Tíminn - 20.05.1944, Blaðsíða 4
208
TÍMIM, laugardaginn 20. mai 1944
52. Wað
ÚR BÆIVIIM
Hátíðahöld.
17. maí er þjóðhátíðardagur Norð-
manna, hvar sem þelr búa á hnettin-
um. Er sá dagur haldinn hátíðlegur
í tileíni af því, að Norðmenn losnuðu
frá Dönum árlð 1814. Hér í bænum
voru allmikil hátíðahöld í fyrradag,
að tilhiutan Norðmanna, er hér dvelja,
og Noregsvina. Póru þau hið virðuleg-
asta fram. Fánar blöktu við hún og
létu íslendingar á ýmsan hátt sam-
hug sinn 1 ljós með Norðmönnum. Er
áreiðanlegt, að vinaþjóðln norska á
mikil og sterk ítök i hugum íslend-
inga almennt.
Hellisgerði.
Stjórn Hellisgerðis í Hafnarfirði hef-
ir sent út ávarp til velunnara Gerðis-
lns, þar sem hún hvetur þá tll stuðn-
ins því. Á að stækka Gerðið í sumar
og auka ræktun þess, en selja ekki
aðgang á þessu sumri. Hðin eru nú
20 ár síðan fyrstu trjáplönturnar voru
gróðursettar i Hellisgerði. Er það nú
orðið til hinnar mestu prýði og yndis-
auka i Hafnarflrði og góður vitnis-
burður um, hvað mannshöndín getur
hjálpað náttúrunni til við að gera fag-
urt og vistlegt þar, sem áður var auðn
og hrjóstur.
Kaffibætir.
Viðskiptaráð hefir ákveðið að hverj-
um manni skuli verða afhennt auka
kaffibætisskammtur frá og með 22. þ.
m. Kaffibæti fá menn gegn afhend-
ingu stofnauka nr. 3, af núgildandi
matvælaseðli. — Skammtur handa
hverjum skal vera eitt stykki.
Lokun sölubuð'a.
í dag og áfram í sumar verður sölu-
búðum í Reykiavik lokað á laugardög-
um kl. 12 á hádegi, en á föstudögum
kl. 7 e. h. Rakarastofurnar eiga að vera
opnar til kl. 8 á föstudögum og til kl.
2 e. h. á laugardögum. Vegna þess, hve
margir þurfa að „halda sér til“ fyrir
helsar, þá eru rakarstofurnar þetta
lengur opnar heldur en sölubúðirnar!
Hjónaband.
Á uppstigningardag voru gefin sam-
an í hjónaband af sr. Jakobi Jónssyni
þau ungfrú Þorbjörg Björnsdóttir,
Bollakoti, Fljótshlíð og Ragnar Jóns-
son, óðalsbóndi sama staðar.
Þjóðleikhúsið.
Um 30 menn vinna nú að lagfæringu
á Þjóðleikhúsinu. Er um það bil lokið
að múrslétta anddyrið og verið að
slétta ýms smærri herbergi. En ekkert
er enn farið að eiga við aðal salina.
Málshöfðun.
Kommúnistar hafa oft gert að deilu-
efni sölu á ýmsum eignum, svo sem
Iðnó og Alþýðuhúsinu við Hverfisgötu,
sem áttu sér stað á valdatíð Alþýðu-
flokksins. Nú heflr fulltrúaráð verka-
lýðsfélaganna í Reykjavík ákveðið að
höfða mál til þess að reyna að rlfta
þessari sölu og kvað sækjandinn vera
Ragnar Ólafsson. Alþýðuflokksmenn
hafa verlð hvetjandi nú upp á síðkastið
að fá úr þessu skorið, til þess að fá
bundlð enda á hinn þráláta róg, sem
út af þessum málum hefir verið spunn-
inn.
Slysavarnafélagið.
Merkjasala Slysavarnafélagsins á
lokadaginn nam rúmlega 17 þús. kr.
Var það nokkru minna en í fyrra. Ný-
lega réði stjórn Slysavarnafélagsins
Henry Hálfdánarson, loftskeytamann,
sem fastan starfsmann hjá félaginu í
Reykjavík. En fyrir voru Jón Berg-
sveinsson og Jón Oddgeir Jónsson.
Síðan Laxfoss strandaði i vetur, er
mönnum ljósari þörfin fyrir auknar
slysavarni^ í Reykjavík, enda er tals-
verð hreyfing uppi um að auka þær
og bæta. Væri vel, að menn sýndu
því nauðsynjamáli vakandi samhug.
Páll Stefánsson.
Páll Stefánsson frá Þverá átti 75 ára
afmæli í fyrradag . Páll eráýmsan
hátt merkur maður, þótt stundvun
minni hann meira í ræðu og riti
á herkonunga fyrri alda heldur en nú-
tíðar verzlunarmann.
Páll ann landbúnaði og hefir sýnt
það myndarlega í verki og einkum
er hann hneigður fyrir og fróður
um fjármennsku og fjárrækt. Páll
er óvenjulegur maður og allir óvenju-
legir menn fá öðru hverju ómylda
dóma og það líka þó að þeir séu
búmenn, drengir góðir og tryggir
vinir vina sinna eins og Páll frá
Þverá. V.
Norsk sýning.
Norsk myndasýining htefir staðið
yfir í Listsýningarskálanum undan-
farið. Hefir þar verið sýndur fjöldi
mynda úr friði og stríði Norðmanna.
Sýningin verðm- lokuð næstu daga
en mun verða eitthvað opin n. k.
miðvikudag. '
Grelnargerð frá
ríkisstjórnimxi
(Framh. af 1. síðu)
samningum og krefjast dómsúr-
skurðar um verkfallið. Alþýðu-
sambandið fyrirskipaði samúð-
arverkfall í nokkrum ríkis-
stofnunum, frá morgni 15. maí,
sem það, er til kom, treystist þó
ekki til að láta koma til fram-
kvæmda. v
Félagsdómur hefir i dag dæmt
verkfallið ólöglegt.
Um þaö leyti, er málflutningi
var lokið fyrir Félagsdómi, hóf-
ust samtöl að nýju fyrir at-
beina sáttasemjara ríkisins.
Sættir tókust í gærmorgun um
framangreind atriði, á eftirfar-
andi grundvelli:
1. Aiþýðusambandið féll al-
gerlega frá kröfunni um for-
gangsrétt félagsbundinna
verkamanna innan Alþýðusam-
bandsins.
2. Á nokkrum stærstu fjall-
vegunum yfir sumarmánuðina
ráða vinnuhóparnír því sjálfir
með einföldum meirihluta,
hvort þeir vinna 10 stundir á
dag í'6 daga eða nærri 10 stund-
ir í 5 daga á viku með dag-
vinnukaupi, eða 8 stndir í 6
daga. Á öðrum stöðum, sem
verkamenn vinna fjarri heimil-
um sínum, ráða vinnuhóparnir
því, hvort unnið sé í nærri 10
stundir daglega með dagvinnu-
kaupi alla daga vikunnar, nema
laugardaga, eða 8 stundir á dag
í 6 daga.
3. Sama meginregla um kaup
og kaupsvæði sem gildandi var
í fyrra, gildi einnig á þessu ári,
þannig að greitt er gildandi
kaup verklýðsfélaga á félags-
svæðunum en utan þeirra sama
kaup og á því félagssvæði sem
næst er, en þó með vissum tak-
mörkunum. Ríkisstjórnin bauð
að samræma vegavinnukaupið,
sem er mjög misjafnt, lægst er
1,65 í grunnkaup og hæst kr.
2,45 með því að hækka talsvert
kaup á nokkrum svæðum gegn
því að lækkun til samræming-
ar kæmi fram annars staðar.
Alþýðusambandið tók þá af-
stöðu að hafna þessu boði.
Aðalfundur
Sölusambands íslenzkra fisk-
framleiðenda var haldinn í gær.
Saltfiskverkun var minni á
árinu 1943 heldur en hún hefir
nokkurntíma verið áður frá þvi
hún hófst að verulegu leyti. Og
það lítið sem saltað var, var
flutt' út sem blautfiskur.
Stjórnin bar fram heimild til
þess að selja niðursuðuverk-
smiðjuna, ef hagstætt þætti, en
það var fellt.
Samþykkt var að halda fé-
lagsskapnum áfram með aðeins
þrem starfsmönnum, þar með
taíinn Ólafur Briem og Guð-
mundur Þórðarson frá Hóli, sem
er skrifstofustjóri og gjaldkeri
sambandsins. Vegna góðra sam-
banda erlendis og félagskerfis-
ins alls, þótti ekki fært að leggja
sambandið niður, þótt lítið sé nú
að starfa, því búast má við að
saltfiskverkun hefjist á ný að
lokinni styrjöldinni.
Stjórnin var endurkosin.
Bræðslusíldarverðíð
í sumar er ákveðíð
Bræðslusíldarverð hefir verið
ákveðið það sama og í fyrra, 18
kr. málið.
Þeir, sem leggja síldina inn
til vinnslu fá kr. 15,30 greiddar
fyrirfram. Ríkisverksmiðjurnar
á Siglufirði, Húsavík og Raufar-
höfn hefir verið ákveðið að
starfrækja í sumar.
Bændur!
Höfum kaupendur að jörðum
á Suðurlandi sem næst Reykja-
vík.
Sölumiðstöðin
Klapparstíg 16. — Sími 5630.
Pósthólf 774.
TJARNARBÍÓ
Vidsjárverðar
konur
(Dangerous Blondes)
ALLYN JOSLYN,
EVELYN KEYES,
EDMUND LOWE
JOHN HUBBARD.
Sýnd kl. 7 og 9.
Aðgöngumiðasalan hefts
kl. 11
JACARÉ
meinvættur frumskóganna
Sýn kl. 3 og 5.
-GAMLA BÍÓ«
Kötturinn
(Cat People).
SIMONE SINON,
KEET SMITH,
TOM CONWAY.
Sýnd kl. 7 og 9.
Bönnuð fyrir börn innan
16 ára.
Nýliðarnir
með
GÖG Og GOKKE.
Sýnd kl. 5.
NÝJA EÍÓ-
Ilcillastjörirar
(Thank Your Lucky Stars)
Eddie Cantor, Joan Leslie,
Bette Davis, Errol Flynn,
Sýnd kl, 61/á og 9.
I leyniiylgsnum
stórborgarinnar
(Eyes of the Underworld)
WENDY BARRIE.
RICHARD DIX,
Börn innan 16 ára fá elcki
aðgang.
Amerísk
fiarlmannafot
vönduð, dökkblá, brún, dökkgrá, — einhrieppt, tví-
hneppt. Mikið úrvai. Allar stærðir (nr. 35 til 46).
Verð kr. 485.00. — Einnig samkvæmisföt.
ttltima
Skólavörðustíg 19. -r- Sími 3321.
Atkvæðagreiðsla
í Reykjavíkiirkjördæmi um iiiöur-
felliugu dansk-íslenzka sainbands-
Iagasanraingsins og um stjórnarskrá
lýðveltlisins íslands. fer fram í Mið-
bæjarbarnaskólanum dagaua 20.—23.
maí 1944, að báðum dögum meðtöld-
uin. Hefst atkvæðagreiðslan kl. 10 að
morgni hvers dags og byrjar laugar-
daginn 20. maí.
Undirkjörstjórnir mæti á kjörstað
næstkomandi laugardag kl. 9 ár-
degis.
Yfirkjörstjórmn.
Anglýsing
Kaupum ekkí tómar ilöskur fyrst um sinn
Áfengisverzlun ríkísíns.
Tilkynning
frá ríkísstjórninni
Brezka flotastjórnin hefur tilkynnt íslenzku ríkisstjórn-
inni að nauðsynlegt sé að öll íslenzk skip, 10 til 750 smál.
að stærð, fái endurnýjuð eins fljótt og hægt er eftir 1. júní
1944, ferðaskírteini þau, sem um ræðir í tilkynningu ríkis-
stjórnarinnar, dags. 7. marz 1941.
Skírteini þessi verða afgreidd sem hér segir:
í Reykjavík hjá brezka aðalkonsúlnum, á Akureyri hjá
brezka vice-konsúlnum, á Seyðisfirði hjá brezku flotastjórn-
inni og í Vestmannaeyjum hjá brezka vice-konsúlnum.
Atvlirau- og samgöngumálaráðuneytið,
17. maí 1944.
Tónlistarfélafiið otj Leihfélag Steiihjavíhur
„Pétur Gautup“
Leikstjóri: frú GERD GRIEG.
Sýnrag annað kvöld kl. 8.
Aðgöngumiðar seldir kl. 4—7 1 dag.
Innilegustu þakkir fœri ég öllum sveitungum mínum,
sem heiðruðu mig með heimsóknum og höfðinglegum gjöf-
um í tilefni af sextíu ára afmœli mínu, 13, þ. m. Enn-
fremur þakka ég skeyti víðsvegar að.
Hávarðarkoti í Þykkvabœ, 15. maí 1944
TYRFINGUR BJÖRNSSON.
Mitt innilegasta þakklœti sendi ég öllum þeim, er
sýndu mér á ýmsan hátt vinsemd og velvild á 70 ára af-
mœli mínu, 5. mai síðastliðinn.
JÓHANN MAGNÚSSON.
Innilegustu þakkir til allra fjœr og nœr, félaga og
stofnana, samstarfsmanna minna og vina, fyrir rausnar-
legar gjafir, heillaóskir og hvers konar vinsemd á fímmt-
ugsafmœli mínu.
Hafnarfirði, 19. maí 1944
KJARTAN ÓLAFSSON.
Bífreiðaeígendur
Uandsnefnd — og Reykjavíkurnefnd
Lýðveldiskosningaima, fara jiess vin-
samlegast á leit við yður, að þér lánið
hifreiðar yðar kjördagana til fyrir-
greiðslu við ke^ningarnar.
Ef þið viljið sinna þessu gerið svo
vel að tilkynjjfta það kosningarskrif-
stofunni í Hótel Heklu. IVorður dyr. —
Sími 1453. *
Séð verðfur fyrir auka benzín-
skammti ve,gna þessara nota.
í Hainaríirði
á kjördögunum verða í Strandgötu 29
og Gunnarssundi 5
Símar: 9196, 9241 og 9228
Hafnfirðíng&r! Allir á kjörstað!
Tílkynníng
irá Síldarverksmiðjum ríkisins
Ákveðið er að starfrækja Síldarverksmiðjur ríkis-
ins á Siglufirði, Raufarhöfn og Húsavík í sumar.
Þetta er þó bundið því skilyrði, að nægar rekstrar-
vörur fáist. Greitt verður fast verð kr. 18,00 pr. mál
fyrir síldina, en þeir, sem óska þess heldur, geta
lagt síldina inn til vinnslu, og fá þá greiddar kr.
15,30 pr. mál við afhendingu síldarinnar og»endan-
legt uppgjör síðar.
Þeir, sem ætla að leggja upp afla sinn hjá Síldar-
verksmiðjum ríkisins í sumar, þurfa að senda um-
sóknir sínar um það til skrifstofu vorrar á Siglu-
firði, eigi síðar en 31. þ. m.
17. maí 1944.
Síidarvorksmiðjur ríkislns.