Tíminn - 22.06.1946, Blaðsíða 1
BXTSTJÓRl: )
\ ÞÓRA tEN N ÞÓRAROTSSí >N \
< \
ÖTGEPAHDI: )
FRAMSÓiCNAJRFLOKKÍJR INN J
Símar 235.E og 437J
PRENTSMIÐJAN EDDA hJ
30. árg.
RITSTJÓRASKRIttTOFtJR:
EDDUHÚSI. Lfc -dartðtu 9 A
Síinar 3353 og 4373
APGREIÐSLA, OTNHEIMTA
OG AUGLÝSOTGASKRIPSTOFA:
EDDUHÚSl, Unóaxgötu 9 A
Sírnl 2323
Iteykjavík, laugardaglim 22. jjimí 1946
109. blað
HVER ER ASNINN
FYRIR VA6NIKOMMÚNISTA?
Morgunblaðið undirstrikaði í gær í forustugrein þau um-
mæli Churchills, fyrrverandi forsætisráðherra Englend-
inga, „að KOMMÚNISTAR ALLRA LANDA REKA
FIMMTU-HERDEILDAR- STARFSEMI, HVERJIR í SÍNU
LANDI.“
Morgunblaðið sagði ennfremur í sömu grein:
„Kommúnistaþingmaðurinn Fred Rose í Kanada, sem
uppvís varð að landráðum, sagði fyrir réttinum, að hann
skoðaði ekki Kanada föðurland sitt, heldur Rússland.
ÞETTA ER SJÓNARMIÐ ALLRA KOMMÚNISTA, HVAR í
LANDI SEM ÞEIR EIGA HEIMA.“
Morgunblaðið sagði einnig í gær:
„Þeir menn, sem stjórna Kommúnistaflokknum hér á
landi, eiga í því sammerkt við flokksbræður sína í öðrum
löndum, að ÞEIR LÚTA VILJA OG VALDI HINNA AUST-
RÆNU HÚSBÆNDA SINNA.“
Enn vitnaði Morgunbl. í gær í þessi ummæli málgagns
kommúnista eitt sinn, þegar tveir af foringjum þeirra hér
sigldu á miðstjórnarfund Alþjóðasambands kommúnista
í Moskvu:
„En félagar! Það er ekki nóg að tilheyra heimsflokki
kommúnismans. Við verðum einnig allir að vera reiðu-
búnir til að FRAMKVÆMA FYLLILEGA f VERKINU
FYRIRSKIPANIR HANS, nú þegar örlög heillar kynslóðar
og sósíalismans eru í veði.“
Loks beindi Morgunblaðið þessum orðum feitletruðum
til samstarfsmanna sinna, kommúnistanna:
„Hitt er annað mál, að menn, sein starfa hér i þjónustu
erlends herveldis, geta ógnarvel heitið og VERIÐ LAND-
RÁÐAMENN. Þetta ættu kommúnistar að skilja allra
manna bezt.“
Þúsundir manna spyrja og krefjast svars:
HVER ER ASNINN FYRIR VAGNI KOMMÚNISTA Á
ÍSLANDI? Hver eða hverjir hafa lyft kommúnistum til
valda á íslandi, fengið þeim í hendur lyklavöldin, selt á
þeirra vald mörg mikilvægustu málefni þjóðarinnar, gefið
þeim tíma og tækifæri til þess að hreiðra um sig?
Svarið liggur beint við. Það er SJÁLFSJÆÐISFLOKK -
URINN, sem hefir fengið þeim lyklavöldin. ÓLAFUR
THORS ER ASNINN, SEM VAGNINN DREGUR, keyptur
af kommúnistum með forsætisráðherratigninni og heild-
salagróðanum. Ólafur Thors er í einfeldni sinni og hé-
gómaskap akneyti mannanna, sem „reka fimmtu-her-
deildarstarfsemi, hverjir í sínu landi“, mannanna, sem
eru „reiðubúnir til að framkvsöwia fyllilega í verkinu fyrir-
skipanir“ heimsflokksins, mannanna, sem „geta ógn-
arvel heitið og verið landráðamenn.“
Finnst ekki mörgum, sem fylgt hafa Sjálfstæðisfloklsn-
um að málum, að nú sé tímabært að SEGJA SKILIÐ VIÐ
FLOKK OG FORINGJA, SEM ÞANNIG LÆTUR NOTA
SIG?
Sjálfur mun hann ekki að sér sjá hjálparlaust meðan
hann á kost á að halda forsætisráðherratigninni, enda
hefir hann svarað óskum kommúnista um það, að stjórn-
arsamvinnan haldist eftir kosningar með því, að HANN
GERI FASTLEGA ráð fyrir, að svo verði.
&44444444444444444$44$4444«4444444444444S444$44$4444S4444S44444444444«444$44$4
Tryggjum Pálma
HarLnessyni þingsæti
SVARIÐ VIÐ MÚTUBOÐUM PENINGAVALDSINS:
REKUM VERÐBÓLGUSTJÚRN SJÁLFSTÆÐÍSFL
OG KOMMÚNISTA AF HÖNDUM OKKAR
BÆR I SMIÐUM
liretar hafa hafizt handa um að byggja nýja bæi á Gullströndinni í Afríku.
Bæir þessir eru skipulagðir eins vel og á verður kosið og búnir nýtízku gögn-
um. Hér sést hús í bænum Kumasf í smíðum.
Framsóknarmenn
um land allt!
Framsóknarmenn, sem farið
að heiman fyrir kjördag, 30.
júní, tnunið að kjósa áður en
þið farið, hjá næsta hrepp-
stjóra eða sýslumanni.
Framsóknarmenn, sem eruð
fjarverandi og verðið það fram
yfir kjördag, 30. júní, munið að
kjósá strax hjá næsta hrepp-
stjóra, sýslumanni eða skip-
stjóra ykkar, svo að atkvæðið
komist heim sem allra fyrst.
Framsóknarmenn! Takið allir
virkan þátt í kosningabarátt-
unni. Látið ekki dragast að
gera aðvart um fjarstadda kjós-
endur, sérstaklega þá, er dvelja
Tundnrdufl gerð óvirk
Samkvæmt upplýsingum frá
Skipaútgerð ríkisins hefir Skarp
héðinn Gíslason frá Hornafirði
nýlega gert óvirk 4 tundurdufl
á Skeiðarársandi. Allt voru þetta
brezk, segulmögnuð dufl.
erlendis. Munið að ekkert at-
kvæði má glatast.
Leitið allra upplýsinga og að-
stoðar hjá kosningafulltrúum
flokksins, kosningamiðstöðvum
kjördæmanna og
KOSNINGASKRIFSTOFUNNI
í REYKJAVÍK,
Edduhúsinu, Lindargötu 9 A
Sími: 6066.
FÓLKIÐ í DREIFBÝLUVU MUN GJAUDA
FRAMBJÓÐENDUM SJALFSTÆÐIs'fLOKKS-
IMg OG AMNÍARRA STJÓRNÍARLIÐA VERÐ-
UGT SVAR FVRIR 1*A RAVGSLEITVl, ER
ÞAD MEFIR VERIÐ BEITT.
Eitt af þeirri „nýsköpun“, sem núverandi ríkisstjórn hefir inn-
íeitt í landið, er ofsókn á hendur heilum stétum þjóðfélagsins,
svo sem bændastéttinni, og raunar því fólki yfirleitt, sem heima
á í dreifbýlinu, jafnt í kauptúnum sem sveit. Ríkisstjórnin og
þeir flokkar, sem að henni standa, vita auðvitað ofurvel, hvaða
áhrif þessi afstaða hefir haft á viðhorf fólksins í strjálbýlinu til
stjórnmálaflokkanna í landinu. Og nú hafa ýmsir frambjóðendur
stjórnarliðsins, og þá einkanlega úr hópi Sjálfstæðismanna, grip-
ið til þess óyndisúrræðis að reyna að bæta sér upp þann mikla
álitshnekki, er þeir hafa beðið, með loforðum um fémútur til
handa þeim, er þægir verða, en hótunum um refsiaðgerðir, er
beitt skuli við þau kjördæmi, sem nú vilja ekki lengur veita
Sjálfstæðisflokknum brautargengi. En það er þegar sýnt, að þessi
nazistiska bardagaaðferð mun hljóta verðugt svar kjósenda.
Smalar andstæðinganna herða
nú þann áróður um allan helm-
ing, að B-listinn sé vonlaus, því
að þeir gera sér ljóst hið sívax-
andi fylgi hans, og sjá ekki ann-
að ráð til að hamla á móti því.
Stuðningsmenn B-listans verða
að svara þessum áróðri með
auknu starfi. Ef vel og vasklega
er unnið, er það leikur einn að
tryggja kosningu Pálma Hann-
essonar, glæsilegasta frambjóð-
anda, sem nú er í kjöri í Reykja-
vik.
Áróður andstæðinganna sýnir
vel að þeir treysta sér ekki til
að deila á listann sjálfan, eða
efsta mann hans. Þeir vita, að
kosning Pálma Hannessonar er
tryggð, ef allir stuðningsmenn
hans gera skyldu sína, og þess
vegna er það örþrifaráð þeirra
að reyna að telja mönnum trú
um að kosning Pálma Hannes-
sonar sé vonlaus. En stuðnings-
menn B-listans, minnist þess,
að þetta eru nákvæmlega sömu
rökin og andstæðingarnir not-
uðu fyrir bæjarstjórnarkosn-
ingarnar í vetur. Þrátt fyrir
þann áróður situr Pálmi Hann-
esson nú í bæjarstjórnr
Minnist þess að 700 atkvæði
til viðbótar við atkvæðatöluna
frá í vetur tryggja kosningu
Pálma Hannessonar fyrir
Reykjavík. Látið ekki blekkjast
af áróðri andstæðinganna.
Stuðningsmenn B-listans!
Herðið sóknina! Aflið Pálma
Hannessyni nýrra stuðnings-
manna! Kjörorðið er: Pálmi
Hannesson skal á þing!
Munið eftir að koma í kosn-
ingaskrifstofuna, sem er í Eddu-
húsinu við Lindargötu, opin 10
—22 daglega. — Sími 6066.
RÍKISSTJÓRNIN SÝNIR ENN
HU6 SINN TIL BÆNDA
Stjórnarliðið tckur 40 jeppa af bændum
og átlilutar til gæðinga sinna.
Eins og kunnugt er, hefir verið leyfður innflutningur á
nokkrum jeppabifreiðum til landsins og voru þessir bílar
eingöngu ætlaðir bændum, enda taldir hentugir til ýmissa
nota fyrir þá. Stjórnarliðið leyfði innflutning á nokkrum
bílum nú í vor, aðallega í auglýsingaskyni fyrir kosning-
arnar. Hátt á annað þúsund bændur hafa óskað eftir að
fá slíka bíla tii afnota við landbúnaðarstörf, en ríkisstjórn-
in hefir ekki viljað leyfa innflutning nema á í hæsta lagi
1/6. hluta af þeim bílum, sem bændur hafa beðið um. Læt-
ur nærri, að það sé í réttu hlutfalli við það fylgi, sem rík-
isstjórnin TELUR sig eiga meðal bænda.
Nú hefir það hneykslanlega undur gerzt, að af þessum
fáu jeppum, sem fengizt hefir að flytja inn til bænda,
hefir nýbyggingarráð sjálft, sem, eins og kunnugt er, er
harðsnúin stjórnarklíka, að einum manni undanskildum,
hrifsað í sínar hendur, af samtökum bænda, 40 bíla, og
úthlutað tii gæðinga sinna, svo sem Magnúsar Jónssonar
guðfræðikennara við háskólann, og annarra slíkra. Sumir
þessara bíla liafa sézt út um byggðir landsins, svo sem í
Dölum og Austur-Húnavatnssýslu. Væri fróðlegt fyrir
menn, þar sem þessir stjórnarbílar fara, að athuga inni-
hald þeirra, því það mun vera „vel-lyktandi“.
Sést hér enn sem fyrr hugur ríkisstjórnarinnar til bænda.
Ósigurvænleg bardagaaðferð.
Þeir munu harla fáir, sem
blikna eða blána, þótt frambjóð-
endur Sjálfstæðisflokksins
berji í borðið og hóti hörðu,
þegar fagurgalinn stoðar ekki
lengur. Til þess ber margt, en
fyrst og fremst skaplyndi ís-
lenzku þjóðarinnar, sem ó-
gjarna lætur kúgast, fremur en
frændþjóð okkar, Norðmenn,
þegar Quisling og menn hans
voru að reyna að afla sér fylgis
meðal þeirra á stríðsárunum.
íslendingar munu ekki heldur
gerast mútuþegar þeirra manna,
er nú eru í þann veginn að
falla á gerðum sínum. í öðru
lagi hafa þessir menn litlar
sannanir fram að færa fyrir því,
að þeir verði þess megnugir að
framfylgja hótunum sínum eft-
ir kosningar, þótt einhverjir
kynnu að finnast, er skaplyndi
hefðu til þess að beygja sig, og
það því fremur, sem allar líkur
benda til þess, að núverandi rík-
isstjórn verði ekki langlíf eftir
þessar kosningar.
Einhugur stjrnarandstæðinga.
í öllum sveitum og kauptún-
um og bæjum þessa lands fylkir
nú fólk þvert á móti liöi
gegn frambjóðendum ríkis-
stjórnarinnar til sigursællar
lokasóknar. Aldrei hefir v erið
meiri einhugur hjá þúsundum
manna en nú, er þeir taka hönd-
um saman til þess að gera sem
allra mestar hrakfarir þeirra
Sjálfstæðismanna, sem telja sér
það líkast til kjörfylgis að feta
í fótspor nazista i kosningar-
róðri sínum, og þeirra annarra,
sem játazt hafa undir merki
heildsalanna og verðbólgu-
mannanna í þessum kosningum.
Bændur vilja ekki vera
réttlausir.
Bændastétt landsins er ein-
ráðin í því að greiða nú viðeig-
andi svar við því réttleysi og
þeirri rangsleitni, sem hún
hefir æ ofan í æ sætt á undan-
gengnum misserum. Hún ætlar
ekki að taka því þegjandi, að
MUNIÐ ÞETTA
SJÁLFSTÆÐIS-
MENN!
Þið, sem eruð andvíg sam-
vinnunni við kommúnista, þurf-
ið að gera ykkur þetta ljóst:
Því fleiri atkvæði, sem Sjálf-
stæðisflokkurinn fær, því meiri
líkur eru fyrir langvinnu sam--
starfi foringja Sjálfstæðis-
flokksins og kommúnista, þar
sem þeir fyrrnefndu munu þá á-
lita sér það pólitískt hagkvæmt.
Því færri atkvæði, sem Sjálf-
stæðisflokkurinn fær, því fyrr
verður foi;ingjum flokksins ljós
skaðsemi hennar og því fyrr
hætta þeir henni.
Sjálfstæðismenn, sem eruð
andvígir samstarfi við kommún-
ista! í þessum kosningum
kjósið þið með Framsóknar-
flokknum, sem er eini stjórn-
málaflokkurinn, er hefir neitað
að vinna með kommúnistum á
þeim grundvelli, er þeir vilja
starfa á.
henni hefir verið skipað á krók-
bekk í þjóðfélaginu’, heldur tala
við sendimenn ríkisstjórnar-
innar á því eina máli, sem
hennar lið virðist skilja — á
tungumáli kjörseðlanna.
Fólkið í kauptúnunum
svarar einnig fyrir sig.
Fólkið í þorpum og kauptún-
um þessa lands beygir sig ekki
heldur í auðmýkt. Einnig það
hefir verið gert að annars flokks
fólki í tíð núverandi ríkisstjórn-
ar, og einnig það mun gjalda
sitt ótvíræða svar. Höfuðmál-
gagn stjórnarinnar, Morgun-
blaðið, hneykslaðist á þvi í vet-
ur, að Esja skyldi vera látin
þjóna „fáeinum hundruðum út-
kjálkamanna", í stað þess að
láta hana sigla milli landa með
ríka gæðinga, sem vildu fá að
lyfta sér upp í öðrurri löndum.
Nú hefir ríkisstjórnin ákveðið
að svipta fólkið í dreffbýlinu
Esjuferðunum í sumar. Esja
leggur af stað í fyrstu Dan-
merkurferðina fáum dögum fyr-
ir kosningar. Það verður munað.
Þó er þetta aðeins eitt lítið
(Framhald á 4 síOu).