Tíminn - 20.08.1943, Side 3
82. blað
TÍMIM, föstudaginn 20. ágúst 1943
327
ANNÁLL
Afmæli.
Ingunn Eyjólfsdóttir á Laug-
arvatni, kona Böðvars Magnús-
sonar hreppstjóra, varð 70 ára
2. þ. m.
Ingunn er fædd 2. ág. 1873 á
Laugarvatni. Var faðir hennar
Eyjólfur bóndi, sem lengi bjó á
Laugarvatni, Eyjólfsson frá
Snorrastöðum, Guðmundssonar,
Þorleifssonar frá Bermóðsstöð-
um. Síðari kona Eyjólfs á Laug-
arvatni var Ragnheiður Guð-
mundsdóttir bónda í Eyvindar-
tungu, Ólafssonar frá Þormóðs-
dal, en Ragnheiður, móðir Ing-
unnar, varð síðar kona Magn-
úsar, föður Böðvars. Eru þau
því stjúp- og uppeldissystkin,
Ingunn og Böðvar.
Þau hjón, Ingunn og Böðvar,
eiga 12 börn á lífi, 11 dætur og
1 son, og eru 10 þeirra gift. Má
af þessum barnafjölda sjá, að
mikið verkefni hefir verið lagt
upp í hendur Ingunnar, en hún
leysti það með prýði af hendi
eins og öll verk önnur, sem
hvorki hafa verið fá né um-
fangslítil, því Ingunn er fram-
úrskarandi dugleg og ósérhlífin
kona.
Ingunn er látlaus i fram-
komu, tíguleg í fasi, alúðleg í
viðmóti, ræðin, skýr og skemmti-
leg. Hún er fjölhæf í verki,
starfsöm og mikilvirk, og ást-
rík og fórnfús móðir.
Heimili þeirra hjóna er jafn-
an fjölmennt og ber vott um
gestrisni og skörungsskap.
Þorvaldur Ólafsson á Karls-
stöðum í Beruneshreppi varð
sjötugur á aðfangadag jóla síð-
astliðinn. Er hann fæddur að
Kesjum í Hornafirði. Árið 1901
festi Þorvaldur ráð sitt. Kvænt-
ist hann þá Mekkínu Eiríks-
dóttur bónda að Hlíð í Lóni og
byrjuðu þau búskap á Veturhús-
um i Hamarsdal.Er það afskekkt
fjallabýli og var þá í litlu áliti.
Þótti því þeim eldri og reyndari
nóg um framtak hins unga
bónda, ekki sízt þar sem bú-
stofninn var við lægstu tak-
mörk. En eftir fjögra ára búsetu
er Þorvaldur kominn í betri
bændaröð innan sveitar og hef-
i sýnt með eigin verkum, að hin
jíslenzka fjörmold launar ávallt
jdygga þjónustu og svíkur eng-
' an um arð af því pundi, sem
henni er falið til varðveizlu.
Vorið 1905 hverfur Þorvaldur
: frá Veturhúsum. Tekur hann þá
1 til ábúðar Háls í Hálsþinghá.
Er sú jörð gamall kirkjustaður.
! Þar er hann næstu 12 árin. Á
1 Hálsi mætir honúm þungt
heilsuleysi og aðrir erfiðleikar,
I sem hann kemur þó fleyi sínu
heilu í gegnum. Þaðan flytur
hann 1917 að Karlsstöðum, þar
sem hann býr í 20 ár samfleytt,
— eða þangað til Snorri, sonur
hans, tekur við búsforráðum.
j Á Karlsstöðum hefir Þorvald-
ur rekið mikinn myndarbúskap.
Flestöll hús jarðarinnar hefir
hann endurreist og fært túnið
; út til beggja handa ásamt öðr-
um framkvæmdum. En í öllu
hans starfi hefir sú kona, sem
var honum ung gefin, verið hans
önnur hönd. Virðist hún hafa
heitið honum, eins og sam-
verkasystir hennar á Bergþórs-
hvoli Njáli forðum, að eitt skyldi
yfir þau bæði ganga.
Mekkínu og Þorvaldi varð sex
barna auðið, sem erfðu beztu
kosti .úr bátum ættum. En þrjú
þeirra eru þegar flutt á undan
þeim yfir djúpið mikla.
Þorvaldur er meðalmaður
vexti, skaptraustur og vina-
vandur. Er enn beinvaxinn, og
augun eru snarleg. Um lands-
mál öll hefir hann sýnt hinn
sama áhuga og sjálfs sín starfi.
Vill hann varðveita það, sem
bezt hefir reynzt frá hinum
horfnu feðrum. Og telur hann
rétt stefnt, ef erlendum stefn-
um er sýnd varúð og gætni.
Kaupfélagsstarfsemi við Beru-
fjörð hefir hann verið hinn
mesti stuðningsmaður og var
um langan tíma deildarstjóri
Berunessdeildar K. B. F. í
hreppsnefnd og fræðslunefnd
átti hann einnig lengi sæti.
í seinni tíð hefir Þorvaldur átt
mjög við vanheilsu að stríða.
Getur hann því ekki gengið eins
að hinum daglegu störfum og
áður. En tómstundir sínar not-
ar hann til þess að fylgjast þeim
mun betur með rás viðburðanna
Harmar hann frá óðali sonar
síns hin niðurbrjótandi öfl. En
er honum verður litið á vaxandi
tækni samtíðarinnar, á það, sem
gerir veg atorkumannsins greið
færari, þá óskar hann þess að
vera orðinn ungur í annað sinn
og hefja nýtt landnám.
Aðalsteinn Gíslason.
landsstjóri í New York 37%,
Willkie 28%, Mac Arthur hers-
höfðingi 15%, Bricker .land-
stjóri í Ohio 10%.
Sumir telja, að verði Roose-
velt í kjöri, muni republikanir
leggja meiri áherzlu á kosning-
arnar til þingsins en forseta-
kosningarnar. Nái þeir meiri-
hluta á þingi, geta þeir hindrað
alla meiriháttar umbótastarf-
semi Roosevelts.
Endurbætur skólamálanna
í Bretlandi.
Fyrir 1—2 árum síðan skipaði
enska stjórnin nefnd til að gera
tillögur um breytingar á skóla-
málum þjóðarinnar. Nefndin
hefir skilað áliti sínu nýlega og
leggur til, að gerðar verði mjög
víðtækar breytingar.
Nokkrar helztu breytingarnar
eru þessar:
Skólaskyldur aldur verði þeg-
ar hækkaður í 15 ár og síðan í
16 ár.
Fram til 11—12 ára aldurs
ganga börnin í almenna barna-
skóla, en skiptast eftir það 1 sér-
stakar deildir með tilliti til
hneigða og fyrirætlana um at-
vinnu í framtíðinni. íþrótta-
nám verður stóraukið.
Krisfcindómskennsla verður
aukin í barnaskólunum, þar sem
eigi er minna virði að efla sið-
ferðilegar dyggðir en þekking-
una.
Unglingar á aldrinum 15—18
ára, sem stunda atvinnu, fá á-
kveðin frí til framhaldsnáms.
Auknir styrkir handa efnileg-
um námsmönnum til að stunda
nám við háskóla og sérskóla.
Kennaramenntunin verður
endurskipulögð og stóraukinn
með tilliti til ofantaldra breyt-
inga.
Gert er ráð fyrir, ef tillögur
þessar verða samþykktar, að op-
inber kostnaður við skólahald í
Bretlandi og Wales aukist úr 123
milj. í 190 milj. sterlingspund
Japanskir hermenn
ráða sér bana.
Eins og kunnugt er, náðu
Bandarikjamenn í vor af Jap-
önum einni Alleutian-eyjunni
Attu. Japanir tóku þessa eyju
síðastl. sumar og höfðu þar síð-
an ’nokkurra hundraða manna
setulið.
Næstum ekkert af þessu setu-
liði var tekið til fanga. Margir
Japanir höfðu fallið fyrir
Bandaríkjamönnum, en aðrir
höfðu sjálfir ráðið sér bana
þegar þeir sáu, að vörnin var
orðin vonlaus. Nokkrir höfðu
látið fallast aftur á bak á
byssustingina, en flestir höfðu
varpað handsprengju í andlit
sér.
Framganga . Japana á Attu
virtist öll benda til þess, að þeir
hefðu haft fyrirskipun um að
fella eins marga Bandaríkja-
menn og aúðið væri, en ráða
síðan sjálfa sér bana, ef þeir
ættu ekki annan kost og þann
eða að vera teknir til fanga
Þessari fyrirskipun höfðu þeir
fylgt út í yztu æsar og enn einu
sinni sýnt hvítum mönnum
hversu harðfengir og óragir bar
dagamenn Japanir eru.
Frelsishetja Tékkóslóvakíu
FRAMHALD.
Enska lögreglan hafði af einhverjum ástæðum fengið illan
bi/ur á Mazaryk, og það var aðeins fyrir tilstilli áhrifamikilla
vina hans í Englandi, að því var forðað, að hann væri hnepptur
fangabúðir. Síðar var hann einnig fyrir tilstilli þeirra veitt
prófessorstign við Lundúnaháskóla honum til framfæris.
Það mátti virðast vonlaust starf fyrir snauðan, útlægan há-
skólakennara að vinna traust og hylli hinna brezku valdamanna,
auk þess sem honum hafði ekki enn tekizt að sameina slafnesku
ajóðbrotin undir merki sitt. Enn voru sem sé margir, sem treystu
Rússa sem bjargvætt slafnesku þjóðanna.
Vesturveldin voru hins vegar óánægð með framgöngu Rússa
styrjöldinni, og sú óánægja bitnaði að nokkru leyti á málstað
Tékka.
En Tómas Mazaryk vann af kappi og forsjá. Hann ritaði ara-
grúa greina í blöð og tímarit, hann átti viðræður við stjórn-
málamenn og hann skrifaði óteljandi fjölda bréfa. En enn sem
fyrr var hann umsetinn alla daga.
„Ég fékk eitrun eins og í Genf. Læknarnir gátu ekki skýrt
orsakir sjúkdómsins. Að þeirra ráðum fór ég til Bournemouth, og
oar var skörið í kaun mín. Skurðlæknirinn fullyrti, að ég hefði
orðið fyrir hörundseitrun. Ég háfði því fyllstu ástæðu til þess að
ætla, að óvinir mínir væru enn á hælum mér. Ég varð þeirra
einnig margsinnis var, bæði í Genf og Lundúnum. Til vonar og
\ara bar ég alltaf skammbyssu og æfði skotfimi, meðfram til
Dess að sýna þeim, sem voru á hælum mér, að ég væri var um
mig.“
Smátt og smátt tók starf Mazaryks að bera ávöxt. Þjóðfrelsis-
nefnd Tékka og Slóvaka var sett á stofn í Vestur-Evrópu, og sú
iiefnd var eftir það miðstöð hinnar tékknesku frelsishreyfingar.
Rússneska stjórnin varð fyrst til þess að viðurkenna rétt Tékka
til sjálfstjórnar, og leyfði tékkneskum hermönnum og herföngum
í Rússlandi að mynda sérstaka herdeild, sem berðist gegn hinum
drottnurum sínum undir rússneskri yfirstjórn. Forsætisráðherra
Frakka viðurkenndi baráttu Mazaryks og ræddi við hann um
frelsismál smáþjóðanna í Mið-Evrópu. Og loks kom stærsti sig-
urinn. Wilson Bandaríkjaforseti spurði forustumenn Banda-
manna, hver væri tilgangur styrjaldarinnar af þeirra hálfu.
Bandamenn svöruðu, og meðal þeirra skilyrða, er þeir settu fyrir
3ví að friður mætti takast, var sjálfstæði Tékka og Slóvaka. Allt
hafði þetta gerzt fyrir atbeina Mazaryks. Allt voru þetta merki-
iegir áfangar í baráttu hans, en hið síðasttalda var þó merkileg-
asti sigurinn. Þar með var bægt brott mestu hættunni: Að Banda-
menn semdu við Austurríkismenn á þeim grundvelli, að þeir
fengju að halda yfirráðum í Bæheimi.
Eftir þetta fór einnig að ganga mun betur að þjappa hinum
kúguðu, slafnesku þjóðabrotum saman, Lönd þeirra voru að
vísu enn hluti af austurríkska keisaradæminu. En réttur þeirra
til sjálfræðis hafði verið viðurkenndur. Mazaryk gerði samning
við'frönsku stjórnina um það, að þrjátíu þúsund Tékkar, sem
voru herfangar í Frakklandi, skyldu sendir til Rússlands til þess
að berjast með tékknesku herdeildunum þar. Þenna samning
gerði hann í umboði tékknesku þjóðfrelsisnefndarinnar.
Þótt þessi frásögn kunni að hljóma ofur hversdagslega í eyrum,
var allur aðdragandi þessara atburða sannarlega hetjulegt afrek.
Markmið Bandamanna var að brjóta Miðveldin sem fyrst á bak
aftur. Að því marki var allri orku þjóðanna beint. Það má því
nærri geta, hvort valdamennirnir hafa til að byrja með þótzt
hafa mikinn tíma til þess að hlusta á kveinstafi útlends háskóla-
kennara, sem var að leggja inn góð orð fyrir einhverri þjóð aust-
ur í Mið-Evrópu, sem þeir vissu næsta lítil skil á og var nánast
ekki lengur til að flestra áliti. Var ekki nóg annað brýnna að
gera á þessum hættutímum en hlusta á hann? En Mazaryk gafst
ekki upp, og þeir, sem aldrei láta bugast, hljóta oftast að lokum
sigurlaun.
Skyndilega hófst byltingin í Rússlandi. Mazaryk varð undir
eins að fara þangað. Þar var mikill fjöldi Tékka, og þótt hið
gamla Rússland væri hrunið til grunna, gat þó verið næsta mikils
vert að vel væri haldið á málstað Tékka þar.
Undir fölsku nafni ferðaðist Mazaryk um Svíþjóð til Rúss-
lands. Vera kunni að sænska stjórnin yrði við hugsanlegri kröfu
Austurríkismanna um að handtaka hann, ef hann léti uppskátt
um ferðir sínar. En hann komst leiðar sinnar við litla töf. Hann
varð þó of seinn til þess að komast með því skipi, er hann hafði
gert ráð fyrir. En það þurfti hann ekki að harma, þvi að þetta
skip var sprengt í loft upp í þeirri ferð.
Það kom fljótt á daginn, að þátttöku Rússa í styrjöldinni var
lokið. En engu síður hafði Mazaryk þar stórfenglegu verki að
sinna. Mjög margir Tékkar höfðu verið í Rússlandi, þegar styrj-
öld skall á. Margir höfðu verið teknir til fanga af Rússum, auk
þess sem tékkneskir herfangar höfðu verið sendir þangað frá
öðrum löndum. Eftir mikla erfiðleika hafði honum tekizt að fá
að mynda tékkneska herdeild, sem barðist með Rússum, og nú
afréð hann að safna saman leifum þessara tékknesku hersveita
og mynda af þeim tékkneskan þjóðher. Hann sá, að slíkur her
gat orðið tékknesku frelsishreyfingunni ómetanleg stoð, þótt
íámennur væri og fátæklega búinn að vopnum. Hann væri óræk
sönnun fyrir frelsisvilja þjóðárinnar og rétti til óskoraðs sjálf-
stæðis við hlið annarra Evrópuþjóða. En Mazaryk hafið ekki
hugsað sér, að þessi her hefði aðsetur sitt í Rússlandi öllu leng
ur. Þar var allt á fallanda fæti. Hann vildi, að hann yrði fluttur
til Frakklands. Þessi fyrirætlun sætti vitaskuld andmælum í
Rússlandi, því að Rússarnir vildu njóta góðs af tékknesku her
sveitunum í innbyrðis deilum sínum. En Mazaryk lét slíkt ekki
aftra sér. Hann tók að vinna að því að fylkja Tékkum til loka-
baráttunnar undir merkjum tékkneska þjóðhersins.
Svo kom bolsévikkabyltingin. Mazaryk sá, að hann varð að
koma her sínum brott hið skjótasta. En hvernig var unnt að koma
honum til Frakklands? Það var aðeins ein leið fær, og flestum
mundi hafa þótt hún ófær líka. Herinn varð að fara austur yfir
Rússland og Síberíu til Vladivostok og þaðan skipaleið til Evrópu
Þetta var djarfleg ætlun, og hún var framkvæmd af hetjudug
og óbifandi þreki. Til þessarar ferðar tókst honum að fá fé frá
Bandamönnum og ferðaleyfi frá rússnesku stjórninni. En þótt
bolsévikkastjórnin héti her Mazaryk frið og griðum, fór þó svo
er fram í sótti, að hann varð sífellt að vera á varðbergi gegn
hersveitum hennar, sem hvað eftir annað réðust á hann. Hann
varð í rauninni að ryðja sér leið gegnum óvinaland.
Þegar herinn var loks kominn í áfangastað, tókst Mazaryk
ferð á hendur til Vesturheims. Starfi hans í Rússlandi var lokið
Þar hafði hann oft sloppið nauðuglega úr bráðri lífshættu. Eitt
sinn sat hann nefndarfund í gistihúsi einu. Þá kom til óeirða
Sambmnd ísl. smmvlnatufélagat
KAUPFELOG!
Gætið þess að hafa vörur yðar nægilega
vátryggðar.
Hjartanlega þakka ég öllum börnum, tengda- og barna-
börnum mínum, frœndum og vinum, sem heimsóttu mig á
70 ára afmœli minu og gáfu mér miklar og veglegar gjafir.
Einnig fyrir hinar mörgu og hlýju kveðjur, sem mér bár-
ust þann dag. — Guð launi og blessi ykkur öll.
Ingunn Eyjólfsdóttir, Laugarvatni.
Hjartanlega pakka ég öllum peim, sem meö
skeytum, gjöfum og á annan hátt sýndu mér vin-
áttu og sæmd á fimmtugsafmœli mínu.
Sigurður Birkis.
Hjartanlega þakka ég ykkur öllum, sem með gjöfum,
kveðjum, heimsóknum og á annan hátt glödduð mig og
gerðuð mér ógleymanlegt sjötíu ára afmœlið.
Sérstaklega þakka ég ykkur börnum og tengdabörnum
mínum fyrir sífellda umhyggju ykkar fyrir mér og ekki
sizt við þetta tœkifœri.
Guð blessi líf ykkar allra, kœru vinir!
EIRÍKUR ÁGÚST JÓHANNESSON,
» Hrafnkelsstöðum.
Gjalddagi skatta
í dag falla í gjaldaga eftirgreind gjöld fyrir ár-
ið 1943: Tekju- og eignarskattur, stríðsgróða-
skattur, verðlækkunarskattur, fasteignaskatt-
ur, lestagjald, lífeyrissjóðsgjald og námsbóka-
gjald. Þá eru fallin í gjalddaga kirkjugjald,
utansafnaðarmannagjald og kirkjugarðgjald
fyrir árið 1943.
Öllum framangreindum gjöldum er veitt við-
taka á tollstjóraskrifstofunni í Hafnarstræti 5,
herbergi nr. 1—5, en skrifstofan er opin á virk-
um dögum kl. 10—12 f. h. og 1—4 e. h. nema
á laugardögum aðeins kl. 10—12 f. h.
Tollstjórinn í Reykjavík, 14. ágúst 1943.
Eldhússtúlkii
vantar á Kleppsspítala.
Upplýsingar hjá ráðskomumi, sími 3099.
Blautsápa
frá sápuverksmiðjwuri Sjöfn er almennt vi*-
arkennd fyrir tfmði. Fleatar kíamninr nnta
Sjafnar-blautsápu
Gleymið ekki að borga
T í m a n n.