Tíminn - 21.02.1946, Blaðsíða 4

Tíminn - 21.02.1946, Blaðsíða 4
Skrifstofa FramsóknarfLokksins er í Edduhúsinu v/ð Lindargötu. Sími 6066 4 ! REYKJAVÍK FRA M SÓKNA RM ENN! Komið 21. FEBR. 1946 skrifstofu Framsóknarflokksins! \ ____________________ 30. blað Ú R B Æ N U IK í dag. Sólaruppkoma kl. 8,08. Sólarlag kl. 17,17. Árdegisflæði er kl. 8,35. Síðdegis- flæði kl. 20,55. , í nótt. Næturakstur annast Bifreiðastöðin Hreyfill sími 1633. Næturvörður er í -Ingólfs Apóteki. Næturlæknir er í Iæknavarðstofunni í Austurbæjarskól- anum, sími 5030. Ljósatími ökutækja er frá kl. 17,20 til kl. 8,05. Útvarpið í kvöld. . Kl. 20,20 Útvarpshljómsveitin (Þór- arinn Guðmundsson stjórnar): a) For- leikur að óperunni „Rakarinn í Sevilla" eftir Rossini. b) Lög úr óperettunni „Betlistúdentinn" eftir Mielöcker. c) Mars eftir Sousa. 20,45 Lestur forn- 17/2). Selfoss er í 'Leith. Reykjafoss fór frá Reykjavík kl. 10 í gærkföldi vestur og norður. Buntline Hitch fór frá Reykjavík kl. 8,30 í gærmorgun til New York. Empire Gallop er í New- York. Anne er í Middlesbourgh. Lech er í Grimsby (kom 15/2). 25 ára hjúskaparafmæli áttu í gær (20, febr.), Helga Guð- laugsdóttir og Guðmundur Ólafsson, Vogatungu við Langholtsveg. Aðalfundur starfs- i mannafélags ríkisstofnana var haldinn í fyrradag. Á íundin- um fór fram stjórnarkosning og voru þessir menn kosnir: Ingólfur Jónsson, formaöur og meðstjórnendur Þórhall- ur Pálsson, Birgir Thorlacius, Rann- veig Þorsteinsdóttir og Guðjón Bald- rita: Þættir úr Sturlungu (Helgi Hjörvar). 21,15 Dagskrá kvenna (Kvenfélagasamband íslands). 21,40 Frá útlöndum (Gísli Ásmundsson). 22,00 Fréttir. Auglýsingar. Létt lög (plötur). 22,30 Dagskrárlok. Skipafréttir. Brúarfoss fór frá Leith kl. ^19,00 í fyrradag til Reykjavíkur. Fjallfoss er í Reykjavík. Lagarfoss er í Oslo (kom / stuttu máli (Framliald af 1. síðu) — Indversku sjóliðarMir í Bombay, sem gerðu verkfall og efndu til óeirða í fyrradag, héldu þeim áfram í gær og bættust nýir sjóliðar í hópinn. Herlið hefir verið sent á vettvang, en indversku sjóliðarnir krefjast þess, að Bretar kalli her sinn heim úr Indlandi. — Halifax lávarður, sem nú er á förum frá Bandaríkjunum, var staddur í Chicago í gær, að kveðja þar. Hann lét svo um- mælt, við það tækifæri,að Bretar og Bandaríkjamenn þyrftu enn að auka mikið á samstarf sitt. Þeir ættu ékki einungis að starfa saman í' stríði, heldur einnig í friði, sagði hann. Eldsneytismálaráðherra Bretlands skýröi frá því í gær, að námumönnum væri nú aft- ur farið að fjölga í Bretlandi og bættust 300—400 nýir námu- verkamenn við á viku hverri að jafnaði. Ráðherrann taldi þó ekki líkur til að námurnar gætu farið að starfa aftur af fullum krafti fyrr en eftir 3y2 ár. — Brezka stjórnin hefir boðið Churchill og með-ráðherrum hans að vera viðstöddum sigur- hátíðina, sem halda á í Bret- landi í sumar. — Brezka stjórnin hefir skip- að Kilearn lávarð sem ráðgef- andi fulltrúa sinn i Austur-Asiu- málunum. Mun hann starfa í samráði við Wawell varakonung og Mountbatten lávarð. Kilearn lávaröur er mjög kunugur Aust- ur-Asíu-málum og hefir í 7 ár verið sendiherra Breta í Kína. Aðsetursstaður hans í hinu nýja embætti mun verða í Singapore. — í fyrraáag var það tilkynnt frá páfastólnum í Róm að lokið væri útnefningu 32 kardínála. — Barnadauði af völdum van- næringar veldur Frökkum mikl- um áhyggjum, en á seinasta ári létust þar 90 þús. börn á fyrsta ári eða tíunda hvert barn, sem fæddist. íbúatala Frakk- lands er um 40.1 millj. eða 1.4 milíj. lægri en 1940. Þó féllu ekki nema 400 þús. Frakkar í stríðinu. vinsson. Gjaldmælar væntanlegir. Gjaldmælar í leigubifreiðar eru væntanlegir frá Svíþjóð á næstunni. Koma um 100 slíkir mælar með skip- inu Anne, sem er á förum frá Eng- landi til Svíþjóðar, en kemur síðan til íslands. Söfnun Rauða Krossins tii Mið-Evrópulanda. Guðrún Sigurjónsdóttir Rvík 50.00, Guðbjartur Torfason, Lyngholti 40,00, Hallfríður og Gugbjörg Rvík 100,00, Guöbrandur og Gréta Rvik 50,00, N.N. 50.00, Þórdis Þorvaröar Rvík 20,00, H.K.H. Rvík*50,00, K.S.V. Rvík 25,00, P.J. 20,00, Ásgeir Höskuldsson 100,00. Gjafir þessar hafa veriö afheptar í af- greiðslu Tímans seinustu dagana. Hjónaband. Nýlega voru gefin saman í hjóna- band ungfrú Ingibjörg Tryggvadóttir og séra Jakob Kristinsson fyrrv. fræðslumálastjóri. Heimili þeirra er að Reykhúsum í Eyjafirði/ Hjónaband. Nýiega voru gefin saman i hjóna- band af séra Þorgrími Sigurðssyni, Staðarstað, ungfrú Sólveig Jónsdóttir, Hofi, Skagafirði, og Ásberg Sigurðsson lögfræðingur, Reykjavík. Hjúskapur. í gærkvöldi kl. 6 voru gefin saman í hjónaband af biskupnum, Sigurgeir Sigurðssyni, ungfrú Guðrún Jónsdótt- ir og Valdimar Björnsson, sjóliðsfor- ingi. Samdægurs fóru brúðhjónin með e.s. Reykjafossi til ísafjarðar, þar sem þau munu dveljast nokkra daga. Hjónaefni. Nýlega hafa opinberað trúlofun sína ungfrú Guðmunda Sigurðardóttir, Ás- ólfsstöðum í Gnúpverjahreppi og Pétur Hofmann, fyrrum fiskikaupmaður í Reykjavík. Leiðrétting. Þegar skýrt var frá kosningaúrslit- um á Húsavík í 20. tbl. Tímans kom- ust inn nokkrar villur, sem hér eru leiðréttar. Þar voru 4 seðlar ógildir. Við seinustu kosningar 1942 fékk Al- þýðuflokkurinn 64 atkvæði, en lisbi Sósíalistaflokksins 163 atkvæði. Stjórnarliðið beltir ... (Framhald af 1. síðu) sinni verða við þeim óskum bún- aðarsamtakanna, að bændur fái tækifæri til að segja álit sitt um. málið. Ekkert liggur þó á að afgreiða málið fyrr en á næsta þingi, því að þegar er búið að ráðstafa fé búnaðarmálasjóðs fyrir þetta ár samkvæmt gild- andi lögum og geta ný lagafyr- irmæli ekkert hróflað við þeirri ákvörðun. I».ióifleikhúsið (Framhald af 1. síðu) húsinu og upp úr gólfunum og múra að nýju. í sambandi við það verk voru gerðar ýmsar smávegis breytingar á innrétt- ingu hússins. Nú' er því verki að heitá má lokið og einnig búið að ganga frá lögnum um húsið. Að öðru leyti verður ekki hægt að ganga frá húsinu fyrr en leiksviðsáhöld og vélar eru ,komnar til landsins. Sæti hafa heldur ekki fengizt enn. Öll styrjaldarárin hafa staðið yfir tilraunir til að fá vandað- ar leiksviðsvélar frá Bandaríkj- unum, og hafði loks tekizt að fá loforð fyrir vélunum að styrjöldirjni lokinni. En eftir ný- ár í vetur barst bréf þess efnis, að ekki væri neitt hægt að segja um, hvenær hægt væri að af- greiða þessar vélar frá Banda- ríkjunum. Nú hafa verkföllin, sem undanfarið hafa staðið yfir í vélaiðnaði Bandaríkjanna, tafið stórlega allar framkvæmd- ir. Auk þess tekur alllangan tíma að smíða þessar vélar og tilheyrandi ■ leiksviðsútbúnað. Eins og stendur, er því ekki bú- ið að ganga frá vélakaupum í leikhúsið og verður jafnframt reynt, hvort vélarnar fást ekki fyrr frá Svíþjóð. Líkur benda til, að sennilega verði betra að fá leiksviösútbúnaðinn þaðan. Svíar hafa að visu ekki eins mikla reynslu í smíði leikhús- véla og Bandaríkjamenn, en þeir hafa þó smíöaö að öllu leyti vélar og sæti í tvö stór og mjög vönduð leikhús, sem byggð voru í Svíþjóð á styrjaldarárunum. Þjóðleikhúsið verður í alla staði hið vandaðasta. Það verð- ur klætt ’innan með „finer“- panei. í því verða ekki aðrar veitingasölur en svaladrykkja og sælgætissölur, enda tíðkast það ekki í beztu leikhúsum er- lendis. Sætin verða mjög vönd- uð, en í leikhúsinu verða sæti fyrir 6—7 hundruð leikhúsgesti. Leiksvið og allur leiksviðsút- búnaður verður eins fullkominn og vandaður og bezt gerist í er- lendum leikhúsum. Útvarpsgjöldin (Framhald af 1. síðu) fullkomlega tryggður með sörhu afnotagjöldum og verið hafa. En auk þess er' líklegt, að tekjur útvarpsins af viðtækjaverzlun muni aukast verulega á þessu ári. Að sönnu munu uppi ráða- gerðir um það að hefja á þessu ári stórbyggingu fyrir útvarpið. En meirihl. er því mótfallinn og telur ekki fært að verja meiru en þegar er ákveðið með fjár- lögum til annarra bygginga en ibúðarhúsa af því byggingarefni, sem fást mun flutt trl landsins á þessu ári.“ Mál þetta myn væntanlega bráðlega fá afgreiðslu hjá Al- þingi. TRÉSMÍÐAMEISTARI með full réttindi úskast til |»ess að veita for- slöðu við byggingu ÍH jó 1 li iirsa 1111 aliúss oj* 9 leikfiinihúss á Blömluósi á komandi sumri. Húsnæði fyrir fjolskyldu getnr fengizt með- an á verki stendur, ef óskað er. — Uppl. í teiknistofu landbúnaðarins í Búnaðarbank- anum, sími 4811. <♦. Verður rafiiiagu frá ... (Framhald af 1' síðu) ríkissjóði á þessu ári til kaupa á efni og vélum til þeirrar virkj- unar. í greinargerð tillögunnar segir: " . Á Norðurlandi munu skilyrði til stórrar vatnsaflsvirkj unar bezt við Laxá í Suður-Þingeyj- arsýslu. Rafstöð Akureyrarbæj- ar þar er nú að verða ófullnægj- andi og veröur vafalaust stækk- uð innan skamms, annað hvort af kaupstaðnum eíia ríkinu. En athuganir, sem gerðar hafa ver- ið, sýna, að einnig muni auð- velt að byggja stóra aflstöð á öðrum stað við ána, nær upp- tökum hennar. Virðist æskil^gt, að ríkið komi upp aflmikilli raf- stöð við Laxá og veiti þaðan raf- magni um allar sýslur á Norður- landi. Hér er lagt til, að ríkisstjórn- inni verði falið að láta hraða áætlununum um virkjun Laxár, svo að fullnaðaráætlanir um byggingu stórrar rafstöðvar þar geti legið fyrir, þegar næsta Al- þingi kemur saman. Ennfremúr að afla tilboða í efni í háspennu- línur um Norðurland og aðal- spennustöðvar. Það er hægt að gera, þó að áætlunum um virkj- unina sé ekki lokið, og er hér lögð áherzla á, að tilboðanna í efni í aðalorkuflutningslínur og spennistöðvar verði leitað svo snemma, að þau gðti legið fyrir næsta Alþingi í byrjun þess. Nú er verið að vinna að áætl- unum um byggingu rafstöðvar við Laxá fremri í Austur-Húna- vatnssýslu, og mun því lokið inn- an skamms. Er gizkað á, að þar muni hægt að virkja 6—7 þús. hestöfl. Er hér lagt til, að ríkis- stjórninni verði heimilað að verja fé úr ríkissjóði til kaupa á, efni og vélum til þeirrar raf- stöðvar, ef áætlanir sýna, að hagkvæmt sé að koma4 þar upp orkuveri. En þótt sú virkjun, ef framkvæmd verður, mundi e. t. v. nægja Húnavatnssýslum fyrst um sinn, þykir eigi að síður rétt að leggja háspennulínu frá Laxárvirkjuninni í Þingeyjar- sýslu vestur í Húnavatnssýslur og tengja þessar tvær aflstöðv- ar saman. Má í þessu sambandi benda á, að óhjákvæmilegt er að veita rafmagni frá Laxár- yirkjuninni til Skagafjarðar, þar sem virkjunarskilyrði í því hér- aði eru óhentug, og aukakostn- aður við að framlengja há- spennulínu þaðan vestur í Húna- vatnssýslu er ekki mjög mikill. Nordcntoftmálið - (Framhald af 1. siðu) og ýms félagssamtök þeirra, að henni yrði algerlega vikið frá störfum, því að uppeldisleiðtog- ar, sem ættu að vera æskulýðn- um til fyrirmyndar, mættu ekki gera sig seka um ósiðsemi og lauslæti. Eftir miklar deilur og málaþras, ákvað skólanefndin loksins að láta hana fá umbeðið frí og halda starfi sínu áfram. Nordentoft, sem er 42 ára gömul, hafði á\rið á<$ur tekið kjördóttur og lengi látið þá ósk uppi, að hana langaði til að eignast barn. Andstæðingarnir buðu það fram til sátta á tíma- bili, að hún gæfi upp, hver barnsfaðirinn væri og giftist honum, en á það vildi hún ekki fallast. VinniSS ötullet/a fyrir Tímann. (jamla Síó Výja Bíó 6ATAN (KUNGSGATAN) Sænsk kvikmynd gerð eftir hinní kunnu skáldsögu Ivars Lo-Johanssons. Aðalhlutverkin leika: f Barbro Kollberg Sture Lagerwall Sýnd kl. 7 og 9. Börn innan 16 ára fá ekki ■ aðgang. UNDBABABNIB (Lost Angel) Margaret O’Brien, Sýnd kl. 5. Tíminn fœst í lausasölu á þessum stöðum í Reykjavík: Þorsteinsbúð, Hringbraut 61. Verzluninni Laugaveg 45. Flöskubúðinni, Bergst.str. 10. Leifskaffi, Skólavörðustíg. Bókabúð Kron, Hverfisgötu. Söluturninum. Filippusi Vigfúss., Kolasundi. Bókaverzlun Finns Einars- sonar, Austurstræti. Bókastöð Eimreiðarinnar, Að- alstræti. / Fjólu, Vesturgötu. J akobsstiginn Vel leikin sænsk mynd. Aðalhlutverk: Sture Lagerwall Gaby Sternberg Erik Berglund Sýnd kl. 9. Þegar regnið kom (The Rain Came) Stórmyndin fræga með: Tyrone Power. George Brent. Myrna Loy. Sýnd kl. 5 og 7. Bönnuð fyrir börn. 7jatnatbíc Að leikslokum Rússnesk söngvamynd úr ófriðn- um. Aðalhlutverk: Marina Ladinina Eugini Samoilov Ivan Liubezov Sýnd kl. 5, 7 og 9. LEIKFÉLAG REYKJAVÍKUR sýnir hinn sögulega sjónleik SKALHOLT (Jóm£rú Bagnheiður) eftir Guðmund Kamban aitnað kvöld kl. 8 (stundvíslega). Aðgöngumiðasala í dag kl. 4—7 Uokun iðngreinanna (Framhald af 1. síðu) (1), „biofysiker“ 1, vélstjóra til að stjórna stórum ræktunarvél- um 50—62. Þá telur nefndin vanta til starfa við f iskiðnaðinn: Vél- gæzlumenn 89, vélstjóra 40, verkstjóra 48, vélvirkja 10, rafvirkja 6, járnsmiði 15, tré- smiði 6. Þá hefir nefndin komizt að þeirri niðurstöðu, að séskileg aukning iðnsveina í Reykja- vík í ýmsum iðngreinum — umfram þá sveina, er væntan- lega útskrifast á þessu ári — sé þessi: húsasmiðir og tré- smiðir 228, málmiðnaðarmenn (járnsmiðir, vélvirkjar, málm- smiðir og rennismiðir) 248, bif- vélavirkjar og bifreiðasmiðir 131, ^nálarar 122, þjónar 100, þernur og framreiðslustúlkur 100, múrarar 99, klæðskerar 72, prentsetjarar og prentarar 40 —60, húsgagnabólstrarar 50, bókbindarar 33, húsgagnasmið- ir 32, skipasmiðir 30, rafvirkjar 21, bakarar 18, blikksmiðir 17, gull- og silfursmiðir 15, pípu- lagningarmenn 9, og úrsmiðir 4. Þessar síðastnefndu tölur gefa glöggt til kynna þær ömurlegu afleiðingar, sem lokun iðngrein- anna hafa haft í för með sér. Síldveiði við Noreg í vetur hefir verið óvenju góð síldveiði við Noregsstrendur. Vetrarsíldarafli Norðmanna er því orðinn mjög mikill. Hinn 17. þ. m. nam vetrarsíldarafli Norðmanna 1.383.870 hektólítr- um. Af aflanum hafa verið flutt- ir út ísaðir 145.541 hektolítrar. Nokkuð af síldinni hefir einnig verið saltað, eða 331.663 hekto- Aflasölur Síðan 13. þ. m. hafa eftirtalin skip selt afla sinn í Englandi: M.s. Capitana seldi 3422 vættir fyrir 10789 sterlingspund, B.v. Forseti seldi 3472 vættir fyrir 9308 sterlingspund, B.v. Skinfaxi seldi 2728 kits fyrir 10533 ster- lingspund, B.v. Belgaum seldi 3380 vættir fyrir 12469 sterlings- pund, B.v. Kópanes seldi 2400 vættir fyrir 7688 sterlingspund, B.v. Kári seldi 2541 vættir fyrir 7875 steriingspund, E.s. Sæfell seldi 6326 vættir fyrir 9775 sterlingspund, B.v. Gyllir seldi 3238 kits fytir 12012 sterlings- pund, B.v. Vörður seldi 3091 kits fyrir 11496 sterlingspund, B.v. Faxi seldi 3807 vættir fyrir 11281 sterlingspund, M.s. Sleipnir seldi 1173 vættir fyrir 3768 sterlings- pund og M.s. Narfi seldi 1411 vættir fyrir 4527 sterlingspund. Leiðrétting í frásögn minni til útvarps og blaða um samkomu þá, sem stúkurnar í Árnessýslu höfðu að Selfossi 12. janúar s.l., tókst svo illa til, að nafn frú Guðlaugar Narfadóttur hafði fallið niður. Var þetta sérstaglega óviðeig- andi þar sem frú Guðlaug er þingtemplar Árnesþings, og hef- ir unnið þeirri þingstúku af miklum áhuga og dugnaði og máiefnum Reglunnar yfirleitt. Er hér með beðist afsökunar á þessu leiðinlega ógáti. Pétur Sigurðsson. lítrar. 759.135 hektolítrar hafa verið látnlr í bræðslu. /

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.