Tíminn - 26.10.1943, Blaðsíða 4

Tíminn - 26.10.1943, Blaðsíða 4
416 TlMIMV, PriðjMclagliin 26. okt. 1943 104. blað Ólík afstaða . . . (Framh. af 1. síðu) neyzluvörur sæta lakari með- ferð, skortur á þeim er miklu meiri og milliliðakostnaður mörgum sinnum hærri, verður það enn ljósara, að hér er um að ræða beina pólitíska árás á hendur bændasamtökunum. Til þess að sannprófa, hvort hér væri um að ræða áhuga fyrir velferð neytenda, hefir Sveinbjörn Högnason borið fram breytingartillögu við tillögu Gunnars þess- efnis, að rann- sóknin sé látin ná til allra inn- lendra neyzluvara. Rannsóknin yrði þá beint að þeim viðfangs- efnum, þar sem þörfin er mest, t. d. fisksölunni og kartöflu- skortinum. En þessi tillaga séra Svein- bjarnar hefir hlotið hinar verstu undirtektir margra Sjálfstæðis- manna. Það er'^því hrein blekk- ing, að þessi tillaga sé borin fram af umhyggju fyrir neyt- endum. Hún er ofsókn á hendur þeim — tilraun Reykjavíkur- íhaldsins til að sýna, að það sé ekki óskeleggara í andstöðunni við hagsmuni bænda en kom- múnistar. Gjafir eru yftnr gefnar. Bændur hafa þegar gert sér Ijósa ofsóknartilraun þá, sem hér er á ferðinni. Þeir hafa séð, að tilgangurinn er að láta þá sæta annari meðferð og öðrum rétti en aðra landsmenn. Til- búnar ádeilur á hendur þeim á ,að nota sem tilefni þess, að fyrirtæki þeirra séu sett undir pólitíska sakamálsrannsókn. Bændur hafa því risið upp til mótmæla. Mjólkurfélög þeirra austan heiðar, vestan heiðar og í Borgarfirði hafa því mótmælt tillögu Gunnars, jafnhliða og þau hafa mótmælt frv. kom- múnista um mjólkurmálið. Bændur munu því vissulega veita'því mikla athygli, hvern- ig meirihluti Sjálfstæðisflokks- ins, sem þykist hlynntur bænd- um, hagar sér í þessu máli. Stendur hann með Reykjavík uríhaldinu og kommúnistum til þess að framkvæma ofsóknina? Én það mega þeir góðu Sjálf- stæðismenn vita, að hafi þeir samvinnu við kommúnista til þess að koma fram þessu of- beldi gegn bændum, munu bændur minnast þeirra gjafa, sem þeim eru nú gefnar, og vel getur þá verið, að hægt muni að endurgjalda þær, þótt síðar verði. Ef fyrirtæki bændanna verða tekin til pólitískrar rann- sóknar, væri kannske ekki van- þörf á því, að ýms önnur fyrir- tæki hljóti sömu meðferð. Afstaða Sj ájf stæðisf lokksins til olíuhringanna og samtaka bænda í þessum málum, talar líka nógu skýrt um það, hverra erindi flokkurinn rekur. Hann berst gegn hlutlausri rann- sókn á olíuhringunum, en margir þingmenn hans heimta pólitíska rannsókn á félags- skap bænda um mjólkursöluna. Ný stjórn (Framh. af 1. siðu) stæðisþingmennirnir muni verða að fórna „framtaki ein- staklingsins“. Það fylgdi sög- unni, að „nýja stjórnin“ myndi taka við, er hún hefði tryggt sér meiri hluta í þinginu. — Svo virðist sem flestir leggi trúnað á sögusagnir þessar, nema sjálf- stæðismenn.“ Svo mörg eru þau orð. Því verður ekki neitað, að orðróm- ur þessi hefir gengið um bæinn að undanförnu. Jónas Jónsson skýrði einnig nýlega frá því í Degi, — eða gaf í skyn, að slík- ar samningaumleitanir færu fram, en gerði jafnframt ráð fyrir að stjórn, sem mynduð væri með þessum hætti, myndi ekki líkleg til langlífis. Virðast þessi ummæli staðfesta al- mannaróminn að nokkru, en þingmenn fara oft nærri um hvað gerist innan þingveggj-. anna þótt þeir sjálfir taki ekki þátt í ráðagerðum. Hins vegar ber ekki að leyna því, að Sjálf- stæðisflokkurinn myndi aldrei standa óskiptur að slíkri stjórn- armyndun og virðist þá óðs manns æði að stofna til hennar. Vísir hefir ekkert samband við þá menn innan Sjálfstæðis- flokksins, sem að samningum þessum kunna að standa, og getur því engar frekari skýr- ingar gefið.“ ÚR BÆNUM Trúlofun. Fyrsta Vetrardag opinberuðu trúlof- un sína ungfrú María Rögnvaldsdóttir, Sólvallagötu 14 og stud. theol. Traustl Pétursson frá Dalvík. Háskólinn var settur á laugardaginn. Rektor flutti ýtarlega ræðu um starfrækslu skólans. M. a. gat hann þess, að há- skólinn hefði ákveðið að veita árlega úr sáttmálasjóði 20—40 þús. kr. 10—15 næstu árin til útgáfu íslenzkrar orða- bókar, sem nær yfir tímabilið síðan 1540, er prentun hófst á íslandi. Þá gat hann þess, að 86 stúdentar hefðu innritast i Háskólann í haust eða 32 í læknadeild, 25 í norrænudeild, 13 i verkfræðideild, 8 í lögfræðideild 4 í guðfræðideild og 4 í viðskiptadeild. Jóhann Eiríksson, bifreiðastjóri hjá mjólkursamsöl- unni, varð fimmtugur í gær. Jóhann er hinn mætasti maður og nýtur vin- sælda þeirra, er hann þekkja. Þingfréttir Tíinaiis (Framh. af 2. síðu) selt jarðeignir sínar eða ráðstaf- að þeim á allan hátt eftir geð- þótta sér til hagræöis. 4. í 10. gr. er lagt til, að op- inberir styrkir til ættaróðala, hvort sem þeir eru greiddir samkv. jarðræktarlögum eða á annan hátt, skuli ekki færast sem fylgifé þess. 5. í 11. gr. er lagt til, að skipti á‘ óðalsjörð séu því aðeins heim- il, að jörðin hafi verið bætt verulega, nema jörðin vegna breyttra búnaðarhátta verði ekki fullnytjuð af einum ábú- anda. Ákvæðiö er sett til þess, að erfingjar eða þeir, sem skiptanna óska, verði að vinna að umbótum á jörðinni, áður en skipti geta farið fram, og undirbúi þannig sína eigin framtíð. 6. í 3., 4. og 5. kafla er mjög víða ýmist kveðið skýrara á um ýmis atriði eða bætt inn ákvæð- um, er bersýnilega vantaði í lög- in, en þarfnast ekki sérstakrar skýringar. 7. Kaflinn um ættarjarðir, 26. .■—33. gr„ er nýmæli. Með ákvæð- um þessum er tvennt haft í huga. Reynt er að verða við ósk- um þeirra, er vilja, að jarðir, sem verið hafa óslitið í sömu ætt heila öld eða meira, megi ekki selja, án þess að mönnum af ættinni sé gefinn kostur á að kaupa þær. Jafnframt eru lagð- ar þær kvaðir á seljendur þess- ara jarða, að verð þeirra til ætt- manna megi ekki fara yfir fast- eignamatsverð. í öðru lagi er gengið til móts við þá bændur, er af einhverjum ástæðum þykir ákvæði óðalsréttarlaganna of bindandi, að því er snertir arfa- skipti o. fl„ en kjósa þó að nota sér ákvæði þeirra að öðru leyti. Þetta er gert á þann hátt, að þeim er heimilað að gera jaröir sínar að ættarjörðum með sér- stökum gerningi. Hvor tveggja ákvæðin eru líkleg til að verða talsvert notuð, er fram líða stundir. ■8. í 8„ 9. og 10. kafla, er fjall- ar um erfðaábúð, er rýmkuð nokkuð heimild leiguliða til lántöku með veði í ábúðarjörð sinni til bygginga eða annarra varanlegra umbóta á jörðinni, sem verða þá eign hans. Þá er lagt til í 36. gr„ að leiguliðabót sú, sem greidd er af slíkum lán- um, verði skoðuð sem trygging- arfé, sem leiguliði fái útborgað, þegar lánið er að fullu greitt. — Aðrar breytingar eru aðeins ýt- arlegri ákvæði og bætt við nýj- um ákvæðum, er vantaði í lög- in og leiðir af efni málsins, svo sem ákvæði um, þegar ábúenda- skipti verða milli ættliða o. fl. 9. í 11. kafla eru sett nokkru ýtarlegri ákvæði um skilyrði fyrir sölu þjóð- og kirkjujarða en nú gilda.“ Svípjóð og styrjöldin (Framh. af 3. síðu) fyllilega samanburð við það, sem bezt gerizt með öðrum þjóð- um. Sænska þjóðin treystir því meira en nokkru sinni fyrr á landvarnir sínar. En það sýnir bezt, að hættan er ekki álitin um garð gengin, að seint í sum- ar voru sendar leiðbeiningar um það til allra sænskra þegna, hvernig þeim bæri að haga sér, ef ráðist yrði á landið. Ófriður- inn hefir aldrei verið nær land- Iföfum feiu/tð Einnifi galv. vatnsrör V2”, %” og 1” Mjólkurfélag Reykjavíkur. Ónæðissamir hveitibrauðs- dagfar Robert Montgomery Constance Cummings Sýnd kl. 7 og 9. Kl. 31/2—6% BÓFAFORINGINN. (Bad Man). Wallace Berry, Linonel Barrymore. Bönnuð fyrir börn innan 16 ára. -N 27ja sÍjó 11 Glettur“ (You’ll never get Rich). Dans og söngvamynd með: FRED ASTAIRE og RITA HAYWORTH. Sýnd kl. 5, 7 og 9. Halla á Laugabóli er þjóðkunn kona og ljóð hénnar erú kunn um land allt. Rétt áður en ófriður- inn skall á, kom út síðara bindi af ljóðum hennar. Bókin heitir KVÆÐI, og er 140 bls„ prentuð á þykkan, góðan pappír. Framan við kvæðin eru myndir af hús- inu á Laugabóli, blóma- garðinum fyrir framan húsið, grafreitinum og svo mynd af Höllu sjálfri. — Vegna þess, að bókin var prentuð áður en verðlag hækkaði, og hefir ekki ver- ið hækkuð, kostar hún að- eins 5 KRÓNUR. Fæst hjá bóksölum um land allt og beint frá Rókaverzlun ísafoltlar. ÞAKKARÁVARP. Ég þakka hjartanlega góðar óskir og höfðinglegar ■ gjafir á sjötugsafmœli mínul4. þ. m. Kœrar kveðjur. HALLDÓRA BJARNADÓ TTIR. ——■—---------------------------- Tilkynning frá bæjarsíman- umí Reykjavík ogHafnariirði Að gefnu tilefni skal á það bent, að símnotendum er ó- heimilt að leigja eða selja öðrum símanúmer eða síma, er þeir hafa á leigu frá bæjarsímanum. Brot gegn ákvæðum þessum varða m. a. missi símans fyrirvaralaust (sbr. 6. lið skilmála fyrir talsímanotendur landssímans, bls. 19 í síma- skránni 1942—1943). Reykjavík, 25. okt. 1943. Bæjarsímastjórinn. Umsóknir um styrk úr styrktarsjóði ekkna og munaðarlausra barna ís- lenzkra lækna sendist undirrit- uðum fyrir lok nóvembermán- aðar. Halldór Ilanscu. Ferð tíl Stranda í framhaldi af ferð Laxfoss til Borgarness og bílferðinni norð- ur á morgun ömiðvikudag), verður skipaferð með póst og farþega frá Hvammstanga til Strandahafna. „Sverrir“ Tekið á móti flutningi til Vestmannaeyja síðdegis í dag. inu en nú. Hlutleysisbrot fava vöxt, ekki aðeins af Þjóðverja hálfu. Á dögunum var þess getið í sænska útvarpinu, að um það bil 300 brezkar flugvélar hefðu flogið yfir sænska grund. Hvorum stríðsaðiljanna, Bandamönnum eða Þjóðverjum, teljið þér að sænska þjóðin fylgi almennt frekar að málum eða hafi samúð með? Samúð sænsku þjóðarinnar er vitanlega á bandi lýðræöis- þjóðanna. Svíar tortryggja öll einræðisríki, hvort heldur þau kenna sig við nasisma, fasisma eða kommúnisma. Yfirgnæfandi meiri hluti þjóðarinnar hefir því frá upphafi ófriðárins óskað og vonað, að árásarþjóðirnar biðu lægri hlut. Þetta hindrar það vitanlega ekki, að Svíar hafi mikla samúð með ítölsku og þýzku þjóðinni sakir hörmunga þeirrar, er forustumenn þeirra hafa leitt yfir þær. Ný útgáía af Fornaldarsögum Norðurlanda Rit, sein ekki liefir koiniö lit í 50 ár oy' verið ófáanlegt í meira en ald- arfjórðung. ÍJtgáfan verðnr í 3 hin dum, iim 1300 hls. alls, prýdd inyml- 11111, og keinur 1. bindi út fyrir jól. Ný, vönduð útgáfa af Fornaldarsögum \orð- urlanda, sem ekki hafa verið gcfnar út hcr á landi í meira en 50 ár, er nii í prentun og er fyrsta hindi væntan- legt á hókamarkaðinn fyrir jól. Guðni Jóns- son, mag. og Bjarni Vilhjálmsson, cand, mag. annast undirbiin- ing útgáfunnar og rit- ar Guðni Jónsson ítar- lcgan formála með 1. hindi. Fornaldarsögur Norðurlanda voru, eins og kunnugt er, um langan aldur í tölu hinna vin- sælustu bóka hér á landi, lesn- ar jafnt af ungum sem gömlum, háum sem lágum. Hafa komið út fjöldamargar útgáfur af þeim, flestar prentaðar erlendis, bæði vísindalegar og alþýðleg- ar. Þegar þær komu út hér á árunum ,1885—1891, varð fyrsta bindi þeirra uppselt um það bil sem prentun annars og þriðja bindis var lokið og varð að geía það bindi út aftur árið 1391. Sú Völsunga saga Ragnars saga loðbrókar og sona hans Norna-Gests þáttur Hervarar saga og Heiðreks Hrólfs saga kraka Saga af Hálfi og Hálfsrekkum Þorsteins saga Víkingssonar Friðþjófs saga frœkna Ketils saga hængs Gríms saga loðinkinna Örvar-Odds saga Áns saga bogsveigis Ásmundar saga kappabana Gautreks saga Hrólfs saga Gautrekssonar Göngu-Hrólfs saga Bósa saga og Herrauðs Hjálmþérs saga og Ölves Hálfdánar saga Eysteinssonar Hálfdánar saga Brönufóstra Sturlaugs saga starfsama Illuga saga griðarfóstra Eiriks saga víðförla útgáfa (Sig. Kristjánsson) mun öll hafa oröið uppseld aokkru eftir síðustu aldamót og má heita að hún hafi verið ót'áan- leg í meira en aldarfjórðung. Bókin hefir verið mjög eftirsótt og góð eintök af henni korniz:, í geypiverð. Hefir þetta m. a. orð- ið til þess, að hin uppvaxandi kynslóð hefir ekki átt þess kost að kynnast þessum ágætu sög- um, sem áður fyrr voru eftir- lætis skemmtilestur ungs fólks og allra bóka bezt fallnar til þess að laða unglinga að lestri fornra sagna, íslendingasagna og annarra sögurita. Sú útgáfa, sem nú er von, verður í alla staði hin vandað- asta, í stóru broti, prentuð á ágætan pappír og prýdd mynd- um. Mun Kristján Eldjárn, stúd. mag„ sem lagt hefir stund á fornleifafræði, velja myndirnar. Upplag hennar verður hins veg- ar takmarkað, með því að um svo stórt rit er að ræða (um eða yfir 75 arkir eða 1200 bls. alls), að ekki þykir hættandi á að prenta það í því upplagi sem nú gerist um bækur. Hefir því verið ákveðið að gefa mönnum kost á að tryggja sér bókina, með því að panta hana fyrir- fram og mun HARALDUR PÉT- URSSON, Safnahúsvörður taka við slíkum pöntunum fyrst um sinn, í anddyri Safnahússins í Reykjavík. Tryggíð yður þessa bók, öll þrjú bíndín, með því að panta þau í tíma áður en það verður oí seínt.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.