Tíminn - 04.07.1944, Qupperneq 4
264
TÍMINN, frriðjiidagiim 4. jálí 1944
66. blatS
ÚR B/EMUM
Landsbókasafnið.
Ritaukaskrá Landsbókasafnins fyrir
árið 1943 er nýkomin út. Telur skráin
allar íslenzkar bækur, sem safnið hefir
eignazt ári4 1943 og erlendar bækur,
sem því hefir bætzt frá 1. júní 1943.
Bókaeign safnsins var í árslok 1943
talin 155.355 bindi, og nam ritaukinn
frá 1. júní 1943 1913 bindum. Hand-
ritasafnið var 9302 bindi í árslok 1943,
og hafði það aukizt um 67 bindi.
Fontenay,
sendiherra Dana hér, er nýkominn
hingað eftir alllanga dvöl í London.
Yfirmat.
Yfirmatsnefnd hefir hækkað matið
á þeim hluta Grafarholts, sem Reykja-
víkurbær kaupir, úr 254 þús. í 355 þús.
kr. Sama nefnd hefir einnig hækkað
matið á Varmá og Lágafelli, sem Mos-
fellssveit kaupir af Reykjavíkurbæ, úr
493 þús. í 555 þús. kr.
Strætisvagnarnir.
Bæjarráð hefir hafnað því að kaupa
eignir Strætisvagnafélagsins, en þær
hafa verið metnar á lVz milj. kr. Einn-
ig hefir bæjarráðið hafnað því að veita
félaginu sérleyfi til rekstur síns næstu
10 árin.
Melaskóli.
Byggingarnefnd hefir samþykkt upp-
drætti Einars Sveinssonar og Ágústs
Fálssonar að Melaskólanum og verður
byggingin bráðlega boðin út.
Myndasýning
frá Stalingrad og Leningrad, sem er
haldin á vegum rússnesku sendisveit-
arinnar hér, var opnuö í Sýningar-
skálanum í gær. Hún verður opin í
nokkra daga.
Skarlatssótt.
Nokkuð hefir borið á skarlatssótt
hér í bænum undanfarna daga, einkum
eftir hátíðahöldin 17. og 18. júní. Veik-
in hefir yfirleitt verið væg og hafa
því sumir sjúklingar ekki nærri strax
gert sér ljóst, að þeir höfðu veikina.
Allmargir hafa verið fluttir á Far-
sóttahúsið. Skarlatssótt hefir einnig
komið upp í dvalarheimili K. F. U. M.
í Vatnaskógi.
Flugmannsefni.
Ungur íslendingur, Sæmundur Þór-
arinsson (Ólafssonar skósmíðameistara
í Keflavík) er fyrir skömmu kominn
heim frá Bretlandi, þar sem hann
hefir dvalið við nám í flugher Breta
um 10 mánaða skeið. Hann mun brátt
fara þangað aftur og ætlar sér að
ganga í flugher Breta, þegar hann er
orðinn fullnuma í flugi. Sæmundur er
19 ára.
Fimmtugsafmæli.
Arinbjörn Þorvarðsson sundkennari
í Keflavík átti fimmtugsafamæli í gær.
Arinbjörn er maður vel látinn og hefir
unnið að ýmsum félagsmálum Kefl-
víkinga.
Hjúskapur.
Nýlega voru gefin saman í hjónaband
ungfrú Kristín Pétursdóttir, Miðfossum
og Jón Gíslason, Skeljabrekku í Borg-
arfirði. Heimili þeirra er á Skelja-
brekku. Ennfremur ungfrú Eygló Gísla-
dóttir, Skeljabrekku og Haraldur Sig-
urjónsson, Granda í Dýrafirði. Heimili
þeirra er á Hvanneyri í Borgarfirði.
Hjónaefni.
Nýlega hafa opinberað trúlofun sína
Sigríður Jóhanna Andrésdóttir (Haf-
liðasonar kaupm., Siglufirði) og Vig-
fús Sigurjónsson (Einarssonar skipstj
Hafnarfirði).
Barnakór
frá Vestmannaeyjum, sem í eru um
50 börn, er kominn til bæjarins og
hefir haldið vel sóttar söngskemmtanir.
Söngstjóri er Helgi Þoriáksson. Þetta
er fyrsti barnakórinn, sem hingað kem-
ur.
í frásögninni
frá aðalfundi Kaupfélags Stykkis-
hólms í seinasta blaði hefir misprent-
ast heimilisfang eins stjórnarnefndar-
manns, Jóns V. Hjaltalín. Hann á
heima í Brokey.
Á víðavangi.
(Framh. af 1. síSu)
fræg á þessu auglýsingamáli út-
varpsins. Um frumsamdar bæk-
ur mætti yfirleitt halda, að þær
stæðu ekki að baki Heimskringlu
og Njálu, ef dæma ætti eftir út-
varpsauglýsingunum. Vafalaust
lætur sumt saklaust fólk ginn-
ast af þessu. Það eru vinsamleg
tilmæli mín til forráðamanna
útvarpsins, að þeir hætti þessari
menningarlausu starfsemi.
Mér finnst það ætti líka að
gilda yfirleitt um útvarpsaug-
lýsingar, að þær væru sem hlut-
lausastar. Auglýsingar geta samt
orðið að gagni. Öðrum auglýs-
endum en bókaútgefendum má
lika segja það til hróss, að þeir
hafa ekki skrumað eins tak-
markalaust og bókaútgefend-
urnir.
Gíldandi mnflutningsreglur..
(Framh. af 1. síðu)
ans er því fyrst til að svara, að
megnið af þeim leyfum, sem
hann mun eiga við, eru frá ár-
inu 1942 og fyrrihluta ársins
1943 eða hafa verið veitt áður
en innflutningsreglur hans
komu til framkvæmda. Á þeim
tíma voru innflutningsleyfi
veitt án verulegra takmarkana
og hafa margir innflytjendur
átt ónotuð leyfi síðan til skamms
tíma. Þetta sannar því ekki neitt
um það, hver áhrif innflutnings-
reglur ráðherrans hafa fyrir
samvinnufélögin og er því þessi
blekking hans algerlega út íhött.
Það er líka fullkomlega rangt
hjá ráðherranum, að S. í. S. hafi
ekki notað þessi leyfi, þótt vör-
urnar hafi ekki verið komnar
til landsins fyrir áramótin. S. í.
S. gerði strax ráðstafanir til að
nota þesi leyfi sem fyrst, en
ýmsir erfiðleikar voru þar til
hindrunar. Þegar sendimaður S.
í. S. var í Bandaríkjunum
snemma á árinu 1943, var því
tilkynnt frá hærri stöðum hér,
að framvegis myndu Bretar af-
greiða hingað allar metravörur,
garn o. fl. og yrðu því ekki veitt
innflutningsleyfi frá Banda-
ríkjunum. S. í. S. lét því hætta
þessum innkaupum vestra og
sendi pantanirnar til, Bretlands.
Síðar var tilkynnt, að engar
þessar vörur fengjust þaðan og
innkaup yrði því leyfð aftur frá
Bandaríkjunum. S. í. S. lét þá
strax hefjast handa um kaupin
þar, en ýmsar þær vörur, sem
fengust fyrr á árinu, voru þá
orðnar ófáanlegar og irtnkaupin
á allan hátt erfiðari. Þó tókst
að fá keypt fyrir öll leyfin, en
þá var eftir að koma vörunum
heim. Vegna reglna Viðskipta-
ráðs um flutningana, kom hing-
að mjög lítið af vefnaðarvörum
frá Ameríku á síðastl. ári og
dæmi eru þess, að vörur, sem
voru keyptar þar og tilbúnar til
flutnings snemma á árinu 1943,
komu ekki til landsins fyrr en
í apríl síðastl.
Það, sem hér hefir verið sagt
um vefnaðarvörurnar, gildir
einnig að mestu leyti um skó-
fatnaðinn.
Allmikið af búsáhöldum,
sem S. í. S. hafði keypt vestra,
varð það að selja þar aftur, því
að þau fengust ekki flutt, vegna
áðurnefndra reglna viðskipta-
ráðs, fyrr en búið var að banna
útflutning þeirra frá Banda-
ríkjunum.
Það, sem hér hefir verið
rakið viðkomandi innflutnings-
leyfum S. í. S. um síðastl. ára-
mót, slær algerlega úr hendi
ráðherrans þetta lítilfjörlega
vopn, sem hann hefir reynt að
búa sér til. í fyrsta lagi eru þessi
leyfi engin sönnun um það,
hvernig innflutningsreglur hans
muni reynast samvinnufélög-
um, þar sem leyfin eru aðallega
frá eldri tíma, og í öðru lagi
skapa þau síður en svo þá tor-
tryggni, sem ráðherrann hefir
ætlað sér að koma af stað með
þessu, að vöruskortur hjá S. í.
S., sem hljótast kann af vönt-
un innflutningsleyfa í framtíð-
inni, muni vera ódugnaði starfs-
manna þess að kenna. Sá eíni
áverki, sem hlýzt af þessum
vopnatilbúningi ráðherrans,
verður á honum sjálfum og gerir
hann beran að ósvífinni blekk-
ingu til að reyna að leyna rétt-
um málsatriðum.
Sáttagrundvöllurmn.
Þá er komið að því, sem er að-
alatriði þess iháls, sem ráðherr-
ann hyggst að gera að umtals-
efni, en það er hvernig inn-
flutningsreglur hans reynist
samvinnufélögunum. Er þá
hendi næst að nefna þann vöru-
flokk, sem ráðherrann ræðir að-
allega um, vefnaðarvörurnar.
Þar mun niðurstaðan .verða sú
eftir að reglur Björns koma til
framkvæmda, að vöxtur vefn-
aðarverzlunar S. í. S. er ekki að-
eins stöðvaður, heldur mun það
fá stórum minni hluta af heild-
arinnflutningi vefnaðarvaranna
en áður og hlýtur því þessi verzl-
un þess að dragast hlutfallslega
saman, miðað við verzlun kaup-
manna.
Þannig er ástatt með fjöl-
marga vöruflokka aðra. Þannig
hafði S. í. S. t. d. 33% af inn-
flutningi steypujárns, en hefir
aðeins 12% eftir úthlutun við-
skiptaráðs. Svona dæmi mætti
mörg nefna.
Það er ekki undarlegt, þótt
Vísir sé nú farinn að birta for-
ustugreinar, þar sem kaupmönn-
um og kaupfélögum er sagt að
sættast heilum sáttum. Sættirn-
ar væru svo sem ekki fráfælandi,
ef innflutningsreglur Björns Ól-
afssonar ættu að vera sátta-
grundvöllurinn!
Það vcrður að afnema
verzl unarf jötrana.
Það er bezt að upplýsa Björn
Ólafsson og Vísi um það strax,
að það er þýðingarlaust að- tala
um sættir við samvinnumenn á
slíkum grundvelli.
Samvinnúmenn munu ekki
sættast á neinum öðrum grund-
velli en þeim, að innflutnings-
höftunum verði beitt þannig, að
verzlunin sé sem allra frjáls-
ust. Slíkt er vel mögulegt, eins
og lýst hefir verið hér á undan,
og hefir líka verið sannað í
framkvæmd. Samvinnumenn
munu alltaf berjast gegn því, að
neytendur séu raunverulega
sviptir rétti sínum til að velja
á milli verzlana, vöxtur heil-
brigðrar verzlunar sé stöðváður
og okrurum og ónytjungum
veitt raunveruleg einokun á
stórum hluta innflutningsins.
j Það má segja, að enn hafi
reglur Björns Ólafssonar ekki
, komið verulega að sök, því að
I þær hafa gilt svo skamman tíma
: og verzlanir hafa getað búið
I talsvert að eldri leyfum fram
j til þessa. En hér eftir munu
j þær gilda alfarið, ef ekkert
verður aðgert, og þrengja
stórlega verzlun heilbrigðustu
fyrirtækjanna, eins og lýst hefir
verið hér að framan. Þau áhrif,
sem S. í. S. hefir getað haft á
verðlag haftavaranna, munu
stórminnka, þar sem innflutn-
ingshlutur þess skerðist hlut-
fallslega og verður settur í fast-
ar skorður, en vaxandi verzlun
þess með umræddar vörur und-
anfarið hefir haft stórbætandi
áhrif á verzlunina, þar sem
verðlag þess hefir alla jafnan
verið hagstæðara en hjá heild-
sölunum. Þeim mun lengur, sem
þessar reglur gilda, verða afleið-
ingar þessarar einokunar til-
finnanlegri fyrir allan almenn-
ing. Það þarf því að fá hana af-
numda tafarlaust.
Sjaldan hefir það komið bet-
ur fram en í þessu máli, hve illa
heildsölunum er við frjálsa
verzlun og óttast samkeppnina
við kaupfélögin. Þeir hafa
keppzt við það á fundum sín-
um að lýsa ánægju yfir inn-
fltningsreglum Björns og láta
nú bjóða kaupfélögunum sættir
í blaði sínu! Draumur þeirra er
nú sá, að hægt verði að binda
verzlunina í samskonar einokun-
arfjötra til frambúðar og nú.
Það er hlutverk samvinnu-
manna að vinna gegn því að
slík einokun skapist og tryggja
neytendum áfram verzlunar-
freisið. Það er hlutverk þeirra
að tryggja samvinnuhreyfing-
unni áfram skilyrði til að vaxa
og að hægt sé að stofna ný kaup-
félög, án þess að þau þurfi að
leita á náðir heildsalanna. Sam-
vinnumenn hafa reynzt þessu
hlutverki trúir til þessa dags og
munu enn reynast það.
Hreyfingin, sem braut niður
verzlunarkúgun dönsku sel-
stöðukaupmannanna, mun líka
brjóta niður verzlunarfjötra
Björns Ólafssonar.
TJARNARBÍÓ
A TÆPASTA
VAÐI.
(Background to Danger)
GEORGE RAPT,
BRENDA MARSHALL,
SIDNEY GREENSTREET
PETER LORRE.
Bönnuð yngri en 16 ára.
KRYSTALLSKÚLAN
(Iiue IB)SÁJO atii)
PAULETTE GODDARD,
REY MILLAND,
VIRGINIA FIELD.
Sýnd kl. 3, 5 og 7.
*>
-GAMLA BÍÓ-
AXIÍY IIARDY
KYAMST LtFIIVL
Sýnd kl. 7 og 9.
Síðasta sinn.
NÆTURFLUG FRÁ
CHUNGKING.
(Night Flame from Chung-
king).
ROBERT PRESTON
ELLEN DREW
Sýnd kl. 3 og 5.
Bör.n innan 14 ára fá ekki
aðgang.
• NÝJA r 'ó.
Hrakíalla-
bálkar
(„It Ain’t Hay“)
Fjörug gamanmynd með
skopleikurunum
BUD ABBOTT Og
LOU COSTELLO.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
S 1 y s
Fyrra mánudag varð það slys
í Borgarfirði, að maður slasaðist
svo mikið við flutning á skurð-
gröfu, að hann lézt daginn eftir
á Landsspítalanum, en hingað
var hann fluttur í flugvél. Mað-
ur þessi var Ragnar Teitsson frá
Stíflu í Vestur-Landeyjum, 35
ára gamall, kvæntur og átti eitt
barn.
Erlcnt yfirlit.
. (Framh. af 1. síðu)
legt, að þeir geri innrás í Suður-
Frakkland, til þess að létta
þannig undir innrásarhernum í
Norður-Frakklandi.
Síðan Þjóðverjar urðu að draga
úr setuliði sínu í Norður-Ítalíu,
hafa óeirðir og spellvirki aukizt
þar stórlega og gerir það Þjóð-
verjum mjög^rfitt fyrir.
Viktor Emmanúel konungur
lagði niður völd, þegar Róm
hafði verið tekin, og fól Umberto
krónprinsi syni sínum stjórnina.
Hann fól Badoglio marskálki að
mynda nýja stjórn, en honum
tókst það ekki, því að hann fékk
ekki lengur stuðning ýmsra
vinstri flokkana. Gamall forvíg-
ismaður jafnaðarmanna, sem
einu sinni var forsætisráðherra
fyrir valdatöku Mussolinis, hef-
ir nú myndað nýja stjórn, sem
skipuð er fulltrúum frá flokkum
allra andfasista. Margir hinna
nýju ráðherra hafa ekki viljað
vinna konungi hollustueið, þar
sem fyrir þeim vakir, að Ítalía
verði lýðveldi.
Bókabálkur
(Framh. af 2. síðu)
ann“, sem ýmsir kannast við.
„Njósnarinn“ er skáldsaga eins
og „Leyndardómar Snæfells-
jökuls“ og gerist seint á 18. öld
í frelsisstríði Bandaríkjanna.
S AMFERÐ AMENN.
„Samferðamenn og fleiri sög-
ur“ heitir nýtt smásagnasafn
eftir Jón H. Guðmundsson, er
kom út fyrir nokkrum vikum á
vegum ísafoldarprentsmiðju.
Eftir þenna höfund hafa áður
komið út tvær bækur, smá-
sagnasafn, sem nefndist „Frá
liðnum kvöldum" árið 1937, og
„Vildi ég um Vesturland —“,
kvæði og ferðasaga, árið 1942.
Auk þessara ritstarfa hefir Jón
verið ritstjóri „Vikunnar" und-
anfarin ár, og ritstjóri „Prent-
arans“, tímarits Hins íslenzka
prentarafélags", var hann all-
mörg ár.
í þessari nýju bók eru alls
fjórtán smásögur. Birtast sum-
ar í fyrsta skipti, en aðrar mun
höfundur ýmist hafa birt áður
á prenti eða flutt í útvarp.
J. H.
Auglýsing
ÁFENGISVERZLUN RÍKISINS aðvarar hérmeð viðskiptavini
sína um það, að aðalskrifstofa hennar verður lokuð vegna sum-
arleyfa, dagana 10.—23. júlí.
Á sama tíma verður LYFJAVERZLUN RÍKISINS ásamt iðn-
aðar- og lyfjadeild lokað af sömu ástæðum.
Viðskiptamenn eru hér með góðfúslega aðvaraðir um að haga
kaupum me?ð hliðsjón á þessari hálfsmánaðar lokun.
Áfengisverzlun ríkisins.
Namsæti
fyrir RICMARD BECK, prófcssor.
Þjóðræknisfélag íslendinga heldur samsæti að Hó-
tel Borg miðvikudaginn 5. júlí kl. 7.30 fyrir fulltrúa
Vestur-íslendinga á lýðveldishátíðinni,- Richard Beck,
prófessor.
Aðgöngumiðar fást í Bókaverzlun Sigfúsar Ey-
mundssonar fyrir félagsmenn og aðra velunnara
Vestur-íslendinga.
Höfum enn nægar hirgðir af:
Frosnu kálía- og nautakjöti
Frosnu svínakjöti
Fáum öðru hvoru:
nýslátrað nauta-og kálíakjöt
Frysiihúsið Herðubreið
Sín?i 2678.
Sel jum
niðursoðið kindakjöt
i 1/1 og 1/2 dósum.
Sambandisl.samvinnufélaga
fJtsölnverð
\
á ainerískum vindlingum má ekki vera hærra
en hér segir:
Lucky Strike 20 stk. pakkinn kr. 340
Old Gold 20 — — — 340
Raleigh 20 — — — 340
Camel 20 — — — 340
Pall Mall 20 — — — 4.00
Utan Reykjavíkur og Hafnarfjarðar má útsöluverðið vera 5%
hærra vegna flutningskostnaðar.
Tóbakseinkasala ríkísins
Saltkjötið
þrýtur næstu daga.
Síldveiðiskip og aðrir sem eiga eftir
að kaupa kjöt til sumarsins, |mrfn að
gera það nii jiegar.
Samband ísl. samvinnulélaga
T í M I N IV er víðlesnasta auglýsingablaðið!
Aukaþing
(Framh. af 1. síðu)
útvega slík tæki. Ennfremur
var samþykkt áskorun þess efn-
is, að tollar á slíkum vélum verði
afnumdir.
Til að afstýra misskilningi
skal þess getið, að það var ann-
ar félagsskapur, Kvenréttinda-
félag íslands, sem hélt lands-
fund kvenna, er getið var um í
síðasta blaði.