Tíminn - 16.07.1943, Qupperneq 4

Tíminn - 16.07.1943, Qupperneq 4
288 TIMITVX. föstndaginn 16. julí 1943 72. blað Héraðsmót U. M. S. H. Héraðsmót ungmennafélag- anna í Snæfellsness- og Hnappadalssýslu var haldið að Skildi í Helgafellssveit sunnu- daginn 4. júlí. Mótið hófst með messugerð við Arnarhól. Messuna flutti séra Sigurður Ó. Lárusson. For- maður héraðssambandsins, Kristján Jónsson frá Snorra- stöðum, setti mótið, en íþrótta- keppninni stjórnaði Jónas Jóns- son íþróttakennari. Að lokinni messugerð flutti Stefán Jónsson skólastjóri í Stykkishólmi ræðu. Fimm ungmenanfélög tóku þátt í mótinu. íþróttafélag Miklaholtshrepps bar sigur úr býtum. Úrslit urðu þessi í íþróttun- um: 100 m. hlaup: Bjarni Lárusson, Stykkis- hólmi, 12.8 sek., Þorkell Gunn- arsson, Akurtrööum, 13 sek., Benedikt Lárusson, Stykkis- hólmi, 13.2. 800 m. hlaup: Sveinbjörn Bjarnason, Hóli, 2 mín. 36,2 sek., Stefán Ásgríms- son, Borg, Bjarni Lárusson, Stykkishólmi. 75 metra hlaup kvenna: Fjóla Þorkelsdóttir, Fagrahól, 10,6 sek., Helga Lárusdóttir, Stykkishólmi, Guöný Árnadótt- ir, Hellnafelli. Langstökk: Stefán Ásgrímsson, Borg, 5.86 m., Bjarni Lárusson, Stykkis- hólmi, 5.69 m., Sveinbjörn Bjarnason, Hóli, 5.59 m. Þrístökk: Sefán Ásgrímsson, Borg, 12, 52 m., Hinrik Guðmundsson, Drápuhlíð, 11.72 m., Þorkell Gunnarsson, Akurtröðum, 11.25 m. Hástökk: Stefán Ásgrímsson, Borg, 1.66 m., Kristján Sigurðsson, Hrís- dal, 1.48 m., Einar Skarphéðins- son, Hjarðarbóli, 1.48 m. Spjótkast: Ágúst Bjartmars, Stykkis- hólmi, 34.85 m., Þorkell Gunn- arsson, Akurtröðum, 32.40 m., Hinrik Guðmundsson, Drápu- hlíð, 30 m. Kringlukast: Þorkell Gunnarsson, Akur- tröðum, 32.70 m., Hjörleifur Sig- urðsson, Hrísdal, 30.07 m., Hin- rik Guðmundsson, Drápuhlíð, 29.20 m. Kúluvarp: Stefán Ásgrímsson, Borg, 10.20 m., Magnús Guðmundsson, Stykkishólmi, 10.08 m., Krist- ján Sigurðsson, Hrísdal, 10.03 m. Glíma: í henni voru 5 þátttakendur. Flesta vinninga hlaut Stefán Ásgrímsson, Borg. Veður var gott allan daginn. Mótið var mjög fjölsótt og fór vel fram. Gjafir til Stúdenta- garðsins Nýja stúdentagarðinum hafa borizt tvær gjafir nýlega, and- virði tveggja herbergja. Magnús Torfason sýslumaður gefur andvirði annars herberg- isins til minningar um séra Jón lærða Halldórsson í Hítardal. Herbergið heitir „Hítardalur“, og hafa forgangsrétt reglusam- ir og efnilegir stúdentar, er stunda íslenzk fræði. Skal þar rm leita umsagnar Páls E. Óla- sonar sagnameistara, meðan hans nýtur við. Andvirði hins herbergis gef- ur Kvenstúdentafélag íslands. Er það gefið af tilefni fimmtán ára afmælis félagsins. Forgangs- rétt að herberginu hafi íslenzk- ur kvenstúdent, er stundar nám við Háskóla íslands. Herbergið heiti „Dyngja“. ttbreiðið Tímann! Á víðavangi. (Framh. af 1. síðu) má rýja eftir þörfum. Hann er eins og alþjóðar eign. Nú er honum yfirleitt brigzlað um vinnusvik. Hann er með því sví- virtur stórkostlega. Einn og einn verkamaður er latur. Það er eðlilegt. En slíkir menn eru í öllum stéttum. Alltaf er óskapazt yfir vinnu bænda. En hver lifir sæmilega við sjó án þess að þræla mikiö? Enginn! Voru ekki bændum seldar jarðir fyrir mjög lágt verð yfirleitt? Jú. Mörgum sama sem gefnar þær. Hvað hefir verkalýðnum veriö gefið? Upp- nefni, svívirðingar, vanþakk- læti og eftirtölur. Allt er of mik- ið handa honum. Allt er of gott fyrir hann. Hann má helzt ekki vera mannvinnungur. Og nú ó- skapazt fjöldi blaða yfir vel- megun hans. Þess þarf ekki. Þúsundir manna í þessu landi eru bláfátækir enn þá. Það er því hrein nauðsyn á því, að þeir fái mikla vinnu og vel borgaða og innlend matvæli með miklu lægra verði en nú eru þau.“ „BÆNDADEKRIÐ ER AÐ VERÐA PLÁGA“. Þetta er eitt af gullkornum greinarhöfundar. Eftir því ættu bændur að hafá fengið „kjara- bætur“ fram yfir aörar stéttir þjóðfélagsins og lifa við alls konar þægindi og „dekur“, sem aðrir eiga ekki völ á. Þeir hafa eftir því ágæt húsakynni, raf- magn, hitaveitur, vatnsveitur, bifreiðar og skóla handa börn- um sínum fast við bæjardyrnar. Ekki kannast skjólstæðingur Alþýðublaðsins viö neitt af slík- um þægindum? Barlómur blaðsins fyrir hönd launþeganna er broslegur. Og yfirleitt er erfitt að sjá nokkra vitglóru í rausi Alþýðublaðsins nema helzt að bera rógsorð og vekja úlfúð milli þeirra íslend- inga, sem enn búa í sveitunum, og hinna, sem búa í bæjunum. „ÉG ANN ÍSLENZKRI SVEITASÆLU" segir greinarhöfundur líka. Já, sér er nú hver ástin. Hún er svo brennandi, að hann vill út- rýma öllu fólki úr sveitunum. Bændur eiga að selja vörur fyr- ir sama verð og áður, þótt kaup- gjald við framleiðsluna hafi 5 —10-faldazt. Það eru „kjara- bæturnar“, sem blaðið ann bændum og sveitafólkinu yfir- leitt. Það á að hjara við sult og seyru í sveitinni til að geta veitt honum og öðrum „kjara- bótapostulum" úr Reykjavik beina, er hann leggur upp í lúxusbílnum til að viðra sig í sveitasælunni. Er hægt að kalla svona pilta annað en andleg skítseyði? Frá aðalíundí Samb. ísl. samvinnuíélaga (Framh. af 1. síðu) Kristjánsson, kaupfélagsstjóri, Kópaskeri, Jón ívarsson, kaup- félagsstjóri, Hornafirði, Sigurð- ur Jónsson, bóndi, Arnarvatni, Vilhjálmur Þór, ráðherra, Reykjavík, varaformaður, Þórð- ur Pálmason, kaupfélagsstjóri, Borgarnesi, Þorsteinn Jónsson, kaupfélagsstjóri, Reyðarfirði. Varamenn: Skúli Guðmunds- son, kaupfélagsstjóri, Hvamms- tanga, Jens Figved, kaupfélags- stjóri, Reykjavík. Endurskoðendur: Jón Guð- mundsson, skrifstofustjóri, Reykjavík, Tryggvi Ólafsson, verzlunarmaður, Reykjavík, Ól- afur Jóhannesson, lögfræðing- ur, Reykjavík, Benedikt Jóns- son, endurskoðandi, Reykjavík. Framkvæmdastjórar: Sigurð- ur Kristinsson, Reykjavík, for- stjó'ri, Aðalsteinn Kristinsson, Reykjavík, framkv.stj. Innfl,- deildar, Jón Árnason, Reykja- vík, framkv.stj. Útflutnings- deildar, Óli Vilhjálmsson, framkv.stj. fyrir skrifstofu S. í. S. í Kaupm.höfn, Sigursteinn Magnússon, framkv.stjóri fyrir skrifstofu S. f. S. í Leith, Helgi Þorsteinsson, framkv.stjóri fyr- ir skrifst. S. í. S. í New York. Leiðrétting. Sú misritun hefir slæðst inn í síðasta blað Tímans, að Pétur Bjarnason hefði haft á hendi skipstjórn á Súðinni, er árásin Rafmagnsmálið. (Framh. af 2. síðu) Síðustu árin hefir þjóðin eignazt allmikið fé í erlendum gjaldeyri og þar með hafa skap- azt möguleikar til að ráðast í kostnaðarsamar en nauðsyn- legar framkvæmdir, sem áður skorti fé til. Það fjármagn, sem safnazt hefir á stríðsárunum, að nokkru leyti vegna þess, að ekki hefir verið hægt að fá keypt efni til nauðsynlegra framkvæmda, þarf að nota til gagnlegra hluta þegar ástæður leyfa. Nokkru af því á að verja til kaupa á vélum og efni til raf- stöðvabygginga og raflagna um allt landið. Ákveðna fjárhæð af innieignunum erlendis ætti nú þegar að leggja til hliðar í þessu skyni. Raddir heyrast, sem segja að rafveitur um .allar byggðir landsins geti aldrei svarað kostnaði. Sérfræðingar geta á- ætlað kostnað við að gera raf- veiturnar, en tekjurnar er ekki eins auðvelt að ákveða í krónu- tali fyrirfram. Það er víst, að notkun raforkunnar mun marg- faldast á skömmum tíma. Aðal- atvinnuvegina, landbúnað, sjáv- arútveg og iðnað, vantar raf- orku, og ný verkefni fyrir raf- magnið skapast svo að segja daglega eftir að rafveiturnar eru byggðar. Líkur benda til þess, að rafveitukerfi um allt landið muni borga sig, peninga- lega, innan skamms. Hitt er al- veg víst, að það eykur hagsæld og hamingju, heilbrigði og menningu þjóðarinnar. Nú eru peningarnir til, og þeim verður ekki öðruvísi betur varið. Vitanlega kostar það mikið fé að koma raforkunni í allar byggðir landsins. Þó er hitt dýr- ara, að láta vatnsaflið og önn- ur gæði landsins ónotuð. Hvammstanga, 6. júlí 1943. Skúli Guðmundsson. Athngasemd. (Framh. af 3. síBu) sami sjúkdómurinn hafa leitt hann til dauða að lokum. Sama ár (1906) kvæntist hann ungri og góðri konu, sem veitti birtu og yl inn í líf þessa stórbrotna manns. Nokkru fyrr hafði hann keypt jörðina Mið- hús í Reykhólasveit og reist þar bú. Blómgaðist hagur hans ár frá ári, hann varð fjárhagslega vel stæður, naut ástar og um- hyggju sinnar ágætu konu og mannvænlegu barna, og virð- ingar og velvildar héraðsbúa. Þetta kunni hann að meta að verðleikum og undi hag sínum prýðilega. Því miður naut hann þessa skemur en skyldi. Hans gamli sjúkdómur ásótti hann von bráðar og leiddi hann til dauða fyrir aldur fram. Um læknisstörf Odds mynd- uðust ævintýrakenndar sögur, svo vel þótti honum takast vandasamar læknisaðgerðir við hin erfiðustu skilyrði. Síðustu ár ævinnar átti hann örðugt með að ferðast sakir sjúkleika, en óskoraðs trausts naut hann til síðustu stundar. Ég, sem þessar línur rita, átti ekki því láni að fagna að vera í neinni persónulegri vináttu við Odd lækni Jónsson og ber því engin sérstök skylda til að bera skjöld fyrir skeyti þau, sem beint er að gröf hans, en svo mikið þekkti ég hann, að svo framarlega sem hann ekki hef- ir breytzt því meir við vista- skiptin, tel ég líklegt að hann muni fáanlegur til að hjálpa ritstjóranum um eitthvað, sem nota mætti í fyrsta hefti „út- gáfunnar", þegar hún hefir göngu sína í ókunna landinu, því fyndist Oddi heiðri sínum misboðið, var hann ekki sérstak- lega rómaður fyrir hógværð, né heldur þurfti honum þá orð í munn að leggja. Jón Arinbjörnsson. var gerð á hana, en hr. Ingvar Kjaran er skipstjóri Súðarinn- ar sem kunnugt er. Hins vegar var það Pétur Bjarnason, 1. stýrimaður á Súð- inni, sem flutti brezka sendi- ráðinu þakkir fyrir hönd skip- stjóra og annarra skipverja, er nutu aðstoðar hinna brezku togara. ±SS3L Þór tll 'Vcstmannacyja. — Vörumóttaka fyrir Iiá- degi í dag. Egill Signrgeirsson hæstaréttarmálaflutningsmaður Austurstræti 3 — Reykjavík Vinniú ötullega fgrir Tíniann. Þættir af Guðmunili refaskyttn. (Framh. af 3. síðu) nær boli að stanga hana, hend- ir drengur sér þá af baki og hleypur inn um húsdyrnar og upp í jötuna og inn um garða- dyrnar inn í tóftina, en boli kemur á eftir inn í húsið og upp í jötuna og treður sér inn um tóftardyrnar, en þá er Guð- mundur kominn upp úr tóftinni, og þá snýst leikurinn við. Læt- ur strákur þá grjótið ganga ó- spart niður yfir skepnuna, og hugsar nú ekki mikið um dýra- verndun. Hellugrjótið dynur á hrygg og síðum bola eins og bezt lá við, og ver honum tóftar- dyrnar eins lengi og hægt er, en er bola fannst nóg komið af svo góðu, ryðst hann út um dyrnar, fram jötuna og kippir þremur stoðum undan húsinu um leið og hann ryðst út. Fer piltur á eftir honum, nær í raft og eltir bola, en hann hleypur þar út í fúafeni og situr þar fastur. Lætur Guðmundur spýt- una ganga á honum, þar til hann er uppgefinn og fer síðan heim. Um nóttina fer piltur að hugsa um, hvort boli muni nú ekki drepast þarna í feninu, og fer eldsnemma um morguninn til að hyggja að bola, en hann er þá allur á burt og þykir Guð- mundi vænt um það, því að ekki vildi hann verða til þess að drepa bola. Daginn eftir kom Guðmund- ur að Hvítárvöllum og spyr þá Andrés hann, hvort hann viti nokkur deili á þessu með bola, því að hann hafi komið heim um nóttina illa útleikinn, og sýndu merkin verkin. En fátt karlmanna var heima á næstu bæjum og átti Andrés þess ekki von, að neinn hefði getað leikið bola svo. Segir þá Guðmundur Andrési alla söguna, en hinn segist ekki trúa því, að hann, drengurinn, hafi verið valdur að þessu, nema að hann sjái vegsum- merki. Fór Andrés síðan með Guðmundi á vettvang og sá stríðsvöllinn. Þessar tvær sögur frá ung- lingsárum Guðmundar Einars- sonar, sýna það bezt, að snemma hefir borið á kjarki hans og hugdirfð, snarræði og kröftum, en þessa eiginleika á hann í ríkum mæli, og hefir oft þurft til þeirra að taka, bæði á refaveiðum sínum, í lífs- baráttunni og hinum fjölmörgu viðureignum sírium við mannýg naut, því að sannarlega hefir hann oftar komizt í kast við vonda bola en á æskuárunum milli Heggstaða og Hvítárvalla. Marga veiðiförina er hann bú- inn að fara í Nesdal, sem er nautaafrétt Dýrfirðinga og Ön- firðinga, og oft komizt í kast við þau, og oftast lent á hon- um að vera nálægur, er þeir voru handsamaðir að hausti. Leiðbeiningar nm hirðingu búfjár. (Framh. af 2. síðu1 ríkjahersins hafa vakið svo mikla athygli á störfum sínum með pésa þessum, að það hlýtur að verða þeim talsvert metnað- armál, að árangurinn verði að sama skapi jákvæður. J. Ey. OAMLA BlO-——.n.i Vcðmálið. (Nothing but the Truth). Sprenghlægileg gaman- mynd. — Aðalhlutv.: PAULETTE GODDARD, BOB HOPE. Sýnd kl. 7 og 9. GAMLA COLORADO. Cowboy-mynd með William Boyd. Börn innan 12 ára fá ekki aðgang. -----BTÝJA BÍÓ Ailams- fjölskyldan (Adam Had Four Sons) INGRID BERGMAN, WARNER BAXTER. Sýnd kl. 7 og 9. Sýning kl. 5: GULLNEMARNIR (North to the Klondike) Eftir samnefndri sögu Jack London. ANDY DEVINE, BOB CRAWFORD, EVELYN ANKERS. Börn fá ekki aðgang. lnnilegt hjartans þakklœti fœri ég hér með þeim kven- félagskonum, sem beittu sér fyrir hinu virðulega samsœti, er mér var haldið þann 9. júlí s. I., ásamt öðrum þeim, er er þann dag heiðruðu mig með heimsóknum, veglegum gjöfum og skeytum, — í tilefni þess, að ég hefi látið af Ijósmóðurstörfum, eftir að hafa haft þau á hendi í 45 ár. Guð ölessi ykkur öll. KRISTÍN SIGURÐARDÓTTIR, Bakka. ,, ---------—-—------------------------— -—. ^-^4 Tilkynning um sðlu á biíreiðagúmmíum Fyrst um sinn, eða þar til öðruvísi verður ákveðið, hafa eftir- taldir aðilar á hendi sölu á bifreiðahjólbörðum og tilheyrandi lijólbarða- slöngum: . Egill Vilhjálmsson h.f., bifreiðavarahlutaverzlun, Reykjavík, Sveinn Egilsson, bifreiðavarahlutaverzlun, Reykjavík, Ræsir h.f., bifreiðavarahlutaverzlun, Reykjavík, Samband ísl. samvinnufélaga, Reykjavík, Heildverzlun Ásgeirs Sigurðssonar, Reykjavík, Finnur Ólafsson, heildsali, Reykjavík. 5. júll 1943, Viðskiptaráðið. Blautsápa frá sápuverksmiðjunni Sjöfn er almennt við- nrkennd fyrir gæði. Flestar húsmaðer nota Sjainar-blautsápu TÍMIAN er víðlesnasta auglýsingablaðið! Fyrirhleðslan í Djúpós (Framh. af 1. síðu) er til sæmdar. Eigi veit sá, er þetta ritar, hve gamall sam- vinnuskóli Rangárnar og Þverá hafa verið Þykkbæingum, en hitt er víst, að þau hafa verið þeim gagnlegur skóli í þessu efni. Jafnframt því að frjóvga ogauka grasvöxtinn, eftir að þau tóku að flæða um hina víðlendu lág- sléttu, lögðust þau í ála, sem gerðu Þykkbæingum þungar búsifjar, en jafnan hrundu þeir þó meginvatnsmagninu í hinn upphaflega farveg Hólsár með fyrirhleðslum. Fyrir 20 árum var viðureignin tvísýnust. Þá lagði megin vatnsþunginn úr þessum þremur stórám leið sína gegnum Djúpós um Safamýri alla, svo að lá við auðn byggðarinnar. En þá var hafizt handa og fullnaðarsigur unninn yfir hinu 90 faðma breiða straumvatni með hinni kunnu Djúpósfyrir- hleðslu, sem er mest mann- virki sinnar tegundar hér á landi. Með fyrirhleðslunni var ekki aðeins heyfeng hinna 30 jarða, bjargað, heldur var þetta jafn- framt hin mikilsverðasta sam- göngubót, sem færði Þykkbæ- ingum bifreiðina til frambúðar heim í hlað. En til bráðabirgða vildi svo til, að sama kvöldið og þeim auðnaðist að teppa Djúpós, kom hafskip fyrsta sinni undir Þykkvabæjarsand hlaðið nauðsynjavöru, fyrir annan þátt samtakamáttar þeirra sjálfra. Svo snöggt skipti um aðstöðuna til aðdrátta, þegar þessi illfæra skenamdar- vættur var lögð í fjötra. Eiga nú Þykkbæingar hey- feng sinn tiltækan, en störinni hafa þeir bætt vatnsmissinn með veglegu skurðakerfi og uppistöðugörðum, svo að gras- vöxtur verður þar árvissari en víða annars staðar. Á árum þeim, sem liðin eru síðan, hefir skipt mjög um hag byggðarlagsins. Sést það á húsabótum, hverskyns verkvél- um, auknum bústofni, miklu og góðu samkomuhúsi. En athygl- isverðust er þó viðleitni Þykk- bæinga, sem freista að breyta sandeyðimörk sunnan byggðar- innar, álíka víðáttumikilli og Safamýri, í nytjgland. Og má ætla að þeim heppnist það, þótt eigi komi það að beinu gagni þeim, sem fyrir því beitast.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.