Tíminn - 18.02.1943, Side 2
J
78
‘gímtrm
Fimtudagur 18. febr.
Rafmagnsmálíð
Fyrir nokkru síðan var skip-
uð nefnd í Bretlandi til að at-
huga viðreisnarmál skozku
fjallahéraðanna. Fólk leitaöi
þaðan í burtu og atvinnurekst-
urinn bjó við ýmsar þrengingar.
Ýmsar ráðstafanir höfðu verið
gerðar héröðum þessum til
hjálpar, en engar borið tilætl-
aðan árangur. Nefndin hefir al-
veg nýlega skilað áliti sínu. Höf-
uðþátturinn í tillögum hennar
er að tryggja þessum héröðum
nægilegt rafmagn, sem bæði
nægi til heimilisþarfa og iðn-
aðar.
íslenzka dreifbýlið hefir að
ýmsu leyti sömu sögu að segja
og skozku fjallabyggðirnar.
Fólkið hefir leitað burtu. Þótt
framfarirnar hafi orðið þar
miklar og stórstígar, hafa þær
orðið meiri annars staðar, a. m.
k. á sviði lífsþægindanna. Mik-
ilvægustu hlunnindin, sem
kaupstaðir og stór kauptún
hafa getað boðið íbúum sínum
umfram það, sem sveitirnar og
litlu sjóþorpin hafa getað boð-
ið, er rafmagnið.
Rafmagnsmálið er nú tvi-
mælalaust stærsta hagsmuna-
mál hinna dreifðu sveita og
sjávarþorpa. Fólkið myndi una
sér þar betur og aðstaðan batna
að mörgu leyti, ef kostur væri
á nægu rafmagni.
Með tilliti til þessarar stað-
reyndar hefir Framsóknarflokk-
urinn tekið rafmagnsmálið upp
sem eitt helzta baráttumál sitt
á komandi árum. Markmið hans
er að koma rafmagninu inn á
hvert heimili og láta aila fá
jafna aðsföðu til að njóta þess.
Menn eiga ekki að gjalda þess,
þótt þeir dragi ' þjóðfélaginu
björ^i búið í dreifbýli. Það á
miklu frekar að verðlauna þá
og a. m. k. veita þeim jafna að-
stöðu við aðra til að njóta beztu
þægindanna, sem ísland hefir
að bjóða.
Eins og málum þessum hefir
verið háttað að undanförnu,
hafa aðeins þéttbýlustu stað-
irnir getað veitt sér rafmagn.
Það hefir aldrei verið reynt að
leysa málið með hagsmuni allr-
ar heildarinnar fyrir augum. Þó
hefir þjóðarheildin orðið að
bera ábyrgð á framkvæmdun-
um, jafnt þeir, sem hafa notið
þeirra, og hinir, sem hafa verið
engu betur settir en áður. Ríkið
hefir tekið ábyrgð á öilum
stærri rafveitum. Þannig hefir
dreifbýlið hjálpað þéttbýlinu,
án endurgjalds. En nú er kom-
ið að þéttbýlinu að endur-
gjalda þessa hjálp.
Á aukaþinginu í sumar fengu
Framsóknarmenn því til leiðar
komið, að ski'puð var sérstök
nefnd til að gera tillögur um,
hvernig' auðveldast yrði komið
„nægilegri raforku til ljósa,
suðu, hitunar og iðnrekstrar í
allar byggðir landsins á sem
skemmstum tíma, enda verði
raforkan ekki seld hærra verði
í sveitum landsins en í stærstu
kaupstöðum á hverjum tíma".
Nefndin skyldi ljúka störfum
fyrir Alþingi það, sem koma á
saman á þessu ári.
Nefnd þessi mun þegar vera
langt komin með tillögur sínar
og er enginn vafi á því, að þær
verða langsamlega stærsta mái-
ið, sem fyrir hið komandi Al-
þingi verður lagt. fbúar svetta
og sjávarþorpa um allt land
munu veita því meiri athygli
en nokkru máli öðru.
Það, sem heyrzt hefir frá
nefndinni, virðist helzt á þá
leið, að heppilegast muni vera
að meginhluti landsins (Suður-
land, Norðurland og stór hluti
Vesturlands) fái raforku frá
Sogi og Laxá, með aukningu
virkjananna þar og leiðslum
þaðan. En til þess að þetta verði
reist á traustum grundvelli,
þurfa þessi. orkuver að verða
eign ríkisins. Til að fullnægja
raforkuþörf Vestfjarða og Aust-
urlands, þarf sérstakar virkj-
anir, sennilega Dynjanda og
Lagarfoss.
Hætt er við, að svo stórhuga
og skipuleg lausn rafveitumál-
anna getf sætt mótblæstri ein-
fimmtndagiim 18. fehr. 1943
20. blað
JÓNAS JÓNSSON:
Fjórar samkeppnískírkjur
DúQ
1. samkeppniskirkja.
boð í Finnlandi um allstóra
kirkju. í dómnefnd voru 6
reyndir húsameistarar og einn
prestur. Hér á landi er hús-
gerðarlistin ung. Guðjón Samú-
elsson er elzti fulllærður húsa-
meistari, og hann lauk prófi
fyrir rúmlega 20 árum. Á allra
síðustu árum hafa bætzt við
nokkrir ungir menn með húsa-
meistaraprófi. Hinar fjórar
samkeppniskirkjur, sem sýndar
eru hér í blaðinu, sanna að enn
vantar ýmsa þá menn, sem taka
þátt í slíkri keppni, mikið af
þeim eiginleikum, sem höfurid-
I.
Tíminn birtir að þessu sinni
myndir af fjórum teikningum,
sem gerðar voru í samkeppnis-
skyni um Hallgrímskirkju á
Hvalfjarðarströnd fyrir fáum
árum. Þátt -tóku í þeirri sam-
keppni margir af helztu húsa-
meisturum þjóðarinnar, þeir,
sem ekki eru fastir starfsmenn
hjá ríkinu. Þessar kirkjuteikn-
ingar eru þess vegna fullkomið
sýnishorn af þeirri tækni, sem
nú er völ á um kirkjugerð hér
á landi, þegar leitað er eftir
svörum með opinberri sam-
keppni.
Forstöðunefnd Hallgríms-
kirkju í Saurbæ taldi allar
þessar tillögur gersamlega frá-
leitar og ekki kæmi til mála
að nota nokkra þeirra, og ekki
heldur að fela neinum af höf.
þessara fjögurra kirkna að
halda áfram tilraunum um feg-
urri og betri kirkjugerð í sam-
bandi við byggingarnefndina. í
stað þess bað byggingarnefndin
Guðjón Samúelsson að leysa
vandann. Hann vann lengi að
undirbúningi málsins og gerði
þá teikningu af kirkjunni í
Saurbæ, sem byggingarnefndin
varð ánægð með, og hefir auk
þess hlotið mikla viðurkenn-
ingu innan lands og utan.
Nú stendur svo á, að stærsti
söfnuður landsins, Hallgríms-
söfnuður í Reykjavík, er kirkju-
laus. Söfnuðurinn getur ráðið
fram úr því máli á heppilegan
hátt. En óviðkomandi menn
vilja láta málið stranda á því,að
ekki hefir farið fram samkeppni
um kirkjuteikninguná.
II.
Fær höfuðstaðurinn nýja
höfuðkirkju?
Nú stendur svo á, að brugðið
getur til beggja vona um það,
hvort höfuðstaðurinn eignast
nýja glæsibyggingu, sem yrði til
mestu prýði fyrir bæinn, eða
stakra staða, sem hafa‘hugsað
sér að fá þörf sinni fullnægt
með smávirkjunum. En slíkt má
ekki tefja lausn málsins. ís-
lendingar verða að fara að
venja sig við heildarsjónar-
miðið. Skipulagsleysið og kák-
ið reynist alltaf verst og
dýrast, þegar til lengdar lætur.
Rafmagnsmálið verður merki-
legur dómur um það, hvort ís-
lendingum auðnast að leysa
stórfelld framkvæmdamál sam-
kvæmt skipulegri áætlun. Tæk-
ist það, væri fengin mikilvæg
sönnun fyrir hæfni íslendinga
til sjálfstjórnar, því að það verð-
ur á slíkum grundvelli sem ráða
verður málum til lykta í fram-
tíðinni. Þ. Þ.
að. því máli verði eytt, með smá-
vægilegum krit og óafsakanlegu
fálmi.
Til skamms tíma hafa verið
tveir prestar í Reykjavík, en yf-
ir 30 þús. manna í þjóðkirkju-
söfnuðinum, með eina kirkju til
afnota. Að lokum viðurkenndi
Alþingi og ríkisstjórnin, að við
svo búið megi ekki standa.
Prestum var fjölgað í Reykja-
vík svo að þeir eru nú sex.
Lauganessöfnuður er að byggja
sér kirkju. Nessöfnuður er i
undirbúningi með kirkjusmíð.
Dómprófastarnir, séra Bjarni
Jónsson og séra ^riðrik Hall-
grímsson, búa við gömlu dóm-
kirkjuna. En nýju prestarnir
tveir, sem starfa fyrir austur-
hluta Reykjavíkur og hafa um
12000 sálir i söfnuðinum, hafa
alls enga kirkju; heldur annar
þeirra messur í barnaskóla
í Austurbænum, eða í stórri
kennslustofu í sama skóla. Öll
aðbúð að þessum prestum og
kirkjulegu starfi þeirra er svo
fátækleg sem mest má verða.
Tólf þúsund manna söfnuður
verður að nota ganginn í barna-
skóla næstum sem aðalbækistöð
til helgiathafna.
En söfnuðurinn vill ekki una
þessu. Sóknarnefnd, skipuð full-
trúum úr Sjálfstæðis- og Al-
þýðuflokknúm, beita sér fyrir
stórfelldum samskotum til
kirkjugerðar. Fjölmenn nefnd
úr öllum flokkum starfar að
fjársöfnun í þessu skyni. Séra
Bjarni Jónsson og séra Friðrik
Hallgrímsson halda kröftugar
áminningarræður í dómkirkj-
unni og til útvarpshlustenda og
hvetja Hallgrímssöfnuð og
þjóðina til dáða í þessu efni.
Biskup landsins leggur sig all-
an fram til að styðja málið. í
Hallgrímssókn er afarfjölmennt
kvenfélag, sem er stofnað til að
vinna fyrir kirkjubygginguna.
Fyrir ári síðan var vel tekið í
bæjarstjórn að leggja í þessa
kirkju 300 þús. kr. gegn jafn-
miklu framlagi úr ríkissjóði.
Skipulagsnefnd byggingar-
mála hefir mælt með kirkju-
teikningu Guðjóns Samúelsson-
ar. Byggingarnefnd Reykjavík-
ur með formann bæjarstjórnar
Guðm. Ásbjörnsson, Bjarna
Benediktsson borgarstj. og Hörð
Bjarnason, skrifstofustjóra hjá
skipulagsnefnd, í fararbroddi,
hafa fyrir sitt leyti lagt bless-
un sína yfir málið. Að síðustu
hafa 3000 iriánns í Hallgríms-
söfnuði sent yfirvöldum höfuð-
staðar og lands áskorun um að
hraða framkvæmdum í málinu.
III.
Samkeppni um byggingar.
Erlendis er alsiða, í fjölmenn-
um löndum, að hafa samkeppni
um byggingar. Til þess að það
lánist, þarf að vera um að veljæ
marga snjöllujstu keppendur, og
marga jafn snjalla menn að
dæma. Rétt. fyrir stríðið var út-
ar glæsilegra stórbygginga
þurfa með.
Útboð um opinberar bygging-
ar hafa ætíð misheppnazt hér
á landi. Sr. Sigurbjörn Gíslason
reyndi útboð fyrir stórkirkju í
Reykjavík 1930, en fékk engin
nothæf svör. Byggingarnefnd
Saurbæjarkirkju reyndi útboð,
fékk hún fjórar teikningar, sem
hér eru sýndar og vildi enga
þeirra. Fól húsameistara ríkis-
ins að leysa vandann, og hann
gerði það. Næst reyndi safnað-
arnefnd Akureyrarkirkju útboð.
Hún fékk allmargar teikningar,
væntanlega frá helztu bygging-
arfræðingunum. En allar voru
þær teikningar af sama tagi
og hinar „fjórar samkeppnis-
kirkjur". Sóknarnefndin vildi
ekkert af þessu. Hún bað húsa-
meistara ríkisins um aðstoð.
Hann varð vel við og upp af því
samstarfi spratt Akureyrar-
kirkja. Þegar Úandsbankinn
þurfti að stækka húsið með-
fram Pósthússtræti, var útboð.
Ehgin teikningin var viður-
kennd, en ungur húsameistari,
sem mun hafa komið til lands-
ins eftir að samkeppnin var
háð um Saurbæjarkirkju, gerði
viðbótina, og það með þeim
hætti, að kalla má, að lands-
sorg sé yfir hversu ömurleg sú
bygging er. Að síðustu var sam-
keppni um Sjómannaskólann.
Enginn fékk fyrstu verðlaun.
Nálega öll byggingarnefndin
vildi fá Guðjón Samúelsson til
að standa fyrir því verki, en
fékk því ekki ráðið. Um úrslit
neirrar samkeppni er lítil á-
nægja innan húsameistarastétt-
arinnar og hjá ölluiri almenn-
ingi.
IV.
Hvers vegna misheppnast
samkeppni um byggingar
hér á landi?
Enn sem komið er hafa allar
tilraunir til að fá álitlegar
byggingar hér á landi með
samkeppnisþraut farið út um
þúfur. Þær byggingar, sem
landinu er sómi að, eins og Víf-
ilsstaðahæli. Landspítalinn,
Sun/dhöllin, Þjóðleikhúsið, Há-
skólinn, Landakotskirkja, Matt-
híasarkirkja, Saurbæjarkirkja,
til að nefna nokkur dæmi, hafa
verið verk húsameistarans 1
landsins þjónustu, og engin út-
boð farið fram, heldur langur
og skynsamlegur undirbúning-
ur sérfróðra manna í sambandi
við þá menn, sem áttu að nota
húsin.
Hér á landi eru of fáir og of
reynslulitlir menn til að fjöl-
breytt keppni geti átt sér stað
um stórbyggingar. Þar að auki
er jafnmikill skortur á æfðum
mönnum til að dæma um verk
keppenda. Reynslan sýnir, að
eina ráðið til að fá vel gerðar
byggingar á íslandi, er að fela
forstöðuna einum manni, er
starfar með áhugasamri og
velviljaðri byggingarnefnd.
V.
Reykjavík þarf að eignast
glæsilegar stórbyggingar
til að setja svip á bæinn.
Smekkgóðum gestum, sem
koma til Reykjavíkur, finnst
útsýnin dásamleg, bæjarstæð-
ið gott, en mannaverkin svip-
lítil. Hin gömlu, bárujárns-
klæddu timburhús, eru gagn-
legir bústaðir en hrífa ekki aug-
að. Steinsteypuhúsin voru ó-
venjulega köld og dauðaleg til-
sýndar, þar til hin dýrmæta að-
ferð Guðjóns Samúelssonar, að
steina múrfleti með litsterkum,
íslenzkum bergtegundum, brá
fyrsta þýðleika-glampanum
yfir steypuhúsin. Þó vill það
enn til, að hin vöriduðu og góðu
nýtízku íbúðarhús eru lang-
flest í algerlega tilbreytingar-
lausum stíl. Er hvergi á byggðu
bóli tiltölulega jafnmikið af
einskorðuðum kassahúsum eins
og í Reykjavík. Iðnaðarmenn
landsins hafa lært að gera góð
íbúðarhús en teiknimeistararn-
ir endurtaka sjálfa sig með öll
hús í heilum hverfum. Ríkið
hefir gert sitt til að skapa sterka
drætti í ásýnd bæjarins. Þing-
húsið, Landsbókasafnið, Arnar-
hvoll, Sundhöllin. Landsbanka-
stækkunin við Austurstræti,
Landspítalinn, Þjóðleikhúsið og
Háskólinn. Bærinn á enn enga
varanlega stórbyggingu nema
Austurbæjarskólann og ef telja
skyldi vöruhús við höfnina.
Ef Hallgrímskirkja Guðjóns
Samúelssonar væri reist á
hæstu hæð í bænum, myndi
hún prýða bæinn til stórra
muna. Staðurinn er vel til þess
fallinn, að þar sé reist stórbygg-
ing. Hallgrímskirkja mun þá
með blágrýtissúlnagerð sinni, og
einkennilega ljósaskrauti efst í
turninum, hjálpa til að setja
höfuðborgarblæ á Reykjavík.
VI.
Var rétt að tefja Sundhöll-
ina og Þjóðleikhúsið?
Út af smávægilegum inn-
byrðis krit milli manna, stóð
Sundhöllin árum saman hálf-
gerð og ónotuð. Kom til orða
að breyta henni í bruggstað eða
vöruskemmu. Þúsundir Reyk-
víkinga misstu af þeirri hress-
ingu og heilsubót, sem Sund-
höllin veitir. Nú vill enginn af-
saka dráttinn. Vel viti bornir
Reykvíkingar telja Sundhöllina
nú fullkomnustu almannastofn-
un í bænum. Sama er að segja
um Þjóðleikhúsið. Þröngsýni
og smásálarskapur varð þess
valdandi, að byggingin stöðvað-
ist fyrir ellefu árum. Allir finna
nú, að stöðvunin var Lokaráð.
Stórkostlegum tekjum hefir
verið glatað. Enn stórkostlegri
menningarskilyrðum fyrir æsk-
una í Reykjavík hefir verið só-
að. Þjóðleikhúsið hefði getað
verið sannarleg æskulýðshöll á
undangengnum hættutímum.
Þegar óvænta gesti, sem vant-
(Framh. á 4. síðuj
/