Tíminn - 21.07.1944, Qupperneq 3
71. blað
TÍMIXN, föstadagma 21. júlí 1944
283
Mínníng Jóhannesar Bjarna-
sonar á Merkigili
Fæddur 19. ágúst 1896 — Dáinn 14. apr. 1944.
Fyrir nokkrum dögum barst
hingað andlátsfregn Jóhannes-
ár bónda aö Merkigili.
Jóhannes var kvistur, sprott-
in af góðri rót. Hann var kom-
inn af góðum skagfirzkum
bændaættum, sonur hjónanna
Bjarna Jóhannessonar og Elínar
Finnbogadóttur, sem bjuggu á
ýmsum jörðum í Tungusveit og
ólst Jóhannes þar upp hjá for-
eldrum sínum.
Árið 1920 keypti Jóhannes
hálfa jörðina Merkigil í Austur-
dal og fluttist. þangað, ásamt
foreldrum sínum. Nokkru síðar
keypti hann Merkigil allt, og
bjó þar til jlauðadags.
Árið 1926 kvæntist Jóhannes
Moniku Helgadóttur frá Reykj-
um í Tungusveit, dugmikilli at-
hafnakonu, og lifir hún mann
sinn. Eignuðust þau saman 8
börn, 7 stúlkur og 1 son, sem
flest e?u ung, aðeins 2 dætur
komnar yfir fermingu, en yngsta
barnið fæddist þeim hjónum nú
skömmu fyrir andlát Jóhannes-
ar. —
Það var sama þráin, sem
leiddi Ingimund, Eirík og Þor-
brand og alla hina, til að leita
í skaut dalsins og festa þar bú,
er benti Jóhannesi beint móti
straumi tíðarandaps í faðm
dalsins uppi við hinn ónumda
og óháða fjallageim. Hann váldi
sér rúm í fremstu víglínu ís-
lenzkra bænda og hélt þar merk-
únu djárflega á lofti.
Merkigil er stór jörð, og höfðu
lengi búið þar ríkir stórbændur
með margt hjúa. En jörðin er
afskekkt og erfið á nútímamæli-
fagna gestum sínum, og halda
þá jafnvel heila daga um há-
sláttinn. Skorti þá hvorki
skemmtan né annan beina.
Jóhannes á Merkigili var þétt-
ur fyrir og þrekmenni. Hann var
starfsgláður og átti heilbrigðan
og hógværan metnað fyrir stétt
sína og stöðu. Hann var maður
yfirlætislaus og fremur hlé-
drægur, prúðmenni, drengur
hinn bezti og óhlutdeilinn um
annarra málefni. Greindur var
hann vel og góður félagsmaöur.
Þótti öllum, sem þekktu, gott
með honum að vera. Hann var
einn þéirra traustu masna, sem
ekki láta bugast, þó að móti
blási, en reynast bezt, þegar
mest reynir á.
Jóhannes á Merkigili sveipaði
að sér kyrtlinum og gekk æðru-
laust til starfa eins og fyrr, þó
að hann kenndi banabroddsins
í brjósti sér, og þegar þrekið
þvarr svo, að ekki varð lengur
staðið, bar hann sig enn sem
hetja, tók hest sinn, kvaddi
stóra hópinn sinn heima og hélt
á fund læknanna, en það varð
árangurslaust.
„Römm er sú taug, er rekka
dregur föðuftúna til“. Afdala-
bóndinn, Jóhannes á Merkigili,
lét fljúga með sig frá Reykjavík
til Skagafjarðar, til þess eins að
fá að loka augunum í hinzta
sinn í faðmi héraðsins, þar sem
vaggan stóð. Hann lézt á Sauð-
árkróki 24. apríl, sama kvöldið
sem flugvélin kom með hann frá
Reykjavík.
Starf bóndans er að jafnaði
hljóðlátt og lætur lítið yfir sér,
kvarða, og þangað verður ekkW’en hann stendur djúpum rót-
ekið nauðsynjum, hvorki á bíl
né hestvagni.
Það er ekki vandalaust að
taka við höfuðbólum og halda í
horfinu með risnu og annað við
gagnólíkar aðstæður. Áður hafði
það ekki þótt' um of, þó 3—5
vinnumenn væru á Merkigili og
álíka lið kvenna, en Jóhannes
bjó þar lengst af einn með konu
sinni, ungum börnum og föður
sínum öldruðum. Þó hafði hann
ekki minni áhöfn á jörðinni en
fyrirrennarar hans, en miklu
árvissari, því að búið á Merki-
gili blómgaðist svo vel, að heita
mátti, að tvö höfuð væru á
hverri skepnu.
Nærri má geta, að slík afrek
verða ekki unnin nema með ó-
venjulegum dugnaði og atorku,
enda voru þau Merkigilshj.ón
orðlögð fyrir hvort tveggja.
Risnu þeirra var við brugðið, og
þó að miklar væru annir, þá gaf
bóndinn sér tíma til þess að
um í því, sem íslenzkt er. Hann
er þéttur fyrir, stefnir beint
fram og lætur ekki stormsveipi
hvikuls aldarfars hrekja sig af
leið. Þannig var Jóhannes á
Merkigili, og slíkum mönnum á
ísland ógoldna þakkarskuld.
Sár harmur er það og mikill
skaði, er slíkir menn verða að
fella niður merkið á miðri leið.
Og mikill er missirinn og sökn-
uðurinn sár, þegar stóri ást
vinahópurinn þinn horfir á eftir
þér yfir um djúpið dulda. Þá er
ekkert til, sem getur svalað
sundurkrömdu mannshjarta
ekkert nema eitt — Kristur,
meistarinn mikli frá Nazaret
sem sagði: „Ég lifi og þér mun-
uð lifa“.
Vertu sæll, samherji og vinur.
Þökk fyrir starfið og þökk fyrir
allt. Hljóðar bænir fylgja þér
yfir á landið ókunna.
Guðm. L. Friðfinnsson.
Minning Ingibjargar Jóns-
dóttur, BlÖndudalshólum
Þá eik í stormi hrynur háa
hamra því beltin skýra frá,
en þegar fjólan fellur bláa,
fallið það enginn heyra má.
Þessar ljóðlínur skáldsins
komu mér í hug, er mér barst
andlátsfregn. Ingibjargar í Hól-
um. Hér var vissulega ekki hin
háreista eik að falla til foldar
með þrumugný. Hér var, í bók-
staflegum skilningi, fjólan bláa
að hníga til jarðar, undur hægt
og hljóðlega, svo sem hún hefði
viljað vekja sem minnsta eftir-
tekt á hvarfi sínu úr hinum lif-
anda gróðri.
En ilmur horfinn innir fyrst
urta hvers byggðin hefir misst.
Okkur, sem þekktum hina
látnu bezt, dylst það nú ei,
hversu umhverfi hennar er að
snauðara við fráfall hennar.
Ingibjörg í Hólum var ein þeirra
hljóðlátu kvepna, sem fyrst og
fremst helga allt líf sitt og starf
heimili sínu og ástvinum, en
breiða þó jafnframt birtu og yl
á veginn, svo að öllum, sem
hann fara, hlýnar í návist
þeirra. Byggðir íslands hafa á
öllum tímum verið auðugar af
slíkum konum og þó að héraðs-
brestur yrði ei ætíð við fráfall
þeirra, þá varð skarðið oft þeim
mun auðara og vandfylltara í
þeirra nánasta umhverfi. Slíkar
konur, sem oft ber lítið á í ys
og umstangi hins fjölþætta at
hafna- og félagslífs, vinna þjóð
sinni meira gagn og eru henni
dýrmætari eign en sumt það
sem á yfirborðinu er metið
meira og sett skör hærra. en
þeirra kyrlátu störf. Við arineld
heimilisins vaknar til lífsiris og
þroskast sérhver góð og göfug
hugsun mannsandans og því
bjartari og Ijreinni, sem logi
þessa elds er, þess heilbrigðari
og traustari verður sá gróður, er
vex við skin hans. Það verður
aðeins sumra hlutskipti í lífinu
að gefa meira en þeir þiggja
en slíkt er mikil hamingja
Þessarar hamingju varð Ingi
björg aðnjótandi í ríkum mæli
Hún var alltaf að gefa. En af
öllum gjöfum hennar þykir okk-
ur vænst um og erum henni
þakklátust fyrir, sólskinið og
hlýjuna, sem hún ávallt bar með
sér, hvar sém hún fór og nú
þegar hún er horfin af sjónar-
sviði þessa lífs, þá er minning
hennar í hugum okkar vafin
bjarma hinna mörgu sólskins
stunda, sem hún gaf okkur. Slíka
minning er gott að geyma.
J. T.
Ntíflan
Ein fegursta og frjósamasta byggð norðanlands, Stíflan,
verður fyrir þungum búsifjum af völdum Fljótárvirkjunar,
sem Siglufjarðarbær er að byggja. Margar jarðir þar munu
missa allar eða mestallar engjar sínar, sem eru mjög frjó-
samar, undir vatn, vegna virkjunarinnár, og einnig verða
þær fyrir ýmsu öðru tjóni. Bændur á þessum jörðum eiga
því um sárt að binda og þótt sjálfsagt megi telja, að þeir
fái tjón sitt bætt fjárhagslega að fullu, mun vafalaust
mörgum þeirra finnast, að jarðir þeirra og byggðarlag verði
fyrir skaða, sem aldrei verður bættur, og er þá ekki átt við
hina fjárhagslegu hlið málsins.
Einn bóndi í Stíflu, Hannes Hannesson á Melbreið, gerir
í eftirfarandi grein nokkra grein fyrri því tjóni, sem þar
hlýzt af virkjuninni, jafnframt og hann lýsir hinu fagra
og frjósama byggðarlagi.
„Inn af Fljótum gengur „Stífl-
an“, fagur dalur og grösugur".
Svo segir Steingrímur Arason í
sinni landafræði. Þessi lýsing
Steingríms er rétt og sönn það
sem hún nær. Ég myndi ekki
heldur sjá ástæðu til að bæta
neinu við hana, ef þessi grösugi
dalur virtist nú ekki vera að
syngja sitt síðasta lag sem einn
frjósamasti’ og fegursti dalur
þessa lands.
Austur-Fljótin er allstór dalur,
sem skerst til suðurs inn milli
hárra fjalla. Þjóðvegurinn frá
Siglufirði og Sauðárkróki til
Eyjafjarðar liggur eftir honum
austanmegin Fljótár. Þegar
komið er um 12 km. fram í dal
þenna, frá Haganesvík, verða
fyrir manni hólar miklir, sem
liggja þvers um dalinn og loka
honum austan megin árinnar.
Framan við þessa hóla er
Stíflan. Upphaflega hétu hól-
ar þessir „Stífla“ (sbr. Land-
námu, bls. 147—8). Síðar færð-
ist svo nafn þetta yfir á dalinn
sjálfan, en hólarnir kallaðir
Stífluhólar.
Dalur þessi, sem kallaður er
Stífla, er ekki stór, ca. 5 km. á
lengd frá fremsta bænum —
Þrasastöðum — út að Stíflhól-
um, þar sem símalínan liggur
yfir þá. Það mun og láta nærri,
að hann sé um 2 km. á breidd,
að meðaltali milli hlíða.
Öll lág-Stíflan er gamall
vatnsbotn. Þarna eru renni-
sléttar flæðiengjar, sem geta
gefið af sér þúsundir hesta af
stör á hverju ári. Upp af slétt-
unni rísa svo hliðarnar, all-
brattar að vísu, en grasi vafðar,
sérstaklega austanmegin.
í dal þessum eru 15 jarðir,
sem allar eru nytjaðar, þó nú
sem stendur séu ekki bæjarhús
nema á 10 þeirra.
Fyrir alllöngu voru taldir vera
þarna yfir 20 bæir, og mun
Stíflan þá hafa verið lang þétt-
býlasti dalur þessa lands. Varla
getur fegurri sýn en þá, að
horfa yfir Stífluna á björtum
sumardegi, af svokallaðri
Bröttubrekku, en svo heitir
brekkan, sem þjóðvegurinn
liggur niður af, fram í Stífluna.
Þar á brekkubrúninni kvað Páll
heitinn Pálsson frá Knappsstöð-
um hina þjóðkunnu vísu, gr
hljóðar svo:
Spretta fíflar Fróni á,
fæst því ríflegt heyið.
Ó, hve líflegt er að sjá
ofan í Stíflu greyið.
Framan dalinn liðast áin
hljóðlát og silfurtær, í ótal
bugðum og krókum. Þegar kem-
ur norður að hólunum, skiptir
áin sér í tvær meginkvíslar.
Fellur önnur til vesturs í stefnu
á Gautastaði og fýllir þar dá-
litla kvos og myndar lítið stöðu-
vatn, Gautastaðavatn. — Stefn-
ir svo til norðausturs og sam-
einast hinni kvíslinni, sem fell-
. air til norðvesturs meðfram hól-
unum og slær sér nokkuð út með
köflum og mynda víkur og voga
inn í rennslétt starengið. Milli
álanna, sem áður getur, eru
tveir hólmar allstórir. Stærri
hólminn heitir Stórihólmi, tangi
hans að austan er vaxinn skógi
og víða í honum eru ljómandi
fallegir runnar.
Það yrði of langt mál ef lýsa
ætti fegurð og gagnsemi Stífl-
unnar eins og hún er, og læt
ég því staðar numið.
Nú vildi ég fara fáeinum orð-
um um þær búsifjar, sem virkj-
un Fljótár veldur Stíflunni sem
slíkri og Holtshrepp sem heild.
Ríkið á fimm jarðir í Stíflu og
verða þær allar fyrir meiri eða
minni skemmdum eða eins og
hér segir:
Húnstaðir missa bæði af tún-
um og engjum. Þeir hafa verið
í eyði að undanförnu„ en samt
nytjaðir.
Knappsstaðir missa nær allar
engjar sínár og mikið af túni.
Þar hefir verið kirkjustaður síð-
an land var kristið, en áður var
þar hof Fljótamanna.
Tunga missir allt engið og
góða sneið af túni. Þessa jörð er
ríkið nýbúið að kaupa, en Siglu-
fjarðarbær mun þá hafa verið
búinn að kaupa allt það land
hennar, sem talið var að færi
undir vatn af völdum virkjun-
arinnar. í Tungu er stórt og
reisulegt steinhús, nýbyggt, og
hlýtur það að hafa verið þetta
hús, sem ríkið hefir verið að
seilast eftir, er það keypti jörð-
ina,'-því að ólíklegt er, að þeir,
sem um kaupin fjölluðu fyrir
þess hönd, hafi ekki vitað um
að engið var selt.
Þorgautsstaðir, sem er gömul
hjáleiga *-og fýlgir nú Tungu,
missir allt engi sitt.
Háakot, «em einnig er gömul
hjáleiga og fylgir nú Tungu,
missir mikið af engi sínu.
Af jörðum í sjálfsábúð verða
þessar fyrir tjóni:
Hringur missir allt engi sitt
og góðan skanka af túni.
Hamar, sem fylgir Hring,
missir mikið land.
Nefstaðir missa góða sneið af
engi.
Melbreið' missir mikið land og
sennilega alla sína mótekju.
Gautastaðir missa mikið aí
engi og stóra sneið af túni.
Svona er nú viðhorfið viðkom-
andi jörðum bænda í Stíflu, og
við þetta bætast svo aðrar
skemmdir á mannvirkjum á
þessu svæði. Símalínuna verðui
að færa á alllöngum kafla. Þjóð-
veginn verður að færa á löngum
kafla, líklega- á annan km.
Mjög er nú deilt um það
hvort þarna geti þrifizt bygg2
eftir að búið verður að fylla
uppistöðulónið. Um það vil ég
ekkert segja, en fari svo, að þa?
þyki ekki svara kostnaði a?
rækta það land, sem eftir verð-
ur, svo að engjátap vinnist upp
er sýnilegt, að Stíflan fer í eyði
en verði það, bíður Holtshreppu]
einnig stórtjón af völdum Fljót-
árvirkjunar. Hvaða skaðabætui
fær hann og hvaðan?
Þess má geta, að um 10 síðast-
liðin ár hafa 33% gjaldendt
Holtshrepps búið í Stíflu og
þessi 33% hafa borið að meðal-
tali 37% af öllum gjöldun
hreppsins. Það er hvorki mein
né minna en fullur þriðjungu:
tekna, sem Holtshreppur missi:
ef svo fer og sem margir ætls
að verði.
Fyrir skemmstu var stofnaður
svokallaður Landgræðslusjóður,
og var þess full þörf og ekki
nema gott eitt um þaö að segja,
en það virðist vera einkenni-
legt öfugstreymi, að á sama
tima er eyðilagt fagurt og frjó-'
samt lánd, sem hið. alskapandi
afl hefir búið manninum í hend-
ur. —
Skípulagsstjdfí
Ríkisstjórnin hefir skipað
Hörð Bjarnason arkitékt, skipu-
lagsstjóra ríkisins. Er þetta nýtt
embætti, sem stofnað er til sam-
kvæmt lögum um skipulagningu
kauptúna og sjávarþorpa.
Skipulagsstjóri mun annast
framkvæmdir skipulagsuþp-
drátta og eftirlit með skipulagi
um allt land. Hann starfar undir
félagsmálaráðuneytinu og skápu-
lagsnefnd.
Samband ísl. samvinnufélaga.
SAMVINNUMENN!
Dragið ekki að brunatryggja innbú yðar.
Biðjið kaupfélag yðar að annast vátryggingu.
O p A L
Rœstiduft
er fyrir nokkru komið á
markaðinn og . hefir þegar
hlotið hið mesta lofsorð, því
vel er til þess vandað á allan
hátt. Opal ræstiduft hefir
alla þá kosti, er ræstiduft
þarf að hafa, — það hreinsar
án þess aö rispa, er mjög
drjúgt, og er nothæft á allar
tegundir búsáhalda og eld-
húsáhalda.
\otið
O P A JL rœstidufi
Athygli
allra viðskíptavina vorra
er liér með vakiu á því, að vér iiöfum
lagt niður nafnið Byggingafélagið h/f,
en tekið í þess stað upp nafnið
Skrifstofa vor er á Hverfisgötu 117.
®ygg*DgaféIagíð Brú h.f.
Sími 3807.
Raftækjavinnustoían Seliossi
frainkvæmir allskonar rafvirkjastörfi.
TÍMINN er víðlesnasta auglýsingablaðið!