Tíminn - 21.02.1946, Qupperneq 3

Tíminn - 21.02.1946, Qupperneq 3
30. blað TÍHEBVN, fimmtudagiiui 31. febr. 1946 3 Úr bókaheiminum: Smásagnasafn eftir Huldu Pyrir fáum dögum kom út ný bók eftir skáldkonuna Huldu. Nefnist hún í ættlandi mínu. Útgefandinn er Bókfellsútgáf- an. í þessari nýju bók eru tuttugu smásögur er .skáldkonan hefir sami'ö' seinni árin. Það er hvort tveggja, aö ekki eru tök á þvi a'ð lýsa hér þessum sögum og einkennum þeirra, og hitt, að þess gerist ekki þörf, þegar i hlut á fólk, er kann skil á ís- lenzkum bókmenntum. Það verður að nægja að segja, að þessar sögur eru hold af holdi skáldkonunnar og blóð af henn- ar blóði. Þær eru stílfögur æv- intýri, þrungin lotningu og til- beiðslu á fegurð lífsins. Rithöfundarferill Huldu er bæöi orðinrt langur og merkur. Þrjátíu og sjö ár eru bráðum liðin síðan fyrsta bók hennar, Kvæði, kom út, og senn fylla bækur hennar annan tuginn. Engri íslenzkri konu hafa auðn- azt "slík afköst á sviði skáld- skapar — og það, sem meira er um vert: Engin íslenzk kona hefir af fjölhæfum gáfum sín- um numið jafn vítt svið á vett- vangi skáldskaparins og hún og orðið þar jafn farsæl sem hún. Hún hefir jöfnum höndum ort ljóð og skrifað ævintýri, samið langar skáldsögur og smásögur. Og það mun sannast mála, að enn hafi menn ekki gert sér ljóst, hve merkilegur áfangi í íslenzkri skáldmennt ljóðagerð hennar Hefir verið og hver áhrif hún hefir haft á samtíð sína óg yngri kynslóð skálda í land- inu, enda hefir því hvergi verið gerð réttmæt og viðeigandi skil í rituðu máli-, er komið hafi fyrir almenningssjónir. Hvað- eina bíður síns tíma. Og þegar þetta verður kannað og metið eins og vergugt er, mun Hulda þykja enn athyglisverðara skáld — einmitt sökum þess, að'í ljóö- um hennar bjó sá lífsmáttur, er færði nýtt fjör og nýjan vöxt í bókmenntir okkar, beint og ó- beint. Menn þurfa þó ekki að hafa Hulda (XJnnur Benediktsdóttir) þetta fyrst og fremst í huga, er þeir taka sér þessa nýju bók skáldkonunnar í hönd. Þeir geta óhræddir sezt niður og lesið hana vegna hennar sjálfrar i öruggri vissu þess að standa aftur upp auðugri og skyggnari á lífið og blæbrigði þess. J. H. Fréttir fra í. S. í. Ungmemiasamband Kjalar- nessþings, hefir gengið í Í.S.Í. í sambandinu eru 3 félög: Umf. Afturelding, Umf. Drengur og Umf. Kjalnesinga, með gamtals ;93 félagsmenn. Formaður sam- bandsins er Gísli Andrésson á Hálsi í Kjós. ★ Staðfest íslands met. 4X50 metra bringuboðsund kvenna. Sveit Glímufél. Ár- manns. Árangur 3:02,6 mín., sett 14/11. Staðfest Í7/1 síðastl. 100 metra bringusund kvenna,.- Methafi Anna Ólafsdóttir (Á). Árangur 1:32,7 mín., sett 14/11. Staðfest 17/1 1946. arkennd, og óskin um að hverfa í sjálfan mig eykst með aldrin- um. Slík einangrun er stundum bitur, en ég sé ekki eftir því, þó að ég fari á mis við siúlning og samúð annara manna. Ég tapa vafalaust einhverju á þvi, en ég jafna það upp með því að vera óháður venjum, skoðunum og hleypidómum annarra, og ég freistast ekki til að byggja hug- arrósemi mína á svo forgengi- legum hlutum. Pólitísk hugsjón mín er lýðræði. Sérhver maður ætti að njóta virðingar sem ein- staklingur, en engan ætti að til- biðja. Það er kaldhæðni örlaganna, aö mér skuli hafa verið sýnd óumbeðin og óverðskulduð að- dáun og virðing. Ef til vill er þetta smjaður runnið af þeirri ófullnægðu ósk fjöldans að skilja þær fáu hugmyndir, sem ég af veikum mætti hefi reynt að setja fram. Mér er það vel ljóst, að til þess að ná ákveðnu takmarki er nauðsynlegt, að einn maður hugsi og fyrirskipi og beri mest af ábyrgðinni, en það á að leiða fólk en ekki rel:a það, og því ætti að verg, leyft að velja leið- togann. Mér virðist hæpið að skipta mönnum í mismunandi stéttír, a. m. k. byggist þa'ð á afli. Ég er sannfærður um, að for- heimskan f-ylgir hverju ofbeld- iskerfi, því að ofbeldi krefst ó- hjákvæmilega mjög lítils sið- gæðisþroska. Sagan hefir sannað okkur, að eftirmenn frægra harðstjóra eru þorparar. Af þessum ástæð- um hefi ég alltaf verið ákveð- inn mótstöðumaður slíks stjórn- arfyrirkomulags sem ríkt hefir í Rússlandi, Þýzkalandi og Ítalíu. Orsakir þess, að trú manna á hið evrópiska lýðræðisfyrir- komulag hefir beðið hnekki, er ekki að finna í grundvallaratrið- um lýðræðishugsjónanna, held- ur í óhæfni pólitískra leiðtoga og óþersónulegu eðli flokka- skipulagsins. Ég vil sagt hafa, að það, sem er raunverulega dýrmætt í okkar veraldaranistri, er ekki þjóðin, heldur hinn skap- andi áhrifamikli einstaklingur, hinn mikli persónuleiki — sá, sem skapar það göfuga og lotn- ingarverða á meðan fjöldinn þrammar í sljóleik sínum. Þetta atriði minnir mig á hið aumasta atriði hópmennskunn- ar, hinn ógeðslega herdýrkanda. Maður, sem hefir ánægju af skipulögðu arki eftir íalli trumbunnar, á mina dýpstu fyrirlitningu. Hann hefir fengið skynsemi sína af misgáningi, mænan hefði verið honum yfrið nóg. Þessi þjónkun við valdið, þetta skefjalausa ofbeldi, þessi háværi þegnskapur vonzkunnar við föð- urlandiö — hversu innilega fyr- irlit ég ekki þetta. Styrjaldir eru niðurlægjandi og fyrirlitningar- verðar, og ég léti heldur höggva mig í spað, en taka þátt í slík- um leik. Þessa mannlegu valbrá ætti HANS MARTIN: SKIN OG SKÚRIR betur með starfi manna okkai;. Hækkið ágóðahlut yfirmann- anna af farmgjöldunum — þá mun áhugi þeirra aukast ....“ „Þér talið við mig eins og ég sé steinrumiin náttugla, sem ekki veit lengur, hvað gerist kringum mig, Bosman.“ „Því fer fjarri. En þó að þér séuð ekki gamall maður, þá ....“ „Ég er rétt í’úmlega fjörutíu og fimm ára.“ „En þér eruö mjög einmana. ... og ef ég má vera svo djarfur að segja það: þér eigið við svo margar áhyggjur að stríða.“ Nú verður þögn. Wijdeveld horfir út um gluggann, virðir fyrir sér litlu bryggjuna, þar sem kössum og pokum hefir yerið hlaðið saman .... Þessi litla bryggja hefir ávallt blasað við aug- um hans, þegar hann hefir litiö út um gluggann — allt frá þeim degi, er faðir hans kvaddi hann til starfs í fyrirtæki sínu fyrir tuttugu og átta árum.... Sólin hellir geislum sínum yfir laufguð irén.... græritim og gullnum blæ slær á vatnsflötinn.... vél- bátur baksar hjá.... „Þér eigið við svo margar aðrar áhyggjur að stríða... .“ Hann heyrir sífrandi rödd Lúsíu, sér kæruleysislegt glott Karels sonar síns — Karels, sem ekki gerir neitt annað en að safna skuldum í Leiden —hann sér drembinn svip Maríönnu — hinnar léttúðugu, sundurgerðarmiklu, útsláttarsönn; dóttur sinnar.... Þannig er heimilislíf hans — engin samkennd, engin eining.... ekkert nema stórhýsið í Wassenaar, mitt í hinum stóra og skrautlega garði — margar þernur, bifreiðastjórar, þjónar, garðyrkjumenn — boð, kvöldveizlur, hávaði, umstang, ánauð .... ekkert jafnvægi, aðeins áhyggjur, þrautir, þján- ingar.... „Ég ætla að tala við van Meegen í kvöld,“ segir hann loks. Bosman svarar ekki. „Höfum við ekki afskrifað óþarflega mikiö? Er ekki eitthvað, sem hægt er að gera til þess að jafna reikningana dálítið?“ ,,Þér vitið það eins vel og ég, herra Wijdeveld. .. . Gjöldin eru ekki óeðlilega mikil — það eru tekjurnar, sem eru of rýrar. Viljið þér sjá, hvað við höfum ætlað mikið fyrir afskriftum?“ „Nei — ég verð að flýta mér heim.“ „Þá skrifa ég undir reikninginn.“ „Við höfum þá ekki komið auga á neitt úrræði, Bosman?“ Bökarinn nemur staðab við dyrnar. Hár hans er hæruskotið, og það eru djúpir drættir kringum munninn. Augun eru grá og hvöss. „Þessi augu sjá.allt,“ sagði gamli Wijdeveld einu sinni. „Ég hefi ve»ið hér svo lengi, herra Wijdeveld, að mér leyfist ef til vill að segja það, sem mér býr i brjósti?" „Auðvitað, Bosman." „Ég minntist áðan á áhyggjur yðar, herra Wijdeveld. R,eiðist mér ekki, þótt ég víki aftur að því. Ef þér fórnuðuð stórhýsi yðar — skæruð niður alla þessa risnu, létuð allt þetta þjónalið sigla sinn sjó, lifðuð kyrrlátara lífi — þá mundu tekjurnar af einka- auð yðar nægja til þess að bera hallann hér — og þá mynduð þér líka losna við margháttað mas og óþægindi." Hurðin lokast. Bosman er farinn. ★ Wijdeveld starir á gáraöan vatnsflötinn milli skuggsælla trjánna. .*. Vaxt^tekjur hans nema nokkrum hundruðum þús- unda á ári .... nokkrum hundruðum þúsunda .... það er mikið fé .... hér fer næstum daglega hvert tugþúsundið af öðru í súginn. Fyrirtæki hans riðar á heljarbarmi .... hvað gerðist, ef það yrði gjaldþrota? Sjómennirnir, afgreiðslumennirnir, skrif- stofufólkið myndi leita sér vinnu annars staðar. Aldrað fólk, sem lengi hefir þjónað honum dyggilega, yrði auðvitað að fá eftir- laun. Skipin fjögur, sem bera nöfn Wijdeveldsfólksins, myndu lenda í höndum annarra .... En hann gæti búið áfram í Was- senaar og lagt rækt við einkaeign sína, notið vaxtanna af verð- bréfum sínum — í stað þess að sóa lífi sínu í sífelld ferðalög í bifreiðum og járribrautarlestum — dag eftir dag, ár eftir ár — losnað við allt þetta amstur, sem fyllir hann aðeins kviða og gremju, en veitir honum ekki.neina ánægju. — Já, það er sann- leikur — ekki neina ánægju. Sú gleði, sem starfið veitti honum, hjaönaði fljótlega eftir fráfall föður hans í upphafi striðsins. Þá hafði þessi lamandi ótti við óvissuna og sú röskun, sem sí- hækkandi verðlag olli, komið í stað starfsgleðinnar. Hver lang- ferðin rak aðra — til Vesturheims, jafnvel Indlands. Veltan mapfaldaðist, ný skip voru keypt, gróðinn nam hundruðum þúsunda, jafnvel milljónum gyllina. Sumt rann til fyrirtækisins — að skera burt án tafar, og ég hefi þá hugmynd um mannlegt eðli, að ég álit, að'' það væri löngu um garð gengið, hefði ekki dómgreind þjóðanna verið brjáluð á kerfisbundinn hátt í skólum og blöðum af viðskipta- og stjórnmálaástæðum. Það fegursta, sem við vitum af í lífinu, er hin mikla dul. Hún er aðal allrar sannrar listar og vísinda. Sá, sem ekki hefir kom- ið að dyrum hennar og fyllzt lotningu — hann er verra en dauður, hann er blindaður. Þessar gægjur inn um gættir dularinnar, og þó með ótta, eru orsakir trúarbragðanna. Mið- depill allra sannra trúarbragða er meðvitundin um, að það, sem er okkur órannsakanlegt, er raunverulega til og opinberar sjálft sig sem hinn æðsta vis- dóm, hina algeru fegurð, sem við í sljóleik okkar aðeins skyxxj- um brot af* í þessum skilningi, get ég tal- izt i röðum innfjálgra trúmanna. Ég get ekki ímyndað mér guð, sem launar og refsar sköpunar- a> verki sínu og virðist hafa sama tilgang og við — í stuttu máli: guð, sem virðist ekki vera ann- að en endurskyn af mannlegum breyskleika. Ég get ekki heldur trúað því, að einstakiingurinn lifi líkama sinn, enda þótt vésalar sálir hýsi slikar hugsanir vegna ótta eða hlægilegrar sjálfgirni. Það' er nóg fyrir mig að virða fyrir mér hina miklu dul vitund- arlífsins, sem á rætur sínar í eilífðinni — og reyna af veikum mætti að' skilja aðeins óeixdan- lega litinn hluta af þeirri skyn- rænu, sem bírtist okkur í nátt- úrunni. \ Í slendingar! Þér, sem hafið áhuga á fögrum listum, ættuð að kynna yður greinaflokkinn „Verkin tala“, sem birtist í • öllum tölublöðum „Samvinnunnar“. Þar eru menn leidd- ir um undrastigu húsbyggingarlistarinnar frá öllum öld- um og hin talandi verk kynnt með glöggum og góðum myndum og nauðsynlegum skýringum. Samband ísi samvinnufélaga . * Framsóknarfélag kvenna í Reykjavík heldur fund 22. þ. m. í Affalstræti 12, kl. 8i/a síffd. Áríffandi mál á dagskrá. Skemmtiatriffi. Fjölmennið. STJÓRNIN. Félag Garðyrkjumanna heldur almennan félagsfund að Hverfisgötu 21, sunnu- daginn 24. febrúar, kl. 1,30. Fttmdarefni: 1) Kaupgjaldsmál. i 2) Önnur mál, sem upp kunna að vera borin. Stiórnin. I Tökum höndum saman (FramhaM af 1. tiðu) bændum alveg jafn hættuleg, þó a'ð þeir fengju fullt verð fyr- ir vörur sínar árið 1945. Það er engum efa bundið, að bessi dæmalausu lög, búnaðar- ráðslöíev, eru til orðin fyrir at- beina og áhrif þeirra stjórn- málamanna, er mestu ráða inn- an núverandi ríkisstjórnar. Fingraför þeirra sjást víða, ef starfsferill stjórnarinnar er vaxxdlega athugaður. Eitt atriði má nefna. Rikisstjórnin hefir bann hátt um afgreiðslu ýmsra mála að skipa nefndir, sumar allfjölmennar, og kalla þær ráff. Þessi stjórn mætti þvi heita ráffstjórn. Þessa umsvifamiklu stjórn- nálamenn dreymir mikla valda- drauma. Þeir ætluðu að taka Reykjavík með áhlaupi eftir áramótin. Þeir ætla að taka öll völd á íslandi í sínar hendur irinan tiðar Þegar þetta væri fram komið, yrði hér innleitt stjórnarfar eftir fyrirmynd frá áustur-Evrópu. Það yrði aðeins einn stjórnmálaflokkur og eng- um yrði þolað að tala eða skrifa neitt ljótt um stjórnina. Öll Reykjavík skal þá eta úr einni skál. En ekki er víst, að allir vilji taka við hinum nýja sið möglunarlaust. En ef til vill eru drauma- mennirnir ekki alveg vissir um, ið draumar þeirra rætist mjög fljótt. Þeir vita, að sveitafólkið mun treglega ganga þeim á hönd. Þeir vita, að frjáls hugsun á öruggan grundvöll í hinum dreifðu byggðum íslands. Þess vegna þykir þeim réttara að hafa í frammi nokkur stjórn- málaleg klókindi. Þeir vilja færa byggðina saman. Þetta er ofur einfalt i framkvæmdinni. Strjálbýlar sveitir og jafnvel heilír landshlutar fá ekki vegi sima né rafmagn. Það er svo dýrt, segja þeir. Sveitafólkið fær minna kaup en aðrir lands- menn, og réttindi þess eru smátt og smátt fengin í hendur ríkis- valdinu. Þetta er sú þróun, sem á að venja bændurna við ráð- jstjórnina, þangað til hið rétta augnablik byltingarinnar er komið. Hvernig lizt ykkur á blikuna, góðir íslendingar? Enn er ekki vitað, hversu vel bændur standa saman um hags- munamál sín og réttindi. Og það hljóta að vakna ýmsar spurningar í sambandi við það. Hver er til dæmis afstaða bænda i Húnaþingi, þeirra, er fólu Jóni Pálmasyni umboð sitt á Alþingi 1942? Líta þeir svo á, að hann hafi haft umboð til að fá ríkisvaldinu réttindi bænda, eða halda þeir því fram, að það hafi Verið einhver annar Jón Pálmason. sem það gerði 1945? Þessum spurningum verð- ur svarað á sínum tima. Það er ekki nóg, að bændur standi sartian í stéttarfélagi, því að þeir munu verða seinþreyttir til þeirra vandræða að hella niður þeirri mjólk, sem börn Reykjavíkur þurfa að fá. Þeir verða að fá aukin áhrif á Al- þingi. Og þá kemur aftur þessi spurning: Ætla bændur innan Sjálfstæðisflokksins að leyfa fulltrúum sínum á Alþingi að bera fyrir borð réttindi og hagsmuni sveitafólksins? Ef allir bændur landsins gera sér ljóst, hvar þeir standa nú og þoka sér saman í þétta íylk- ingu, þá mun hinn góði mál- staður sigra. En enginn bóndi má daufheyrast við kallinu, enginn má sofna á verðinum. Og gæti hver skyldu sinnar, munu þeir njóta virðingar ann- arra stétta, og þá munu þeim bætast traustir liðsmenn, því að fjölmargir í bæjum landsins skilja og meta hið menningar- lega gildi sveitanna og rétt þeirra, sem þar búa. Þetta fólk leggur til dæmis kapp á að koma börnum sínum í sveit t.il sumardvalar, til þess að þau megi njóta þar samlífs við hina gróandi náttúru. Einn af kunnustu h'eimspek- ingum þessarar þjóðar, sem. er búsettur í Reykjavík, hefir lát- ið orð falla á þessa leið: Land- iff sr<ækkar viff hvert býli, sem leggst í eyffi. í þessari stuttu setningu er fólginn mikilhsann- leikur.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.