveiða,
eru aðvöruð um, ef þau verða vör við hernaðaraðgerðir í nálægð
sinni, hvort heldur skipsmenn sjá þessar aðgerðir eða verða
þeirra áskynja með loftskeytatækjum sínum eða á annan hátt,
þá verða þau að hegða sér eins og hér segir:
Skip í höfnum skulu halda kyrru fyrir og bíffa fyrir-
skipana frá brezkum effa amerískum flotayfirvöldum
á staffnum eða amerískum her-yfirvöldum.
Skip, sem eru á sjó, verða að gera eitt af þrennu:
a) Sigla út á haf, svo aff þau séu úr augsýn frá landk
b) Kasta akkerum.
c) Nema staffar og stefna skipinu frá landl.
Aðvörun mun verða tilkynnt ef hægt er með fyrirsklpuninní
„STAND STHjL“ (VERIÐ KYRRIR).
Sérhvert skip, sem nálgast land, eftir slika aðvörun, mun
verða skoðað sem óvinaskip og verður ráðizt á það.
Atviimu- og samgöngumálaráðimeytið,
28. október 1942.