Tíminn - 10.03.1946, Blaðsíða 1
RXTST J ÓR ASKRIFCTOFUR •
EDDUHÚSI. Ijii.dargötu 9 A
'Símar 2353 og 4373
AFGREIÐSLA, INNHEIMTA
OG AUGLÝSINGASKRIFSTOFA:
EDDUHÚSI, Lindargötu 9 A
Sími 2323
30. árg'.
Rcykjavík, siiunnilagiiiii 10. marz 1946
42. blað
Erlent yfirlit
Viðsjár stór-
veldanna vaxa
Viðsjár virðast enn fara
vaxandi meðal stórveldanna
og stafa þær nú einkum af
Irandeilunni. Síðan stríðinu
lauk, hefir ekki horft ver með
sambúð stórveldanna en nú.
Stjórnir Bandaríkjanna og
Bretlands hafa sent rússnesku
stjórninni orðsendingar í tilefni
af því, að Rússar hafa ekki farið
með her sinn úr landi á til-
skildum tíma og hafa með því
rofið loforð sín við þessi ríki
og Iran. Orðsending brezku
stjórnarinnar hefir ekki verið
Byrnes ntanríkisráðherra Banda
ríkjanna.
birt, en orðsending Bandaríkja-
stjórnar heíir verið birt í aðal-
atriðunum. Er þar krafizt að
Rússar farfi strax með her sinn
úr Iran og er óskað tafarlausra
^vara af þeirra hálfu.
Rússneska stjórnin hefir enn
©kki svarað þessum orðsending-
um, þótt hún hafi fengið þær
fyrir nær viku síðan. Hún hefir
heldur ekki svarað eldri orð-
(Framhald á 4. síðu).
ERLENDAR FRÉTTIR
í STUTTU MÁLI
— Ákveðið hefir verið, að láta
þjóðaratkvæðagreiðslu fara
fram á Ítalíu um það, hvort þar
eigi að vera konungsstjórn eða
lýðveldi.
— Stjórnin í Japan er að und-
irbúa nýja stjórnarskrá. Fyrir-
hugað er, gð þar verði þing-
bundin konungsstjórn.
— Kanadastjórn hefir ákveð-
ið að lána Bretum 300 milj. stpd.
með hagkvæmum kjörum. ’
— Frakkar hafa ákveðið að
leggja Spánarmálið fyrir Ör-
yggisráðið. Bretar hafa lýst sig
því mótfallna.
— Eldur kom upp í stórskip-
inu Queen Elizabet í Southamp-
ton í fyrradag. Óttast er um, að
hér sé um skemmdarverk að
ræða.
— Vörn í máli Görings hófst
í Nurnberg í fyrradag.
— 3000 hollenzkir hermenn
gengu á land í Batavíu í gær og
eiga að taka við af indverska
og brezka hernum þar, sem nú
er verið að flytja í burtu.
— Rússar hafa handtekiö
nokkra þýzka embættismenn á
hernámssvæðum Bandamanna i
Berlín.
r-—1—— ----— ------------~-í
„Öðruvísi raér
áður brá”
Bráðabirgðalög ríkis-
stjórnarinnar um búnað-
arráðs voru til 2. umræðu í
efri deild í fyrradag og
urðu um þau allmiklar
umræður. Lögin voru síð-
an borin upp til samþykkt-
ar, eins og venja er við 2.
umræðu, og voru þau sam-
þykkt með atkvæðum
stjórnarliðsins gegn at-
kvæðum Framsóknar-
manna.
Verulega athygli vakti
það, að rétt áður en at-
kvæðagreiðslan hófst, fór
Jónas Jónsson útúr þing-
salnum og var fjarverandi
meðan atkvæðagreiðslan
fór fram. Meiri áherzlu
lagði hann ekki á það að
veita bændamálsstaðnum
liðveizlu sína, og munu
vissulega margir um það
segja: „Öðruvísi mér áður
brá.“
Eimskipafélagið sem-
ur um smíði á tveim
skipum
Eimskipafélag íslands hef-
ir nýlega samið við Bur-
meister & Wain í Danmörku
um smíði tveggja nýrra skipa.
Annað þeirra er 2600 smál.
flutninga- og farþe^askip, en
hitt 1750 smál. farþegaskip.
Flutningaskipið á að vera
tilbúið í nóvember 1947, og
kostar um 6 millj. kr., en far-
þegaskipið í júní 1948 og
kostar um 11 millj. kr.
Áður hefir Eimskipafélagið
samið við sama íyrirtæki um
smíði á tveimur 2600 smái.
flutningá- og farþegaskipum,
sem verða tilbúin í nóvember
1946 og febrúar 1947.
Farþegaskipið á að geta tek-
ið 117 farþega á 1. farrými, 60
farþega á öðru farrými og 44
farþega á 3. farrými, eða alls
221 farþega. Það fer 16y2 sjó-
mílu á venjulegri siglingu og
verður því 2y2 sólarhring frá
Reykjavík til Leith og 6V2 sólar-
hring til New York.
Kaupsamningum
sagt upp -
Matsveina- og veitingaþjóna-
félag íslands hefir sagt upp nú-
gildandi samningum við Eim-
skipafélag íslands og Skipaút-
gerð ríkisins frá 1. apríl n. k.
Var þetta ákveðið á aðalfundi
félagsins á þriðjudaginn og
jafnframt ákveðið að láta fara
fram allsherjaratkvæðagreiðslu
um að heimila stjórninni að
hefja vipnustöðvun 1. apríl, ef
ekki hafa náðst nýir samningar
fyrir þann tíma.
í stjórn félagsins voru kosnir
Böðvar Steinþórsson, formaður,
Þórir Jónsson, María Jensdóttir,
Edmund Eriksen og Tryggvi
Þorfinnsson.
Atvinnumálaráðh. viðurkennir, að stjórnin hafi
unnið slælega að markaðsöflun fyrir sjávaraf urðir
Athyglisverðar umræður um fisksölu-
málin. í neðri deild
Við 1. umræðu um frumvarp sjjórnarinnar „um ráðstafanir
vegna útflutnings á afurðum bátaútvegsins“, ræddi Eysteinn
Jónsson allmikið um fisksölumálin almennt, auk þess, sem
hann sýndi fram á, að frv. væri ófullnægjandi, eins og sagt
er frá á öðrum stað. Einkum taldi Eysteinn, að stjórnin hefði
unnið mjög slælega að því að afla nýrra markaða fyrir sjáv-
arafurðirnar.
Þá álít ég, sagði E. J., að al-
Aætlunarferðir Eim-! Sjálfstæðismenn kjósa
Það eru fleiri en stjórnarand-
stæðingar, sagði E. J., sem
undrast það, að nú skuli vera
næstum heill her íslenzkra
manna út um flest lönd, ýmist i
einkaerindum eða opinberum
sendiferðum, en aðeins tveir af
þeim skuli vera að vinna að því
að afla nýrra markaða. En mér
vitanlega aa-u nú ekki aðrir að
vinna að þessum málum en
Pétur Benediktsson sendiherra
og Ólafur Jónsson úr Sandgerði.
Á sama tíma og þannig er á-
statt hjá okkur, höfum við
fréttir af því, að samkeppnis-
þjóðir okkar, t. d. Norðmenn,
hafi nú fjölda erindreka víða
um lönd til að vinna að mark-
aðsöfluninni.
Að mínum dómi, hélt E. J. á-
fram, hefði átt að hefja skipu-
lega markaðsleit strax eftir
styrjöldina og taka upp viöskipta
samninga við allar þær þjóðir,
sem líklegt var að tekizt <gætu
viðskipti við. En ekki hefir enn
verið gengið frá viðskiptasamn-
ingum, nema við tvær þjóðir,
Finna og Tékka, sem hvorug >§r
líkleg til mikilla viðskipta fyrst
um sinn. Á sama tíma hafa
keppinautar okkar yfirleitt gert
samninga við þessar þjóðir, t.
d. sömdu Norðmenn við Sviss-
lendinga fyrir nokkru. Við erum
yfirleitt alls staðar á eftir.
veg sérstaklega hefði átt að
hefja samninga við sjálfar sam-
keppnisþjóðirnar, t. d. Norð-
menn, ym að forðast óheilbrigða
samkeppni í fiskverzluninni.
Ein aðalástæðan til hins lága
fiskverðs fyrir styrjöldina vgr
sú, að fiskveiðaþjóðirnar buSu
þá fiskverðið niður hver fyrir
annarji. Af þessu hafa áreið-
anlega fleiri þjóðir lært en
íslendingar og möguleikar fyrir
samkomulagi um þessi mál því
átt að verða meiri nú en áður.
Þá minntist E. J. á löndunar-
erfiðleika íslenzkra skipa i |
Bretlandi og spurði atvinnu- j
málaráðherra um, hvort' ríkis- i
stjórnin hefði gert nokkrar sér-
stakar ráðstafanir í því sam-
bandi. Einnig spurði hann# um,
hvort ríkisstjórnin hefði tryggt
að nægar saltbirgðir væru til í
landinu, ög hvers vegna stjórnin
hefði ekki gert neinar ráðstaf-
anir til að tryggja nóg skip til
fiskflutninga.
Loks minntist svo E. J. á salt-
fiskverzlunina. Það væri aug-
ljóst, að við þyrftum að fram-
leiða allmikið af saltfiski næstu
árin og sennilega væri bezt að
geta selt hann þurrkaðan. En
engir möguleikar væru nú til
þess að verka hann með sama
(Framhald á 4. síðu).
skipaf élagsskipanna
Eimskipafélag íslands hef-
ir nýlega sent blaðinu grein-
argerð, þar sem það skýrir
frá fyrirætlunum um ferðir
skipa sinna næstu mánuðina.
Eru þær í liöfuðatriðum þess-
ar:
Ráðgert er að tvö skip haldi
*uppi siglingum til Gautaborgar
og Kaupmannahafnar, þ. e.
„Lagarfoss“ og leiguskipið
„Anne“, meðan það fæst leigt,
eða annað skip, sem þá kæmi
í þess stað.
í Englandsferðum verða fjög-
ur skip. Er ráðgert, að „Reykja-
foss“ og „Lech“ sigli til Hull og
Leith, „Lublin“ til Hull eingöngu
og „Horsa“ til Leitfl, eingöngu.
Þó má gera ráði fyrir, að hafnar
verði fastar ferðir til Antwerpen
stíax og um einhverja vöru-
flutninga er að ræða, og verður
„Lublin“ væntanlega í þeim
ferðum, ásamt Hull-ferðunum.
Þá er og ráðgert, að tvö skipin,
væntanlega „Reykjafoss“ og
(Framhald á 4. síðu).
' \
Sendiherraskipti
Danska stjórnin hefir til-
kynnt, að Fr. le Sage de Fon-
tenay sendiherra i Reykjavik
hafi verið skipaður sendiherra
Dana í Ankara frá 1. maí næst-
komandi að telja. Frá sam^,.
tíma hefir C. A. Bruun sendi-
sveitarfulltrúi í Washington
verið skipaður sendiherra Dana
í Reykjavíl^p
kommúnista í banka-
ráð Landsbankans
Þau tíðindi gerðust á fundi
Landsbankanefndarinnar s.l.
fimmtudag, að Sjálfstæðis-
menn kusu kommúnista í
stað Sjálfstæðismannsins,
sem fór úr bankaráðinu, enda
þótt þeir hefðu atkvæðamagn
til að koma honum að.
Landsbankanefndarfundurinn
var haldinn til að kjósa banka-
ráðsmenn í stað þeirra Gunnars
Viðar og Jónasar Guðmunds-
sonár, sem höfðu lokið kjör-
tímabili sínu. Kosnir voru i
þeirra stað Jónas Haraldsson og
Kjartan Ólafsson. Kjartan var
studdur af Framsóknarmönn-
um.
í nefndinni eru sex Sjálfstæð-
ismenn af 15 alls, og gátu þeir
því hæglega endurkosið Gunnar
Viðar eða einhvern annan
Sjálfstæðismann í hans stað. En
þeir kusu heldur að koma
kommúnista í ráðið í þeirri von,
að það framlengdi stjórnarsam-
vinnu þeirra og Ólafs Thors.
Fer það nú að verða skiljan-
legt, að þegar fimm menn voru
kosnir í Landsbankanefndina í
vetur, lét Sjálfstæðisflokkurinn
þá Pétur Ottesen og Gísla
Sveinsson fara úr henni, en
kaus í staðinn „lítilsigldari
menn“, eins og Vísir orðar það,
eða þá Gunnar Thoroddsen og
Lárus Jóhannesson.
Nánara er rætt um þessa sögu-
legu kosningu á 2. síðu í blað-
inu í dag.
Stjórnarfrumvarpið um stuðning við bátaútveg-
inn veitir iionum ekki fullnægjandi hjálp
Frá fyrstn umræðuimi í ncftri tlcild
Frumvarp ríkisstjórnar-
innar um að ábyrgjast 5 aura
af verðinu, sem hraðfrysti-
húsin borga fyrir fiskinn, og
um kaup á 5000 smál. á salt-
fiski, var til 1. umræðu í neðri
deild í fyrradag. Allmiklar
umræður urðu um frv. og
taldi Eysteinn Jónsson það ó-
fullnægjandi til að tryggja
útvegsmönnum og sjómonn-
um svipaða afkomu og öðrum
stéttum og yrði því að gera
verulegar endurbætur á því.
Eftir að atvinnumálaráðherra
hafði fylgt"»frv. úr hlaði með
stuttri ræðu, kvaddi Eysteinn
Jónsson sér hljóðs. Hann sagði,
að frumvarp þetta væri afleið-
ing verðbólgustefnunnar, er
fylgt hefði verið undanfarið.
Þetta væri í fyrsta sinn, sem
fyrirhugað væri að borga upp-
bætur á útfluttar sjávarafurðir
og þetta væri gert án þe£s, að
verðfall hefði átt sér stað. Menn
gætu markað af því, hvað í
vændum væri, ef verulegt verð-
fall yrði á afurðunum, eins og
búizt væri við.
Það var vitanlega rétta úr-
ræðið,' þegar svona var komið,
sagði E. J. ennfremur, að hefjast
handa um niðurfærslu dýr-
tíðarinnar. Þess vegna fluttu
Framsóknarmenn tillögu á
þingi í haust um að sérstakri
nefnd yrði falið að gera tillög-
ur ,um niðurfærsluí, er lægju
fyrir ekki . síðar en 1. febr.
Þessu ráði var hafnað og í þess
stað'haldið áfram á veröbólgu-
brautinni. Fyrst sú leið var
valin, er nú ekki annað að gera
fyrir þá, sem vilja unna útvegs-
mönnum og sjómönnum jafn-
réttis, en að stuðla að ráðstöf-
unum, — þótt fjárfrekar kunni
að verða —, sem tryggi þeim
ekki lakari afkomu en öðrum.
Eg tel, sagði E. J„ að þær ráð-
stafanir, sem ákveðnar eru í frv.,
nái ekki því marki. Þar er að-
eins tekin ábyrgð á fimm aur-
um af verðinu, sem frystihúsin
borga fyrir fiskinn. Þetta trygg-
ir þeim útvegsmönnum og sjó-
mönnum, er geta selt hrað-
frystihúsunum fiskinn, sæmi-
legt verð. Hins vegar hafa þeir
útgerðar- og fiskimenn, sem
sjálfir annast útflutning á ís-
fiski, enga slíka tryggingu. Þeir
þurfa hennar ekkert síður og
vel getur svo farið, að þeir
þarfnist hennar í enn ríkara
mæli, t. d. ef verðið lækkar í
Bretlandi um næ'stu mánaða-
mót. Þá er næsta líklegt, að
ríkið verði að kaupa mun meira
en 5000 smál. af saltfiski. Sam-
kvæmt frv. er ætlazt til, að ríkið
kaupi af þeim, sem ^yrstir verða
til að salta, þar til þessu 5000
sráál. magni er náð. Vel getur
svo faríð, að þá séu þeir aðal-
(Framhald á 4. síðu).
Tillögur, sem ekki
hafa fengizt ræddar
Á fundi sameinaðs þings í
fyrradag, beindi Hermann Jón-
asson þeirri ósk til forseta, að
tekin yrði á dagskrá tillaga
þeirra Sigurðar Bjarnasonar um
| að leyft verði landvistarleyfi
, Þjóðverjum, sem eru giftir ís-
lenzkum konum. Einnig óskaði
hann eftir að tekin yrði á dag-
skrá tillaga sín um rannsókn á
njósnarstarfsemi Þjóðverja hér
fyrir styrjöldina.
Forseti lofaði að verða við
þessum óskum fljótlega, enda
mál til komið, þar sem forsætis-
ráðherra lofaði fycir þing-
frestunina, að fyrri tillagan
skyldi afgreidd strax og Alþingi
kæmi saman aftur.
Þýzkalandssöfnunin
Þýzkalandssöfnunin nemur
nú orðið um 360 þús'. kr. Ákveð-
ið er að lúka henni 16. þ. m. o^
fer því að verða hver síðastur
að styrkja þetta góða málefni.