Tíminn - 08.05.1946, Side 3
79. blað
3
XÍMIM, miðvikudagiim 8. maí 1946
Frá Tónlistarfélagi
Hafnarfjarðar
St]órn nýstofnaðs tónllstar-
félags í Hafnarfirði hefir sent
Tímanum til birtingar svolát-
andi ávarp:
Hingað til hefir tónlistarlíf í
Hanarfirði mátt tel'jast fremur
fáskrúðugt. Hið helzta, sem
bæjarbúar hafa átt kost á að
hlýða, er söngur karlakórsins
„Þrestir“, en sá kór hefir starf-
að öðru hverju sl. 30 ár og sam-
fleytt sl. 10 ár og mun ráða yfir
sæmilegum söngkröftum. Ein-
staka sinnum hafa einsöngvar-
ar efnt til hljómleika, en alla
aðra tónlist hafa bæjarbúar
orðið að sækja til Reykjavíkur.
Vafalaust hefir vöntun á not-
hæfu húsi til hljómlistarflutn-
ings valdið miklu um þetta, en
nágrennið við Reykjavík hefir
einnig að líkindum dregið úr
áhuga Hafnfirðinga á þvi að
skapa sitt eigið tónlistarlíf, þar
sem telja má auðvelt að sækja
þangað þá hljómleika, sem öll-
um eru ætlaðir. .
Ýmsum Hafnfirðingum hefir
þó verið ljóst, að tónlistarmenn-
ing bæjarins er miklu minni en
vera ætti, og er vafalaust að því
skaði, því að uppeldisgildi tón-
listar verður ekki vefengt. Eink-
um varðar miklu, að fólk eigi
snemma ævi kost á að njóta sí-
gildrar tónlistar, því að ella er
hætta á, að menn læri aldrei að
meta hin stærri og meiri tónverk
í flutningi færustu listamanna,
en láti staðar numið við smálög.
Til þess að ráða nokkra bót á
þessu, höfum við, 15 Hafnfirð-
ingar, stofnað Tónlistarfélag
Hafnarfjarðar. Mark þess og mið
er að efna til góðra hljómleika
fyrir þá bæjarbúa, er slíkt vilja
þekkjast, koma á fót tónlistar-
kennslu, þegar tök þykja á, og
vinna í þágu tónlistar á allan
þann hátt, sem við verður kom-
ið. Ætti þetta að reynast miklu
auðveldara nú en áður, með því
að nú er völ á húsi, bíósalnum í
ráðhúsi bæjarins, en sumir fær-
ustu tónlistarmenn okkar munu
telja hann bezta hljómleikasal,
sem þeir hafa kynnzt hérlendis.
Starfi sínu mun félagið haga
á líkan hátt og Tónlistarfélagið
í Reykjavík, þ. e. bjóða Hafn-
firðingum að gerast styrktarfé-
lagar og fái þeir í þess stað að-
gang að nokkrum hljómleikum
á ári. Samningar hafa þegar
tekizt við Tónlistarfélagið í
Reykjavík og á Tónlistarfélag
Hafnarfjarðar kost á að fá-til
Hafnarfjarðar listamenn, er
leika á vegum þess. Hefir stjórn
þess látið sér mjög annt um
stofnun þessa félags og boðið
því stuðning sinn í öllu því, er
það mætti. Kunnum við henni
að sjálfsögðu miklar þakkir fyr-
ir heit um liðvelzlu, enda hefir
það félag unnið hið mesta menn-
ingarstarf og gerbreytt öllum
viðhorfum í tónlistarmálum hér
lendis. Mundi hvorki okkur né
öðrum, sem stofna kunna tón
listarfélag á næstunni, reynast
slíkt kleift, svo að verulegu
gagni kæmi, ef þess félags nyti
nú ekki við.
Tónlistarfélag Hafnarfjarð-
ar væntir þess, að Hafnfirðing
ar bregðist vel við málaleitun
félagsins og leggi af mörkum
sinn skerf til þess að hingað
megi koma þeir listamenn, sem
völ er á beztum. —
Hafnarfirði 2. maí 1946.
Benedikt Tómasson, form.
Ásgeir Júlíusson, ritari.
Eiríkur Pálsson, gjaldkeri.
Beinteinn Bjarnason.
Garðar Þorsteinsson.
H AN S MARTIN:
SKIN OG SKÚRIR
lækka farmgjöldin enn meira en þér — til þesS að ná mér aftur á
strik, og auk þess lagði ég fram stórfé af einkaauði mínum ....
Þetta hefir gefið góða raun. Auðvitað heldur bág afkoman þetta
árið, en fyrirtækið er aftur komið á tryggan grundvöll, ef allt
verður með felldu. Fyrirtæki okkar beggja ættu að geta blómg-
azt ágætlega hlið við hlið. En ef við leitumst sífellt við að troða
skóinn hvor niður af öðrum, getur náttúrlega svo farið, að báðir
verði fyrir vonbrigðum. Þess vegna er það tillaga mín, að við
höldum fyrirtækjum okkar algerlega aðgreindum, van Meegen
— en vinnum samt saman. Ég vil I hreinskilni sagt, að við hætt-
um að reka njósnir hvor um annars fyrirætlanir, hættum að
reyna að róa hvor undan öðrum, eins og svo alsiða er um skipa-
félög, en gerum þess í stað gagnkvæma samninga um farmgjöld,
kjör og siglingar. Getið þér fallizt á það?“
Van Meegen réttir fram hönd sína.
„Ég geng að þessu, Wijdeveld .... Ég finn það nú glöggt, sem
ég vissi raunar áður, að þér eruð drengur góður. Þér getið treyst
3VÍ, að ég svík yður ekki.“
„Það gleður mig að heyra þetta. Þá skulum við gera um þetta
skriflega samninga, og síðan gefum við starfsfólki okkar og um-
boðsmönnum til kynna, hvaða nýskipun hefir átt sér stað okkar
í milli. Og ég sting upp á því, að við hittumst að minnsta kosti
einu sinni í mánuði til þess að ræða hagsmunamál okkar.“
„Ágætt, Wijdeveld .... Verðum við ekki samferða i kauphöll-
ina. Við erum orðnir heldur seinir ....“
Litli vélbáturinn dansar á kröppum bylgjunum. Wijdeveld dreg-
ur hattinn niður á ennið og brettir upp kragann á frakka sínum.
„Þér ættuð að kaupa yður síða olíukápu og hlýtt skinnvesti,“
segir maður, sem situr við stýrið ....
Wijdeveld kinkar kolli, Honum þykir vænt um þetta skynsam-
lega ráð. Þá getur hann líka hætt sér lengra út á bryggjurnar, án
pess að eiga á hættu að skemma fötin sín ....
hagað eins og verið hefir. Lög-
þingsfulltrúinn verði ráðunautur
utanríkismálaráðuneytisins í
færeyskum málum. Kjósi lög-
þingið að senda utan samninga-
nefndir, er geri viðskiptasamn-
inga við aðrar þjóðir, getur það
gert það í samráði við utanrík-
ismálaráðuneytið, enda greiði
Færeyingar kostnaðinn Mllli-
ríkj asamningar Dana eru ekki
bindandi fyrir Færeyinga, nema
samþykki færeyskra stjórnar-
valda komi til. Danir hafi með
höndum fiskveiðaeftirlitið og
noti til þess skip undir dönskum
fána, þar til Færeyingar ákveða'
að taka það í sínar hendur og
standa straum af kostnaðinum.
Réttindi og skyldur, tengd
dönskum ríkisborgararétti, skulu
vera sem verið hefir með þeim
breytingum þó, sem nauðsynleg-
ar eru, til dæmls varðandi skrá-
setningu skipa, útlendingalög-
gjöf og annað, sem leiðir af rétti
Færeyinga til þess að nota sinn
eigin fána. Um önnur mál en
hér hafa verið nefnd, svo sem
samgöngumál, verzlunar- og
tollmál, siglingamál, póstmál,
vitamál, síma- og loftskeyta-
mál, réttarþjónusta, vogarmál
og fleira, skal gerður nánari
samningur milli lögþingsins og
ríkisstj órnarinnar, þó þannig,
að Færeyingar taki þegar í sín-
ar hendur atvinnumál, vitamál,
póstmál, kirkju- og kennslumál,
lyfjamál, heilbrigðismál, sam-
göngumál, sveitarstjórnar- og
fátækramál og félagsmál. Áður
en tvö ár eru liðin frá samninga-
gerð þessari skal ráðið til lykta
öllum fjármálaatriðum milli
Dana og Færeyinga og settar
reghir um þátttöku Færeyinga í
sameiginlegum kostnaði þjóð-
anna. Ákvæði þau, sem gengu í
gildi 9. maí 1940 um bráða
birgðastjórn Færeyja, skulu
gilda, þar til hinn nýi samning
ur hefir hlotið samþykki.
Samkomulagstillögur
jafnaðarmanna.
Næst bar það til tíðinda hinn
18. marz, að fulltrúar jafnaðar-
manna koma enn fram með
breytingartillögur við uppkast
dönsku nefndarinnar, er jafn-
framt var hugsað sem sam-
komulagsgrundvöllur, er jafnað-
armenn og Fólkaflokksmenn
gætu mætzt á.
Um réttarstöðu Eæreyja vildu
þeir komast svo að orði, að hún
yrði hin sama og verið hefir að
öðru leyti en því, sem leiddi af
þessum samningum. En réttur
Færeyinga til þess að lýsa yfir
fullu sjálfstæði væri viður-
kenndur, enda yrði það gert
samkvæmt ósk þjóðarinnar
Ríkisstjórnin sjái um, að gerðar
verði þær breytingar á stjórnar
skránni, sem nauðsynlegar eru
til þess að samningarnir geti
gengið í gildi. Lögþing Færey-
inga fái löggjafar- og fjárveit
ingavald í öllum færeyskum
málum, sem ekki hafa í för með
sér útgjöld fyrir ríkissjóð né
varða hagsmuni manna í Danm
Engin lög geta öðlazt gildi í
Færeyjum, nema þau hafi fyrst
verið lögð fyrir lögþlngið og
samþykkt af því.
Færeyingar geta hvenær sem
er tekizt á hendur fulla ábyrgð
fjárhagslega, stjórnarfarslega og
siðferðilega, í þeim atriðum, er
nú hafa verið nefnd, og undir
(Framhald á 4. síðu)
Frá Rafveitu
Keflavíkur
Tilboð óskast í eftirfarandi vélar og tæki hjá Rafveitu
Keflavíkur:
1. Mannheim-Dieselvél, 90 ha., með kílreimdr. rafal 42
kw. 110 volt.
2. Deutz-Dieselvél, 50 ha., með reimdr. rafal, 15 kw.
110 volt.
3. Polar-Dieselvél, 25 ha., með ástengdum rafal, 12.5 kw.
110 volt.
4. Fullkominn töfluútbúnaður, ásamt spennu- og straum-
mælum fyrir hverja vélasamstæðu.
Vélarnar eru notaðar, og í nothæfu ástandi. Þær eiga að
seljast í einu lagi, eða hver út :.f fyrir sig, eftir nánara
samkomulagi.
Rafveitan áskilur sér rétt til að taka hvaða tilboði sem
er, eða hafna öllum.
Nánari upplýsingar eru gefnar í síma 94 eða 107 í
Keflavík.
Rafveita Keflavíkur!
Jörð til sölu og ábóðar
Jörðin Víkurgerði í Fáskrúðsfjarðarhreppi er til sölu og
ábúðar nú þegar. —Húsakostur er góður, öll hús steypt.
Vindrafstöðvar, miðstöð. — Ágæt aðstaða að stunda út-
fræði. — Til sölu ennfremur 2 kýr og 10 ær.
Semja ber við undirritaðan.
Fáskrúðsfirði, 30. apríl 1946.
Jón Reykjalín, Víkurgerði.
Sfarfsstúlkur
vantar í Kleppsspítalann 14. maí.
Upplýsingar í síina 2319.
...
Auglýsing
um lausar lögregluþjónsstöður í Reykjavík
Nokkrar lögregluþjónastöður eru lausar til umsóknar.
Byrjunarárslaun lögregluþjóna eru kr. 6000,00, en hækka
um kr. 300,00 á ári í kr. 7.800,00 auk verðlagsuppbótar og
einkennisfata.
Umsækjendur skulu vera 22—27 ára að aldri, 178—190
cm. á hæð, hafa íslenzkan ríkisborgararétt, óflekkað mann-
orð, vera lögráða og hafa forræði fjár síns. Hafi umsækj-
andi sérstaka kunnáttu til að bera, sem nauðsynleg eða
heppileg er talin fyrir lögregluna, má þó víkja frá fram-
let vörubifreiðar, með palli og húsi, þriggja tonna.
Lögreglunámskeið verður haldið fyrir lögregluþjónaefni
að umsóknarfresti liðnum.
Umsóknir skulu ritaðar á þar til gerð eyðublöð, er fást
skrifstofu minni og hjá sýslumönnum og bæjarfógetum úti
á landi.
Umsóknarfrestur er til 10. júni 1946.
Lögreglustjóriim í Reykjavík,
^ 6. maí 1946.
*>«
Verzlun Ingþórs
Sími 27.
Til að auka ánœgjuna
Ingþór hefur flest.
Selfossi. Þar aS koma þú skalt muna
aS þér er sjálfum bezt.
CHEVROLET
vörubifreiðir
Get útvegað frá Englandi til afgreiðslu strax nýjar Chevro-
angreindum skilyrðum um aldur og líkamshæð.
fjögurra hjóla.
Bifreiðarnar hafa verið smíðaðar í U.S.A.
Nánarl upplýsingar.
ARNBJÖRN JÓNSSON
Heildverzluii, Laugaveg 39. — Sírni 6003.
Iðnskólabyggingin
boðin út
Hér með er leitað tilboða í að steypa upp og koma undir
þak nýrri Iðnskólabyggingu, er standa á við Skólavörðutorg.
Þeir, sem vilja sinna þessu, vitji uppdrátta og lýsingar í
skrifstofu Iðnskólans við Vonarstræti, milli kl. 5 og 7 síð-
degis, eða hjá Þór Sandholt, Reynimel 31, eftir kl. 6 síðd.,
næstkomandi miðvikudag, gegn 300,00 skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð í skrifstofu skólans föstudaginn 17.
maí 1946 kl. 6 síðdegis, og ber að skila þeim þangað fyrir
þann tíma.
F, h. Byggingarnefndar Iðnskólans i Reykjavík.
Þór Sandholt.
Ný bók
Hið íslcnzka fornritafélag:
Heimskringla II
Bjarni Aðalbjarnarson gaf út. •
Fæst hjá bóksölum.
Nokkur eintök af Vestfirðingasögum og ljósprentaða út-
gáfan af Laxdælu fást ennþá.
Kaupið fornritin jafnskjótt og þau koma út.
Aðalútsala:
Bókaverzlun
Sigfúsar Eymundssonar