Tíminn - 21.09.1945, Page 6
6
TÍMlBinV, föstndagimi 21. scpí. 1945
71. WaÖ
Frá Ungmenna-
félagi íslands
SambandsráSsfundur Ung-
mennafélags íslands (þ. e. hér-
aðsstjórar og stjórn U.M.P.Í.) var
haldinn í Reykjavík, dagana 8.
og 9. september síðastliðinn.
Þessar ályktanir voru gerðar:
Samþykkt að halda landsmót-
iö í byrjun júlímánaðar næsta
vor, helzt að Laugum í Þing-
eyjarsýslu. Sérstök mótsnefnd
verður kjörin af U.M.F.Í. og
Héraðssambandi Suður-Þingey-
inga.
Teknar voru fullnaðarákvarð-
anir um iþróttagreinar á mót-
inu. Verða þær birtar í næsta
hefti Skinfaxa.
í tilefni af 40 ára afmæli ung-
mennafélaganna á næsta ári
var samþykkt að bjóða fulRrú-
um frá ungmennafélögunum í
Færeyjum og Noregi á landsmót-
ið og sambandsþingið.sem haldið
verður jafnframt mótinu.
Ungmennafélagi Færeyja var
sent kveðjuskeyti og færeyska
málstaðnum óskað sigurs i sjálf-
stæðisbaráttunni.
Víttar voru tilefnislausar á-
deilur í blaðagreinum á ritara
U.M.F.Í., Daníel Ágústínusson,
varðan'di málefni ungmennafé-
laganna og honum þökkuð mik-
ilsverð og vel unnin störf í þágu
þeirra.
Rædd voru og gerðar álykt-
anir um ýms önnur starfsmál U.
M. F. Í.
Allar tþessar samþykktir voru
gerðar einróma.
Innköllun
norskra peninga
Landsbanka íslands hefir bor-
izt tilkynning frá Noregsbanka
um, að allir norskir peninga-
seðlar, nema eins og tveggja
króna skiptimyntseðlar, hafi
verið kallaðir úr umferð 9. sept-
ember 1945, og eru öll viðskipti
með seðlana bönnuð frá og með
þeim degi.
Bankar og sparisjóðir geta
sent Landsbankanum þá norska
peningaseðla, sem þeir hafa
eignazt fyrir 9. september 1945,
og skal það gert sem fyrst og í
síðasta lagi 6. október næstkom-
andi. Einkaaðilar, sem hafa
norska peningaseðla í fórum
sínum, skulu afhenda þá norska
sendiráðinu í Reykjavík í síðasta
lagi 6. október 1945.
Noregsbanki innleysir hina
innkölluðu seðla eftir reglum,
sem upplýsingar verða gefnar
um síðar, en þó því aðeins, að
seðlarnir hafi að áliti bankans
verið fluttir út og orðið eign
hlutaðeigenda á löglegan hátt.
Verður þess vegna, um leið og
seðlar eru afhentir norska
sendiráðinu eða Landsbankan-
um til fyrirgreiðslu, að gera
skriflega grein fyrir því, á hvern
hátt þeir hafa orðið eign hlut-
aðeigenda.
Aðeins „blaðaþytur”
4 *
Snemma í ágúst birtust grein-
ar í „Journal-American", New
York, þess efnis, að Gearhardt
þingmaður frá Kaliforniu hefði
borið fram tillögu í Bandaríkja-
þingi, um að Bandaríkin keyptu
Grænland og byðu íslandi að
verða 49. ríki Bandaríkjanna.
Skömmu síðar tóku önnur blöð
í Bandaríkjunum í sama streng
í ritstjórnargreinum og fóru lof-
samlegum orðum um þessa hug-
mynd.
Sendiráð íslands í Washing-
ton sneri sér þegar til utanrík-
isráðuneytis Bandaríkjanna og
bað um upplýsingar. Var frá því
skýrt, að Gearhardt þingmaður
hefði ekki borið fram frumvarp
um þe^tta efni, heldur aðeins
minnst á það í þinginu. Hér væri
um blaðaþyt að ræða, sem ekki
hefði við neitt að styðjast. (Til-
kynning frá ríkisstjórninni).
&
■ W
Tilkynning frá ríkisstjðrninni
Bókmcnntir og listir
(Framhald af 3. siðu)
nokkur styrkur fáist til þessarar
útgáfu. Áætlað er, að þetta verði
12 bindi á 30 arkir í stóru broti.
Verður efnt til nokkurrar á-
skriftasöfnunar fyrir verk þetta,
begar fenginn er fjárhagslegur
bakhjarl að útgáfunni.
Loks er svo það fyrirtækið,
sem vekja mun mesta athygli:
útgáfa stórrar og vandaðrar ís-
landslýsingar.
Á fundi útgáfustjórnarinnar
þann 16. september 1943 voru
þeir Jóhannes Áskelsson, jarð-
fræðingur, Pálmi Hannesson,
rektor og Valtýr Stefánsson, rit-
stjóri kosnir í nefnd til að gera
tillögúr um útgáfu og efnis-
skipun íslandslýsingar.
Á s. 1. vetri var svo Steindór
Steindórsson, menntaskólakenn-
ari ráðinn ritstjóri alls verks-
ins.
Áætlun hefir nú verið gerð um
efni þess í stórum dráttum. Gert
er ráð fyrir, að það verði alls tíu
bindi, 450—500 bls. hvert, í
nokkru stærra broti en Saga ís-
lendinga.
Efnisröðun verður í megin-
dráttum sem hér segir:
Almenn landslýsing. Myndun
íslands og ævi. Þjóðarhættir I.
Þjóðarhættir II. Suðvesturland
(Gullbringu- og Kjósarsýsla,
Borgarfjarðarhérað). Norðvest-
urland (Snæfellsnes, Dalir,
Vestfirðir). Norðurland (frá
Hrútafirði að Langanesströnd-
um). Austurland (frá Langanes-
ströndum að Eystra Horni).
Suðurland, (frá Eystra Horni að
Reykjanesfjallgarði). Hálendið
og íegistur.
Þegar hafa verið ráðnir menn
til að skrifa fyrsta bindið, og er
gert ráð fyrir, að handritið að
því verði tilbúið í ársbyrjun
1947.
Bindi þetta, sem á að vera al-
menn landlýsirig, verður í- 14
aðalköflum. Munu þeir verða
þessir (höfundar hvers kafla til-
greindir innan sviga):
Hnattstaða, stærð og lögun
Steinþór Sigurðsson), Sjórinn
og landgrunnið (Hermann Ein-
arsson), Láglendi (Sigurður
Þórarinsson), Hálendi, Sigurð-
úr Þórarinsson), Jöklar (Guð-
mundur Kjartansson), Eld-
stöðvar (Sigurður Þórarinsson),
Jarðhitasvæði, ölkeldur (Trausti
Einarsson og Steinþór Sigurðs-
son), Landskjálftar (Sigurður
Þórarinsson) Steina- og berg-
fræði (alm.) (Tómas Tryggva-
son), Jarðsaga (ágrip) (Guð-
mundur Kjartansson), Loftslag
(Teresia Guðmundsson), Gróð-
ur (Steindór Steindórsson),
Dýralíf (Árni Friðriksson og
Finnur, Guðmundsson).
Ekki er hægt að gera grein
fyrir, hve langan tíma það tek-
ur að semja og koma út þessu
mikla ritverki. En gert er ráð
fyrir, að byrjað verði á búnaðar-
lýsingu og lýsingu á þjóðhátt-
um á næsta ári.
Fjársöfnun í Keflavík
Nýlega lauk almennri fjáj-
söfnun í Keflavík til hjálpar
fjölskyldunum, sem urðu fyrir
tjóni í brunanum þar s. 1.
þriðjudag. Alls söfnuðust 21.760
kr., þar af safnaði skátafélagið
Heiðarbúar 17.000 kr. og Jóhann
Ólafsson 2.760 kr. Auk þess gáfu
vörubílstjórar í Keflavík 2.000
kr. og nokkuð af fatnaði barst
frá ýmsum gefendum. Mjög al-
menn þáttaka var í þessum sam-
skotum.
Þurrkaður og pressaður
SAILTFISKUR
ódýr og góður, 1 stærri og
minni kaupum.
Iíafliði líalclvinssoii
Sími 1456. — Hverfisg. 123.
(Framhald af 3. síðu)
frá utanríkisráðuneytinu um
það, að Einar hafi farið erlendis
í verzlunarerindum fyrir þrá-
beiðni sína og samkvæmt uppá-
stungu Péturs Benediktssonar.
Einar eða flokksbræður hans
voru svo sem ekki að sækjast
eftir þessu. En af einskærri um-
hyggju fyrir þjóðinni lét Einar
tilleiðast að fara þessa ferð —
eftir að Ólafur hafði gengið eft-
ir honum að gera þetta nú fyrir
sig! — En það er ekki ofsögum
sagt af þessum bannsetta ótukt-
arskap kommúnistanna. Þó að
Ólafur velti sér fyrir fótum
Einars og annara kommúnista í
tilkynningu þessari, þakka þeir
það ekki hætishót, þeir birta til-
kynninguna að vísu, en fremur
lítið áberandi. Þeir hafa ekkert
um hana sagt, annað en það að
gefa í skyn, að eigi verði séð,
hvaða þörf hafi verið að gefa
hana út. Með þessu er sagt:
„Ekki báðum við Ólaf um hana“.
Og þeir hlífa Ólafi ekki við
sparkfnu vegna tilkynningar
hans um sænska samninginn,
þó að hann beygi sig þannig
fyirir þeim. Þið skuluð, lesendur
góðir, gefa því gaum, að Ólafur
segir, að „allur samningurinn“
hafi legið fyrir ráðherrafundi,
en kommúnistaráðherrarnir að
svo hafi ekki verið, orðalag
samningsins hafi ekki legið fyrir
heldur „atriði“ samningsins er
„talin“ voru skipta máli.
Hér er deilt um augljóst mál:
Lá allur samningurinn fyrir á
ráðherrafundi eða ekki. Ráð-
herrarnir hljóta að vita hvað
satt er og rétt í því máli. Þess
vegna er ofan á allt annað upp-
lýst, að anriað hvort utanríkis-
og forsætisráðherrann eða Áki og
Brynjólfur hafa gefið út opin-
bera tilkynningu, sem er vísvit-
andi ósannindi. Þetta er stað-
reynd, sem ómögulegt er að
komast í kring um.
III.
Og svo segja menn, að stjórn-
in okkar „nýskapi“ ekki neitt,
hún sé aðgerðalaus í „nýsköpun-
armálunum". Hver vill leyfa sér
að halda því fram, að svona
stjórnarfar sé til í nokkru öðru
landi? Jæja, er þetta þá ekki
„nýsköpun“? Nú eru þjóðirnar
einmitt að auka frelsið. En
hvaða þjóð cjnnur hefir nú þeg-
ar stigið svo stór framfaraspor
í frelsisátt, að ráðherrar henn-
ar megi með opinberum til-
kynningum lýsa hvern annan ó-
sannindamann og sitji þó áfram
saman eins og bræður? Samein-
ast hér ekki „fullkomið frelsi“
og „friður" svo til fyrirmyridar
megi verða öðrum þjóðum?
Sunnudaginn 9. þ. m. ók Ól-
afur Pálsson frá Skógum jeppa-
bifreiðinni R 2900 yfir Bitru-
háls í Strandasýslu, frá Gröf í
Bitru að Stóra-Fjarðarhorni í
Kollafirði. í bifreiðinni voru,
auk Ólafsf fjórir farþegar, þeir
Sigmundur Jónsson frá Kambi,
Gunnar Guðnason* vélamaður,
Hafliði Gíslason vélamaður og
Jóhann Björnsson skrifstofu-
maður.
Þeir félagar voru aðeins
klukkutíma og 15 mín. að aka
þessa vegalengd milli bæjanna,
óg farþegarnir sátu í bifreiðinni
alla leiðina, nema nokkurn
hluta af brekkunum upp frá Gröf
og niður að Stóra-Fjarðarhorni.
Hafði þó síðustu fimm dagana
verið úrhellLsrigning um þess-
ar slóðir. Þeir telja vegarstæði
um þessa leið, yfir hálsinn,
mjög gott og ákaflega fljótgert,
ef unnið væri með jarðýtum og
Eða hugsið ykkur réttarfars-
málin. Er ekki „friðurinn" ein-
mitt aðalatriðið fyrir þjóðfélög-
in eins og Morgunblaðið hefir
bent á? Til þess að halda uppi
„friði,“ hefir verið sætzt í þeim
glæpamálum, sem eru stærst og
flóknust — sbr. „faktúruna“ í
tunnunni. Önnur mál eru söltuð
(heildsalamálin). Dómur ef til
vill kveðinn upp síðar þegar ró
er á komin. En stjórn okkar hef-
ir og fundið ágætt ráð, eins
konar „nýsköpun“, til þess að
hinir ákærðu líði ekki meðan á
biðinni stendur, eða þessi „ó-
friður“, sem ýmsar „smásálir"
og „óráðvandir” menn eru að
koma af stað, valdi þeim ekki
álitshnekki. Því fleiri og stærri
ákærum, sem einstakir menn
eru bornir og á þá sannast, því
meira seilist stjórnin eftir að fá
þá í trúnaðarstöður fyrir ríkið,
einkum ef senda þarf menn er-
lendis og fyrir „nýsköpun“ at-
vinnulífsins.
Forsætisráðherrann okkar
virðist einmitt vera svo dyggur
stefnu sinni, að þessi höfuð-
„nýskapari“ er hér að „nýskapa“
réttarfarið „í sinni eigin mynd“,
'sbr. miljónafélagið og þanu, sem
þaðan kom „með troðna vasa“
til að stofna- („nýskapa") h. f.
Kveldúlf.
Fjármál þjóðarinnar eru lífæð
hennar. Þau hefir Ólafur og
kommúnistarnir einnig „ný-
skapað“ þannig síðan vorið
1942, að þessi tegund fjármála
mun hvergi finnast. „Glæsilegur
árangur" er nú að koma í Ijós
og mun þó betur sjást síðar.
Eyrnamörk leiðtogans leyna sér
ekki heldur þar. Fjármál þjóð-
arinnar eru sem óðast að taka
á sig mynd Kveídúlfs-fjármál-
anna, áður en spilagróði stríðs-
ins kom til óg afkoma félagsins
var í samræmi við fjármálavit
og heiðarleik stjórnendanna.
\
Þeim mönnum fjölgar nú
stöðugt, sem eru sannfærðir
um það, að Ólafur og kommún-
istar þurfa ekki að sitja lengi
ennþá til þess að þeim takist að
„nýskapa“ úr hinu unga ís-
lenzka lýðveldi áður alveg ó-
þekkta og mjög svo merkilega
tegund af ríki. Og þessir menn
hafa óyggjandi rök. Eru ekki
fjármál þjóðarinnar, réttarfar
hennar, útvarpsfréttirnar og
opinberar tilkynningar ríkis-
stjórnarinnar meginþættir lýð-
veldisins? Þetta allt hefir ríkis-
stjórnin þegar „nýskapað"
þannig, að óvíða eða hvergi
munu hliðstæður finnast.
Finnst ekki stuðningsmönn-
um ríkisstjórnarinnar þetta vera
alveg eins og það á að vera?
öðrum fljótvirkum vegavinnu-
vélum.
Það er eitt hið mesta áhuga-
mál Strandamanna, að kaflinn
yfir Bitruháls verði gerður ak-
fær sem allra fyrst, með því að
það mundi bæta til mikilla
muna samgöngukerfi sýslunnar,
þar sem með því móti yrði ak-
fær vegur óslitið eftir endilangri
sýslunni norður fyrir Hólmavík.
Framlag til þessa vegar hefir
verið allv^rulegt undanfarin ár,
en aldrei unnið að vegi þessum
með fljótvirkum vegavinnuvél-
um.
FYLGIST MEÐ
Ótveglð sem flestir ykkar einn
áskrifanda að Tímanum og lát-
ið afgreiðsluna vita um það sem
fyrst.
Ekið.yfir Bitruháls
Satnband ísl. snmvinnufélaga.
' ' SAMVINNUMENN !
Vitið þér, að íslendingar höfðu þegar hafið
samtök í verzlunarmálunum nokkru áður en
fyrsta samvinnufélagið var stofnsett í bænum
Rochdale á Englandi. Lesið um þá atburði í bók
Arnórs Sigurjónssonar og kynnist hinum ein-
kennilega afburðamanni, séra Þorsteini Páls-
syni að Hálsi í Fnjóskadal. Fæst í
Fræðslu- og félagsmáladeild S. í. S.,
Sambandshúsinu, Reykjavík.
framleiðir
SÚTUÐ SKIW OG UEÐUR
ennfrcmur
hina landskunnu
ReyTcjavífy. Sími 1249. Símnefni: Sláturfélag.
Reykhús. — Frysihús.
Mðursuðuverksmiðja. — Bjúgnagerð.
Framleiðir og selur í heildsölu og smásölu: Niður-
soðið kjöt og fiskmeti, fjölbreytt úrval. Bjúgu og alls
konar áskurð á brauð, mest og bezt úrval á landinu.
Hangikjöt,. ávallt nýreykt, viðurkennt fyrir gæði.
Frosið köt alls konar, fryst og geymt í .vélfrystihúsi
eftir fyllstu nútímakröfum.
Verðskrár sendar eftir óskum, og pantanir afgreiddar
um allt land. ■.
Stór bók um líf og starf og sanjtíð listamannsins mikla
Leonardo da Yinci
eftir rússneska stórskáldið Dmitri Mereskowski, í þýðingu
Björgúlfs læknis Ólafssonar
er komin í bókaverzlanir
Leonardo da Vinci var furðulegur maður H,var sem hann er nefndur i bókurh. er
eins og menn skorii orð til þess að lýsa atgerfi hans og yfirburðum. I .Jlncycioptrdin
Britanmca" (1911) er sagt, nð sagan nefni engán mann, sem sé hans'jafningi n s\'iði
vistnda og lista og óhugsandi sé, að nokkur maður kefði enzt tíl að afkasta hundiaðmta
parti af öllu þvi, sejn hann fékkst við. i ,
Leonardo da Vinci var óviðjafnnnlegur mdlari. En hann var likn uppfinningamaðnr
d við Edison, eðlisfraðingur, stírrðfrtcðingnr, stjörnufraðingUr og heruélnfrœðingur
Hann fékkst við rannsóknir i Ijósfrtrfíi, lifffrrafra’ði og stjórnfraði, andlilsfall manna og
fellingar i klaðum alhugaði hann vandlega.
t Söngmaður var Leonardo-, góður og ték sjdlfur d hljóðfari. Enn fremur 'ritaði hann
kynslrin öll af dagbókum, en -
list hans hefir gefið honum orðstír, sem aldrei deyr.
Þessi bók um Leonardo da Vinci er sagn utn manninn, er fjölhrcfnslur og afkasta•
mistur er talinn allra manna, er sögur fara af, og einn af mestu listawonnum vcraldor.
í hókinni eru um 30 myndir af listaverkum.
H.F. LEIFTUR, Reykjavík.
Raftækjavinnustofan Selfossi
framkvæmir nllskonar rafvirkjastiirf.