Tíminn - 27.05.1944, Síða 2
218
TÍMIM, laiigardaginm 27. maí 1944
55. blað
^tmmn
Laugardayur 27. maí
270 stig
Þannig er nú komið, þrátt fyr-
ir þær dýrtíðarráðstafanir, sem
gerðar hafa verið að undan-
förnu, að dýrtiðarvísitalan er
aftur komin í 270 stig. Væri hætt
að halda niðri verðlagi ýmsra
vara með beinum framlögum úr
ríkissjóði myndi vísitalan senni-
lega verða nálægt 290 stigum.
Fullar horfur eru á því, að
tekjur ríkissjóðs muni fara rýrn-
andi á þessu ári. Á seinas'ta fjár-
laga-þingi fékkst enginn flokk-
ur, nema Framsóknarflokkur-
inn, til að styðja sérstaka tekju-
öflun, svo að tryggt væri, að
ríkissjóður gæti haldið dýrtíðar-
greiðslunum áfram, meðan ekki
næðist samkomulag um örugg-
ari lausn. Þar sem engra slíkra
tekna var því aflað og hinar
föstu tekjur ríkissjóðs fara rýrn-
andi, hlýtur að því að draga, að
þessum greiðslum verði hætt.
Dýrtíðin kemst þá í 290 stig.
Farmgjaldalækkunin, sem ný-
lega var ákveðin, mun hafa
sáralítil áhrif á vísitöluna,
vegna þess, hvernig hún er
reiknuð.
Það er alkunna, að mörgum
nauðsynlegum atvinnugreinum
var ofvaxið að rísa undir rekstr-
arkostnaðinum meðan vísitalan
var talsvert innan við 270 stig.
Síldarsöltunin, sem verður eng-
in í sumar, er þar talandi dæmi.
Skipasmíðarnar eru annað
dæmi. Frystihúsin hafa barizt
í bökkum. Sérhver vísitöluhækk-
un þrengir kost smáútgerðar-
manna og sjómanna. Frægt er
það dæmi, að sjómenn og út-
gerðarmenn í Vestmannaeyjum
fengu y2 milj. króna minna fyr-
ir lýsið 1943 en 1942, þótt lýsis-
magnið væri heldur meira
seinna árið og verðið sama bæði
árin. Hálfa miljónin fór í auk-
inn vinnslukostnað, vegna dýr-
tíðarinnar. Hvað verður þá,
þegar vísitalan er komin í 290—
300 stig?
Það mætti þannig vera öllum
ljóst, að hækkun vísitölunnar í
290—300 stig mun hafa stór-
fellda atvinnustöðvun í för með
sér. Jafnhliða kemur svo stór-
um minni atvinna hjá setulið-
inu, bæði beint og óbeint.
Nokkru lengra, en þó ekki langt
framundan, er almenn lækkun
fiskverðsins, þegar styrjöldinni
í Evrópu er lokið.
Þrátt fyrir þessar uggvænlegu
horfur, hefir enginn stjórnmála-
flokkanna, nema Framsóknar-
flokkurinn, markað ákveðna
stefnu um lausn dýrtíðarmálsins
og annarra framtíðarmála, sem
eru tengd því. Hinir flokkarnir
hafa að vísu lýst háska dýrtíðar-
innar mjög réttilega, en þeir
hafa varast að benda á nokkura
ákveðna leið til úrlausnar.
Þetta þarf ekki heldur að
koma neinum á óvart. Fram-
sóknarflokkurinn hefir jafnan
haft forgöngu um flest allt það,
sem reynt hefir verið til að halda
dýrtíðinni í skefjum. Vegna
brigðmæla og ístöðuleysis ann-
ara flokka hafa þessar tilraunir
hins vegar orðið árangurslitlar
og dýrtíðin hefir því haldið á-
fram að vaxa. Eigi að síður er
það trú Framsóknarmanna,
að enn sé mögulegt að stöðva
hrunið og nota stríðsgróðann til
stórfelldra umbóta í landinu í
stað þess að láta hann glatast í
eyðsluhít dýrtíðarinnar. Til
þess að slíkt geti tekizt, verður
að taka dýrtíðarmálið. til úr-
lausnar á breiðari grundvelli en
t. d. hlutfallsleg niðurfærsla
verðlags og kaupgjalds væri.
Lausnin yrði að ná til allra fjár-
hags- og atvinnumála yfir höf-
uð og stefna að sameiginlegri
notkun náttúrugæðanna og
stríðsgróðans í þágu lands-
manna allra, en ekki nokkurra
auðkónga eða einnar stéttar.
Viðreiánin þarf að vera réttlát
og alhliða; ná jafnt til dýrtíð-
armálsins og annarra aðkall-
andi viðfangsefna.
Þessi stefna Framsóknar-
flokksins var mjög skýrt og
greinilega mörkuð á nýloknu
flokksþingi Framsóknarmanna.
Allir þeir, sem kjósa held-
ur að vinna að viðreisn en hruni.
Halldór Kristjánsson, Kirkjubóli:
Pétur Gautur
„Pétur Gautur“ eftir Henrik Ibsen er eitt af nafntoguð-
ustu ritum hinna norsku stórskálda á síðari hluta 19. ald-
ar, samið í Ítalíu sumarið 1867. Röskum þrem áratugum
síðar innti Einar Benediktsson af höndum það ágætisverk
að þýða „Pétur Gaut“ á íslenzku.
Nú síðari hluta vetrar hafa Leikfélag Reykjavíkur og
Tónlistarfélagið sýnt „Pétur Gaut“ í Iðnó við mikla aðsókn
og góðan orðstír. — Halldór Kristjánsson, bóndi á Kirkju-
bóli í Önundarfirði, hefir sent „Tímanum“ þessa grein um
leikinn og leikritið.
Pétur Gautur er rit, sem ég
hefi haft sérstakar mætur á frá
því að ég las hann fyrst. Ég hefi
verið svo heppinn, að hafa hann
mér við hönd árum saman og þá
lesið kafla og kafla, þegar tóm
var til og hugurinn leitaði hvíld-
ar. Ég var því efnislega kunn-
ugur Pétri Gaut þegar ég kom í
Iðnó núna um daginn og sá þrjá
fyrstu þætti hans leikna. Ég
bjóst við góðri kvöldstund. Ég
vissi það, að Pétur Gautur er
listaverk, þar sem saman fer
auður spakmæla og snilliyrða og
leiftrandi andríki, markviss
ádeila og miskunnarlaus gagn-
rýni, nærfærin túlkun og tján-
ing göfugra kennda. Hitt vissi
ég og, að það hlaut að vera
bundið miklum erfiðleikum að
sýna svo umfangsmikinn leik í
jafn þröngum og kotungsíegum
húsakynnum. Undraðist ég
hversu það tókst, og finnst mér
það út af fyrir sig vera ærið
afrek.
Ég bjóst við góðri og upp-
byggilegri skemmtun, og ég var
ættu að kynna sér samþykktir
þingsins. Þær hafa verið þirtar
í Tímanum og Degi og síðar
verið gefnar út sérprentaðar og
fást í flestum bókabúðum. Vísi-
talan 270 ætti að minna menn á,
að það er ekki lengur tími til
að horfa í gaupnir sér og láta
gömul ágreiningsefni setja í
fyrirrúmi. Það gildir jafnt heila
flokka, flokksbrot eða einstakl-
inga. Það er enn hægt að'af-
stýra óhamingjunni, sem af
hruninu myndi hljótast, ef þeir,
sem að viðreisn vilja standa,
láta það ekki dragast að samein-
ast um ákveðna viðreisnar-
stefnu. Hverjum þeim, sem
kynnir sér vel jafnréttishugsjón
komandi tíma og þá félagslegu
þróun, sem er að gerast annars-
staðar, mun verða ljóst, að hin-
ar sanngjörnu, framsæknu sam-
þykktir flokksþingsins marka þá
stefnu í aðalatriðum. Þ. Þ.
við sérstaklega áhrifamikla sýn-
ingu, og fór það langt fram úr
því, sem ég bjóst við. Ég hafði
lesið það í eftirmála Einars
Benediktssonar við þýðinguna,
að ritið væri betur fallið til lest-
urs en sýnis, og það væri mest
af ræktarsemi, að það hefði ver-
ið sýnt. Ef til vill hefir þetta
mótað hugmyndir mínar fyrir-
fram. En svo kom sýningin, há-
tíðleg stund og voldug.
Svo mikið er víst, að Pétur
Gautur nær til hjartans eins og
með hann var farið þarna, og
auðvitað gengur hann ekki
framhjá hugsun og viti.
Pétur Gautur er saga um
mikla baráttu og hugstríð, þar
sem ístöðulítill en stórhuga
maður reynir að kaupa sér ham-
ingju og sátt við lífið með sjálfs-
blekkingu, grobbi og undan-
slætti. En þar er líka saga Ásu,
móðurinnar, sem mæðist af
áhyggju og sorg vegna sonarins,
sem hún elskar og gengur á
glapstigum. Hún álasar honum,
en er þó jafnan í verjandi og
verndandi afstöðu gagnvart að-
kasti heimsins og ásakar sjálfa
sig fyrir óheppilegt uppeldi. Og
þarna er sagan um ást Sólveig-
ar, stúlkunnar, sem elskar ó-
gæfumanninn, yfirgefur allt
hans vegna og gengur til hans
þá leið, sem er ófær til baka.
Hann bregzt henni og hún bíður
ein og vanrækt, en glatar þó
aldrei ást sinni og tryggð. Okk-
ur myndi flestum, venjulegum
mönnum, þykja slíkt vond lífs-
kjör fyrir kvenfólk í heimi veru-
leikans. En það var þessi blinda
og barnslega ást og trú Sólveig-
ar, sem varð til þess að Pétur
Gautur iðraðist lífs síns í alvöru
og stóð í leikslok frammi fyrir
hnappasmiðnum með sannar,
falslausar tilfinningar, brenn-
andi iðrun og kappsfulla um-
hyggju fyrir konunni, sem hafði
beðið hans. Þetta er líka djúp
lífsspeki. Ætli það .sé ekki
stundum nauðsynlegt skilyrði til
þess, að hugarfar mannsins verði
Henrik Ibsen
svo, að hann geti tekið framför
og þroska, að hann finni til þess,
að við hann er gert betur en
hann á skilið og verðskuldar?
Það eru fleiri sögubrot og
drættir, sem þetta höfuðrit
Ibsens sýnir okkur. Það er eins
og leiksýningin láti fara fram
nýtt mat mannlegra tilfinninga
og verðmæta lífsins. Það er eins
konar yfirmat lífsgildisins. Hé-
gómi hversdagsleikans eyðist og
áhorfandinn stendur andspænis
kjarna lífsins. Trúin á lífið og
fegurð þess glæðist, því að þarna
birtist það í allri sinni dýrð 1
auðmýkt og fátækt, ást og fórn.
Sennilega koma mörgum í hug
helgustu stundir eigin lífs. Og
er það ekki þetta, sem er ein-
kenni þess að njóta mikillar
listar?
Mér skilst, að það sé æðsta
takmark allrar skáldlegrar list-
ar að láta menn sjá sjálfa sig í
því, sem sýnt er og sky.nja í æðra
valdi gildi hins góða og háska
hins, svo að menn viti betur
hvað þeim ber að gera, — hvern-
ið þeir eiga að lifa. Fer þá bezt
á því að talað sé bæði til hugs-
unar og kennda. Brjóstið hitnar
og tilfinningar rísa til andstöðu
gegn því, sem brýtur niður,
lamar og leiðir afvega, — til
varnar og samúðar með því, sem
byggir upp og grær. Hugsunin
rekur þráðinn, metur og álykt-
ar. Þannig nema ménn lögmál
lífsins. Þannig vinnur skáld-
skapurinn að daglegri framför
og uppbyggingu lífsins. Sönn
list lyftir þeim, sem njóta henn-
ar, — gerir þá vitrari og betri.
Ef til vill kæmir ekki að minn-
ast á sýningu Péturs Gauts án
þess að geta sérstaklega þeirra
leikara, sem þar eiga mestan
þátt. Vel má vera, að Gerd Grieg
eigi þar mestan hlut og sóma,
þó að hún komi hvergi fram.
Á sviðinu er það Lárus Pálsson,
sem ber leikinn uppi, enda er
hlutverk hans miklu fyrirferð-
armest. Lárus hefir skýran
framburð og kann vel að láta
heyra til sín, þó að hann tali
ekki mjög hátt, og er það góður
kostur. En annars er maðurinn
meistari í raddbeitingu og lát-
bragðslist.
Hitt vekur þó e. t. v. meiii
furðu leikhúsgesta hvað Gunn-
þórunn Halldórsdóttir getur enn
á áttræðisaldri, því að erfitt er
að túlka Ásu, sem stundum er
lengi á leiksviði samfellt, talar
oft lengi í einu og tíðum í upp-
námi. Raunar virðist stundum
komið að takmörkum þess, sern
raddstyrkur og brjóstþol leyfir.
en þa_ð fellur svo vel við hlut-
verk Ásu gömlu, hinnar mæddu
konu, að menn viti ekki, hvort
það er ósjálfrátt eða listbrögð
leikkonunnar. Ég fagna því að
hafa fengið að sjá Gunnþórunni
Halldórsdóttur á leiksviði og það
einmitt í þessu hlutverki. Hún
hefir unnið hjörtu okkar út-
kjálkabúa gegnum útvarpið eins
og fleiri góðir leikendur og nafn
hennar ‘mun geymast í leiksögu
þjóðarinnar.
Aðrir leikarar, sem einkum
vöktu aðdáun mína voru Brynj-
ólfur Jóhannesson, sem leikur
Dofrann með sjálfbyrgingsleg-
um virðuleik.og Alda Möller,sem
fer af mikilli prýði með hlutverk
þeirrar grænklæddu og ef til vill
bezt við selkofann í síðasta at-
riðinu. Þar er það sýnt ógleym-
anlega, að lokur og lásar og
plankar læsa ekki úti sjálfs þín
þanka, og fylgjur fortíðarinnar
geta komið, sótt að mönnum og
rænt þá friði. En það fannst
mér undur, hvernig Alda Möller
gat sameinað ógnandi nornar-
skap og kvenlega auðmýkt.
Vitanlega er margt fleira í
leiknum vel heppnað, þó að oft
beri þar minna á einstökum
leikurum, vegna þess að hlut-
verkin eru smá. Þannig er t. d.
bæði veizlan á Heggstað og hirð
Dofrans með ágætum vegna
þeirrar heildarmyndar, sem
leikendurnir skapa. Og þá má ég
ekki þegja um það atriði leiks-
ins, er Sólveig kemur til Péturs
upp í selið, því að það var vel
sýnt.
Hér verður staðar numið með
þeirri ósk, að Leikfélagið geti
bráðum flutt starfsemi sína í
vegleg salarkynni þjóðleikhúss-
ins og þar verði á komandi tím-
um haldið uppi veglegu menn-
ingarstarfi á borð við það, að
sýna Pétur Gaut, svo að menn
komi þar jafnan út nokkru
bættari en þeir fara inn.
Halldór Kristjánsson.
D V 0 L
Fyrsta hefti 12. árg. Dvalar
er nýkomið út. — Þegar ég skildi
við Dvöl fyrir fjórum árum síð-
an gerði ég það í þeirri von, að
ungu mennirnir myndu hefja
hana til vaxandi gengis. Síðan
hefir Samband ungra Fram-
sóknarmanna gefið hana út og
hafa tveir efnismenn verið rit-
stjórar hennar, sín tvö árin
hvor, þeir Þórir Baldvinsson og
Jón Helgason. En nú hafa nýir
eigendur tekið við útgáfunni.
Ungur kennari, greindur og efni-
legur Þingeyingur, Andrés Krist-
jánsson, annast ritstjórnina.
Fer Dvöl vel af stað undir rit-
stjórn hans.
Eins og frá fyrstu tíð ein-
kennist þetta hefti af úrvals-
smásögum, eftir ýmsa ágæta er-
lenda höfunda, en auk þeirra er
ferðasaga, kvæði, kímnisögur,
ritdóma o. fl.
Ugglaus hefir jafnan eitthvað
mátt finna að Dvöl með réttu,
þótt á meðan við vorum sam-
ferða, yrði ég mjög var vinsælda
hennar víða um land. En án alls
skrums er áreiðanlega hægt að
segja það, að í Dvöl er nú orðið
að finna stærsta og merkasta
safn af úrvals smásögum heims-
bókmenntanna, sem til er á ís-
lenzku.
Ég held, að bókelskt fólk ætti
að taka Dvöl vel hjá hinum nýju
útgefendum, því að ég er viss
um að þeim er alvara að gera
hana vel úr garði. Og þó að hún
hafi nú hækkað í verði að krónu-
tali, þá verður hún samt mikið
ódýrari, eftir lesmáli, heldur en
flestar bækur, sem út koma nú
á tímum. V. G.
Uthlutun til leíkara
Nefnd sú, sem leikarar kusu
til að úthluta fé því, sem
Menntamálaráð veitti til leikara
á þessu ári, hefir fyrir nokkru
lokið störfum og úthlutað fénu
þannig:
1200 krónur fengu Gunnþór-
unn Halldórsdóttir og Friðfinn-
ur Guðjónsson, 1000 krónur frú
Guðrún Indriðadóttir, 900 kr.
fengu Arndís Björnsdóttir,
Brynjólfur Jóhannesson, Gestur
Pálsson, Haraldur Björnsson,
Indriði Waage, Lárus Pálsson,
Soffía Guðlaugsdóttir, Valur
Gíslason og Svava Jónsdóttir,
Akureyri.
700 krónur fengu: Jón Norð-
fjörð, Akureyri, Þóra Borg Ein-
arsson, 650 kr. fengu: Alfred
Andrésson, Alda Möller, Lárus
Ingólfsson, 550 krónur: Emelía
Borg, Jón Aðils, Sigrún Magnús-
dóttir, og 500 krónur Edda
Kvaran og Hildur Kalman.
Stofán Jónsson, námstjjóri:
Nýjung í skólamálum
- skólabílar -
Sú nýjung hefir verið upp tekin í tveim skólahverfum á
landinu, Vatnsleysströnd og Ölfusi, að skólabörnin eru sótt
að morgni hvers kennsludags í sérstakri bfreið og flutt
heim á kvöldin, þegar kennslu er lokið. Bjarni M. Jónsson
námstjóri skrifaði nýlega grein í „Menntamál“, tímarit
kennara, um þetta nýmæli. Hefir sú grein verið gefin út
sérprentuð, og ættu þeir, sem áhuga hafa á þessum málum,
að verða sér úti um hana.
Ýmsir hafa spurzt fyrir um þetta nýmæli, enda er hér um
að ræða tilraun til lausnar á vandamáli. Er því sýnt, að það
hefir vakið athygli. — í þessari grein ræðir Stefán Jónsson
námstjóri stuttlega um skólabílana og hvar líklegt sé, að
þeir geti örugglega komið að notum.
í „Menntamálum", 3. hefti
1944, birtist grein eftir Bjarna
M. Jónsson, námsstjóra, þar sem
hann ræðir um þá nýung í
skólamálum, að sérstakir bílar
flytji börnin að og frá skóla-
stað, og skýrir hann þar einnig
frá fenginni reynslu tveggja
skólahéraða, en skólahverfi
Ölfusinga og. skólahverfi
Vatnsleysustrandar hafa notað
skólabíla tvo síðastliðna vetur.
Vil ég benda þeim á, sem vilja
kynna sér þetta mál, að lesa fyr-
nefnda ritgerð í „Menntamál-
um“, en hún fæst líka sérprent-
uð- í skrifstofu fræðslumála-
stjóra.--------
Þetta mál hefir vakið nokkra
athygli og vakið vonir manna
um það, áð ef til vill fengist
þarna lausn á einu stærsta
vandamáli strjálbýlisins. Ég vil
ekki í þessari grein, endurtaka
rök Bjarna M. Jónssonar, þar
sem hverjum einum er auðvelt
að afla sér greinar hans til lest-
urs, en ég vil ræða hér sérstak-
lega, á hvaða stöðum ég tel, að
skólabílar gætu komið að not-
um, og hvaða munur er á því
fyrir uppeldi og fræðslu barns-
ins, að þvi sé ekið kvölds og
morgna áð og frá skóla eða það
dvelji í heimavist.
Á öllu svæðinu suðaustur um
land frá Mýrdalssandi og norður
um Langanes eru samgöngu-
leiðir þannig eða snjóþyngsli svo
mikil, að skólabílum verður ekki
við komið. - Um Skaftafellssýslu
skal það þó tekið fram, að þegar
fyrirhugaðar brýr hafa verið
byggðar og vegakerfi héraðsins
fullgert, mætti ef til vill nota
skólabíla á sumum stöðum, en
vegalengdir eru þar svo miklar,
að ferðirnar yrðu ákaflega dýr-
ar daglega.
Um Austurland allt frá
Hornafirði að Langanesi er
snjóþungi svo mikill, að bílvegir
lokast oft um langan tíma, enda
allt vegakerfi mjög sundurslitið
af heiðum og fjörðum, nema á
Fljótsdalshéraði, en þar geta
snjólög lokað öllum leiðum svo
vikum og mánuðum skiptir.
Á Norðurlandi öllu, frá Langa-
nesi að Hrútafirði, tel ég að
ekki sé hægt að byggja á dag-
legum bílferðum um sveitir og
dali, því að þótt bílvegir á lang-
leiðum norðanlands hafi oft
verið færir á vetrum að undan-
förnu, þá hafa þeir vetur verið
svo óvenjulega snjóléttir, að
ekki er hægt að byggja á þeirri
reynslu.
Um Vestfirði er ekki að tala
í þessu efni, og um Snæfells-
nes og Dali er vegakerfi ekki
enn komið í það horf, að bílfært
sé í námunda við flesta bæi,
nema þá helzt austan til á
sunnanverðu Snæfellsnesi, enda
snjóþungt sums staðar, þótt í
meðalvetrum sé. —
Um Borgarfjörð og Mýrar er
öðru máli að gegna, og sérstak-
lega tel ég, að skólabíll gæti
komið að notum á Hvalfjarðar-
strönd og í Leirár- og Melasveit.
í Borgarfjarðardölum myndu
aftur skólar með heimavist
sjálfsagðir, enda mun þar víð-
ast hægt að velja skólastaði við
heitar uppsprettur.
Þá er það héraðið frá Hval-
firði að Mýrdalssandi. Þar mun
þessi nýjung eiga bezt við og
styðjast við mest öryggi, þar sem
vegakerfið er þar fullkomnast
og venjulega snjóléffc á vetrum,
enda hefir raun gefið vitni um
það, eins og fyrr er sagt, bæði
á Vatnsleysuströnd og í Ölfus-
inu.
Þá kem ég að hinu atriðinu, og
það er samanburður á því fyrir
börnin, að dvelja í heimavistar-
skólum eða fara daglega að
heiman í skóla og heim í skóla-
bíl, og skal ég þá í stuttu máli
skýra kosti hvors um sig.
Það er viðurkennt, að gott
heimili er skólum æðra og yfir-
leitt á að stefna að því, að öll
heimili landsins hafi aðstöðu til
að vera góð heimili. — Það er
því rétt að stuðla að því, að
börnin eigi sem mest dvöl á sínu
eigin heimili, en á það skal líka
bent, að margir beztu skóla-
menn okkar hafa byggt miklar
vonir á uppeldisgildi heima-
vistarskóla í höndum góðs
manns, og ég tel að vonir þeirra
manna hafi að nokkru leyti
rætzt af reynslu þeirri, er þegar
er fengin af þeim skólum,
er nú hafa starfað um nokk-
ur ár, — Ég tel því, að þau hér-
uð, sem ekki geta á næstunni
notið þeirra hlunninda, er
skólabílar vissulega veita, þar
sem þeim verður við komið, geti
vel sætt sig við aðstöðu sína, ef
þeim tekst að koma á stofn
vönduðum heimavistarskóla og
tryggja honum góða starfs-
krafta.
Ef ungarnir færu aldrei úr
hreiðrinu, lærðu þeir ekki að
beita vængjm sínum til flugs. —
Það getur verið holl æfing í
þegnskap og félagsdyggðum að
fara 10 ára til dvalar að heiman
og læra að umgangast vanda-
lausa, hlýða settum reglum og
sjá sjálfur um fatnað sinn og
herbergi.
Og ég tel það víst, að þroska
barnsins sé það hollt að öðlast
ofurlitla lífsreynslu 10—13 ára;
þá yrði lífsbrautin ekki eins hál
ungmennum strjálbýlisins, er
þau fara að heiman 14—17 ára.
Ég álít, að áhugamenn um
skólamál í hverju héraði ættu
að athuga þessi mál gaumgæfi-
lega,- sérstaklega þar, sem fyrir
liggur að reisa nýja skóla, því að
val skólastaðar og stærð skóla-
byggingar ætti að fara mjög eft-
ir því, hvort ætlast er til að börn
dvelji þar í heimavist, eða sé
ekið daglega í skólann í skólabíl.
Mistök í framkvæmd, á hvorn
veginn sem er, eru of dýr, og með
gætilegri athugun er hægt að
sneiða hjá þeim.
Ei ráða brotnar
hjá yður, þurflð þér aðeins að
hringja í síma 4160.
Höfum rúðugler af öllum gerð-
um og menn til að annast
ísetningu.
VERZL. BRYNJA
Sími 4160.
í