Tíminn - 08.03.1946, Síða 1
30. árg.
Reykjavík, föstudagiim 8. marz 1940
RITST JÓRASICRIF£TOFUR:
EDDUHÚSI. Lli.dargötu 9 A
Símar 2353 og 4373
AFGREIÐSLA, INNHEIMTA
OG AUGLÝSINGASKRIFSTOFA:
EDDUHÚSI, Llndargötu 9 A
Sími 2323
41. blað
Stjórnarliðið lætur undan baráttu Framsóknar-
flokksins fyrir framfaramálum lándbúnaðarins
Það lætur flytja frv. um eflingu Ræktunar-
sjúðs og Ryggingar- og landnámssjóðs, sem
að tniklu leyti eru byggð á frumvörpum Fram-
sóknarflokksins
Þótt stjórnarliðið hafi sýnt frumvörpum Framsóknarflokksins
um eflingu ræktunarsjóðs og byggingar- og landnámssjóðs fyllstu
andúð og tómlæti, hefir það samt ekki þorað að sýna þessum
málum fullan fjandskap. Niðurstaðan hefir því orðið sú, að það
hefir látið Nýbyggingarráð semja tvö ný frumvörp, sem hafa nú
verið lögð fram í neðri deild. Fjallar annað þeirra um Ræktun-
arsjóð íslands, en hitt um landnám, nýbyggðir og endurbygg-
ingar í sveitum.
Um bæði þessi frv. er það að
segja, að það, sem horfir til
endurbóta í þeim, er tekið upp
úr áðurnefndum frumvörpum
Framsóknarmanna, t. d. um
aukin framlög, en jafnhliða eru
svo tekin upp í þau ýms ágæt
ákvæði úr gildandi lögum um
landnám ríkisins og nýbýli. Inn
í frumvörpin er svo skotið
nokkrum óheppilegum breyt-
ingum, sem eru til hins verra
og bersýnilega eru runnin und-
an rótum kómmúnista. Má t. d.
þar nefna að stofna á tvö ný
embætti, landnámsstjóra og
skipulagsstjóra íslenzkra byggða.
Samkv. frumvarpinu myndu
þessir menn verða eins konar
einræðisherrar í landnámsmál-
um og byggingamálum sveit-
anna. T. d. má ekki veita nein
lán úr byggingarsjóði, nema
skipulagsstjóri hafi áður úr-
skurðað að umrætt býli liggi vel
við samgöngum, síma og raflýs-
ingu. En þegar þessum breyting-
um er sleppt, má yfirleitt segja,
að frumvörpin séu til bóta.
Af hálfu Framsóknarflokks-
ins mun þvi verða reynt að
vinna að því, að frumvörp þessi
nái fram að ganga, jafnframt
og reynt verður að gera á þeim
æskilegar breytingar. Endur-
bætur þær, sem frv. felur í sér,
eru árangur af starfi hans og
mál þessi hefðu áreiðanlega ekki
séð dagsljósið, ef hann hefði
ekki hafið baráttu fyrir þeim og
lagt fram áðurnefnd frv. sín.
En þótt frumvörp þessi kom-
izt fram, er ekki þar með sagt,
að mál þessi séu komin í heila
höfn. Það er næsta sennilegt,
ef stjórnarliðið samþykkir þessi
frv., að það verði aðeins gert í
þeim tilgangi að flagga með
þeim í kosningunum, en hins
vegar sé það engan veginn ætl-
unin að framkvæma þau. Ör-
ugg framkvæmd slíkra umbóta-
mála verður aðeins tryggð með
því að efla Framsóknarflokkinn
í kosningunum.
Hvaö dvelwr Fiun?
Mynd pessi er af Norðmanninum Tryggve Lie. sem kjörinn var aðalritari
bandalags sameinuðu þjóöanna, og elztu dóttur hans. Norðmenn telja sér
það mikinn sóma, að landi þeirra skuli hafa verið kjörinn í þessa vanda-
sömu virðingarstöðu. Yfirleitt er þessari ráðstöfun líka vel tekið annars
staðar, því aö mikið orð hefir farið af Lie fyrir dugnað, samningalipurð
og glœsimennsku.
Frá bæjarstjórnarfundi:
Vagnstjóradeilan og beiðni
Fæðiskaupendafélagsins
Vilja stjórnir Alþýðusaiiibandsins og R.S.R.R.
fallast á, að vagustjórar fái kaup samkvæmt
10. launaflokki?
Bæjarstjórn Reykjavíkur kom saman til fundar í gærkvöldi,
og stóð fundur þessi í nær tvær klukkustundir. Meginumræðurnar
snerust um kaupdeilu þá, sem strætisvagnastjórar eiga nú í við
Reykjavíkurbæ.
Erlent yfirlit
Ný „hreinsun”'í j
Rússlandi
Þess hafa lengi þótt sjást
merki, að verulegur stefnu-
munur hafi verið ríkjandi í!
utanríkismálunum meðal að-
almanna kommúnista í Rúss-
landi. í því sambandi hefir
það vakið sérstaka athygli, að
fyrrverandi sendiherrar Rúss-
lands í London, Litvinov og
Maisky, voru ekki boðnir
fram í kosningunum til
rússneska þingsins, er fóru
fram í síðastl. mánuði.
Það var talið, að þeir Litvinov
og Maisky væru eindregnastir
stuðningsmenn þess, að Rússar
Litvinov
hefðu góða samvinnu við vest-
urveldin. Sama var álitið um
Beria, yfirmann rússnesku
leynilögreglunnar. En hann var
látinn hætta þvi starfi sínu um
áranyótin og var heldur ekki
boðinn fram til þingsins. Margir
fleiri áhrifamenn nöfðu þannig
horfið af sjónarsviðinu og virð-
ist því hafa verið hér um nýja
„hreinsun" að ræða.
Þetta þykir sýna, að stefna
hinna svokölluðu „einangrunar-
sinna“ hafi orðið sigursælli. í
þeim flokki eru hinir yngri
menn flokksins Malenko, And-
revev og Sdanov. Markmið þeirra
er að efla herinn sem mest og
tryggja Rússum sem mest yfir-
ráð í nágrannalöndunum, en
láta skeika að sköpuðu um al-
þjóðasamvinnu. Þótti það líka
athyglisvert, að í flestum kosn-
ingaræðum forkólfanna var lögð
áherzla á eflingu rauða hersins
og Bretar og Bandaríkjamenn
voru oft gagnrýndir. Hins vegar
var lítið eða ekkert minnst á
alþj óðasamvinnu.
Litvinov, sem talinn er hafa
verið aðaltalsmaður samvinn-
unnar við Vesturveldin, hefir
verið dreginn til baka einu
sinni áður. Það var 1939, er
Rússar hófu samstarf við Þjóð-
verja og fóru úr Þjóðabanda-
laginu. Þegar Þjóðverjar réð-
ust á Rússa og samstarf þeirra
og vesturveldanna hófst að nýju,
kom Litvinov aftur til sögunnar.
Nú er hann aftur látinn draga
sig í hlé. Hvort það tákriar nýja
stefnubreytingu Rússa í al-
þjóðamálum, leiðir reynslan í
ljós.
Enn er dregið
skömmtun á
Þótt þetta ófremdarástand sé
búið að vara lengi, virðist ekki
bera neitt á því, að ríkisstjórn-
in ætli að gera neitt til að bæta
úr því. Sérstaklega er það þó
félagsmálaráðhgrrann, sem hér
á hlut að máli, því að bygging-
armálin heyra undir hann. Sér-
hver félagsmálaráðherra, sem
hefði nokkurn áhuga fyrir að
bæta úr húsnæðisskortinum,
myndi vera búinn að láta hefja
skömmtun byggingarefnis fyrir
löngu. Aðgerðarleysi Finns staf-
ar annað hvort af fullkomnu á-
hugaleysi hans fyrir úrbótum í
húsnæðismálunum eða því, að
hann er algerlega undir áhrif-
um stórgróðamannanna, sem
vilja hvorki skömmtun eða aðr-
ar ráðstafanir í þessum efnum.
Reynt hefir verið að afsaka
þetta ábyrgðarleysi með því, að
ekki sé vitað um, hvað mikíð
byggingarefni muni fást inn-
flutt. Með slíkum forsendum má
að taka upp
byggingarefni
draga slíkar ráðstafanir enda-
laust á frest. Og meðan þessi ó-
vissa helzt, á ekki að láta bygg-
ingarefni nema tll nauðsynleg-
ustu bygginga.
Það verður að krefjast þess,
að félagsmálaráðherrann sofi
ekki lengur í þessu máli. Ef
flokkur hans vill nú sýna, að
hann sé jafnáhugasamur í þess-
um málum og hann lézt vera fyr-
ir bæjarstjórnarkosningarnar,
á hann að vekja þennan ráð-
herra sinn af þessum synda-
svefni ella gerist hann honum
samsekur.
íslenzkir skátar
munu fara á norrænt skátamót, sem
haldið verður í Svíþjóð í sumar. Eínn-
ig hefir islenzkum skátum verið boðin
þátttaka í skátanámskeiðum, sem
haldin verða i Danmörku og Sviþjóð í
sumar. Einnig hefir skátunum verið
boðin þátttaka í alþjóðamóti skáta,
sem haldið verður í París 1947. (85
skátar héðan hafa tilkynnt þátttöku í
Sviþjóðarskátamótinu).
Verkfall strætisvagnastjóra.
Borgarstjóri hóf þessar um-
ræður. Gerði hann grein fyrir
því, hvernig mál þessi stæðu.
Kvaðst hann að fenginni um-
sögn Bandalags starfsmanna
ríkis og bæja og Alþýðusam-
bands íslands um það, hvaða
kaup þessir aðilar teldu rétt-
mætt, að strætisvagnastjórarnir
fengu samanborið við aðrar
starfsstéttir, er helzt kæmu til
samanburðar, hafa boðið þeim
laun samkvæmt 11. launaflokki
starfsmanna bæjarins (en í þeim
launaflokki eru hámarkslaun
600 krónur á mánuði að loknum
sex ára starfstíma), þó þannig,
að alljr fengju vagnstjórarnir
nokkra kauphækkun frá því,
sem nú er (525 krónur á mán-
uði) auk sex prósent launaálags,
er rynni i lífeyrissjóð, enda
gerðust þeir fastir starfsmenn
bæjarins. Gegn þessu hefir
stjórn Hreyfils, en í því félagi
eru strætisvagnastjórarnir nú,
eindregið beitt sér. Hefir samn-
inganefnd, sem skipuð er for-
manni Hreyfils, þremur vagn-
stjórum og fulltrúa frá Alþýðu-
sambandinu, gert það gagntil-
boð, að kaupið verði 600 krónur
á mánuði, að viðbættum 6% í
sjúkrasjóð starfsmanna strætis-
vagna, enda yrðu vagnstjórarn-
ir áfram í Hreyfli. Kvða borg-
arstjórinn, að réttindi og skyld-
ur yrðu hér að fylgjast að, þann-
ig að vagnstjórarnir yrðu að ger-
ast fastir starfsmenn, ef þeir
vildu verða aðnjótandi sömu
réttinda og þeir.
Af þessu tilefni bar Pálmi
Hannesson fram þá fyrirspurn,
hvort það væri rétt, er sér hefði
verið tjáð, að strætisvagnastjór-
arnir myndu ef til vill vilja ger-
ast fastir starfsmenn, ef þeir
fengju kaup samkvæmt þeim
launaflokki, er þeir teldu sig
geta sætt sig við, til dæmis 10.
flokki, en í honum eru hámarks-
laun 650 krónur.
Spunnust nú út af þessu all-
miklar umræður, og tjáði borg-
arstjóri sig þá fúsan til þess að
greiða vagnstjórunum laun
samkvæmt 10. flokki, ef þeir
vildu að heldur gerast fastráðnir
starfsmenn og það lægi skýrt og
greinilega fyrir frá Alþýðusam-
bandi íslands og Starfsmanna-
bandalaginu, að þessir aðilar
teldu vagnstjórunum bera það
(Framhald á 4. síðu).
Afli Sandgerðis-
bátanna
Frá Sandgerði eru gerðir út
29 bátar á þessari vertíð. í jan-
úar voru stirðar gæftir og auk
þess hamlaði verkfall, er þar
stóð yfir í þeim mánuði, fram-
kvæmdum við útgerðina.
Um síðustu mánaðamót var
aflahæsti báturinn búinn að fá
12.321 1. af lifur í 26 róðrum. Var
það Leifur Eiríksson frá Dalvík.
Ársæll Sigurðsson frá Njarðvík
hafði aflað 11967 1. í 27 róðrum,
Egill frá Ólafsfirði hafði 5880 1. í
8 róðrum, Einar frá Eskifirði
fékk 8915 1. í 20 róðrum, Faxi
frá Gerðum fékk 11525 1. í 24
róðrum, Freyja frá Gerðum fékk
11555 1. í 20 róðrum, Hákon
Eyjólfsson frá Garði fékk 8180 1.
í 17 róðrum, Hilmir frá Eski-
firði fékk 5930 1. í 16 róðrum,
Hrönn frá Sandgerði fékk 11205
1. í 24 róðrum, Jón Björnsson
fékk 4825 1. í 12 róðrum, Jón
Finnsson frá Gerðum fékk 8255
1. í 21 róðri, Reynir frá Eski-
firði fékk 4075 1. í 13 róðrum,
Róbert Dan. frá Fáskrúðsfirði
fékk 9759 1. í 25 róðrum, Víðir
frá Garði fékk 11680 1. í 23 róðr-
um, Muninn frá Sandgerði fékk
10100 1. í 17 róðrum, Ægir frá
Gerðum fékk 8110 1. í 17 róörum,
Gyllir frá Keflavík fékk 8475 1.
í 17 róðrum, Ingólfur frá Kefla-
vík fékk 7420 1. í 15 róðrum,
Muggur frá Hafnarfirði fékk
7370 1. í 17 róðrum, Hafþór frá
Reykjavík fékk 4440 1. í 11
róðrum, Arngrímur Jónsson frá
Dalvík fékk 7245 1. I 16 róðrum,
Baldvin Þorvaldsson frá Dalvík
fékk 8375 1. í 17 róðrum, Barði
frá Húsavík fékk 7500 1. í 17
róðrum, Stuðlafoss frá Reyðar-
firði fékk 7195 1. í 17 róðrum,
Fylkir frá Norðfirði fékk 5710 1.
í 14 róðrum, Magni frá Norðfirði
fékk 1845 1. í 7 róðrum, Vonin
frá Norðfirði fékk 4515 1. í 15
róðrum, Freyja frá Norðfirði
fékk 4440 1. í 12 róðrum, Hilmir
frá Norðfirði fékk 5780 1. í 14
róðrum.
Innbrotsþjófar
handsamaðir
Rannsóknarlögreglunni hefir
nú tekizt að hafa hendur í hári
sumra þeirra manna, sem vaidir
hafa verið að hinum tíðu inn-
brotum hér í bænum að undan-
förnu. Likur benda einnig til
þess, að upplýsast muni bráð-
’ega, hverjir valdir hafa verið að
stórþjófnaðinum, er brotizt var
inn hjá Kveldúlfi á dögunum
og stolið peningaskáp með 16
þús. kr. Skápurinn fannst dag-
inn eftir við veginn, sem liggur
frá útvarpsstöðinni á Vatns-
endahæð að Elliðavatni og var
þá búið að brjóta hann upp og
taka úr honum alla peningana,
nema nokkur hundruð krónur í
skiptimynt. Það kom síðar í ljós,
að þjófarnir voru á stolnum bíl,
er þeir frömdu verknaðinn.
Fannst bifreiðin hjá Gróðrar-
stöðinni í Reykjavík nokkru
seinna.
Skorturinn á byggingarefni, sérstaklega timbri, verður stöðugt
tilfinnanlegri. Ýmsar nauðsynlegar íbúðabyggingar hafa ekki
getað hafizt. Á sama tíma eru hins vegar ýmsar miður þarfar
byggingar í fullum gangi, eins og bíóhús og ýms verzlunarhús.