Tíminn - 14.06.1946, Page 3
104. blað
TÍMircrc, föstiidagiim 14. jáni 1940
3
Frá sjónarhóll
hindindisvinar
Ég veit ekki, hvort margir eru
eins og ég, hundleiðir á hinum
margendurteknu kjósendaveið-
um flokkanna í útvarpinu,
einkum kommúnista og Sjálf-
stæðisflokksins. Ég er farinn að
skrúfa fyrir tækið, til varnar
móti þeim ósóma. En ég vildi
heyra síðast liðið föstudags-
kvöld, hvað frú Sigríður Eiríks-
dóttir hefði að segja fyrir hönd
kvenna, um áfengisósómann,
sem óðum fer vaxandi og lítur
út fyrir að geta orðið þjóðinni
— jafnvel hœttulegri, en svarti
dauði hinn eldri. Frúin flutti
eins og vænta mátti gott og
skörulegt erindi, og kom víða
við, og vænti ég þess, að þær
konur og menn, sem á það
hafa hlustað, með óbrjálaðri
dómgreind, hafi getað sann-
færzt um, að svo búið má ekki
lengur standa. í lok erindisins
skoraði hún á kjósendur lands-
ins að hefjast nú þegar handa
og skapa sterkt almenningsálit
móti þeim ófögnuði, er áfengis-
salan, sem virðist vera lífakkeri
núverandi stjórnar, hefir í för
með sér, og hún brýndi enn-
fremur fyrir þeim að athuga
rækilega þessi mál, nú fyrir og
um kosningarnar 30. júní n. k.
Ég er frúnni þakklátur fyrir
erindið, og hinar heilbrigðu
skoðánir, sem þar voru fram
settar, og óska þess, að sem
flestir hefðu heyrt það, og vildu
gera þetta vandræðamál, að
stóru spursmáli við næstu kosn-
ingar. En — það hefir verið
svo oft að undanförnu, að
flokksfylgið hefir ráðið mestu
hjá of mörgum, og þeir menn
hafa, af bindindisvinum verið
kosnir á þing, hvað eftir ann-
að, sem ýmist hafa lofað öllu
fögru og svikið svo jafnharðan
eða þeir hafa sumir hverjir ver-
ið kosnir, sem berir hafa verið,
að fjandskap við alla bindindis-
starfsemi, og hafa talið áfengis-
nautn til gildis sér og öðrum.
Hvað er nú bindindisvinunum
boðið í næstu kosningum? Hér
verður aðeins bent á örfáar
staðreyndir. Stj órnarf lokkarnir
eru eins og allir vita ósammála
um marga hluti, hafa jafnvel
borið hver á annan landráð, en
um eitt virðast þeir allir sam-
mála, og það er að, selja svo
mikið áfengi að gróðinn af þvi
skipti miljóna tugum, og kann
sumum að virðast það afsakan-
legt, því mikið þarf í hina
botnlausu eyðsluhít, sem stjórn-
in hefir með höndum á fleiri
sviðum en upp verði talið, og
allir virðast þeir þrátt fyrir
landráðabrigzlin,' vera sammála
um að halda uppi til skaða og
skammar fyrir þjóðina, stjórn-
arsamvinnunni undir forustu
Ólafs Thors. Fyrir nokkuð
mörgum árum, en eftir að bann-
lög voru gengin í gildi, lýsti
þessi herra því yfir með allmiklu
yfirlæti, eins og honum er lagið
— í Barnaskólaportinu í heyr-
anda hljóði, að hann, sú há-
göfuga persóna, væri nýkominn
heim úr kosningaleiðangri og
hefði verið lagztur upp í sófa
með sinn „whisky-sjúss“ á
borðinu, en hefði mátt til að
rísa á fætur og koma í portið,
til þess meðal annars að and-
mæla þeim ágæta manni, Jóni
heitnum Baldvinssyni og ýms-
um Sjálfstæðismönnum, þar á
meðal Jakobi Möller, því þeir
hefðu misboðið mjög íhalds-
'stefnunni, sem þá var honum
hjartansmál, þó hann nú nefni
sig „Sjálfstæðismenn“, en sé í
framkvœmd aðeins valdaspekú-
lant undir áhrifum kommún-
ista. Ég hefi lengi haft sterkan
grun, sem studdur er af tals-
verðum rökum — um að þessi
maður hafi átt mikinn þátt í,
að steypa kúlurnar, sem skotið
var á bannlögin sunnan frá
Spáni 1921 og ónýtti þau að fullu
og öllu.
EfstPmaður á lista Sjálfstæð-
ismanna í Reykjavík, er Pétur
Magnússon, fjármálaráðherra,
og má óhætt segja það um
hann, að hann hefir allra ráð-
herra mest stuðlað að auknum
innílutningi og sölu á Svarta
dauða hinum nýja og öðrum
tegundum áfengis, og hann hef-
ir i opinberum umræðum, ekki
verið neitt feiminn að lýsa þeim
stóra lið af ríkistekjunum, á-
fengisgróðanum, sem væntan-
legum framtiðar — ágætum —
tekjustofni.
Þriðji maður á þeim lista
heitir Sigurður Kristjánsson, og
það er kunnugra manna mál,
að hann sé einn af hjúum
Bakkusar, og myndi jafnvel
geta tekið inn áfengi, ef það
væri á boðstólum, hjá mönnum
með „mosa í skegginu", þótt
þeir hafi ekki verið háttskrifað-
ir í hans kokkabók.
Gísli Jónsson, frambjóðandi
flokksins í Barðastrandarsýslu,
var um eitt skeið talsmaður
bindindis, og flutti um það efni
all gott erindi, en nú hefir þess
verið getið opinberlega, og ekki
mótmælt, svo ég viti, að hann
sé með bréfaskriftum til kjós-
enda, að telja þeim trú um, að
áfengisgróðinn muni verða enn
meiri en ácetlað sé, svo ekki
þurfi að óttast svo mjög, þótt
tekjuhalli sé á fjárlögunum.
Hann virðist því vera einn af
valdabröskurum þeim, sem fljót-
ir eru að hafa skoðanaskipti
og ekki geta bindindisvinir
vænzt neins góðs af honum
fraíhar.
Um Kommúnistaflokkinn, og
„séra Sigfús“ ekki undanskil-
inn: þeir eru allir meira og
minna undir áhrifum hins
„austræna lýðræðis", og ef
Rússum dytti einhvern tíma í
hug að krefjast þess að íslenzka
ríkið keypti af þeim ,,vodka“,
eða aðra áfenga drykki, þá tel
ég alveg víst, að þeim öllum
með tölu, þætti sjálfsagt að
verða við þeirri kröfu.
' Frambjóðendur Alþýðuflokks-
ins munu margir í orði vera
bindindisvinir, þó með ýmsum
undantekningum. Frambjóðandi
þeirra á ísafirði, Finnur Jónsson
núverandi dómsmálaráðherra,
þótti skeleggur bannmaður, og
nú er hann í þeirri aðstöðu,
sem dómsmálaráðherra, að hann
œtti ekki að láta viðgangast
nein áfengislögörot í nokkurri
mynd, en frú Sigríður Eiríksd.
fór í erindi sínu hörðum og á-
kveðnum orðum um áfengishol-
ur, sem vaxið hafa upp í skjóli
áfengissölu ríkisins, þar sem
alls konar „svínarí" færi fram
sömuleiðis um, að það væri al
kunnugt, að bílstjórar stunduðu
sumir aðallega keyrslu um næt-
ur með drukkna karla og konur
frá og til þessara siðleysis- og
óþverrastöðva. Það er ekkert
leyndarmál, að sumar bílstöðv-
arnar og bílstjórar gera mikið
að því að selja áfengi þessum
ræflum, sem þeir flytja víðs
vegar, þegar heiðarlegt fólk er
í svefni, og bíða eftir þeim
meðan þeir gera ónæði, og usla
með framferði sínu á friðsöm-
um heimilum. Allt þetta þróast
ört, án þess að vitanlegt sé, að
HANS MARTIN:
SKIN OG SKÚRIR
„Vertu ekki svona ímyndunarveikur. Það þarf meira en meðal-
högg til þess að rota mann .... Segðu mér heldur sannleikann.
Eða burt með þig að öðrum kosti.“
„Pieps ber það á mig, að ég hafi stolið þúsund gyllinum frá
honum,“ segir Karel kindarlega.
„Nú fer sannleikurinn að koma í ljós .... Þetta er auðvitað
att?“
„Nei — raunar ekki. En það er margt, sem vitnar gegn mér ....
Ef þú vissir bara, í hvaða fjandans klípu ég er.“ Karel andvarpar.
„Þú ert kannske líka að hugsa um þessi fjörutiu þúsund, sem
)ú sveikst út úr föður þínum?“
„Það er ekki satt — það er haugalygi .... Hver hefir logið þessu
í þig?“
„Faðir þinn sagði mér það sjálfur. Þú falsaðir tvær undir-
skriftir — náðir út tveimur ávísunum — tuttugu þúsund gyllini
hvor. Og svo kemur þú til min og berð þig upp við mig. K a s -
s i a n !1) Og þessi þúsund gyllini í kvöld — auðvitað hefirðu
stolið þeim.“
„Já — já,“ öskrar Karel. „Ég stal- þeim, þvi að ég átti ekki
annars úrkostar. Það vill ekki neinn rétta mér hjálparhönd —
allir reyna að spilla fyrir mér. Og hvað ætli þennan fugl hafi
munað um þúsund gyllini. Hann tapar mörgum þúsundum í
hvert skipti sem hann snertir á spilum. Segjum svo, að hann
hefði unnið, og ég ekki getað borgað?“
„Þá held ég, að það sé skárst að spila ekki.“
„Já — fyrir engla eins og þig.“ Karel hlær kuldahlátur. „Þú
rasar ekki um ráð fram. Þú veizt ekki, hvað er að lifa .... En
um mig hugsar ekki neinn. Jafnvel Marianna er orðin svo sið-
lát, að hún vill ekki við mig kannast — hún nýr mér um nasir
jessu með Renée . ...“
„Með Renée?“ Allt í einu rifjast það upp fyrir Sjoerd, er hann
hefir heyrt um afdrif Renée. „Áttir þú líka sök á því?“
„Já — það var ég .... Bölvaður stelpuasninn — og pabbi ætl-
aði að kúga mig til þess að eiga hana .... Hugsaðu þér: ég átti
Okkur vííiiiar
nokkra menn
í byggingarvinnu við -miðbæinn.
Löng vinna.
Upplýsingar gefur verkfræðingurinn.
Sími 5099.
Samband ísl. samvinnuf é!aga
Kassian = auviröilegt (malajíska).
dómsmálaráðhei-rann æðsti
vörður laganna í þessu landi,
geri eða láti gera nokkrar rót-
tækar ráðstafanir þessu til úr-
bóta. Hvers má vænta af slík-
um hræsnurum?
Allir stjórnarráðherrarnir eru
samsekir um að. halda uppi
þessu þjóðarböli og stórhneyksli,
sem áfengissala ríkisins veldur,
og stuðningsmenn þeirra eru
það auðvitað einnig, þar á með-
al þeir, sem látast vera bindind-
isvinir, og það eins fyrir því,
þótt þeir Kaldi ræður á fundum
og skrifi meðmæli með reglu-
semi og mótmæli áfengisfarg-
ani stjórnarherranna í blöðun-
um. Ef þeir með atkvœðum sín-
um á kjördegi veita stjórn þeirri,
er nú situr brautargengi, þá
virðist bindindisáhugi þeirra
vera hræsni og yfirdrepsskapur
og ekkert annað.
Framsóknarflokkurinn er og
hefir verið í stjórnarandstöðu,
og ber því ekki ábyrgð á þessu
ófremdarástandi, sem hefir ver-
ið í stórum dráttum lýst hér
að framan, og það má með sanni
segja, að hann hefir yfirleitt
verið bann- og bindindismálinu,
hliðhollur alla tíð. Til dæmis
má óhikað telj a honum til gildis,
að 1930, þegar hann hafði einn
valdaaðstöðu, var áfengisútsöl-
unni fyrirvaralaust lokað nokkru
fyrir Alþingishátiðina, og varð
það áreiðanlega til þess, að hún
fór 'fram með miklu meiri menn-
ingarbrag en ella hefði oröið.
Ekkert hliðstætt því hefir verið
gert við opinber hátiðahöld, er
nú hafa verið haldin í tíð þeirr-
ar brennivínsstjórnar, sem nú
situr að völdum, sem ekki er
heldur að vænta, eins og allt
er í pottinn búið.
Um frambjóðendur Fram-
sóknarflokksins nú við þessar
kosningar, skal ekki annað
sagt en það, að frambjóðandinn
í Barðastrandarsýslu, Halldór
Kristjánsson, er áreiðanlega
líklegri til að vinna bindindis
málinu gagn, en frambjóðandi
sá, sem áður er getið^ er telur
áfengistekjur ríkisins nú rétt-
lœtanlegan tekjustofn, þó hann
áður hafi haft aðra skoðun.
Ég þekki lítið frambj óðendur
Framsóknarflokksins, en ég veit
ekki af nokkrum þeirra, sem
ég geti mælt á móti sem fjand-
samlegum bindindi, eða telji
áfengistekjurnar óhjákvæmilegt
lífakkeri þjóðarinnar, eins og
margir meðal frambjóðenda
stjórnarflokkanna virðast gera.
í Reykjavík hefir flokkurinn
boðið fram lista með efstum
Pálma Hannessyni rektor. Ég
held ég fari ekki með neinar
öfgar, þótt ég segi, að Pálmi sé
mjög álitlegt þingmannsefni, og
líklegur til að vinna öllum
menningarmálum gagn á þingi,
þar á meðal að hann sjái allra
manna bezt, að áfengisfarganið
er stórskaðlegt fyrir þjóðina,
ekki sízt hina uppvaxandi, kyn-
slóð, sem hann hefir náin kynni
af, og hefir sýnt í verki að hann
vill gera að hraustum og heil-
brigðum mönnum.
Stj órnarsmalarnir hérna 1
Reykjavík segja, að sá listi
komi ekki til greina, en enginn
frjálshuga bindindisvinur skyldi
láta þœr meinakindur í þjóð-
félaginu blekkja sig. Atkvæði
þau, sem hann fær, verða vænt-
anlega næg til að gera þá hrak-
spá þeirra að engu, eins o,g
komið hefir fyrir áður, síðast
í bœjarstjórnarkosningunum
vetur. Þótt þau yrðu ekki nægi
leg til þess, sem líklegt má þó
telja að verði, þá getur hvert
bindindisvinaatkvœði sem hann
fœr frá hinum flokkunum, gert
stórgagn, bœði til .að sýria
brennivínsstjórninni verðskuld-
að vantraust, og friða með því
sína eigin samvizku, það er að
segja, ef hún er hrein, en ekki
haldin af yfirdrepskap og
hræsni flokksmennskunnar. Og
ef bindindisvinir sýndu það á
kjördaginn, að þeir ekki greiddu
stjórnarflokkunum atkvæði, þá
myndu þeir herrar kannske fara
að lita til veðurs fremur en áð-
ur, og ekki storka bindindis og
bannvinum með sífellt aukinni
áfengissölu, og hlífð við svínarí
og afbrot, sem henni eru sam-
fara. En Pálmi Hannesson fer
á þing með aðstoð heilhuga
bannvina. Ég veit að, sem betur
fer eru þeir til svo margir að
það mun duga.
r.
Skattskrá
Reykjavíkur
um tekjuskatt og tekjuskattsviðauka, eignarskatt með við-
auka, stríðsgróðaskatt, lífeyrissjóðsgjald og námsbókagjald
liggur framrni í skattstofmuii í Rvík
frá fimmtudegi 13. júní til miðvikudags 26. júní, að báð-
um dögum meðtöldum, kl. 9—16 yz daglega.
Jafnframt er til sýnis yfir sama tíma skrá um þá menn
í Reykjavík, sem réttindi hafa til niðurgreiðslu á kjötveröi,
samkvæmt lögum frá 17. apríl 1946.
Kærufréstur er til þess dags, er skrárnar liggja síðast
frammi, og þurfa kærur að vera komnar til Skattstofu
Reykjavíkur, eða í bréfakassa hennar, í síðasta lagi kl.
24, miðvikudaginn 26. júní n. k.
Skattstjórinn í Reykjavík
Malldór Sig'ftasson.
11
♦♦
:1
::
♦♦
♦♦
♦♦
fi
|
I
8
iwnœsaœ
^íSS'i■«S'ísniefntl IlöfðakanpstaSar:
Tilkynning
1
Með lögum frá 23. apríl 1946, eru allar byggingarfram-
kvæmdir í Höfðakaupstað á Skagaströnd í A.-Húnavatns-
.sýslu, settar undir eftirlit Nýbyggingarnefndar. Auk þess
mun nefndin annast ýmsar framkvæmdir í sambandi við
iðnað og atvinnumöguleika, sem ætlunin er að rísi upp i
Höfðakaupstað á næstu árum.
Þegar á þessu sumri munu Síldarverksmiðjur rikisins
væntanlega taka þar til starfa. Ennfremur hafa ýmsir
einstaklingar og fyrirtæki óskað lóða undir íbúðarhús,
iðnað og verzlun, í sambandi við þau atvinnuskilyrði, sem
útvegur og landbúnaður á þéssum stað getur skapað.
Verið er að fullgéra~ skipulagsuppdrátt af Höfðakaup-
stað, miðað við að þar rísi talsverö byggð á næstu árum.
Eru það tilmæli Nýbyggingarnefndar, að allir þeir, sem
áhuga kunna að háfa á því, að skapa sér atvinnu, setja
upp atvinnufyrirtæki og koma sér upp húsum í Ilöfðakaup-
stað, setji sig í samband við nefndina hið fyrsta, og munu
þeim í té látnar allar nauðsynlegar upplýsingar um hina
væntanlegu byggð, og þær framkvæmdir, sem þar eru
ráðgerðar.
Fyrirspurnum verður fyrst um sinn svarað á skrifstofu
Skipulagsstjóra, Lindargötu 4 Reykjavík, en í Höfðakaup-
stað hjá Ólafi Lárussyni símstjóra.
Reykjavík i júní 1946
Höi*Öur RJarnason, forinaðnr
Jóliaimes Zoega, ritari, Gisli IlalMórsson,
Ólafur Lárussoii, Gunnar Grímsson.
Stúlku
vantar s eldhsisið á Eleppi.
Uppl. hjá ráðskonuimi. — Sísni 3099.