Tíminn - 22.12.1942, Page 1
RITSTJÓRI:
ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON.
FORMAÐUR BLAÐSTJÓRNAR:
JÓNAS JÓNSSON.
ÚTGEFANDI:
FRAMSÓKN ARFLOKKURINN.
RITST JÓRASKRIFSTOFUR:
EDDUIIÚSI, Llndargötu 9 A.
Símar 235J og 4373.
AFGREIÐSLA, INNHEI..ITA
OG AUGLÝSINGASKRIFSTOFA:
EDDUHÚSI, Llndargötu 9 A.
Síml 2323.
PRBNTSMIÐJAN EDDA hJ.
Simar 39 og 3720.
26. ár.
Reykjavík, þriðjudagiim 22. des. 1942
152. blað
011 verðhækkun stoðvuð tíl
næstu febrúarloka
Vínstrí stjórn
Viðræður hainar miili
F r amsókuar iÍoKksius
Alþýðuíiokksius og
Sósíaiistattokksins
Fyrir forgöngu Framsóknar-
ílokksins eru nú hafnar við'ræö-
ur um myndun þriggja flokka
stjórnar, þ. e. Framsóknar-
flokksins, Alþýðuílokksins og
Sósialistaíiokksins.
Hver þessara flokka hefir til-
neínt þrjá menn í sameiginiega
nefnd. Framsóknarflokkurinn
tilnefndi Eystein Jónsson, Skúla
Guðmundsson og Steingrim
Steinþórsson, Alþýðuflokkurmn
tilnefndi Harald Guðmundsson,
Barða Guðmundsson og Gylfa
Gíslason, og Sósíalistaflokkurinn
Brynjólf Bjarnason, Sigfús Sig-
urhjartarson og Áka Jakobsson.
Fyrsti fundur þessarar nefnd-
ar var haldinn i gær.
Að svo stöddu verður litlu um
það spáð, hver niðurstaða þess-
ara viðræðna veröur. Stafar það
af því, að afstaða Sósíalista-
flokksins er enn ekki með öllu
ljós. Það er enn ekki sýnt, hvort
meirihluti foráðamanna ílokks-
ins vill frekar starfa að fram-
kvæmd frjálslegrar, róttækrar
stjórnarstefnu en vinna áfram
á byltingargrundvelli, þ. e. auka
stjórnaröngþveitið og upplausn-
ina í von um aukna möguleika
fyrir byltingu.
Margt, sem komið hefir frá
forráðamönnum sósíalista í
seinni tíð, bendir til að hugur
þeirra hneigist I fyrri áttina
miklu meira en áður. Þó virðist
enn brydda nokkuð á hinum
fyrra hugsunarhætti. Samning-
ar þeir, sem nú eru hafnir,
munu leiða í ljós, hvort hinár
frjálslyndu yfirlýsingar sósial-
ista eru alvara eða leikur einn,
sem á að ginna frjálshuga kjós-
endur.
En hver, sem niðurstaðan
verður, er það ljóst, að mikill
meirihluti af kjósendum Sósíal-
istaflokksins eru sama hugar og
kjósendur Framsóknar- og Alþ.-
fl. um það, að bændum og
verkafólki sé það hagkvæmast
og hollast að vinna saman að
framkvæmd frjálslegrar og rót-
tækrar stjórnarstefnu. Þannig
hafa þessar stéttir þokað mál-
um sínum bezt áleiðis hingað til
og svo mun enn verða. Þess
vegna er það áreiðanlega, ein-
læg ósk þeirra kjósenda, sem
þessa flokka styðja, að samn-
ingar þeir, sem nú eru hafnir,
megi vel og giftusamlega takast.
Fyrsta verk nýju ríkísstjórnarmnar
í dýrtíðarmálunum
Nýja ríkisstjórnin lagði fyrsta frumvarp sitt, sem fjall-
aði um bindingu verðlags til 1. marz 1943, fyrir Alþingi
síðastl. laugardag. Samkvæmt ósk ríkisstjórnarinnar
var frumvarpið afgreitt frá þinginu samdægurs, enda
mætti það engri teljandi mótspyrnu af hálfu þingmanna.
Þessar undirtektir þingsins bera það með sér, að fyrir
löngu hefði mátt ná samkomulagi um slíka verðfestingu,
ef fráfarandi stjórn hefði reynt að beitast fyrir því. Það
er ein þyngsta sök þeirrar stjórnar, að hún gerði aldrei
minnstu tilraun til að beitast fyrir ráðstöfunum gegn
dýrtíðinni.
Nýr ráðherra
Á ríkisráðsfundi í gær var Jó-
hann Sæmundsson læknir skip-
aður félagsmálaráöherra.
Settír í embætti
Bankaráð Landsbankans hef-
ir ráðið aðalbókara bankans,
Jón Maríasson, til að vera
bankastjóri í stað Vilhjálms
Þórs, meðan hann gegnir ráð-
herrastörfum.
Kristján Kristjánsson, fulltr.
lögmanns, hefir verið settur lög-
maður meðan Björn Þórðarson
gegnir ráðherrastörfum.
Enn hefir ekki verið ákveðið,
hver muni taka sæti Einars
Arnórssonar í hæstarétti. Sam-
kvæmt lögum eru lagakennarar
við háskólann varamenn hæsta-
réttadómara. Mun því annar
hvor þeirra Ólafs Lárussonar
eða ísleifs Árnasonar taka sæti
Einars meðan hann er ráðherra.
Frumvarp stjórnarinnar var
borið fram sem breyting á lög-
unum um dómnefnd í verðlags-
málum, er samþykkt voru á
sumarþinginu í stað gerðar-
dómslaganna. í þinginu var
orðalagi frv. nokkuð breytt. Fer
það hér á eftir, eins og þingið
gekk frá því:
„Ríkisstjórnin getur ákveöið
meö auglýsingu, að ekki megi
frá útgáfudegi auglýsingar og
þar til nánar verður ákveðið,
þó eigi lengur en til loka fe-
brúarmánaðar 1943, selja
nokkra vöru í heildsölu eða
smásölu, innlenda eða erlenda
við hærra verði en lægst var á
henni á hverjum stað hinn 18.
des. 1942. Sams konar bann við
hækkun verðlags má og láta
taka til farmgjalda og flutninga
á landi, sjó og lofti, viðgerða,
smíða, saumaskapar, prentunar
og annars slíks. Ef ágreiningur
eða vafi verður um það, við
hvaða verðlag skuli miða, sker
dómnefnd úr.
Dómnefnd skal hafa eftirlit
með öllu verðlagi, og hefir hún
bæði af sjálfdáðum og að fyr-
irlagi ráðuneytisins vald og
skyldu til að ákveða hámarks-
verð á hvers konar vöru og verð-
mæti, sem f 1. málgrein segir,
þar á meðal hámark álagning-
ar, umboðslauna og annarrar
þóknunar, sem máli skiptir um
verðlag í landinu. Svo getur
dómnefnd og úrskurðað um aðra
kostnaðarliði, sem máli skipta
um verðlagningu á vöru. Þá get-
ur dómnefnd ákveðið greiðslu
fyrir flutninga, viðgerðir, smíð-
ar, saumaskap, prentun og því
um líkt.
Ákvæði 1. og 2. málsgr. taka
ekki til vörutegunda, sem verð-
lagðar eru samkvæmt sérstök-
um Iögum, né til vöru, sem seld
er úr landi, eða launa fyrir
verk, sem ákveðin hafa verið
með samningum milli réttra að-
ilja.“
Lögin hlutu staðfestingu rík-
isstjóra strax og Alþingi hafði
gengið frá þeim. Jafnskjótt birti
ríkisstjórnin auglýsingu, þar
sem bannaðar voru hækkamr á
öllum vörum, sem ekki njóta
sérstakrar undanþágu í lögun-
um farmgjöldum, viðgerðum,
smíðum, saumaskap, prentun og
öðru slíku.
í umræðunum í þinginu upp-
lýsti viðskiptamálaráðherra
þetta:
Verðlagsnefndir landbúnaðar-
vara hafa lýst yfir því, að þær
muni ekki hækka vörurnar á
umræddu tímaþili, nema með
samþykki landbúnaðarráðherra.
Alþýðusamband íslands hefir
lýst yfir því, að engar grunn-
kaupshækkanir. er máli skipta,
skyldu eiga sér stað á þesssum
tíma.
í tilefni af fyrirspurn lýsti
landbúnaðarráðherra, Vilhjálm-
ur Þór yfir því, að hann myndi
ekki leyfa hækkun landbúnað-
arvara á þessum tíma, nema
gerð yrði breyting á þessum lög-
um eða grunnkaup hækkaði svo
að slíkar verðhækkanir yrðu
sjálfsagðar.
Frá umræðiinum.
Talsverðar umræður urðu í
þinginu. Aðallega voru það
Sjálfstæðismenn, sem töluðu.
Yfirleitt gerðu þeir heldur lítið
úr frumvarpinu og töldu á því
ýms tormerki fyrir verzlunar-
stéttina. Lýstu ræðu þeirra bæði
afbrýðisemi yfir því, að þessi
stjórn skyldi hefjast handa gegn
dýrtíðinni, þar sem þeirra stjórn
hafði ekkert gert, og andúð
kaupsýslumanna gegn því, að
nokkrar verðlagshömlur yrðu
settar.
Af hálfu Framsóknarmanna
talaði Eysteinn Jónsson við
fyrstu umræðuna. Lýsti hann
fylgi Framsóknarmanna við
frumvarpið. Frumvarpið væri
fyrsta nauðsynlega sporið, sem
stíga þyrfti í baráttunni gegn
dýrtíðinni. Þótt í því fælist
reyndar ekki lækningin sjálf,
ætti það að geta bætt aðstöð-
una til þess að ná meiri árangri
síðar.
í þessu sambandi má geta
þess, að í starfsskrá þeirri, sem
Framsóknarflokkurinn birti ný-
lega, var það talið fyrsti áfang-
inn í þessum málum, að koma í
veg fyrir allar hækkanir á verð-
lagi og grunnkaupi, meðan hlut-
aðeigandi aðilar semdu um nýj-
an grundvöll fyrir verðlag og
kaupgjald.
Tlllaga Sigurðar
Kristjáiissíuiar.
Það, sem mesta athygli vakti
við umræðurnar í þinginu, var
tillaga frá Sigurði Kristjánssyni
um lögbindingu á verðlagi land-
búnaðarvara og að leggja allar
ákvarðanir þaraðlútandi undir
úrskurð dómnefndar í verðlags-
málum, en láta kaupgjald verða
eftir sem áður óbundið. Með
samþykkt þessarar tillögu hefði
í fyrsta sinn verið gerður sá
aðskilnaður á verðlagi landbún
aðarvara og kaupgjaldi, að verð
lagið hefði verið lögbundið, en
kaupgjald frjálst.
Um tillögu þessa urðu all-
miklar deilur, einkum meðal
Sjálfstæðismanna. Sigurður
Kristjánsson og Garðar Þor
steinsson mæltu með henni, en
Pétur Ottesen og Ingólfur á
Hellu á móti. Ólafur Thors lýsti
fylgi sínu við tillöguna, en bað
þó Sjálfstæðismenn að fylgja
henni ekki að þessu sinni, þar
sem það gæti torveldað af-
greiðslu frumvarpsins. Fóru
leikar svo, að tillagan var felld
með öllum greiddum atkvæðum
gegn atkvæðum þeirra Sigurð
ar Kristjánssonar, Garðars Þor-
Tillaga Framsóknarllokksíns;
Rannsókn á skipulagi
sftóratvinnureksturs
Eins og áður hefir verið skýrt frá, flytja Framsóknarmenn í
sameinuðu þingi tillögu til þingsályktunar um skipun milli-
þinganefndar, sem geri tillögur um verklegar framkvæmdir eftir
styrjöldina og bætt skipulag stóratvinnurekstrar. Sá hluti grein-
argerðar tillögunnar, sem fjallar um verklegar framkvæmdir,
hefir áður birzt hér í blaðinu. Niðurlag greinargerðarinnar, sem
fjallar um skipulag stóratvinnurekstrar, fer hér á eftir.
Hér að framan er minnzt á
nokkur stórfyrirtæki, sem fyr-
irhugað hefir verið að ráðast í.
Sú spurning hlýtur að vera of-
arlega í huga hvers hugsandi
manns, hvaða rekstrarfyrir-
komulag hæfi bezt þessum fyr-
irtækjum, og í því sambandi
hlýtur þeirri hugsun að skjóta
upp, að brýn þörf er endurskoð-
unar á rekstrarfyrirkomulagi
stærri atvinnurekstrar í land-
inu yfirleitt.
Gallar þess fyrirkomulags,
sem verið hefir, liggja í augum
uppi. Höfuðmeinið er i því fólg-
ið, að þeir, sem við atvinnu-
reksturinn vinna, finna ekki, að
þeim sé ætlaður réttmætur
hlutur af arði vinnunnar.
Viðhorfið er þvert á móti
þannig, og fyrirkomulagið og
reynslan gefa tilefni til þess að
á því sé alið, að fyrirtækin séu
rekin eingöngu með hagsmuni
eigendanna fyrir augum og
þess vegna sé um að gera að
vera sem harðsnúnastur I öll-
um skiptum við þau. Afleiðingin
verður gagnkvæm tortryggni og
þegar atvinnuvegirnir eiga örð-
ugt uppdráttar, gjalda þeir og
þjóðin öll þessarar tortryggni,
sem skapazt um stórrekstur,
sem rekinn er á einhliða sam-
keppnisgrundvelli. Þessi tor-
tryggni og hagsmunaárekstur
gerir sum verkefni í atvinnu-
og kaupgjaldsmálum lítt leys-
anleg og þvingar valdhafana
stundum til þess að grípa til
neyðarráðstafana, sem allir eru
óánægðir með.
Reynsla íslendinga í þessum
efnum sýnir, að höfuðnauðsyn
ber til að endurskoða fordóma-
og hleypidómalaust fyrirkomu-
lag stærri atvinnurekstrar í
landinu — fyrst og fremst með
það fyrir augum, að þeir, sem
að fyrirtækjunum vinna, geti
með réttu litið svo á, að fyrir-
tækin séu rekin til þess að gera
almennt gagn og þeim sé ætlað-
ur sanngjarn hlutur, í samræmi
við það, sem atvinnureksturinn
gefur í aðra hönd.
Er það skoðun flutnings-
manna, að þessu marki verði
svo bezt náð, að byggt verði á
samvinnunni sem aðalgrund-
velli við rekstur fyrirtækjanna.
Það hefir mikið verið rætt og
ritað um þessi mál og ýmsar til-
lögur komið fram. Nú er ein-
mitt tími kominn til þess að
taka þessi mál fastari tökum en
gert hefir verið, áður en hafizt
verður handa um stórfelldar
nýjar framkvæmdir og um leið
og upplausnarástand það, sem
steinssonar, Sigurðar Bjarna-
sonar og Jóhanns Jósefssonar.
Yfirlýsing Ólafs Thors ber
það með sér, að meirihluti Sjálf-
stæðisflokksins muni því fylgj-
andi, að lögfesta verðlag á
landbúnaðarvörum, en láta
kaupgjaldið óbundið.
Sveinb. Högnason benti á í
sambandi við deilur Sjálfstæð-
ismanna um tillögu Sigurðar
Kristjánssonar, að pað sýndi
bezt hvílík heilindi það væru,
þegar Sjálfstæðismenn þættust
berjast fyrir samheldni þjóðar-
innar í dýrtiðarmálunum, að
flokkurinn sjálfur gæti ekki
einu sinni orðið sammála um
þær leiðir, sem fara ætti, eins
og þessi deila leiddi í ljós.
nú er í atvinnumálum, knýr til
nýrrar aðgerða í þeim málum.
Alþingi samþykkti fyrir
nokkru lög um að leggja veru-
legan hluta af tekjuafgangi rik-
issjóðs á veltiárunum í fram-
kvæmdasjóð ríkisins, sem varið
yrði til framkvæmda að styrj-
öldinni lokinni. í sambandi við
önnur viðfangsefni ætti nefnd-
in að gera tillögur um notkún
þessa fjár. Einnig yrði hún að
gera tillögur um öflun fjár, að
svo miklu leyti, sem þess yrði
þörf, til viðbótar þvl fjármagni,
sem ríkið hefir yfir að ráða.
Tvö slys
Það slys vildi til síðastliðinn
fimmtudag, að maður varð fyr-
ir bifreið á Suðurlandsbraut og
beið bana af. Maður þessi var
Sveinn Sveinsson, Kjartansgötu
1., Hann var fæddur 1907, átti
konu og þrjú börn. Hann var
bifreiðastjóri að atvinnu og var
bíll hans þarna skammt frá.
Það slys varð aðfaranótt
sunnudagsins síðastliðinn, að
ungur Reykvíkingur, Baldvin
Lárusson, Laugavegi 68, féll út
af Ölfusárbrúnni, lenti í straum-
kastinu og drukknaði.
Baldvin var bifreiðastjóri.
Hafði hann ekið bróður sínum
og fleira fólki austur á Stokks-
eyri. Var hann á heimleið með
það, þegar slysið gerðist.
Líkið hefir enn ekki fundizt.
(JR BÆNIJM
Hjónaband.
Á laugardaginn var voru gefin sam-
an í hjónaband, af séra Bjama Jóns-
syni, ungfrú Margrét Pétursdóttir frá
Lœkjarbakka á Skagaströnd og Jón
Helgason ritstjóri Dvalar, og blaða-
maður hjá Tímanum Heimili ungu
hjónanna er að Miðtúni 13. — Tíminn
óskar þeim allra heilla.
Hjónaband.
Nýlega voru gefin saman í hjóna-
band ungfrú Ingibjörg Björnsdóttir,
Laugavegi 9 og Jón Sigurðsson, skip-
stjóri, Görðum.
Trúlofun.
Ingveldur Björnsdóttir frá Hrapps-
stöðum í Viðidal og Gunnþór Guð-
mundsson, Dalbrún í Víðidal opinber-
uðu trúlöfun sína 20. þ. m.
Óður maður.
Síðastl. föstudagskvöld gerðist sá at-
burður á Ingólfscafé, að ungur maður
fékk æðiskast og réðst með hníf á
hvað, sem fyrir var. Særði hann fjórar
stúlkur áður en hann var handsamað-
ur. Hann mun hafa verið undir áhrif-
um víns.
Nýtt brunaslys.
Á laugardagsmorgun síðastl. gerðist
sá atburður á Fálkagötu 17, að kona
skvetti olíu á eld, svo að hann bloss-
aði upp og læsti sig I föt hennar. Hljóp
konan þegar út. Setuliðsmaður varð á
vegi hennar og tók hann hana og velti
upp úr polli, sem var þar rétt hjá.
Konan brenndist mikið.
Sigríður Sigurjónsdóttir,
dóttir Sigurjóns á Álafossi, hefir
verið sett forstjóri sundhallarinnar í
stað Ólafs Þorvarðarsonar, sem lézt
nýlega.
Rafstraumur grandar hesti.
í síðastl. viku gerðist sá aðburður
hér í bænum, að hestur steig á síma-
þráð, sem hafði fallið þar niður á veg-
inn og lent á háspennuþræði. Féll hest-
urinn dauður niður, þegar hann steig
á símaþráðinn.
Afbrotamaður.
Maður, sem sjö sinnum hefir gerzt
brotlegur við landslög, aðallega vegna
þjófnaðar, hefir nýlega verið dæmdur
í 12 mánaða fangelsi og síðan í 18
mánaða betrunarhúsvist.
’ltminn
Ttintnn óskar öllum
lesendum sínum
flleðilegru jóla!
Á víðavangi
LÍKRÆÐA ÓLAFS.
Ólafur Thors hefir nýlega
birt eins konar líkræðu rlkis-
stjórnar sinnar i Mbl. Eru þau
skrif í íullu samræmi við feril
stjórnarinnar.
Olaíur byrjar skrif sín með
þvi að ásaka ráðherra Fram-
sóknaríl. fyrir ódrengskap,
sem þeir eiga að hafa sýnt
stjórn hans. Ætti þó Ólafi aö
vera manna bezt kunnugt, að
engir menn hafa sýnt honum og
stjórn hans meiri drengskap.
Hefir Olafur fyllilega unnið til
þess með þessum ómaklegu á-
sökunum sínum, að sú saga
verði nánar rakin.
Ólafur reynir að kenna Fram-
sóknarílokknum um sundrungu
þá, sem hófst í þjóðfélaginu á
síðastliðnu vori og átt hefir
sinn mikla þátt í dýrtíðinni, er
síðan hefir skapazt. Hvert
mannsbarn í landinu veit, að
Ólafur segir þetta ósatt. Var
það kannske Framsóknarflokk-
urinn, sem tók upp ótímabært
og viökvæmt deilumál til að
rjúfa friöinn? Var það kannske
Framsóknarflokkurinn, sem hóf
hernað gegn Sjálfstæðisflokkn-
um með kjördæmabreytingunni,
eða var það öfugt?
Þá segir Ólafur, að Hermann
Jónasson hafi gerzt frumkvöð-
ull smáskæruhernaðarins með
ræðu, sem hann flutti í útvarp-
ið fyrir sumarkosningarnar.
Þetta eru ný ósannindi. í þess-
ari ræðu sinni benti H. J. aðeins
á afleiðingar þess, að stjórnin
var þá búin að láta undan
mörgum smáskæruflokkum, á
ríkisskipunum, við ýmsar ríkis-
stofnanir o. s. frv. Það er sitt
hvað, að vara við afleiðingun-
um eða vera frumkvöðull þeirra.
Qamkvæmt þessari ályktun
Ólafs, ættu þeir, sem vöruðu við
vígbúnaðarkapphlaupinu fyrir
styrjöldina að vera frumkvöðl-
ar hennar. Má vel ráða af þess-
ari ályktun Ólafs álit hans á
dómgreind almennings.
Önnur atriði í. grein Ólafs er
á þessa sömu leið. Má því með
sanni segja, að þessi likræða
hans sé í fullu samræmi við
stj órnarf erilinn.
Frá Leikfélaginu
Af óviðráðanlegum orsökum
verður ekki unnt að hefja sýn-
ingar á óperettunni „Leður-
blakan“ nú á jólum, eins og þó
hafði ráðgert verið. — Óperetta
þessi þarfnast alveg sérstaklega
mikils undirbúnings og langa
æfingartíma. Var hafizt handa
um undirbúning að sýningu
hennar strax í haust, en marg-
víslegir örðugleikar, m. a. veik-
indi, hafa orðið þess valdandi,
að æfingum er ekki nærri full-
lokið, og óvíst hvenær það verð-
ur.
Leikfélagið óskar þess getið
sérstaklega, að af framan-
greindum ástæðum, svo og
vegna þess, hve sýningar á
Dansinum í Hruna hófust seint
(26. nóv.) með tilliti til lista-
mannavikunnar, hafði það ekki
gert neinar ráðstafanir fyrir
öðru leikriti á jólum og ekki
tími til slíks þegar útséð var, að
Leðurblakan yrði ekki tilbúin
til sýningar fyrir þann tíma.
Æfingar á nýju leikriti eru um
það bil að hefjast, einnig er
barnaleikrit í æfingu, sem ætl-
lað er að sýna eftir nýár.