Tíminn - 09.01.1946, Blaðsíða 1
KITSTJÓRI:
ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON
ÚTOEFANDI:
FRAMSÓKNARFLOKKURINN
Simar 2353 og 4373
j PRENTSMHJJAN EDDA hl.
RITSTJÓRASKRIFSTOFUR:
EDDUHÚSI. Lindargötu 9 A
Símar 2353 og 4373
OG AUGLÝSINGASKRIFSTOFA:
EDDUHÚSI, Llndargötu 9A
Síml 2323
AFGREIDSLA, INNHEIMTA
30. árg.
Reykjavík, iiiiðvikiidagiiin 9. janiiar 1946
3. blað
Hversvegna var stjórnarfrumv. um bygg-
ingamálin frestað til framhaldsþingsins?
Er það flutt til að sýnast fyrir bæj=
arstjórnarkosningarnar, en eftir þær ætli
svo stjórnarflokkarnir að halda áfram sama
aðgerðaleysinu og hingað til?
Nú fyrir bæjarstjórnarkosningarnar keppast allir stjórnar-
flokkarnir við að lýsa því yfir, að þeir vilji allt gera til að bæta
úr húsnæðisskortinum í bænum. Verk þeirra í ríkisstjórninni
bera hins vegar merki um annað og eftir því eiga þeir vissulega
að verða dæmdir í þeim kosningum, sem nú fara í hönd.
Aðgerðaleysið á þing>
inu í fyrra.
Það er nú komið talsvert á
annað ár síðan að ríkisstjórn-
in var mynduð. Þá var húsnæð-
isskorturinn þegar mjög tilfinn-
anlegur, þótt hann hafi stór-
aukizt síðan. Stjórnarflokk-
arnir virtust samt alveg blindir
fyrir honum, því að í stjórnar-
sáttmálanum fræga var ekkert
á byggingamálin minnst, enda
þótt þar væri reynt að lofa öllu
því, er til umbóta gæti talizt. í
samræmi við þðfta leið fyrsta
þing stjórnarinnar svo, að þess-
um þýðingarmiklu málum var
ekkert sinnt og stóð þetta þing
þó í marga mánuði, svo að tím-
inn var nógur til athafna.
Þegar kom að þinglokum,
flutti Bjarni Ben. tillögu um
byggingamálin, þar sem skorað
var á stjórnina að láta fara
fram athugun á þvi, hvað hægt
væri að gera til úrbóta. Þessi
athugun var vitanlega alveg ó-
þörf, þar sem ljóst var þá þeg-
ar, hvaða ráðstafanir ætti að
gera. Tillaga Bjarna^ var lika
eingöngu flutt til að draga fram-
kvæmdirnar á langinn og koma
i veg fyrir, að tekin yrði upp
skömmtun á byggingarefni og
gerðar aðrar ráðstafanir, sem
komið hefðu stórgróðamönnum
og húsabröskurum illa. Hefðu
stjórnarflokkarnir haft minnsta
áhuga fyrir málinu, hefði strax
verið hægt að ákveða fram-
kvæmdirnar á þinginu i fyrra-
vetur.
Vegna þessa sinnuleysis
stjórnarflokkanna á þingi í
fyrra i byggingamálunum, var
ekkert aðhafst til úrbóta í þeim
á siðastl. ári. Afleiðingarnar
urðu líka þær, að byggingarefn-
inu var sóað í luxushús meðan
skortur var á þvi til nauðsyn-
legustu íbúðabygginga, húsnæð-
isleysið hélt áfram að vaxa,
braggaibúunum hélt áfram að
fjölga og húsaleigan á svörtum
markaði hækkaði enn stórlega.
Þannig fór heilt ár meira en
til spillis, vegna aðgerðaleysis
stjórnarinnar.
Er stjórnarfrv. flutt
til þcss að sýnast?
Þess hefði átt að mega vænta,
að stjórnin, og þó sérstaklega
félagsmálaráðherrann, reyndi
að bæta úr þessu aðgerðaleysi
á þinginu i fyrravetur með þvi
að hafa undirbúnar þær tillög-
ur, sem þingið fól henni að gera,
þegar það kom saman i haust.
Þessu var þó síður en svo að
heilsa. Þegar þingið var búið að
starfa á annan mánuð, án þess
að nokkrar tillögur kæmu frá
stjórninni, lögðu Framsóknar-
menn fram ítarlegar og marg-
þættar tillögur um lausn hús-
næðismálanna. Þá fyrst, þegar
þær tillögur voru komnar fram,
fékk stjórnin fjörkipp, og tókst
að ljúka frumvarpi, sem hún
hafði í smíðum og leggja það
fram nokkrum vikum seinna.
Allar likur benda til, að frv.
hennar hefði ekki enn séð dags-
ins ljós, ef Framsóknarmenn
hefðu ekki lagt fram tillögui
sínar, enda eru mörg höfuðat-
riðí þess tekin upp úr þeim, á-
samt einni villu!
Hefði stjórnin — og þó sér-
staklega félagsmálaráðherrann
— haft nokkurn verulegan á-
huga fyrir þessu frumvarpi sínu,
myndi hún vitanlega hafa beitt
sér fyrir þvi, að það yrði sam-
þykkt fyrir þingfrestunina og
gæti því strax komið til fram-
kvæmda upp úr áramótunum.
Slíkum áhuga reyndist hins veg-
ar ekki til að dreifa, því að
stjórnin lét sér nægja, að málið
færi í gegnum eina umræðu i
annari deildinni og yrði síðan
lagt í salt í þingnefnd og voru
þó 2—3 vikur eftir til þingfrest-
unarinnar, svo að ekki skorti
tíma til að afgreiða málið.
Hvaða afgreiðslu málið fær á
framhaldsþinginu verður ekki
.sagt með neinni vissu, en ekki
er ólíklegt, að áhugi sumra
stjórnarsinna hafi þá nokkuð
minnkað, þar sem bæjarstjórn-
arkosningarnar verða þá um
garð gengnar. Mörg sólarmerki
benda einmitt til þess, að stjórn-
arfrv. um byggingamálin hafi
fyrst og fremst verið flutt til að
sýnast nú fyrir bæjarstjórnar-
kosningarnar, en ekki eigi að
gera öllu meira með það.
En jafnvel þó eitthvað af því
verði samþykkt, hefir frestun
þess fram á framhaldsþingið
altaf gert það að verkum, að
framkvæmdir samkvæmt þvi
geta aldrei orðið nema tak-
markaðar á þessu ári.
trræði kjósendaima.
Sú saga rikisstjórnarinnar í
byggingamálunum, sem hér
hefir verið rakin, sýnir bezt, að
ekki er að ræða um mikinn á-
huga hjá stjórnarflokkunum i
byggingamálunum og eiga þeir
þar allir óskipt mál. Kjósend-
urnir hafa hins vegar öruggt
(Framhald á 4. slðu).
LONDON FÆR SINN GAMLA SVIP
Framboö Framsóknarmanna
í nokkrum kanpstöðum og
kauptúnum
Hér á eftir eru birt nöfn efstu manna á listum Framsóknar-
flokksins í bæjar- og sveitastjórnarkosningum úti á landi. Fram-
sóknarflokkurinn hefir lista í kjöri í öllum kaupstöðunum, nema
í Hafnarfirði og á ísafirði, og í öllum kauptúnunum, en sums
staðar þar hefir hann samvinnu við aðra flokka. Listi flokksins
í Reykjavík hefir þegar verið birtur hér í blaðinu.
London er nú óðum að komast £ sitt fyrra horf. Myndin, sem hér fylgir,
var nýlega tekin af blaðamannagötunni frægu, Fleet Street. Pálskirkjan
er í baksýn.
Sendiherrabréf-
in verða birt
Eu þorir Fiimur ekki
að líirta þau fyr en
eftir kosningar?
Eins og áður hefir verið sagt
frá, skrifaði Hermann Jónasson
forsætisráðherra bréf nokkru
fyrir jólin þar sem hann óskaði
þess, að birt yrðu opinberlega
þau bréf, er sendiherra íslands
í Kaupmannahöfn skrifaði hon-
um 1939—1940 og fjölluðu um
njósnarmálin. Tilefni þessarar
beiðni voru þau, eins og kunn-
ugt er, að dómsmálaráðherra
hafði notað þessi bréf til árása
gegn Hermanni Jónassyni og
Framsóknarflokknum.
Forsætisráðherra hefir nú
svarað aftur og lofað því að bréf-
in verði birt. Jafnframt skýrði
hann frá því, að dómsmálaráð-
herra myndi annast birtinguna.
Enn hafa þó ekki orðið efndir
á þessu fyrirheiti. Það skyldi þó
aldrei vera, að dómsmálaráð-
herrann teldi þessi bréf ekki
eins óþægileg fyrir Framsókn-
armenn og hann vildi vera láta,
og telji því sjálfum sér heppi-
legast að draga birtinguna fram
yfir kosningar?
íslendingur dæradur
í Danmörku
Borgararéttur Kaupmanna-
hafnar hefir nýlega dæmt ís-
lenzkan mann. Gunnar Guð-
mundsson frímerkjakaupmann,
í 12 ára fangelsi. Hann var á-
kærður fyrir að ganga í S. S.-
liðið þýzka í júlí 1944 og starfa
í þjónustu þess i Danmörku og
Þýzkalandi. Aðallega mun hann
hafa unnið við þýzkar útvarps-
■sendingar til íslands.
Gunnar krafðist sýknunar,
þar sem hann væri útlendingur,
en krafa hans var ekki tekin
':il greina.
Dronning Alexandrine
fór frá Kaupmannahöfn á laugar-
dagsmorgun og er væntanleg hingað
á fimmtudaginn. ,
Bruni að Reykjum
í Hrútafirði
Síðastl. föstudag eyðilagðist
af eldi kennara- og nemenda-
íbúð Reykjaskóla við Hrútafjörð.
í húsi þessu bjuggu 15 nem-
sndur og einn kennari.
Eldurinn kom upp um kl. 10
árd., i forstofu hússins. Breidd-
ist eldurinn óðfluga út og varð
við ekkert ráðið. Þegar eldsins
varð vart, sváfu tveir menn í
húsinu. Þeir urðu að fara út um
glugga, þvi ekki varð komizt
öðruvísi út.
Húsið var steinsteypt, en allt
þiljað að innan með krossviði
og texi. Það stóð um 100 m. frá
aðalbyggingunni og urðu því
(Framhald á 4. síðu).
Akranes:
Níu efstu menn á lista Fram-
sóknarmanna til bæjarstjórnar-
kosninga á Akranesi eru:
Þórhallur Sæmundsson bæj-
arfógeti, Guðmundur Björnsson
kennari, Svavar Þjóðbjörnsson
verkamaður, Vilhjálmur Jóns-
son iðnnemi, Þóra Hjartar frú,
Sverrir Bjarnason skrifstofu-
maður, Sigurjón Jónsson verka-
maðtir, Guðmundur Gislason
bóndi og Daníel Friðriksson bif-
vélavirki.
Sijíluf jorður:
Sex efstu menn á lista Fram-
sóknarmanna á Siglufirði eru
þessir:
Ragnar Jóhannsson forstjóri,
Eiríksína Ásgrímsdóttir frú,
Skafti Stefánsson útgerðarmað-
ur, Biarni Jóhannsson yfirlög-
regluþjónn, Jón Kjartansson
skrifstofustjöri og Friðleifur Jó-
hannsson fyrrv. útgerðarmaður.
Ólafsfjörður:
Framsóknarmenn í Ólafsfirði
hafa birt lista sinn við væntan-
legar bæjarstjórnarkosnlngar 1
Ólafsfirði. Fjórir efstu menn
listans eru:
Árni Valdimarsson útibússtj.
Björn Stefánsson kennari, Mey-
vant Jónsson bóndi og Ágúst
Jónsson trésmiður.
Akureyri:
Ellefu efstu menn á lista
Framsóknarmanna við væntan-
legar bæjarstjórnarkosningar á
\kureyri eru þessir:
Jakob Frímannss. framkvstj.,
Þorsteinn M. Jónsson skólastj.,
Marteinn Sigurðsson verkamað-
ur, Guðmundur Guðlaugsson
verksmiðjustjóri, dr. Kristinn
Guðmundsson skattstjóri, Ólaf-
ur Magnússon sundkennari,
Gunnar Jónsson sjúkrahúss-
gjaldkeri, Sigurður O. Björnsson
irentsmiðjustjóri, Ármann Dal-
nannsson verkamaður, Harald-
ur Þorvaldsson verkamaður og
rón Oddsson trésmiður.
Neskaupstaður:
Níu efstu menn á lista Fram-
sóknarmanna í Neskaupstað eru
ðessir:
Níels Ingvarsson framkvæmda-
^tjóri, Guðröður Jónsson kaup-
félagsstjóri, Ármann Magnússon
útgerðarmaður, Sigurður Guð-
jónsson trésmiður, Erlingur Ól-
afsson verkamaður, Sigurður
Friðbjörnsson byggingameistari
Haraldur Brynjólfsson fiski-
matsmaður, Jónas Valdórsson
netagerðarmaður og Sveinþór
Magnússon vélstjóri.
Seyðisf jörður:
Á lista Framsóknarmanna á
Seyðisfirði eru þessir níu efstu
menn:
Árni Jónsson útgerðarmaður,
ílialdið vildi held-
ur fá luxusvörur
en byggingarefni
Mbl. reynir að bregða
þeirri rógsögu fyrir sig í
gærmorgun, að húsnæðis-
leysið, sem nú er í Rvík,
stafi af því, að Eysteinn
Jónsson hafi notað inn-
flutningshöftin fyrir styrj-
öldina til að takmarka ó-
hæfilega byggingar í Rvík.
Með þessari rógsögu ger-
ir Mbl. efsta mann íhalds-
listans og borgarstjóra
sinn að ósannindamanni,
því að hann hefir oftar en
einu sinni haldið því fram,
að hér hafi síður en svo
verið nokkurt húsnæðis-
leysi, þegar stríðið hófst,
heidur hafi margar íbúðir
hér staðið auðar.
En jafnframt er það líka
víst, að ■ hefði ekki inn-
flutningshaftanna notið
við og stefna Sjálfstæðis-
flokksins um ótakmarkað-
an glingurvöruinnflutning
fengið að ráða, myndi hafa
fengist miklu minna bygg-
ingarefni til byggingar-
framkvæmda í Reykjavík,
þar sem gjaldeyri hefði þá
brostið til kaupa á því. Það
var innflutningshöftunum
fyrst og fremst að þakka,
að jafnmikið var hægt að
byggja í Reykjavík fyrir
styrjöldina og raun ber
vitni.
íhaldið vinnur því sjálfu
sér mest tjón með því að
v^ra að tuggast á þessari
rógsögu sinni. Það sýnir
að til viðbótar öllum van-
rækslu- og verknaðarsynd-
um sínum í byggingarmál-
unum, vildi það heldur láta
flytja inn luxusvörur en
byggingarefni fyrir stríð-
ið.
Hjálmar Vilhjálmsson bæjarfó-
geti, Haraldur Víglundsson toll-
vörður, Hermann Vilhjálmsson
afgreiðslumaður, Jón Þorsteins-
son íshúsvörður, Sigurður Vig-
fússon póstur, Marinó Guðfinns-
son verkamaður, Stefán Jónsson
útgerðarmaður og Hallgrímur
Ólafsson verkamaður.
V ostrna ii nacy j ar:
Níu efstu menn á lista Fram-
sóknarmanna til bæjarstjórnar-
kosninga í Vestmannaeyjum eru
þessir:
Sveinn Guðmundsson forstjóri,
Jóhann Sigfússon útgerðarmað-
ur, Þorsteinn Þ. Víglundsson
skattstjóri, Einar Bjarnason
skipstjóri, Helgi Benónýsson
verkamaður, Auður Eirlksdóttir
húsmóðir, Sigurður Guðmunds-
son sjómaður, Jónas Helgason
(Framhald á 4. slðu).