Tíminn - 21.07.1944, Qupperneq 4
284
TÍ>I1\\. fösiMtlagiim 21. júlí 1944
71. blað
Sextugur:
Fclix Guðmimdssoíi
Felix Guðmundsson kirkju-
garðsvörður í Reykjavík varð
sextugur 3. þ. m.
Af störfum sinum að marg-
háttuðum félags- og umbóta-
málum er hann löngu orðinn
maður landskunnur. Um langt
skeið var hann meðal forystu-
manna Alþýðuflokksins, mikill
bindindis- og bannfrömuðiír,
forgöngumaður um alþýðutrygg-
ingar og áhugamaður um sam-
vinnumál. Hefir hann löngum
gegnt fjölmörgum trúnaðar-
störfum vegna þessara mála og
annara, og jafnan reynst lið-
tækur í bezta lagi, en auk þess
er hann drengur góður og því
vinsæll og vel metinn.
Útigföngfulé
Föstudaginn 7. júlí s. 1. 'fór
fram vorsmölun á afrétti Hruna-
mannahrepps í Árnessýslu.
Fundust þá m. a. 2 ær frá Sveini
Sveinssyni bónda í Efra-Lang-
holti, Hrunamannahreppi. Ær
þessar höfðu verið reknar á af-
rétt vorið 1943, með öðru heima-
fé, og voru þær þá báðar með
lombum. Síðastl. haust vantaði
þær báðar af fjalli, en lambið
undan annari kom í fyrstu
haustsmölun.
Nú komu þær báðar geldar og
vel útlítandi, en hafa auðsjá-
anlega lifað við allþröngan, kost
í vetur. Höfðu þær týnt mest-
allri ull. Líklegt má telja, að
lambið, sem átti að vera með
annari ánni, hafi farizt úr harð-
rétti í vetur, því land er frem-
ur kostarýrt á þeim slóðum, er
kindurnar fundust.
Ærnar voru, önnur tveggja og
hin þriggja vetra á þessu vori.
Ekki er kunnugt um að fé
hafi áður lifað af vetur á
Hrunamannaafrétti.
By ggíngar kosf naður
Teiknistofa landbúnaðarins
hefir, með hliðsjón af bygging-
arkostnaði húsa þeirra, sem
reist hafa verið á vegum hennar
á tímabilinu 1. maí 1943 — 1. maí
1944, talið, að byggingarkostn-
aður íbúðarhúsa úr steinsteypu,
að stærð 7—8 metrar, ein hæð
og kjallari, með þrem herbergj-
um, eldhúsi og forstofu á hæð-
iraii, en snyrtiherbergi og
geymslum í kjallara, hafi verið
á þessu tímabili 40.580 kr. En
það 23% hækkun frá árinu áð-
ur, en tæplega 306% hækkun
frá 1938—39. — Eftirfarandi yf-
irlit sýnir hækkun byggingar-
kostnaðarins árlega síðan fyrir
stríð:
1938— 39 .... 10.000 kr.
1939— 40 .... 12.500 —
»1941—42 .... 17.500 —
1941— 42 .... 19.975 —
1942— 43 .... 32.875 —
1943— 44 .... 40.580 —
Samkvæmt þessu hefir bygg-
ingarkostnaðurinn fjórfaldast
síöan fyrir st'ríð.
Nýr vélbátur
Skipasmíðastöð Hafnarfjarð-
ar hefir nýlega lokið smíði á 43
smál. vélbát, sem nefndist
Morgunstjarnan. í bátnum er
171 ha. vél og er frágangur all-
ur vandaður.
Eigendur bátsins er nýstofnað
hlutafélag í Hafnarfirði, er
nefnist Hafstjarnan h. f. Bátur-
inn er farinn á sildveiðar.
tJ R BÆIVIIM
Dr. Richard Beck
er nýkominn til bæjarins úr ferða-
lagi um Austurland og Vesturland.
Hann flutti ræöu á Hallormsstaöa-
skemmtuninni 9. þ. m. og fór síðan til
Reyðarfjaröar, þar sem hanrrer fædd-
ur og uppalinn. Hann flutti ræðu á
samkomu, sem var haldin fyrir hann
á Reyöarfirði, og einnig á samkomu
ungmennafélagsins á Eskifirði. Þegar
hann kom úr Austurlandsförinni, fór
hann til ísafjarðar í boði bæjarstjórn-
arinnar þar. Þar flutti hann ræðu i
samsæti, sem honum var haldið, og
eins á Núpi í Dýrafirði, þar sem hald-
in var samkoma, er hann var þar. Dr.
Beck rómar mjög ferðalag þetta, en
hitt er líka víst, að þeir, sem nutu
kynningar við hann, hafa líka rómað
komu hans og talið hann hinn mesta
aufúsugest. Koma hans hingað mun
mjög hjálpa til að styrkja böndin
milli íslendinga austan og vestan
hafsins.
Eldsvoði.
Laust eftir miðnætti aðfaranótt s. 1.
miðvikudags var slökkviliðið kallað að
Laugavegi 53. Hafði þar komið upp
eldur í einlyftri viðbyggingu við húsið.
sem í voru fjórar íbúðir. Var
eldurinn í nyrstu íbúð viðbygging-
arinnar. Slökkviliðinu tókst að verja
frekari útbreiðslu eldsins, en hins veg-
ar urðu mjög miklar skemmdir á íbúð
þeirri, sem eldurinn kom upp í. Þar bjó
maður að nafni Jóhann Sigurðsson
með' konu og einu barni. Brenndist
Jóhann svo að flytja varð hann á
sjúkrahús. Öll búslóð fjölskyldunnar
eyðilagðist. Ekki er enn vitað um upp-
tök eldsins.
Fimleikaflokkar
úr Ármanni eru nýlega komnir úr
hálfsmánaöar ferðalagi am Vestfirði.
Þeir sýndu þar fimleika á 13 stöðum,
en alls höfðu þeir 15 sýningar. Um
5600 manns sáu sýningarnar og má af
því marka, að aðsóknin hefi’: verið
mikil. FimleikafóJkið rómar m.ióg þær
viðtökur, sem það fékk yfirleitt í
ferðinni.
Valsbíllinn.
Fyrir nokkrum dögum fór fram af-
hending happdrættisbíls Vals. Hand-
hafar miðans nr. 14449, sem vinning-
urinn kom upp á, voru systkinin Jó-
hanna og Hafsteinn Ziemsen, Bjarkar-
götu 6. Eru það börn Knud Ziemsen,
íyrrverandi borgarstjóra.
Skýrsla LandsbanKáns
fyrir 1943 er nýlega komin út. Er þar
að finna mikinn fróðleik um. atvinnu-
vegi og fjárhagsmál landsmanna á því
ári. ■
Tímarit Verkfræðingafélags
íslands,
1. hefti þessa árgangs, er nýlega kom-
ið út. Aðalgrein þess er eftir Gísla
Halldórsson verkfræðing og fjallar um
jarðgufu til rafmagns og hitanotkunar.
Félag Vestur-íslendinga
heldur fund í Oddfellowhúsinu 1
kvöld kl. 8,30. Heiðursgestur fundarins
verður prófessor Richard Beck. Vestur-
íslendingar, sem hér eru staddir eru
sérstaklega boðnir. Aðgöngumiða sé
vitjað í verzlunina Kjöt og Fiskur,
Baídursgötu. *
Hjónaband.
Nýlega voru gefin saman í hjóna-
band í Siglufirði ungfrú Sigurbjörg
Guðmundsdóttir fulltrúa Sveinssonar
á Sauðárkróki og Björgvin Bjarnason
lögfræðingur á Siglufirði.
Trúlofun.
'Nýlega hafa opinberað trúlofun sína
í Siglufirði ungfrú Gyða Jóhannsdóttir
og Sigurður Jónsson gjaldkeri hjá Síld-
arverksmiðjum ríkisins.
Tvíhöfðaður hænuungi.
Það sjaldgæfa fyrirbrigði kom, ný-
lega fyrir í hænsnabúi Valgeirs Svein-
björnssonar, Litla-Landi við Breið-
holtsveg, að tvíhöfðaður hænuungi
kom úr eggi. Unginn var að öðru leyti
rétt skapaður. Höfuðin voru gróin sam-
an í miðju. Unginn hafði fjögur augu
og tvö nef. Hann var dauður, er hann
var tekinn úr egginu. Hann er nú kom-
inn á Náttúrugripasafnið.
Leiðrétting.
í grein um „Fjallið og drauminn"
eftir Ólaf Jóh. Sigurðsson í næst-
síðasta blaði eru nokkrar prentvillur.
Er sú meinlegust, þar sem talið er að
mergð fágætra orða geri stílinn nokkuð
„hrökköttan" — en átti að vera hnökr-
óttann.
Skólamálanefndín
Milliþinganefnd í skólamál-
um heldur nú fundi hvern virk-
an dag, og mun svo næstu vikur.
Auk þess skipta nefndarmenn
með sér störfum og rannsaka
nú þau svör, er nefndinni hafa
borizt varðandi hina ýmsu skóla,
svo sem t. d. barnaskóla, gagn-
fræðaskóla, héraðsskóla og
menntaskóla. Svör þessi eru enn
mikils til of fá, og telur nefndin
það miður farið, ef ekki verður
úr því bætt.
Á víðavangi.
(Framli. af 1. síðu)
höll, sem var líka mesta nauð-
synjamál, og endurbætur þar
margfallt meira aðkallandi en
viðkomandi mjólkursölunni.
Hvernig standa svo þessi mál:
Mj ólkursamsalan hóf st strax
handa um byggingu mjólkur-
stöðvarinnar, þegar lóðin var
fengin, hið mikla stöðvarhús
rís nú hátt við Suðurlandsbraut
óg vélarnar eru löngu pantaðar.
En fiskhöllin er ókomin enn og
örlar hvergi á framkvæmdum
í því máli.
Ætla að Reykvíkingum þyki
ekki þetta lærdómsríkt um það,
að alveg eins og það er betra áð
hafa búskapinn í höndum
bænda en Bjarna og Sigfúsar,
sé líka betra að fela þeim
mjólkursöluna en Bjarna og
Sigfúsi?
GÓÐA MJÓLKIN Á LÝÐ-
VELDISHÁTÍÐINNI.
Þessar hugleiðingar um
mjólkurskrif Sigfús&r þykir rétt
að enda með lítilli frásögn frá
lýðveldishátíðinni á Þingvöll-
um. í veitingatjöldunum fengu
allmargir gestirnir sér mjólk, og
viðkvæðið hjá ýmsum þeirra
var: Þetta er góð mjólk, reglu-
leg sveitamjólk. Það er nokkur
munur á henni og samsullinu í
Reykjavík.
Mjólkin var venjuleg samsölu-
mjólk frá Reykjavík.
Þessir litlu viðburðir á lýð-
veldishátíðinni á Þingvöllum eru
alveg nægilegt svar við öllum
skætingi Sigfúsar um Samsölu-
mjólkina. En þeir sýna jafn-
framt skemmdaráhrif hins ó-
svífna blaðaáróðurs.
Erlent yfirlit
(Framh. af 1. síðu)
beinist jafnan í rétta farvegi.
Ríkið fær raunverulega vald yfir
því, hvar og hvernig vinnuafl-
ið er hagnýtt. Það getur bann-
að ný atvinnufyrirtæki á stöð-
um, þar sem atvinna er nóg og
ekki er talið heppilegt að fólkinu
fjölgi, og fyrirskipað, að þau
skuli reist þar, sem atvinnu
vantar og skilyrði eru til fólks-
fjölgunar. Það getur látið
skammta ýmsar nauðsynjavörur
og bannað framleiðslu luxus-
vara. Þannig mætti lengi telja.
í tillögunum er mjög ákveðið
tekið fram, að skattar muni
halda áfram að vera háir. Þá er
tekið fram, að ríkið verði að
veita þeim atvinnugreinum, sem
séu álitnar þjóðinni nauðsynleg-
astar, sérstakan stuðning, og
eru þar einkum nefndar skipa-
smíðat, kolavinnsla og landbún-
aður. Sú stefna á vaxandi fylgi
i Bretlandi, að landbúnaðurinn
verði viðurkenndur sem einn
þýðingarmesti atvinnuvegurinn,
en honum var um skeið lítill
sómi sýndur, meðan ýmsir út-
flutningsatvinnuvegir voru í
uppgangi. Reynzla stríðsáranna
hefir sýnt Bretum, hve þýðing-
armikill landbúnaðurinn er.
Hér yrði oflangt mál að’rekja
efni hvitu bókarinnar til nokk-
urrar hlítar. Ráðherrar úr báð-
um aðalflokkum þingsins hafa
mælt með henni, m. a. Bevin og
Anderson. Yfirleitt virðist hún
fá heldur góða blaðadóma. Með-
al brezkra stjórnmálamanna
virðist sú skoðun vaxandi, að
framtíð Bretlands sem stórveld-
is byggist mjög á því, að það
geti orðið forustuland í félags-
málum. Þeir telja, að Bretar
geti orðið slík forustuþjóð, ef
beir geta náð jafngóðum ár-
angri í fjárhagslegum og hag-
skipulagslegum efnum undir
lýðveldisstjórn og náðst hefir
undir einræðisstjórn. Hvíta bók-
in miðar í þá átt, þótt vafalaust
þarfnist þær tillögur, sem þar
eru, ýmsra endurbóta.
Nokkurri gagnrýni hefir
hvíta bókin sætt. Ýmsir íhalds-
menn telja hana ganga of langt
inri á starfssvið einkaframtaks-
ins, en. róttækir jafnaðarmenn
telja hana aftúr á móti ekki
ganga nógu langt. Fyrir jafnað-
armönnum vakir meiri þjóðnýt-
ing, m. a. að bankarnir verði
ríkiseign.
GÆFAN
fylgir trúlofunarhringunum
frá
SIGURÞÓR, HAFNARSTR. 4.
Sent mót póstkröfu.
Sendið nákvæmt mál.
TJARNARBÍÓ
Mínnisstæð
nótt
(A Night to Remember) *
Bráðskemmtileg gaman-
og lögreglumynd.
LORETTA YOUNG,
BRIAN AHERNE.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
-GAMLA :
Flugskytta
(Aerial Gunner)
RICHARD ARLEN,
CHESTER MORRIS,
LITA WARD.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Börn innan 12 ára fá
ekki aðgang.
► NÝJA rló-
í glauml lífsins.
(Footligt Serenada)
Aðalhlutverk:
BETTY GRABLE,
VICTOR MATURE,
JOHN PAYNE.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
SHERLOCK HOLMES
OG ÓGNARRÖDDIN.
Spennandi leynilögr.m.
BASIL RATHBONE og
NIGEL BRUCE.
Bönnuð yngri en 12 ára.
Sýnd kl. 5 og 7.
lbúð
2—3 lierhergi og eld
liiís óskast iui þegar
eða síðar.
Upplýsiiigar í skrif-
stofu prentsm. Eddu.
SHIPAIITCERO
mr
^i:n
99
Súðin**
vestur og norður í byrjun næstu
viku. Tekið á móti flutningi til
Skagafjarðar-, Húnaflóa- og
Strandahafna í dag.
Pantaðir farseðlar óskast sótt-
ir fyrir hádegi á mánudag.
Takið þessa Iiók með
h sumarfríið.
Stefán Jóhann
(Framh. af 1. slðu)
1934, átt sæti í utanrikismála-
nefnd, sambandslaganefndinni,
menntamálaráði og mörgum
fleirum nefndum.
Stefán er maður vel starfs-
hæfur. Hann hefir átt mikinn
þátt í undirbúningi flestra
þeirra umbótamála, sem Alþýðu-
flokkurinn hefir komið fram,
(verkamannabústöðum, trygg-
ingarlögunum, o. s. frv.). Hann
er málafylgjumaður góður og"
fastur fyrir, þegar því er að
skipta. Árásir andstæðinganna
og þó sérstaklega kommúnista,
hafa mætt meira á honum
en öðrum foringjum Alþýðu-
flokksins síðan Jón Baldvinsson
leið. En Stefán hefir mjög á-
kveðið tekið upp merki Jóns,
lýðræðisjafnaðarstefnuna, og
varað verkamenn við byltingar-
brölti og æfintýrapólitík. Stjórn-
málabarátta hans hefir mótazt
af því, að hægt sé að koma hug-
sjón jafnaðarstefnunnar fram
á umbóta- og lýðræðisgrund-
velli og slík þróun sé betri og ör-
uggari leið en bylting. Um hitt
má svo vitanlega deila, hvort
Stefáni og flokki hans hafi allt-
af- tekizt að vinna í samræmi
við slíka umbótastefnu, og hefir
hann oft verið gagnrýndur í því
sambandi í þessu blaði. En þrátt
fyrir það ber samt réttilega að
meta, að Stefán hefir viljað
starfa á grundvelli lýðræðis-
jafnaðarstefnunnar og fyrir það
hefir hann verið meira ofsóttur
af kommúnistum en nokkur
annar hérlendra manna.
Stefán er giftur Helgu, dóttur
Björns Ólafssonar skipstjóra í
Mýrarhúsum. Þau eiga þrjá
sonu.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinsemd við
útför mannsins míns
ións Jóiissouar
á Loftsstöðum.
Fyrir mína liönd og annara vandamanna.
RAGNHILDUR GÍSLADÓTTIR.
Tílkynníng
Samkvæmt 86. gr. lögreglusamþykktar Reykjavíkur
er óheimilt að skilja eftir eða geyma á almannafæri
muni, er valda óþrifnaði, tálmunum eða óprýði.
Nú verður hafin hreinsun og brottflutningur slíkra
muna af bæjarsvæðinu. Flutningurinn fer fram á
ábyrgð og kostnað eiganda, en öllu því, sem lögreglan
telur lítið verðmæti í, verður fleygt.
Hreinsunin mun fýrst fara fram á svæðinu milli
Lækjargötu og Garðastrætis annars vegar, en Skot-
húsvegar og Tryggvagötu . hins vegar, og verða þá
fluttir af því svæði slíkir munir, er að ofan getur,
hafi þeim eigi verið ráðstafað af eigendunum fyrir 24.
júlí n. k.
Lögreglustjórinn í Reykjavík, 19. júlí 1944.
Agnar Koloed-Hansen
Fréltlr frá L S. f.
Þessi ungmenna- og íþrótta-
sambönd hafa gengið í í. S. í.:
U. M. S. Borgarfjarðar er geng-
ið í sambandið, en í því eru
þessi sex ungmennafélög: Baula
félagatala 40, Björn Hítdæla-
kappi félagatala 40, Borg félaga-
tala 30, Brúin félagatala 45,
Dagrenning félagatala 54 og
Egill Skallagrímsson'félagatala
47. Áður voru í í. S. í. félög í
Borgarfirði, en alls eru félögin
11 með 624 félagsmenn. Formað-
ur er Jón Björnsson frá Deild-
artungu.
U. M. S. Skagafjarðar hefir
gengið í sambandið. í því eru
8 félög með 811 félagsmenn.
■Formaður er Guðjón Ingimund-
arson.
Nú eru sambandsfélög í. S. í.
175 að tölu með yfir 20 þúsund
félagsmenn.
Göngulag í. S. f.: Sambandinu
hefir borizst göngulag frá Árna
Björnssyni tónskáldi, sem er til-
einkað sambandinu.
Glímubók: Stjórn í. S. í. hefir
ákveðið að gefa út Glímubók
í. S. í. Hennar er orðin mjög
þörf með hinum vaxandi glímu-
áhuga um land allt.
Árbók frjáls-
íprótiamanna
Árbók frjálsíþróttamanna
1944 er nýkomin-út. Er þetta í
annað sinn, sem þessi árbók
kemur ár. Hefir árbókin að
geyma margvíslegan fróðleik og
upplýsingar, sem íþróttamönn-
um í frjálsum íþróttum og unn-
endum þeirra íþróttagreina er
gagnlegt að kunna skil á.
Efni árbókarinnar er m. a.,
sem hér segirr Upphaf frjálsra
íþrótta á íslandi II. (Ólafu'r
Sveinsson), íþróttamótin í
Reykjavík 1943, íþróttamótin
Strandíötin
eru komin aftur.
H. Toft
Skólavörðustíg 5. Sími 1035.
úti á landi, Afrekaskrá íslands
1943, Rabb um árangurinn 1943
(Sig. ÓL), Afrek íslendinga er-
lendis (J. B.). Merk hlaup:
Skólahlaupið, Afreksmenn II.:
Guðjón Júlíusson, íslenzk met,
íslenzk drengjamet, Norður-
landamet, Heimsmet, minning-
arorð um látna íþróttamenn o.
m. fl.
• Ritstjórar árbókarinnar eru
þeir Jóhann Bernhard og Brynj-
ólfur Ingólfsson.
Karfoflumat
Nýlega er kominn út leiðar-
vísir um flokkun og mat kar-
taflna, gefinn út af verðlags-
og matsnefnd garðávaxta., Hefir
Ingólfur Davíðsson samið hann
að tilhlutun nefndarinar. Mat á
kartöflum átti að hefjast í fyrra-
haust, en var þá frestað um eitt
ár, vegna hinnar lélegu upp-
skeru. Leiðarvísirinn mun send-
ur sem flestum kartöflufram-
leiðendum og eru þeir hvattir til
að fara eftir þeim leiðbeining-
um, sem þar eru gefnar, ekki
sízt um val útsæðis.
í verðlags- og matsnefnd
garðávaxta eiga sæti Stein-
grímur Steinþórsson, Kristjón
Kristjónsson og Þórarinn Kr.
Guðmundsson.
Vinnið otuUega fyrir
Timann.