Tíminn - 11.07.1946, Blaðsíða 3

Tíminn - 11.07.1946, Blaðsíða 3
122. blað 3 Jtyiftufaúréttir Þessi vagn getur ekið 100 mílur á klst. Þó hefir hann aðeins 5 hestafla véi. B'enzíngeymirinn tekur aðeins 4 lítra af benzíni, en með þvi er hægt að komast 00 km. Christmas Möller sést hér á myndinni, þar sem hann er að heimsækja skipstjórann, sem flutti liann og fjölskyldu hans leynilega til Svíþjóðar á hernámsárunum. Mynd þessi er af hinum nýju húsakynnum rússnesku sendisveitarinnar í Kaupmannahöfn. Spanski forsætisráðherrann, Dr. Jose Giral, sést liér á myndinni ásamt syni sínum. Myndin var tekin, er þeir voru á ferð í Lundúnum nýlega. Mynd þessi er af knattspyrnuliði brezkra flugmanna, sem kepptu við kín- verskt knattspyrnulið í Singapore. ÚTBREIÐIÐ TÍMANN flmmtudagimn 11. jiili 1946 HANS MARTIN: SKIN OG SKÚRIR mun falla þetta þungt. Á hann að tala við hana eða senda henni símskeyti? — Nei, hann getur hvorugt gert — hann verður að iara sjálfur og segja henni þessi sorgartíðindi. Þetta getur hún ekki borið ein, og þá er jiað skylda hans að standa við hlið henn- ar og létta henni byrðar lífsins, þrátt fyrir allt, sem þeim hefir borið á milli. Hann sprettur á fætur, rakar sig í skyndi, sendir boð eftir Hettýju. „Hvað er á seyði, pabbi?, spyr hún forviða, þegar hún sér breytinguna, er allt í einu virðist orðin á föður hennar. „Mér hafa borizt sorgleg tíðindi frá Bangkok — það er um Karel ... .“ „Er hann dáinn?“ spyr hún án þess að láta sér bregða. Wijdeveld kinkar kolli. „Já, hann dó mjög snögglega." Þetta er bezt — engar nánar skýringar strax. Hann segir henni, hvað hann hefir í hyggju. Hún býðst strax til þess að hjálpa honum — spyrst fyrir um járnbrautarferðir til Sviss, býr um farangur hans og þar fram eftir götunum. Inn- an lítillar stundar er Wijdeveld ferðbúinn. Hettý ætlar að segja Janna og Mariönnu andlátsfregnina. * Lusia er stödd í símkiefa gistihússins. Hún þerrar í sífellu sveitt ennið með knipplingaklútnum sinum. „Hallo —■ non, mademoiselle, j e n’e ntends rien du tout — mais rien de rien. Hallo — ó, ert það þú, Hettý? Þetta er mamma þín. Hvað er með Karel? Hvers vegna senduð þið mér símskeyti? Hvað segirðu?“ Hún heyrir rödd Hettýjar einhvers staðar langt í burtu: „Vertu við öllu hinu versta búin.“ „Er hann dáinn? Vertu ekki að skrökva að mér.“ „Nei — en honum er ekki hugað líf.“ „Hvað hefir komið fyrir?“ „Einhver hitabeltissjúkdómur.“ „Hvers vegna er pabbi þinn á leiðinni til Sviss?“ „Hann ætlar að bíða nánari frétta hjá þér.“ „Þetta er hræðilegt. Hvenær kemur Willem?“ „Þegar klukkan er fimmtán mínútur gengin í ellefu.“ Það verður stutt þögn. „Ekki fyrrj1 segir Lúsía svo. „Og hvað á ég að gera í allan dag. Og ég, sem var búin að mæla mér mót við svo marga og verð nú ?.ð hætta við það.“ Dóttir hennar kveður — svitinn hnappast á enni Lúsíu .... Karel er sjúkur austur í löndum — honum er ekki hugað líf. Ef til vill nýtur hann ekki viðunandi hjúkrunar — ef til vill hefir hann ekki haft efni á að kalla á lækni sér til bjargar .... Og þetta er sök Wijdevelds. Hann rak hann brott — og aðeins vegna Renée — þeirrar skækju, sem dó svo eftir allt saman, áður en vitnaðist um þeirra samband. Ef Karel deyr núna, liugsar Lúsía, þá er það morð — þá hefir Wijdeveld myrt hann .... Það setur að henni ofsafenginn grát — hún nær varla and- anum í verstu flogunum .... * Wijdeveld bíður lengi á stöðinni í Interlaken. Lúsía sést hvergi. Loks nær hann sér í leigubiíreið .... Hvernig stendur á þvi, að Lúsía kemur ekki — skyldi hún ekki vera í Interlaken? En þegar hann kemur í gistihúsið, finnur hann hana i rúm- inu. „Lúsía — vina mín — fékk þetta svona á þig?“ Hún ris upp við dogg. Hún er öll grátbólgin, andlitið hrukk- ott og tekið. „Hann er þá — dáinn?" Wijdeveld kinkar kolli. „Hvers vegna mátti ég ekki vita það fyrr?“ „Lúsía — ég vildi ekki láta þig vita þetta, fyrr en ég gæti sagt þér það sjálfur — talað við þig eina . ...“ Hann lýkur ekki við setninguna. Hún rekur upp skrækan og hásan hlátur. „Heldurðu kannske, að þú getir eitthvað . ,t mér þennan harm — þú, sem hraktir hann austur í þessi heitu lönd, þar sem menn hrynja niður eins og flugur? Þú berð ábyrgð á dauöa Kar- els .... þú .... „Ég? — Lúsía ... .“ „Já, þú. Kannske hefir hann ekki einu sinni getað beðið um íæknishjálp vegna fátæktar. En þú liggur á miljónunum meðan eizti sonur þinn veslast upp og deyr eins og útskúfaður maður austur í löndum.“ „Láttu ekki svona þvætting út úr þér, Lúsía.“ „Þetta er ekki neinn þvættingur. Þetta er himinhrópandi á- k.æra. Þú berð ábyrgð á dauða hans .... Ég vildi bara, að þig ór- aði fyrir því, hve ég hata þig. — Farðu burt héðan og komdu aldrei framar fyrir mitt auglit.“ „Þú ert viti þínu fjær, Lúsía.“ „Ég veit, hvað ég segi, og þetta er full alvara. Þú veizt það sjálfur, að ég hefi aldrei fyrirgefið þér, hvernig þú komst fram við Karel. Ég væri komin aftur heim, ef sættir hefðu tekizt með ykkur Karel, og þá væri Karel líka á lífi. En nú vil ég ekki sjá þig framar — aldrei framar.“ Hún er komin fram úr rúminu, stendur á miðju gólfi, ellileg og beygð. „Lúsia,“ segir hann blíðlega, „mér þykir vænt um þig — ég hefi alltaf elskað þig og tignað. Og vorum við ekki hamingjusöm fyrstu árin — meðan Karel og Maríanna voru lítil,“ „Nei,“ svarar hún og hristir höfuðið. „Við vorum aldrei hma- ingjusöm. Þú gerðir þér aldrei það ómak að hugsa um, hvernig J mínum tilfinningum væri háttað. Þú varst alltaf með hugann við fyrirtækið og peningana.“ KOMIÐ: VEGGFÓÐUR Samband ísl. samvinnufélaga Biðjið verzlun yðar um Svefnpoka Tjöld Bakpoka og aðrar sport- vörur frá 5. og 6. bók oCiát cimcinnapincýSiná eru nú tilbúiiar til afgreiðslu. Bókanna óskast vitjað I Helgafell, Aðalstræti 18, Helgafell, Garðastræti 17, — og framvegis verður Listamannaþingið og aðrar áskriftarbækur einnig einnig afgreiddar í bókabúðinni, Laugaveg 11. Nýir áskrifemlur komi á einhvern giessara þriggja staÓa. U Yerzluiiarfélag KorK'arfjarbar li.f. Borg'arnesi tilkynnir: Kaupum þvegna og óþvegna vorull, sem að undanförnu. Til máia getur komið að sækja ullina heim, ef bílfært er á staðinn. mumunmmnmmiuumiimmmummmmnmmnmmmcm Tillögur um nýskipan (FTamhald af 2. siOu) „Nýsköpun óstjórnarinnar“ gerir ráðstafanir til svo æðis- genginnar atvinnuaukningar og kaupuppboðs, að með sama á- framhaldi mundi hávaðinn af bændum og bændasonum lands ins sogast burt úr sveitinni og á mölina — en hvert verður svo hlutskipti þeirra þar, þegar gull- æðið rennur af þjóðinni, eftir að „óstjórnin“ hefir sóað fé henanr í vitleysu. — Lauslega hefir verið áætlað, að hinn nýi floti „óstjórnarinnar" muni þurfa á að halda: 4—5 þúsund manns til viðbótar þeim sjó- mönnum, sem fyrir eru. Bænd- ur landsins eru rúmlega 6 þús- und! Við ætluðum að kaúpa at- vinnutækin með gætni og at- hugun -— ekki fleiri en not yrðu fyrir á hverjum tíma — m. a. til þess að þau atvinnu- tæki, sem síðar yrðu keypt, gætu orðið fullkomnari og hagnýtari þeim fyrri, því ný reynsla á al- veg eftir að leiða í ljós, hvaða skip og tæki henta framtíðinni bezt. „Nýsköpmi óstjórnarinnar“ kaupir 28 — tuttugu og átta togara, alla sömu gerðar — og marga tugi vélbáta. Hvernig fer, ef reynslan sýnir, að skip þessi eru gölluð i meginatriðum. Já, hvernig fer þegar við eigum með þeim skipum að keppa við e. t. v. miklu fullkomnari skip annarra þjóða, sem byggð eru nokkru siðar? — Hefði þá ekki verið betra að kaupa aðeins þaö nú, sem þjóðarhagur krafði? Því auðveldara er að breyta fáum skipum, taka þau til sérstakra nytja, eða skipta á þeim heidur en svo til öllum flotanum í einu. Við vildum skapa öryggi og festu í viðskiptalífið, og byggj a upp nýsköpun með gætni en hóflegri dirfsku. Ekki setja allt á eitt spil. „Nýsköpun óstjórnarinna.“‘ vill setja ailt á eitt spil: kaupa allt inn í einu, hættulega mikið sömu gerðar án reynslu. Með sama áframhaldi er hætt við, að góðæri snúist í erfiða tíma — velsæld í allsleysi — blessun í bölvun. Eina vonin er sú að ríkis- stjórnin breyti nú hið bráðasta um stefnu og reyni að bjarga þvi, sem enn er liægt að bjarga. Rvík, 17. júní 1946. Kristján Frlðriksson. %

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.