Tíminn - 01.06.1946, Blaðsíða 1
I
RITSTJÓRI:
ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON
ÚTGEPANDI:
FRAMSÓKNARFLOÍÍKITF! TNK
Símar 2363 og 437S
í PRENTSMIÐJAN EDDA hJ
30. árg.
RITSTJÓRA SKRIFCTOFUR:
EDDTTHÍTSI. I>l“.dart'ötru 9 A
Simar 2363 og 4373
AFGREIÐSLA, INNHEIMTA
OG AUGLÝSINGASKRIFSTOFA:
EDDUHÚSL Llndargötu OA
Simi 2323
Rcýkjavík, laugardagiim 1. jiini 1946
96. blað
„Aldrei skal ég biskup-
inn eiga", sagði
kerlingin
Jón Pálmason hefir afsalað
sér sæti á landslista flokks síns
og þar með upptoótarsæti, ef
hann fellur í kjördæminu.
Þetta vekur sennilega nokkra
eftirtekt. Jón er hræddur um
að falla, og finnst að hann verði
nú að nota öll ráð. Þá minnist
hann þess, að Vilmundur Jóns-
son hafði eitt sinn þessa aðferð,
og tekur hana nú eftir.
Vilmundur var þannig settur,
að hann hefði átt að taka upp-
bótarsæti fyrir flokk sinn, ef
hann hefði fallið. En allt öðru
máli gegnir um Jón Pálmason.
Hann gæti alls ekki orðið upp-
bótarmaður. Flokkur hans á nú
ekki nema tvö uppbótarþing-
sæti, og það veit enginn hvort
þau verða fleiri eða færri eftir
þessar kosriingar. En ef þeim
fjölgar, þá er það af því einu,
að frambjóðendur, sem standa
nær uppbótarsætum en Jón
Pálmason, falla.
Jón Pálmason er því hér að
gera sig hlægilegan, með því að
afsala sér því, sem hann hefir
enga möguleika til að fjá. Leifur
Auðunsson og Axel Tulinius
gætu alveg eins afsalað sér rétti
til uppbótarsætis. Þetta kemur
þvi kosningunum ekki meira við
en þó að Jón, Pálmason aug-
lýsti í Morgunblaðinu að hann
gæfi aldri kost á sér sem forseta
íslands eða afsalaði sér rétti til
rikiserfða í Bretlandi.
Aðalfundur
Ungmennafélags
Reykjavíkur
e
Nýlega var haldinn aðalfund-
ur Ungmennafélags Reykjavík-
ur. Formaður gaf skýrslu um
störf félagsins á Síðasta starfs-
ári, og er félagið í vexti, 5S
nýir félagar gengu í félagið á
árinu. Starfssemin var einkum
viðkomandi, íþróttum.leikstarfs-
semi, hópferðum og gestamót-
um með bindindisstarfsemi.
íþróttakennarar félagsins voru,
Lárus Salómonsson, Baldur
Kristjónsson og Halldór Erlends-
son.
Stjórn félagsins skipa nú þess-
ir: Stefán Runólfsson, frá Hólmi,
sem var endurkosinn formaður,
Daníel Einarsson (endurkosinn),
Grímur S. Nordal (endurkos-
inn), Björg* Sigurjónsdóttir og
- Sveinn Sæmundsson. Þau Krist-
ín Jónsdóttir og Helgi Sæmunds-
son báðust undan endurkosn-
ingu. Kristín hefir verið i stjórn
frá því að félagið var stofnað,
og má telja að engin félags-
maður hafi. starfað meira fyrir
(Frumhald á 4. síðu).
Áætlimarbáskapur eða glundroði:
Byggingafélög alþýðu fá ekki lánsfé, þótt hundruð milj.
festist í braskstarfsemi og óhóflegum vörubirgðum
ÞRETTÁN NYIR HÚSMÆÐRAKENNARAR
• Framboðsfrestur
útrunninn
Framboðsfrestur til alþingis-
kösninganna, sem fram eiga að
fara 30. júní var útrunninn 28.
maí. Sjálfstæðisflokkurinn og
kommúnistar bjóða fram í öll-
um kjördæmum. Framsóknar-
menn bjóða fram i öllum kjör-
dæmum, nema Norður-ísafjarð-
arsýslu og Seyðisfirði. Alþýðu-
flokkurinn býður fram í öllum
kjördæmum nema í Norður-
Múlasýslu og Austur-Skapta-
fellssýslu. Auk þess býður Bjarni
Bjarnason sig fram í Árnes-
sýslu og Jónas Jónsson í Þing-
eyjarsýslu og telja þeir sig
Framsóknarmenn. Þá býður
Jónas Guðmundsson skrifstofu-
stjóri sig fram utanflokka á
Seyðisfirði.
Nemendur Húsmæðrakennaraskólans, sem luku burtfararprófi í vor, talið frá vinstri: Guðrún Aðalsteinsdóttir,
Vaðbrekku N.-Múl. Elín Guðjónsdóttir, Hafnarfirði. Þorbjörg Bjarnadóttir, Vigur, N.-ís. Sigríður Lárusdóttir,
Hömrum, Dal. Kristín Jóhannesdóttir, Hveragerði. Kolfinna Gerður Pálsdóttir, Reykjavík. Sigurlaug Jónasdóttir,
kennslukona frá Öxney. Helga Sigurðardóttir, forstöðukona. Kristjana Steingrimsdóttir, ReykjaVík. Ragnhildur
Sigurbjörnsdóttir, Reykjavík. Guðný Ólafia Halldórsdóttir, Háteigi, Reykjavík. Vilborg Björnsdóttir, Múla, Álfta-
firði, S.-Múl. Ilalldóra Einarsdóttir, Bolungarvík, N.-ís. Ásdís Sveinsdóttir, Egilsstöðum, S.-Múl. Gerður Kristins-
dóttir, Möðrufelli, Eyf.
„Nemendur ykkar eiga a5 ala
upp komandi kynslóðir”
Þrettán námsmeyjar átskrifast nr Hús-
mæðrakeimaraskólaiium
Frumsýning á
nýjum leik
Leikfélag Reykjavíkur frum-
sýnir næstkomandi fimmtudag
leikritið Tondeleyo eftir Leon
Gordon.
Það er a(U mötrg ár síðan
það kom fram, og fór þá mikla
sigurför um Evrópu og Amer-
íku. Hafa margir hinna þekkt-
ustu leikara spreytt sig á hin-
um erfiðu, en að mörgu leyti
góðu hlutverkum leikritsins, t.
d. má geta þess að í Berftn lék
Heinrich George eitt aðal hlut-
verkið.
Nýlega hefir verið gerð kvik-
mynd i Ameríku eftir leikrit-
inu, Hedy Lamar lék þar Tonde-
leyo og mun höfundurinn sjálf-
ur hafa séð um töku myndar-
innar, en hann er nú leikstjóri
og handrita-gagnrýnandi hjá
Metro-Goldwyn Meyr kvik-
myndafélaginu í Los Angeles.
Leikendur hér eru: Inga
Þórðardóttir, Indriði Waage,
Brynjólfur Jóhannesson, Jón
Aðils, Gestur Pálsson, Valdimar
Helgason, Rúrik Haraldsson,
Sigfús Halldórsson, Wilhelm
Norðfjörð og Valur Gíslason.
Leikstjóri er Indriði Waage.
Leiktjöld hefir Sigfús Halldórs-
son teiknað og málað, en vinnu-
teikningar hefir Finnur Krist-
insson gert.
Aðeins örfáar sýningar verða
á leikritinu þar eð leikarar og
starfsfólk fer nú bráðum að
taka sér sumarleyfi.
Húsmæðrakennaraskóla ís-
lands var slitið' í Hátíðasal
Háskólands 31. maí, að við-
stöddum fjölda gesta. Þrettán
námsmeyjar luku burtfarar-
prófi að þessu sinni.
Forstöðukona skólans, Helga
Sigurðardóttir, flutti ræðu og
gerði grein fyrir -starfsháttum
skólans. Námstíminn er þrjú
misseri, tveir vetur í Reykjavik
og eitt sumar á Laugarvatni, þar
sem námsmeyjar stunda garð-
yrkju og hirða kvikfé. Kveðst
Helga hafa fullan hug á að auka
garðyrkjukennsluna, því að
stefna bæri að því, að sem flest
heim/li ættu sér garð. Þarigað
ættu húsmæðurnar að sækj a sér
yndi og hvíld til tilbreytingar
frá innistörfunum, við ræktun
og aðhlynningu trjáplantna og
blóma, og jafnframt ættu þær
að sækja þangað nytjajurtir til
meiri fjölbreyttni og aukinnar
hollustu 1 fæði heimilisfólksins.
Síðast vék forstöðukonan að
framtíð námsmeyjanna, sem
nú útskrifuðust og því lífsstarfi,
sem biði þeirra, að mennta og
móta húsmæður komandi tíma:
„Það eru nemendur ykkar,
sem eiga að ala upp komandi
kynslóðir,“ sagði hún.
Að lokum þakkaði hún nem-
endum og samkennurum á-
nægjulegt samstarf og afhenti
námsskírteini stúlkum þeim,
sem útskrifuðust.
Þegar athöfninni var lokið
gengu gestir í húsakynni skól-
ans í Háskólakjallaranum, þar
sem hinar fegurstu veitingar
biðu þeirra, veittar af mikilli
alúð og rausn.
Iðgjöld sjúkrasam-
lagsins hækka
Nýlega hefir verið ákveðið,
að hækka iðgjöld Sjúkrasam-
lags Reykjavíkur í 15 kr. og
sýnir það m. a., að enn stefn-
ir allt í hækkunaráttina und-
in handleiðslu ríkisstjórnar-
innar. Hér fer á eftir grein-
argerð frá stjórn Sjúkrasam-
lagsins um hækkunina.
Þegar iðgjöld Sjúkrasamlags
Reykjavíkur hækkuðu úr 10 kr.
í 12 kr. á mánuði þ. 1. okt. s. 1.,
varð vart nokkurrar óánægju
aðallega vegna þess, að ekki var
gerð grein fyrir því opinberlega,
af hverju hækkunin stafaði
mátti þó hverjum manni vera
ljóst, að hækkun hlaut að verða
á því ári, þó ekki væri fyrir
annað en afleiðingar launalag-
anna. Af þeim leiddi meðal ann-
ars, að ekki var talið annað fært,
en að verða við kröfum lækna
um fulla verðlagsuppbót og
grunnlaunahækkun. Til þess
tíma höfðu læknar ekki haft
uppbætur nema að vissu há-
marki grunnlauna. Útgjalda
hækkunin á árinu 1945 af þessu
einu saman nam nálægt 400.000
krónum. Þá hækkuðu og dag-
gjöld á Landsspítalanum úr kr.
15.00 í kr. 22.50. Ennfremur var
fæðingarstyrkur hækkáður um
helming.
Það fór svo, að þrátt fyrir ið-
gjaldahækkunina, varð tpkju-
halli tæpar 300 þúsund kr. á ár-
(Framhald á 4. síðu).
Embættispróf
Embættisprófi í lögum hafa
þeir Jónas Rafnar og Magn-
ús Jónsson lokið við Háskóla
íslands, báðir með I. einkun.
Jónas hlaut 195 stig, en Magn-
ús 222 y3 stig.
30. júní velja kjósendur milli áætlunar-
stefnu Framsóknarflokksins og glund-
roðastefnu stjórnarflokkanna.
Allt bendir til þess, að byggingalögin, sem afgreidd voru frá
seinasta þingi, verði lítið annað en pappírsgagn meðan núv.
stjórnar nýtur við. Á ýmsum stöðum, þar sem hafizt hefir verið
handa á grundvelli Iaganna, virðast framkvæmdir yfirleitt ætla
að stranda á fjárskorti. Lánsstofnanir eru lokaðar að mestu og
a frjálsum markaði, fást lánin ekki, nema þá með okurkjörum.
Stjórnin hefir vahrækt að gera það, sem var mikilvægast, að
tryggja fjármagnið til bygginganna. Eina örugga ráðið til þess
var að hverfa frá því skipulagsleysi og handahófi, sem nú ein-
kennir fjármálastefnuna, því að á meðan það helzt, mun fjár-
magniö ekki leita nema að litlu Ieyti þangað, þar sem þess er
þjóðhagslega mest þörf.
Astæðan til þess, að fjármagn'
fæst ekki til byggingasamtaka
almennings, er vissulega ekki sú,
að fjármagnið vanti. Það er til
margfallt meira nú en nokkru
sinni áður. Vegna skipulagsleys-
is leitar það hins vegar í allt
aðrar áttir. Gífurlegar fjárhæð-
ir eru festar í alls konar vöru-
birgðum vegna hins taumlausa
innflutnings, geysimikið fjár-
magn festist stöðugt í margvís-
legri braskstarfsemi, eins og
bókaútgáfu og ýmsu iðnaðar-
dútli, auk alls þess fjár-
magns, sem fer í skrauthýsi og
sumarhallir auðkónganna. Af-
leiðingin verður sú, að lána-
stofnanirnar tæmast, bygginga-
samtök almennings geta ekki
fengið lánsfé og fjármagn vant- '
ar til að koma upp nauðsynleg- !
ustu atvinnuframkvæmdum, t.
d. fiskiðnaðarverksmiðjum.
Framsóknarmenn vöruðu við
þessari háskalegu þróun löngu
áður en stríðinu lauk. Þeir fengu
því samþykkta á þinginu 1943
skipun milliþinganefndar, sem
skyldi gera tillögur um skipulag
fjárfestingarinnar með það fyrir
augum, að nauðsynlegustu fram-
kvæmdirnar hefðu forgangsrétt.
Nefnd þessi var komin talsvert
á leið með starf sitt undir for-
ustu þeirra Hermanns Jónas-
sonar og Jóns Blöndals, þegar,
núv. ríkisstjórn kom til valda og
fól Nýbyggingaráði þetta verk-
efni. Frá Nýbyggingaráði hefir
vitanlega ekkert komið varðandi
þessi mál og stjórnin og forkólf-
ar stjórnarflokkanna virðast
hafa mestu velþóknun á glund-
roðanum, sem þar er nú ríkj-
andi.
Út úr þessum ógöngum verður
ekki komizt, nema tekinn sé upp
skipulagður þjóðarbúskapur eða
svokallaður áætlunarbúskapur,
þar sem fyrirfram er ákveðið,
hvernig fjármagnið og vinnuafl-
ið skuli skíptast milli atvinnu-
veganna og helztu verklegra
framkvæmda. Þeir atvinnuvegir,
d.
Vísir kræddur
Vísir, blaS Björns Ólafssonar.
birtir í gær feitletraða ramma-
klausu á fyrstu síðu, þar scm
reynt er að halda því fram, að
kosning Pálma Hannessonar sé
vonlaus. Þcssu sama hélt Vísir
fram í vetur og allir vita, hvern-
ig fór þá. Nokkuð er líka það,
að Björn Ólafsson þorði ekki að
vera í sjötta sæti á lista Sjálf-
stæðisflokksins, því að það væri
vonlítið, þar sem 5. maðurinn
myndi ekki ná kosningu sem
þingmaður Reykjavíkur. Varla
hefir Björn óttast kommúnista,
sem Vísir segir í gær að muni
tapa fylgi, eða Alþýðuflokkinn,
sem Vísir segir, að sé minnkandi
flokkur. Það var framboð Páima
Hannessonar sem Björn óttað-
ist. Þennan ótta auglýsir Vísir
enn á ný í gær, því að ekki
myndi hann fórna bezta frétta-
rúmi sínu, til að vara við Pálma,
cf hann óttaðist ekki sigur nans.
Það er líka víst, að auðvelt er
að tryggja. Pálma Hannessyni
kosningu, ef stuðningsmenn
hans vinna vel. Hefjið starfið
tafarlaust undir kjörorðinu:
Pálmi Hannesson skal á þing!
sem eru ofþandir, eins og t
verzlunin og ýms milliliðastarf-
semi, verða þá að draga saman
seglin, en aðrir aukast í staðinn.
Innan þessara takmarka áætl-
(r.\.:nhald á 4. siðu).
Fjallvegir óðum að
opnast
Fjallavegir eru nú óðum að
opnast og sérleyfisakstur haf-
inn eða um það bil að hefjast á
flestum langleiðum. Ferðir milli
Reykjavíkur og Hólmavíkur
byrja upp úr þessari helgi,
sömuleiðis byrja ferðir milli
Akúreýrar. og Austurlands í
næstu viku svo og til Kópa-
skers og Raufarhafnar. Fjarð-
arheiði við Seyðisfjörð er þó
ekki fær ennþá og ekki heldur
leiðin til Breiðdals, Vopnafjarð-
ar eða Þórshafnar. Leiðin yfir
Breiðdalsheiði milli ísafjarðar
og Þingeyjar verður fær til
aksturs seint í næstu viku.
Milli Reykjavíkur og Akureyr-
ar hefjast daglegar ferðir þann
3. júní í stað þrisvar í viku,
eins og nú er.
Nýtt met
Lögreglan hér I bæ hefir tek-
ið 442 menn úr umferð vegna
ölvunar, það sem af er þessum
mánuði.
Er þetta met í drykkjuskap
hér á landi. Hefir lögreglan
aldrei tekið eins marga úr um-
ferð á einum mánuði. í fyrra
mánuði voru teknir 348 menn
úr umferð.
(