Tíminn - 01.06.1943, Qupperneq 4
232
f
TÍMPflV, þrigjndaginn 1. jjnni 1943
58. blalS
Helztn fréttir
%
(Framh. af 1. síSu)
skóla. Hlaut hann ágætiseink-
unn.
Undanfarin sumur hefir hann
starfað við ýmsar vélaverk-
smiðjur í Kanada og síðastlið-
ið sumar við landbúnaðarvéla-
smiðju í Hamilton, fyrst við al-
menn störf í öllum deildum
verksmiðjunnar, og síðan i
verkfræðingadeild hennar. í
sumar er hann ráðinn verlc-
fræðingur vlð verksmiðju í
Bandaríkjunum.
Jóhannes er nú 22 ára að
aldri.
Nýlega hafa eftirtaldir menn
lokið embættisprófi við Háskóla
íslands.
í guðfræði: Sveinbjörn Svein-
björnsson og Sigurður M. Krist-
jánsson.
í lögfræði: Árni Thorsteins-
son, Brandur Brynjólfsson,
Kristján Jónsson, Jón Eiríksson,
Ólafur Björnsson og Unnsteinn
Beck. *
í læknisfræði: Arinbjörn Kol-
beinsson, Bjarni Konráðsson,
Hannes Þórarinsson, Haukur
Kristjánsson, Oddur Ólafsson,
Ragnar Sigurðsson, Sigmundur
M. Jónsson og Stefán Ólafs-
son.
Bætast því tveir guðfræðing-
ar, sex lögfræðingar og átta
læknar í hópinn.
Ríkisstjórnin hefir ákveðið að
taka upp skömmtun á gúmmí-
vaðstígvélum karlmanna (nr. 7
og stærri) frá og með 1. júní n.
k. Ástæðan til þess er sú, að
mikill skortur er nú á gúmmí,
og það skilyrði var sett fyrir
því, að þessar vörur fengjust til
landsins, að séð yrði um, að
þær væru einungis seldar þeim,
er nauðsynlega þyrftu á þeim
að halda vegna atvinnu sinnar.
Nú sem stendur mun ekkert
vera til í verzlunum af vörum
þessum. Hins vegar er fljótlega
væntanlegt til landsins nokkuð
af gúmmískófatnaði þar á með-
al þeim tegundum, sem1 undir
skömmtun falla.
Síjorn mjólkur-
samsölmmar
(Framh. af 1. tíöu)
í þá átt, er vonandi gefur góða
raun.
Mjólkursölunefndin.
Vegna þess, að breyting þessi
var á döfinni, hefir endurskip-
un mjólkursölunefndar, sem
átti að vera lokið fyrir nokkru,
dregist á langinn. En frá henni
mun nú gengið fljótlega.
Verkahringur mjólkursölu-
nefndar minnkar talsvert við
þessa breytingu. Hún hefir þó
áfram þessi verkefni m. a.: Á-
kvörðun verðjöfnunarsvæða og
verðjöfnunargjalds, ráðstöfun
verðjöfnunargjalds, eftirlit með
rekstri mjólkurbúa, eftirlit með
mjólkursölu og mjólkurgæðum.
Breyting þessi hefir engin á-
hrif á starf mjólkurverðlags-
nefndar, sem er sérstök nefnd
og hefir það hlutverk eitt að
ákveða mjólkurverðið.
Happdrætti Hall-
grímskirkju
(Framh. af 1. síðu)
glæsilegasta stað höfuðstaðar-
ins — Skólavörðuhæðinni.
Alihenningur hefir nú mikið
fé undir höndum. Nú er því
sérstakt tækifæri fyrir menn til
þess að styrkja byggingu þessa
minnisvarða, jafnframt því sem
sjaldan eða aldrei hefir borið
brýnni nauðsyn til þess að gert
sé allt, sem stuðlað geti að því,
að þjóðin glati ekki minning-
unni um sína beztu menn og
þann auð, sem þeir hafa fært
henni.
Það skal vakin sérstök at-
hygli á þvi, að þessi fjársöfn-
un snertir á alls engan hátt
það mál, hvort menn eru á-
nægðir með þá teikningu, sem
gerð hefir verið af kirkjunni.
í happdrættisnefnd eiga sæti:
Felix Guðmundsson formaður,
Aðalsteinn Kristinsson forstjóri,
Bjarni Benediktsson borgar-
stjóri, Eysteinn Jónsson al-
þingismaður, Gustav A. Jónas-
son skrifstofustjóri og Lud-
vig Storr konsúll.
Einar Kristjánsson bygging-
armeistari hefir starfað með
nefndinni sem ráðunautur.
Greípar um kverkar .
(Framh. af 3. síðu)
aðstoð stórvirkra landvinnslu-
véla, að háfleygustu vonir hinna
bjartsýnustu manna munu
jafnvel rætast. Merkur, sænsk-
ur prófessor sagði eitt sinn í
fyrirlestri, að skynsamlegast
væri fyrir nútímamanninn að
trúa á ómöguleikann. —
2. Aðrar þjóðir geta keppt við
íslendinga á miðunum kring-
um landið, en þær geta ekki á
nokkurn hátt bolað okkur frá
framleiðslu á íslenzku landi, eða
hagnýtt sér sérstöðu þess. Þar
má nefna óvenju hagstætt og
gott gróðurfar til fjárbeitar,
sem er um mikinn hluta lands-
ins, ásamt hagstæðu veðurfari
til bæði fjárræktar og loðdýra-
ræktar. Jarðhita fyrir gróður-
húsarækt, auk þess, sem mjög
hagstæðir möguleikar eru
víða til raforkuframleiðslu, og
munu, að öllum líkindum, fá
mjög mikla þýðingu fyrir rækt-
un og þar að auki auðvelda til
stórra muna alla vélanotkun og
aðra aðstöðu við framleiðsluna.
Margt fleira má nefna en ég
ætla þó aðeins að benda á þýð-
ingu starartegundanna, sérstak-
lega gulstarar, sem varla er
talin nýt jurt í nokkru öðru
landi, en er með beztu fóðurteg-
undum okkar. Með skipulagðri
engjarækt, áveitum og fram-
ræslu eru víða hér á landi mjög
góð skilyrði til að framleiða
mikið ódýrara fóður en flestum
nágrannaþjóðum okkar er
unnt, handa þúsundum naut-
gripa. Svipað gildir nokkrar
fleiri íslenzkar frumstæðar jurt-
ir. Orsakir þessa munu án efa
vera að finna í loftslaginu, hin-
um langa sólargangi og eðli
jarðvegsins.
3. Við getum auðveldlega og
með engu meiri tilkostnaði en
aðrar þjóðir framleitt af hverri
flatareiningu jarðar jafn mik-
ið fóðurgildi og þær fá af gras-
fóðri og kornfóðri. Auk þess er
grasfóður okkar (hey og græn-
fóður) yfirleitt kjarnmeira og
hollara fóður en sams konar
fóður heitari landa. Þá er það
sannað með tilraunum, að hér
væri hægt að stunda sam-
keppnisfæra kornrækt, í öllu
falli til fóðurs. Þar eru náttúru-
skilyrðin ekki til fyrirstöðu.
4. Landbúnaður flestra Ev-
rópuþjóða, sem yrðu keppinaut-
ar okkar á markaðinum, bygg-
ist að miklu leyti á aðfluttu
fóðri. Fóður það, sem þær þurfa
að kaupa frá öðrum löndum er
yfirleitt eggjahvítufóðurbætir,
sem er ávallt mikið dýrari á
heimsmarkaðinum en kolvetna-
fóðurbætirinn. Á þessu sviði
höfum við betri aðstöðu en
flestar aðrar landbúnaðarþjóðir,
þar sem við framleiðum sjálfir
eggjahvítufóðurbæti s. s. síld-
armjöl, fiskimjöl og karfamjöl,
og fáum t það lægra verði en
hinir. (Flutningar, tollar og á-
lagning viðskiptalífsins). Sá
fóðurbætir, sem við kæmumst
nær eingöngu af með frá öðr-
um löndum, er maís, en hann
er að jafnaði lang-ódýrasti fóð-
urbætirinn á heimsmarkaðin-
um.
Maísinn verða íslenzkir
bændur alltaf að hafa, og
þyrftu að nota hann mikið
meira e« þeir almennt gera.
Skortur á þessari vöru, sem
stundum mun eiga sér stað,
getur valdið gífurlegu afurða-
tapi fyrir bændur. Það væri
fullkomlega réttmætt, að bænd-
ur dæmdu slíkt ástand sem al-
varlegt hneyksll og sinnuleysi í
þeirra garð.
Alhliða fóðurgildi töðunnar
okkar gerir það að verkum, að
með þessum fáu fóðurbætisteg-
undum er okkur unnt að fram-
leiða fullkomlega samkeppnis-
hæfar landbúnaðarvörur, t. d.
smjör, svínakjöt og egg, auk
dilkakjöts, ullar, skinna og
felda. Framh.
Nýkomið:
KÁPUEFNI,
DRAGTAEFNI,
LJÓSBLÁTT PILSAEFNI,
KVENVESKI.
H. Toft
Skólavörðustíg 5. Simi 1035
Tilkynning:.
Viðskiptaráðið hefir lækkað hámarksverð á föstu fæði og ein-
stökum máltíðum, og er það nú sem hér segir:
I. Fullt fæði karla ........ kr. 305.00 á mánuði
Fullt fæði kvenna ........ — 285.00 á mánuði
II. Einstakar máltíðir:
Kjötréttur ............ kr. 3.60
Kjötmáltíð (tvíréttuð) . — 4.60
Að öðru leyti er auglýsing viðskiptaráðsins dags. 2. apríl s. 1. í
fullu gildi. Sérstök athygli skal vakin á því, að í téðri auglýs-
ingu var bannað að rýra magn eða gæði þess, sem framreitt er,
frá því, sem verið hafði. *
Reykjavík, 29. mal 1943.
Verðlagsstjjóriim.
Hangikjöt.
Heildsöluverðið hefir verið stórlega lækkað.
Er nú aöcins kr. 7.70 kílóið.
Hangikjöt er ódýrasta matvara, sem nú er
fáanleg.
Samband ísl. samvinnufélaga
Sími 1080.
Tilkynning:.
Viðskiptaráðið hefir ákveðið eftirfarandi hámarksverð á
smjörlíki, og gildir það frá og með þriðjudeginum 1. júní:
í heildsölu ..... kr. 4.20 pr. kg.
í smásölu ....... — 4.92 pr. kg.
Reykjavík, 29. maí 1943.
V er ðlagsst j ór inn.
Hafið |)ér tekið eftir því, að
Télg og Miir
hefir ekki verið jafn ódýr og nú síðan
snemrna á árinu 1940.
Allt annað feitmeti hefir á sama tímabili stór-hækkað í verði
Mör kostar nú kr. 4.00 kg.
Tólg kostar nú kr. 4.80 kg.
M
Samband ísl. samvinnuSélaga
Shni 1080.
Tilkynning.
Viðskiptaráðið hefir ákveðið að frá og með 1. júní n. k. megi
ekki selja alsólningu á karlmannaskóm við hærra verði en kr.
21,00. Aðrar skóviðgerðir skulu verðlagðar í sámræmi við það.
Þar sem verð hefir verið lægra, er bannað að hækka það nema
með leyfi Viðskiptaráðsins.
Reykjavik, 29. mai 1943.
Ver ðlagsst jór inn.
Vegglóður
mjög smekklegt úrval fyrirliggjandi.
Verzlunin Brynja;
Laugavcg 29.
Stimguskófliir
Heildsölubirgðir fyrirliggjandi
S. Árnason & Co.
Laugaveg 29.
rm,—. gamla bí6.--——
Andy Hardy
í vandræðum
(Andy Hardy Meets
Debutante).
MICKEY ROONEY,
JIJDY CARLAND,
LEWIS STONE.
Sýnd kl. 7 og 9.
KL 8H.
Púðurhorgin
(Powder Town).
VICTOR MCLAGLEN,
JUNE HAVOC.
LEIKFÉLAG REYKJAVÍKUR
.NÝJA BÍÓ
Grænadals-
f jölskyldan
(How Green Was my
Valley)
Amerísk stórmynd.
Leikarar:
MAUREEN O’HARA
WALTER PIDGEON.
Sýnd kl. 6.30 og 9.
Börn innan 12 ára fá ekki
aðgang.
Sýning sumað kvöld kl. 8.
Aðgöngumiðar seldir kl. 4—7 1 dag.
Veizlan á Sólhaugum
Leikstjóri frú GEHD GRIEG.
Vj; músih eftir PÁL ÍSÓLFSSOM.
Sýning í Iðnó í kvöld kl. 8.30.
Aðgönguiuiðasala hcfst kl. 2 e. h.
-----*--------------------------------
!
Á Ráðningarskrifstofu landbúnaðarins í Lækjar-
götu 14 B, sími 2151, geta konur og karlar og ungling-
ar, er vinna vilja í sveitum landsins í vor og sumar
eða árlangt, valið úr mörgum ágætum heimilum víðs-
vegar um landið.
Nú er sumarið komið og annirnar kalla og nauð-
syn krefst vinnufúsra handa til landbúnaðarstarfa —
líf sbj argarf ramleiðslu.
Framliðslan er þjóðarnauðsyn, og það er hún, sem
er undirstaða þjóðarhagsins.
Háttvirtuiesendur. Takið eftir
Ég annast kaup og sölu fasteigna. Hefi á boðstólum hús, jarðir,
erfðafestulönd og skip. Ég annast alls konar samningagerðir, svo
sem kaupsamninga, afsalsbréf veðskuldabréf, tryggingarbréf,
makaskiptasamninga, félagssamninga, gjafasamninga, leigu-
samninga, byggingarbréf, kaupmála, arfleiðsluskrár, verksamn-
inga o. s. frv. Annast. innheimtu skulda, uppgjör og endurskoðun.
Skjót afgreiðsla, örugg vinnubrögð og sanngjörn ómakslaun.
Gerið svo vel og klippið auglýsinguna úr blaðinu og geymið hana
yður til minnis.
PÉTUR JAKOBSSON
löggiltur fasteignasali, Kárastíg 12,
Reykjavík.
Sími 4492. Viðtalstími kl. 11—12 og 6—7 daglega.
Tilkyiming
Viðskiptaráðið hefir ákveðið, með tilliti til lækkaðrar vísitölu,
að frá og með 1. júní n. k. megi saumalaun ^kki vera hærri en
hér segir:
I. Klæðskeraverkstæði:
Á klæðskerasaumuðum karlmannafötum mega saumalaun
eigi vera hærri en kr. 317.00 fyrir tvíhneppt föt, en kr. 307.00
fyrir einhneppt. Fyrir klæðskerasaumaðar kvenkápur
mega saumalaunin vera hæst kr. 176.00, en fyrir dragtir kr.
194.00. Fyrir algenga skinnavinnu á kvenkápum má reikna
hæst kr. 19.00, auk hinna ákveðnu saumalauna.
II. Hraðsaumastofnr:
Fyrir hraðsaumuð karlmannaföt mega saumalaun vera
hæst kr. 259.00 Hjá klæðskeraverkstæðum og hraðsauma-
stofum skulu saumalaun á öðrum tegundum fatnaðar en
að ofan greinir lækka til samræmis.
III. Kjólasaumastofur:
Saumalaun á kápum mega hæst vera kr. 145.00, nema ef
um algenga skinnavinnu er að ræða, þá hæst kr. 164.00.
Fyrir saum á drögtum má hæst taka kr. 158.00.
Reykjavík, 29. maí 1943.
Verðlagsstjórinn.