Tíminn - 04.05.1945, Blaðsíða 8

Tíminn - 04.05.1945, Blaðsíða 8
Þeir, sem vilja hynna sér þjjóðfélatfsmál, inn- DAGSKRÁ er bezta íslenzka tímaritið um þjjóðf élatfsmál. 8 REYKJAVÍK f AMÁLL 30. apríl, mánudagur: Miincheii tekin. Styrjöldin í Þýzkal.: Banda- ríkjamenn tóku Mtinchen og sóttu fram inn í Austurríki á- leiðis til Innsbriick. Rússar unnu á í Berlín og tóku nokkr- ar smáborgir.í nánd við hana. Brezku sveitirnar, sem eru komnar yfir Elbe, sóttu til Lii- beck. Styrjöldin í Tékkóslóv.: Rúss- ar tóku Moravska Ostrava. San Francisco-ráðstefnan: Samþykkt að veita Argentínu sæti á ráðstefnunni gegn at- kvæðum Rússa og þriggja rikja annarra Austurríki: Rússar hafa sett upp stjórn í Austurríki. Banda- ríkjamenn hafa neitað að viður- kenna hana fyrst um sinn. 1. maí, þriðjudagur: Hitler dauður. Dauði Hitlers: Seint um kvöld- Ú R B Framhaldsaðalfundur Blaðamannafélags íslands verður haldinn að Hótel Borg kl. 1,30 nœst- komandi sunnudag. Aðalfundur Kvenfélags Neskirkju var haldinn nýlega. Á fundinum var gefið yfirlit um störf félagsins og gerð grein fyrir fjárhag þess. Félagið á eftir þriggja ára starf um þrjátíu þúsund krónur í sjóði. Gjaldkeri og formaður báðust undan endm-kosn- ingu. Stjórnina skipa því: Frú Áslaug Sveinsdóttir, formaður, frú Áslaug Þorsteinsdóttir gjaldkeri og frú Hall- dóra Eyjólfsdóttir ritari og var hún endurkosin. Meðstjórnendur: Frú Ingi- björg Thorarensen og frú Matthildur Petersen. Aðalfundur Félags ísl. iðnrekenda var haldinn í Reykjaví,k 24. f. m. í stjórn félagsins voru kjörnir: For- maður: Kristján Jóh. Kristjánsson. Gjaldkeri: Sigurður Waage. Ritari: Bjarni Pétursson. Meðstjórnendur: Sigurður Runólfsson og Sigurjón Pét- ursson. Varastjórnendur: Arnbjörn Óskarsson og Sveinbjörn Jónsson. Dynamiti og riffilkúlum var nýlega stolið úr skúr einum við Langholtsveg. Alls var stolið 12 dyna- mitsprengjum. Ekki er fullvíst hver valdur hefir verið að þjófnaði þessum. Grunur hefir þó fallið á þrjá drengi 14—16 ára. Þjófnaðir slíkir sem þessir eru mjög hættulegir, þar sem sprengi- efni er ekki barna meðfæri og eru því þeir, sem upplýst geta þetta mál beðn- ir að gera rannsóknarlögreglunni að- vart: Stórþjófnaðir tveggja drengja. Tveir drengir um fermingaraldur voru nýlega staðnir að innbroti í verzl- un eina í Reykjavík. Drengirnir voru teknir fastir og færðir rannsóknarlög- reglunni. Við yfirheyrslur kom í ljós, að þeir höfðu framið ekki færri en 20—30 þjófriaði, ýmist sameiginlega eða hvor um sig. Rannsóknarlögreglan mun ráðstafa þessum drengjum. , Iðnskólanum í Reykjavík var sagt upp 30 april. 665 nemendur voru í skólanum s. 1. TÍMAWS V ið var tilkynnt í þýzkum út- varpsstöðvum ávarp frá Dönetz flotaforingja. Skýrði hann frá, að Hitler hefði látizt síðdegis þá um daginn í Berlín, en daginn áður hefði hann skipað sig eftir- mann sinn. Dönitz hvatti Þjóð- verja til að berjast áfram. Áður höfðu borizt fregnir um, að Hitler hefði fengið heilablæð- ingu og lægi fyrir dauðanum. Styrjöldin í Þýzkalandi: Rúss- ar áttu aðeins eftir ótekinn lít- inn hluta af miðhverfi Berlínar. Þeir tóku Brandenburg og Stral- sund og voru 50 km. frá Rostock. Bretar áttu skammt ófarið til Lubeck. í Suður-Þýzkalandi máttu varnir Þjóðverja heita þrotnar og áttu Bandamenn 15 km. ófarna til Innsbruck. Þar voru handteknir margir frægir hershöfðingjar, m. a. von Rund- stedt. Asíustyrjöldin: Bandamenn gengu á land á Borneo, á Tarakonsvæðinu. Þeir settu og lið# á land rétt hjá Rangoon í Burma. 2. maí, miðvikudagur: Upiigjöf á ftalíu. Ítalíustyrjöldin: Churchill til- kynnti, að daginn áður hefði herstjórn Þjóðverja í Ítalíu og Suður-Austurríki undirritað samninga um algera uppgjöf þýzka hersins á þessum slóðum og næði hún til einnar miljónar manna. Þýzkalandsstyjöldin: Rússar luku töku Berlínar. Þeir tóku Rostock. Bretar tóku Lubeck og. klufu þannig varnarsvæði Þjóð- Iverja í Norður-Þýzkalandi í tvenni. — Tilkynnt var að Schwerin-Krozig greifi hefði verið skipaður utanríkismála- ráðherra Þýzkalands. Spánn: Laval kom loftleiðis til Barcelona. Honum var vísað í burtu, en hann neitaði að fara. Var hann þá settur í hald. Æ N U M vetur og luku 201 burtfararprófi. — Hæstu einkunn hlaut Pétur Haralds- son prentari, 9,57. 2. Hinrik Jón Gu3- mundsson, húsasmiður 9,45. Vorsýning Handíðaskólans var opnuð í Hótel Heklu síðastl. þriðjudag. Á sýningunni er vinna nem- enda skólans svo sem smíðisgripir, teikningar og vatnslitamyndir. Skóla- stjóri Handíðaskólans er Lúðvík Guð- mundsson. Gestir í bænum. Valtýr Þorsteinsson útgerðarmaður Rauðuvík við Eyjafjörð, Jón Skúlason bóndi Gillastöðum Dalasýslu, Björn Björnsson Viðvík Skagafirði. Sextugir. Tveir mætir borgarar Reykjavíkur áttu sextíu ára afmæli í gær, þeir Sigurður Ólafsson rakari og Steindór Björnsson frá Gröf. Ingólfur Árnason . hefir nýlega verið ráðinn skrifstofu- stjóri hjá Eimskipafélagi íslands. Hann hefir verið starfsmaður hjá Eim- skipafélaginu lengst af síðan 1920. Yfirkennari Miðbæjarskólans, Elías Bjarnason, hefir látið af störf- um fyrir aldurs sakir. Bæjarráð hefir samþykkt að mæla með því, að Pálma Jósefssyni verði veitt starfið. Vararæðismaður Bandaríkjanna. Samkvæmt tilkynningu frá sendiráði Bandaríkjanna heflr Earle J. Richey verið skipaður vararæðismaður Banda- ríkjanna í Reykjavík. Pétur í Hjörsey látínn Pétur Þórðarson, fyrrum al- þingismaður í Hjörsey, andaðist aðfaranótt fimmtudags s. 1., að heimili sínu í Borgarnesi, 81 árs að aldri. Þessa merka manns mun verða nánar getið hér í blaðinu síðar. Vonlaus ilótti kommúnista (Framhald af 1. síffu) vegna höfum við líka dæmt á- rásir Þjóðverja á íslenzk skip sem hlutleysisbrot og sérstök níðingsverk. Orðalag kommún- istatillögunnar um „þátttöku í styrjaldarrekstri“, er jafngilti „beinni stríðsyfirlýsingu", er því ekkert annað en stríðsyfir- lýsing samkvæmt alþjóðlegri málvenju, og hefði líka hvar- vetna verið talin sem stríðsyfir- lýsing af íslands hálfu, ef hún hefði verið samþykkt. Stríðsyfirlýsingar Þjóðviljans. Kommúnistar létu það líka sjást óspart í blaði sínu um þær mundir, er mál þessi voru á döí- inni, að þeir vildu fara í styrj- öldina. Þann 28. febrúar spurði Þjóðviljinn þeirrar spurningar, „hvort nokkur fórn væri fær- andi til að fá sæti meðal hinna sameinuðu þjóða“ og svaraði hann henni játandi. Átti blaðið vitanlega ekki við annað en stríðsyfirlýsingu, því að um aðra „fórn“ var ekki að ræða í þessu sambandi. í sama tölublaði var svo* sagt um stríðsyfirlýsingu Sýrlendinga, að „þeir hafi öðl- azt þann stjórnmálaþroska, er veitir þeim hvarvetna hlutgengi í sambúð og viðskiptum sam- einuðu þjóðanna“. Hér er það hvorki talinn meira né minna en hinn ákjósanlegasti stjórn- málaþroski að birta stríðsyfir- lýsingu, þegar stríðinu er að ijúka! Þannig halda skrifin í Þjóð- viljanum áfram. Þann 4. marz sagði Þjóðviljinn, að það væri „máske bót í máli, að góðri stjórn mætti takast síðar að lagfæra það, sem þinginu hefir mistekizt.“ Og síðast hinn 25. apríl glopraðist upp úr Þjóð- viljanum, að „sósíalistar vildu viðurkenna, að þjóðin sé raun- verulega í stríði, og hafi háð það og vilji heyja það, með hverjum þeim tækjum, sem hún ræður yfir“. Fleiri vitnisburði ætti ekki að þurfa til að sýna, að kommún- istar vildu láta ísland fara í stríðið, þótt þeir þræti fyrir það nú vegna þess, hve illa það hefir mælzt fyrir. Hvi var ekkl beðizt þátttöku? Eins og kunnugt er, settu stórveldin, sem boðuðu til ráð- stefnunnar, strýðsyfirlýsingu fyrir 1. marz sem skilyrði fyrir því, að hlutaðeigandi ríki yrði boðin þátttaka. Með þessu var eigi sagt, að ráðstefnan sjálf myndi ekki breyta þessu skil- yrði. Þess vegna var strax bent á það í Tímanum 9. marz síðastl., að íslendingar ættu að leggja þátttökubeiðni fyrir sjálfa ráð- stefnuna. Við þessu hefir stjórn- in alveg skotið skollaeyrunum. Nú er þó sýnt, að tillaga Tím- ans hefir haft við rök að styðj- ast, því að þegar hefir einu ríki, er ekki fullnægði skilyrðinu um stríðsyfirlýsingu fyrir 1. marz, verið veitt þátttökuréttindi. Það er Argentína. Það er öll ástæða til að halda, að engilsaxnesku ríkin, er hafa boðið okkur á allar alþjóðaráð- stefnur áður, hefðu tekið þess- um tilmælum okkar vel og skil- ið sérstöðu okkar. Sama skiln- ings hefði og mátt vænta af smáþjóðunum. Sú framkoma stjórnarinnar, að hundsa þessa tillögu Tímans, sýnir glöggt, að ríkisstjórnin og stuðningsflokkar hennar hafa ekki eins mikinn áhuga fyrir þátttöku íslands 1 alþjóðasam- starfi og þau vilja vera láta. Eða grunaði kannske kommún- ista, að einhverjir vinir þeirra yrðu uppvísir að vafasamri vinsemd í garð íslendinga, ef til þess kæmi að úrskurða slíka þátttökubeiðni íslendinga? Samstarfið vlð sam- einuðu þjóðirnar. Einhver allra blöskrunar- verðasti þáttur í skrifum Þjóð- viljans eru þær ásakanir hans, að framkoma íslendinga í stríðsyfirlýsingarmálinu sýni merki óvináttu í garð samein- uðu þjóðanna. Með því að rang- túlka afstöðu íslendinga þannig, er beinlínis unnið að því að spilla sambúðinni við Banda- menn. Mætti Þjóðviljinn gæta þess, þótt hann hati Framsókn- armenn mikið, að hann er hér ekki aðeins að reyna að ófrægja þá, heldur ófrægir hann jafnt samstarfsflokka sína tvo og ekki sízt forsætis- og utanríkis- málaráðherrann, er flutti tillögu þá, sem þingið samþykkti. Með þessum skrifum sínum, er Þjóð- viljinn raunverulega að spilla fyrir sinni eigin stjórn. Engu blaði ferst líka síður að ásaka aðra fyrir óvinsemd í garð sameinuðu þjóðanna. Kommún- istar börðust á sínum tíma gegn setuliðsvinnunni, siglingunum til Bretlands og herverndarsátt- málanum. Kommúnistar hafa í allán vetur haldið uppi ógeðs- legum rógi gegn einni aðalþjóð Bandamanna, Bretum. Hefðu þeir fengið að ráða, ríkti nú fyllsti fjandskapur milli okkar og Bandamanna. Þetta land- ráðastarf sitt kóróna þeir nú með því að túlka afstöðu íhslend- inga á þann veg, að þeir séu fjandsamlegir sameinuðu þjóð- unum og óski ekki eftir sam- starfi við þær. Svlkaferill komiuúiiisía. Það er ekki ofsagt, að allur ferill kommúnista 1 utanríkis- málum á stríðsárunum sé'varð- aður .hinum stærstu afbrotum og nýjum og nýjum sönnunum fyrir fylgisemi þeirra við Rússa. Meðan Rússar eru í bandalagi við Þjóðverja, hamast þeir gegn brezka setuliðinu hér, viðskipt- um við Breta og herverndar- samningi við Bandaríkin. Þeg- ar Rússar eiga frumkvæði að því, að engri þjóð verði boðið á San Francisco-ráðstefnuna, nema hún hafi birt stríðsyfir- lýsingu fyrir 1. marz, vilja kom- múnistar óðara ganga að því skilyrði, þótt það geti ekki orðið þjóðinni til annars en tjóns og skammar. Þegar Rússar ávíta ís- lendinga -fyrir þá afstöðu að fara ekki í styrjöldina, taka kommúnistar undir skammirn- ar í stað þess að verja hinn ís- lenzka málsstað. Það er mál til komið, að þjóðin fari að átta sig á þessum svikaferli og launi hann með öðru en æðstu völd- um í þjóðfélaginu. Samvmnuskólanum slitið Samvinnuskólanum var sagt upp síðastl. laugardag. 36 nem- endur útskrifuðust. Hæstu eink- unnir við burtfararpróf fengu Guðrún Sigurðardóttir frá Vogi á Mýrum 8,64, Guðmundur Jónsson frá Haganesvík, Skaga- firði 8,64 og Jón Einarsson frá Borgarnesi 8,58. Silfurhnappinn, sem veittur er fyrir beztan árangur í íþróttum, fékk einnig Guðrún Sigurðardóttir frá Vogi á Mýrum og Björn Vilmunds- son, Reykjavík. Yngri deild skólans var tví- skipt að þessu sinni og luku 52 nemendur prófi upp í eldri deild. Hæstu einkunn milli deilda fékk Guðni Guðnason frá Súganda- firði, 8,64. í tilefni af sextugsafmæli Jón- asar Jónssonar, skólastjóra Sam- vinnuskólans færði Guðlaugur Rósinkranz, yfirkennari skólans, honum vandaða afmælisgjöf frá kennurum og nemendum. Var það fagurlega útskorinn stand- lampi eftir Ríkhárð Jónsson. Fimmtugar Þórir Steinþórsson, skólastjóri í Reykholti, verður fimmtugur næstkomandi mánudag. Afmælisgrein um Þóri mun birtast í næsta blaði Tímans. ••GAMLA B í Ó • DULARFULUA MORÐIÐ (Grand Central Murder) Spennandi sakamálamynd. Van Heflin, Patricia Dane. Sýnd kl. 7 og 9. | Bönnuð börnum innan 12 ára. IJmhverfis jörðina (Around the World) j Söngva- og gamanmynd. Mischa Auer, Joan Davis, | Kay Kayser og hljómsveit. j Sýnd kl. 5 > * • N Ý J A B í Ó •• TIXGLSKIXS- NÆTUR („Shine on Harwest moon") Ann Sheridan Dennis Morgan Jack Carson Irene Mauning. Sýnd kl. 6,30 og 9. Allar vildu meyj- arnar eiga hann. Leon Erroll og hinni frægu Caca Lomba hljómsveit. Sala hefst kl. 11 f. hád. Sýnd kl. 5 ♦; •TJARNABBÍÓ" Fjallið DAGUR HEFND- EVEREST ARINMR (The Avengers) irásagnir um hæsta fjall jarð- arinnar og tilraunir manna til Áhrifamikil mynd frá baráttu að brjóstast upp á hæsta tind- norsku þjóðarinnar. inn. Ralph Ricardson, Skemmtileg og fróðleg bók, Deborah Kerr, prýdd mörgum fallegum mynd- um. Hugh WiIIiams. Fæst í flestum bókaverzlun- Sýnd kl. 5, 7 og 9. i m, en upplagið orðið mjög takmarkað. 1 Bönnuð börnum innan 14 ára. 1 * - '*-'0***~*m*m*-~+*~—~*m~**m***^mJm*m***m^ » LEIKFÉLAG REYKJAVÍKUR Kaupmaðurinn í F eneyjum Gamanleikur í 5 þáttum, eftir William Shakespeare. Sýning á sunnudagskvöld kl. 8. Aðgöngumiðar seldir frá kl. 4—7 á morgun. ATHS. Ekki svarað í síma fyrr en eftir kl. 4%. Aðgangur bannaður fyrir börn. Húseignirnar Þingholtsstræti 1, Bankastræti 8 og 10 og Ing- ólfsstræti 2 hcr I hæ, með tilheyrandi lóðnm, eru til sölu. Einnig verzlun Jóns Þórðarsonar. Tilboð sendist til I Sveinbjarnar Jónssonar hrl., Thorvaldsensstræti 6, fyrir 15. |>. m. — Réttur er áskilinn til að taka hvaða tilhoði sem er og að hafna öllum. Sundkennsla Sund verður kennt í Sundhöll Reykjavíkur frá kl. 8 árdegis til kl. 71/2 síðdegis, allan maímánuð. Jón Pálsson og Jón D. Jónsson kenna. Athygli skal vakin á því, að framvegis er Sundhöllin opin fyr- ir almenning allan daginn nema á tímum setuliðsins. Ný hengibrú (Framháld af 1. síffu) Long, og óskaði tilboðs í smíði járnbrúar. Eftir að bréfaskriftir höfðu farið fram og firmað sent tillöguuppdrátt, varð það að ráði, að firmað sendi verk- fræðing hingað til samninga. Kom hann flugleiðis og hefir dvalið hér í vikutíma. Er nú tryggt, að útflutningsleyfi muni fást á járninu og hefir svo um samizt, að firmað Dorman Long tekur að sér brúarsmíðina og verður lagt allt kapp á að brúin verði fullgerð í ár, en ekki þó víst, að það takist. Brú þessi er hengibrú, mjög vönduð, með gólfi úr járnbentri steypu, 6 metra breiðri akbraut og 1 meter breiðri gangstétt hvoru megin. Burðarþol brúar- innar er m. a. miðað við, að hún beri vagn 25 smál. þungan dreg- inn af þungri bifreið og þétt- skipaða tvísetta röð bifreiða. Mun vinna við brúarstöpla væntanlega hef jast bráðlega. Til þess að flýta fyrir uppsetningu brúarinnar, er svo umsamið, að nokkrir æfðir smiðir við upp- setningu slíkra brúa munu koma með brúarefninu og setja hana upp, ásamt ísl. járnsmiðum. Jafnframt hefir verið samið við enska firmað um smiði hengibrúar á Jökulsá hjá Grúnsstöðum, en Alþingi hefir samþykkt, að þá brú skuli gera sem fyrst. Eru samningar mið- aðir við, að búrin komi hingað til lands í vor og verði sett upp sumarið 1946.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.