Tíminn - 18.06.1943, Blaðsíða 4
256
TlMIIVIV. fösluclaglmi 18. juní 1943
64. blað
Aðalfundur Búnadar-
sambands Sudurlands
tR BÆIVUW
Menntaskólanum
var slitið í gær. Að þessu sinni luku
prófi við skólann 48 stúdentar og 84
gagnfræðingar.
Kennaraþing
verður sett í Austurbæjarskólanum
annað kvöld. Mun það einkum ræða
um móðurmálskennsluna og þjóð-'
ræknismálin.
Kennaraprófi
í íslenzkum fræðum hafa þessir
kandídatar lokið við Háskóla íslands:
Andrés B-ömsson I. einkunn 97% stig,
Árni Kristjánsson 1. einkunn 98% stig
oe- Bjami Einarsson 1. einkunn 99
stig:
Dregið hefir
verið nýlega 1 happdrætti frjáls-
lynda safnaðarins og kom upp númer
18111. Eigandi hans reyndist Ásmund-
ur Ásmundsson, starfsmaður hjá veið-
arfæraverzluninni Verðandi. Vinning-
urinn var nýtízku bifreið.
Barnakórinn Sólskinsdeildin
kom til bæjarins í gær eftir viku-
ferðalag til Vestmannaeyja. — Kór-
inn hélt fjórar söngskemmtanir í Eyj-
um við fádæma aðsókn og ágætar
undirtektir. Voru viðtökur allar í Eyj-
um hinar ánægjulegustu. — Á heim-
leiðinni kom kórinn við undir Eyja-
fjöllum og fór meðal annars að-Skóga-
fossi.
8000 félagsmenu
(Framh. a) 1. nöaj
a. þessi: Skjöldur, farandgrip-
ur, sem þaö héraðssambandið
hlýtur, sem fær samanlagt flest
stig á mótinu. Hann er nú i
höndum Ungmennasambands
Kjalarnessþings. Þá hefir Ung-
mennasamband Borgarfjarðar
geíið verðlaunagrip handa þeim
einstakling, sem ílest stig hlýt-
ur á mótinu, og Kaupfél. Borg-
firðinga verðlaunagrip fyrir
þann mann, er sýnir bezt afrek
í sundi. Sennilega verða fleiri
einstaklingsverðlaun. Eru þau
öll unnin til eignar.
íþróttakennslan.
íþróttakennarar U. M. F. L, 8
að tölu, eru enn allir að störf-
um og hafa haldið fjölda nám-
skeiða viðsvegar um landið i
vetur og vor. Ahugi ungmenna-
félaga fyrir störíum þeirra er
mikill og hefir ekki verið hægt
að sinna beiönum allra félag-
anna í vor um kennara.
íþróttamót héraðssamband-
anna eru hafin. Nokkrum þeirra
veröur lokið íyrir landsmótið að
Hvanneyri.
Bæktunarstarfseml
U. M. F. í.
Bjarni F. Finnbogason búfr.
frá Stokkahlöðum er ráðinn til
þess að annast ræktunarleið-
beiningar í vor meðal barna- og
unglinga og leiðbeina við gerð
og hirðingu skrúðgarða. Starfs-
svæði hans verður Héraðssam-
band Eyjafjarðarsýslu.
Minningarsjóður
Aðalsteins Sigmundssonar.
Hann var stofnaður af U. M.
F. í. við fráfall A. S. og hefir
þann tilgang að styrkja efni-
lega unga menn til náms, er sýnt
hafa félagsþroska í ungmenna-
félagi. Sjóðurinn er nú orðinn
um 6000 krónur. Hafa honum
nýlega borizt kr. 1000.00 frá í-
þróttasambandi íslands og kr.
500.00 frá Ungmennafélagi
Reykjavíkur.
Sambandsstjórnin þakkar öll-
um, sem heiðrað hafa minningu
þessa mæta forvígismanns
ungmennafélaganna með fram-
lögum í sjóðinn. Framvegis
tekur stjórn U. M. F. í. og af-
greiðsla Tímans, Reykjavík, við
fjárframlögum í Minningarsjóð
Aðalsteins Sigmundssonar.
A ví3avanjt[i.
(Framh. af 1. 3ÍBu)
öll gífuryrðin um slúðrið, endar
Sigurður sjálfur í þeirri heng-
ingaról, er hann hafði búið
slúðursagnahöfundunum, því að
í smáletraðri neðanmálsklausu
tilreiðir hann lesendunum au-
virðilegustu slúðursögu í þeim
tilgangi að spilla ‘ áliti eins
mikilsmetins andstæðings síns.
Rétta nafnið á grein Sigurðar
hefði verið: Andleg henging
mín. Það, sem slúðursagan lét
Sigurði mistakast í háskólakap-
ellunni, hefir , honum tekizt í
þessari grein, þótt í nokkuð
breyttri merkingu sé.
Vinnið ötullet/a fj/rir
T* tnann.
Aðalfundur Búnaðarsam-
bands Suðurlands var haldinn
að Hellu á Rangárvöllum seint í
maímánuði. Voru þar mættir 40
fulltrúar 28 búnaðarfélaga, auk
búnaðarmálastjóra, nokkurra
búnaðarþingsmanna, sýslu-
manns og þingmanna Rangæ-
inga, þriggja ráðunauta og
stjórnar Búnaðarsambandsins,
er skipuð er þeim Guðmundi
Þorbjarnarsyni bónda á Stóra-
Hofi, formanni, Degi Brynjólfs-
syni, bónda í Gaulverjabæ og
Sveini Einarssyni, bónda að
Reyni.
Á fundinum var rætt um
margvísleg mál bænda og bún-
aðarsambandsins og gerðar um
þau ályktanir. Var meðal ann-
ars harðlega móímælt fram-
komnum áróðri gegn hlutfalls-
legri og eðlilegri verðhækkun á
landbúnaðarvörum og gerð skil-
yrðislaus krafa um það, að
verðið haldist til jafns við ann-
að verðlag í landinu. Telji Al-
þingi og ríkisstjórnin að greiða
eigi hluta af útsöluverði land-
búnaðarvara úr ríkissjóði
„krefst fundurinn,“ segir í
samþykktinni, „að það sé greitt
beint til neytenda í hlutfalli
við vörukaupin."
Skorað var á Alþingi að sam- j
þykkja. frumvarp um bann i
gegn minkaeldi, skorað á nefnd
þá, sem gera skal tillögur um
stað fyrir bændaskóla Suður-
lands, að hafa lokið störfum
fyrir 1. júlí, skorað á Búnaðar-
félag íslands að hlutast til um,
að verzlun með búvélar verði
komið í það horf, sem bezt
stuðlar að aukinni tækni og af-
köstum á sviði jarðræktar og
skorað á Alþingi og ríkisstjórn
að hlutast til um að dreifbýlið
fái raforku með jafn góðum
kjörum og þéttbýlið nýtur.
Mörg fleiri mál voru til um-
ræðu og athugunar, meðal
annars efling fóðurbirgðafélag-
anna.
Samþykkt var fjárhagsáætl-
un fyrir næsta starfsár sam-
bandsins. Var ákveðið að verja
12 þús. krónum í launagreiðslur
til ráðunauts og trúnaðar-
Happdrætti Lau^
arneskirkju
Sóknarnefnd Laugarneskirkju
efnir um þessar mundir til
happdrættis um stórt og nýtt
steinhús við Langholtsveg til
ágóða fyrir Laugarneskirkju. Er
kirkjan sem kunnugt er í smíð-
um, og er það von safnaðarins
að geta með happdrættinu afl-
að svo mikils fjár, að kirkju-
smíðinni verði lokið.
Kirkjulegt starf í Laugarnes-
sókn var hafið með almennum
guðsþjónustum haustið 1936.
Fór þetta starf fram á vegum
dómkirkjusafnaðarins. Þessari
tilraun var vel tekið af fólki, og
mun hún hafa átt þátt í því, að
kirkjumál Reykjavíkur voru
leyst með lögum um skiptingu
bæjarins í prestaköll, er komu
til framkvæmda 1940,-
Árin 1937—1940 starfaði nefnd
manna úr núverandi Laugar-
nessókn að undirbúning kirkju-
byggingar í samvinnu við sókn-
arnefnd dómkirkjusafnaðar.
Var Guðjón Samúelsson pró-
fessor fenginn til að gera frum-
uppdrátt að Laugarneskirkju.
— Laugarneskirkja skyldi hún
heita, því að hér er um að ræða
endurreisn Laugarneskirkju
hinnar fornu.
Árið 1940 var bænum skipt i
prestaköll, og var þá undirbún-
ingsnefndin kosin svo til óbreytt
sem hin fyrsta sóknarnefnd
Laugarnessafnaðar.
Tæpu ári síðar, í ágústmán-
uði 1941, var kirkjusmíðin hafin
eftir nýjum og veglegum upp-
drætti húsameistara ríkisins.
Og nú er kirkjan risin af Kirkju-
bólstúni. Hún blasir við af hafi
og- af vegunum í grenndinni.
Fjár er vant til að ljúka bygg-
ingunni, og þess vegna er gripið
til happdrættis. Bregðast bæj-
arbúar vonandi vel við, svo að
fljótlega verði unnt að ljúka
smíði Laugarneskirkju, kristni-
lífi Reykjavíkur til eflingar og
bænum til prýðis.
manna, 2500 til fræðslustarfs og
námskeiða, 1200 til kartöflu-
| geymsla, 500 til fiskiræktar, 500
til leiðbeininga um rafvirkjun,
2000 krónum til undirbúnings
menntaskóla í sveit, 1000 krón-
um til búvélaverkstæðis í
Vík i Mýrdal, 300 krónum til
sauðfjárræktarbúa og 300 til
Vatnafélags Rangæinga.
í stjórn sambandsins var
endurkosinn Guðmundur Þor-
bjarnarson á Stóra-Hofi, en til
vara Klemenz Kristjánsson.
Fundarstjórar voru Bogi Thor-
arensen í Kirkjubæ og Sigur-
grímur Jónsson í Holti; fundar-
ritarar Dagur Brynjólfsson í
Gaulverjabæ og Þorsteinn Sig-
urðsson á Vatnsleysu.
Erindi um búvélar var flutt á
fundinum. Flutti það Árni G.
Eylands.
Kvöldvaka blaöa -
manna
Blaðamannafélag íslands
efndi til kvöldvöku í útvarpinu
annan dag hvítasunnu. Jón Þór-
arnisson, fréttamaður útvarps-
ins, var þulur. Kvöldvakan hófst
með því, að Ragnar Jóhannes-
son blaðamaður flutti „minni
prentlistarinnar", kvæði eftir
Þorstein heit. Gíslason ritstjóra,
og síðan söng Þorsteinn Hann-
esson, er verið hefir ritstjóri og
blaðamaður á Siglufirði, sama
kvæði undir lagi, sem Jón Þór-
arinsson hefir samið. Þessu
næst flutti Skúli Skúlason rit-
stjóri, formaður Blaðamanna-
félagsins, ávarp. Hannes á Horn-
inu flutti þátt um daginn og
veginn, Jón Helgason blaðamað-
ur sagði stuttan ferðasöguþátt,
Sigurður Guðmundsson blaða-
maður flutti erindi, Jón H. Guð-
mundsson ritstjóri las smásögu,
Árni ritstjóri Jónsson frá Múla
söng einsöng, Axel Thorsteins-
son, fréttamaður útvarpsins,
sagði endurminningar um
blaðamennsku sína, Karl ísfeld
blaðamaður flutti kvæði eftir
sig og loks lýsti Bjarni Guð-
mundsson blaðamaður dagleg-
um störfum blaðamanna og
voru skeyttar inn í frásögnina
ýmsar hljómplötur, þar sem
heyra mátti hversdagslega
starfsönn í blaðaskrifstofum og
prentsmiðjum. Kvöldvöku þessa
undirbjuggu Bjarni Guðmunds-
son, Jón Þórarinsson og Ragn-
ar Jóhannesson. Var það starf
af hendi leyst méð slíkri prýði,
að vert er að þakka, enda ein-
kenndi það þessa kvöldvöku,
hve allt gekk rösklega, einn
jafnan tilbúinn, er annar hafði
lokið máli sínu.
Ráðgert hafði verið, að Valtýr
Stefánsson ritstjóri yrði þulur
kvöldsins, en vegna veikinda-
forfalla.gat það eigi orðið.
Frá Noregí
í Noregi er nú aðeins greitt
afnotagjald af 8500 útvarps-
tækjum. Flestöll útvarpstæki,
sem voru í notkun, er innrásin
var gerð, hafa Þjóðverjar gert
upptæk, vegna þess að Norð-
menn hlustuðu á útvarpsstöðv-
ar Bandamanna .
Aðbúnaður Norðmanna þeirra,
sem vinna nauðungarvinnu við
hervarnir Þjóðverja, er talin
hinn bágbornasti. Viða er skort-
ur á viðunandi vistarverum og
matur er lélegur. Unnið er að
byggingu flugvalla, greftri skot-
grafa, ýmsum hernaðartálmun-
um öðrum o. s. frv. Mest er unn-
ið að þessum framkvæmdum í
Norður-Noregi og hafa verið
fluttir þangað menn víðsvegar
að af landinu.
Nokkrir þekktir Norðmenn
hafa nýlega látizt í hinum ill-
ræmdu fangabúðum Oranien-
borg í Þýzkalandi. Meðal þeirra
er fyrrv. formaður símamanna-
sambandsins, William Ander-
sen.
17. maí var ekki haldinn há-
tíðlegur í Noregi að þessu sinni.
Quisling hafði fyrirskipað, að
aðeins nazistar hefðu frí þenn-
Kosumgahneyksli
(Framh. af 1. síöu)
galla á kosningu þessari. En það
var jafnframt fram tekið, sem
og leiðir af hlutarins eðli, að
rgnnsóknin skyldi taka til kosn-
ingarinnar almennt og undir-
búnings hennar, en ekki tak-
markast við þau atriði, sem um
ræðir í bréfi Kristjáns Jensson-
ar, en rannsókn á þeim atriðum
virðist nú lokið.
í samræmi við þennan vilja
samþykkti kjörbréfanefnd á
fundi sínum 17. des. 1942 með
öllum atkvæðum eftirfarandi
tillögu:
„Nefndin samþykkir, sam-
kvæmt ályktun Alþingis að
beina því til dómsmálaráðu-
neytisins að láta fara fram
réttarrannsókn á kosningu í
Snæfellsness- og Hnappadals-
sýslu 18. og 19. okt. s. 1. og und-
irbúningi hennar“.
Samkvæmt framangreindri á-
lyktun $r þess hér með farið á
leit, að fyrirskipuð verði rann-
sókn á kosningunni í Snæfells-
ness- og Hnappadalssýslu 18. og
19. okt. s. 1., svo og öllum undir-
búningi hennar.“
Þess skal getið, að allir full-
trúarnir í kjörbréfanefndinni,
Sjálfstæðismennirnir ekki síður
en hinir, voru sammála um
þessa áskorun.
Síðan dómsmálaráðherranum
var sent bréf þetta eru liðnir
51/2 mánuður, án þess að kunn-
ugt sé, að hann hafi neitt gert
til þess að fullnægja umræddri
beiðni þingnefndarinnar, sem
er vafalaust borin fram í um-
boði meirahluta Alþingis.
Hvað veldur þessum undan-
brögðum ráðherrans?
Það er ekki til nema ein skýr-
ing á þessari framkomu ráð-
herrans.
Eins og bréf nefndarinnar
sýnir, átti þessi rannsókn ekki
síður að beinast að öðrum atrið-
um en bréfi Kristjáns Jenssonar
og komu þá síldarmjölsgjafir
Kveldúlfs í fyrstu röð. Rann-
sókn á því máli hefði áreiðan-
lega orðið auðfélagi þessu til
lítils sóma, og ekki sízt Ólafi
Thors, sem var búinn að lýsa yf-
ir því í þinginu, að mjölið hefði
verið sent samkvæmt pöntun og
eftir venjulegum viðskiptaleið-
um! Er þó kunnugt, að sumir,
sem fengu mjölið, höfðu aldrei
pantað það eða verið krafðir um
greiðslu.
Einar Arnórsson var þingmað-
ur fyrir Sjálfstæðisflokkinn, er
hann gerðist hæstaréttardóm-
ari. Hann var þá einn af nán-
ustu vildarvinum Kveldúlfs-
valdsins. Vera hans i hæsta-
rétti virðist ekki hafa slitið
þessi tengsli. Það er a. m. k.
ekki hægt að sjá, að nein önnur
ástæða geti valdið því, að hann
vill hlífa Kveldúlfi við þessari
rannsókn.
Almenningur. fer nú áreiðan-
lega að skilja, hvers vegna
Sjálfstæðismenn á þingi voru
með áskoruninni til dómsmála-
ráðherra um rannsóknina. Þeir
treystu Einari Arnórssyni til að
stinga málinu undir stól.
En dómsmáláráðherrann mun
áreiðanlega hljóta sinn dóm hjá
þjóðinni fyrir undandrátt sinn
í þessu máli, ekki sízt, þegar
hann er athugaður við hliðina
á gauraganginum í máli Jóns
ívarssonar. Þetta tvennt sýnir
bezt, að Einar hefir engu gleymt
og ekkert lært, síðan hann var
þingmaður Sjálfstæðisflokksins,
þrátt fyrir veru sína í hæsta-
réti.
Þjóðin hlýtur því að spyrja,
hvort slíkur maður eigi að eiga
afturkvæmt 1 hæstarétt.
Sjálfstæðisflokknum hefir
tekizt, fyrst með aðstoð verka-
lýðsflokkanna og síðan með til-
styrk dómsmálaráðherrans, að
hindra athugun á meintri kosn-
ingaspillingu stórgróðavaldsins.
En baráttunni gegn henni verð-
ur samt haldið áfram. Dómstóll
3,lmennings er hinn endanlegi
úrskurður og hann er meira
virði en stundarhjálp Brynjólfs
Bjarnasonar og Einars Arnórs-
sonar.
an dag, því að nazistaflokkurinn
hefði verið stofnaður 17. maí
fyrir 10 árum. Óvenjulega mik-
ill lögregluvörður var á götun-
um.
Útbroiðið Tímann!
Rödd
hjarlans
(Holð Back the Dawn).
Amerísk stórmynd.
CHARLES BOYER,
OLIVIA DE HAVILLAND
PAULETTE GODDARD.
_______Sýnd kl. 7 og 9.
aa »14—*t4.
RÆNINGJARNm,
eð William Boyd.
r-——- - . - ■ NÝJA BÍÓ -
Söngvaeyjan
(Song of the Islands).
Söngvamynd í eðlilegum
litum.
Aðalhlutv. leika:
BTTY GRABLE,
VICTOR MATURE,
JACK OAKIE.
kl. 3, 5, 7 og 9.
Þökkum hjartanlega öllum þeim, sem sýnt hafa okkur
samúð og hluttekningu við fráfall og jarðarför
Böðvars sonar okkar.
Ólafsvík, 15. júní 1943.
MAGNEA BÖÐVARSDÓTTIR. JÓNAS ÞORVALDSSON.
>»»»»»»»»»»»»»0»»»»»»»»»0»»»»»00»»»»t
The World’s News Seen Through
The Christian Science Monitor
Án Internationál Daily Newsþaþer
i» Truthful—Constructivc—Unbiased—Free from Sensadonal-
ism — Gditorials Are Tiinely and Instructive and Its Daily
Features, Together with the Weekly Magazine Section, Make
the Monitor an Ideal Newspaper for the Home.
The Christian Sciencc Publishing Society
One, Norway Street, Boston, Massachusetts
Price $12.00 Yearly, or $1.00 a Month.
Saturday Issue, incíuding Magazine Section, $2.60 a Yeex.
Introductory Offer, 6 Issues 25 Cents.
SAMPLB COPY ON REQUEST
Reykjavík. Sími 1249 Simnefni: Sláturfélag.
iKeykhús. — Frystihús.
IViðursnðnverksmiðja. - Bjúgnagerð.
Framleiðir og selur í heildsölu og smásölu: NiOur-
soOiO kjöt og fiskmeti, fjölbreytt úrval. Bjúgu og alls-
konar áskurO á brauO, mest og bezt úrval á landinu.
Hangikjöt, ávallt nýreykt, viðurkennt fyrir gæði.
FrosiO kjöt allskonar, fryst og geymt í vélfrystihúsi, eftir
fyllstu nútímakröfum.
Verðskrár sendar eftir óskum, og pantanir afgreiddar
um allt land.
E)gg frá Eggjasölusamlagi Ueykjavíkur.
BoMe^teel
liershöfðingi
(Framh. af 1. síöuj
Bonesteel hefir áunnið sér
virðingu íslendinga fyrir rögg-
semi sína og staðfastan vilja til
að sambúð hers og heimaþjóð-
ar mætti sem bezt verða og
óhappaminnst. Hefir skilningur
hans á því, að hér bjó þjóð, sem
vildi vera frjáls í landi sínu,
verið öruggastur leiðarsteinn
hans í allri herstjórn sinni á
íslandi. Hann mun og sjálfur
hverfa héðan með góðum hug
til þjóðarinnar, er forlögin
færðu honum að höndum að
rækja svo erfitt starf á meðal,
og ýmissa embættismanna
hennar, er hann hefir átt sam-
vinnu við. Hið hrjóstruga og ill-
viðrasama land hefir einnig öðl-
azt ítök í hug hans, og á brott
með sér hefir hann málverk af
Esjunni, „þúsund-lita-fjallinu“,
eins og það blasti við honum úr
herbúðum hans í nærfellt tvö
ár. Málaði frú Barbara Árna-
son þá. mynd. Þegar styrjöld
linnir og friður er kominn á
með frjálsum þjóðum, fýsir
Bonesteel hershöfingja að koma
hingað aftur og sjá landið aug-
um ferðamannsins.
Bonesteel hershöfðingi er nú
58 ára gamall. Faðir hans og afi
gengu báðir í herskóla og sjálf-
ur lauk hann herskólanámi
1908. Hefir hann verið í þjón-
ustu hersins í 39 ár. í fyrri
heimsstyrjöldinni barðist hann í
Frakklandi, og einnig hefir
hann verið í herþjónustu í Fil-
ippseyjum og Sandvíkureyjum.
Erlent yfirlit
(Framh. af 1. síðu)
að Evrópustyrjöldin drægist
fram á árið 1946.
En á þessu sumri ættu þó allt-
af að sjást fyrstu merki þess, að
Evrópuvigi Hitlers yrði yfir-
unnið. Flugher Bandamanna
eflist óðum, bæði í Bretlandi og
Afríku. í sumar mun heimurinn
verða vitni að margfalt stór-
felldari loftsókn en nokkuru
sinni áður, nema Hitler geti með
einhverjum ráðum neytt flug-
heri okkar til að berjast ann-
ars staðar eða spillt aðstöðunni
til flugárása frá Bretlandi. —
Þessi ummæli hins ameríska
fréttaritara virðist benda til
þess, að Bandamenn séu enn á
því stigi, að loftárásirnar séu
mikilvægasti sóknarhernaður
þeirra. Með þeim ætli þeir að
eyðileggja framleiðslumátt og
úthald Þjóðverja og gera þannig
innrás í stórum stíl auðveldari
síðar.
í þessu sambandi má nefna
nokkrar tölur frá flugmála-
ráðuneytinu brezka. Allt árið
1941 var varpað 22 þús. smál.
af sprengjum á Þýzkaland, en
síðustu þrjá mánuðina (marz,
apríl, maí) 31,500 smál., þar af
12,500 smál. í maí einum. Hér
eru ekki meðtaldar sprengjur,
sem hefir verið varpað á ítaliu
og hernumdu löndin. Þessar
tölur tala skýrustu máli um efl-
ingu loftsóknarinnar.
Sonur Bonesteels, sem einnig
er herskólagenginn, gegnir her-
þjónustu í Norður-Afríku.