Tíminn - 24.05.1946, Blaðsíða 4

Tíminn - 24.05.1946, Blaðsíða 4
Skrifstofa Framsóknarflokksins er i Edduhúsinu við Lindargötu. Sími 6066 4 | ItEYKJAVÍK FRAMSÓKNARMENN! Komið í skrifstofu 24. MAÍ 1946 FramsóknarfLokksins! 91. blað ÚR BÆNUM í dag. Sólin kemur upp kl. 3.51. Sólarlag kl. 23.00. Árdegisflóð kl. 1.00. Síðdeg- isflóð kl. 12.20. í nótt. Næturakstur annast bifreiðastöðin Hreyfill, sími 1633. Næturlæknir er í læknavarðstofunni í Austurbæjarskól- anum, sími 5030. Næturvörður er í Laugavegs Apóteki. Trúlofun. Nýlega hafa opinberað trúlofun sína ungfrú Arndís Hannesdóttir Bíldudal og Jón Gíslason kennari Hrafneyri, Arnarfirði. Hjónaband. Sunnudaginn 19. þ. m. voru gefin saman í hjónaband ungfrú Halldóra Guðrún Berickson frá Minneapolls og Vilhjálmur Bjarnar stud. mag., Laug- arbrekku. Trúlofun. Nýlega hafa opinberað trúlofun sína ungfrú Jóhanna Einarsdóttir frá Hraunsnefi í Norðurárdal og Jón Jóhannesson lögregluþjónn frá Hrauni í Sléttuhlíð í Skagafirði. I Leiðrétting. í grein um okrið í byggingamálun- | um, er birtist hér í blaðinu í gær, > hafði misritazt húsameistarar í stað- , inn fyrir húsasmíðameistarar, þ'egar verið var að segja frá hárri álagningu, ■ er einstakir menn bættu við bygg- ! ingakostnaðinn. ÍOO ára afmæli. (Framhald. af 1. síðu) í skrifstofu nefndarinnar í í- þöku. Stúdentar, sem eigi búa í bæn- um og ætla að sækja hátíðina, eru hvattir til að senda tilkynn- ingu um þátttöku fyrir 10. júní. Sími skrifstofunnar er 6999, og verður hún opin áðurnefnda daga kl. 5—7 (nema sunnud.). Er það eindregin ósk nefndar- innar, að sem flestir stúdentar, útskrifaðir frá skólanum, heiðri hann með nærveru sinni á þess- ari merkishátíð hans. í tilefni afmælisins verður gert sérstakt skólamerki og í haust mun koma út merkilegt minningarrit skólan^ þar sem 60—70 af nemendum skólans skrifa ýmsar minningar um skól ann og úr skólalífinu. í hinum heimsfrægu verksmiðjum GENERAL MOTORS Corp., sem framleiða CHEVRO- LET, er nú unnið án afláts að framleiðslu CHEVROLET 1946. CHEVROLET er traustur. CHEVROLET er sparneytinn. CHEVROLET er ódýr. Ennþá getum við útvegað CHEVROLET, með stuttum fyrirvara, beint frá verksmiðjum G. M. C., til þeirra, sem hafa innflutningsleyfi. CHEVROLET - STYLEMASTER kostar hingað kominn, miðað við núverandi út flutningsverð, dollaragengi og farmgjald, ekki yfir 14,500 krónur Samband Ísl. Samvinnufélaga l CHEVROLET 1946 Fjórar fyrstu útgáfubækurn^r eru komnar út. — Askrifendur í Réykjavík eru vinsamlegast beðnir að vitja þeirra á Hallveig- arstíg 6A og greiða andvirði þessara bóka (50 kr. ób. Bækurnar eru þessar: HVIRFILVINDUR, skáldsga eftir Joseph Conrad, Andrés Krist- jánsson þýddi. ÆVINTÝRI í SUÐURHÖFUM, skáldsaga eftir Edgar Allan Poe, Halldór Ólafsson þýddi. INDÍAFARINN MADS LANGE, eftir Aage Krarup Nielsen, Krist- ján Jónsson og Guðm. E. Geirdal þýddu. WORSE SKIPSTJÓRI, skáldsaga eftir Alexander L. Kielland, Sigurður Einarsson þýddf. Bækur sjómannaútgáfunnar eru EKKI seldar í bókabúðum, heldur aðeins til áskrifenda. Áskrifendur fá þær fjórar bækur, sem út eru komnar, auk tveggja stórra bóka í haust, fyrir aðeins 100 kr. Tekið á móti nýjum áskrifendum á Hallveig- arstíg 6A, Bókaverzlun ísafoldar, Bókaverzlun Lárusar Blöndal fog Bókaverzlun Hermanns Sigurðssonar, Laugavegi 100. Kynnið yður kostakjör Sjómannaútgáfunnar og þér munuð ekki hika við að gerast áskrifandi. Lesið fregnmiða útgáfunnar, þar sem gerð er grein fyrir bókum næsta árs. Alexander L. Kielland Þetta merki tryggir yður góðar, ódýrar og skemmtilegar bækur. Joseph Conrad SJOMANNAUTGAFAN Hallveigarstíg 6A — Sími 4169. (jatnla Síó (MSLJOS (Gaslight) Amerlsk stórmynd frá Metro Goldwyn Mayer, gerö eftlr lelk- ritl Patrick Hamiltons. Aðalhlutverk: Charles Boyer, Joseph Cotten og Ingrid Bergman. Pyrir leik sinn í myndinni hlaut hún „Oscar“-verðlaunin 1945. Sýnd kl. 5, 7 og 9. Bönnuð yngri en 14 ára. Wýja Síó (viS Shúlagötu) Hart á móti hörðn (The Naughty Nineties) Bráðskemmtileg gamanmynd með skopleikurunum frægu: Abbott og Costello Sýnd kl. 5, 7 og 9. Sala hefst kl. 11 f. h. TIMINN kemur á hvert sveitaheimih og þúsundir kaupstaðaheimila, enda gefinn út í mjög stóru upplagi. Hann er því GOTT AtJGLÝS- INGABLAÐ. Þeir, sem ekki hafa reynt það, ættu að spyrja hina, er reynt hafa. TÍMINN Lindargötu 9A, sími 2323 og 2353 Tjarnarbíó Víkingurnm (Captain Blood) Eftir B. SABATINl Errol Flynn, Olivia de Havilland. Sýning kl. 9. Bönnuð yngri en 14 ára. Regnbogaey j an (Rainbow Island) Söngva- og mamanmynd í eðli- legum litum. Dorothy Lamour Eddie Bracken Gil Lamb Sýning kl. 3, 5 og 7. Sala hefst kl. 11. Hnefaleikamót á Akranesi Dómur óháðra Sjálf- .stæðismanna. (Framhald af 1. síðu) Hnefaleikamenn úr Ármanni fóru upp á Akranes um sein- ustu helgi og kepptu þar í hnefaleik á sunnudaginn í hinu nýja íþróttahúsi þeirra Akur- nesinga, sem fullskipað var á- horfendum við þetta tækifæri. Er þetta fyrsta hnefalei^a- keppni, sem háð hefir verið á Akranesi. Tveir Akurnesingar tóku þátt i keppninni, Ríkharður Jónsson í millivigt og Baldvin Árnason í léttþungavigt. Úrslit urðu þau, að í flugvigt sigraði Friðrik Guðnason, í bantamvigt sigraði Lúðvík Guðmundsson, í léttvigt ^igraði Arnkell Guð- mundsson, í veltivigt sigraði Ólafur Karlsson, í millivigt voru þeir dæmdir jafnir Ríkharður Jónsson Akranesi og Svavar Árnason úr Ármanni, í létt- þungavigt sigraði Matthías Matthíasson og í þungavigt sigraði Jens Þórðarson. Það gefur gleggst til kynna, að gagnrýni þessi muni hafa meira en lítið fylgi innan Sjálf- stæðisflokksins, að flokksforust- an hefir nú neyðst til að bjóða forustumanni hinna óháðu Sjálfstæðismahna, Birni Ólafs- syni, fimmta sætið á lista flokksins, sem búið var þó að neita honum um. Með því tekst forustunni að brúa yfir frekari ágreining fram yfir kosningarn- ar, en vitanlega heldur flokkur- inn samt áfram að vera jafn klofinn og áður um þau sjónar- mið, sem tilgreind eru í greinar- gerð hinna óháðu Sjálfstæðis- manna. Utan Reykjavíkur geta þeir Sjálfstæðismenn, sem eru and- vígir stefnu flokksforustunnar, ekki haft svipuð áhrif á fram- boð flokksins og hinir óháðu Aflasölur Þessi skip seldu afla sinn í Bretlandi í síðastl. viku: / Fleet- woodd: E.s. Siðríður seldi 1708 cwt. á 3399 pund, e.s. Fagri- klettur 2274 cwt. á 5839 pund, m.s. Rifsnes 2270 cwt. á 6348 pund, m.s. íslendingur 2179 cwt. á 5964 pund, e.s. Bjarki 2234 cwt. á 5340 pund, m.s. Fanney 1821 cwt. á 4179 pund, m.s. Álsey 2075 cÐt. á 5205 pund, b.v. For- seti 4122 cwt. á 10340 pund, b.v. Geir 3053 cwt. á 8140 pund, b.v. Júpiter 5073 cwt. á 11688 pund, b.v. Tryggvi Gamli 3421 cwt. á 8655 pund, e.s. Jökull 2347 cwt. á 5420 pund. / Grimsby: M.s. Fell sendi 2895 cwt. á 7882 pnud, b.v. Faxi 2767 kit á 8835 pund, b.v. Venus 4110 kit á 13692 pund. / Hull: B.v. Skinfaxi seldi 2794 kit kit á 11489 pund, m.s. Sæfinnur 1540 kit á 5047 pund. / Aberdeen: M.s. Grótta seldi 3350 cwt. á 8139 pnud, m.s. Narfi 1588 cwt. á 4147 pund. Sjómannaskólinn Sjómannaskólanum í Reykja- vík var slitið s.l. þriðjudag. Burt- fararprófi luku að þessu sinni 41 nemandi, 31 úr fiskimanna- deild og 11 úr farmannadeild. Fjórir nemanna hlutu ágætis- einkunn og verðlaun úr styrkt- arsjóði Páls Halldórssonar. Voru það Einar Eyjólfsson, Jónas Þor- steinsson og Páll Guðmundsson úr fiskimannadeild og Þorsteinn Kr. Þórðarson úr farmannadeild. Sjálfstæðismenn í Reykjavik. Ef þeir kjósa frambjóðendur flokksins, eru þeir raunverulega að styðja þann arm flokksins, er vill samvinnu við kommún- ista. Þessir Sjálfstæðismenn eiga því ekki annars úrkosta en að kjósa með Framsóknar- flokknum og stuðla þannig að breyttri fjármálastefnu og að hafið verði samstarf umbóta- manna í lýðræðisflokkunum í stað upplausnarsamstarfsins við kommúnista. íkvelkja. (Framhald af 1. síðu) svo einn mannanna í leigubif- reið upp á Akranes og hafði með sér ferðatösku með fjór- um benzínbrúsum í. Er á Akra- nes kom bað hann bifreiða- stjórann að bíða sín um stund og yfirgaf bifreiðina, töskuna hafði hann með sér. Hann fór rakleitt að sláturhúsinu og kveikti í því og var klukkan þá um 2,30 um nóttina. Eftir skamma stund kom maðurinn svo aftur til bifreiðarinnar og síðan var haldið af staö til Reykjavíkur í skyndi. Ekki er vitað að neinn á Akranesi hafi orðið bifreiðarinnar var um nóttina. Klukkan um 3 kom slökkvilið á vettvang og var húsið þá orðið alelda og ikveikju- maðurinn allur á bak og burt. Ekki er vitað nema sömu menn séu viðriðnir fleiri í- kveikjur, en rannsókn málsins stendur enn • yfir og verður nánar skýrt frá þessu máli síðar.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.