Tíminn - 28.06.1946, Blaðsíða 3

Tíminn - 28.06.1946, Blaðsíða 3
113. blað TIM1M\. föstudagiim 28. jiiní 1946 3 Otvarpsræða Pálma Hann- essonar 25. júní (Framhald af síðu) minnsta kosti fyrir þá, sem telja rétt frma til skatts. Auðvitað kemur hér sitt hvað fleira til. Og svo er talsvert mikið, sem á að gera, — eða þarf að gera. En hvar er hið nýja og stórfenglega, t- hvar er hin fræðilega rann- sókn og skipulega framkvæmd? Vera má, að þetta dyljist fyrir minum Framsóknarsjónum, — en ég kem ekki auga á það. Það hefir aldrei verið ágrein- ingsmál, að þjóðin ætti að nota þá auðsæld, sem féll henni í skaut á ófriðarárunum, til hags- bóta sér og varanlegrar vel- gengni. Um hitt hefir verið deilt og er deilt, hvernig það verði bezt gert. — Og mér virðist það táknandi um alla þessa ný- sköpun, sem nú er mest gumað af, hve mjög hún snýr að hinu ytra. — Mönnunum gleymt. Mér virðist það táknandi, að stjórnarflokkarnir vilja kaupa vélar, en gleyma mönnunum, sem eiga að stjórna þeim. Hið ytra gengi er gott. Hin' innri menning er þó stórum meira virði. Og mér er ekki grunlaust um, að velsæld vor sé ekki öll, þar sem hún er séð í dálkum stjórnarblaðanna eða af vörum nýsköpunargæðinganna. Mig ór- ar fyrir því, að fjármálalífið í landinu sé sjúkt og kaupgetan fölsk, svo að hagur vor sé í hættu, ef út af ber með mark- aði erlendis. Hitt er augljóst, að rikisgjöldin hlaðast upp, svo að ríkisstjórnin verði allt annað en öfundsverð af því að koma næstu fjárlögum saman og sýna þau þjóðinni. Og verðbólgan heldur sína rökbundnu leið. Enginn veit, hvar hún muni staðar nema. Menn virðast ekki allfúsir á að leggja fé sitt í ný- sköpunarfyrirtækin, stjórnar- sinnar ekki fremur en aðrir, heldur reyna þeir að koma því í annað. Og ekki eru þeir allfáir, sem óttast, að til þess kunni að koma, að gjaldeyririnn verði felldur í verði. Oss er öllum furðutamt að láta blekkjast, ef það kemur oss vel, og‘ margir reyna að vona, að úr rakni með einhverjum hætti, svo allt fari vel um síðir. Vonandi fer allt vel, — en því skyldum vér láta reka á reið anum Er ekki giftuvænlegra að horfast í augu við vandann og réyna vitandi vits að rísa yfir örðugleikaná? Gjaldþrot „máttarstólpans". Til er leikrit eftír Björn- stjerne Björnsson, sem heitir Gjaldþrot, og mörg ykkar kann- ast eflaust við. Þar segir mest frá manni nokkrum, miklum pótintáta, sem Tjælde nefnist Hann á heima í smábæ einum í Noregi og er þar nokkurs konar stassjónist, eins og Kiljan nefn ir það. Hann á þar allt, sem nöfnum tjáir að nefna, verzlan- ir, verksmiðjur og mikla ölgerð sem gaf af sér drjúgan skild- . ing. Öllu þessu hafði hann kom- ið á fót. ÞacS var nýsköpun hans. Og hann er forsjá fólks- ins i stóru og smáu, berst mikið á og er í miklum metum. Börn- in mega ekki drepa fingri í kalt vatn og slíta sér út á seigdrep- andi erfiði iðjuleysisins. Svo tekur að þrengja h,ð. Kreppa ríður yfir, framleiðsluvörurnar falla 1 verði, nema ölið, víxlar lenda í vanskilum og verkafólk- ið fær ekki laun sín greidd á réttum tíma. Loks kemur mála- Spurning, lögð fyrir ung hjón færslumaður frá höfuðstaðnum sem ímynd réttvísinnar. Hann veit allt, hvernig ástatt er, og segir Tjælde það. Skyldu menn því ætla, að stassjónisti vor reyndi að horfast í augu við veruleikann. En hann gerði það ekki, heldur beindi hann orku sinni til að haldast sem lengst við völd sín qg virðingar í Deirri von að úr raknaði með einhverjum annarlegum hætti. Þá bjóða þeir til veizlu. Hann efnir þvi til mikillar veizlu og býður til hennar öll- um helztu áhrifamönnum í bæn- um, svo að þeir megi énn sjá og sannfærast um auðlegð hans og heiðarleik. Og nú eru ræður fluttar með miklu lofi um þenn- an dýrðlega höfðingja, minni hans drukkin og húrra hrópað til heiðurs honum. Allir láta blekkjast nema einn starfs- manna hans. Hann sér glöggt, hverju fram vindur. En í veizlu lok kemur málaflutningsmaður- inn á nýjan léik. Hann hefir ó- skorað vald og heimtar nú fulla skilagrein. Þá verður Tjælde að gefast upp og selja bú sitt fram til gjaldþrotaskipta. Og nú snýst fólkið gegn honum, allir hinir mörgu og smáu, sem höfðu trúað á dug hans og heiðar- leik, en verið sviknir. Þeir heimta af honum það fé, sem þeir höfðu hætt af fátækt sinni í brask hans. Þá lætur hann bugast. En leikurinn fer vel. Þegar verst horfir, kemur til hans einn starfsmanna hans, sá hinn eini, sem séð hafði gjaldþrotið fyrir. Hann býður honum þjónustu sína og fjár- upphæð, sem hann hafði dreg- ið saman með dugnaði sínum og ráðdeild. Síðan vinna þeir saman af alúð og atorku, unz allar skuldir þrotabúsins eru að fullu greiddar og hver hefir fengið sitt. Og í heiðarlegri fátækt finn- ur hinn forni spákaupmaður þá lífshamingju, sem illa fengnar allsnægtir höfðu aldrei getað veitt honum. Ríkisstjórnin í sporum Tjældes. Mér virðist sá leikur, sem stjórnarflokkarnir leika nú, vera ærið áþekkur þessum nema óskáldlegri. — Þeir horf- ast ekki í augu við erfiðleikana heldur efna þeir til mikillar veizlu og bjóða ykkur, kjósend- ur. Og nú stendur hún sem hæst, þessi veizla. Nú á að styrkja hina dvínandi tiltrú þjóðarinn- ar og svæfa ugg hennar með miklum lofsyrðum og gullnum skálum í veigum nýsköpunar- innar, svo að hin köldu rök veruleikans komist hvergi nærri, að minnsta kosti ekki um sinn. Þannig á_ að seilast eftir ábyrgð þjóðarinnar á ný. Ég óska þess af heilum hug, að ekki þurfi til gjaldþrots að koma, — heldur sjái menn hvert stefnir og afstýri því tima. En skuldadagarnir koma er vér verðum að greiða hverj- um sitt, og þó fyrst og fremst hina miklu skuld til æskunnar í landinu, til iðjuseminnar, til heiðarleikans, til menningar- innar, til hins unga lýðveldis — Og þegar glýja hinnar fölsku velsældar fellur af augum vor- um, munum vér með heiðarlegu starfi og einbeittum vilja öðl ast þá hamingju sjálfum oss til handa og afkomendum vorum sem nú er í tvísýnu teflt. Svo þakka ég þeim, er hlýddu .— góða nótt. 800 ný heimili. Hér á landi eru árlega stofnuð nálega 800 ný heimili. Á farsæld þessara nýju heimila veltur mjög vöxtur og viðgangur þjóð- lífsins. Það er því ekki úr vegi að spyrja, hvernig búið er að þeim, sem eru að stofna ný heimili um þessar mundir. Með því að svara þeirri spurningu fæst í einu ekki þýðingarlitlu atriði úr því skor- ið, hvernig stjórnarfarið í land- inu er. Ég svara hér — þið á kjördegi. Mig langar til þess að reifa þessa spurningú stuttlega og miða þá af eðlilegum ástæðum fyrst og fremst við kaupstaðina. Þeir, sem sjálfir þekkja þetta af eigin raun, geta svo aukið við atriðum, sem mér kann að sjást yfir eða yrði of langt mál að rekja hér. Svarið vænti ég svo, að þeir gefi á kjördag — á þann veg, sem þeim lízt réttlátt. Húsnæðið. Hið fyrsta, sem ung hjón aurfa að hugsa sér fyrir, er við- unandi húsnæði. Nú er húsnæð- isekla mikil, og í skjóli henn- ar hefir húsaleiga hækkað svo gífurlega, að ekki mun sjald- gæft, að fólk verði að greiða 600—700 krónur á mánuði fyrir tvö herbergi og eldhús, auk þess sem venjulega er krafizt stór- kostlegrar fyrirframgreiðslu. Svo er það að minnsta kosti í Reykjavík. Nú kunna ungu hjónin ef til vill að vera svo kjörkuð, áð þau hugsi sér að kaupa lítil hús eða þá að minnsta kosti íbúð í húsi. En Degar farið er að grennslast eftir verðlagi á húsum, verður svipað uppi á teningnum. Verð- lag húsa hefir rokið upp úr öllu valdi, bæði sökum þess, að verðbólgustefna valdhafanna hefir aukið byggingarkostnað- inn gífurlega og eins hins, að vandræðin þröngva fólki til Dess að bjóða miklu meira fé í húsnæði, hversu lélegt sem það er, heldur en það þó nokkurn tíma kostar. Það er gloppa á byggingar- löggjöfinni. En nú kann einhver að spyrja: Hvernig er það með bygginga- löggjöfina — gerir hún ekki ráð fyrir mikilli opinberri hjálp til handa húsnæðislausu fólki? Á kreppuárunum var slík hjálp veitt, þótt fé væri af skornum skammti, miðað við allt það, er borizt hefir'hér á land í róti styrjaldarinnar, og enn er að minnsta kosti gert ráð fyrir þessu á pappírnum. Framsókn- armenn á þingi fluttu í vetur tillögur um nauðsynlegar endur- bætur á byggingalögunum, svo að þau. svöruðu til ástandsins nú og væru sæmilega virk. Þeir vildu, að ríkið leggði fram fé í lánasjóð handa byggingarfélög- um almennings. En stjórnar- flokkarnir vildu ekki nýta góðar tillögur, sem komnar voru frá Framsóknarmönnum. Þeir gerðu sjálfir sínar breytingar á bygg- ingalöggjöfinni. En þeirra verk reynast ekki haldbetri en svo, að nú þegar forstöðumenn bygg- ingasjóða verkamannabústaða og samvinnubyggingafélaga taka að leita fyrir sér um lán til bygginga handa félagsmönnun- um, þá er þeim hvarvetna neit- að um lánsfé,-nema þá ef til vill fáum í sérstökum tilfellum, að voldugir hjálparandar hlaupa undir bagga af pólitískri nauð syn á kosningavísu. Það var sem sé ekki hirt um að sjá fyrir þvi að fé væri handbært í þessu skyni eða skylda neina peninga- stofnun til þess að sinna þess um lánbeiðnum almennings í neyð hans. Byggingarfélög fjár málaráðherrans og annarra, er reka byggingastarfsemi í gróða- skyni, fá samt fé til sinna þarfa. En þær íbúðir, sem þann- ig verða til, getur unga fólkið sem er að stofna heimili, fengið keyptar með á að gizka 50% á- lagningu. skortur, og skæðar tungur segja, að timbur sé nú ein helzta tál- beitan hjá sumum stjórnarlið- um, sem hugsa sér að vinna kjördæmi á ríkidæmi sínu. En þrátt fyrir skort á byggingarefni og vandræði fólks á samt að byggja útlendingagistihús í Reykjavík fyrir fimmtán mil- jónir króna, og Emil Jónsson samgöngumálaráðherra ætlar að borga amerískum húsameist- urum 300,000 krónur í dollurum fyrir að teikna það. Fleiri stór- byggingar, sem fólki, er býr við húsnæðisleysi og okurleigu, hefði fundizt, að ætti að setja á hakanum, eru nú á döfinni. — Þetta eru staðreyndirnar um byggingamálin. „Aðeins ákveðin fyrirtæki“. Takist nú ungu hjónunum samt að kljúfa þá erfiðleika, sem mæta þeim við útvegun húsnæðis, fara þau að hugsa fyrir húsmunum og heimilis- tækjum. Lítið borð og fjórir einfaldir stólar kosta 1400 krón- enginn veit, hve þungur kann að ur. Tvíbreiður legubekkur 400 krónur. Ránshönd dýrtíðarinnar seilist enn ofan í vasann. Á- Dekkt er verðið á heimilistækj - unum. Og ef djarfhuga fólki dytti í hug, hvort það gæti nú ekki sparað sér þann skattinn af Dessum innflutningsvörum, sem ella rynni í vasa heildsalans, með því að kaupa í samlögum ís- skápa og önnur stærri og dýrari tæki, sem húsmæðurnar ungu Drá að eignast, og færi með Dessar umsóknir til viðskipta- ráðs, þá myndu Oddur Guð- ónsson og fulltrúar verkalýðs- flokkanna í því ráði bara setja upp gleraugun sín og hQrfa hvasst á þennan skrítna gest um leið og þeir hristu höfuðið: Slíkur innflutningur er ekki leyfður nema ákveðnum fyrir- tækjum. Útlendingagistihús, þrátt fyrir efnisskort. Á byggingarefni er einnig Ef þú vinnur heima — Fari svo, að ungu hjónin eign- ist barn, þá fá þau ekki greidd- an nema lítilfjörlegan fæðing- arstyrk, samkvæmt tryggingar- lögunum nýju, nema því að- eins, að konan vinni utan heim- ilisins. Stundum þurfa þó hjón- in allmiklu að fórna vegna fæð- ingarinnar, þótt konan starfi á heimili sínu. Á þetta hefi ég ekki séð minnst í Alþýðublaðinu. Ætti það þó að vera kunnugt í þeirri stofnun, að Alþýðuflokk- urinn gat ekki boðið fram í einu kjördæmi landsins, vegna þess, að tilvonandi frambjóð- andi átti ekki heimangengt — fjölgunar von, en enga húshjálp að fá. Ein spurning að lokum. Þetta eru þá megindrættir þessarar sögu. Og þeim til hugg- unar, sem klifið hafa þrítugan hamarinn við að koma sér upp litlu heimili, er svo það, að yfir þeim vofir skuldabaggi, sem Esja verða, ef dýrtíðarkóngarnir fá að fara sínu fram, unz verðhrun á erlendum mörkuðum gerir það óhjákvæmilegt að halda lengur áfram. Við Framsóknarmenn viljum snúa við meðan fært er til lands og hagnýta stórfelld- asta stríðsgróðann, sem einstök- um miljónamæringum hefir fallið í skaut, til þess að koma fjármálaástandinu á heilbrigð- an grundvöll og rétta þeim hjálparhönd, sem af óumflýjan- legri nauðsyn hafa stofnað sér í skuldir, er seinna verða að greiðast með krónum, er hafa annað gildi. Vilja ungu hjónin í Hafnarfirði og annars staðar taka þátt í því átaki meðan enn er tími til þess að bjarga mestu undan flóðbylgjunni, sem verð- bólgustjórnin er að kalla yfir okkur? Einn af ræðumönnum Sjálf- stæðisflokksins við útvarpsum- ræðurnar 26. júní var Ásgeir skipstjóri á Esju. Hann sá lítið gott við Framsóknarflokkin, en fannst nokkuð til um nýsköpun síns flokks. Ásgeir hefir á liðnum striðs- árum stjórnað Esju með dugn- aði. Nýja Esja var keypt fyrir stríð, á kreppuárunum, eingöngu fyrir atbeina Framsóknar- manna. Það er mjög táknrænt, að nú skuli skipstjórinn á Esju taka undir söng stjórnarsinna um afturhald Framsóknar, en hafa í öllu sínu starfi næstliðin 6 til 7 ár, varla getað stigið fótmál, nema að hafa fyrir augum sér talandi áminningu um stórhug og dugnað þess flokks, jafnvel á kreppuárunum fyrir stríð. Sú staðreynd er þó nýja Esja. Það er leiðinlegt, að jafnvel hið fallega og góða skip, Esja, hefir ekki getað sannfært stjórn endur sína um, að afturhalds- nöldur samflokksmanna þeirra um Framsókn sé á óheilindum byggt — og rangindum. Mikil jpörf á aukningu iandgræbstusjóbs SKOgræktarstjóri og sand- ússon, Gunnlaugur Kristmunds- græðslustjóri kölluðu blaða- son og Ingvar Gunnarsson. Pálmi skal á þing! Með degi hverjum aukast lík- urnar fyrir því að Pálmi verði kosinn. Fjöldi frjálslyndra manna, sem ekki er þrælbund- inn í flokkum hefir undanfarna daga sagt við skrifstofu flokks- ins eitthvað á þessa leið: Pálmi skal á þing! menn á sinn fund nýlega og skýrðu þeim frá fjársöfnun til sandgræðslusjóðs. í sambandi við þjóðhátíðgir- daginn 17. júní má minna á, að samfara merkisviðburðum í sögu þjóðarinnar á undanförnum ár- um, hefir jafnan verið stofnað til ýmislegs, er varðar upp- græðslu landsins og aukna skóg- rækt. Þannig var Skógræktarfélag íslands stofnað 1930 á Þingvöll- um á Alþingishátíðinni hinn 27. júní. Sá félagsskapur telur nú um 4000 meðlimi og hefir orðið til þess að breyta hugarfari manna gagnvart gróðri lands- ins og varðveizlu hans og endur- græðslu skóga og eyddra landa. Samtímis atkvæðagreiðslunni um endurheimt sjálfstæði var Landgræðslusjóður stofnaður árið 1944 og hinn 17. júní sama ár, gaf Jón Guðmundsson 300 þúsund króna skógræktarsjóð á Þingvelli. Væri vel, ef menn myndu Land- græðslusjóð í sambandi við væntanlega þjóðhátíðardaga. Landgræðslusjóður varð upp- haflega til fyrir atbeina lands- nefndar lýðveldiskosninganna 1944, og stjórnar Skógræktarfé- lags íslands. Þá söfnuðust strax um 130 þúsund krónur í sjóðinn, eða sem svarar einni krónu á hvern mann í landinu. Síðar lagði landsnefnd lýðveldiskosn- inganna af mörkum í sjóðinn, allt það fé, sem afgangs var hjá henni frá lýðveldiskosningun- um. Varð sjóðurinn þá um 380 þúsund krónur. Nú að tveimur árum liðnum er sjóðurinn orð- inn tæpar 400 þús. krónur. Sjóð- urinn er sjálfseignarstofnun, skipulagsskrá hans er að finna í ársriti Skógræktarfélags íslands 1945. Stjórn sjóðsins skipa þessir menn: Hákon Bjarnason skóg7 ræktarstjóri, formaður. Guð- mundur Marteinsson, gjaldkeri. H. J. Hólmjárn, ritari. Valtýr Stefánsson, Guðbrandur Magn- Sjóðurinn er nú allur í útlán- um til Skógræktar ríkisins, skógræktarfélaga og einstak- linga, og eftirspurn eftir lánum úr sjóðnum er nú meiri en sjóð- urinn getur annað eins og hann er nú. Eins og þessum málum er nú komið, vantar sjóðinn til- finnanlega fé til þess að hann geti annað ætlunarverki sínu, en um þörfina eða nauðsynina á því að stækka sjóðinn verður ekki deilt, eins og nú skal stutt- lega bent á: Eitt af allra þýðingarmestu málum þjóðarinnar í náinni framtíð er að gera landið sjálft betra og byggilegra, með því að auka gróður þess, græða upp eydd lönd, breyta birkikjarrinu í birkiskóga og rækta þann gróður á hverjum stað, sem bezt verður á kosið. Menn gera sér ekki almennt Ijóst, að ein af að- alorsökunum til flótta fólksins úr sveitunum til sjávarsíðunnar, er eyðing gróðursins og land- skemmdir. Núverandi stærð hins gróna lands er um 17 þúsund ferkíl- metrar, en hefir áður verið að minnsta kosti helmingi stærri. — Gæði hins gróna lands eru nú ennfremur að minnsta kosti helmingi rýrari en þau voru fyrst á landnámsöld. Af þessum ástæðum getum yið núlifandi íslendingar ekki notið nema V4 þeirra landgæða, sem landnáms- menn nutu. Markmið Landgræðslusjóðs er að vinna það aftur upp, sem tapazt hefir og bæta landið og gera það byggilegra. Það, sem hingað til hefir áunnizt eru smámunir einir borið saman við það, sem vera ætti og hægt er að vinna. Ræktað land er ekki nema um 400 ferkílómetrar, Sandgræðslu- girðingar eru 500—600 ferkm., og girðingar Skógræktarinnar eru um 250 ferkílómetrar, þar af eru rúmlega 200 ferkm., sem Kjósið B-listann líkt er ástatt um og sand- græðslugirðingarnar, að þar er náttúran sjálf að mestu leyti látin annast uppgræðsluna. Eru því ekki nema um 700 ferkm. af örfoka landi, sem verið er að græð? upp, af öllu því mikla landi, sem eyðst hefir. Þetta hefir verið 40 ára starf, og ef ekki verður hert til muna á verkinu mun það taka okkur jafnvel allt að 10 aldir áður en landið verður grætt svo að nýju, að viðunandi megi teljast. Hið opinbera hefir varið um 2 miljónum króna til skógræktar síðastliðin 40 ár, og svipaðri upphæð til sandgræðslu, eða samtals 4 miljónum króna. Verð- ur það að jafnaði um 60 kr. á hvern hektara lands, sem græddur er upp að. nýju með fyrirstríðsverði. Með núverandi verðlagi yrði það sennilega um 50—60 miljónir kr. Þetta eru aðeins lauslega á- ætlaðar tölur. Auk hins inn- lenda gróðurs, sem við höfum til þess að græða upp landið, þá er nú svo komið vegna nútíma- rannsókna og reynslu, að við getum fengið fjölbreyttan nýjan jurtagróður og trjágróður frá Alaska, sem ábyggilega geta orð- ið til mikilla nytja við nýgræðslu og endurgræðslu á landinu. Af þessu má sjá, að ótal verk- efni blasa við framundan, sem krefjast úrlausnar, og þess vegna leggur Landgræðslusjóð- ur út í nýja för til þess að safna fé til uppgræðslu landsins, og þess er vænzt, að alþjóð skílji nauðsyn þessa merkilega máls og vilji gjalda fósturlaun sín með því að leggja ríflegan skerf af mörkum í Landgræðslusjóð- inn. Herðum sóknina í Reykjavík Framsóknarmenn í Reykja- vík! Munið það, að takmarkið er: Pálmi Hannesson á þing. Herðum því kosningastarfið sem mest þessa daga, sem enn eru eftir til kosninga. Sigurinn vinnst, ef sóknin er nógu vel samstillt.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.