Tíminn - 28.11.1942, Side 4

Tíminn - 28.11.1942, Side 4
143. blað \TV, langardaglim 38. n6v. 1943 564 <JR BÆNVIM Skemmtisamkoma. Pramsóknarmenn í Reykjavík halda skemmtun í Oddfellowhúsinu n. k. miðvikudagskvöld, 2. desember. Hefst hún með Framsóknarvist. Ef dæma má eftir vinsældum þeim, er þessar samkomur hafa hlotið, þá er vissara fyrir fólk, sem sækja ætla samkom- una, að tryggja sér aðgöngumiða sem fyrst á afgreiðslu Tímans. BlaSamannakvöIdvaka var í Oddfellowhúsinu á þriðju- daginn. Sverrir Kristjánsson sagnfræð- ingur var þulur kvöldsins. Skúli Skúla- son ritstjóri sagði gamansögur frá Noregi, Kjartan Gíslason skáld las kvæði, Guðbrandur Jónsson prófessor flutti langa ræðu (og hefði sú ræða gengið hneyksli næst, ef ábyrgari mað- ur hefði átt hlut að), Kristmann Guð- mundsson rithöfundur las sögukafla, Maríus Sölvason söng einsöng, Þorvald- ur Steingrimsson lék á fiðlu við mikla hrifningu og Ólafur Beinteinsson og Sveinbjörn Þorsteinsson sungu tvisöng. Pór kvöldvakan ágætlega fram að vanda, ef frá er skilin ræða prófessors- ins. Árás á konu. Á fimmtudagskvöldið var réðist Bandaríkjamaður á konu, er var á ferð í Höfðahverfi. Greip hann fyrir munn henni og varpaði henni á götuna, svo að hún hlaut af nokkurn áverka. Reyndi hann síðan að draga hana út á túnblett í grendinni, en þá tókst konunni að berja árásarmanninn með regnhlíf sinni og sleppa úr klóm hans. Lögreglan var kvödd á vettvang, en ekki tókst að finna sökudólkinn. Árás í Hafnarfirði. Fimmtudagskvöldið réðust tveir Bandaríkjahermenn á mann á götu í Hafnarfirði og börðu hann. Lögreglan tókst að handsama tilræðísmennina. Borunin hjá Rauðará. Undanfarið hefir verið borað eftir heitu vatni hjá Rauðará. Er búið að bora niður á 190 m. dýpi. Er árangur- inn þegar orðinn all góður. Vatnsmagn í borholunni nemur 2(4 lítra á sekúndu og er það 90 gráða heitt. Til saman- burðar má geta þess, að á Reykjum fást 200 lítrar á sek. af 87 gráða heitu vatni, en þar hefir verið grafið lengst niður 685 metra. Boruninn hjá Rauð- ará verður haldið áfram. Það vatn, sem þegar hefir fengist þar, myndi nægja til að hita upp Austurbæjar skólann og sundlaugina þar. Samband ungra jafnaðarmanna hefir nýlega haldið þing hér í bæn- um. Friðfinnur Ólafsson var endurkos- inn formaður þess. Bygging sjómannaskólans er nú hafin. Hófst vinna við bygg- ingu á þriðjudaginn. Verður hún um 1300 ferm. að stærð, auk vélahúss og lejkfimihúss, og mun kosta um eina milljón kr. í byggingunni verður hús- næði fyrir stýrimannaskólann, vél- stjóraskólann, loftskeytaskólann og matsveinaskólann. Eins og áður hefir verið sagt frá, hafði skólanum verið boðin allstór lóð á Vatnsgeymishæð- inni. Danska félagið í Reykjavík (Det Danske Selskab i Reykjavík) hefir nýlega haldið aðal- fund sinn. Pormaður var kosinn O. Kornerup Hansen heildsali í stað Sv. A. Johansen heildsala, er baðst undan endurkosningu. Aðrir í stjóminni eru: K. A. Bruun gleraugnasérfræðingur, Johs Lundegaard verkfræðingur, A. Herskind framkvæmdastjóri og A. P. Nielsen verkstjóri. Loftvarnarmerki verða ekki gefin framvegis hér í bænum, nema þrjár óvinaflugvélar eða fleiri séu nær bænum en 50 km. Áður hafa verið gefin merki, þótt ekki yrði vart nema einnar óvinaflugvélar. Þrír dómar hafa nýlega verið kveðnir upp í lög- reglurétti Reykjavíkur yfir mönnum, sem hafa ekið bifreiðum undir áhrifum áfengis. Einn þeirra var dæmdur i 10 daga varðhald og sviptur ökuleyfi í 3 mánuði. Annar í 300 króna sekt og sviptur ökuleyfi æfilangt, og sá þriðji hlaut 10 daga varðhald og ökuleyfis- missi í þrjá mánuði. Þá hlutu tveir menn dóm fyrir að veita bifreiðastjór- um vín, og hlaut annar 200 og hinn 300 króna sekt. Hinn síðamefndi einn- r -’t °ð kaupa áfengi af setuliðinu. flnndur ljósgulur, með gráleita rófu, stór uppstandandi eyru, nafn Obbi, tapaðist frá Alviðru í Ölf- usi. Hver, sem yrði hans var, er beðinn að gera aðvart í síma Alviðru, gegn ómakslaunum. Óskilahestur í óskilum á Hlíðarfæti i Strandarhreppi, ljósjarpur hest- ur, styggur, járnaður á aftur- fótum. Mark: Sýlt, biti framan vinstra. Réttur eigandi vitji hans strax. Vinnlð ötullega fyrir Tínuuin. Vélbátur strandar Vélbáturinn „Þórður Sveins- son” strandaði hjá Arnarstapa á Snæfellsnesi aðfaranótt fimmtu dagsins síðastliðinn. Var þoka mjög dimm, þegar skipið strand- aði. Á skipinu voru 8 menn og fóru þeir allir í skipsbátinn rétt eftir strandið. Héldu þeir sig utan brimgarðsins, unz birti. Menn í landi urðu varir við, er skipið strandaði, og fóru tví- vegis út á báti til að huga að skipverjum, en komust í hvor- ugt skiptið að skipinu, sökum brims. í seinni ferðinni fundu þeir skipsbátinn, þar sem skip- verjar voru, og vísuðu þeim til Arnarstapa. Þar sem skipið strandaði éru klettar og stórgrýtisurð og ó- mögulegt að lenda. Ef veður hefði verið verra, myndu skip- verjar áreiðanlega hafa farizt. Þegar seinast fréttist, var brimið búið að brjóta skipið i spón. „Þórður Sveinsson“ var 111 smál. að stærð, tæplega fjög- urra ára gamall, smíðað í Svi- þjóð. Eigandi þess var Óskar Halldórsson. Skipið var í flutn- ingum. Ræðismeim Islands í Vesturheími (Framh. af 1. siðu) blað þeirra Björnsson-feðga, Minneota Mascot, én fluttist ár- ið 1935 til tvíbæjanna, Minnea- polis og St. Paul. Þar hefir hann síðan starfað sem blaðamaður við Minneapolis Tribune og fréttamaður (commentator) við útvarpsstöðina KSTP. Richard Beck er fæddur 9. júní 1897, á Svínaskálastekk í Reyðarfirði. Hann lauk stú- dentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1920 og kom skömmu síðar til Ameríku. Lagði hann stund á norræn fræði við Cornell háskóla, Ithaca, og tók þar meistarapróf (M.A.) 1924 og doktorspróf (Ph.D.) 1926. Kenndi hann um tíma við St. Olaf College í North- field, Minnesota, en frá því 1929 hefir hann verið prófessor í Norðurlandamálum og bók- menntum við háskóla North Dakotaríkis í Grand Forks. Síð- an 1940 hefir Richard Beck ver- ið forseti Þjóðræknisfélags ís- lendinga í Vesturheimi. Stefán Einarsson er fæddur á Höskuldsstöðum í Breiðdal 9. júní 1897. Hann útskrifaðist úr Menntaskólanum í Reykjavík árið 1917 og stundaði síðan nám i norrænu við Háskóla íslands og lauk þaðan meistaraprófi 1923. Stundaði Stefán fram- haldsnám við háskólann í Hels- ingfors í Finnlandi, og lagði einkum stund á hljóðfræði (phonetics). Var það í þeirri grein, sem hann skrifaði dokt- orsritgerð sína, og var hún við- urkennd af háskólanum í Oslo árið 1927. Sama ár kom Stefán til Bandaríkjanna og hefir síð- an verið prófessor við Johns Hopkins University í Baltimore. Barði Skúlason er fæddur 19. janúar 1871 að Reykjavöllum í Skagafirði. Hann var aðeins fimm ára er hann fluttist til Vesturheims. Barði er útskrif- aður frá háskóla North Dakota- ríkis. Síðan 1897 hefir hann stundað lögfræðistörf og verið búsettur í Portland, Oregon í mc:r en 30 ár. Magnús Magnússon er fæcic’ur 1. janúar 1897 á ísafirði. Hefir hann stundað sjómennsku frá unga aldri, og gengið í sjó- mannaskóla, bæði í Englandi og í Bandaríkjunum. Magnús hefir verið búsettur í Bandaríkjunum í 26 ár og gegndi herþjónustu í síðasta stríði. Hann hefir i mörg ár verið skipstjóri í Boston á eigin skipi, sem heitir Hekla. Nú sem stendur er Magnús liðs- foringi (lieutenant) i U. S. Coast Guard. Lesendur! Vekið athygli kunningja yð- ar á, að hverjum þeim mannl, sem vill fylgjast vel með al- mennum málum, er nauðsyn- legt að lesa Tímann. Nýmæli frá Alþíngi Nokkrar nýjar venjur virðast nú hafa verið teknar upp á Al- þingi. Eru þær m. a. þessar: 1. Máli var útbýtt á þing- fundi áður en Alþingi var búið að samþykkja kosningu þing- manna. 2. Forseti efri deildar er kos- inn í fastanefnd í deildinni. 3. Á fundi í neðri deild þriðjudaginn 24. nóv. tilkynnti forseti, að á dagskrá miðviku- dagsins væri til fyrstu umræðu mál, sem flutt var í efri deild af þingmanni þar. 4. Miðvikudaginn síðastliðinn fékk Möller fjárlagafrumvarpið tekið á dagskrá, en þar var það til 1. umræðu. Var hann ekki tilbúinn að afhenda málið fjár- veitinganefnd, en þó var Ólafur Thors að illskast yfir því fyrra föstudag, að nefndin var ekki kosin þá og taldi það tefja þing- ið um 3 daga. Allt eru þetta nýir siðir, sem Sjálfstæðisflokkurinn hér er að innleiða, en siðir, sem ekki ættu að verða til eftirbreytni. Starfsemi Ferðafélags Islands fimmtán ár (Framh. af 1. síðu) það bent sem dæmi um athafn- ir Ferðafélagsins, að nú er þangað kominn bílfær vegur, myndarlegt og vistlegt sælu- hús risið upp , komin út ágæt bók um fjöllin, prýdd mörgum myndum, teikningum og kort- um og öllum hinum helztu stöð- um verið gefin smekkleg og viðeigandi nöfn. Nýr uppdráttur af íslandi. Um þessar mundir er félagið að láta prenta uppdrátt af ís- landi í Washington. Verður það bezti heildaruppdráttur af landinu, sem völ er á; og leið- réttar, samkvæmt nýjum mæl- ingum, ýmsar skekkjur eldri uppdrátta. Ágúst Böðvarsson teiknaði þetta kort. Hlutföllin eru 1:750000. Deildin á Akureyri. Ferðafélagsdeildin á Akur- eyri hefir valið sér það sérstak- lega verkefni að gera bíl- færan veg úr Eyjafirði suður á Hveravelli. Er þegar búið að ryðja veg langleiðina upp á Vatnahjalla. „Fjallamenn“. Féiagið „Fjallamenn", sem Guðmundur frá Miðdal stofnaði og hefir stjórnað, er einnig skoðað sem deild í Ferðafélagi íslands og nýtur ofurlítils fjár- styrks frá þvi. Hafa „Fjalla- menn“ reist sæluhús á Fimm- vörðuhálsi. Forsetar félagsins. Fyrsti forseti Ferðafélagsins var Jón heitinn Þorláksson. Næstur varð forseti þess Gunn- laugur læknir Einarsson, þá Jón Eyþórsson og loks Geir G. Zoéga vegamálastjóri, er gegn- ir því starfi nú. Ferðafélag íslands er þjóð- þrifastofnun, sem Tíminn óskar alls þrifnaðar og velfarnaðar. Stúdentar vilja tá umbótastjórn (Framh. af 1. siðu) ar í stað, í stað þess að eyða dýrmætum tíma í einskisverðar innbyrðis deilur. Þess vegna skorar fundurinn á fulltrúa þessara flokka á Alþingi, að virða það traust, sem þjóðin hefir borið til þeirra, með því að trúa þeim fyrir málefnum sínum á slíkri hættustund, og nota umboð sitt á Alþingi til að bægja frá landi og þjóð, með sameiginlegu átaki, þeim hætt- um, sem steðja að.“ Tilboð óskast í refabúið í Álfsnesi, éign H.F. Búi. IJpplýsingar geía Jón Guðjónsson, sími 4335 Rvík og Kolb. Högna- son Kollafirði, sími um Brúarland, sem taka á móti itlboðum. „Með sæmd var stríðið báð“ (Framh. af 3. síðu) segja, að Snæfellingum leizt prýðilega á Bjarna Bjarnason. Framsóknarmönnum í hérað- inu var ljúft að treysta slíkum manni til forustu, og auk þess hnigu til fylgis við hann fjöl- margir menn, sem líkaði svo vel við manninn, skoðanir hans og framkomu, að þeir vildu hafa hann sem sinn umboðsmann á Alþingi. Sjálfstæðisflokkurinn sendi einn af þeim mönnum úr sínum hóp, sem þeir höfðu mest beitt til framboðs á undangengnum árum við hlið sinna eldri manna. Ólafur Thors fór vestur og hélt almennan fund með kjósendum flokksins til fram- dráttar Gunnari Thoroddsen. Vorkosningin var sótt á viðun- andi hátt. Tóku þátt i henni um 80% af kjósendum. Bjarni Bjarnason náði kosningu með mjög myndarlegum meirahluta. Hann hafði enga aðstoð fengið utan frá. Hann átti sigur sinn eingöngu að þakka starfi sinu og framkomu og mjög ein- dregnu hugsjónafylgi framfara- mannanna í héraðinu. Gunnar Thoroddsen beitti sér með elju en nokkuð hóflega. Fylgismenn hans bjuggust eindregið við sigri, og er ekki vitað, að þeir hafi beitt óvenjulegum áróðri við vorkosninguna. VI. Þegar það fréttist, að Bjarni Bjarnason hefði unnið kosningu á Snæfellsnesi, vakti það hóf- lausa gremju í hugum all- margra af hinum æstustu áróð- ursmönnum Sjálfstæðisflokks- ins. Allt öðru máli var að gegna um betri menn flokksins, bæði á Snæfellsnesi og annars stað- ar. Þeir viðurkenndu, að Bjarni Bjarnason hefði unnið leikinn með fullum drengskap. Hann hafði enga aðstoð haft nema persónulega yfirburði og góðan málstað. Hin myrku öfl á útjöðrum Sjálfstæðisflokksins virðast hafa ákveðið að spara enga fyrirhöfn eða úrræði til að fella Bjarna Bjarnason í haustkosn- ingunni. Skiþuðu þessháttar menn sér niður í kjördæmið. Er talið, að um það bil tvennar tylftir hafi dreift sér um Snæ- fellsness- og Hnappadalssýslu. Stóð brasklýður Reykjavíkur þar að baki öllum þeim mönn- um. Þessi fjölmenni hópur dreifði sér vikum saman um kjördæmið eingöngu í áróðurs- skyni. Þar voru ekki rædd landsmálin, enn síður skipu- lega hugsað um framtíð sýsl- unnar og framfaramál hennar. Hér skal ekki farið út í þá sálma, hvaða röksemdum þess- ir aðkomnu sjálfboðaliðar beittu. Alþingi hefir fyrirskipað rannsókn út af framferði þess- ara manna, og má telja senni- legt, að hún bregði nokkurri birtu yfir vesturgöngu þessara óeigingjörnu Reykvíkinga. Það eitt má segja um alla þessa sjálfboðaliða, að þeir voru á því menningarstigi, að eng- inn þeirra hefði getað gert grein fyrir nokkurri landsmála- skoðun opinberlega, hvorki í ræðu né riti. Bjarni Bjarnason hafði undir mjög erfiðum kringumstæðum á sumarþinginu gert marghátt- aðan undirbúning að marghátt- uðum framfaramálum héraðs- ins, í samráði við áhugamenn sýslunnar. Honum tókst jafn- vel að hrinda í framkvæmd brúarbyggingu yfir Svelgsá, til stórmikils hagræðis fyrir tvær sveitir. Hefir sú brú lengi verið á döfinni. Á sama hátt vann hann að mörgum hinum stærri málum, svo sem rafveitu kaup- túnanna þriggja. Kosning Bjarna Bjarnasonar var eins og vorboði í félagslífi Snæfellinga. Framfaramenn sýslunnar fundu, að þeir höfðu fengið forvígismann, sem var allra manna bezt undirbúinn að skilja vandamál þeirra og lík- legur til að ráða fram úr svo að sem bezt mætti fara. Fundirnir í haust urðu til að fjölga með eðlilegum hætti fylgismönnum Bjarna Bjarna- sonar. En hinir mörgu áróðurs- menn fjölguðu með sínum að- ferðum andstæðingum hans. Fólk, sem aldrei hafði kosið áð- ur, var sótt og' flutt á kjörstað. t—.... GAMLA BÍÓ—------ { Æska Edísons (Young Tom Edison). 1 Aðalhlutv. leikur: MICKEY ROONEY. Sýnd kl. 7 og 9. Kl. 314—-6V2: „FÁLKINS“ Á VEIÐUM. með George Sonders. Börn fá ekki aðgang. — NÝJA BÍÓ —— Ævíntýrí ! á ijöllum (Sun Valley Serenade). j Aðalhlutverk: I SONJA HENIN, I JOHN PAYNE, GLENN MILLER og hljómsveit hans. Sýnd kl. 5, 7 og 9. Indriði iniðill f Þetta er rammasta draugasaga eða merkasta rit um spiritistisk fyrirbæri, sem hér hafa gerst. Sagan af Indriða miðli er skráð af Þórbergi Þórð- arsyni og er heimildarmaður hans Brynjólfur Þórð- arson, organisti, sem var á flestum fundum Indriða. Bókin er í senn merkilégt heimildarrit um þennan merka mann og fyrirbærin, sem gerðust í sambandi við hann, og frábærilega skemmtilegt verk, en hú hefir þó fyrst og fremst gildi, sem bókmenntir sökun óvenjulegra hæfileika Þórbergs Þórðarsonar, sem sagnaritari. Mállaus og heyrnarlaus stúlka S var látin kjósa móti Bjarna, og ! kennt að gefa vísbendingu um, j hver ætti að hjálpa henni við ; athöfnina. Niðurstaðan varð sú, með öll- ! um þessum feikna áróðri sjálf- ! boðaliðanna úr Reykjavík, að Gunnar fékk rúmlega 30 at- kvæði frarp yfir Bjarna. VII. Fyrri kosningin sýndi hug Snæfellinga, þegar þeir voru einráðir gerða sinna. Sama kosningin .sýndi, hve mikill þróttur er í Snæfellingum, að Bjarni Bjarnason skyldi með málstað sínum og hæfileikum komast svo nærri fullum sigri, þar sem svo rammefldur áróð- ur óviðkomandi manna var hafður í frammi. Það mátti kalla hæðni örlag- anna að Bjarni Bjarnason, sem öllum þingmönnum fremur hef- ir lagt stund á að auka drengi- leg skipti í landsmálasviðinu, skyldi vera sóttur með göldrum hinna sjálfboðnu og menntun- arlausu áróðursmanna úr Reykjavík. En einmitt þessi munur í aðferðum hefir mesta þýðingu fyrir Snæfellsnes. Sú staðreynd, að Bjarni Bjarna- son vann eingöngu með and- legum og siðferðilegum yfir- burðum hefir orðið til stór- kostlegrar vakningar í sýslunni. Barátta Bjarna Bjarnasonar á Snæfellsnesi er byrjun að nýju framfara- og framkvæmda- tímabili á Snæfellsnesi. Fram- ganga umbótamannanna í sýslunni er svo glæsileg, að henni verður ekki gleymt. Bjarni Bjarnason mun halda áfram að sinna málum Snæ- fellinga. Hann mun oft verða þar á ferð, þó að hann sé ekki þingfulltrúi héraðsins. Hann mun verða í ráðum með fram- faramönnum sýslunnar um öll þau málefni, sem mestu skipta. Þeir margháttuðu yfirburðir, sem hafa gert Bjarna Bjarna- son að svo stórvirkum land- námsmanni á Laugarvatni munu hjálpa honum til að eiga góðan þátt á nsestu árum í því mikla efnalega, andlega og fé- lagslega landnámi, sem er að gerast á Snæfellsnesi. Hið fagra og góða hérað, sem verið hefir kúgað svo lengi af dönskum og hálfdönskum afætum nýtur nú þess, að hafa framvegis við lausn sinna vandasömustu mála þann mann, sem hefir barizt með sæmd og fullum dreng- skap svo að minningin um framgöngu hans mun lengi lifa í pólitískum annálum þjóðar- innar. J. J. Egill Sigurgeirsson hæstarétta málaflutningsmaður Austurstræti 3 — Reykjavík Dvöl Dragið ekki lengur að gerast áskrifendui' að Dvöl, þessu sérstæða tímarlti I islenzkum bókmenntum. — Ykkur mun þykja vænt um Dvöl, og þvi vænna um hana sem þið kynnizt hennl betur. Skrifið eða slmið til Tlmans og tilkynnið honum nýja áskrií- endur. Simi 2323. Á víðavaiigi. (Framh. af 1. síðu) | t. d. vinnubrögð þýzku nazist- anna áður en þeir tóku öll völd í sínar hendur. Þeir gerðu bandalag við aðra flokka og sviku síðan öll loforð, rufu samstarf og öfluðu sér nýrra bandamanna til að svíkja. En Morgunblaðið ætti jafn- framt að líta í eigin barm, lita yfir feril Sjálfstæðisflokksins á síðasta ári og bera starfshætti hans saman við aðferðir „ein- ræðisflokka í öðrum löndum“. Því að, hvaða flokkur hefir skapað hér glundroða í stjórn- málum, ef ekki Sjálfstæðis- flokkurinn? Um áramót í fyrra gerir hann bandalag við Fram- sóknarflokkinn um lausn á- kveðinna mála. Á útmánuðum rýfur hann þessa samr.ípga og gerir bandalag við verka- mannaflokkana. Og nú þykist hann vílja gera bandalag við alla þihgf okka, til að geta blekkt þá nlla í einu og skapað enn meiri g und- roða. í haust sögðu blöð Sjál.t tæð- isflokksins og ræViuaenn þeirra í útvarpinu, að alU væri í lagi, öllum liði vel — allir hefðu nóga peninga. Nú segja þessi sömu blöo, að allt sé að hrynja. Björn Ólafs- son segir, að nú verði að bjarga þvi, sem bjargað verður á ell- eftu stundu. Sjálfstæðisflokkurinn hefir lagt allt kapp á að skapa glund- roða í þinginu — og tekizt það!

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.