Tíminn - 29.03.1946, Síða 1
RITSTJÓRI:
ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON
ÚTGEFANDI:
FRAMSÓKNARFLOKKURINN \
\
Símar 2353 og 4373
PRENTSMIÐJAN EDDA hi. (
RITSTJÓRASKRIFCTOFUR:
EDDUHÚSI. Llr.dargötu 9 A
Símar 2353 og 4373
AFGREIÐSLA, INNHEIMTÁ
OG AUGLÝSINGASKREFSTOFA:
EDDUHÚSI, Lindargötu 9A
Síml 2323
30. árg.
Reykjavík, föstudaginn 29. marz 1946
56. blað
Erlent yfirlit
Hrun kommúnista í Danmörku
íhaldsmenn |iar hafa stórtapað á makki sínu
við kommánista.
Öryggisráðið ræðir
íranmálið, þrátt fyrir
f jarveru Rússa
Skýrt frá kröfum
Rássa á hendur íran-
mönnum.
Þau tíðindi gerðust á fundi
Öryggisráðsins í fyrrakvöld, að
samþykkt var tillaga undir-
nefndarinnar að taka íranmálið
þegar fyrir. Tillagan var sam-
þykkfr með 9:2 atkv. Voru full-
trúar Rússa og Pólverja á móti
henni. Þegar tillagan hafði verið
samþykkt, gekk fulltrúi Rússa
af fundi, en hann hafði áður
lýst yfir því, að Rússar myndu
ekki taka þátt í meðferð máls-
ins, nema því yrði frestað til 10.
apríl næstk.
Byrnes, utanríkismálaráð-
herra ílutti ræðu rétt fyrir at-
kvæðagreiðsluna og kvaðst ekki
geta fallizt á frestun. Rússar
gætu gert kröfu um nýja frest-
un, þegar ráðið kæmi saman 10.
april og þannig gæti það geng-
ið koll af kolli. Það myndi stofna
áliti ráðsins í hættu, ef það færi
að fresta afgreiðslu slíkra mála
í stað þess að afgreiða þau strax.
Eftir að ákveðið hafði verið
að taka málið fyrir, flutti full-
trúi írans ræðu. Hann sagði, að
ekki hefðu náðst samningar
milli stjórnar írans og Rúss-
lands, því að stjórn írans hefði
ekki getað fallizt á kröfur Rússa.
Helztu kröfur Rússa voru þær,
að rússnesk setulið yrði í-nokkr-
um héruðum írans, Asserbeid-
jan fengi sjálfstjórn og stofn-
að yrði rússneskt-íranskt olíu-
félag. Hann kvað Rússa ekki
hafa gert neinn sérsamning við
írönsku stjórnina um brott-
flutning rússneska hersins og
gæti hún því engar upplýsingar
gefið um, hvernig honum yrði
háttað eða hvort hann yrði
íramkvæmdur.
MAÐUR HVERFUR
í FLEETWOOD
^elgi Einarsson frá Borgar-
nesi, háseti á mótorskipinu
„Eldborg“, hvarf í Fleetwood
miðvikudaginn 20. marz og
hafði ekki komið fram, er síð-
ast fréttist.
„Eldborgin" var að landa í
Fleetwood, er Helgi, ásamt
nokkrum félögum sínum af
skipinu, fór í land. Varð hann
viðskila við þá og kom ekki um
borð um kvöldið. Morguninn
eftir, fimmtudag, fóru félagar
hans að leita*hans, en er sú íeit
bar ekki árangur, tilkynnti
skipstjórinn lögreglustöðvum
borgarinnar og umboðsmanni
skipsins hvarfið.
„Eldborgin“ lagði af stað
heim aðfaranótt föstudags, en
þá hafði ekkert heyrzt af Helga.
Síðan hefir ekkert frétzt um
hann.
Þann 12. þ. m. fóru fram
bæjarstjórnar- og amtráðs-
kosningar í Danmörku. Kosn-
inga þessara var beðið með
allmikilli eftirvæntingu.
Einkum lék mörgum forvitni
á að sjá, hvort fylgi kommún-
ista héldi áfram að eflast, en
þeir unnu mikið á í þingkosn-
ingunum í haust. Úrslitin
urðu mikil vonbrigði fyrir þá,
sem höfðu búizt við vexti
kommúnista, því að þeir
misstu þriðjung fylgis síns í
þessum kosningum, miðað við
þingkosningarnar í október.
Yfirleitt var þátttaka í þess-
um kosningum heldur verri en í
þingkosningunum. Þrátt fyrir
það héldu jafnaðarmenn og
radikalir yfirleitt svipaðri at-
kvæðatölu og þá, en Vinstri-
menn hækkuðu atkvæðatölu
sína. Atkvæðatala kommúnista
og íhaldsmanna lækkaði hins
vegar stórlega. Yfirleitt gefa úr-
slitin í Kaupmannahöfn góða
hugmynd um þróunina, en þau
voru þessi (fyrst úrslit þing-
kosninganna í október 1945, en
síðan úrslit bæjarstjórnarkosn-
inganna í marz 1946):
Jafnaðarm. 158.841 153.470
Radikalir 21.604 20.824
Vinstrimenn 14.714 16.588
íhaldsmenn 94.171 62.885
Kommúnistar 105.133 62.808
Dansk Samling 14.737 5.728
Eins og tölur þessar sýna, hafa
kommúnistar tapað rúmlega 42
þús. atkvæðum og íhaldsmenn
32 þús. atkvæðum. Víðast utan
Kaupmannahafnar svaraði tap
þessara flokka einnig til þriðj-
(Framhald á 4. síðu).
BIFREIÐASLYS
VIÐ ELLIÐAÁR
Síðdegis í gær varð alvarlegt
bifreiðaslys inn hjá Elliðaám.
Tvær bifreiðar fóru út af vegin-
um. Önnur bifreiðin, sem var
flutningabifreið með fólkshúsi,
valt út af veginum í hæðinni
fyrir austan Elliðaárnar, þar
sem allhá uppfyling er. f þess-
ari bifreið voru átta menn,
sem meiddust nokkuð. Tveir
þeirra meiddust mikið, annar
lærbrotnaði og handleggsbrotn-
aði, hinn rifbrotnaði.
Ástæðan til þess, að bifreiðin
fór út af þarna í hallanum mun
hafa verið sú, að stór flutninga-
bifreið 10 hjóla, ók utan í hana,
þannig, að hún valt út af veg-
inum. En þessi sami flutninga-
bíll, sem auðsýnilega hefir ekið
lieldur ógætilega, fór sjálfur út
af veginum og valt á hliðina,
eftir að hafa farið yfir Elliðaár-
brýrnar og ekið 400—500 metra
leið frá því hánn ók á fólks-
flutningabifreiðina. Stóra flutn-
ingabifreiðin valt á hliðina. Hún
var með fullfermi af möl.
' * ■
Geta útlendingar flutt héðan gjald-
eyri eins og þeim þóknast?
Fnrðnleg vörn stjórnarliðsins á sambandf við j
gjaldeyrisleyfi til dóttur formanns Nýbygg«
ingarráðs.
Morgunbl. hefir nú loksins farið á stúfana og reynt að verja
þann verknað ríkisstjórnarinnar að Ieyfa dóttur Jóhanns Þ. Jós-
efssonar, formanns Nýbyggingarráðs, að hafa með-sér úr landinu
400 þús kr. í dollurum. Eru það aðalrök þess, að dóttir Jóhanns
hafi verið orðinn amerískur borgari og þess vegna hafi eignir
hennar hér verið orðnar einhvers konar skuld, sem bar að láta
greiða. Blaðið bætir því síðan við, að það sé aðeins ofsókn á
hendur Jóhanni að vera að minnast á þetta mál.
Margrethe prinsessa
Það ætti raunar ekki að þurfa
að taka fram, að það tíðkast
hvergi,s þar sem hörgull er á
gjaldeyri, að konur, sem verða
útlendir ríkisborgarar, fái að yf-
irfæra eignir sínar í einu lagi,
ef þær nema einhverju verulegu,
og það í þeim gjaldeyrinum, sem
mestur hörgull er á. Sama gildir
vitanlega um' karlmenn, sem
verða útlendir ríkisborgarar.
Væri farið inn á þessa braut,
gæti opnast þar slik flóðgátt, að
hún sogaði burt allan handbær-
an gjaldeyri þjóðarinnar, svo að
hún stæði slipp og snauð eftir.
Alveg sérstaklega er sú hætta
mikil, þegar eins hefir verið á-
statt og hér, að óeðlilega margt
kvenfólk giftist úr landinu. Yf-
irfærslur á slíkum eignum verða
því að vera háðar einhverjum
takmörkunum, sem tryggi það,
að þær gangi ekki á hagsmuni
þjóðarinnar.
Ríkisstjórnin hefir þannig
brotið alveg sjálfsagða og nauð-
synlega varúðarreglu, þegar hún
veitti leyfi til þess, að dóttir
Jóhanns mætti yfirfæra þessa
stóru upphæð í dollurum í einu
lagi. Með þvi hefir hún skapað
hið háskalegasta fordæmi, sein
vafalaust mun draga margan
dilk á eftir sér, því að vitanlega
er ekki hægt að neita öðrum
íslenzkum kgnum, sem giftast
útlendingum, um það, sem dótt-
ir Jóhanns hefir verið leyft.
Þessi framkoma ríkisstjórnar-
innar er enn vítaverðari, þegar
þess er gætt, að tilfinnanlegur
skortur er nú orðinn á dollur-
um og þjóðin verður þegar að
fara margs á mis af þeirri á-
stæðu.
Þessi hætta stafar ekki held-
ur eingöngu frá konum, sem
giftast útlendingum, heldur og
erlendum ríkisborgurum, sem
hér dvelja. Hvernig færi t. d.,
ef allir þeir Danir, sem hér
dvelja, heimtuðu að fá eignir
sínar yfirfærðar?
Tíminn vill svo bæta því við
| og lætur sér það í léttu rúmi
liggja, þótt Morgunblaðið kunni
að kalla það ofsókn, að hann
telur það með öllu óafsakanlegt
af formanni Nýbyggingarráðs,
að eiga þátt í þessari stórfeldu
yfirfærslu og því hættulega
fordæmi, sem með henni er
skapað, og það á sama tíma og
honum er manna bezt kunnugt
um að stöðva verður ýmsan
nauðsynlegan innflutning vegna
gjaldeyrisskorts. Frh. á 4. s.
Furðulegur málflutning-
ur Morgunblaðsins
Það segir, að mlklar deilur hafl orðið um at-
riði, sem allir hafa veriö sammála um.
Það er næsta ótrúlegt, hvað Mbl. getur dottið í hug, þegar það
er að reyna að sanna einhvern óhróður á Framsóknarmenn.
Seinasta dæmið um þetta er forustugrein blaðsins í gíer. Þar er því
haldið fram, að Framsóknarmenn hafi barizt gegn frumvárpi,
sem stjórnin hafi flutt til að greiða fyrir sumarslátrun. Sann-
leikurinn var, að aðalefni þessa frv. var um allt annað, og um
það var deilt, en ekki sumarslátrunarákvæðið, sem skotið hafði
-verið inn í frv. sem aukaatriði. Er þessi einstæði málflutningur
Mbl. vel skýrður í eftirfarandi athugasemd frá Skúla Guð-
mundssyni.
— í þe&sari viku hefir Alþingi
haft til umræðu stjórnarfrum-
varp um heimild fyrir ríkis-
stjórnina til þess að halda niðri
dýrtíðarvísitölu með fjárgreiðsl-
um úr ríkissjóði og um áhrif
nokkurra landbúnaðarafurða á
vísitöluna. Samkvæmt 1 . gr.
þessa frv. er stjórninni heimilt
að verja fé úr ríkissjóði til þess
að halda niðri vísitölunni fram
til 15. sept. næstk., en slík heim-
ild hefir verið í lögum síðustu
I
árin og munu útgjöld ríkissjóðs
af þessu hafa numið nálægt 25
(Framhald á 4. síðu).
Guðfinna frá Hömrum
látin
Guðfinna Jónsdóttir frá
V. ,
Hömrum lézt í fyrrinótt að
Kristneshæli, en þar hafði hún
legið sjúk um nokkurt skeið.
Hún var aðeins um fertugt, en
hafði þo áunnið sér miklar vin-
sældir og viðurkenningu sem
ljóðskáld, og tvær ljóðabækur
hafa komið út eftir hana.
Mynd þessi var nýlega tekin af eldri
dóttur dönsku krónprinshjónanna,
Margrethe prinscssu. Var hún þá stödd
með fóstru sinni á vetrarskemmtlstað
í Svíþjóð.
Tónlistarskólinn hefir
240 nemenðnr
Skóliim liefir of þröng
Imsakyimi.
Stjórn Tónlistarskólans
bauð í gær ýmsum velunnur-
um skólans, að skoða húsa-
kynni hans í Þjóðleikhúsinu
og í kaffidrykkju að Hótei
Borg á eftir. Formaður skól-
ans, Ólafur Þorgrímsson, bauð
gestina velkomna og þakkaði
þeim fyrir stuðning þeirra við
skólann og Tónlis/arfélagið.
Skólastjóri Tónlistarskólans,
dr. Páll ísólfsson, rakti því næst
í stuttu máli sögu skólans frá
því hann var stofnaður af nokk-
urum áhugamönnum um tónlist
1930, nokkru eftir Alþingishá-
tíðina. Skólinn átti við mikla
byrjunarörðugleika að stríða,
einkum þó húsnæðisvandræði.
Hann fékk þó húsnæði undir
starfsemi sína í Hljómskálanum
og var þar til húsa fyrstu 9
árin, þó húsnæði þetta væri hið
ófullkomnasta fyrir starfsemi
skólans. Skömmu fyrir styrjöld-
ina fékk skólinn húsnæöi í hinu
nýja Þjóðleikhúsi, en varð að
hverfa þaðan aftur í Hljómskál-
ann, er landið var hernumið.
Nú er skólinn loks aftur kominn
í húsakynni í Þjóðleikhúsinu,
þar sem hann hefir til umráða
þrjár vistlegar kennslustofur og
einn samkomusal, auk tveggja
herbergja fyrir skrifstofu skóla-
stjóra og Tónlistarfélagsins.
Starfsemi skólans hefir aukizt
mjög á seinustu árum og það
hefir greinilega komið í ljós, að
þö('fin fyrir tónlistarskóla er
fyrir hendi. í skólanum stunda
nú nám um 240 nemendur. —
(.Framhald á 4. síðu).
Samgönguieysið
norðanlands
Ekkert flutiiingaskip
koiiiið til Akureyrar
í ntánaið.
Á Akureyri og í nærhéruð-
um ríkir nú mikil óánægja
vegna strjálla skipaferða.
Þangað hefir nú ekki komið
flutpingaskip í heilan mán-
uð. Á sama tíma ræður Eim-
skipafélagið yfir 18 skipum,
en ekkert þeirra er látið í
strandferðasiglingar. Hins
vegar er skip sent til Ant-
werpen i nokkurs konar
reynzluferð, að því er bezt
verður skilið, til að sjá hvort
ekki fáist flutningur þaðan
hingað til lands.
Eins og áður segir, er meira
en heill mánuður nú liðinn,
siðan flutningáskip hefir komið
til Akureyrar með vörur. Má til
samanburðar geta þess, að á
sama tíma og ekkert skip hefir
farið milli Akureyrar og Reykja-’
víkur, hefir skipið Dronning
Alexandrine farið margar ferð-
ir milli Danmerkur og íslands.
Mikill skortur er nú orðinn á
flestum aðfluttum nauðsynjum
á Akureyri. Verzlanir skortir
margar vörutegundir og iðnað-
arfyrirtæki fá ekki hráefni til
framleiðslu sinnar. í Reykjavík
liggja hins vegar vörur frá út-
löndum, sem eiga að fara til
Akureyrar, svo þúsundum smál,
skiptir.
Það má með sanni segja, að
ástand það, sem nú ríkir í sam-
(Framhald á 4. síðu).
1 v
Fiskaflinn keldur
minni en í fyrra
Fiskaflinn á öllu landinu
var í febrúar orðinn samtals
31.981 smál., af því hafði afl-
azt í febrúarmánuði 24.400
smál., en aðeins 7.576 smál. í
janúar. Á sama tíma í fyrra
var aflinn á öllu landinu orð-
inn 37.060 smál., eða um 6.000
smál. meiri en hann er nú.
Af aflanum í lebrúar voru
7.187 smál. fluttar út með fisk-
flutningaskipum ísað, en 4.103
smál. fluttu skip, sem seldu sinn
eigin afla. Samtals hefir því
verið fluttar út 11.290 smál af
ísuðum fiski í febrúar, og í jan.
og febr. samanlagt 16.360 smál.
Á sama tíma í fyrra höfðu verið
fluttar út 26.370 smál. af ísuðum
fiski.
í febrúarmánuði voru 9.972
smál. af fiski frystar, en 2.384
smál. í janúar. Alls er því búið
að frysta á öllu landinu í febrú-
arlok 12.351 smál. og er það
nokkru meira en í fyrra, .en þá
var búið að frysta á sama tíma
9.561 smál. í fyrra var enginn
fiskur hertur en i janúarmán-
(Framháld á 4. slðu).