Tíminn - 29.12.1942, Side 3

Tíminn - 29.12.1942, Side 3
153. blað TÍMIM, þriðjndaglim 29. des. 1942 607 B m K U R Andrea Majacchi: Feigð og fjör. Bókaverzl. Finns Einarssonar, Rvík 1942. Þessi bók er eftir ítalskan skurðlækni, prófessor við há- skólann í Milano á Ítalíu, og rekur höfundurinn endurminn- ingar sínar um langt líf og annasamt starf. Frásögnin er létt og ör, líkt og lund Suður- landabúanna, og kemur mjög víða niður. Læknirinn tekur lesandann með sér í skyndi- kvaðningar til fátækrahverfa Milanoborgar, þar sem örbirgð og glæpir eiga sér stað, til ban- vænna sængurkvenna, hlægi- legra einvíga og hroðalegra slysfarastaða. Hann fer með hópi sjúkra og örkúmla píla- gríma, sem leita til Lourdes í Frakklandi, að brunni krafta- verkanna. Hann lendir í ófriðn- um mikla og leikur þar listir sínar í spítalatjöldum fast við vígstöðvarnar, þar sem dráps- vélarnar dynja og særðir menn og limlestir sópast inn. — Eftir þetta færist kyrrð yfir atburð- ina og frásögnin gerist mærð- armeiri en áður, að hætti aldr- aðra manna. Þó kemst höfund- urinn til Lybíu, og lesandinn fær svipsýn af því landi, þar sem herskarar Rommels hörfa nú til vesturs. Loks situr þessi athafnasami læknir og kennari og horfir fram á leið, þar sem dauðinn bíður hans, sá hinn óumflýjanlegi. Þá huggar hann sig helzt við trú feðra sinna og hugsar með djúpri lotningu og ást til starfs síns og annarra lækna, einkum síns. Hann er enginn djúphyggjumaður, eng- inn vitringur, heldur dugnaðar- maður, sem með atorku og ást á starfi sínu kemst áfram sem kallað er. Ég hygg, að alþýða manna muni lesa þessa bók með á- nægju, því veldur bjartsýni höf- undarins og barnsleg undrun yfir lífinu og atburðum þess. P. H. Rödd hrópandans eftir Douglas Reed. Hekluút- gáfan, Reykjavík 1942. Karl ísfeld íslenzkaði. Douglas Reed er efalaust ein- hver þekktasti og áhrifamesti blaðamaður, sem nú er uppi. Hér á landi er hann mörgum kunnur af bók sinni, Hrunadans heimsveldanna, sem Menning- ar- og fræðslusamband Alþýðu gaf út fyrir nokkrum árum. Douglas Reed tók þátt í fyrri heimsstyrjöldinni. Síðan gerð- ist hann blaðamaður, hefir far- ið víða um heim, kynnst -löndum og þjóðum og séð með eigin augum hvernig styrjöld er und- irbúin. „Ég vissi að brezki sendiherr- herrann í Berlín, Sir Horace Rumbold, hafði sjö árum áður, rétt eftir að Hitler kom til valda árið 1933, með hóflegum og skýrum orðum látið í ljós, hvers eðlis hið nýja stjórnar- fyrirkomulag væri í Þýzkalandi og hvílíkar hættur væru sam- fara því.“ Allir, s em fylgdust með al- þjóðamálum hlutu að sjá, að ó friður var í undirbúningi. Höf undurinn fer hörðum orðum um andvaraleysi og skilningsleysi brezkra stjórnmálamanna. Á einum stað kemst hann svo að orði: „Flestir æðstu stjórnendur Bretaveldis eru fæddir í Eng landi og hafa gengið í skóla steinsnar frá Lundúnaborg. Stefnan í utanríkismálum er tekin í Lundúnaborg. Englend- ingar eru allra þjóða hræddast- ir við breytingar og hjá þeim ríkir mikill stéttamunur. Þeir trúa varla öðrum en hrumum öldungum fyrir ábyrgðarstöðum og bæla niður unga menn, sem gætu hleypt nýju lífi í ensk stjórnmál og eflt brezka heims veldið.“ Reed telur að Þjóðverjar hafi í raun og veru tapað stríðinu, þegar brezki herinn slapp frá Dunkirk. Þeir gátu eytt brezka hernum, en þeir völdu París. Bretar fengu svigrúm, sem nægði þeim. Innrásin í Bretland varð að engu. Þessi bók Reeds er frjáls mannlega rituð og hressandi. Hún varpar ljósi yfir marga þá (Framh. a/ 2. síöu) dæmin. Til að fyrirbyggja það mætti taka upp í stjórnar- skrána sams konar ákvæði og Norðmenn hafa í sinni stjórn- arskrá, en þar er ákveðið hve mikill hluti þingmanna skuli vera úr dreiíbýlinu og hve mik- ill hluti úr bæjunum, og breyt- ist sú tala ekki, þó íbúatalan raskist í bæjum og dreifbýli. Hér er ekki verið að halda fram neinni sérstakri kenningu um það, hvernig stjórnarfyrir- komulag íslenzka ríkisins eigi að vera í framtíðinni, enda mun varla verða hjá því komizt, þeg- ar taka á ákvörðun um slíkt, að taka nokkurt tillit til þeirra breytinga, sem verða kunna að stríðslokum á stjórnarháttunr þeirra landa, sem vér höfum mest saman við að sælda á sviði menningar og viðskipta. Ég geri ráð fyrir, að flestir, sem um þessi mál hugsa, geti orðið á það sáttir, að ástand það, er nú ríkir sé óviðunandi, því þótt þeir, sem í svipinn þykjast hafa aukið völd sín með síðustu breytingum á stjórnar- skránni, séu sæmilega ánægðir, þá er stjórnarfarið byggt á svo lausum grundvelli, að enginn hugsandi maður getur látið sér detta í hug, að hér verði hægt að skapa til frambúðar það ör- yggi og þá festu, sem óhjá- kvæmileg er í nútímaþjóðfélagi. Alþingi það, sem nú situr, ætti að skipa nefnd manna, einn mann frá hverjum stjórn- málaflokki, til þess að gera til- lögur um nauðsynlegar breyt- ingar á stjórnarskrá landsins, og yrði að engu hrapað í því máli, enda til þess ætlazt, að nefndin færði sér í nyt aðstoð þeirra manna, sem fróðastir eru á þessu sviði. Þessar tillögur þyrfti svo að birta almenningi, svo að nægur tími gæfist til að meta þær, og koma svo breyt- ingunum í framkvæmd að stríð- inu lolinu. Jón Árnason. Dægurmál og stjórnmál J ohn Law Hann var einu sinni konungum auðugri og voldugri en lézt þó sem öreigi. atburði, sem nú eru efst á baugi. Þýðingin er góð, þótt óþarfar samslengingar á orðum séu þar. Pappír er slæmur. J. Ey. Ævintýri Fjallkonunnar, 12 ævintýri með myndum, úr þjóðsögum Jóns Árna- sonar. Arngrímur Bjarna- son valdi og bjó undir prentun. Björn Jónsson, gaf út. Margir hafa haft ærið að starfa þessa síðustu mánuði, en fáir komast til jafns við prent- arana. Frá prentsmiðjunum er stöðugur straumur bóka og bæklinga, þýddum og frum- sömdum, og kennir þar ýmsra grasa. í þessu bókaflóði kennir mjög erlendra bóka, bæði þeirra, er ætlaðar eru fullorðnum og hinna, er barnabækur nefnast. Flestar þeirra munu útgefnar í fjáraflaskyni og mun ekki ótitt að máli og stíl, frágangi og út- liti öllu, sé fórnað á því altari. Mun það ekki ófróðlégt sýnis- horn þeirra tíða, er nú ganga yfir. Ég hefi undanfarnar vikur gert mér það til gamans, að at- huga bókmenntir þær, sem ætl- aðar eru börnunum á þessum vetri. Má segja, að þær séu um allt milli himins og jarðar, „allt í milli himnaríkis og fráfærna", eins og karlinn sagði, flestar þó þýddar og umskrifaðar úr er- lendum málum og staðháttum. Sumar hverjar fjarlægar því, sem íslenzkur hugsunarháttur hefir verið, til skamms tíma. í þessum bókafjölda tel ég vel þess vert, að geta um eina sérstaklega, sem er með öðru sniði og úr öðrum jarðvegi, en margar hinna. Það er falleg bók álitum, er nefist „Ævintýri Fjallkonunnar". í þessari bók er að finna íslenzk ævintýri, þau, er flestir þeirra, sem nú eru komnir til vits og ára, kunnu og lærðu í æsku sinni: Söguna um Hlina kóngsson, Búkollu, Hans kóngsson, Grautardallssögu, söguna af Kolrössu krókríðandi og fleiri. Sögunum fylgja prýði- lega gerðar pennateikningar, eftir Guðmund Frímann, rit höfund. Ég held, að börnin, sem nú (Framh. á 4. siðu) Fyrir tveim öldum kom skozkur maður, er nefndur var „Snotri John“ Law til Parísar. Hann var þá vinalaus og öllum ókunnur i Frakklandi. Eigi að siður varð hann einvaldi yfir fjármálum Frakklands og voldugasti maður Evrópu. Að tólf árum liðnum var hann fallinn i ónáð hjá óðum skríl, sem átti sér þá ósk æðsta að ráða hann af dögum. Saga þessa snotra Skota, sem liktist í senn þeim Casanova og John Stuart Mill, getur með sanni talizt eins dæmi. Þegar John Law var tólf ára að aldri, var hann frábær stærð- fræðingur, sem vakti undrun og hrifni háskólakennaranna í Edinborg. Seyján ára gamall var han spjátrungur, sem gekk um prúðbúinn dag hvern. Tvítugur var hann alræmdur fjárhættu- spilamaður, sem lét enga aðra iðju til sín taka. Tuttugu og sex ára að aldri felldi hann hug til stúlku, sem var heitbundin manni, er var mjög við aldur. Unnusti stúlkunnar varð örvita af reiði og skoraði unga Skotann á hólm. Þeir börðust í þoku- veðri i Lundúnum, og John Law felldi keppinaut sinn með sverði. Law var tekinn höndum, ákærður fyrir morð, og dæmdur til lífláts. Tveim dögum áður en hann skyldi af lífi tekinn, byrlaði hann vörðúm sínum eitur, komst úr hlekkjum sínurri, klifraði yfir fangelsisgarðinn og komst undan til Frakklands. Þar voru þrautatímar um þessar mundir. Múgurinn lagði leið sína um stræti Parísar altekinn örvæntingu, hatri og hungri og braut niður líkneski af hinum látna konungi, Lúðvík fjórtánda og krafðist þess af hinni nýju ríkisstjórn að eitthvað yrði gert þegar i stað til þess að bjarga landinu frá hallæri og ógæfu. John Law kom fram á sjónarsviðið með mælsku sína og frjáls- lyndar skoðanir. Hann taldi ríkisstjórnina á það að láta prenta peningaseðla. Verðlag tók skjótum breytingum og viðskipti öll ukust. Hagsæld komst á að nýju, og „Snotri John“ Law var tal- inn eins konar galdramaður. Hann ákvað að beita sér fyrir frekari umbótum og framförum. Hann skipulagði margþætta einkasölu, stofnaði iðnaðarfélag, sem naut þeirra réttinda að reka verzlun við Kína, Indland, Suðurhafseyjar, Kanada og allar hinar frönsku nýlendur í Ameríku. John Law auðnaðist að sjá hag sínum næsta vel borgið. Louis- iana var að hans dómi ný Eldorado, auðug að gulli og smarögð- um. John Law hét að greiða ágóðahlut, sem aldrei hafði slíkur þekkzt fyrr. Verðlag allt varð geysilegt, og þjóðin varð viti sínu fjær. Auðmenn og fátæklingar, tignarmenn og alþýðumenn freistuðu þess hver i kapp við annan að komast inn í hús Laws til þess að kaupa hlutabréf. Þröngin var svo mikil, að mönnum lá við örkumlum og jafnvel bana. Rikisstjórnin lét látlaust prenta peningaseðla, og John Law hélt áfram að selja hlutabréfin. Það var almenn hagsæld í Frakklandi. Allir söfnuðu auði. Þjónar og fjósamenn festu kaup á hlutabréfum og vöknuðu svo sem miljónamæringar að morgni. Þegar tignarfólk fór í sönghöllina, hitti það iðulega fyrir þjóna sína og þernur þar fyrir sem auðkýfinga alsetta dýrum djásnum. París var sem gefúr að skilja miðstöð þjóðlífsins og þar var vissulega mikið um að vera. Þangað þyrptist fólk hvaðanæva að. Gisthús og veitingahús borgarinnar urðu svo mörg á skömmum tíma, að ekki varð tölu á komið. Umferðin á strætunum var svo mikil, að slysahætta var jafnan á næsta leyti. Það var unnið í verksmiðjum daga og nætur. Skrautlegar hallir voru byggðar. Parísarbúar lifðu í auði og allsnægtum. En þess var skammt að bíða, að gagnger breyting kæmist á. Hinn voldugi Conti prins reiddist einhverju sinni, hlóð peninga- seðlum á þrjá vagna, ók þeim í banka og krafðist þess, að þeir yrðu leystir út í gulli. Annar maður kom auði sínum og fyrir í vagni, þakti hann heyi og ók honum yfir landamærin til Belgíu, klæddur sem bóndi með tréskó á fótum. Hrunið var skollið á. Bjartsýnin var horfin. Hagsældin var úr sögu með eins skjótum hætti og hún hafði til komið. Bankarnir stöðvuðu útborganir. Jahn Law sá hyldýpi ógæfunar gína við sér, og franska þjóðin var altekin ótta. Nú kepptust menn eigi síður um það að losa sig við hlutabréfin en afla þeirra fyrrum. Óður skríll gerði aðsúg að húsi Laws og gerði sig líklegan til þess að ráða hann af dögum. Law sá sitt óvænna og flýði Frakkland, en skildi öll auðæfi sín eftir. Eigur hans, sem voru margra miljóna virði, voru gerðar upptækar. Bækur hans, húsgögn og silfurmunir, allt var þetta selt. Kona hans og dætur komust á vonarvöl. Níu árum síðar lézt „Snotri John“ Law, maðurinn,' sem einu sinni hafði verið konungum auðugri og voldugri, i Feneyjum sem vinalaus öreigi. Hann gat ekki einu sinni keypt sér eldsneyti, til þess að ylja upp í herberginu, þar sem hann dó. Allar góðar húsmæður þekkja hínar ágætu SJAFNAR-vorur Wottaduftið PERLA ræstiduftið OPAL kristalsápu og stangasápu .7 VH0JJÍÍH S ■ i Samband ísl. samvinnufélaga. Kaupfélög! Athugið um brunatryggingar yðar eftir að vörutalningu er lokið um áramót. SAVON de PARÍS mýkir húðina og styrkir. Gefur heimi yndisfagran lit- blæ og ver hana kvillum. TSOTIÐ SAVON F ramsóknarmenn í Reykjavík Afgreiðsla Tímans biður ykknr vinsamleg- ast um aðstoð við að útvega börn eða unglinga til að bera blaðið til kaupenda í bænum. Kaupendur Tímans Gleymið ekki að borga T í m a n n. utan Reykjavikur eru minntir á, að gjalddagi 36. árgangs var 1. júlí síðastl. Eru þeir því vinsamlega beðnir að greiða ársgjaldið, kr. 15.00, sem fyrst, til inn- heimtumanns blaðsins, eða beint til afgreiðsl- unnar, Lindargötu 9A, Reykjavík.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.