Tíminn - 21.02.1946, Síða 1

Tíminn - 21.02.1946, Síða 1
RITSTJÓRI: \ ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON ÚTGEFANDI: ) FRAMSÓKNARFLOKKURINN Símar 2353 og 4373 S PRENTSMIÐJAN EDDA h.í. __________ _____ ____ 30. árg. RITSTJÓRASKRIFSTOFUR: EDDUHÚSI. Lindargötu 9 A ■ Símar 2353 og 4373 ' _s ; AFGREIÐSLA, INNHEIMTA \ OG AUGLÝSINGASKRIFSTOFA: ) EDDUHÚSI, Lindargötu 9 A \ Sími 2323 \ 30. blað Mynd þessí er af hugvitsmanninum Fleming, er fann upp Penicilinið, undralyfið nýja. Bandaríkjamenn vita einir atom- leyndarmálið Byrnes utanríkismálaráðherra Bandaríkjanna skýrði blaða- mönnum frá því í gær, í sam- bandi við kanadiska njósnamál- ið, að Bandaríkjamenn væru þeir einu, sem vissu leyndar- dóminn um gerð kjarnorku- sprengjunnar. Hann kvað allar lausafregnir um að' fleiri ríki vissu um samsetningu kjarn- orkusprengjunnar gripnar úr lausu lofti. Brezkur atomfræð- ingur áréttaði þetta enn betur í gær, þar sem hann sagði, að þó að Bretar og fleiri þjóðir hefðu unnið að atomrannsóknum í samráði við Bandaríkjamenn, vissu þeir einir um gerð kjarn- orkusþrengj unnar. Nordentoft málið Ekkert einstakt mál hefir vak- ið jafn mikið umtal í Danmörku í vetur og Nordentoft málið svo- kallaða. Skólastýra fjölmenns barnaskóla, Inger Nordentoft, sem nýlega hafði verið kjörin á þing fyrir Kommúnistaflokk- inn, bað um þriggja mánaða frí frá störfum, þar sem hún ætti barn í vændum. Þessi beiðni hennár vakti mikla athygli, þar sem hún var ógift, og kröfðust fjölmargir kennarar og prestar (Framhald á 4. síðuj. ERLENDAR FRÉTTIR I STUTTU MÁLI — Umræður um utanríkismál hófust í brezku málstofunni í gær. Formælandi íhaldsmanna lagði áhei-zlu á, að reynt yrði að fá upplýst, hvað vekti fyrir Rússum, er þeir krefðust auk- inna yfirráða við Miðjarðarhaf- ið. — Keynes lávarður var í gær skipaður forstjóri Alþjóðabank- ans. — Indverskir stjórnmálamenn og indversk blöð fagna þeirri ákvörðun brezku stjórnarinnar, að senda þrjá ráðherra til Ind- lands, til viðræðna við Indverja um aukna sjálfsstjórn. Einkum er því fagnað, að Sir Stafford Cripps skuli hafa verið valinn í förina. (Framhald á 4. síðuj. Stjórnarliðið beitir bændur nýju ofbeldi ÍVeitar að verða vlð óskiim bónaðarsam- bandaniia í biínaðar- málasjóðsinállni^ Stjórnarliðið í neðri deild samþykkti í gær tillögu þeirra Jóns Pálmasonar og Sigurðar Guðnasonar um að taka búnaðarmálasjóð af Búnaðarfélagi íslands og skjpta honum milli búnaðar- sambandanna. Hefir þó mik- ill meirihluti búnaðarsam- bandanna óskað eftir að máli þessu verði frestað þangað til aðalfundir þeirra geti látið álit sitt uppi. Stjórnarliðið fer hér að eins og endranær að hafa tilmæli og óskir búnað- arsamtakanna að engu. Fyrir deildinni lá að vísa mál- inu frá með svohljóðandi dag- skrártillögu, er flutt var af Gísla Sveinssyni: „í trausti þess, að ríkisstjórn- in feli Búnaðarfélagi íslands að leita umsagnar búnaðarsam- banda Iandsins'um þetta mál, eins og það liggur nú fyrir, áður en það hlýtur fulnaðaraf- greiðslu, svo tímanlega, að það verði lagt fyrir aðalfundi sam- bandanna á næsta vori, og komi álit þeirra síðan fyrir Alþingi, — tckur deildin fyrir næsta mál á dagskrá.“ Tillaga þessi var felld með 16:14 atkvæðum. Með henni greiddu atkvæði allir þingmenn Framsóknarflokksins, nema Sig- urður Þórðarson (hann var fjar- verandi), Gísli Sveinsson, Jón Sigurðsson, Pétur Ottesen, Barði Guðmundsson og Stefán Jóhann Stefánsson, en á móti henni greiddu atkvæði Gunnar Thor- oddsen, Ingólfur Jónsson, Jón Pálmason, Ólafur Thors, Jóhann Jósefsson, Hallgrímiir Bene- diktsson, Sigurður Kristjánsson, Ásgeir Ásgeirsson, Emil Jónsson, Finnur Jónsson og allir við- staddir þingmenn kommúnista. Sigurður Bjarnason greiddi ekki atkvæði, en fjarverandi voru Garðar Þorsteinsson, Sigurður Hlíðar og Lúðvík Jósefsson. Með þessu hefir stjórnarlið- ið bætt gráu ofan á svart í þessu máli, þar sem það vill ekki einu (Framhald á 4. síðu). Hefst verkfall í fyrramálið? Verkamenn í Reykjavík og Hafnarfirði munu hef ja verk- fall í fyrramálið, ef ekki hef- ir náðst samkomulag áður um nýja kaupsamninga milli atvinnurekenda annars vegar og verkamannafélaganna hins vegar. Sáttasemjari fékk Dags- brúnarmálið til meðferðar fyrir nokkrum dögum, en hafði ekki lagt fram neina sáttatillögu í gær. Ríkis- stjórnin mun líka raunveru- Iega hafa málið í sínum höndum og munu ráðherrar Sjálfstæðisflokksins hafa unnið að því undanfarið að fá atvinnurekendur til að fallast á kauphækkanir. Hvað lengi loforð sitt draga stjórnarflokkarnir að efna um skömmtun byggingarefnis? Fjölmargar íbúðabyggingar stöðvast eða stórtefjast vegna skorts á timbri og fleiri byggingarvörum Fyrir bæjarstjórnarkosningarnar lofuðu allir stjórnarflokk- arnir því, að þeir skyldu beitast fyrir skömmtun á byggingar- efni, svo að tryggt yrði nóg byggingarefni til nauðsynlegra íbúða- bygginga. Enn hefir þó ekkert bólað á framkvæmdum á þessu sviði og hefir þó þörf slíkrar ráðstöfunar aldrei verið meiri en nú. Þvert á móti hefir stjórnarliðið fellt á Alþingi þingsályktun- artillögu um byggingarmálin frá Hermanni Jónassyni, þar sem stjórninni var falið að gera slíka ráðstöfun. Um þessar mundir er ákaf- lega mikil skortur á ýmsum byggingarefnum, þótt hann sé tilfinnanlegastur á timbri. Af þeirri ástæðu hafa margir ekki getað byrjað á íbúðarbygging- um, sem þeir höfðu undirbúið að öðru leyti. Á sama tíma og nauðsynlegar íbúðarbyggingar stöðvast þannig af völdum timburskortsins, er hins vegar byrjað á ýmsum byggingum, sem hæglega virðast • þó geta beðið og tvímælalaust eiga minni rétt á sér en íbúðabygg- ingarnar. Má þar nefna ýms verzlunarhús, bíó, o. fl., o. fl. Þessi óverjandi misnotkun byggingarefnisins stafar af því, að ekkert er gert af opinberri hálfu til þess að beina því til réttra aðila. Innflutningsleyfin eru veitt verzlunum, sem síðan ráðstafa byggingarefnjnu eftir eigin geðþótta. Vitanlega hafa svo gróðamennirnir forgangs- rétt hjá þeim, en þeir, sem minna mega sín, verða að^mæta afgangi. Slíkt ástand er vissulega með öllu óþolandi, eins og húsnæðis- málunum er nú komiðt Það er talandi dæmi um ómennsku og sofandahátt þeirra ráðherra- nefna, sem taldir eru fulltrúar verkalýðsflokkanna í ríkis- stjórninni, að þeir skuli una því, að stórgróðamennirnir skuli þannig geta ráðstafað bygg- ingarefninu eftir vild sinni á sama tíma og þúsundir manna búa við algerlega ófullnægjandi húsakynni, m. a. vegna þess, að byggingarefnisskortur ýmist stöðvar eða stórtefur fjöl- margar íbúðabyggingar. Hér er vissulega um mál að ræða, sem almenningur má ekki lengur láta afskiptalaust. Hann verður að krefjast þess, að hætt sé að stjórna þessum málum með hagsmuni stórgróða mannanna einna fyrir augum, en til óhags þeim, sem verst eru settir. Það má ekki þola rík- isstjórninni það lengur og þá sérstaklega félagsmálaráðherr- anum, er þessi mál heyra undir, að byggingarefnið sé látið ó- skammtað. Það verður að taka tafarlaust upp skömmtun á byggingarefni, er tryggir þeim byggingum, sem nú er mest þörf fyrir, íbúðabyggingunum og byggingum í þágu framleiðsl- unnar, skýlausan forgangsrétt, en lætur verzlunarbyggingar, bíó, sumarhallir og önnur luxus- hús mæta afgangi. Vanræki stjórnin þetta, er það kjósendanna að gera þess- ar sakir upp við stuðningsflokka hénnar í kosningunum í vor. Verður rafmagn frá Laxarvirkj- uninni leitt um allt Norðurland? Þingsályktunartillaga frá níu þwgmöimum Norðlcndinga Níu þingmenn Norðlend- inga, Skúli Guðmundsson, Jón Pálmason, Bernharð Stefánsson, Garðar Þorsteins- son, Björn Kristjánsson, Sig- urður Þórðarson, Jón Sigurðs- son, Sigurður E. Hlíðar og Jónas Jónsson hafa lagt fram í sameinuðu þingi tillögu til þingsályktunar um rafveitu Norðurlands. Tillagan er svohljóðandi: Alþingi ályktar að fela rikis- stjórninni að láta hraða áætl- unum um virkjun Laxár.í Suður- Þingeyjarsýslu, er miðist við að fullnægja raforkuþörf Norður- lands, svo að unnt sé að leggja fullnaðaráætlanir um virkjun- ina fyrir næsta Alþingi í byrjun þe^s. Ennfremur að afla tilboða í efni í háspennulínur frá orku- verinu til Raúfarhafnar í Norð- ur-Þingeyjarsýslu og um Suður- Þingeyjar-, Eyjafjarðar-, Skaga- fjarðar-, Austur- Húnavatns-, og Vestur-Húnavatnssýslu og efni í aðalspennustöðvar í þessum héruðum, og sé þessah* tilboða leitað svo tímanlega, að þau geti legið fyrir, þegar næsta Alþingi kemur saman. Þá verði einnig hið fyrsta lokið við að gera kostnaðaráætlun um virkj- un Laxár í Austur-Húnavatns- sýslu, og ef hagkvæmt þykir að koma upp orkuveri þar, heimilist ríkisstjórninni að verja fé úr (Framhald á 4. síðu). Verða útvarpsgjöldin ekki líækkuð? Melriiil. fjárveitinjga* ncfndar andvíg'ur liækkimiiini Fjárveitinganefnd Alþingis hefir klofnað um þá ákvörð- un menntamálaráðherra að hækka afnotagjald útvarps- ins úr 60 kr. í 100 kr. Leggur meirihluti nefndarinnar til að afnotagjaldið haldist óbreytt. í tilefni af þvi, að ráðherrann hafði fyrirhugað þessa hækkun í samráði við útvarpsstj óra og útvarpsráð, báru þrír þingmenn fram tillögu þess efnis að hækk- unin næði ekki til straumtækja. Minnihluti fjárveitinganefndar, Gísli Jónsson og fulltrúar kommúnista, hafa lagt til, að þessari tillögu verði vísað frá og hækkunin látin afskipta- laus af þinginu. Meirihlutinn (fulltrúar Framsóknarmanna, Guðmundur I. Guðmundsson, Pétur Ottesen og Sigurður Kristjánsson) leggja hins vegar til, að hækkunin verði ekki lát- in koma til framkvæmda og af- notágjaldið látið haldast ó- breytt. í áliti meirihlutans segir, að rök hans séu „fyrst og fremst þau, að rekstur útvarpsins er (Framhald á 4. síðu). Mynd þessi er af franska stjórnmála- manninum Pierre Flandin, sem mjög kom við sögu fyrir styrjöldina. Hann var um skeið utanríkicmálaráðherra hjá Petain og því tekinn fastur á síð’- astliðnu ári. Nú hefir bonum verið sleppt lausum.-því að sannast heflr að hann var hliðhollur Bandamönnum. Afli að glæðast í gær var gott veður umsallt Suðurland, kyrrt og bjart. Allir bátar, sem gerðir eru út við Faxaflóa, voru á sjó í gær, og virtist afli vera mikið að glæð- ast. Það sem af er vertíðinni hafa verið stirðar gæftir og mjög tregur afli. Hlutur sjó- manna hefir því orðið mjög rýr, það sem af er vertíðinni, eða á fáum bátum meiri en mánað- arkaupstrygging sjómanna nem- ur, en hún er 1200 krónur á mánuði. Oglæsilegar upplýsingar um lokun iðngreinanna f Reykjavík eiiini vantar nni 1300 iðnsvcina Nefnd, sem ríkisstjórnin skipaði síðastl. sumar til að athuga þörf atvinnuveganna fyrir sérlærða menn, hefir komizt að meira en athyglisverðri niðurstöðu um afleiðingar þær, sem hlotizt hafa af lokun iðngreinanna. f áliti, sem hún hefir nýlega skilað, telur hún, að iðnsveinum hér í bænum þyrfti að fjölga um 1170—1190 á þessu ári, auk venjulegrar aukningar, ef fullnægja ætti þörf- inni fyrir sérlærða menn/í þessum iðngreinum. Niðurstöður nefndarinnar eru að öðru leyti þær, að á næstu fimm árum sé þörf nýrra há- skóla- og tæknilega mennt- aðra manna, sem hér segir (svigatölur tákna menn, sem nú eru við nám): Byggingaverkfræðinga 36, rafmagnsverkfræðinga 19, véla- verkfræðinga 32, efnaverkfræð- inga 10 (í þessum greinum eru 62 við nám eða hafa lokið námi), landbúnaðarverkfræðinga 2—4, húsameistara 15 (8), landmæl- ingafræðinga 6 (1), landskipta^. fræðinga 2, háskólamenntaðra búfræðinga 25 (2—3), dýralækna 6 (1), grasafræðinga 2 (3), dýra- fræðinga 2—3 (4), gerlafræð- ing 1, jarðfræðinga 2 (2), „geo- tekniker" 2, veðurfræðinga 10— 12 (2), skógræktarfræðinga 2 (Framhald á 4. síðuj. Þjóðleikhúsið ekki tilbúið fyrr en 1947 Viðgerð þjóðleikhússins er nú að mestu lokið, og búið að ganga frá múrverki og leiðsl- um í húsinu að mestu leyti. En nokkur töf mun enn verða á því, að nauðsynlegur leik- sviðsútbúnaður fáist frá út- löndum og húsið mun pví ekki verða tilbúið til sýninga fyrr en á næsta ári. Þegar brezki herinn fór úr húsinu, var það ákaflega illa farið. Fita og málning var á öll- um gólfum og flestum veggjum hússins. Það varð að höggva nær því alla múrhúðun innan úr (Framhald á 4. síðu).

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.