Tíminn - 29.04.1944, Page 4
176
45. blat?
TÍMDJN, lawgardaguui 29. apríl 1944
ÚR BÆNUM
Leiðbeimngar til kjðsenda
vai«iaudi lýðveldís-
kosníngarnar
Atkvæðagreiðsla 20.—23. maí 1944.
Sýnishorn af kjörseðli áður en kosið er:
L_________
Þingsályktun frá 25. febrúar 1944, um niðurfelling
dansk-islenzka sambandslagasamningsins frá 1918:
Alþingi ályktar að lýsa .yfir því, að niður sé fallinn dansk-íslenzki
sambandslagasamningurinn frá 1918.
Ályktun þessa skal leggja undir atkvæði allra alþingiskjósenda til
samþykktar eða synjunar, og skal atkvæðagreiðslan vera leynileg. Nái
ályktunin samþykki, tekur hún gildi, er Alþingi hefir samþykkt hana
að nýju að aflokinni þessari atkvæðagreiðslu.
já
nei
II.
Stjórnarskrá lýðveldisins ísiands, samþykkt á Alþingi 1944.
já
nei
Þeir, sem samþykkja þings:u,—-■ tina eða stjórnarskrána, setja
kross fyrir framan „já“, en hinir fyrir framan „nei‘.
Þannig á kjörseðillinn að líta út, eftir- að kjósandi hefir með
atkvæði sínu samþykkt niðurfall sambandslagasamningsins og
greitt atkvæði með lýðveldisstjórnarskrá íslands:
L| „
Þingsályktun frá 25. febrúar 1944, um niöurfelling
dansk-íslenzka sambandslagasamningsins frá 1918:
Alþingi ályktar að lýsa því yfir, að niðu rsé fallinn dansk-íslenzki
sambandslagasamningurinn frá 1918. •
Ályktun þessa skal leggja undir atkvæði allra alþingiskjósenda til
samþykktar eöa synjunar, ög skal atkvœðagreiðslan vera leynileg. Nái ályktunin samþykki, tekur hún gildi, er Alþingi hefir samþykkt hana að nýju að aflokinni þessari atkvæðagreiðslu.
X já
nei '
II. *
Stjórnarskrá lýðveldisins íslands, samþykkt á Alþingi 1944.
X já
nei
1 Þeir, sem samþykkja þingsályktunina eða stjórnarskrána, setja
kross fyrir framan „já“, en hinir fyrir framan „nei‘.
Munlð að greiða atkvæðl um báður tillögurnar
ÚTSÖMJSTAÐIR TÍMAJMS f REYKJAVfK
Verzluninn Vitinn, Lauganesvegi 52 .................Simi 2260
Þorsteinsbúð, Hringbraut 61.......................... — 2803
Flöskubúðin, Bergstaðastræti 10 ..................... — 5395
Leifskaífi, Skójavörðustíg 3 ........................ — 2139
Bókaskemman, Laugaveg 20 B.........................
Bókabúð KRON, Alþýðuhúsinu .......................... — 5325
Söluturninn, Hverfisgötu ............................ — 4175
Sælgætisbúðin Kolasundi ...........................
Verzlunin Ægir, Grófinni...........................
Bókaverzlun Finns Einarssonar, Austurstræti 1 ....... — 1336
Bókastöð Eimreiðarinnar, Aðalstræti 6 ............... — 3158
Ólafur R. Ólafs, Vesturgötu 16 ...................... — 1754
Jafet Sigurðsson, Bræðraborgarstíg 29 .............. -» 4040
Konfektgeröin Fjóla, Vesturgötu 29 .................. — 1916
Samkoma.
Framsóknarfélgin héldu skemmti-
samkomu í Sýningarskálanum s. 1. mið-
vikudagskvöld. Þar vai- spiluð Fram-
sóknarvist með miklu fjori og ánægju.
Hermann Jónasson flutti snalla ræðu.
Síðan var almennur söngur og dans
fram til klukkan að ganga þrjú um
nóttina. Samkoman var vel sótt og hin
ánægjulegasta eins og samkomur
Framsóknarmanna eru venjulega. Taka
margir eftir, sem kynnast þessum sam-
komum, að aldrei sér ölvun á nokkrum
manni þar, en það er yfirleitt sjald-
gæft á skemmtunum í Reykjavík.
Einnig eru óvenjulitlar tóbaksreyking-
ar, en þæi' eru víða orðnar hin mesta
plága, þar sem margt fólk kemur sam-
, an. Væri almennt hafðar jafn ánægju-
legar samkomur og með jafn miklum
menningarblæ eins og hvílir yfir Fram-
sóknarskemmtununum í Reykjav., væri
það mikill ávinningm-. Skemmtanir eru
nauðsynjar mannanna. Það ættu þeir
að athuga, sem telja sig sjálfa geta
verið án þeirra. En vandinn er að hafa
skemmtanirnar þannig, að þ«er frem-
ur hefji þátttakendurna, en dragi þá
ekki niður á við.
Laxveiði.
Sigbjörn Ármann skrifar í Morgun-
blaðið um laxveiði og tekur þar ýmis-
legt réttilega fram. Auðlegð sú, sem
fólgin er í ám og vötnum, er að mestu
leyti hulin ogi vanrækt ennþá. Væru
netin ekki. höfð í ánum, sem laxinn
gengur eftir, og fullt eftirlit haft með
alls konar veiðiföntum, sem stórskaða
árnar með frekju sinni og furöulegri
ágirnd, þá mætti svo að segja fylla
margar ár með laxi. Lax- og silungs-
veiði er skemmtilegt „sport“ fyrir
bæjarbúa á sumi-um og hið mesta að-
dráttarafl fyrir útlendinga, og getm'
verið mikil tekjulind fyrir landsmenn,
ef þeir hefðu búhyggni til þess að nota
J'étt þessi miklu auðæfi lands síns. —
í vetur hafa verið miklar úrkomur og
hlýtur því að vera allmikill snjór til
fjalla. En gamlir veiðimenn hafa trú
á, að þegar snjór er mikill í fjöllum á
vorin, þá muni laxganga verða góð, því
að þá verði meira vatn í ám. En vatns-
leysi framan af sumri hamlar oft iax-
göngu í árnar.
Gummískortur.
í ræðu þeirri, sem fjármálaráðherra
flutti í útvarpiö nýlega gerði hann ráð
fyrir, að aðeins rúmlega helmingur
af bifreiðum, sem til væru í landinu,
gætu fengið gúmmí á þessu ári. Er
þetta ekki vonum fyrr, sem rekur að
þessu, því að lengi er búinn að vera
tilfinnanlegur skortur á gúmmí hér á
Vesturlöndum. En.ugglaust mætti nú
draga mikið úr gúmmíeyðslu, því að
mikið er bifreiðum ekið að óþörfu.
Árás.
í fyrrakvöld fór bifreiðastjóri ásamt
þrem stúlkum í bifreið á dansleik suö-
ur til Keflavíkur. Aö dansleiknum
’oknum, um kl. tvö ætlaði bifreiða-
stjórinn aö aka af stað heimleiðis með
stúlkurnar. Voru þau ekkert ölvuð, en
allmargir samkomugestanna voru þá
orðnir mikið ölvaðir og létu þeir í Ijós
óánægju yfir því, að Reykvíkingarnir
skyldu vera lítið ölvaðir. Réðust hinir
ölvuðu menn að bílstjóranum og marg
lömdu hann í rot. Raknaði hann ekki
úr því fyrr en inni á lögreglustöð,
og var þá mjög illa útleikinn. Bif-
reiðina brutu og brömluðu hinir ölóðu
menn, en stúlkurnar sluppu mjög Jítið
skaddaðar.
Samvinnufélaff.
Prentarar stofnuðu nýtt samvinnu-
félag á sumardaginn fyrsta. Heitir það
Byggingarfélag prentara og er tilgang-
urinn að reisá ibúðarhús fyri rfélags-
menn. í stjórn félagsins voru kosnir:
Guðbjörn Guðmundsson (form.), Árni
Guðlaugsson, Ellert Magnússon, Pétur
Stefánsson og St'efán Ögmundsson.
Vonandi er, að prenturum takist að
fá lóðir og fjármagn til sinna eigin
íbúðabygginga, svo að félagið geti haf-
izt handa um framkvæmdir sem fyrst.
Áheit á Strandarkirkju
hafa borizt Tímanum: Kr. 50,00 ,frá
ónefndum á Seyðisfirði, kr. 10,00 frá
H. í. og kr. lOjOO frá Á Á.
Flokkaglíma.
Glímuielagið Ármann gengst fyrir
flokkaglímu í íþróttahúsi Jóns Þor-
steinssonar n.k. sunnudag. Keppt verð-
ur í þrem þyngdarflokkum Búizt er
við, að keppendur verði 14 frá fimm
íþróttafélögum: Ármanni, K. R., Dags-
brún, Trausta og Vöku.
Söfnun til bágstaddra Dana.
Fjársöfnun hefir farið fram undan-
farið til danskra flóttamamia í Svíþjóð
og hefir hún gengið vel. Ákveðið hefir
verið, að senda af þessari fjársöfnuh
100 þús. kr. sænskar, nú pessa dagana.
til dönsku sendisveitarinnar í Svíþjóð.
Jafnframt hefir verið ákveðið, að
breyta nokkuð fjársöfnunni þannig,
að framvegis nái hún til nauðstaddra
Dana almennt og er þá ráðgert, að
safna, jafnframt peninguin, ull eða
ullarfatnaði, sem svo sé sent til hins
bágstadda fólks.
Sundmót.
Sundmeistaramót íslands, sem getið
vai- nýlega hér í bæjarfréttum er lokið.
Fyrstur í 400 m. bringusundi varð Sig-
urður Jónsson (K. R). og synti hann
vegalengdina á 6,39,7 mín. En í 400 m.
frjálsri aðferð karla varð fyrstur Ari
Guðmundsson (Ægi), er synti vega-
lengdina á 5,55,7 mín. Fljótust í 50 m.
frjálsu sundi 'kvenna, varð Ingibjörg
Pálsdóttir (Æ). í 50 m baksundi fyrir
drengi varð fyrstur Guðm. Ingólfsson
-í R.), 35,8 sek. og í 100 m. frjálsu
sundi drengja varð fyrstur Halldór
Backmann (Æ), 1,18,9 mín. í 4x50
m. boðsundi kvenna varð 1. sveit Ægis
hlutskörpust. Synti hún á 3,07,2 mín.
og setti þar með íslandsmet í því sundi.
Syntu meyjaraar bringusund.
Fornleifar.
Það hefir vakið nokki'a athygli, að
við gröft fyrir húsi, sem reisa á við
Tjarnargötu, sunnan við Herkastalann,
hefir fundizt allmikið af fornleifum,
einkum ýmsum dýrabeinum, sem ætl-
að er að séu frá fyrstu byggð bæjarins.
Lítur út fyrir, að þarna hafi verið kom-
ið niður á gamlan sorphaug. Einkum
vekja svínahausar athygli, sem í eru
vígtennur og vita menn ekki til, að
sú tegund svína hafi veriö hér. Einn-
ig finnast þarna Geirfuglabein og ým-
islegt fleira, nýstárlegt, þar á meðal
tveir steinlampar, eða bollasteinar, sem
fornmenn kváðu hafa notað fyrir lýs-
islampa. — Finnur Guðmundsson hefir
einkum tekist á hendur að rannsaka
þessar fornminjar.
Húsnæðisleysið.
í Reykjavík er hinn mesti húsnæðis-
skortur. Mörg hundruð manns búa 1
„bröggum", sem lánaðir hafa verið
bæjarbúum af hinni mestu velvild eig-
enda þeirra, en sem eru alls ekki hæfir
til íbúöar í raun og veru. íbúðarher-
bergi eru oft leigð með ævintýralega
háu verði. En einstök herbergi og íbúð-
ir, sem hafa verið í fastaleigu síðan
fyrir strlð, er nú stundum svo lágt
leigt, að ótrúlegt má teljast. Ekki mun
óalgengt að maður, sem hefir haft
þriggja til f jögurra herbergja íbúð síð-
an fyrir stríð, leigi nú eitt herbergi
af íbúðinni fyrir hærri leigu heldur
en hann borgar eftir alla íbúðina.
1. maí.
Það er oróin föst venja, áð verka-
lýðsfélögin haldi 1 maí hátíðlegan.
Nú birta stjórnir þeirra ávörp til verka-
lýðsins til þess að hvetja hann til þátt-
töku. Veröur verzlunum lokað kl. 1 e.
h. 1. maí. Það er ekki nema gott um
það að segja, að verkalýðurinn hafi
einn sérstakan hátíðisdag, þótt ennþá
séu íslendingar varla svo langt komnir
í „heimsmenningunni," að þeir kunni
að meta þetta rölt fólksins með ýmis-
konar spjöld á lofti um götur bæjar-
ins 1. maí. Stundum verða áletranirnar
á þessum spjöldum þó ýmsum að gam-
anefni, eins og t. d. þegar letrað var
á spjald einnar vel þekktrar Reykja-
víkurkonunnar: „Niður með alla næt-
urvinnu!"
Þjóðræknisfélagið.
Þjóðræknisfélagið hélt aðalfund sinn
í fyrrakvöld. Þar flutti formaöur þess,
Árni G. Eylands, rækilega skýrslu um
starfsemi félagsins á liðna árinu. Hafði
stjórn félagsins haft ýmsa starfsemi
með höndum, er miðaði í þá átt, að
auka • og styrkja samband vort við
frændurna vestan Atlantshafsins. í
fundarlokin var fráfarandi stjórn end-
urkosin og bætt við í hana tveim nýj-
um mönnum, þeim Jóni Emil og Inga
Bjarnasyni.
Söngskemmtun.
Hinn einkar vinsæli söngflokkur,
Karlakór Reykjavíkur, hefir undanfar-
ið haldið þrjár söngskemmtanir við
hinar ágætustu viðtökur. Eins og
venjulega, þegar þessi kór lætur heyra
til sín, undir stjórn sins vinsæla söng-
stjóra, Sigurðar Þórðarsonar, hefir
alltaf verið fullt hús áheyrenda. Næsti
samsöngur kórsins évað verða á morg-
un kl. 1,15 í Gamla Bíó.
Erlemt yflrlit.
(Framh. af 1. siðu)
heim þessa dagana — einhverja
mestu friðsemdarþjóð heimsins.
Nakið sverð þess valds, sem
þekkir hvorki réttlæti né misk-
unn, vofir yfir höfði þess fólks,
sem kynslóð eftir kynslóð hefir
ekki aðra ósk gagnvart um-
heiminum heldur en að fá að
lifa í friði við sitt. Enginn veit
hvar næsta högg hafnar. Eng-
inn veit hver verður næst
hnepptur í fangelsi að ófýrir-
synju, og enginn veit hvers hlut-
skipti það verður að standa næst
andspænis svörtum byssukjöft-
um hinna óvelkomnu gesta og
drottnara. En þó að Danir séu
friðsöm þjóð og ekki aldir upp
í hermannaklæðum, þá eru eng-
ar líkur til þess, að þeir láti
bugast fyrir hinu erlenda
vopnavaldi. Hingað til hafa þeir
einmitt harðnað við hverja
raun.
Tvœr stúlkur
Tvær stúlkur óskast í Hreða-
vatnsskála yfir mitt sumarið.
Uppl. venjulega síðari hiuta dags
í síma 4373.
Á víðavangi.
(Framh. af 1. síðu)
um að þeir fengju fáa menn
kosna á Alþing, ef eingöngu
væri kosið í einmenningskjör-
dæmum. Bættur væri skaðinn!
En skilur ekki „sameiningar<(-
flokkur alþýðu það, að ytri að-
stæður geta oft mjög flýtt fyrir
að menn fylki sér saman, sem
líkastar lífsskocfanir hafa? Eða
eru þeir hræddir um, að hin fá-
menna ,Brynjólfsklíka“ hætti
þá að geta sundrað íslenzkri al-
þýðu í „flokka“, sem vinna gegn
hver öðrum, í stað þess að þeir
ættu að vinna saman? Það er
skiljanlegt, að þeir sem vilja yf-
irráð fámennrar gróðabralls-
klíku og fámennrar Brynjólfs-
klíku, vilji hafa umbótamenn-
ina sundraða í sem flesta flokka.
í__<x_GAMLA BÍÓ-«—
IVaskir drengír
(Gallant Sons)
JACKIE COOPER,
BONTIA GRANVILLE,
GENE REYNOLDS.
Sýnd kl. 7 og 9.
HUNDURINN MINN.
(The Biskuit Eater)
BILLY LEE.
Sýnd kl. 5
»<m»o»«»nýja r:ó-o-»o«o«_o...
Arabískar nætur
(Arabian Nights)
Litskreytt ævintýramynd
úr 1001 nótt.
Aðalhlutverk:
JÓN HALL,
MARIA MONTES,
LEIF ERIKSON,
SABU.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Bönnuð börnum yngri en
12 ára.
Tónlistíirfélagið oc/ Leikfélay tteyhjjavíhur
„Pétur €rauturéé
Sýning aiinað kvöSd kl. 8.
Aðgöngumiðar sel^ir kl., 4—7 í dag.
Innilegar þakkir til Rangœinga og annarra vina
minna, er sýndu mér margvíslegan heiður og hlýjan hug
á 50 ára afmœli mínu.
Stórólfshvoli, 24. apríl 1944.
, • HELGI JÓNASSON.
1 tilefni af
lýðveldisliátiðinni
binn 17. og 18. júní næst komandi, hefir dómsmálaráðu-
neytið veitt heimild til að ráða aðstoðarmenn við lög-
legluna í Reykjavík báða hátíðardagana.
Umsækjendur skulu fullnægja þeim skilyrðum, sem
sett eru um inntöku í lögreglu Reykjavíkur, enda mun
þá, að öðru jöfnu, verða tekið tillit til þeirra, sem ráðnir
kunna að verða aðstoðarmenn, við næstu fjölgun í lög-
regluna.
Þeir, sem hafa í hyggju að sinna þessu sendi umsóknir
hingað á skrifstofuna fyrir 10. maí næst komandi. Um-
sóknareyðublöð liggja frammi á sama stað.
Lögreglustjórinn í Reykjavík, 27. apríl 1944.
Agnar Kofoed-Hansen
Tilkynning
frá Kjötverðlagsnefnd
Verö á saltkjöti lækkar frá og
með 29. apríl í kr. 462,00 hver ÍOO
kgf. tunna.
Smásöluverð lækkar í sam-
ræmi við pað.
Kjötverðlagsnefnd.
Mirniing
Konráðs Arngrímssonar.
í grein undir þessari fyrirsögn
á annarri síðu blaðsins hefir
fallið niður og misprentast:
í fyrsta lagi á eftir setning-
unni: Konráð var því kominn af
merkum skagfirzkum ættstofni,
komi: og er margt landskunnra
manna af þeirri ætt komnir.
Og síðar í greinni: Meðal fjög-
urra núlifandi bania þeirra
hjóna hefir misprentast í stað:
meðal fimm núlifandi barna
þeirra hjóna, sem öll eru hin
mannvænlegustu o. s. frv.
E! rúða brofnar
hjá yður, þurfið þér aðeins að
hringja í síma 4160.
Höfum rúðugler af öllum gerð-
um og menn til að annast
ísetningu.
VERZL. BRYNJA
Sími 4160.
GÆFAN
fylgir trúlofunarhringunum
frá
SIGURÞÓR, HAFNARSTR. 4.
Sent rhót póstkröfu.
Sendið nákvæmt mál.