Tíminn - 22.06.1946, Qupperneq 4

Tíminn - 22.06.1946, Qupperneq 4
Skrifstofa Framsóknarflokksins er Edduhúsirm við Lindargötu. 4 \ Sími 6066 REYKJÆVtK _______ FRAMSÖKNARMENN! 22. Jtiní 1946 Komið í kosningaskrifstofuna 109. blað * Aðalfundur Prestafélags Islands Aukning sérleyfis- ferða Fjallvegir eru nú aö heita má allir færir til aksturs og munu áætlunarferðir hefjast um 24. þ. m. á þeim síðastfæru. Nokkur aukning hefir orðið á sérleyfisleiðum í ár og hafa ver- ið veitt ný sérleyfi á þessum leiðum: Reykjavík — Fljótshlíðar- hreppur — Landeyjar — Eyja- fjöll. Reykjavík — Akranes. Reykjavík — Grundarfjörður. Akureyri — Engimýri. Akureyri — Mývatnssveit. Akureyri — Húsavík (um Köldukinnarveg). Brýr — Akureyri. Einnig hefir ferðum verið fjölgað á leiðunum: Borgarnes — Reykholt. Blöndu- ós — Skagaströnd. Akureyri — Mývatnssveit og Reyðarfjörður — Breiðdalsvík — Berufjarðar- strönd. Málarar stofna nýtt félag 30 fristundamálarar úr Rvik og víðar hafa tekið sig saman og stofnað með sér félag sem heitir: „Félag islenzkra frí- stundamálara“ (skammstafað F.Í.F.) Tilgangur félagsins er að efla frístundamálun og bæta aðstöðu þeirra, er hana stunda, með því að: Sameina fristunda- málara og skipuleggja starfsemi þeirra, koma á fót og starfrækja alls konar fræðslustarfsemi varðandi málaralist, svo sem fyrirlestra fróðra manna, út- vegun bóka um málaralist og annað, sem að gagni má verða og fært er að framkvæma á hverjum tíma, koma á fót sam- eiginlegri vinnustofu, þar sem félagar geta unnið að myndum sínum, og notið kennslu eftir því, sem ástæður leyfa, að gera ráðstafanir til þess að útvega félagsmönnum efni til málunar með sem hagkvæmustum kjör- um, að koma á fót sýningum á verkum félagsmanna. Stofnfundur var haldinn 20. júní, lög félagsins samþykkt, fimm manna stjórn var kosin og tvær nefndir, fimm manna sýningarnefnd og þriggja manna fræðslunefnd. Stjórn félagsins skipa: For- maður Helgi S. Jónsson, ritari Axel Helgason, gjaldkeri Axel Magnússon, meðstjórnendur Eggeft Laxdal og Jón B. Jóns- son. Silfurbrúðkaup Nýlega áttu silfurbrúðkaup þau hjónin Pétur Jónsson og Þuríður Gísladóttir í Reynihlíð í Mývatnssveit. Þann dag heim- sóttu þau ættingjar og venzla- fólk í Aðaldal, Reykjahverfi og Kinn og færðu þeim til minn- ingar um daginn málverk af Bláfjalli séð frá Dimmuborg- um, eftir Pétur Friðrik Sigurðs- son. Pétur er sonur Jóns Einars- sonar fyrrum bónda í Reykja- hlíð og konu hans Hólmfríðar Jóhannesdóttur frá Geiteyjar- strönd, sem látin er fyrir nokkr- um ,árum. Þuríður er dóttir Gísla Sigurbjörnssonar í Prest- hvammi og konu hans, Helgu Helgadóttur frá Hallbjarnar- stöðum í Reykjadal. Pétur og Þuríður voru gefin saman í hjónaband að Grenjað- arstað 12. júní 1921, og hafa þau búið í Reykjahlíð mestallan sinn búskap, þar til þau byggðu gisti- húsið Reynihlíð við Reykjahlíð fyrir þremur árum síðan og hafa þau rekið það síðan. Þau eiga fimm mannvænleg börn. Aðalfundur Prestafélags ís- lands var haldinn í Háskólan- um miðvikudaginn 19. júní. Um morguninn kl. 9,30—10 fór fram guðsþjónusta í Háskólakapell- unni, séra Jakob Jónsson flutti prédikun og minntist sérstak- lega aldarafmælis Menntaskól- ans í Reykjavík. Formaður fé- lagsins, Ásmundur Guðmunds- son .prófessor, setti fundinn og stjórnaði honum, en fundarrit- arar voru þeir séra Páll Sig- urðsson og séra Leó Júlíusson. Formaður minntist látinna fé- lagsbræðra, þeirra séra Halldórs Bjarnasonar, séra Kjartans Kjartanssonar, séra Knúts Arngrímssonar skólastjóra og séra Hólmgríms Jósefssonar. Nú er hafinn undirbúningur að útgáfu minningarrits vegna aldarafmælis Prestaskólans á‘ næsta ári. Ætlazt er til að ritið verði í tveimur þáttum. Annar á að vera prestatal og kandi- data, þeirra, sem útskrifazt hafa frá Prestaskólanum o>g Guðfræðideild Háskólans á árg- bilinu 1847—1947 ásamt fáein- um helztu æviatriðum þeirra og myndum af þeim. Vinnur séra Björn Magnússon dócent að samningu þess þáttar. Hinn þáttur minningarritsins á að vera um guðfræðikennsluna þessi 100 ár, og hefír séra Benjamín Kristjánsson á Syðra- Laugalandi verið beðinn um að semja hann. Nýjar prestahug- vekjur er verið að setja í ísa- foldarprentsmiðju, og eiga þær að koma út á þessu ári. Barna- sálmar eru einnig í prentun, önnur útgáfa. Milli aðalfunda hefir sérstök nefnd fjallað um fermingarundirbúninginn og samband hans við unglinga- fræðslu almennt, og skipa hana séra Guðbrandur Björnsson prófastur formaður,. séra Guð- mundur Einarsson prófastur, séra Björn Magnússon dócent, séra Jón Guðnason og séra Jón Þorvarðsson prófastur. Kvaddi nefndin til starfa með sér dr. Bjama Jónsson vígslubiskup. Aðalmál fundarins var ferm- ingarundirbúningurinn og sam- band hans við unglingafræðsl- una almennt. Fluttu þeir um málið ýtarleg framsöguerindi prófastarnir séra Guðbrandur Björnsson og séra Jón Þorvarðs- son. Ýmsir fleiri tóku til máls. Að lokum var þessi tillaga bor- in upp og samþykkt með öllum greiddum atkvæðum: Aðalfundur Prestafélags ís- lands haldinn 19. júní 1946 lýsir yfir því, að hann telur rétt, að ferming skuli framveg- is, eins og hingað til, fara fram á því ári, sem barnið verður fullra 14 ára. Fundurinn telur nauðsynlegt, að kirkjan fái í- hlutunarrétt við samningu námsskrár fyrirhugaðra ung- lingaskóla í landinu, og sam- þykkir að kjósa 5 manna nefnd til að undirbúa málið, og leiti hún samvinnu við fræðslumála- stjórnina um að samræma námsskrá og fermingarundir- búning. í nefndina voru kosnir: Guðbrandur Björnsson prófast- ur, séra Árni Sigurðsson frí- kirkjuprestur, séra Jakob Jóns- son, séra Jón Guðnason og séra Jón Þorvarðsson prófastur. Eftirfarandi tillaga var sam- þykkt á fundinum: Aðalfundur Prestafélags ís- lands lýsir yfir því, að hann telur kröfu íslendinga um af- hendingu allra íslenzkra hand- rita, skjala og forngripa úr söfnum í Danmörku sjálfsagt réttlætismál, sem skýrt sé að fullnægja, enda er þetta rann- sóknum íslenzkra og allra nor- rænna fræða tvímælalaust fyrir beztu framvegis og nauðsynlegt skilyrði góðra sátta og sam- komulags með Dönum og ís- lendingum á ókomnum árum. Magister Westergaard Nielsen flutti á fundinum mjög fróðlegt erindi um þýðingu á Guðbrand- arbiblíu. Mælti hann á íslenzka tungu. Stjórn Prestafélagsins var öll endurkjörin í einu hljóði, en hana skipa Ásmundur Guð- mundsson prófessor formaður, séra Árni Sigurðsson, séra Frið- rik Hallgrímsson, séra Guð- mundur Einarsson og séra Jakob Jónsson. Endurskoðend- ur voru einnig endurkjörnir, þeir séra Kristinn Daníelsson og séra Þorsteinn Briem. Fundinum lauk um kvöldið (jfamla Síé HJARTA- ÞJÓFURINN með ’ Robert Yang og Lana Day. Sýnd kl. 3, 5, 7 og 9. FRAMSÓKNARMENN í REYKJAVÍK. Einbeitið kröftum ykkar að því, að Pálmi Hannesson verði kosinn þingmaður Reykvíkinga. Tryggið kosningu glæsilegasta frambjóðandans. Komið i KOSNINGASKRIFSTOFU FRAMSÓKNARFLOKKSINS, Edduhúsinu við Lindargötu. Sírni 6066 og 6599. Vijja Síé (við Skúlagötu) Samsærið gegn drottningunni (,,A Royal Scandal") Skemmtileg og vel leikin mynd, er gerist á dögum Kat- rinar miklu Rússadrottningar. Aðalhlutverk: Tallulah Bankhead, William Eythe, Anne Baxter. Sýnd kl. 3, 5, 7 og 9. Sala hefst kl. 11, f. h. Tjarnarbíé Villti ViUi. (Wild Biil Hickok Rides). Kvikmynd frá Vestur-sléttun- um. Constance Bennet, Bruce Cabot, Warren William. Bönnuð yngri en 16 ára. Sýnd kl. 3—5—7—9. Sala hefst kl. 11. • >-« — ii _ r ii _ i mm ■ n _ i ■-r — m.i r m i»< r Verzlun Ingþórs Sími 27. Selfossi. Til að auka ánægjuna Ingþór heíur flest. Þar að koma þú skalt muna að þér er sjálfum bezt. Rekum verðbólgustjórn Sjálfstæðis- flokksins og kommúnista af höndum okkar (Framhald af 1. síöu). - dæmi þess, hvaða rétt stjórnar- flokkarnir ætla fólkinu úti á landinu, enda þótt eyðslan og óhófið í meðferð opinbers fjár keyri svo um þverbak, að mál- gögn stjórnarinnar bera ekki einu sinni við að verja það. Baráttan í Reykjavík. Einnig i Reykjavik magnast andstaðan gegn óstjórninni, eins og úrslitin í bæjarstjórnarkosn- ingunum í vetur báru með sér, þar sem Framsóknarmenn juku atkvæðamagn sitt frá seinustu 'kosningum um 60%. Andstæð- ingar stjórnarinnar fylkja liði um Pálma Hannesson. Þeir láta einskis ófreistað til þess að tryggja honum þingsæti. Stjórnarliðið skelfur af ótta við gerðir sínar og þann dóm al- mennings, sem það á nú yfir höfði sér. Illur á sér ills von. Brennivínsstjórnin riðar til falls. Herðum lokasóknina. Nú eru aðeins örfáir dagar til kosninga. Framsóknarmenn og aðrir stjórnarandstæðingar verða að herða baráttu sína til hins ýtr- asta þessa síðustu daga, til þess að gera ósigra frambjóðenda stjórnarflokkanna sem. mestan, en sigra Framsóknarflokksins sem allra glæsilegasta. Enginn má liggja á liði sínu. Enginn má með guðsþjónustu í Kapellunni. Séra Magnús Már flutti bæn, og sálmur var sunginn. Fundinn sóttu 40—50 and- legrar stéttar menn. hika við að ganga fram fyrir skjöldu í þessari baráttu gegn óstjórnaröflunum og peninga- valdi Sjálfstæðisflokksins, þótt áður hafi fylgt öðrum en Framsóknarílokknum að mál- um. Það er ekki aðeins sæmd og velferð bændastéttarinnar og fólksins í dreifbýli landsins, sem nú krefst meiri átaka en nokkru sinni fyrr. Heill alþjóðar krefst þess. í þeirri baráttu má enginn hika. í mörgum kjördæmum landsins geta úrslitin oltið á einu atkvæði. Minnist þess, og starfið samkvæmt því. Trúlofun. Nýlega hafa opinberað trúlofun sína ungfrú Jóhanna M. Guðjóns- dóttir Jónssonar útvegsbónda í Vest- mannaeyjum og Guðmundur Péturs- son Friðrikssonar bónda í Reykjar- firði Strandasýslu. Hjónaefni. 17. júní opinberuðu trúlofun sína ungfrú Laufey Helgadóttir frá Vík í Mýrdal og Hermann Guðjónsson frá Ási í Holtum. Hjónaband. * í dag verða gefin saman í hjóna- band í Kaupmannahöfn ungfrú Kir- sten Henriksen dýralæknir og Páll A. Pálsson dýralæknir. Heimilisfang þeirra verður Landbrugshojskole, Köbenhavn. Vil skipta á skíðaútbúnaði, skíðum, stöf- um og skóm, fyrir notað tjald. Þeir, sem þessu vilja sínna, snúi sér í prentsmiðjuna Eddu í dag. Ole Jensen. B-listinn er listi Framsóknarmanna í Reykjavík. — Simi 6599

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.