Tíminn - 30.10.1943, Qupperneq 4
424
TÍMIM, lawgardagiim 30. okt. 1943
406. blað
ÚR BÆNUM
Hjónaband.
í dag verða gefin saman í hjóna-
band ungfrú Sigríður Hansen. Guð-
mundsdóttir, afgreiðslumær hjá Tím-
anum, og Björn Ingimar Valdimars-
son frá Norðurgarði, Skeiðum. Heimili
hjónanna verður á Freyjugötu 6.
Tíminn óskar brúðhjónunum allra
heilla.
Aðalfundur K. R.
var haldinn fyrir skömmu. Erlend-
ur Pétursson var endurkosinn formað-
ur félagsins, en auk hans eiga sæti í
stjórninni: Brynja Guðmundsdóttir,
Einar Sæmundsson, Ásgeir Þórarinsson,
Haraldur Matthiasson, Baldur Jónsson,
Ólafur Þ. Guðmundsson og Þorsteinn
Einarsson. Starfsemi K. R. hafði verið
mjög mikil og margþætt á síðastl. ári.
Meðal nýunga má nefna, að teknar
hafa verið upp glímuæfingar með góð-
um árangri og að fjölmennur hópur
íþróttamanna hafði íþróttasýningar
víða á Norður- og Austurlandi.
Knattspyrnufélagið Fram
hélt aðalfund sinn nýlega. Formaður
var kosinn Þráinn Sigurðsson og með-
stjórnendur Jón Þórðarson, Sæmundur
Gíslason, Sigurbergur Elíasson og Guð-
mundur Magnússon. Á fundinum voru
tilkynntar ýmsar veglegar gjafir í
húsbyggingarsjóð félagsins.
Nýtt kvennablað.
er nýlega komið út. Flytur það m. a.
norrænar kvenlýsingar eftir Maríu
Hallerímsdóttur lækni, og afmælisgrein
um Theódóru Thoroddsen áttræða.
Sjómannablaðið Víkingur,
10. tölublað 5. árgangs er nýlega
komið út. Flytur það frásögn um 7.
þing Farmanna- og fiskimannasam-
band íslands auk margra annarra
greina, sem flestar eru ritaðar af sjó-
mönnum og um siglingar og sjó-
mennsku.
Hitaveitan.
Verið er að hreinsa aðalpípulögnina
frá Reykium til bæjarins, og er gert
ráð fyrir, að hægt verði að hleypa
vatninu í geymana í Óskjuhlíð næstu
daga. Úr þvíí verður farið að hleypa
vatni í hitakerfi húsanna. Munu um
1000 hús þegar hafa verið tengd við
hitaveitukerfið.
Hjónaefni;
Trúlofun sína hafa opinberað nýlega
ungfrú Ólöf Bjamadóttir (Jónssonar
vígslubiskups) og Agnar Kl. Jónsson
deildarstjóri í utanríkismálaráöuneyt-
inu.
Þjófnaður.
Aðfaranótt miðvikudags síðastliðins,
braust unglingspiltur, 17 árá gamall,
inn á - Bifreiðastöð íslands og stal
þar úr tösku ferðamanns sparisjóðs-
bók með 4 þús. kr. innstæðu, ásamt
ýmsum fatnaði. Lögreglunni tókst að
ná í piltinn fljótlega eftir að þjófn-
aðurinn var framinn. Hafði hann þá
tekið nær 4 þús. kr. úr bókinni, og
kvittað fyrir með nafni eigandans.
Peningunum var hann ekki búinn að
eyðá.
Rafvcituskilyrðin . . .
(Framh. af 1. siðu)
í Mývatnssveit verið mannmörg,
af því að unga fólkið hefir lítt
leitað burtu. Jafnvel eftir að hin
skæða fjárpest hefir byrjað að
herja á bústofninn, hafa Mý-
vetningar verið óhvikulir í trú
sinni á byggðina.
Skilyrði eru hin beztu til að
leiða raforku til allra heimila í
Mývatnssveit, annaðhvort frá
Laxárvirkjun, eftir Laxárdal, og
ná þá um leið til allra heimila
í þeim dal, eða frá rafstöð, sem
byggð yrði ofarlega við Laxá, við
strengina hjá Arnarvatni eða
Helluvaði. Það, sem mestu skipt-
ir, er rannsókn á skipulagi og
tilkostnaði við rafleiðslur til
einstakra heimila í venjulegri
sveitabyggð. En um Mývatns-
sveit er að því leyti sérstök að-
staða, að um leið og ra'fmagn
væri þar á hverjum bæ, mundi
skjótt vaxa þar upp blómlegur
og margháttaður heimilisiðnað-
ur við hin hollustu skilyrði.
Rétt er að geta þess, að Mývetn-
ingar urðu fyrstir hér á landi til
að koma á fót einkasímakerfi
til allra heimila í hreppnum.
Tóku þeir með fáein mjög af-
skekkt heimili á heiðinni milli
Mývatnssveitar og Bárðardals
og létu þau á engan hátt gjalda
fjarlægðarinnar. Hafa þau öll
haldizt í byggð, þó að fólk hafi
víða annars staðar flutzt frá af-
skekktum bújörðum hin síðustu
ár.
Núverandi ríkisstjórn hefir í
sumar, sem. leið, látið starfs-
menn rafmagnseftirlitsins fram-
kvæma rannsóknir af sama tagi
og hér er beðið um, á nokkrum
stöðum á landinu. Rannsókn á
rafleiðsluskilyrðum um Laxár-
dal og Mývatnssveit getur haft
alm^nna þýðingu. Ef skýrsla um
þá rannsókn tilgreinir allar
fjarlægðir milli einstakra sveit-
arbýla, getur fólk í öðrum
byggðum áttað sig á því í að-
alatriðum, hver muni verða til-
kostnaður annars staðar undir
svipuðum kringumstæðum.“
Flóaáveitan
Tillaga frá Jorundi
Br y n j ólf ssyni.
Jörundur Brynjólfsson flyt-
ur í neffri deild svohljóffandi
frv. um breytingu á lögum um
áveitu á Fióann:
,Ríkisstjórninni er heimilt að
selja aftur til jarðareiganda við
hæfilegu verði að mati Búnað-
arfélags íslands land, er af
hendi hefir verið látið undan
jörðinni upp í áveitukostnað,
enda sé landið að dómi Búnað-
arfélags íslands hvorki eitt sér
né með sameiningu við annað
aðliggjandi land, er ríkið á, til
þess fallið að reka á því lífvæn-
legt, sjálfstætt bú.
Lög þessi öðlast þegar gildi.“
í greinargerð segir: „Stjórn
Flóaáveitufélagsins hefir óskað
þess, að frúmv. um þetta efni
væri flutt á þessu þingi.
Þegar stofnkostnaður Flóaá-
veitunnar var gerður upp, var
jarðareigendum á áveitusvæð-
inu heimilt að greiða áveitu-
kostnaðinn með landi. Allmarg-
ir greiddu með landi. Á þennan
hátt eignaðist ríkið um 1200 ha.
víðs vegar um Flóann. Mikið af
þessu landi liggur þannig, að
ekki er hægt að mynda á því
sjálfstæð býli. Landspildurnar
eru of litlar til þess og ekki hægt
að sameina þær.
Þegar afhending landsins fór
fram, var ekki lokið til fulls að
hlaða flóðgarða eða ræsa land-
ið fram. Á löndum ríkissjóðs
hefir ekkert verið gert. Veldur
það ýmsum bændum, er lönd
eiga að ríkissjóðslandinu, mikl-
um óþægindum, sakir þess að
þeir geta ekki þurrkað lönd sín,
eins og vera þyrfti. Flóðgörðum
á landi ríkissjóðs hefir ekki einu
sinni verið haldið við. Margir
bændur vildu því gjarnan kaupa
þessar landspildur til þess að
geta fremur komið áveitulönd-
um sínum í lag.
Það, sem líka ýtir undir bænd-
ur að falast .eftir kaupum á
landinu, er, að þeir verða nú að
hafa allan sinn fénað í heima-
löndum á sumrin. Vegna fjár-
pestanna er þeim meinað að
reka reka sauðfé sitt til afrétt-
ar. Þetta veldur bændum mikl-
um óþægindum, og hafa þeir
mikla þörf fyrir aukið landrými.
Það af landi ríkiSsjóðs, sem
liggur svo samfellt, að það er
nógu stórt til þess að mynda
sjálfstæð býli, er ekki ástæða til
að heimila sölu á, enda þess
ekki óskað af hálfu áveitu-
stjórnarinnar."
Á víðavangi.
(Framli. af 1. síðu)
ar „bjánalegt sport fyrir idí-
óta“, eins og Halldór Kiljan
komst að orði.
Prestur spilar út því trompi,
að árin 1940 og 1941, þegar flest-
ir markaðir voru lokaðir ís-
lenzkum landbúnaðarvörum, en
fiskur í geypiverði, hafi útflutn-
ingur landbúnaðarins ekki
numið 5 prósent af öllu útflutn-
ingsverðmæti landsmanna. En á
hverju lifði 'svo fólkið á íslandi
mestmegnis þessi ár?
Er ekki sá maður, er mælir
sem séra Jón, „á broslegan hátt
þversum við líf og baráttu hinn-
ar íslenzku þjóðar?“
SAMNINGAMAKK KOMMÚN-
ISTA OG SJÁLFSTÆÐIS-
MANNA.
Vísir hefir skrifað nýja for-
ustugrein um væntanlegt
stjórnarsamstarf kommúnista
og Sjálfstæðismanna. Telur
blaðið nú, að orðrómurinn um
þetta geti tæpast verið á rök-
um reistur, þótt menn í báðum
flokkum vilji komast í flat-
sængina. Blaðið segir:
„Að öðru leyti er það ijóst, að
þótt einhverjir vildu efna til
slíkrar samvinnu í því augfta-
miði að gera þingið starfhæft,
myndi aldrei nást' um það sam-
komulag innan flokkanna
sjálfra, en fylgi flokkanna
beggja er ekki meira en það
innan þingsins, að illa mættu
þeir við því að einstakir þing-
menn skærust úr leik.“
Má vel á þessum ummælum
Vísis marka, að samdrátturinn
milli kommúnista og Sjálfstæð-
NORRÆNA FELAGIÐ.
Veizlan á Sólhaugum
Ný miisík eftir PÁL ÍSÓIFSSO\,
á morgun kl. 4 NÆSTSÍÐASTA SIA\.
Aðgöngumiðar frá kl. 2 í dag og eftir kl. 1 á morgun.
ismanna hafi ekki verið orðróm-
urinn einn.
Þingflokkur Sjálfstæðisflokks-
ins hefir nú mótmælt þessum
orðrómi, og jafnframt lýsir
hann yfir, að Sjálfstæðismenn
og Framsóknarmenn hafi ekk-
ert rætt um stjórnarmyndun.
Er þessi síðari hluti yfirlýsing-
arinnar bersýnilega fram settur
til að styggja ekki kommúnista
um of með fyrri hlutanum.
Styrjöldin á ftalíu
(Framh. af 1. siðu)
Balkanskaga. Mætti nefna ým-
islegt, er styrkir þann grun.
Samkvæmt frásögnum sviss-
neskra og sænskra blaða hefir
hin nýja fasistastjórn Mussolin-
is fengið sáfalítið fylgi. Trúin á
Mussolini er ekki aðeins horfin,
h#ldur er komið fullkomið hat-
.ur í staðinn. Hann og liðsmenn
hans eru jafnvel ennþá óvin-
sælli en Þjóðverjar. Sjálfur er
Mussolini ekki sagður sami mað-
ur og áður. Hann er orðinn
mjög hjartveikur og hafði hvað
eftir annað óskað eftir að ganga
í klaustur meðan hann var í
haldi hjá Badogliostjórninni.
Hins vegar virðist fylgi Bado-
gliostjórnarinnar hafa aukizt,
einkum síðan hún sagði Þjóð-
verjum stríð á hendur og hlaut
viðurkenningu Bandamanna.
Meðal vinstri manna hefir það
og mjög aukið fylgi stjórnarinn-
ar, að Badoglio hefir lýst yfir
því, að hann muni segja strax
af sér að stríðinu loknu og reyna
þá að stuðla að því, að stofnuð
verði samvinnustjórn allra
flokka, er fari með völd, unz
kosningar hafa farið fram og
löglegu þingræði hefir verið
komið á. Hefir þessi yfirlýsing
einnig orðið til þess, að dregið
hefir úr gagnrýni í löndum
Bandamanna á þeirri ráðstöfun,
að Badogliostjórnin var viður-
kennd.
Sala afsláttarhrossa
(Framh. af 1. síðu)
athugað, hvort ekki muni. þörf
fyrir niðursoðið hrossakjöt á
heimsmarkaðinum, nú þegar
erfiðleikar eru að afla þjóðun-
um nægrar fæðu. Hann taldi
það nauðsyn að gera róttækar
ráðstafanir til þess, að því
hrossakjöti, sem til kann að
falla í landinu í haust, verði
komið í æta vöru — það hefir
ekki verið rannsakað, hvað mik-
ið magn er um að ræða, en ef
ekki stendur á umbúðum, taldi
hann að það gæti orðið mjög
mikið.
Niðursuða kjötsins ætti að vera
framkvæmanleg ef ekki stæði
á umbúöum. Annars yrði að
salta kjötið niður, ef niðursuða
reyndist óframkvæmanleg.
Kven-
karlmanna- og
nnglínga-
regnfrakkar
H. Toft
Skólavörffustíg 5. Sími 1035.
Lesendur!
VeklB athygll kunningja yð-
ar á, aB hverjum þeím manni,
sem vill fylgjast vel meB al-
mennum málum, er nauBsyn-
legt aB lesa Tlmann.
SkrifiB eSa símiB til Tlmans
og tllkynniB honum nýja áskrif-
endur. Síml 2323.
f fljágandi virkl
á vígaslóö
(Framh. al 3. síSu)
morð og skelfinguna á þjóðveg-
um Frakklands vorið 1940, verð
ég að kannast við, að í mér er
ekki lengur nokkur snefill af
viðkvæmni. Þetta skuluð þið
hafa, mannhundar, þetta og
meira til. Það er tífalt meira á
leiðinni, og í kvöld koma Bretar,
síðan Frakkar og svo byrja
Ameríkumenn á nýjan leik. Þið
ofurmenni, þið skuluð fá ofur-
þungar sendingar ofan frá!
Þýzku orrustuflugvélarnar
ráðast á okkur úr öllum áttum.
Flestar eru málaðar svartar. Það
sýnir, að þær voru ætlaðar til
næturbardaga, en sakir véla-
skorts neyðast Þjóðverjar til að
nota þær að degi til. Það er því
auðvelt að miða á þær. Messer-
schmitts vélarnar skjóta á löngu
færi. Fljúgandi virkin hvika
ekki frá réttri röð og allar byss-
ur þeirra spú eldi. Á hverri
hinna 20 véla eru 12 byssur, og
hver byssa skýtur 800 skotum á
mínútu. Engin orrustuvél gat
nálgast í slíkri skothríð, án þess
að steypast þegar logandi til
jarðar eða sprengd í tætlur í
loftinu. Flugvélar fjandmann-
anna reyna nýtt herbragð. Úr
fjarlægð miða þeir skotum sín-
um á hreyflana, sem eru all-
greinilegt skotmark. Takist
þeim að eyðileggja einn eða tvo
hreyfla, dregst vélin aftur úr,
og þá ráðast samstundis 12—
15 orrustuvélar að henni eins og
flugur á hræ.
Að þessu sinni vinna þe‘ir lít-
ið á með herbragði sínu. Hver
af annarri steypast hinar svörtu
orrustuflugur til jarðar. Virkin
okkar tuttugu að tölu halda sér
í órofinni fylkingu. í fyrsta
skipti á ævi minni fyllist ég
feginleik af því að sjá hinar
þungvopnuðu vélar hrósa sigri
yfir orrustuvélum. Fram að
þessu hafði ég oft undrazt það,
hve sigursæl fljúgandi virkin
höfðu reynzt í viðureign við
orrustuflugur fjandmannanna.
Nú undraðist ég þetta ekki
framar.
Óvinirnir elta okkur, er við
snúum heimleiðis, en halda sér
í hæfilegri fjarlægð. Þeir von-
ast auðvitað eftir, að einhver
vélin dragist aftur úr. En þeim
verður ekki að ósk sinni.
Leikfélag Reykjiavíkiir
Stór lántaka . . .
(Framh. af 1. síðu)
Um einstakar greinar frv.
skal þetta tekiö fram:
Um 1. gr. Flm. er það ljóst, að
sú upphæö, sem hér er nefnd,
20 miljónir króna, er aðeins lítill
hluti þeirrar fjárhæðar, sem
þörf er fyrir til rafveitufram-
kvæmdanna. Þeir telja þó ekki
nauðsynlegt ' að hafa lántöku
heimildina hærri til að byrja
með, þar sem hægt er að auka
þar við þegar á næsta þingi.
Til þess að gera almenningi
sem auðveldast að kaupa
skuldabréfin, er lagt til, að þau
verði boðin til sölu í bönkum og
sparisjóðum víðs vegar um land-
ið, en auk þess verði ríkis-
stjórninni heimilað að fela fleiri
stofnunum sölu þeirra.
Um 2. gr. Lagt er til, að vextir
af láninu verði 4%. Lánsféð
endurgreiðist á 30 árum eftir
árslok 1946. Rétt þykir þó að
veita ríkisstjórninni heimild til
að endurgreiða lánið fyrr að
einhverju eða öllu leyti.
Um 3. gr. í síðari málsgrein
þessarar greinar er ákvæði um,
að ráðherra skuli heimilt að á-
kveða, að það lánsfé, sem fæst
í vissum landshlutum, skuli
fyrst og fremst notað til raf-
veituframkvæmda ríkisins á
þeim sömu svæðum. Má telja
víst, að það verði mönnum
hvatning til þátttöku í fjársöfn-
uninni, ef þeir geta með því sér
staklega stuðlað að og flýtt fyrir
rafveituframkvæmdum í sínu
eigin héraði.
, QAMTA BáÖa
Fórnarlambið
(Louisiana Purchase)
Amerísk gamanmynd,
tekin í eðlilegum litum.
BOB HOPE,
VERA ZORINA.
Sýnd klukkan 7 og 9.
Kl. 31/2—61/2
BÓFAFORIN GINN
(Bad Man)
WALLACE BEERY.
Bönnuff börnum innan
14 ára.
-N Tbá. s£Ó
11
GIettur“
(You’ll never get Rich).
Dans og söngvamynd með:
FRED ASTAIRE
Og
RITA HAYWORTH.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
„Léuharður fógeti
Sýiiing airnað kvöld kl. 8.
Aðgöngumiðar seldir kl. 4—7 í dag.
u
Orðsendln^
til innheimtumaiina Tímans
Gjalddagi Tímans var 1. júlí en ennþá vantar skilagrein-
ar frá mörgum innheimtumönnum blaðsins.
Sökum þess hve útgáfukostnaður er mikill, er mjög
óþægilegt ef greiðslur á blaðgjöldum dragast fram .yfir
hinn ákveðna gjalddaga. Eru það því vinsamleg tilmæli til
kaupenda og innheimtumanna Tímans, að þeir sjái um,
að áskriftargjöldin berist afgreiðslu blaðsins hið allra
fyrsta.
ioooooo»oooooo^ooooo»ooooo<x
The World’s News Seen Through
THE Christian Science Monitor
An International Daily Newspaper
u Truthful—Constructive—Unbiased—Free from Sensational-
ism — Editorials Are Timely and Instructive and Its Daily
Features, Together with the Weeldy Magazine Section, Make
the Monitor an Ideal Newspaper for the Home.
The Christian Science Publishing Society
One, Norway Street, Boston, Massachusetts
Price $ 12.00 Yeariy, or $1.00 a Month.
Saturday Issue, including Magazine Section, $2.60 a Year.
Introductory Offer, 6 Issues 2$ Cents.
Noms-----------:--------------------------------
SAMPLE COPY ON RBQUEST
> 00 >0'0000000000»
ÚTSÖLLSTAÐIR TÍMANS I REYKJAVtK
Verzluninn Vitinn, Lauganesvegi 52 ............. Slmi
Þorsteinsbúð, Hringbraut 61.......................... —
Flöskubúðin, Bergstaðastræti 10 ..................... —
Leifskaffi, Skólavörðustíg 3 ................ —
Bókaskemman, Laugaveg 20 B.........................
Bókabúð KRON, Alþýðuhúsinu .......................... —
Söluturninn, Hverfisgötu ............................ —
Sælgætlsbúðin Kolasundi ...........................
Verzlunin Ægir, Grófinni...........................
Bókaverzlun Finns Einarssonar, Austurstræti 1 ..... —
Bókastöð Eimreiðarinnar, Aðalstrætl 6 ............... —
Ólafur R. Ólafs, Vesturgötu 16 ...................... —
Koníektgerðin Fjóla, Vesturgötu 29 ................. —
Jafet Sigurðsson, Bræðraborgarstíg 29 ............... —
2260
2803
5395
2139
5325
4175
1336
3158
1754
1916
4040
Annasft
um útvegun bóka fyrir lestrar-
félög og bókasafnara.
Vandað band og gylling út-
vegað á bækurnar.
Sanngjörn ómakslaun.
Rókabiiðin
Frakkastíg 16, Reykjavík.
Sími 3664.
Starfsstúlkur
vantar okkur nú þegar. JIús-
næði fylgir.
Félagsheimili
verzliiiiarmanna.
Vonarstræti 4.
Útbreiðið Tímairn!