Tíminn - 17.08.1945, Blaðsíða 8
DAGSKRA er
8
bezta íslenzkn tímaritið um
þjóðfélagsmál.
REYKJAVÍK
Þeir, sem viljja kynna sér þjóðfélagsmál, inn-
Iend og útlend, þurfa að lesa Dagskrá.
17. ÁGtiST 1945
61. balð
? M\ÁLL TÍITIAÍV’S
13. ág:úst, mánudagur^
Bcðið eftlr svari.
Japan: Japanska stjórnin
frestaði enn að svara orðsend-
ingu Bandamanna, þar sem skil-
yrði Potsdamorðsendingarinnar
voru nánar tilgreind. Svars
þessa var beðið með mikilli
eftirvæntingu um allan heim.
Bandaríkin: Truman forseti
boðaði allsherjarárás á Japan,
ef uppgjafarsvar þeirra bærist
ekki hið allra fyrsta.
14. ágúst, þriðjudagur:
Uppgjjöf Japana.
Nokkru fyrir miðnætti var til-
kynnt samtímis í London, Was-
hington. Chungking og Moskvu,
að Japanskeisari og stjórn hans
hefðu gengið að öllum skilyrð-
um Potsdam-orðsendingarinnar.
Orrustum verður því hætt og
uppgjafarsamningarnir undir-
ritaðir við fyrsta tækifæri. í
tilefni af uppgjöf Japana voru
fyrirskipaðir tveir almennir frí-
dagar í Bretlandi og Bandaríkj-
unum.
Rússland: Undirritaður var í
Moskvu vináttusamningur milli
stjórnar Rússlands og stjórnar
Chiang Kai Shek. Er þetta tal-
inn árangur af viðræðum Soong
utanríkismálaráðherra við rúss-
neska stjórnmálamenn.
15. ágúst, miðvikudagur:
Brezka þingið sctí.
Bretland: Georg konungur
setti brezka þingið. Hann skýrði
frá því, að stjórnin myndi á
þessu þingi beita sér fyrir þjóð-
nýtingu Englandsbanka og kola-
nárefanna, stórvægilegum bygg-
ingaframkvæmdum, eftirliti
með atvinnuvegunum og sjálf-
stjórn Indverja.
Petain marskálkur
Frakkland: Pétain dæmdur til
dauða. Dómstóllinn lagði þó til
að dómnum yrði ekki fullnægt
vegna hins háa aldurs hans.
Japan: Japönsku stjórninni
bárust íyrirmæli Mae Arthurs
um það, hvernig haga skyldi
undirritun uppgjafasáttmálans.
Nokkrar skærur héldu áfram í
Mansjúríu og Burma.
Kína: Kommúnistaherinn í
Norður-Kína hefir neitað að
hlýðnast þeim fyrirmælum Chi-
ang Kai Shek að halda kyrru
fyrir og fara ekki til móts við
Rússa. Ýmsir óttast borgara-
styrjöld.
Áverki verður
manni að bana
Á mánudaginn var andaðist
^á Landsspítalanum Þórður
Árnason, verkamaður, Nýlendu-
götu 7, af völdum áverka, sem
hann hlaut, er 19 ára piltur
sparkaði í hann í ölæði.
Nánari málsatvik eru þau, að
laugardaginn 4. þ. m. var Þórður
heitinn staddur úti fyrir húsi
því, sem hann bjó í við Nýlendu-
götu. Bar þá piltinn þar að, og
var hann drukkinn. Veittist
hann að Þórði með stríðni og
lenti í orðasennu milli þeirra
og gerði pilturinn sig líklegan
til að ráðast á Þórð. Leitaði þá
Þórður undan inn í næsta hús
og pilturinn á eftir. Sparkaði
hann í Þórð svo illyrmislega, að
af hiutust þær afleiðingar, sem
áður er um getið.
Þórður heitinn var nýlega orð-
inn sjötugur. Hann var lengi
starfsmaður hjá Eimskipafélagi
íslands.
Stiílkubarn ferst í
bílslysi
Síðastl. miðvikudag um kl. 5,30
vildi það hörmulega slys til við
Baldurshaga, að þriggja ára
stúlkubarn, Erla Karlsdóttir
(Þorsteinssonar, bakara, nú
veitingamanns í Baldurshaga)
varð fyrir bifreið og beið bana.
Nánari tildrög slyssins eru sem
hér segir: Vörubifreiðin R 2644
var á leið ofan frá Sandskeiði.
Sá bílstjórinn, er hann nálgaðist
Baldurshaé^., að þrjú börn voru
þar að leik norðan við veginn.
Telur hann að þegar hann átti
eftir um bíllengd að börnunum,
hafi eitt þeirra hlaupið út á
veginn fyrir bílinn. Hann hafi
hemlað þegar og beygt til vínstri
út af veginúm. Þegar hann hafði
stöðvað bílinn lá barnið um bíl-
lengd fyrir aftan hann á vinstri
vegbrúninni. Bar hann það þeg-
ar inn í húsið, en það var síðan
flutt í sjúkrahús, þar sem það
andaðist um kl. 8 í gærkvöldi.
Höfuðkúpan hafði brotnað.
Viðbygging við
Arnarhvál
Um þessar mundir er að hefj-
ast undirbúningur að viðbygg-
ingu við Arnarhvál.
Viðbygging þessi mun verða
um 20 metra löng meðfram
Lindargötu og verður það þá að-
alhlið hússins. í nýju bygging-
unni mun Hæstiréttur fá hús-
næði, en hann hefir hingað til
verið til húsa í hegningarhús-
inu, eins og kunnugt er. Auk
þess verða í húsinu ýmsar opin-
berar skrfistofur.
Húsameistari ríkisins, Guðjón
Samúelsson, hefir fyrir nokkru
iokið við teikningar að viðbót-
arbyggingunni og hefir verkið
þegar verið boðið út. Fimm til-
boð bárust, hið lægsta var 1
milj. 701 þús. krónur. Viðbygg-
ingin verður þrjár hæðir og
kjallari.
Engin síld
Engin síld barst til Siglufjarð-
ar 1 gær, en í fyrradag lönduðu
nokkur skip lítið eitt af gamalli
síld. í tvo daga hefir stormur
verið úti fyrir og ekki hægt að
fara í nótabáta. Flest veiðiskip-
in hafa því legið í höfn.
Mikill hafís er .fyrri Norður-
landi og riálgast hann land. Er
mikill ís báðumegin við Skaga og
um 20 mílur út af Siglufirði.
í gær kom til Siglufjarðar 5.
skipið frá Svíþjóð með farm af
tómum tunnum.
Ef ekki rætist úr síldveiðinni
fyrri helgina, þá er búizt við, að
margir bátar hætti veiðum.
Vísitalan
Kauplagsnefnd og Hagstofan
hafa reiknað út vlsitölu fram-
færslukostnaðar fyrir ágúst-
mánuð. Er hún óbreytt frá fyrra
mánuði, eða 275 stig.
Sjötíu og fimm ára
Ólafur Ingvar Sveinsson,
bóndi og fyrrverandi hrepps-
nefndaroddvíti á Grund i Vest-
urhópi varð 75 ára, i gær.
Þjóðverjar sendu hingað..
(Framhald af 1. slðu)
Báðir segjast þeir hafa leiðst
út í þetta af þeim forsendum, að
þeim var boðin hjálp til heim-
ferðar, er síðar var því skilyrði
bundin að þeir ynnu að þessum
fréttasencíingum sem þeir og
lofuðu. Það var samkomulag
þeirra að vinna ekkert að þessu
eftir að heim var komið, heldur
gefa sig fram við yfirvöldin.
3. ÍMagnús Guðbjörnsson og
Sverrir Matthíasson komu hing-
að til lands að Eiði, Langanesi,
25. apríl 1944. Komu þeir á kaf-
báti upp undir landið, en reru
síðan til lands á gúmmíbát. Þeir
skildu eftir í lendingunni bát-
inn og farangur sinn, þar á
meðal 2 senditæki og báðu um
að láta yfirvöldin vita um komu
sína og voru þegar handteknir
af amerískum hermönnum.
Þeir hafa viðurkennt, að hafa
verið sendir hingað af Þjóðverj-
um til þess að senda fregnir af
veðurfari, skipaferðum og öllu
því, er við kom hernaðarmál-
efnum hér. Báðir höfðu þeir
verið látnir læra meðferð og
notkun senditækja áður en þeir
fóru.
Þeir höfðu dvalið við atvinnu
í Þýzkalandi og halda því báðir
fram, að þeim hafi upphaflega
verið boðið að komast heim og
síðan verið flæktir út í þetta.
Þeir segjast ekki hafa- ætlað
sér að inna af höndum erindi
aitt og þess vegna gefið sig
fram.
4. Ernst Fresenius, Hjalti
Björnsson og Sigurður Norð-
mann Júlíusson komu hingað til
lands á þýzkum kafbáti hinn 30.
apríl 1944 og lentu í Selvogsnesi
á Austurlandi. Þeir voru hand-
teknir hinn 5. maí, er þeir voru
á leið upp til lands. Þeir höfðu
með sér tvö senditæki.
Erindi þeirra átti áð vera að
senda Þjóðverjum alls konar
upplýsingar um veðurfar, skipa-
ferðir, hernaðarsvæði og hern-
aðarmálefni hér á landi. Áður
en þeir fóru voru þeir látnir
læra loftskeytatækni.
Ernst Freseníus var foringi
fararinnar. Hann var í þýzka
hernum og fór hingað að skip-
un yfirmanna sinna og sem
hermaður.
Freseníus hefir dvalið hér á
landi áður um nokkurra ára
Fundur norðlenzkra
presta og kennara
Siðastliðinn laugardag var að
Hólum í Hjaltadal haldinn sam-
eiginlegur fundur presta og
kennara á Norðurlandi, og er
það fjórði fundurinn, sem þessir
aðilar eiga með sér.
Á fundinum voru flutt tvö
erindi. Séra Óskar Þorláksson
flutti erindi, sem hann nefndi
„Kirkjan og framtíðinv, og
Snorri Sigfússon námsstjóri
flutti erindi um skóla- og
fræðslumál. Allmargar ályktanir
voru gerðar.
Um 30 prestar og kennarar
sóttu fundinn.
Siglufirði
í fyrradag lá fjöldi erlendra
og innlendra síldveiðiskipa inni
á Siglufjarðarhöfn. Um kvöldið
dró til mikilla óláta og ölvunar
sjómanna. Urðu miklar rysking-
ar og handalögmál á götum
bæja/fins og réði lögreglan ekki
við mannfjöldann. Óeirðir þess-
ar stóðu langt fram á nótt. Á
Siglufirði eru aðeins fjórir lög-
regluþjónar og er það allt of fátt
yfir síldveiðitímann. Fangelsi er
að heita má gagnslaust, þar sem
það rúmar ekki nema 4—5
fanga. Áfengisútibúið á Siglu-
firði var aðeins opið í 4 klukku-
stundir um daginn og mun á
1 þeim tíma hafa selzt vín fyrir
imarga tugi þúsunda króna.
skeið og var veittur ísl. rík-
isborgararéttur með lögum nr.
39, frá 8. september, en hann
kveðst hafá afsalað sér honum.
Þeir Hjalti og Sigurður segj-
ast hafa verið flæktir út í þetta
á þeim forsendum, að þeim var
í upphafi boðin aðstoð til að
komast til íslands, en þeim hafi
ekki verið fært að snúa við, þeg-
ar þeim var sagt frá skilyrðun-
um. Báðir telja þeir það hafa
verið ætlun sína að gefa sig
fram er til íslands var komið og
vinna ekki að erindi því, sem
þeir höfðu undirgengizt, enda
segjast þeir hafa framkvæmt
skemmdarverk á senditækiriu
áður en það var tekið í notkun.
5. Guðbrandur Hlíðar hafði
fengið fararleyfj. úr Danmörku
til Svíbjóðar að afloknu námi i
ársbyrjun 1944 og síðar farar-
leyfi frá Svíþjóð en var teppt-
ur í Englandi á leið hingað 12.
febrúar 1945.
Hann hafði staðið í sambandi
við Þjóðverja nokkurn, er
dvalið hafði hér á landi fyrir
nokkrum árum, m. a. nálægt
Akureyri, og þá komizt í kynni
við fjölskyldu hans.
Hann hefir viðurkennt aö
hafa undirgengizt eftir að til
í-slands væri komið, að aðstoða
menn er til hans kynnu að leita
og sendir væru frá Þjóðverjum.
Átti hann að þekkja þá, er þeir
bæru honum kveðju frá St.
Bernhards-hundinum Halldóri.
Átti aðstoð hans að vera i því
fólgin að láta þeim í té nauð-
þarfir, ef að því ræki, svo og
að útvega þeim hitamæla, loft-
þyngdarmæla og þess háttar.
Einnig var farið fram'á það
við hann, að hann sendi héðan
bréflega, en með leyniletri, sem
hann var látinn læra, upplýs-
ingar um ýmsa hernaðarlega
mikilvæga staði hér á landi.
Guðbrandur hefir haldið því
fram, að hann hafi verið þving-
aður út I þetta af áðurgreind-
um Þjóðvérja, er leitaði hann
uppi undir yfirskyni vináttu við
fjölskyldu hans. Hann kveðst
þegar áður en hann kom til Sví-
íþjóðar hafa eyðilagt efni það,
j er nota skyldi við leyniskriftina
og segist ekki hafa ætlað sér að
halda loforðin við Þjóðverjana,
er til íslands kæmi.
Tíundi maðurinn, sem afhent-
ur var af hernaðaryfirvöldun-
um, Páll Sigurðsson, var látinn
laus úr gæzlu fyrir nokkrum
dögum eða strax er fyrri lágu
upplýsingaf um mál hans, er
sýndu, að grunsemdir þær, er á
honum hvíldu, höföu eigi sann-
azt.
AfurhaverlbLð
(Framhald, af.l. síðu)
raunir, sern^ gerðar eru undir
fögru yfirskyni, en með and-
stæðum tilgangi, eins og t. d.
„bændaráðstefnur" kommún-
ista. Með því að halda áfram og
treista eininguna um stofnun
bændasamtakanna, sem varð á
Búnaðarþinginu, munu bændur
skápa sér traust vopn í þeirri
baráttu, sem nú er fyrir hönd-
um.
Viðræðnr við Al-
fiýðusambandið.
Þegar Búnaðarþing kom sam-
an höfðu borizt þau tilmæli frá
ríkisstjórninni, að fulltrúar frá
Búnaðarfélaginu og Alþýðusam-
bandinu ræddust við um verð-
lagsmálin. Búnaðarþingið varð
við þessari ósk og kaus til við-
ræðnanna af sinni hálfu Haf-
stein Pétursson, Sigurð Jónsson
og Þorstéin Þorsteinsson, en af
hálfu Alþýðusambandsins tóku
þátt í viðræðunum Gunnar
Benediktsson, Hermann Guð-
mundsson og Þorsteinn Péturs-
son.
Viðræður þessar leiddu ekki
til neinnar endanlegrar niður-
stöðu, því að fulltrúar Alþýðu-
sambandsins vildu ekki að svo
komnu máli fallast á, að bænd-
ur fengju þá hækkun á afurða-
verðinu, sem þeim ber sam-
kvæmt sex-manna-nefndarálit-
Cjatnla Síc Wijja Síc
ÓElGlNGJðM Ast. (The Big Street). Aðalleikarar: Henry Fonda, Lucille Ball. I Sýnd kl. 5 og 9. í Sá á kvöllna sem á völina (Uncertain Glory). Errol Flynn, Paul Lukas, Jean Sullivan. Sýnd kl. 9.
TÓNSNILLINGURINN (My gal sal) Rita Hayworth og Victor Mature. Sýnd kl. 5 og 7.
'Tjarnarbíc
. . r i ... .. .. m. „ .
Þelr gerðu garðinn frægan Á fleyg'iíerð (Riding High)
OG Dáðir vorn drvgðar eru ágætar skemmtlbækur og | hafa ank þess þann kost að Söngva- og dansmynd í 1 eðlilegum litum, frá Vestur-sléttunum . DOROTHY LAMOUR DICK POWELL VICTOR MOORE GIL LAMB
vera ódýrar. • | Sýning j£l. 5, 7 og 9. |
U R B Æ N U IVI
Stríðslokum fagnað.
Strax og fregnír bárust af því kl. 11
á þriðjudagskvöldið, að friður vœri
kominn á, hófust fagnaðarlæti á göt-
um bæjarins og við höfnina. Skip
þeyttu eimpípur sínar í allt að því
klukkustund, flugeldum var skotið og
klukkum hringt. Pjöldi fólks safnaðist
saman í miðbænum og við höfnina,
þá áliðið væri kvölds, þegar fregnin
þarst. Allt fór þó friðsamlega fram,
enda bar lítifS á ölvun.
Flugpóstsamgöngur
milli íslands og Bretlands eru nýlega
hafnar. Þegar þessar ferðir verða
komnar í fast horf, má búast við að
flogið verði daglega með póst milli
lándanna. Flug-buröargjald fyrir
venjulegt einfalt sendibréf verður kr.
1,20, ef það er ekki þyngra en 20 gr.
Flugpóstur fer nú vikulega til Norður-
landa og kostar nú kr. 1,80 undir
einfalt bréf (allt að 20 gr.) þangað.
Pósturinn til Norðurlanda er afgreidd-
ur frá pósthúsinu á hverjum föstudegi.
Adolf Buch,
fiðlusnillingurinn heimsfrægi, sem
væntanlegur er hingað á vegum Tón-
listarfélagsins, eins og kunnugt er,
mun koma hingað ásamt konu sinni
loftleiðis frá Ameríku um miðja næstu
viku. Buch mun dvelja hér í um 10
daga.
E.s. Reykjafoss
lagði af stað héðan til Svíþjóðar
síðastl. mánudagskvöld. með skipinu
fóru þessir farþegar: Frú Ester Sigurð-
son, Jakobsen trúboði með konu og tvö
börn, Bjarne Klingsen og Dagmar
Nilsen.
Séra Jakob Jónsson
er kominn heim úr sumarleyfi. Við-
talstími hans er kl. 6—7 e. h. á Leifs-
götu 16.
inu. Sýna kommúnistar það hér
einu sinni enn, hve lítið er að
marka orð þeirra og yfirlýsing-
ar, þar sem hér er að ræða um
fullnægingu á samkomulagi,
sem þeir hafa sjálfir gert fyrir
hönd Alþýðusambandsins.
Ýms fleiri mál en verðlags-
málin bar á góma í þessum við-
ræðum, eins og t. d. um útvegun
verkafólks í sveitavinnu. Fól
Búnaðarþing stjórn Búnaðar-
félags íslands að halda þessum
viðræðum áfram. Gert er þó ráð
fyrir því, að haldi áfram um-
ræður um verðlagsmálin, að hið
væntanlega stéttasamband
bænda útnefrii fulltrúa af
hálfu bænda.
Lagarfoss kominn
E.s. Lagarfoss kom til Reykja-
víkur úr ferð sinni til Norður-
landa kl. 9 í kærkvöldi. Ferðin
hafði gengið að óskum. Skipið
kom til í Englandi.
Með skipinu komu hingað 45
farþegar frá Norðurlöndum.
Rögnvaldur Sigurjónsson,
| hinn kunni pianosnillingur hélt
fyrstu hljómleika sýna hér í bæ síðastl.
þriðjudagskvöld í Gamla Bio. Voru
þeir aðeins fyrir styrktarfélaga Tón-
listarfélagsins. í gærkvöld hélt svo
listamaðurinn fyrstu hljómleika ina
fyrir almenning. í bæði skiptin var
’ honum prýðisvel tekið af áheyrendum
og varð að leika mörg aukalög.
Mænuveikin
heldur áfram að breiðast út í
Reykjavík. Síðan um seinustu helgi er
vitað um tvö ný tilfelli. Veikin er enn
væg, og líklegt að hún hafi þegar náð
hámarki.
Kíghósti og mislingar
bárust til Reykjavikur með Esjufar-
þegunum og hafa þessir sjúkdómar.
breiðzt lítillega út. Talið er að ekki
þurfi að óttast verulega útbreiðslu
þeirra nú, þar sem Stutt er síðan
þessar farsóttir gengu síðast í Reykja-
vík. •
Skrifstofur Mjólkursamsölunnar
fluttar.
Síðastl. þriðjudag voru skrifstofur
Mjólkursamsölunnar fluttar úr Fiski-
félagshúsinu í hið nýja húsnæði Sam-
sölunnar við Suðurlandsbraut. Húsið
er nú að mestu fullgert, en vélarnar
í mjólkurstöðina vantar ennþá.
Flugferð til Svíþjóffar.
Síðastl. laugardag flaug ein af flug-
vélum SILA-félagsins fyrsta farþega-
flugið frá íslandi til Svíþjóðar. Ferðin
gekk að óskum. Farþeggr voru þessir:
Steinunn Jónsson, Slgrún Bjarnason,
Karl Begmann, Inger Eriksson, Sigrún
Eriksson, Gréta Ramselijus, Eva Sig-
urðardóttir, Guðlaugur Rósinkranz,
Sven Erik Cornelijus, Ingi valur Egils-
son, Margrét Árnadóttir og Ármann
Snævarr.
Sparisjóður
Mjólkurfélags Reykjavíkur.
Samkvæmt auglýsingu í Lögbirt-
ingablaðinu hefir verið ákveðið að
leggja niður sparisjóð Mjólkurfélags
Reykjavíkur. í skilanefnd sjóðsins eru
Eyjólfur Jóhannesson framkvæmda-
stjóri og Gunnar Thoroddsen prófessor.
Kröfulýsingarfrestur er 6 mánuðir.
Ávarp forseta
(Framhald af 1. síðu)
styrjaldarlokunum koma vinnu-
dagar, sennilega erfiðir, sem
tala til hvers einstaklings um
að hlífa sér ekki og leggja að
mörkum allt sem hann megnar.
Við óskum að samvinnan við
vinaþjóðir okkar megi halda
áfram. Við erum fús til þeirrar
samvinnu, til þess að tryggja
framtíðarfrið og öryggi í heim-
inum, á þann hátt, sem okkur
er fært.
Og fögnuður okkar í dag, og
samfögnuður, yfir sigrinum og
friðnum, kemur frá dýpstu
hjartarótum okkar.