Tíminn - 03.04.1946, Síða 1

Tíminn - 03.04.1946, Síða 1
\ ) RITSTJÓRI: ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON ÚTGEFANDI: FRAMSÓKN ARFLOKKURINN Símar 2353 og 4373 PRENTSMIÐJAN EDDA hJ. 30. árg. Reykjavík, miðvikudaginu 3. apríl 1946 RITSTJORASKRIFÍ TOt-'UR EDDUHÚSI. úh.darLÖtu 9 A Símar 2353 og 4373 AFGREIÐSLA. INNHEIMTA OG AUGLÝSINGASKRIFSTOFA: EDDUHÚSl, Undargötu 9 A Síml 2323 59. blað Enn koma i Ijós ný rangindi viö c framkvæmd kjötlaganna Ætlar stjórnin að svíkja ákvæði bráða- birg'ðalaganna um uppbætur á hangikjöt víþjóðarbátarnir, sem fyrv. stjórn lét kaupa, verða komnir fyrir síldveiðarnar í sumar > Alltaf verður kunnugt um fleiri nýjar veilur í framkvæmd kjötlaganna og geta sumar þeirra numið stórum fjárhæðum fyrir ríkissjóð. í bréfi því, sem hér fer á eftir og Tímanum barst í gær, er gerð grein fyrir eiríni, sem getur skipt neytendur miklu máli og því er ástæða fyrir þá að kynna sér vel. Herra ritstjóri. Ég sendi yður eftirfarandi greinarstúf í von um, að þér getið birt hann í blaði yðar í fyrramálið. Er öðrum dagblöð- um samtímis sent afrit. — Fyr- irsögn ætazt ég til að þér ákveð- ið sjálfur: 29. sept. s. 1. voru — að til- hlutun viðskiptamálaráðherra — gefin út bráðabirgðalög um niðurgreiðslu á kjöti, til varnar gegn vísitöluhækkun. í bráða- birgðalögum þessum er kveðið á um, að þegnarnir — þeir, sem verðugir teljast — skuli fá greiddan mismun á útsöluverði og vísitöluverði nýs og saltaðs dilkakjöts, hangikjöts og vinnsluvara úr kjöti. Lögin eru, eins og fyrr segir, sett að tilhlutun Péturs Magn- ússonar viðskiptamálaráðherra. Pétur Magnússon fjármálaráð-. herra horfir á eftir peningnum úr ríkissjóði. Hann hefir látið framkvæma lögin á þann hátt, að aðeins er greiddur mismunur á vísitöluverði og útsöluverði hinnar ódýrustu tegundar, þ. e. nýs kjöts. Sá munur er kr. 4,35 á kg. — Mismunur á vísitölu- verði og útsöluverði hangikjöts er kr. 7,50 á kg. og einnig er mismunur stórum hærri á vinnsluvörum en nýju kjöti. Menn munu ekki almennt hafa veitt athygli hinni röngu framkvæmd laganna. Þeir, er kunna að hafa veitt henni at- hygli,- hafa sennilega ekki gert sér þess gr^in, hve miklu þetta skiptir launastéttir landsins. Vafalítið má telja, að það skipti hundruðum. þúsunda á ársnið- urgreiðslunni. Ég hefi gert ágreining og kraf- Stórkostleg flóðbylgja á Kyrrahafi Mikil flóðbylgja hefir skollið á land á Hawaii, ströndum Alaska og Kaliforníu. Flóðbylgja þessi er eitthvert það stórkost- legasta náttúrufyrirbrigði, sem komið hefir lengi og er talið að eldsumbrot á sjávarbotni hafi valdið flóðbylgjunni. í gær sáu amerískar flugvélar 30—40 metra háar öldur falla í áttina til stranda Kaliforníu, en þá virtist nokkuð vera farið að draga úr flóðbylgjunni, svo borg- um á Kyrrahafsströnd stafaði ekki veruleg hætta af henni. Ennþá liggur lítið fyrir um tjón það sem flóðbylgjan hefir vald- ið. Vitað er þó, að á Hawaii hafa a. m. k. 330 manns farist af völdum hennar, en þúsundir manna orðið heimilislausar. Óttast er um afdrif fjölda skipa á Kyrrahafi. ist greiðslu á mismun útsölu- verðs og vísitöluverðs- þess hangikjöts, sem mitt heimili keypti og notaði. Hefir sú krafa komið fyrir viðskiptamálaráðu- neytið og verið synjað þar, en er nú til athugunar í fjármála- ráðuneytinu. Bráðabirgðalögin um niður- greiðsluna liggja fyrir Alþingi til staðfestingar. Þar er nú kom- in fram breytingartillaga þess efnis, að aðeins skuli niður- greiðslan ijiiðuð við mismun á vísitöluverði og útsöluverði nýs kjöts. .Tillaga þessi mun fram komin fyrir at.beina fjármála/- og við- skiptamálaráðherra, Péturs Magnússonar. Er hún skýr sönn- un þess, að krafa mín sé í fullu samræmi við bráðabirgðalögin, að hans dómi. Ella hefði ekki þurft á breytingunni að halda. Pétur Magnússon er reyndur lögfræðingur og er því engin ástæða til að rengja þennan úr- skurð hans. — Hitt á hann eftir að skýra, I hvaða valdi hann hefir látið framkvæma niður- greiðsluna á þann hátt að svipta launþegana stórum hluta þess fjár, sem hans eigin lög ákveða þeim. Enn er tími til þess að stöðva nefnda breytingatillögu á Al- þingi. Enn á ríkisstjórnin þess kost að greiða launþegunum það fé, sem haft var af þeim á fyrsta ársfjórðungi, með rangri fram- kvæmd bráðabirgðalaganna. Það má gera i sumar, um leið og niðurgreiðslan fer fram fyrir þrjá síðari ársfjórðungana, en ríkisstjórnin mun ætla að inna þá greiðslu af hendi í einu lagi. Magn hins niðurgreidda kjöts er fært niður með hliðsjón af því magni, sem inn i vísitöluna gengur. Liggur þá beinast við að leggja til grundvallar niður- greiðslu, þá verðflokkun kjöts, sem vísitalan er miðuð við. Er sá reikningur aðeins nokkurra mínútna verk fyrir þann mann, sem er sæmilega að sér í með- ferð tugabrota og þríliðu, og hefir kynnt sér útsöluverð kjöts og vinnsluvara úr því, ásamt kjötverði þvi, sem vísitala 1. sept. var miðuð við. Sérhver ríkisstjórn hefir haft tilhneigingu til að.fara höndum um vísitöluna, allt frá striðs- byrjun. Sú handfjöllun hefir oftast verið miður hagkvæm launþegunum og stundum bak- að þeim — og fleirum — beinan órétt. Ég vil því beina þeim til- mælum til Alþýðusambands ís- lands alveg sérstaklega, áð það beiti sér fyrir rétti launþeganna í kjötniðurgreiðslumálinu, fyrir atbeina þeirra þingmanna, sem það hefir aðgang að. Gunnlaugur Pétursson. Bátarnir munu skiptast milli útgerðar- staða víðsvegar á landinu Blaðamenn voru í gær boðaðir á fund hjá Fiskifélagi íslands, þar sem m. a. var skýrt frá því, að fyrsti Svíþjóðarbáturinn hefði verið reyndur í fyrradag og reynzt vel. Búizt er við að allir bát- arnir, 45 talsins, verði komnir hingað fyrir síldveiðarnar í sumar. Eins og kunnugt er, var það fyrrverandi stjórn, sem samdi um smíði bátanna í Svíþjóð, að frumkvæði Vilhjálms Þórs ut- anríkis- og atvinnumálaráð- herra. Enn þá er ekki fyllilega vitað um verð bátanna, þegar látin hafa verið í þá öll tilheyrandi tæki, en þeir verða búnir tækj- um, togvindum og dýptarmæl- um af fullkomnustu gerð. Lík- legt er að stærstu og vönduð- ustu bátarnir, sem á teikningu eru áætlaðir 78 rúmlestir, en mælast miklu meira, kosti full- búnir 530—550 þús. kr. íslenzk- ar. 50 rúmlesta bátarnir koma þá sennilega til með að kosta 415—430 þús. kr. íslenzkar. Eins og áður er sagt var fyrsti báturinn reyndur í fyrradag, en það er bátur, sem Þorkell H. Jónsson í Reykjavík og fleiri hafa keypt. Er hann 50 rúmlest- ir að stærð og heitir „Hafdís." Báturinn reyndist prýðilega í reynsluförinni. í gær tóku hinir íslenzku eigendur við bátnum og er hans von hingað um miðj- an mánuðinn. Hinir t bátarnir fara svo að 'verða tilbúnir hver af öðrum og er fastlega búizt við, að þeir verði allir komnir heim, áður en sildarvertíðin hefst. Bátarnir eru taldir sér- staklega vel fallnir til síldveiða sökum hins mikla burðarmagns þeirra, einkum eru þó 78 lesta bátarnir burðamiklir, en þeir bera, að þvi er talið er, 82 lestir undir dekki. Margir af eigend- um og skipstjórum bátanna eru nú þegar komnir til Svíþjóðar til að taka við bátum sínum og sigla þeim heim, jafnóðum og þeir verða afgreiddir frá skipa- smíðastöðinni. Bátarnir eru, eins og kunnugt er, allir smíðaðir eftir teikning- um íslenzkra manna, þeirra Þorsteins Daníelssonar og Bárð- ar Tómassonar. Þorsteinn gerði teikningu að 78 rúmlesta bát- unum, en eftir þeirri teikningu voru smíðaðir 23 bátar, sem allir verða tilbúnir í vor, en auk þess verða smíðaðir eftir þeirri teikn- ingu 5 bátar, er sennilega verða tilbúnir í haust. Þessir bátar, sem Þorsteinn teiknaði, eru sér- staklega burðamiklir og hent- ugir. Burðarmagn þeirra er mun meira en rúmlesta talan gefur til kynna, því talið er, að þeir komi til með að jafngilda um 100 rúmlesta bátum að burðar- magni. Þeir verða því raunveru- lega miklu stærri en 80 rúm- (Framhal . á 4. síðu). Aðalfundur Búnaðarsam bands Strandamanna Aðalfundur Búnaðarsam- bands Strandamanna var haldinn á Hólmavík dagana 23.—25. marz s. 1. Fundinn sátu fulltrúar hreppabúnað- arfélaga sýslunnar, nema 2, # * er ekki gátu mætt vegna ó- veðurs, svo og stjórn sam- bandsins. Helztu fjárframlög, auk lög- bundinna greiðslna, svo sem til fundarhalda og mælinga, voru til verkfærageymsluhúsa, allt að kr. 5.00 á ferm. i gólfrúmi, og vatnsleiðslna á heimilum, kr. 0.30 pr. m., svo og nokkur styrkur til skóggræðslu og fiskiræktar, og sauðfjárhússins á Svanshóli. Gengið var frá jarðræktar- samþykkt fyrir sýsluna. Leggur sambandið fram 25% af verði verkfæra til ræktunarfram- framkvæmda á sambandssvæð- inu. Auk þess var hreppabún- aðarfélögunum falið að taka til athugunar fyrir næsta sam- bandsfund, hvort tiltækilegt þætti að koma upp húsagerðar- samþykktum innan sýslunnar. Margar tillögur og ályktanir voru samþykktar, m. a. um að haldnir yrðu búnaðar- og dýra- lækningafræðslufundir á sam- bandssvæðinu, svo og um rann- sóknir á ræktunar og raforku- skilyrðum. Ennfremur um að gerðar yrðu gagngerðar tilraun- ir með að nota sprengiefni til skurðagerðar, og að kannað yrði nú þegar, hvort ekki væri nógur vilji fyrir fjárskiptum milli Steingrímsfjarðar og Bitru. Að lokum voru samþykktar harðorðar ályktanir, er víta framkomu þings og stjórnar varðandi búnaðarmál og félags- samtök bænda. Munu þær verða birtar síðar hér í blaðinu. Eftir tillögum frá stjórn bún- aðarsambands Vestfjarða og með einróma undirtektum hreppa- búnaðarfélaganna, fór» fram kosning eins fulltrúa til búnað- arþings. Kosningu hlaut Gunn- ar Þórðarson Grænumýrar- tungu sem aðalmaður og Ben. Grímsson Kirkjubóli sem vara- maður. Að lokum ákváðu fundarmenn að gefa yngstu deild Skíðafélags Strandamanna farand-verð- launabikar, er kallast skildi Smalabikar Strandamanna. En skíðaíþrótt er allmikið stunduð, 3inkum um norðurhluta sýsl- unnar. Kattarþvottur * Aka og Brynjólfs í tilefni af því, að einn ræðu- mannanna á útifundi stúdenta á sunnudaginn, Jóhannes Elías- son stud. jur., lét svo um mælt, að ráðherrar sósíalista ættu sinn þátt í Ieynd þeirri, sem rík- isstjórnin héldi yfir herstöðva- málinu, hafa þeir Áki Jakobs- son og Brynjólfur Bjarnason birt yfirlýsingu í Þjóðviljanum í gær. Er það aðalefni hennar, að þeir hafi lagt það til í ríkis- stjórninni, að birt yrði skýrsla um herstöðvamálið, en hinir ráðherrarnir hafi fellt það. í augum almennings mun þessi yfirlýsing Áka og Brynjólfs síður en svo losa þá undan á- byrgð á leyndinni. Umrædd til- laga hefir bersýniiega ekki verið flutt til annars en að geta þvegið hendur sínar eftir á. Þess vegna segja þeir ekki frá tillögunni fyrr en þeir eru neyddir til þess og fylgja henni ekki fram af meira kappi en svo, að þeir sitja áfram í rikis- stjórninni jafnánægðir og áður, þótt tillagan hafi verið felld. Meðan Áki og Brynjólfur sitja sem fastast í ríkisstjórninni, þótt hún haldi þessu máli leyndu, verður ekki hægt að líta á áðurnefnda yfirlýsingu þeirra öðruvísi en sem leikaraskap og t kattarþvott af lökustu tegund. J L ———--------------— ---..—.-j Þjóðverjum leyfö landvist Á fundi sameinaðs þings í gær fékkst loks afgreiðsla á til- lögunni um landvistarleyfi nokkurra Þjóðverja, sem Finnur Jónsson og kommúnistar hafa barizt mest á móti. Var tillagan samþykkt með * 29 : 13 atkv. Framsóknarmenn og Sjálfstæð- ismenn voru með tillögunni, en kommúnistar á móti, en Al- þýðuflokksmenn ýmist á móti henni eða sátu hjá. í tillögunni er skorað á dóms- málaráðherra að veita land- vistarleyfi þeim Þjóðverjum, sem voru hér búsettir 1939 og kvæntir íslenzkum konum, ef þeir hafa ekki orðið uppvísir að því að vinna gegn hagsmunum íslendinga. Þess ber nú að vænta, að dómsmálaráðherra taki þennan yfirlýsta þingvilja til greina og hagi sér eins og siðaður maður í þessu máli hér eftir. Samið við Svía Stjórnin hefir nú loksins sýnt þá framtakssemi að senda mann utan til að ganga frá viðskipta- samningum við Svía og hefir dr. Oddur Guðjónsson, formaður Viðskiptaráðs, orðið fyrir valinu. Verður að vona, að nokkur ár- angur geti orðið af sendiför þessari, en hún er farin mörgum mánuðum síðar en skyldi, þar sem aðrar þjóðir hafa undan- farið keppst við að semja við Svía, einkum um kaup á timbri sem okkur vanhagar nú einna mest um. Árshátíð Framsókn- armanna Undanfarna vetur hafa jafnan veriff uppi margar raddir meðal Framsóknar- manna í Reykjavík að hafa eina aðai-skemmtisamkomu vetrarins. Nú hefir verið horfiff að þvi ráði í þetta sinn og verður þessi samkoma að Hótel Borg n. k. laugardagskvöld. Hefst hún með borðhaldi. Undir borðum munu .fáeinir for- ustumenn Framsóknarmanna flytja stuttar ræður, söngur mun og verða,bæði fjöldasöng ur og einsöngur, tveir valdir upplesarar munu skemmta um stund og að lokum verður stiginn dans fram eftir nótt- unni. Er ekki aff efa að fjör og fjölmenni muni verða á þess- ari árshátíð Framsóknar- manna. Kommónistar tapa í Prentarafélaginu Aðalfundur Hins íslenzka prentarafélags var haldinn síð- astl. sunnudag. Á fundinum var skýrt frá úrslitum skriflegrar formannskosningar og vorú þau á þá leið, að Magnús Ástmars- son hafði fengið 118 atkv., en Stefán Ögmundsson, sem verið hafði formaður félagsins, fékk 89 atkv. Magnús er Alþýðu- flokksmaður, en Stefán komm- únisti. Úrslit þessi eru mikill ósigur fyrir kommúnista, sem tókst að ná formennskunni í félaginu fyrir nokkrum árum, en hafa nú misst hana aftur. Stefán Ög- mundsson, sem féll, er líka einn helzti forvígismaður þeirra í verkalýðsmálum og hefir stund- um verið tilnéfndur sem vænt- anlegt formannsefni þeirra í Alþýðusambandinu. Sala varðbátanna Dómsmálaráðherra hefir ný- lega fengið fjárveitinganefnd til að flytja þingsályktunartillögu þess efnis, að stjórninni sé heim- ilt að selja nýju varðskipin eða skipta á þeim og öðrum. Aðalfundur miðstj. Framsóknarflokksins verður settur í Kaup- þingssalnum i dag kl. 5. S’ramsóknarmenn! Munið að árshátiffin er n. k. laugar- lagskvöld að Hótel Borg og að þátt- akendalisti liggur frammi í skrifstofu ilokksins i Edduhúsinu, simi 6066.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.