Tíminn - 20.04.1943, Page 4
184
TlMINlV, fsriðjmlagfnn 20. apríl 1943
46. hlafff
Verklýðsílokkasnír.
(Framh. af 1. síSu)
flokknum, þrátt fyrir þau um-
mæli á fyrra þingi, að þeir
gætu fallizt á þessar breytingar,
ef þær væru í sérstöku frum-
varpi.
Eigiiaaukaskattnr
Um líkt leyti og fyrra þinginu
lauk komu fulltrúar frá Alþýðu-
flokknum og Sósíalistaflokkn-
um til Framsóknarflokksins og
óskuðu eftir að hann gerðist
meðflytjandi að frumvarpi um
eignaaukaskatt.
Það var bersýnilegt, að þessi
málaleitun verkalýðsflokkanna
var sprottin af ótta við það
verk, sem þeir voru búnir að
vinna í sambandi við sjóðs-
hlunnindin. Þeir þurftu að
finna eitthvert nýtt atriði, er
drægi athyglina frá þeim svik-
um þeirra.
Þetta sést ekki aðeins á því,
að þingið hefir staðið í fimm
mánuði, án þess að flokkar þess-
ir hafi hreyft hönd eða fót til
að koma málinu fram. Þetta
sést enn betur á því, að Einar
Olgeirsson og Ásgeir Ásgeirs-
son voru sammála meðnefndar-
mönnum sínum í fjárhagsnefnd
neðri deildar um að leggja til,
að kaflinn um eignaaukaskatt
í stjórnarfrumvarpinu yrði al-
veg felldur niður og málinu
frestað til frekari athugunar. í
umræðunum lagði Einar Ol-
geirsson sérstaklega áherzlu á,
að milliþinganefnd yrði sett í
málið.
Þótt tilmæli Alþýðuflokksins
og Sósíalistaflokksins um
skyndiflutning eignaauka-
skattsfrv. nú væri þannig auð-
séður leikaraskapur til að draga
athyglina frá svikum þeirra í
sjóðshlunnindamálinu, taldi
Framsóknarflokkurinn sjálfsagt
að verða að óskum þ^irra og
flytja með þeim frv., þar sem
hann er eindregið fylgjandi
eignaaukaskatti. Er frv. nánar
getið á öðrum stað.
Frá sjónarmiði Framsóknar-
flokksins stefnir þetta frv. í
rétta átt, en mörgum Fram-
sóknarmönnum mun finnast að
nokkuð skammt sé stigið.
Frestsm þlngslus
Nokkuð hefir verið um það
rætt, hvort nauðsynlegt muni
að halda áfram þingstörfum
nú, vegna þessa frv. Það skiptir
engu máli með eignaaukaskatt-
inn, hvort hann er samþykktur
nú eða í haust. Vegna hans er
því óþarft að tefja þingið nú,
þar sem það á að koma aftur
saman síðar á árinu. Þinghald-
ið er vissulega orðið nógu langt
á árinu, þótt ekki sé það tafið
að óþörfu.
Hins vegar væri viðhorfið
annað, ef samkomulag næðist
um skattamál, t. d. afnám vara-
sjóðshlunnindanna er aðeins
snerta tekjur ársins 1942. Slík-
ar breytingar yrðu að afgreið-
ast nú, ef þær ættu að koma að
haldi. En þar sem fullreynt
virðist, að slíkum skattauka
verði eigi komið fram á hendur
stríðsgróðafélögunum, vegna
hlífðar Alþýðufl. og Sósíalistafl.
við þau, falla niður öll rök fyrir
frekara þinghaldi nú, vegna
skattamálanna.
F r v um eignaaukaskatt
(Framh. af 1. síðu)
innar. Annaðhvort er gróðinn
tekinn með sköttum niður að
vissu marki eða verðlagsákvæði
koma í veg fyrir, að hann mynd-
ist.
Flm. eru þeirrar skoðunar, að
stríðsgróðinn, gróðinn, sem ekki
er hægt að halda fram, að
nokkur einstaklingur hafi sér-
staklega aflað með eigin at-
orku eða fyrirhyggju, og er um-
fram nauðsynlega sjóði til end-
urnýjunar og starfrækslu gagn-
legra fyrirtækja, sbr. nýbygg-
ingarsjóði, sem lagt er til, að
verði undanþegnir skattinum,
eigi í raun réttri að vera sam-
eign almennings. Honum eigi
að verja til þess að tryggja sem
bezt atvinnu og öryggi og jöfn-
uð í lífskjörum fyrir fólkið í
landinu. Sé það eigi gert, er sú
hætta nærri, að fasteignir og
framleiðslutæki þjóðarinnar
dragist í hendur færri og færri
manna og gróðinn verði til þess
að auka enn verðbólgu og dýr-
tið, öllum almenningi til tjóns.
Sorglegt slys
(Framh. af 1. slðu)
synti knálega á eftir skipinu,
enda var hann syndur vel. En
er hann hafði synt þrjár eða
fjórar mínútur, fötuðust honum
snögglega tökin, pg höfuð hans
hneig niður í hrannirnar. En
eigi að síður flaut hann, og mun
loft í yfirhöfn hans hafa hald-
ið honum uppi.
Eftir sem næst fimmtán mín-
útum tókst að ná Aðalsteini.
Voru þegar gerðar lífgunartil-
raunir, en þær komu fyrir ekki,
enda mun hann þá hafa verið
örendur. Læknir frá Reykjavík
var fenginn til þess að koma á
móti skipinu. Var árangurslaus-
um lífgunartilraunum haldið
áfram í margar klukkustundir.
Að áliti læknisins hefir
hjartabilun orðið Aðalsteini að
grandi.
ITTVECrUM
allar fáaial. vörnr fi’á Baiiclaríkjnamm.
Látið oss gefa yður tilboð, eða snúið yður beint til
umboðsmanns vors
Ricbaril Funchs
167 Madison Avenue, New York.
Jóhann Karlsson & Co.
Aðalsteinn fæddist að Árbót
í Aðaldal 10. júlí 1897. Á ferm-
ingaraldri hóf hann prentnám
hjá Oddi Björnssyni á Akureyri,
gekk síðar í kennaraskólann og
lauk kennaraprófi 1919. Haustið
eftir gerðist hann skólastjóri á
Eyrarbakka og gegndi því starfi
í tíu ár. Næstu ár tvö var hann
tvívegis í siglingum, dvaldi þá
á Norðurlöndum og í Bretlandi,
og kynnti sér uppeldis- og
æskulýðsmál. Efndi hann og á
þeim tíma til námskeiða, bæði
hér á landi og í Færeyjum. Ár-
ið 1931 var hann skipaður
kennari í Austurbæjarbarna-
skólanum og gegndi því starfi
æ síðan, auk þess sem hann var
einn fjögurra námsstjóra, sem
skipaðir voru síðastliðið ár.
Aðalsteinn var einn af ágæt-
ustu skólamönnum landsins,
merkur brautryðjandi á því
sviði og afburða vinsæll meðal
nemenda sinna og styrkti enda
ýmsa þeirra til framhaldsnáms.
Hann var einnig einhver ötul-
asti forvígismaður ungmenna-
félagshreyfingarinnar hér á
landi og ágætur liðsmaður
skátahreyfingarinnar. Ritstjóri
„Skinfaxa“ var hann röskan
áratug (1930—40) og formaður
Ungmennafélags íslands í níu
ár (1930—1938). Hann átti einn-
ig lengi sæti í stjórn Sambands
íslenzkra barnakennara og for-
maður þess nú. Hann lét í-
þróttamál mjög til' sín taka,
átti hlut að íþróttalöggjöf
þeirri, sem nú er í gildi, og var
í íþróttanefnd ríkisins frá þvi
hún var stofnuð. Munu vart
aðrir hafa verið giftudrýgri
æskulýðsleiðtogar á landi hér
en hann.
Aðalsteinn var snjall rithöf-
undur, samdi margar bækur *og
þýddi. Auk þess ritaði hann
fjölda greina í blöð og tímarit,
sumar þeirra gagnmerkar.
Hann var mikill vinur Fær-
eyinga og kunni færeysku til
hlítar. Hann þýddi fjórar fær-
eyskar bækur: „Far, veröld,
þinn veg“ eftir Jörgen-Frantz
Jacobsen og „Feðgar á ferð“
eftir Heðin Brú, sem komu út
árin 1941 og 1942, og „Færeyjar,
land og þjóð“ eftir Jörgen-
Frantz Jacobsen og skáldsög-
una „Nóatún" eftir Wilhelm
Heinesen, báðar í handriti enn.
Aðalsteinn var maður ókvænt-
ur og barnlaus. Báðir foreldrar
hans eru látnir, en aldurhnígin
fóstra hans er enn á lífi norður
í Þingeyjarsýslu.
Þessa mæta æskulýðsleiðtoga
og kennara verður nánar getið
í blaðinu síðar.
Bjarnarey
Tekið á móti flutningi til
Þingeyrar og Flateyrar fram til
hádegis í dag.
Leiðrétting.
í grein minni um úthlutun styrkja
til skálda og rithöfunda er Sigurjóns
Friðjónssonar getið meðal þeirra, er
vert hefði verið að verðlauna. Þetta
er að vísu rétt, en Sigurjón Friðjóns-
son nýtur styrks á 18. grein fjárlaga.
Að því athuguðu er það ekki ámælis-
vert, þótt hann fengi eigi styrk af fé
menntamálaráðs. V. G.
getur fengið stöðu hjá Landssímanum í Reykjavík.
Umsækjendur verða að hafa lokið verzlunarskólaprófi
eða hafa samsvarandi menntun. Vélritunarkunnátta
nauðsynleg.
Eiginhandar umsókn með upplýsingum um aldur,
menntun og störf hingað til, sendist Bæjarsímastjór-
anum í Reykjavík innan 30. apríl.
Uísvör 1943 -
Dráttarvextir
Samkvæmt lögum og reglugerð 26. febrúar þ. á.
eru nú fallnir dráttarvextir á tvær afborganir út-
svara til bæjarsjóðs Reykjavíkur árið '1943, er féllu
' í gjalddaga 1. marz og 1. apríl, 15% af útsvörum
1942 hvoru sinni.
Dráttarvexti má þó ekki krefja af þeim, sem sam-
kvæmt nefndum lögum greiða að fullu 45% af út-
svarinu 1942 *fyrir 20. apríl.
Greiðslur skulu standa á heilum eða hálfum tug
króna.
Skrifstofa borgarstjóra.
M ö r
Seljum ágætan DILKAMÖR
í heildsölu á 4 kr. kg.
Frystihúsið
Herðubreið
Fríkirkjuveg 7 — * Sími 2678
Úthlutun skáldastyrkja
(Framh. af 2. síðu)
að taka eftir í sambandi við út-
hlutun rithöfundalaunanna, er
það, að þó að sérstakir vinir
hinna „kiljönsku“ fræða virðist
hafa ráðið úthlutuninni, þá eru
allir þeir, sem verðir hafa þótt
launanna (hefi reyndar ekki
heyrt eins höfundarins getið
fyrr og veit ekkert um hann)
uppaldir úti á landi í strjálbýl-
inu. Þeir eru flestir aldir upp
i sveit og margir þeirra eru úr
byggðarlögum, sem er að heyra
á Kiljan og hans skoðanabræðr-
um að eigi að leggjast í eyði.
Er heldur leiðinlegt fyrir
„Kiljanana“ að þurfa að benda
á, að þeir, sem helzt eru einir,
verðir verðlaunana fyrir rit-
verk sín, skuli ekki vera aldir
upp í Reykjavík eða stærri
kaupstöðum landsins — og ekki
einu sinni á neinum „Korpúlfs-
stöðum“ stórrekstursins, heldur
úti í strjálbýlum sveitum við
hið „kjánalega sport“ bænd-
anna.
V. G.
Forsíöðukonu
vantar við Bæjarþvottahúsið
frá 1. maí næstkomandi.
Meðmæli óskast.
Simclhöllln.
Vordagar í Noregi 1940
(Framh. af 3. síðu)
nema staðar og glápa eða fá
þau til að flýta sér og læöast
fram með steingörðunum, þar
sem eitthvert afdrep var. Ég
geri ráð fyrir, að börn sem hafa
orðið húsvillt í loftárásum og
séð foreldra sína eða systkini
drepin af sprengjum, læri að
óttast þær og vera vör um sig.
En norsk börn létu sér ekki
skiljast, vorið 1940, að sprengj-
ur væru annað og meira en á-
kaflega nýstárlegir hlutir, sem
þau voru fíkin í að sjá og kynn-
ast af eigin raun.
Hlíðin var ennþá bleik og
gróðurlítil, en snjór var aðeins
hér og hvar í rákum meðfram
akurreinunum. Hinn brúni lit-
ur birkitrjánna var blandaður
fjólubláum blæ, eins og vant er
á vorin, og hinir hvítu bolir
espitrjánna voru að fá grænleit-
an blæ af vorgrózkunni. Niðri á
eyrunum með ánni blikaði á
vorhvítan furuskóginn, — því
að furunálarnar voru sölnaðar
og hraktar eftir vetrarbyljina.
Já, ekki var um það að villast,
vorið var komið í Noregi. Sólin
skein allan guðslangan daginn
í heiði. Því hærra sem við kjög-
uðum, því meira sáum við af
heiðunum handan dalsins. Þær
voru ennþá þaktar hvítri mjöll,
en dalskorurnar milli snævi
þakinna fjallanna sýndust blá-
leitar í sólskininu.
r------OAMLA BIÓ-------
Aloma
(Aloma of the South Seas)
Aðalhlutverk:
DOROTHY LAMOUR,
JON HALL.
Sýnd kl. 7 og 9.
KL 3%—6%.
Naiiðlciicling
RICHARD ARLEN.
—------ití'ja bíó----
,Gög’ og Gokke*
í hernaðí
(Great Guns).
Fjöruf gamanmynd, með
STAN LAUREL
og
OLIVER HARDY.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Verðlækkun
3 - níður í vísítölu 1230 strax.
Til þess að viðskiptavinir okkar geti notið væntanlegrar
verðlækkunar, nú við páska- og vorinnkaup sín, lækkum við allar
iramleiðsluvörur okkar
frá og með 19. þessa mánaðar, þannig að framleiðslukostnaður
er miðaður við kaupvísitölu 230.
Er hér um að ræða verulega lækkun á allskonar
Prjónaíatnaði á íullorðna og börn.
Aðrar vörur, sem þér einnig fáið með sanngjörnu verði:
Sumark«tBiur> kjólar,og rykfrakkar,
Sumarkápucfni og kjólacfui,
Gluggatjaldacfni og blúndur,
Vudirfatacfni og undirföt,
Sokkar á konur, karla og börn,
Treflar, slæður, vasaklútar,
llandklæði, margar gerðir.
Ýmsar smávörur, svo sem:
\
Tölur, tvinni, bendlar, fiauelsborðar, prjónar,
/
lásnælur, stoppnálar, stoppgarn o. fl.
Skinnhanzkar frá kr. 9.75 parið.
Mjög ódýrar töskur og veski.
Bragið ckki að fata börnin, scm ciga að fara
í svcit.
Það er ekki víst, að einmitt það, sem þér helzt viljið, fáist seinna.
SENBfJM GEGN PÓSTKRÖFE EM LAi\» AELT.
V E S T A Laugaveg 40
Nógur inordlenzkur
o s t u r
Nú og framvcgis höfum vér nægar birgðfr af
norðlenzkum ostum
(45%, 30%, mysuostur).
VERZLANIR PANTI I SÍMA 1080.
Samband ísl. samvínnuíélaga
Skattliol, (pólcrað maliogany).
Rorðstofuborð,
Borðstofustólar,
Skrifborð,
Stoppuð Iuisgögn,
Tvíscttur klæðaskápur (pólcruð
hnota) og margt fleira nýkomið.
Héðiiishöföi h.f.
Aðalstræti 6 B. — Sírni 4958.
T I M I N N cr víðlcsnasta auglýsingablaðið!