Tíminn - 10.11.1942, Page 1

Tíminn - 10.11.1942, Page 1
RITSTJÓRI: ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON. PORMAÐDR BLAÐSTJÓRNAR: ' JÓNAS JÓNSSON. lTGRI,«HriT' FRAMSÓKN ARPLOKKURINN. ( RITST JÓRASKRIFSTOFUR: EDDUHÚSI, Lindargötu 9 A. Símar 2353 og 4373. AFGREIÐSLA, INNHEIMTA OG AUGLÝSINGASKRIFSTOFA: EDDUHÚSI, Lindargötu 9 A. Simi 2323. PRENTSMIÐJAN EDDA hJ. . Símar 3948 og 3720. 26. ár. Reykjavík, þriðjuclaginn 10. nóv. 1942 134. blað Rikisstjórnin uppvís að nvjum ósannindum i fóðurbætismálunum Erlent yfírlít 10. nóv.: Innrás Bandamanna í ný- lendur Frakka í N.-Aíríku Frá slyrjöidinni í Kákasus Jónas Jónsson: Hversvegna stöðvast íramleíðslan? Nú er að því komið, að mikill hluti framleiðslunnar á íslandi stöðvist, af því fólkið, sem býr í landinu, er orðið of auðugt til að geta sinnt venjulegum dag- legum störfum. Opnu vélbát- arnir í minni verstöðvunum eru hættir að fiska. Stærri vélbát- arnir eru á sömu leið. Því er spáð, að óbreyttum kringum- stæðum muni hálfur vélbáta- floti Vestmannaeyinga ekki hreyfa sig úr höfn á vertíð í vetur. Nokkrir af togurunum eru hættir veiðum, og búist við að fleiri hætti innan skamms. Frystihúsin allt í kring um land eru að hætta störfum og hafa tilkynnt stjórnarvöldunum, að þau geti ekki keypt fisk til verk- unar og frystingar, af því að verðið utan lands hrekkur ekki fyrir útgerðinni hér heima. í október var verið að reyna að afla síld við Faxaflóa, ef ske kynni að reynt yrði að leggja línu á vertíð. Sjómennirnir sömdu um 1200 kr. lágmarks- kauptryggingu um mánuðinn og fengu það, en gæftir voru svo litlar þann mánuð, að veið- in varð sama og engin. Talið er, að sjómenn geri ráð fyrir að heimta 1800 króna lágmarks- kaup um mánuðinn á vertið í vetur. í sveitum er hið sama við- horf. Bóndi í Borgarfirði hefir 12 kýr og nokkurt sauðfjárbú. Heimafólkið er hjónin og nokk- ur lítil börn. Konan heilsulítil, og annar ekki meiru en að sjá um innanhússtörf. Bóndinn reyndi í haust í Reykjavík að fá karl eða konu til vetrarvist- ar, en tókst það ekki, þó að af miklu væri að taka í höfuð- staðnum. Að líkindum hefir hann orðið að fara með flestar kýrnar í sláturhúsið. Svipuð er sagan, hvar sem til fréttist af landinu. Á Suðurlandi verða bændur að borga ársmanni allt að 10,000 krónur i kaup, auk fæðis og húsnæðis, og ársstúlku 7—8000 krónur. Mega neytend- ur í bæjum sizt undra sig yfir, að landbúnaðarvörur okkar verða að vera dýrar, meðan þær fást. Allur þessi ófögnuður er að kenna léttúð nokkurra af leið- togum kommúnista og Alþýðu- flokksmanna. En auk þess ber nokkur hluti kaupmannastétt- arinnar þunga ábyrgð í þessu efni. Samstjórn þriggja flokka var komið á i striðsbyrjun og skil- yrði til að þjóðin héldi saman, meðan stóð á styrjöldinni og gætti hófs. Ófriður var vakinn úr tveimur áttum. Annars veg- ar frá kommúnistum, sem eggj- uðu sífellt til að gera auknar kröfur til framleiðslunnar. Á hinn bóginn komu eigendur Vís- is með stöðug illindi við Fram- sóknarmenn. Alla þá stund, sem þjóðstjórnin starfaði, var Árni Jónsson á háu kaupi, frá nokkr- um kaupmönnum, sem pólitísk- ur ritstjóri Vísis og kynti í þeirra nafni ófriðareldinn gegn Framsóknarmönnum og síðar gegn Alþýðuflokknum. Sjálfstæðisflokknum lá við klofningi 1939. Útgerðin var þá að hruni komin. Hálfur Sjálf- stæðisflokkurinn, fulltrúar (Framh. á 4. siOu) Aðeins 450 smál. til af 2000-2500 smál. fiskimjöls, er bændum var lofað í sumar Það er nú komið í ljós, að .yfirlýsingar ríkisstjórnar- innar í sumar um fiskimjölsbirgðir í landinu hafa ekki verið ábyggilegri en loforð hennar um nóg síldarmjöl. Ríkisstjórnin lét hvað eftir annað lýsa yfir því, að bændur þyrftu engu að kvíða fóðurbætisleysi, því að auk nægra síldarmjölsbirgða, væru til 2000—2500 smál. af fiskimjöli, sem þeir gætu fengið. Rannsókn, sem Búnaðarfélag íslands hefir gert, leiðir í ljós, að þessar ýfirlýsingar hafa verið staðlausir stafir. Eins og spáð vai' í seinasta yfirliti, varð þess ekki langt að bíða, að Bandamenn gerðu inn- rás í nýlendur Frakka í Afríku. Þessi innrás var hafin síðastl. laugardagskvöld á ýmsum stöð- um í Marokkó og Algier. Inn- rásin er gerð af Bandaríkja- mönnum, er njóta aðstoðar brezkra herskipa og flugliðs. Yfirstjórnandinn er Eisenho- Þegar ljóst var, að ekki feng- ist nema 60% af því síldarmjöli, sem bændur báðu um, þrátt fyrir yfirlýsingar stjórnarinnar um nægar síldarmjölsbirgðir, sneru félög bænda sér til stjórn- arinnar og báðu um fiskimjölið. Stjórnin fól þá Búnaðarfélagi íslands að annast þetta mál. Jafnhliða því, sem Búnaðar- félagið tók á móti pöntunum, lét það rannsaka, hversu miklar fiskimjölsbirgðirnar væru. Rannsókn þessi hefir leitt í ljós, að um 20. þ. m. munu að- eins 450 smál. af fiskimjöli verða tilbúnar til afhendingar. Auk þess er til óunnið efni, sem svarar til 1200 smál. af fiski- mjöli, en ekkert verður um það sagt, hvenær það verður full- unnið og tilbúið til afhendingar. Þetta sýnir, að ríkisstjórnin hefir algerlega farið með stáð- lausa stafi, þegar hún lét lýsa yfir því í sumar, að til væru 2000—2500 smál. af fiskimjöli í landinu. « Fyrir marga bændur mun þetta hafa hinar alvarlegustu afleiðingar. Þeir hafa miðað á- setning í haust að talsverðu leyti við það, að þéir fengju verulegt magn af síldarmjöli eða fiskimjöli. Þeir fá aðeins fullnægt um 60% af síldar mjölspöntunum sínum og enn minna munu þeir fá af fiski- mjölspöntunum, a. m. k. fyrst í stað, en áhættusamt er fyrir þá að treysta því, að það mjöl, sem enn er óunnið, komist til þeirra á þessum vetri. Fóðurbætismálin er bændum gott dæmi þess, hverSu farsælt þeim muni að treysta leiðsögn þeirra manna, er stjórna Sjálf- stæðisflokknum. Þeir hafa al- gerlega vanrækt að tryggja landbúnaðinum nægilegum fóturbæti, þótt hann hefði> þess aldrei meiri þörf en nú, vegna fólkseklunnar í sumar, og þjóð- inni væri það líka aldrei meira áríðandi, að matvælaframleiðsl- an drægist ekki saman. En í stað þess að segja það sanna, birta þeir í tilefni kosninganna falsk- ar og fagrar yfirlýsingar, sem bændur treystu, er þeir ákváðu ásetningu á komandi vetri. Svikin koma svo fyrst í ljós, þegar vetur er genginn í garð Bændum ætti vissulega að geta orðið þetta lærdómsríkt. Birgðir erlendra matvara fara minnkandi Samkvæmt upplýsingum, sem Tíminn hefir a.flaö sér, munu birgðir erlendra matvara fara minnkandi næstu vikurnar og verða minni en nokkru sinni áður síðan styrjöldin hófst. Jafn- framt er allt í óvissu um það, hvort takast muni að fá nægar matvörur hingað í framtíðinni, vegna þess litla skipakosts, er við ráðum yfir, þar sem Bandarikjamenn hafa, a. m. k^ í bili, svipt okkur öllum lausum leiguskipum. Þrátt fyrir þessa vitneskju, virðast stjórnarvöldin lítt hafa skeytt því, að láta matvöruna sitja fyrir skipsrúmi að vestan. Fyrir skömmu síðan fékk t. d. Völundur allmikið af timbri að vestan, þótt mikil matvara og ’fóðurvara biði eftir flutningi. Undanfarna mánuði hefir líka ýmiskonar luxusvarningur verið látinn sitja fyrir flutning- um eins og t. d. bílar, kæliskáp- ar, þvottavélar og ýmsir slíkir munir, sem Bandaríkjamenn eru hættir að framleiða til einkaþarfa, og telja því að okk- ur fari illa að láta hafa for- gangsrétt að skipsrúminu. Það er alveg augljóst, að eigi að endurheimta hina glötuðu tiltrú Bandamanna og tryggja hæfilegan matvælaflutning til landsins, verður nú að taka inn- flutningsmálin alveg nýjum tökum, tryggja brýnustu nauð- synjavöru ótvlræðan forgangs- rétt að skipsrúmi og útiloka all- an óþarfa og ónauðsynlegri varning meðan þær biða eftir flutningi. Annars er mikill háski fyrir dyrum. Listamannaþíngið Fyrsta listamannaþing á ís- landi hefst 22. þ. m. Mun það standa í átta daga. Ríkisstjóri verður verndari þess og flytur ávarp við setningu þess, er mun fara fram í hátíðasal háskólans Verkefni þingsins _ verður tvenns konar, annars vegar að ræða um hagsmunamál og sam tök listamanna, hins vegar að kynna almenningi eftir því sem við verður komið, hið bezta, sem íslenzkir listamenn hafa nú að bjóða, hver á sínu sviði. Tónlistarmenn munu efna til hátíðatónleika fyrir almenning hinn fyrsta dag þingsins og hafa einnig tónleika tvö kvöld (Framh. á 4. síðu) wer hershöfðingi, sem hefir stjórnað Evrópuher Banda- ríkjamanna um nokkurra mánaða skeið. Jafnskjótt o g innrásin var hafin, birti Roosevelt forseti á- varp til Frakka, þar sem hann sagði, að innrás þessi væri að- eins einn þátturinn í baráttunni fyrir friði og frelsi í heiminum, sem engu síður væri háð í þágu Frakka en annarra þjóða,, og myndi ameríski herinn strax fara úr nýlendum Frakka, þeg- ar styrjöldinni lyki, og þær þá verða afhentar Frökkum aftur. Strax og Vichystjórninni var kunnugt um innrásina, fyrir- skipaði hún ítrustu mótstöðu og Petain flutti útvarpsræðu, þar sem hann hvatjti Frakka til að verja nú vel heiður sinn. Jafnframt sleit Vichy-stjórn- m stjórnmálasambandi við Bandaríkin. Hinn frægi franski hershöfð- ingi, Giraud, sem slapp úr haldi hjá Þjóðverjum í vetur og komst til Sviss, berst nú með Bandamönnum. Hefir hann flutt útvarpsávarp til Frakka um að bletta ekki heiður sinn og vinna sjálfum sér ógagn með því að berjast gegn Banda- mönnum. Enn er naumast hægt að mynda sér fullt yfirlit um þess- Eisenhower og segjast gera sér góðar vonir um úrslit orustunar um Libyu, er nú sé að hefjast. Frá Danmörku berast þær fréttir, að Scavenius utanríkis- málaráðherra hafi myndað stjórn. Hann var þýzksinnað- asti maðurinn í fráfarandi rík- isstjórn. Þykir víst, að Þjóð- verjar hafi þvingað fram þessi stjörnarskipti. Þjóðverjar hafa nýlega skipt um sendiherra í Danmörku. Hefir yfirmaður úr þýzku leynilögreglunni verið gerður sendiherra þar. Boðar þetta hvorttveggja vafalaust ill tíðindi í Dan- mörku. I Rússlandi er nú aðallega barizt í norðurhlíðum Kákasus- fjalla. Á vígstöðvunum við . * * , ,. , Stalingrad og Tuapse hefir ar hernaðaraðgerðir, en þetta jÞjóðverjum ekkert orðið á- virðast staðreyndir: ! gengt. Hins vegar hefir þeim Borgm Algier er alveg á valdi orðið nokkuð ágengt við norð Bandamanna. Franska herliðið urhlíðar Kákasusfjallanna, þar þar hefir gefizt upp. > ' sem þeir reyna jöfnum höndum Hafnarborgin Oran er um- að brjótast fram til Grozny- kringd og flugvellir þar eru i olíulindanna^ og að ná yfirráð- höndum Bandamanna. Um Georgiuvegarins, sem er Báðar þessar borgir eru í Al- gier. En auk þessa hafa Ame- ríkumenn sett þar víðar lið á land. m. a. á nokkrum stöðum milli Algierborgar og landa- mæra Tunis. í Marokko hafa Ameríkumenn tekið borgirnar Rabat og Ag- adir, en umkringt flotahöfnina í Casablanca. Þeir hafa víðar sett lið á land í Marokko. Flugher Bandamanna tekur mikinn þátt í hernaðaraðgerð- um og hefir m. a. varpað niður flugmiðum í stórum stíl, til þess að reyna að vinna fylgi í- búanna. í París kom til verulegra ó- eirða í gær. Orustunni um Egiptaland er lokið að þessu sinni. Meginher Rommels hefir hörfað inn fyr- ir landamæri Libyu og er her Bandamánna kominn til landa- mæranna. Nokkrar hersveitir öxulríkjanna verjast enn í Egiptalandi, en vörn þeirra er talin vonlaus. Tjón öxulherjanna er orðið gífurlegt. Tala fanga mun þeg- ar vera um 40 þús., en fjöldi hermanna þeirra hefir fallið. Mörg hundruð flugvéla og skriðdreka hefir eyðilagzt og á annað þúsund herbyssur hafa fallið í hendur Bandamanna. Bandamenn eru mjög gunn- reifir eftir þennan mikla sigur eini greiðfæri vegurinn yfir fjöllin, þegar sleppt er veginum meðfram ströndum Svartahafs og Kaspíahafs. Georgiuvegurinn verður Þjóð- verjum áreiðanlega ekki auð sótur. Við Ordzhonikikúlze, en þangað sækja nú Þjóðverjar, er hann kominn í 1100 feta hæð, en síðan hækkar landið óðum, unz komið er í 7000 feta hæð og er þar um alllangt einstigi að fara. Varnarskilyrði eru víða hin beztu fyrir Rússa. Þjóðverjar verða að fara að hraða sér i Kákasus. Á sléttun- um norðan Kákasusfjalla eru venjulega miklir snjóar frá því í byrjun desember og til fe- brúarloka. Kaldir norðanvind- ar blása þá um slétturnar og er veðráttan þar þá engu betri en t. d. í Moskvu. Engar verulegar hemaðaraðgerðir munu geta átt sér stað á þeim tíma árs. Þess ber þó að gæta, að Þjóð- verjar eru nú betur búnir undir vetrarhernað en í fyrra. Þeír hafa bætt útbúnað hersins með tilliti til reynslunnar þá, viðað að hernum miklum vetrarfatn- aði, æft fjölmennar skíðaher- deildir o. s. frv. En allt mun þetta þó gert í varnarskyni, þvi að sóknartækjunum, eins og skriðdrekum og flugvélum, verður ekki beitt að ráði meðan veturinn í Rússlandi stendur yfir. Á víðavangi VÖRÐUR VÍSINDA OG FRJÁLSLYNDIS HJÁ ALÞÝÐUBLAÐINU. Merkur bóndi á Suðurlandi kemst nýlega svo að orði í bréfi: „Varla held ég að útvarpið hefði þurft að fá Jóhann Sæmunds- son til að fræða fólk á því, að kjöt og mjólk væri holl fæða. Það hélt ég að allir vissu.“ Þessi bóndi þekkir sjáanlega ekki aðalvísindamann Alþýðu- blaðsins. Hann kvað vera kall- aður Hannes á Horninu. Þessi „vísindamaður" þykist þess um- kominn að gefa Jóh. Sæmunds- syni vitnisburð fyrir lærdóm og fræðimennsku almennt og sér í lagi fyrir erindið, sem hann átti að flytja fyrir kosningarn- ar sem „talsmaður Alþýðu- flokksins." Má mikið vera ef hann útnefnir ekki Jóhann bráðum sem „heiðursdoktor Al- þýðublaðsins.“ Þessi vísindamaður Alþýðu- blaðsins, sem kvað hafa fælt ófáa lesendur þess yfir til Þjóð- viljans, virðist telja það of- beldi, ef erindi er frestað um nokkra daga í útvarpinu, hvað þá heldur ef boðnu erindi væri synjað um flutning. Þeim ferst illa í Alþýðublað- inu að tala um ofbeldi eða ó- frjálslyndi. Vitað er að fulltrúi Alþýðuflokksins í útvarpsráði lagðist á móti því að Sverrir Kristjánsson fengi að flytja ritskoðað erindi um rússnesku byltinguna, 7. nóv. sl. VALTÝR ÚRILLUR. Sj álfstæðismenn hafa jafnan haft margfaldan blaðakost móts við Framsóknarmenn. Um eitt skeið höfðu þeir milli 10 og 20 blöð og tímarit á móti Tím- anum einum. Sjálfstæðismenn hafa jafn- an beitt blöðum sínum af fullri grimmd gegn andstæðingum sínum og ekki sparað tilraunir til að rýja þá viti, æru og mannorði. Af skiljanlegum á- stæðum hefir Tíminn ekki haft rúm til að elta ólar við allar slíkar sendingar. Hann hefir því tekið upp eins konar skæru- hernað á móti. í víðavangsdálki sínum hendir hann eiturskeyti mótstöðumanna sinna á lofti og ýmist sendir þau aftur, svo að þeim verður geigur að eigin vopnum, eða „setur þau niður“ með nokkrum vel völdum orð- um, eins og hverja aðra drauga. Hinir þungvopnuðu ritklauf- ar Morgunblaðsins hafa oft verið hraktir á flótta með rif- inn bjór af smáklausum á víða- vangi Tímans. Hin þungu vopn hafa ekki dugað þeim fremur en sprengjuflugvélar megna að verja sig gegn hraðfleygum og skotfimum orrustuvélum. Oftast hafa þeir reynt að binda sár sín í kyrrþey. En nú hafa taugar Valtýs og minni- máttarkennd hlaupið með hann í gönur, svo að hann kvartar hástöfum yfir illri meðferð á sér. Og af því að hann veit þá skömm upp á sig að hafa reynt að skrökva æruleysissökum á Jón Eyþórsson, óttast hann að dagur hefndarinnar sé kominn og að það sé Jón, og enginn annar, sem verst hafi leikið sig á víðavangi Tímans. — „Illur á sér jafnan ills von“, og það er viðurkennd regla, að ólánámenn hatast jafnan mest við þá, sem þeir hafa gert rangt til. Svo virðist vera um þenna orðlistarmann Morgunblaðs- ins. — En. allir golþorskar í Faxaflóa hlóu, þegar þeir heyrðu Valtý frænda sinn fara að kalla aðra „fífl“, „andleg kóð“ o. s. frv. ÚR KJÖRKASSANUM. Ekki finnst mér verzlað vel, veiklast frelsis bjarminn, að selja fyrir síldarmél sannfæringar garminn. Ji

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.