Tíminn - 10.07.1946, Blaðsíða 2

Tíminn - 10.07.1946, Blaðsíða 2
2 miðvikmlaginn 10. júll 1946 121. blað Kristján Friðriksson: Tillögur ura nýskipan frá 1944 Hliðvihudayur 10. julí Beztu stuðningsraenn braskaranna Sigurgleði sú, sem greip for- kólfa verkalýðsflokkanna fyrst eftir kósningaúrslitin, er nú byrjuð að fjara út. Sú stað- reynd, að Sjálfstæðisflokkurinn hefir raunverulega grætt mest á ■ stjórnarsamvinnunni, hefir bersýnilega farið að valda þeim nokkrum heilabrqtum. Fyrir forustumenn verkalýðsflokk- anna er líka fullkomin ástæða til að íhuga þá öfugþróun, að meðan auðvaldsflokkunum hrakar og áhrif þeirra minnka hvarvetna annars staðar, þá eflist og styrkist auðvaldsflokk- urinn á íslandi. Vilji forkólfar verkalýðsflokk- anna finna *skýringu á þessu kynlega fyrirbrigði, þurfa þeir ekki að athuga annað en eigin verk. Þeir hafa nú í næstum tvö ár lofsungið þá ríkisstjórn, er auðvaldsflokkurinn veitir forstöðu sem óvenjulega við- sýna og framsækna umbóta- stjórn, þótt engin íslenzk stjórn fyrr né síðar hafi jafn dyggilega haldið verndarhendi yfir hvers konar okurstarfsemi og fjár- máíaóreiðu. Þessi áróður í mál- pípum og blöðum verkalýðs- flokkanna, hefir komið ýmsum til að trúa, að Sjálfstæðisflokk- urinn væri orðinn breyttur og betri flokkur. Fylgisaukning hans stafar að ekki litlu leyti af þeirri ástæðu. Þetta er þó kannske ekki veigamesta ástæðan, heldur sú, aö sístækkandi braskaralýður hefir í skjóli stjórnarsamstarfs- ins getað óáreittur safnað meg- inhluta stríðsgróðans í pyngjur sínar, meðan almenningur all- ur er næstum jafn slippur og snauður sem áður. Braskararnir vilja vitanlega fyrir hvern mun halda í þá aðstöðu, sem þeir hafa nú, og þess vegna vörðu þeir fjárhæðum, svo mörgum hundruðum þúsunda kr. skipti, jafnvel miljónum, í kosninga- starfsemi Sjálfstæðisflokksins. Leigðir smalar flokksins fóru um allar byggðir og bæi lands- ins og voru ósparir á ölmusur og fríðindi handa þeim, sem lítilsigldastir voru af kjósend- um. Stór hluti af fylgisaukn- ingu Sjálfstæðisflokksins rekur rætur sínar til þessarar upp- sprettu. Það væri því ekkert ótrúlegt, þótt forkólfar verkalýðsflokk- anna vöknuðu við vondan draum nú eftir kosningarnar, þegar sigurvíman rennur af þeim. Þeir eiga með starfi sínu og stefnu mestan þátt í því, að aðalandstæðingar verkamanna, auðvaldsflokkurinn, hefir auk- izt og eflzt. Þeir hafa stuðlað að því, beint og óbeint, að risin er upp í landinu öflugri og fé- sterkari braskarastétt en áður hefir þekkzt og einskis mun svífast til að halda í völd sín og aðstöðu og ekkert mun láta ógert til að láta fyrirsjáanlega fjárhagserfiðleika bitna á bændum og launþegum,en koma sjálfri sér undan. Vitandi og ó- vitandi hafi forkólfar verka- lýðsflokkanna gerzt beztu stuðningsmenn braskaranna. En þótt verkalýðsforsprakk- arnir eigi eftir að vakna við vondan draum, getur þó verka- lýðurinn sjálfur átt eftir að vakna við verri draum. Hann getur nokkurn veginn gengið að Framhald. Þessu næst kemur áætlun um kostnað ríkisins og samvinnu- bændanna við stofnun sam- vinnubús, og er henni sleppt hér, enda ógerlegt að gera sér grein fyrir kostnaðinum, vegna hinna öru verðlagsbreytinga. Þýðing hlutarstöðufélaga frá þjóðhagslegu sjónarmiði. í fyrsta lagi er hlutarstöðu- fyrirtækjunum ætlað það hlut- verk að koma í veg fyrir at^ vinnuleysi. Þó fer því fjarri, að ætlazt sé til þess, að við þau fái hlutarstöður þeir menn helzt, sem fyrst verða atvinnulausir þegar kreppir að. Þvert á móti er til þess ætlazt, að félags- kjarninn fyrrnefndi velji þang- að þá menn, sem eru vel starf- hæfir og líklegir til að geta náð þeim félagsþroska og samvinnu- hæfni, sem slíkur félagsskapur krefst. Meðal annars vegna þessa er gert ráð fyrir; að fram- lag hvers einstaklipgs sé all- hátt. Telst það auka líkur fyrir því, að sæmilegir menn veljist, að nokkrar .fjárhagslegar kröf- ur séu til þeirra gerðar. Hins vegar má ekki krefjast svo mik- ils framlags, að ekki sé liklegt, að mikill fjöldi dugandi manna geti haft það handbært, annað- hvort sem eigin eign eða lán að einhverju leyti. Þyrfti hann þá í mörgu falli að afla þess láns aðeins fyrir persónulegt traust, sem einhverjir kunnugir bera til hans, því samkvæmt eðli hlutarstöðurekstrarins koma tæpast til mála neinar veðsetn- ingar á bústofni, verkfærum né hluta í húseign. Þá yrði vali manna að sjálfsögðu hagað þannig, að ekki væru líkur til að heilbrigður einstaklings- rekstur legðist niður vegna stofnunar þessara fyrirtækja. Enda þótt þessi rekstur verði því ekki beinlínis stofnaður þannig, að við hann fái vinnu þeir öreigar, sem fyrst verða at- vinnulausir og líklegastir eru til að verða útundan 1 þjóðfé- laginu, þá kemur hann þó ekki sízt þeim að haldi, með því að við það rýmist til á vinnumark- aðinum, færri verða til að keppS um þá daglaunavinnu, sem til fellst. Auk þess munu framkvæmdir þessar auka svo á gróanda þjóð- lífsins og atvinnulífsins, að at- vinnuleysi verði að mestu ó- þekkt fyrir menn, sem hafa dug til starfa. í öðru lagi eiga hlutarstöð- urnar, að skapa öfluga, vel mannaða og vel félagslega þroskaða miðstétt, sem getur búið við félagslegt og efnahags- legt öryggi. í þriðja lagi er hlutarstöðu- fyrirkomulagið í eðli sínu þannig, að með því finnst hið rétta neyzlustig (levestandard). Auðvitað er ákjósanlegast í nútíma þjöðfélagi (með öllum hinum miklu möguleikum til framleiðslu), að hver fram- leiðslustétt hafi það neyzlustig, sem framleiðslan þolir. Það má helzt ekki vera mikið of lágt, því af því leiða kreppur og við- því sem gefnu, nema hann ýti við forkólfum sínum og knýi þá til að breyta svo fulkomlega um stefnu, að gerðar verði róttæk- ustu ráðstafanir til að fara í „rottuholurnar" í stað þess, að þær eru nú verndaðar og varð- ar af stjórnarvöldum landsins á flestan hátt. skiptaörðugleikar. Neyzlustigið má þó ennþá síður vera of hátt, því hverri þjóð, sem hefir of hátt neyzlustig í heild, henni hlýtur að blæða út fjárhags- lega fyrr eða síðar. Þjóðin, sem heild, má ekki krefjast hærri launa, en þeir fá, sem að sjálfri aðal-fram- leiðslunni vinna. Þannig yrði hlutarstöðureksturinn eins kon- ar dómstóll um kaupgjald og verölag, — óvéfengjanlegur í aðalatriðum — þar sem hér er unnið með fullkomnum tækjum og öllum raunverulegum af- rakstri deilt út. Hér hefði því vinnu og félags- dómur þann grundvöll að byggja á, sem nú vantar svo tilfinnan- lega. Án þess að slíkur grund- völlur verði fundinn, geta öldur kaupdeilna þá og þegar risið svo hátt, að allt aðal- atvinnu- líf vort leggist í rústir og þjóöin klofni í tvær fjandsamlegar fylkingar. Með því að koma á fót hlutar- stöðufélögunum, ætti að vera tryggt, að einstakllngsrekstur sá, sem nú er rekinn í landi hér, geti þróast áfram tiltölulega frjáls og minna háður sköttum en oft áður, því einmitt at- vinnuleysið hefir jafnan verið þyngstur baggi á honum, bæði beint og óbeint. Til dæmis hef- ir allur iðnaður, sem byggir á innanlandssölu, einkum hagnað sinn af því, að sem flestir hafi kaupgetu, hafi atvinnu. Og skattabyrðin verður þeim mun þyngri á stórrekstrinum, sem fleiri eru atvinnulausir og því minna, sem iðnaðurinn getur borið af opinberum gjöldum. Félagslegt gildi. Félagslegt og menningarlegt gildi samvinnunnar yfirleitt er óumdeilanlegt. Hlutarstöðufé- lögin eru samvinnufélög, sem byggð eru upp með sérstökum hætti, en áreiðanlega ekki síður líkleg til að hafa menningar- Framhald. þegar hann gekk í síðasta sinn út úr lestrarstoíu sinni, er hann benti á hillurnar: — Þarna eru þær bækur, sem ekki eru fram- ar fáanlegar nokkurs staðar í veröldinni-,, Ennfremur telur Jón, að „það hafi ekki vericl meira en helmingurinn af hand- ritunum, sem bjargað var..“ Samrýmist það ágætlega því, sem Finnur biskup segir: Því varla er einn þriðjungur eftir,“ og á hann þar auðvitað við safnið í heild, handrit og prent- aðar bækur. — Má það því telj- ast furðulegt, þvert ofan í yfir- lýsingar áðurnefndra heiðurs- manna, sem báðir voru menn skrumlausir og þessum málum gagnkunnugir, þegar annar eins maður og Finnur Jónsson grípur andann á lofti af hrifningu er hann segir, að dr. Kálund hafi „sannað,, að því nær ekkert af handritum Árnasafnsins hafi farist í eldsvoðanum. Væri gott eitt um þetta að segja, ef það .væri satt, en dr. Kálund sannar bara ekki neitt, sem gefur ástæðu til að rengja frásagnir þeirra Finns biskups og Jóns Grunnvíkings, til við- legt gildi en annar samvinnufé- lagsskapur. Auk þess hljóta stöðuhafar hlutarstöðufélag- anna að verða sæmilega bjarg- álna, miðað við aðrar stéttir. Þeir bætast því inn í raðir mið- stéttanna, en þær hafa jafnan verið farsælastar allra stétta og þjóðhollastar og veitt börn- um sínum bezt uppeldi. Vörn gegn fjárflótta. Eitt mesta vandamál komandi tíma mun verða að skapa þá festu í fjármálalífi hér innan- lands, sem nauðsynleg er, m. a. til þess að ekki komi til fjár- flótta. Þjóðinni er nauðsynlegt, að hiö mikla einka-auðmagn, sem nú er í eign íslendinga, verði nytjað í þágu atvinnuveg- anna. Með hlutarstöðufyrirkomu- laginu og með þeirri festu, sem það ætti að geta lagt grundvöll að í kaupgjaldsmálunum — og með þeirri verðhækkun pen- inga, sem leiðir af niðurfærslu dýrtíðarinnar — ætti þetta ör- yggi að vera fengið. Flestir ís- lenzkir auðmenn munu helzt vilja ávaxta fé sitt hér heima, ef þeir finna hér það öryggi í viðskiptalífi, sem þeir hljóta að telja nauðsynlegt. Einka-auÖmagni afmarkað svið innan heildarskipulags. Einka auðmagninu verður að afmarka svið. Það má ekki leika svo lausum hala, að það fái að- stöðu til að kúga þjóðina. Ýms- ar greinar iðnaðar mundu geta ávaxtað þetta fé, stórútgerðin nokkuð, o. s. frv. Drög þessi lögð fram til at- hugunar. Þá hefir lauslega verið drep- ið á, hvernig hugsað er, að það kerfi, sem hér hefir verið lýst að nokkru, geti orðið lausn á þeim viðfangsefnum, Sem talin bótar er einnig viðurkenning Árna sjálfs í sambandi við þetta. í bréfi sem hann ritar 2 júní 1729, til Orms sýslumanns Daða- sonar, segir hann: „Þar brann og til ösku hjá mér mikið og margt af mínum skrifuðu bók- um.“ — Engin ástæða er til að álíta að Árni hefði farið að gera meira úr tjóninu en réttmætt var, þegar þess er gætt, hve nærri lá, að hann gæti kennt andvaraleysi sínu um, hversu illa tókst til um björgunina. Staðhæfing dr. Kálunds er byggð á handritaskrá Árna sjálfs, en samkvæmt henni, vantar þó 15 handritabækur, sem fórust í brunanum. — En skráin sannar ekki neitt í þessu efni, nema þá einna helzt fátæklegt hugmyndaflug doktorsins. — Er augljóst, að Árni hefir «m þessar mundir ekki verið meira en því sem næst hálfnaður við að raða og skrá- 'setja handritasafnið, og megin- áherzlan verið lögð á að bjarga þeim hlutanum, sem og tókst að mestu. — Prófessor Finni Jónssyni finnst þessi „sönnun" svo haldgóð, að hún hefði átt „að kefja öfgarnar,“ eins og (Fravihald á 4. síðu). S. K. Steindórs: Hugvekja um handritamálið Pétur Sigurðsson: Bréf til Víkverja v. ! Grein þessi var send Morgunblað- inu til birtingar, en blaðið sá sér ekki fært að birta hana. Hr. Víkverji. í dag, 28. maí, eru pistlar yð- ar í Morgunblaðinu furðu al- varlegir. Það segið þér líka sjálfur. Niðurlagsorðin eru: „Við ' svo búið má ekki lengur standa.“ ^ Áður hafið þér lýst hryggilegu ; skemmtanalífi á Þingvöllum, og j spyrjið svo: „Hvaö gengur að æskunni? Þetta er réttmæt og eölileg spurning. En viljið þér nú ekki vera svo góður og koma á fram- j færi fyrir mig nokkrum svip- uðum spurningum? Allir skilja 1 það, að mönnum verður að ^ stjórna annað hvort með illu eða góðu, eða hvorutveggja. | Síðustu áratugina hefir okkur á íslandi hvorki verið stjórnað með illu eða góðu. (Ég á hér auðvitað ekki við ríkisstjórn eða stjórnmál). Okkur hefir hvorki verið stjórnað með svipu og sverði — ströngum aga, og ekki heldur með mætti hins sið- ferðilega uppeldis, með valdi andans. — Hvorugt. Hreint út sagt, hvorugt. Við mælum ekki með sverði og svipu. En því þá ekki hitt: Sigrá illt með góðu? Og nú koma spurningar mínar. Þér spyrjið réttilega: „Hvað gengur að æsk- unni?“ — Ég spyr: Hvað gengur að forustumönn- um þjóðarinnar? Hvað gengur að ráðherrum og landsstjórn? Hvað gengur að prófessorumf rektorum og skólastjórum? Hvað gengur að forkólfum í verzlun, atvinnulífi og stjórn- málum? Hvaða fordæmi gefa þessir menn æskunni? Þeir vilja ekki sverð og svipu yfir þjóð sína. En skapa þeir þá máttugt áhrifavald hins góða fordæmis? Sækja þeir kirkjur, æskunni til fyrirmyndar? Eru þeir strangheiðarlegir í viðskiptum? Eru þeir sjálfir reglumenn í einu og ööru? Eru þeir fyrirmyndir í skyldurækni við embættisstörf sín, í stund- vísi, hirðusemi og samvizku- semi? Um fleira mætti spyrja. En góði Víkverji, komið þessum spurningum á framfæri fyrir mig, og sláið því svo föstu í eitt skipti fyrir öll, að sé æskan á glapstigum, þá er það eingöngu vegna þess, að eldri kynslóðin er og hefir verið undanfarið á glapstigum sjálf. Byrjið svo siðbótina ofanfrá. Hún er ekki framkvæmanleg á annan hátt. En þjóðarinnar vegna, æskunnar vegna, og alls þess, sem okkur er dýrmætt, þá gerið nú þetta í guðanna bæn- um. Þetta er framkvæmanlegt. Gefið æskunni bæöi markmið og mælikvarða fyrir breytni sinnj. Hún á nú hvorugt, og heimurinn á hvorugt. En án markmiðs og mælikvarða getum við ekki lifað menningarlífi. Trú okkar og lífsskoðun verð- ur að skapa markmiðið, og trúin á það markmiö verður að skapa það siöalögmál, sem stjórnar breytni okkar og allri hegðun. Önnur léið er ekki fær. Við erum allir sammála um, aö eitthvað þurfi nú að gera. Við skulum byrja á réttum stað og hyggilega. Pétur Sigurðsson. Til kaupenda Tímans í Reykjavík Oft veldur miklum leiðindum, hve erfitt er víða í bænuin að koma blaðinu með skilupi til kaupendanna. Það eru vinsam- leg tilmæli til þeirra, sem verða fyrir vanskilum, að þreytast ekki á að láta afgreiðsluna vita um þau, þar til þau hafa verið löguð og jafnframt að leiðbeina börnunum, sem bera út blaðið, (Framhald á 4. síðu). hann kemst að orði. Einnig seg- ir hann, eftir að hafa þó fallizt á, að eitthvað kunni að hafa farizt af handritum í eldinum: „Og af þessu sem brann er aftur næsta lítið, sem mikill söknuð- ur er að.“ — Má þetta kallast undarlega djörf ályktun hjá prófessornum og lök rökfræði, þegar þess er gætt, að honum var algerlega ókunnugt um, hvað það var sem brann. Árha Magn- ússyni sjálfum var ekki einu sinni kunnugt um það allt. — nægir sem dæmi að nefna, að Ari Þorkellsson sýslumaður hafði rétt fyrir brunann, sent hon- um „bókakistu“ (sennilega einkum handrit, þó eitthvað kunni að hafa verið þar líka af fágætum prentuðum bókum). -— Er Árni skrifaði. honum 29. maí 1729, tjáir hann honum að kistan hafi brunnið, „so að ég get engin frekari skil á henni staðið.“ Og á einum stað segist Árni ekki geta munað það allt, sem brunnið hafi. En flestum þeim mönnum, sem leita vilja sannleikanns í einlægni um þetta mál, mun þó fara svo, að þeir telja trú- veröugri framburö valinkunnra sjónarvotta, en ályktanir þær sem gerðar eru nær því 200 árum eftir að atburðurinn gerð- ist, — og jafnvel þó að spakir menn ungi þvílíkum ályktunum út. — Lítur næstum út. fyrir, að þeim próf. Finni og dr. Ká- lund, hafi verið metnaðar- og kappsmál, að fá sem flesta til að trúa því að tjónið hafi ein- ungis veriö smávægilegt. — En það var mikið tjón og óbætan- legt, og sýnir gjörla hversu frá- leitt er að tala um, að um björg- unarstarf hafi veriö að ræða, er handritin, illu heilli, voru flutt úr landi, því eins og áður getur, hefði vafalaust nokkuð farið forgörðum af þeim hér, en aldrei í jafn stórum stil, ei þau hefðu verið dreifð milli fleiri eigenda hér í heimalandi sínu. — Var Árni Magnússon þvi, í stað þess að vera bjargvættur handritanna, einn hinn mesti óhappamaður í þeim efnum, að sjálfsögðu óviljandi þó. Þegar þess er gætt, hve eig- endur handritanna voru fastir fyrir, með að láta þau af hönd- um rakna áður en Árni Magn- ússon byrjaði söfnunarstarf sitt, má það kallast undravert hversu vel honum varð ágengt í því efni. Enda áhuginn óþrjót- andi og skilyrði að ýmsu hin heppilegustu, einkum þau árin sem hann var konunglegur embættismaður hér á landi, við Jarðabókarstörfin og fleira, enda varð árangurinn alveg gíf- urlegur, og hefir hann notað að- stöðu sína til hins ítrasta, beitt skjalli, fortölum og persónu- töfrum sínum óspart, og jafn- vel nokkrum brögðum á stund- um, til að ná marki sínu. —

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.