Tíminn - 04.05.1945, Blaðsíða 4

Tíminn - 04.05.1945, Blaðsíða 4
4 TÍMIM, ftistudagiim 4. mai 1945 33. blað Halldór Krístjánsson: Um ungmennafélög og viðhorf þeirra til stjórnmálanna Tíminn birti 6. marz s. 1. grein, sem heitir afneitun ungmenna- félaganna, og er eftir mann að nafni Jónas Baldursson. Um þá grein er margt gott að segja, sem von er, því að höfundurinn er myndarlegur ungmennafé- lagi. Mér virðist þó, að einhver misskilningur hafi slæðst með í greinina, því að hún er byggð á útvarpserindi Gests Andrés- sonar á Hálsi 2. des. s. 1. eða til- efni, sem það á að hafa gefið, þar sem Gestur hafi varað ung- mennafélaga við því að blanda þjóðmálum inn í starfsemi sína. Segr Jónas, að sú aðvörun hafi bergmálað um gervöll ung- mennafélög landsins síðustu ár- in, endurtekin með sóttheitum ákafa rökvana ótta. Ég veit ef til vill ekki nákvæmlega hvað það er, sem fyrir Jónasi Bald- urssyni vakir, en mig langar til þess, fyrst farið er að ræða þessi I Tímanum, að segja nokkur orð um viðhorf ungmennafélaga til þjóðmála og stjórnmála eins og það kemur mér fyrir sjónir. Hvort ég ræði málið af sóttheit- um ákafa, kann ég ekki að dæma, enda ekki vanur að mæla blóðhitann stöðugt, en hitt vona ég. að meira beri hi^mér á rök- semdum en ótta. En það dæma nú lesendurnir. Gestur Andrésson sagði í er- indi sínu, að ungmennafélögin væru ópólitísk og fór um það nokkrum orðum og taldi til kosta. Ég skal ekki segja, að ég vilji gera allt, sem hann sagði, að mínum orðum, en ályktanir hans og aðvaranir, ef um aðvar- anir er að ræða, voru tvímæla- laust réttar. Enginn félagsskap- ur, sem starfar víðtækt, kemst hjá því að láta þjóðmál varða sig, en þegar sagt er, að ung- mennafélög séu ópólitísk, er átt við það, að þau blandi sér ekki í dægurdeilur stjórnmálaflokka, gangi ekki neinum sérstökum flokki á hönd og meti menn ekki eftir þvi, hvaða flokk þeir fylla. Þetta er nauðsyn og fyrir því skal ég nú færa nokkur rök. Við Jónas Baldursson erum báðir Framsóknarmenn og höf- um m. a. komið á þrjú síðustu flokksþing Framsóknarmanna, fylgzt með gangi mála þar og gerð samþykkta, þó að okkur hafi líkað úrslit mála dálítið misjafnt eins og gengur. Jafn- framt höfum við báðir starfað í ungmennafél. í sveitum okkar okkar og unnið okkur þar nokk- urra tiltrú. Nú erum við báðir ákveðnir stjórnarandstæðingar og kemur ágætlega vel saman um það, að stefna ríkisstjórnar- innar sé hættuleg sveitalífi og sveitamenningu og að vissu leyti fjandsamleg ýmsum þeim hug- sjónum, sem ungmennafélögun- um hafa verið kærar og ná- tengdar, svo sem landgræðslu- hugsjóninni. Þrátt fyrir þetta megum við ekki álykta, að ung- mennafélögin hljóti að eiga að ganga Framsóknarflokknum á hönd og þeir, sem ekki séu með okkur í stjórnarandstöðu séu ó- hæfir ungmennafélagar. Það eru svo mörg þjóðmál önnur, sem sameina okkur og þurfa okkar allra við, að við megum ekki gleyma þeim. Ég er Jónasi Baldurssyni fylli- lega sammála um það sögulega samband, sem hann telur vera á milli þeirrar vakningar, sem átti sér stað með stofnun ung- mennafélaganna, þróun sam- vinnuhreyfingarinnar og stofn- un Framsóknarflokksins og þjóðmálastarfsemi hans framan af. Þetta eru óumdeilanleg sögu- leg sannindi. En þetta segir ekki neitt til um það, hvaða afstöðu við eigum að taka í dag. Við Jónas Baldursson munum hvor- ugur fylgja Framsóknarflokkn- því að hann er okkur vel að fyrir mörgum árum, heldur af um vegna þess, sem hann var skapi eins og hann er nú. Því megum við ekki heldur ætlast til þess að margra ára gamlir atburðir bindi samvizku nokk- urs manns og ráði afstöðu hans. Viðhorfin breytast daglega eða svo að segja það. Ný vandamál mæta og því er það nútíðin, sem skipar mönnum í flokka. Enginn veit, hvað framtíðin geymir.Sag- an geymir mörg dæmi þess, að menn sem virtust vera bundnir sterkum böndum við flokk sinn og áhrifaríkir þar, hafa orðið viðskila við hann og er þá oft um það deilt hvorir betur fylgi hinni gömlu „sönnu“ stefnu. Þannig er gangur lífsins um all- an heim og því geta ekki víðtækar æskulýðshreyfingar bundið sig við einstaka áhrifa- menn. Eitt af þeim þjóðmálum, sem ungmennafélögin hafa lagt lið, er bindindismálið. Það er stór- mál, sem varðar þjóðina alla, og skal hér fátt rakið af allri þeirri óhamingju og böli og háðung, sem áfengisneyzlu fylgir. Fyrir utan blóðuga fjársóun er það víst að áfengisnautnin á drjúg- an hluta í öllu því versta og aumasta, sem þjóðfélagið á til. Hún er landplága og þjóðarböl. Enginn stjórnmálaflokkur hefir í alvöru fylgt fram jákvæðri stefnu í baráttu við áfengið, svo langt sem ég man, þó að stund- um hafi í orði verið látið að vilj a áhugasamra bindindis- manna um samþykktir og yfir- lýsingar. Ég er líka sannfærður um það að lagfæringin verður að koma fyrst og fremst frá al- þýðu landsins og hennar sam- tökum. Við eigum leiðinlega mörg dæmi um menn, sem voru bindindismenn af * hugsjón heima í héraði meðan þeir lifðu og hrærðust í samfélagi við heil- brigðan smekk hins bezta af al- þýðufólkinu, en gugnuðu siðan fyrir fínni tízku drykkjuveizl- anna í heldrimannalífi höfuð- staðarins. Hefir oft farið svo að slíkir hafa hneigzt til þess að drekka frá sér vit og virðuleik við ýmiskonar tækifæri og þarf ekki meir að fjölyrða um það. En sú sára reynsla sannar gagn- kvæma nauðsyn þess að treysta félagsbönd bindindismannanna. Baráttan við áfengið er ekki flokksmál. Ég undrast jafnan viðhorf þeirra manna, sem ekki eru sljóir fyrir áfengisbölinu, en hæla þó og halda.fram svokall- aðri hófdrykkju og taka sjálfir þátt í henni og smita þannig út frá sér þeirra ólyfjan, sem mestu böli veldur. Hins vegar býður mér við hinum, sem tala um löngun sína til að útrýma drykkjuskap, en sitja sig þó sjaldnast úr færi með að drekka sjálfir og kenna öðrum að drekka. Slíkir hafa á sér yfir- skin guðhræðslunnar en af- neita krafti hennar og á þar við hið forna postullega heilræði: Forðastu þvílíka. Hvar í flokki, sem bindindis- menn standa, hafa þeir þá sögu að segja, að þeir treysta ýmsum mönnum úr andstöðuflokkunum betur en mörgum flokksbræðra sinna. Þar á ég t. d. samleið með Vilmundi landlækni, Sigurjóni Ólafssyni, Pétri Ottesen, Sigfúsi Sigurhjartarsyni og Árna Óla, svo að nefndir séu nokkrir menn sem ekki eru pólitískir sam- herjar. Svo skulum við víkja aftur að ræktunarmálunum. Einn höfuð- þáttur landgræðslustarfsins er sandgræðslan. Forvígismaður sandgræðslu á íslandi er Gunn- laugur Kristmundsson, sem hef- ir gert hana að lífsstarfi sínu. Ungur fór hann utan að sækja sér raunhæfa menntun til und- irbúnings starfinu og síðan hef- ir hann verið óþreytandi að kenna íslendiingum að meta sandgræðslustarfið. Hann hefir kennt þeim aðferðir og vinnu- brögð, sem að gagni koma, grætt upp blásna auðn og sýnt þannig, hvað hægt er að gera. Á þenna hátt hefiir hann lagt raunhæf- an grundvöll fyrir landgræðslu- hugsjónir U M. F. Dæmi hans og starf er leiðarljós allra U.M.F. í landgræðslumálunum, þar sem nokkur uppblástur er. Þó hygg ég að Gunnlaugur Kristmunds- son hafi aldrei verið í Fram- sóknarflokknum með okkur Jónasi Baldurssyni. Ég tel hon- um það ekki til gildis, en þetta gat hann samt. Hitt er svo ann- að mál, að Framsóknarflokkur- inn dugar hugsjónum Gunn- laugs bezt allra flokka. Hér vil ég svo nafna annan mann, sem mjög hefir stutt og styður ræktun íslands og hefir með rannsóknum sínum unnið ómetanlegt starf fyrir land- græðsluhugsjónir U. M. F. Sá maður er Klemens Kristjánsson á Sámsstöðum. Hann hefir leitt það í ljós, að kornrækt á að verða fastur í liður í jarðrækt á íslandi og þannig er hægt að fá innlent kjarnfóður fyrir búfé landsmanna og að ekki þarf meira að hafa fyrir ræktun þess en títt er víðsvegar í akuryrkju- löndum úti í heimi. Þannig hefir hann m. a. gengið af hrópyrðum manna eins og Sigurðar Péturs- sonar gerlafræðings, dauðum fyrir fram. Hvað þýðir Sigurði að tala um hnattstöður íslands og gnægðir Dana af kolhydröt- um og álykta svo að hér á landi komi ekki svínarækt til greina af þeim sökum, þegar Klemens hefir árum saman framleitt kolhydrötin með árangri, sem er sambærilegur við ræktun Dana? Hingað til hefir reyndin þótt ólýgnust og því taka venju- legir menn tilraunir fram yfir hvatvlslegar ályktanir af hnatt- stöðu og meðalhita. Og hvað þýðir Sigurði Péturssyni að tala um það að okkur vanti gott hey móts við aðrar þjóðir, þegar Klemens er búinn að sanna það með tilraunum að enda þótt ís- lenzkt vallarsveifgras hafi gefið 18% minna uppskerumagn en kanadiskt, sé meltanleg eggja- hvíta í því íslenzka 52% meiri. Ég hélt nú reyndar, að það væri kennt í flestum barnaskólum, að ljósið og birtan væri einhvers virði fyrir jurtagróðurinn, auk þess sem flest börn ættu að sjá það, en líklega leggur gerla- fræðin minni áherzlu á þetta, enda vitanlegt að mesti sægur gerla þróast vel í myrkri. En björtu næturnar á íslandi gera það að verkum, að gróður jarö- arinnar er hér kjarnmeiri en í suðlægari hnattbeltum og því er hnattstaða fslands ekki að öllu leyti óhagstæð, þótt norðlæg sé! En það er einmitt tilraunir og og blákaldar staðreyndir þeirra, sem eru raunhæf rök í þessum málum. Því er það, að þegar hvatvísir hugsvifamenn eins og Sigurður Pétursson belgja sig upp í nafni lærdóms og vísinda, þá missa sleggjudómar þeirra marks og falla máttlausir niður í ljósi reynslunnar eins og sótt- kveikjur veslast upp og deyja í sólargeisla. Þannig hefir Kle- mens á Sámsstöðum gefið rækt- unarhugsjónum U.M.F vísinda- legan og raunhæfan grundvöll til að byggja lífsstarf á. Ég er ekki fróður um stjórnmálaaf- stöðu þessa ágæta manns, en þó hygg ég að hann hafi um tíma verið í einum andstöðuflokki Framsóknarmanna. Ég hefi hér fjölyrt dálítið um þessa tvo leiðtoga af því að ég nefndi þá til dæmis, og svipaðar sögur er að segja af ótal sviðum öðrum. í öllum flokkum eru menn, sem vinna svo vel að menningarmálum, að víðtækur menningarfélagsskapur æsk- unnar hefir ekki ráð á að af- neita þeim og hugsjónum þeirra. Ég hygg, að hvergi í lýðfrjáls- um löndum séu allir ágætis- menn á sviði félagsmálanna í einum stjórnmálaflokki. Og meðan svo er geta ekki félög eins og ungmennafélög íslands gengið nokkrum flokki á hönd. Nú skulum við hugsa okkur mann, sem hefir að ýmsu leyti svipuð sjónarmið og Sigurður Pétursson en er laus við hroka og uppskafningshátt og hugsar alvarlega. Honum skilst, að þssar þúsundir, sem eru hér á landi, geti allar lifað í einni borg af nokkrum nýtízkutogurum, fáeinum stórum verksmiðjum og því, sem í kringum þetta er. Ekki þurfi meiri landbúnað en fáeinar kýr til þess að fá ný- mjólkursopa fyrir smábörnin, ef ekki væri gerlegt að fljúga með hana frá Ameríku. Slíkur mað- ur hefði vitanlega engan áhuga fyrir ræktun landsins og fynd- ist að það mætti blása upp. Ég væri þeim manni vitanlega mjög ósammála eins og þeir vita allir, sem eitthvað þekkja til mín. Ég vil gera málstað lands- ins og útskaganna að minum málstað. En þrátt fyrir það gæti ég unnið að mörgu með þessum hugsaða manni. Hann kynni að vera áhugasamur áhrifamaður um bindindismál. Hann gæti vel verið hvatamaður um drengilegt íþróttalíf og heilbrigðar skemmt anir. Þannig gæti hann yfirleitt verið hollur og æskilegur félagi. Skyldi ég þá ekki geta unnið með honum að þessum sameig- inlegu hugðarmálum, sem sann- arlega þurfa liðsinnis við? Ætti það að hindra samstarf, þar sem mannfélagið þarf með, að við erum ósammála um eitt þýð- ingarmikið atriði? Og hver er kominn til að dæma um það, hvort hættulegra er, að van- meta gróður landsins og græðslu og trúa því, að byggðin megi að verulegu leyti eyðast eða hitt, að vanmeta heilbrigt líf og gera sér dátt við það, sem er einhver mesta siðferðileg spilling og hætta íslenzkra unglinga, tó- baksnautnin? Jónas Baldursson nefnir sam- vinnumálin í grein sinni og því vil ég taka dæmi af þeim líka. U.M.F. eiga að rækta huga æsk- unnar og móta hana til góðra félagshátta. Þau eiga að gefa hinu unga fólki tilfinningu fyr- ir því, að takmark uppeldisins er góður félagi. Þá verða það eftirsóknarverðar félagslegar dyggðir að varðveita og þroska hæfileika sína og verða þannig að sem mestu liði í sameigin- legri framsókn. Eins á slíkum mönnum að lærast að meta mál og st'efnur eftir því, hver áhrif það hefir á almanna hag. Grundvallarkrafan er jafnrétti og jöfn aðstaða. Hitt mega svo ungmennafélögin aldrei ætla sér að leggja hömlur á sam- vizkufrelsi og hið frjálsa mat, hver stefnan sé í beztu samræmi við hugsjónir félagslífsins. Hér skulum við líta á verzlunarmál- in. Sumir halda, að kaupmanna- verzlanir í frjálsri samkeppni séu fólkinu fyrir beztu. Aðrir trúa á samvinnuverzlun og þar erum við Jónas Baldursson báð- ir í flokki, Svo eru ýmsir, sem trúa á einkasölur á vegum rík- isins. Það er ekki á verksviði U.M.F. að taka féiagslega af- stöðu í heild til þessara mála, þó að sjálfsagt megi ræða þau á vegum þeirra. Þeir, sem trúa á ríkisverzlanir og kaupmanna- verzlanir geta verið eins góðir ungmennafélagar og ég. Og hart þætti mér, ef ég þætti ekki hlut- (Framhald á 6, $lðu) voru þau notuð nema þegar veð- ur voru válynd. Höfuðfatið var oftast prjóna- húfa, sem fljótlega var hægt að breyta í veðrahúfu. Höfðu þeir, sem áttu, hatta ut- an yfir þeim til hlífðar og hlý- inda. Líka áttu aðrir svokallað- ar lambskinnshúfur, búnar til úr unglambaskinnum, fóðraðar með einhverju þunnu efni. Húfur þessar voru léttar og hlýjar, en ekki endingagóðar. Ég heýrði í æsku talað um og sá húfur, sem nefndar voru Hol- lendingar. Þær voru í laginu líkastar „kaskeitum" úr sterku og góðu efni, en voru þá orðnar gamlar og slitnar. Var mér tjáð, að þær væru frá þeim timum (fyrir 1860), sem Hol- lendingar fiskuðu hér við land og höfðu verzlunarviðskipti við landsmenn. Voru það helzt þeir, sem búsettir voru á yztu nesjum og smávíkum, sem nutu þessara kj ara. Mun þar hafa mestu um ráðið, að þar þrifust ekki þefar- ar eða hundflatur skrælingja- lýður hinnar þrællyndu verzl- unarstéttar Dana, til þess að nasa uppi, ef einhver maður reyndi að bæta eitthvað úr fyrir sér um hina illræmdu verzlun. Þar þnfust ekki menn með Jú- dasareðli eða kvislingahneigð. Mér sögðu gamlir menn, sem ólust þar upp á yztu bæjum, að þeir myndu vel eftir því, þeg- ar farið var til fanga út í hol- lenzku duggurnar með vettl- inga, plögg og fleira, er Hollend- ingar vildu fá í vöruskiptum. Fengu landsmenn svo í staðinn dúka, klúta, húfur eða yfirleitt helzt það, sem að fatnaði laut, — stundum líka litið eitt af hörðu bfauði. Ekki sögðust þeir muna eftir því, eða hafa heyrt talað um það, að nokkurn tíma hefði komið til árekstra milli lands- manna og Hollendinga í þessum viðskiptum, heldur hefðu öll þau viðskipti farið fram kurteislega og á friðsaman hátt. Á þeim árum voru hvergi eins mannmörg heimili sem á yztu nesjum og víkum. Mun það hafa verið sjaldgæft, ef færri en 15 —20 eða fleiri voru þar heim- ilisfastir ársmenn. Mun það sannast vera, að i Móðuharðindunum og eftif þau fjölgaði fólki í Múlasýslum að ráði. Mun enginn hluti lands- ins þá hafa verið betur settur en Austfirðir, og er mér grunur á, að viðskiptin við Hollandinga hafi átt sinn þátt í því. En þetta var víst útúrdúr frá lýsingum á klæðnaði fólksins. Spariföt flestra karlmanna voru úr fínu vaðmáli, sem ofið hafði verið í 75—80 tanna skeið, úr hvítri ull. Þegar búið var að þæfa voðina, var hún lituð úr hellu með litlu af vinanda eða ediki út í. Fötin þar næst sniðin og saumuð. Flestir höfðu klúta um hálsinn, alla vega lita. Fótabúnaður flestra mun hafa verið líkur: skór úr geldsauða- skinni, sem litað hafði verið úr sortulyngi og voru því tinnu- dökkir. Þeir voru svo bryddir með drifhvítu eltiskinni, sem stakk mjög vel af við dökkan tinnulitinn. Innan í voru hafðir íleppar með margvislega litu út- prjóni. Þá tíðkaðist að vera i ljósblá- um leistum utan yfir sokkun- um. Það kostaði mikla fyrirhöfn að búa til þessa ljósbláu leista, og af því ég þekkti þann tilbún- ing vel, ætla ég að láta lýsingu af honum fylgja hér með. Efni, sem nefnt var „indigó", fluttist í smápökkum. Var það leyst upp í hreinni keytu í tré- byðu, 30—40 potta að rúmmáli. Það var látið leysast þar upp í þrjá sólarhringa og hrært upp daglega. Á fjórða degi var ullin látin niður í löginn. Svo var hún hreyfð daglega og snúið vel 1 byðunni. Þótti það leiðinda- verk vegna lyktarinnar, sem af leginum lagði. Eftir sex daga var fulllitað. Var ullin, eða hvað sem litað var, þá orðið vel dökkblátt. Síð- an var ullin þurrkuð, þar næst táin, eftir það tvíkembd með hvítri ull saman við, eftir því hvað ljósblátt plaggið skyldi vera. Sokkaplögg með þessum lit þóttu hin fallegustu í þann tíð, en voru efalaust hin dýr- ustu, ef allt verk við tilbúning þeirra hefði verið reiknað til verðs. Draummaður minn, sem tíð- um segir mér sitthvað, sem ég vissi ei vel, hefir tjáð mér, að hollenzkir sjómenn hefðu fyrstir manna flutt „indigó“ til íslands og sagt aixstfirzkum viðskipta- vinum sínum fyrir um það, hvernig vinna skyldi úr því, og urðu þær reglur síðan alþekkt- ar eystra. Mér væri þökk að fá að vita, hvort þetta muni geta verið rétt. Þá áttu ýmsir menn bláar eða dökkar prjónapeysur með silf- urhnöppum á. Voru þeir eins og kúlur í laginu, með fæti undir. Þóttu þær í mínu ungdæmi hinn mesti hátíðabúningur. Búningur sjómanna var líkur og vetrarklæðnaður, nenla þeir voru í skinnsokkum í stað skinn- leista. Skinnsokkar voru þeir kallaðir, ef þeir náðu vel í sokka- band, Lika áttu margir skinn- buxur til þess að hhfa sér við bleytu, Klæðnaði kvenfólks var ég ekki eins kunnugur, en þó skal frá sagt, sem ég bezt veit, Nærfatnaður kvenna var eins og karlmanna úr finasta vað- máli, sérstaklega skyrtan. Sá Ijóti ósiður var mjög al- gengur í þann tíð, að kvenfólk hafði nærbuxur sínar opnar í klyftum. Mun það hafa verið gert þeim til þæginda, er losa þurfti líkamann við það, sem hann varð að koma frá sér. Ég ætla að iáta fylgja hér með sanna sögu, þar sem segir af þrekmiklum og frískum kven- manni, sem var rétt búinn að týna lífinu á fjöllum uppi fyrir þennan klæðnað. Það var á póstleiðinni frá Grífnsstöðum á Hólsfjöllum til Eskifjarðar. ^Níels Sigurðsson, sem um margra ára skeið var póstur á þessari leið, sagði svo frá: Það. var einu sinni, er ég fór frá Grímsstöðum austur, sem stúlka að nafni Þuríður -£- stór, þrek- leg og frisk á fæti — bað mig um að lofa sér að verða mér samferða að Möðrudal. Það var nokkur lausasnjór á jörðu og útlit fyrir norðanveður. Ég sagði henni það velkomið, ef hún treystist til að kafa ó- færðina, þótt svo bættist við norðanveður í ofanálag. En hún kvaðst ekki kvíða því. Við héldum svo af stað, en ekki höfðuijfi við lengi farið, er veður versnaði, og litlu síðar var kominn norðanstórhríð með frosti. Ég teymdi fyrri hestinn, en lét Þurígi ganga í slóð þeirra. Þetta gekk lengi yel, en svo sá ég, að húp fór að dragast aftur úr. Stanzaði ég þá Og spurði hana, hvopt hún væri vesöi. En hún kvað pei vlð því, ep sagði jafnframt, að það fyki svo mikið af snjó upp á líf sér um opið á hnjáskólinu, að það gerði sér illmögulegt að ganga, „Mikill andskotans klæðnaður er þetta á ykkur kvenfólki að ætla þannig útbúnar i snjó og frosti yfir fjöll“, sagði póstur þá. Ég hafði nú ekki önnur ráð en að taka ullartrefil, sem ég hafði um hálsinn og vefja hon- um um læramót og líf stúlk- unnar, eftir því sem ég gat í því veðri og kringumstæðum, svo hvergi yrði op fyrir snjóinn til þess að komast inn á líf hennar. Þetta dugði, því þegar Þurið- ur losnaði við snjófokið, náði hún fljótlega dugnaði sínum aftur, svo að. við gátum haldið áfram, og náðum við að Möðru- dal heilu og höldnu“. Þannig sagðist Níels pósti frá. En svo bætti hann við: „Þegar kvenfólk síðan hefir beðið mig um samfylgd yfir fjallvegi í misendis veðri, hefi ég sett því það skilyrði að vera í heilum nærbuxum, en ekki hnjáskóli". Þá var kvenfólk í hnéháum jSOkkum með spjaldofin bönd, alla vega útofin að litum, vafin um „sokkaband“, til þess að halda sokkunum uppi. Falleg- asti litur á sokkum þótti vera úr ljósblárri samkembu, sem áð- ur er lýst. Þar næst úr dökku efni, litað úr hellulit eða sortu- lyngi. Fleiri liti höfðu þær á sokkum sínuip. Þá var kvenfólk klætt milli- pilsi. Það var ábyggilega skí'aptr legasta fatið, sem þær klæfldust daglega, að sípu leyti ejns Qg milliskyrtur karlmanpa, endá voru föt þessi pft úr þku efpi — tvistur í uppistöðu, en band í ívafi — og eins farið að með tilbúning munstursips; þræð- irnir voru lagaðir tii í kambin- um, unz litapiðurröðunin likaði, Dúkar þessir voru ávallt sam- settir af mörgum litum, þótt litlar væru siglingar á þeim tím- um og litir fengjust ekki frá út- löndum, því að konurnar voru^ ekki ráðalausar að afla sér fallegra lita, Þær voru margar svo vel að sér í grasafræði, að þær vissu, að úr, íslenzkum jurtum og lyngi mátti fram- leiða flesta eða alla liti, sem þær girntust. Ætlg ég að nefna nokkrar tegundir og liti, sem framkallaðir voru úr þeim. Úr krækiberjalyngi: rósrauð- ur litur — það er ljósrautt. Úr bláberjaiyngi: heiðblár litur. Úr beitilyngi: gulur litur.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.