Tíminn - 24.01.1946, Page 3
16. blað
TÖIIMV. fimmtmlaginii 24. janúar 1946
3
LARS HANSEN:
Fast þeir sóttu sjóinn
Víst var þetta „Noregur", en skútan bar þess líka merki, að
hún hafði farið gegnum Ormsaugað. Og hann Kristófer virtist
líka bera þess merki, því að hann sat grafkyrr og hátíðlegur á
ayrakarmi káetunnar.
Skolur hægði á sér.
— Þau virðast hafá komizt í hann krappan, bæði tvö.
Á rifi þarna í sundinu stóðu heljarstórir jakar grunn og
mynduðu þannig garð, er hvergi þokaðist fremur en berg-
hleinar væru. Þessi garður hafði varnað því, að íshrönglið kæm-
íst alveg upp í flæðarmálið. Innan vert við tvo stærstu jakana
lá „Noregur“. Þetta var ekki lakari lega en höfnin heima í Trom-
sö. Skolur varð svo undrandi yfir þessari ævintýralegu tilviljun —
ekki aðeins því, að hann Kristófer skyldi komast lífs af gegn-
um Ormsaugað, heldur líka, hvernig hann hafði komið skút-
unni í þetta hlé —, að hann gleymdi alveg að kalla. Hann sett-
ist bara á rassinn og velti vöngum. Hann gat ekki betur skilið
en það væri rétt, sem þeir Lúlli og Nikki sögðu, að hann Kristó-
íer væri einn af þeim, sem sjórinn'vildi ekki.
Svo hrópaði hann:
— Kristófer, Kristófer!
Hljóðið kastaðist hvað eftir annað milli klettanna, og Skol-
ur sá það greinilega, að Kristófer hrökk við, þegar kallið barst
honum til eyrna.
— Kristófer!
Skolur kallaði aftur, og nú stóð hann upp og veifaði skinn-
húfugarminum sínum. Og nú svaraði hann Kristófer og veifaði
lika.
Skolur tók aftur til fótanna og hljóp niður í flæðarmálið, en
fór þó hægax en áður. Hann gat ekki komizt út í skútuna, því
að Kristófer hafði engan bát. Annar báturinn var hjá þeim,
sem orðið höfðu eftir á Þúsundeyjunum, og hinn hafði orðið
eftir hjá Skol.
En Skolur dó ekki ráðalaus. Hann fleytti sér út að skútunni á
litlum jaka og hafði rekaviðarsprek fyrir ár.
,-rlent yfirlit
Verkföllin
í Bandaríkjunum
Næstum tvær milljónir manna mörgum tilfellum hafa þeir því
eiga nú í verkföllum víðs vegar boðist til, að þeir skyldu lækka
um Bandaríkin. Þessar stór- kaupkröfurnar, ef þeir fengju
felldu vinnustöðvanir eru, eins að sjá reikninga fyrirtækjanna
og gefur að skilja, mjög lam- og sæju þar svart á hvítu, að
andi fyrir allt atvinnulíf Banda- fyrirtækin fengju ekki risið
ríkjanna og munu þó verða stór- undir kauphækkunum, án þess
um alvarlegri, ef eigi tekst að að fá hækkun á framleiðslu-
vinna bug á þeim fljótlega. |Verðinu. Þessu tilboði hefir
Tildrög þessara vinnudeilna jafnan verið vísað mjög harð-
eru einkum þau, að á stríðsár- lega á bug af atvinnurekendum.
unum jukust mjög heildartekj- J pegar verkföllin voru að hefj-
ur verkamanna vegna aukinn- ast á síðastl. hausti, lagði Tru-
ar eftirvinnu. Eftir styrjöldina man fyrir þingið frumv. um
hefir eftirvinnan verið felld nið- sáttaumleitanir í vinnudeilum.
ur að mestUi og tekjur verka- Samkvæmt frumv. máttu verka-
manna því lækkað, þótt kaup- 'menn ekki hefja verkfall, nema
taxtarnir hafi haldist óbreyttir. ] með þrjátíu daga fyrirvara.
bifreiðaiðnaðinum hefir þetta
t. d. haft þær afleiðingar, að
vikukaup verkamanna hefir
lækkað úr 58 dollurum í 45
dollara. Þar sem verðlag allt
hefur heldur hækkað á stríðs-
árunum, verður afkoma verka-
manna, eftir að eftirvinnan fell-
ur niður, því lakari en fyrir
styrjöldina.
Þegar á þetta er litið, getur ' rétti sínum til að mega hefja
það því ekki talizt óeðlilegt, þótt fyrirvaralítið verkföll, og at-
Útvarpsræða Pálma Hannessonar
(Framhald af 2. síðn)
menningartækja, sem hún hefir
hlotið og kann að hljóta. — Því
skyldi ég ekki gera það? — En
ég vil, að aðrir landshlutar verði
þeirra einnig aðnjótandi. Með
því móti hygg ég, að högum
hennar sjálfrar og þróun þjóð-
félagsins alls, sé bezt borgið.
„Sígandi lukka er bezt,“ segir
máltækiö, og ofvöxtur er eng-
um hollur, hvorki börnum né
bæjum. — Ég er þeirrar skoð-
unar, að Reykjavík sjálfri og
landinu í heild sé mikil nauð-
syn á því, að fólksstraumnum
hingað sé komið í eðlilegt horf.
Með því móti getur bærinn bezt
treyst menningu sína, jafnt
andlega sem verklega, búið í
haginn fyrir ibúana og tryggt
öryggi þeirra.
En hvernig á að færa þennan
fólksstraum í eðlilegt horf?
Ef litið er á kosningaloforðin
og tillögurnar, sem hæst er
hampað nú, er auðsætt, að þar
er ætlazt til, að mörgu sé fram'
komið með aðstoð ríkisins. Þetta
er ekki að lasta i sjálfu sér. —
En hinu má ekki gleyma, að
annars staðar á landinu þarf
svipaðra eða sömu umbótanna
við. Fólk leitar skemmtana,
þæginda og öryggis. Þetta
hyggst það að fá í þéttbýli bæj-
anna. Þess vegna flyzt það
hingað, þó að það verði að láta
eftir margt, sem því er annt
um. — M§ð því eina móti, að
aðrir hlutir landsins fái svipuð
þægindi og sambærilegt öryggi
við það, sem hér er, má gera
sér vonir um, að stemma hinn
óða straum, sem hingað liggur
nú.
Þetta er mín skoðun og Fram-
sóknarmanna yfirleitt, að ég
hygg. Flestir munu fallast á
hana í orði, en þegar til kast-
anna kemur, þegar tryggja á
sveitum og sjávarþorpum nokk-
urn hluta af þægindunum og
örygginu, þá skilja leiðirnar
alltof oft. Þá erum við nefndir
utanbæjarmenn og óvinir
Reykjavikur. En jafnframt er
því haldið fram, að fólksstraum-
urinn hingað sé okkur að kenna.
Það er sjálfsagt gott „að hafa
tungur tvær og tala sitt með
hvorri,“ en þó því aðeins, að
áheyrendurnir hugsi ekki sjálf-
ir um of.
Ráðamenn Reykjavíkur og
raunar forystumenn þeirra
flokka, sem hér láta hæst, virð-
ast sjaldan líta út yfir enda-
mörk bæjarins. Upp til landsins
sýnist sjóndeildarhringur þeirra
lokast af Esjunni og Henglinum,
nema sérstaklega standi á, t. d.
um alþingiskosningar. Og ég
hefi grun um það, að þeir áliti
landið naumast byggilegt, nema
hér við flóann, að minnsta kosti
ekki sveitirnar. Meira að segja
hér virðist sem sjón þeirra dapr-
ist, þegar dregur út fyrir Hring-
brautina, eða hvað finnst því
fólki, sem býr í úthverfum bæj-
arins? — Það fær að greiða út-
svör á sama hátt sem aðrir, en
nýtur það á sama hátt þeirra
þæginda, sem bærinn veitir? —
Það getur svarað því sjálft.
í stuttu máli virðist mér þessir
ágætu ráðamenn líta um of á
Reykjavík sem lítinn útgerðar-
og verzlunarbæ, sem umfram
allt þurfi að stækka, en ekki
sem höfuðborg landsins, sem
hafi skyldur að rækja við aðra
hluta þess. —
Ef til vill ætlizt þið til þess
áheyrendur góðir, að ég tíundi
hér einhver afrek, sem ég ætli
mér að vinna, ef ég kemst í bæj-
arstjórn. Þið verðið þó að virða
mér til vorkunar, að ég tel nóg
komið af loforðum og óskalist-
um, enda mun ég engu auka þar
við. E'n ef til kemur, mun ég
leitast við að láta fremur gott
af mér leiða en hitt í skiptum
við menn og málefni. Önnur
loforð gef ég ekki, en þetta
mundi ég reyna að efna, enda
væri mér það sjálfrátt. Hins má
ég geta, að menningarmálin eru
mér hugarhöldnust og á þeim
hefi ég helzt þekkingu, skóla
málum, íþróttamálum og öðru
því, sem varðar þroskaviðleitni
hins upprennandi fólks. Loks er
mér harla hugstætt, að bær og
land losni við hina erlendu gesti
sem setið hafa og sitja enn sam
týnis við oss, innlenda menn.
Þennan tíma skyldi nota til
sáttaumleitana og skyldu sátta-
nefndirnar hafa aðgang að öll-
um reikningum og gögnum fyr-
irtækjanna, svo að það lægi
greinilega fyrir, hvort kaup-
hækkanirnar væru þeim um
megn. Frumvarp þetta sætti
bæði mótspyrnu verkalýðsfélag-
anna, sem vildu halda áfram
verkamenn fari fram á nokkrar
kauphækkanir. Sú afstaða hefir
líka verið viðurkennd af Tru-
man forseta, sem hefir lagt til,
að verkamenn fengju almennt
nokkra kauphækkun. Hins veg-
ar er forsetinn og stjórnarvöld-
in mjög andvíg því að leyfa at-
vinnurekendum tilsvarandi verð
hækkun, því að slíkt myndi að-
eins leiða til verðbólgu og gera
kauphækkanirnar einskis virði.
Stjórnarvöldin telja sig einnig
hafa öruggar heimildir fyrir því,
að hagnaður flestra atvinnurek-
enda sé það mikill, að þeir þoli
verulegar kauphækkanir, án
þess að framleiðsluvörur þeirra
þurfi að hækka í verði.
Forustumenn verkalýðssam-
takanna í Bandaríkjunum eru
að því leyti frábrugðnir stéttar-
bræðrum sínum annars staðar,
að þeir lýsa sig yfirleitt fylgj-
andi einstaklingsfrelsh Þeir
segjast líka ekki óska eftir að
knýja fram kauphækkanir, ef
þær leiði til verðhækkunar. í
vinnurekenda, sem vildu fá að
halda leyndinni yfir afkomu
fyrirtækjanna. Niðurstaðan
varð sú, að þingið felldi þetta
frumvarp forsetans.
Um líkt leyti og Truman for-
seti lagði fram þetta frumvarp
sitt, lýsti hann einnig þeirri
stefnu sinni, að verkamönnum
bæri að fá nokkra kauphækkun,
þó ekki eins mikla og þeir hefðu
farið fram á. Jafnhliða lýsti
hann yfir því, að stjórnin myndi
ekki leyfa neinar teljandi verð-
hækkanir, enda þyrftu atvinnu-
rekendur þeirra ekki með, þótt
kaupið hækkaði nokkuð.
í samræmi við þessa stefnu
sína reyndi Truman' forseti að
koma á sáttum í stáliðnaðinum
í seinustu viku á þeim grund-
velli, að verkamenn fengju tals-
verða kauphækkun. Allir at-
vinnurekendur í stáliðnaðinum
neituðu þessu, nema Kaiser,
iðjuhöldurinn frægi. Verkfall er
því hafið í stáliðnaðinum, nema
hjá fyrirtækjum Kaisers.
ÞAÐ HEFIR VAKIÐ eftirtekt nokk-
uð margra, hvernig tvö stærstu blöð
bæjarins, Morgunblaðið og Þjóðviljinn,
heyja kosningabaráttuna. Eitt helzta
vopnið virðist vera alls konar inni-
haldslausar og ómerkilegar skrípa-
myndir af innlendum mönnum og er-
lendum. Hver hugsandi maður hlýtur
að rpyrja: Hvers konar fólk er það,
sem þessi blöð eru að leitast við að
afla sér fylgis meðal, 'með þessum
aðferðum? Hvaða hugmyndir eru það,
sem ritstjórar þessara blaða gera sér
um lesendahópinn? Þeir gera sýnilega
ekki ráð fyrir, að fólk etandi á háu
menningarstigi. Og þessum skeleggu
ritstjórum flökrar sýnilega ekki heldur
við að notfæra sér og sínum málstað
lágar hvatir og lítinn menningar-
broska, þar sem sl’kt kynni að vera
til staðar. „Af reiðskapnum kennist,
hvar heldri menn fara,“ segir í pétri
Gaut.
ANNAÐ DÆMI varpar nokkuð
skæru ljósi yfir innra ástand þessara
sömu manna. í verkamannafélaginu
Dagsbrún stóð yfir stjórnarkosning.
Þar var bitizt um tvo framboðslista.
Að öðrum stóðu kommúnistar og
Sjálfstæðirmenn — hinum Alþýðu-
flokksmenn. í varaformannssæti á
lista Alþýðuflokksmanna var roskinn
verkamaður, er lengi hefir tekið tals-
verðan þátt í baráttu alþýðustéttanna
í Reykjavik fyrir bættum lífskjörum
og á því vafalaust merkari sögu að
baki en kjaftaskar og lýðskrumarar,
er nú gala hæst í skjóli meirahlutans.
Til hvaða vopns skyldi svo forráða-
menn Þjóðviljans hafa gripið til þess
að níða atkvæði Dagsbrúnarmanna
af þessum roskna félaga? Jú — á
! sunnudaginn birtist í blaðinu mynd
| af tillögu, sem þesri maður er sagður
hafa flutt á félagsfundi fyrir þremur
árum. Markmiðið er sýnilega það, að
spotta þennan mann er sjálfsagt hefir
ekki átt kost á miklu skólanámi í
æsku, fyrir ritvillur og böngulegt orða-
lag. Hvað segja heiðarlegir menn, sem
eru ekki blindaðir af ofstæki, um
svona aðfarir? Og hvað finnst rjálfum
Dagsbrúnarmönnunum í liði komm-
únista um þetta, þegar mesti víga-
móðurinn er runninn af þeim? Er
þetta sæmandi bardagaaðferð? Er
rosknum verkamanni láandi, þótt rétt-
ritun hans sé ekki að öllu leyti sam-
kvæmt nýjustu skólareglum? Nei .—
hér hefir verið beitt svívirðilegu vopni
— aðferð, sem skylt er að fordæma,
án tillits til stjórnmálaskoðana eða
afstöðu til Dagsbrúnarkosninga að
öðru leyti. Hér hefir verið að verki
rangsnúinn hugsunarháttur — sið-
spilling, er sækja ber til saka. Um
þessi alvöruorð vildi ég, að flestir
hugsuðu.
RAUNHÆFT ÁSTALÍF heitir bók,
er kom út fyrir skömmu, segir í bréfi
frá einum lesanda blaðsins. Og þó að
ég sé að skrifa ykkur um þetta núna
mitt í kosningasennunni, þá fjallar
hún ekki á neinn hátt um samlíf
Sjálfstæðismanna og kommúnista, sem
nú er mjög tíðrætt um. Þetta er aðeins
mjög hversdagsleg bók um það, er
ranglega hefir verið kallað feimnis-
mál. En það, sem mig langar til að
vekja sérstaka athygli á er þetta:
í þersari bók eru fáeinar innsiglaðar
myndir (og þó ekki tryggilegar inn-
siglaðar en svo, að hægt er að losa
innsiglið án þess að brjóta það). Hefir
í þessari nýjung verið mjög á loft hald-
| ið í auglýsingum um þessa bók, —
sennilega i þeim tilgangi að læða því
inn hjá fólki, að þarna sé eitthvað
meira en áður hefir sézt í bókum. En
þegar að er gætt, eru þetta aðeins
hinar algengustu myndir af fóstur-
myndunum og iíffærum, er sjá má í
tugum bóka, þar sem ekki hefir verið
beitt þeirri hugvitssemi, að „innsigla"
þær. Með öðrum orðum: Innsiglið er
tiltæki, sem gripið hefir verið til i
blekkingarskyni við fákænt fólk. Þetta
er rétt, að allir viti. Við slíkum aðferð-
um ætti fólk að gjalda varhuga, þótt
á hinn bóginn sé síður en svo um
það að fást, þótt gefnar séu út sæmi-
legar bækur um kynferðirmál. Það er
auðvitað sjálfsagt að skrifa og lesa um
þau fyrirbæri lífsins jafnt og önnur.
I Grímur í Görðunum.
Hvernig deilum þessum muni
lykta, sem eru hin mestu átök
milli laúnþega og atvinnurek-
enda, í Bandaríkj unum til þessa
dags, verður engu spáð á þessji
stigi. Mikið getur oltið á þeim
ráðstöfunum, sem stjórnin kann
að gera. En það virðist stefna
stjórnarinnar að sporna gegn
því að heildartekjur verka-
manna rýrni að nokkru ráði.
Stjórnin segir, að það muni
draga úr kaupgetunni, en minnk
uð kaupgeta leiði fljótlega af
sér samdrátt í framleiðslunni,
l ’
en það þýði atvinnuleysi. Heldur
því stjórnin fast við þá stefnu
Roosevelts, að ein helzta leiðin
til að örva framleiðsluna og
vinna gegn atvinnuleysinu, sé
sem mest og almennust kaup-
! geta.
Anker Kirkeby:
Hver var Kamelíufrúin?
(Framhald).
Það, sem einna mest einkenndi ]
Kamelíufrúna, þ. e. a. s. hina
raunverulegu Kamelíufrú, og
það sem enn þann dag í dag
grípur okkur við lestur sögunn-
ar, er hið göfuga eðli hennar
og góða hugarfar og velvilji
hennar. Aldrei varð neitt
hneyksli kennt við hana og þó
að hún hefði oft getað misnotað
trúnað vina sinna, gerði hún
það aldrei. Dumas segir sjálfur
á einum stað í endurminning-
um sínum: „Hún var ein hinna
seinustu léttúðarkvenna, er átti
hjarta. Það var þess vegna, að
hún dó svo ung.“
Hinn ungi rithöfundur hitti
hana í fyrsta sinn kvöld eitt í
Théatre des Variétes. En hann
kom þangað með vini sínum og
jafnaldra Eugéne Déjazet. Á
hliðarsvölunum næst leiksvið-
inu hægra megin sat hin undur-
fagra Marie Duplessis og hjá
henni de Stackelberg greifi,
sem var nokkuð við aldur, en
virðulegur og alvörugefinn. í
skáldsögunni er hann kallaður
„gamli hertoginn.“ Hann hafði
misst dóttur sína á baðstað
nokkrum. Hún var honum mjög
ástfólginn, enda eina barnið
hans. Þegar greifinn sá Marie
Duplessis varð hann svo hrifinn
af fegurð hennar, og því hvað
hún líktist dóttur hans, sem ný-
lega var dáin, að hann bauð
henni að taka hana að sér í
dóttur stað, en hún vildi ekki
taka því boði. En mikill og góð-
ur vinskapur tókst samt með
þeim eigi að síður, eins og hún
væri dóttir hans. Þó að hann
kæmist að raun um hið raun-
verulega líferni hennar, hélt
hann samt áfram að gefa henni
ríkulegar peningagjafir, án þess
að krefjast neins þakklætis í
staðinn.
Dumas varð þegar við fyrstu
sýn ákaflega ástfanginn af
henni. Þeir vinirnir fylgdu
henni eftir heim um kvöldið,
að leiksýningu lokinni og í
gegnum baðherbergisglugga
hennar komust þeir í nánari
kynni við hana seinna um nótt-
ina. Greifinn hafði hegðað sér
eins og hverjum föður bar að
gera og aðeins ekið henni heim
að hliðinu. Ungur, óþreyjufull-
ur aðalsmaður rauk þá til henn-
ar við innganginn, en honum
var þegar í stað varpað á dyr.
En fyrir sólarupprás hafði hið
unga skáld tjáð gleðikonunni
ást sína og næsta kvöld varö
hún hans.
Marie átti þá heima í lítilli
en mjög skrautlegri íbúð, Boule-
vard de la Madeleine nr. 11.
Hús þetta er erm þá uppistand-
andi, en er nú nr. 15 við götuna.
Herbergin voru mjög smekkleg
og full af dýrmætum gjöfum frá
hinum ýmsu tilbiðjendum
hennar. Það var septembernótt
árið 1844, að ástarævintýri
Mumas og Marie hófst. Dumas
og ástmey hans voru bæði tví-
tug að aldri, þegar þau kynnt-
ust. Hann gerði sér í upphafi
ekki grein fyrir þeim afleiðing-
um, er kunningsskapur þessi
mundi hafa og hvað hann myndi
kosta hann. Marie þurfti 600
þús. franka um árið í vasapen-
inga og í bréfi til Cuvillier-
Fleury segist skáldið þurfa á 300
þús. frönkum að halda. En svo
dýrt hafði það orðið honum að
lifa í París á þessum léttúðar-
innar tímum. Hann komst að
raun um, að Marie lét ekki af
uppteknum hætti hvað peninga-
eyðslu snerti og hann varð því
að sætta sig við örlög hins ó-
gæfusama elskhuga. Um nætur
beið hann úti fyrir lokuðum
dyrum hennar, fullur ótta og
eftirvæntingar. Að lokum gat
hann ekki haldið út lengur.
Siðla næsta sumar gat hann
ekki lengur stillt sig um að
skrifa henni eftirfarandi bréf:
Mín elskaða Marie!
Ég er ekki nógu ríkur til að
elska yður á þann hátt, sem ég
kýs, og ekki verður þess að þér
elskið mig á þann hátt, sem ég
þér kjósið. Við skulum bæði
gleyma því nafni, sem einskis-
virði er, fyrir yður, og ég ham-
ingju, sem ég get ekki höndlað.
Ég þarf ekki að segja yður
hversu örvinglaður ég er, þvi þér
vitið sjálf hve heitt ég elska yð-
ur. Takið því á móti seinustu
kveðju minni. Þér hafið svo
göfugt hjartá, að þér skiljið
hinar sönnu ástæður fyrir þessu
bréfi mínu. Góðmennska yðar
er meiri en svo, að þér getið ekki
miðlað mér nokkru af henni.
Á miðnætti 30. ágúst.
A. D.
Þetta var árið 1845, svo sam-
band þeirra hefir því aðeins
staðið í 11 mánuði.
Framhald.