Tíminn - 26.07.1946, Blaðsíða 1
RITSTJÓRI:
ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON
ÚTGEFANDI:
FRAMSÓKN ARFLOKKTJRINN
Símar 2353 og 4373
PRENTSMIÐJAN EDDA h.f.
RITST J ÓRASKRIFSTOFDR:
EDDUH ''SI. Llndargötu 9 A
Símar 2353 og 4373
AFGREIÐSLA, INNHEIMTA
OG AUGLÝSINGASKRIIiSTOF/.:
EDDUHÚSI, Llndargötu 9 A
Siml 2323
30. árg.
Reykjavik, föstudagiim 20. jiilí 1940
133. blað
Svíþjóðarbátarnir flestir
Eins og kunnugt er samdi fyrrverandi stjórn um smíði á 45
bátum í Svíþjóð. Flestir þessara báta eru nú komnir hingað til
lands, eða alls 32 þeirra. Flestir bátanna eru 50 rúmlestir að stærð,
en alls eru þeir af þremur stærðum, 50, 80 og 90 rúmlesta. Tíð-
indamaður blaðsins hefir átt tal við Arnór Guðmundsson skrif-
stofustjóra Fiskifélagsins um bátana og fengið hjá honum upp-
lýsingar um, hvert þeir fara.
Alls eru komnir til landsins
fjórtán 50 rúmlesta bátar, sjö
80 rúmlesta og ellefu 90 rúm-
lesta bátar. Þeir 13 bátar, sem
eftir eru, koma væntanlega
heim í sumar og í haust.
Bátarnir hafa farið til þessara
staða: Til Reykjavíkur hafa
farið, einn 50 rúmlesta bátur og
fimm 90 rúmlesta bátar, til
Borgarness hefir farið einn 90
rúmlesta bátur, til Akraness
einn 50 rúmlesta bátur, til
Stykkishólms einn 5p rúmlesta
og annar 90 rúmlesta, til Flat-
eyjar á Breiðafirði einn 50 rúm-
lesta bátur, til Bolungarvíkur
einn 90 rúmlesta bátur, til ísa-
fjarðar fjórir 80 rúmlesta bátar,
til Sauðárkróks einn 50 rúm-
lesta bátur, til Ólafsfjarðar
tveir 50 rúmlesta bátar, til
Dalvíkur þrír 50 rúmlesta bát-
ar, til Rauðuvíkur einn 50 rúm-
lesta bátur, til Hríseyjar einn
90 rúmlesta bátur, til Húsavíkur
einn 50 rúmlesta bátur, til Þórs-
hafnar einn 50 rúmlesta bátur,
til Seyðisfjarðar einn 80 rúm-
lesta bátur og annar 90 rúm-
lesta, til Neskaupstaðar einn 90
rúmlesta bátur, til Eskifjarðar
einn 90 rúmlesta bátur, til
Reyðarfjarðar einn 80 rúmlesta
bátur, til Hornafjarðar einn 80
rúmlesta bátur og til Vest-
mannaeyja einn 50 rúmlesta
bátur. Auk þessara báta hefir
verið keypt allmikið af notuðum
bátum frá Svíþjóð hingað til
lands að undanförnu.
Ohagstætt veður
tefur síldveiðar
Mikil síld kom til Raufar-
hafnar í fyrradág og í gær-
morgunn. í gærdag barst þang-
að aftur minni síld, vegna þess,
að veður hamlaði veiðum út á
miðunum. í fyrrinótt hvessti
upp á norð-vestan, en í gærdag
seint var veður aftur batnandi
og veiðihorfur taldar góðar. Á
Raufarhöfn biðu í gær 18 skip
löndunar. Þangað höfðu þá alls
borizt 100 þús. mál af síld í
sumar, og hafa afköst verk-
smiðjunnar verið um 5880 mál
að jafnaði á sólarhring síðastl.
viku. Söltun mun hefjast þar á
næstunni.
Níu togurum úthlutað
í fyrradag var úthlutað 9 togurum, sem verið er að smíöa í
Bretlandi fyrir íslendinga. Var það Nýbyggingarráð, sem úthlut-
aði togurunum. Togarar þessir eru ailir gufukyntir og eiga þeir
að vera tilbúnir til afhendingar á tímabilinu frá 31. janúar til
31. október næsta ár.
Vestmannaeyjar og Neskaup-
staður fengu sína tvo togarana
hvor, en Akranes, ísafjörður,
Keflavík, Siglufjörður og Seyð-
isfjörður einn hver. Hefir þá
verið lokið við að úthluta öllum
þeim 30 togurum, sem samið var
um smíði á í Bretlandi í fyrra,
að undanteknum einum, .sem
Nýbyggingarráð hefir boðið
Reykjavíkurbæ forkaupsrétt að,
og m.á því telja líklegt, að hann
fari þangað. í apríl var úthlutað
20 togurum og fara 13 af þeim
togurum til Reykjavíkur, svo
alls fara til Reykjavíkur 14 af
þeim 30 togurum, sem nú er
verið að smíða í Bretlandi fyrir
íslendinga. Til Hafnarfjarðar
var úthlutað sex togurum af
fyrri úthlutuninni, þar af ein-
um til Hafnarfjarðarbæjar, og
einum til Akureyrar. Auk þess
hefir Guðmundur Jörundsson
útgerðarmaður á Akureyri keypt
sjálfur nýtízku dieseltogara i
Bretlandi, sem tilbúinn verður
á miðju ári 1948.
Af þessum 9 togurum, sem nú
var úthlutað, verður sá fyrsti
tilbúinn, sem fara á til Nes-
kaupstaðar. Verður hann tilbú-
inn 31. janúar 1947. Togarinn,
Fimmtugsafmæli
Fimmtug er í dag frú Guð-
munda Línberg, Skólavörðuholti
13 í Reykjavík. Hún er hógvær
kona og hvers manns hugljúfi.
Vönduð í öllu dagfari sínu
og hjálpfús við alla minni mátt-
ar og skipar hún sess sinn vel
og er virðulegur fulltrúi kven-
þjóðarinnar.
Það verða margar hlýjar árn-
aðar óskir, sem hún fær frá
vinum sínum í dag.
sem fer til Akraness, verður til-
búinn 28. febrúar 1947. Annar
togarinn, sem fara á til Vest-
mannaeyja, verður tilbúinn 28
febr. 1947. Síðari togarinn, sem
fer til Norðfjarðar, verður til-
búinn 30. júní 1927. Togarinn
til ísafjarðar verður tilbúinn
31. júlí 1927. Síðari togarinn
sem Vestmannaeyjar fá, verður
tilbúinn 30. september 1947
Togarinn, sem fer til Seyðis
fjarðar, veðrur tilbúinn 15. okt
1947. Togarinn, sem fer til
Keflavíkurhrepps, verður tilbú-
inn 31. október 1947.
Kjarnorkutilraunin
við Bikiniey
í fyrrakvöld, kl. 9,30 eftir ís-
lenzkum tíma var kjarnorku-
sprengju varpað á skipaflota við
Bikiniey. Er þetta önnur kjarn
orkutilraunin, sem gerð er nú
á tiltölulega skömmum tíma
Samkvæmt seinustu fregnum
sem borizt hafa af tilrauninni
en áreiðanlegar fregnir bárust
ekki fyrr en seint í gær, hafa
fjögur skip sokkið af 87 skip
um sem í flotanum voru. Þessi
fjögur skip sukku svo að segj
strax. Eitt þeirra beitiskipið
Arkans, sökk strax, flugvéla
skipið Saratoga skömmu
seinna. Sprengjan var sprengd
50 metrum undir sjávarmáli við
eyjuna Bikini í Kyrrahafi. Var
sprengjan sprengd með útvarps
geislum frá skipi sem var í 16
km. fjarlægð. Þegar sprengingin
varð gaus upp geysi mikil reyk
og eldsúla um 3000 metra upp
í loftið. Lónið sem sprengjan
sprakk á „varað eitt eldhaf og
(Framhald á 4. síOu).
ingi heimilar ríkisstjórninni að sækja
um inntöku í þjóðabandalagi ð
S j álf stæðismenn og Alþýðuflokksmenn sam-
einast um að fella áskorun til ríkisstjórnar-
innar um að krefjast þess, að hið erlenda
herlið hverfi þegar í stað af landi brott
FRÁ HOLLANDI
Klukkan laust fyrir tíu í gærkvöldi samþykkti Alþingi svo-
látandi þingsályktunartillögu, ásamt greinargerð, er henni fylgdi:
„Alþingi ályktar að veita ríkisstjórninni heimlld til þess að
sækja um inntöku íslands í Bandalag hinna sameinuðu þjóða
ÍThe United Nations) og takast jafnframt á hendur fyrir lands-
ins hönd þær skyldur, sem samkvæmt sáttmála bandalagsins
eru samfara þátttöku í því“.
Var tillaga þessi samþykkt með 36 atkvæðum gegn 6. Átta
þingmenn sátu hjá við atkvæðagreiðslu, en tveir voru fjarverandi.
Hollenzka þjóðin er nú óðum að ná sér eftir þrengingar styrj-
aldaráranna. Myndir þessar eru teknar úr kvikmynd er
hollenzka stjórnin er nú að láta gera að högum og lifnaðar-
háttum þjóðarinnar, einkum í sveitunum.
Verzlunarjöfnuðurinn óhagstæð-
ur um 51 milj. kr.
Samkvæmt skýrslum hagstofunnar varð verzlunarjöfnuður-
inn í júnímánuði einum óhagstæður um nálega 14 milj. króna.
En í lok júnímánaðar hefir verzlunarjöfnuðurinn verið óhag-
stæður um rúmlega 51 milj. króna frá því um áramót.
í júnímánuði nam verðmæti^
útfluttra íslenzkra afurða sam- _ . .. , ^
tals krónum 14 559 800, en inn- ^UIHarglStlhUS 80
flutningurinn á sama tíma nam
kr. 28.244.740 og er því verzlun-
arjöfnuðurinn í þeim mánuði
óhagstæður um kr. 13.684.940.
Helztu útfluttar afurðir í síð-
asta mánuði eru sem hér segir:
Saltfiskur, 283.260 kg„ fyrir
483.160 kr. ísfiskur, 5.781.740 kg„
fyrir 2.380.600 krónur. Síld-
arolía, 1.534.080 kíló, fyrir
Fiskur, niðursoðinn, 1.210 kg„
fyrir 4.690 kr. Freðsíld, 3,000 kg„
fyrir 2,440 kr. Lýsi 600.230 kg„
fyrir 2.380.600 kr. Síldarolía,
Sildarolía, 1.534.080 kg„ fyrir
1.500.350 kr. Fiskimjöl, 485.000
kg„ fyrir 319.730 kr. Hrogn, sölt-
uð, 560 tn„ fyrir 480 kr. Ull,
313.600 kg„ fyrir 3.160.900 kr.
Gærur, saltaðar, 60.388 „ tals,
fyrir 758.810 kr. Gærur, sútað-
ar, 325 tals, fyrir 11.380 kr.
Skinn, hert, 150 kg„ fyrir 7.560
kr. Ýmsar vörur fyrir 748.470 kr.
Samtals 14.559.800 kr.
Fyrir nokkrum árum réðist
félag Snæfellinga og Hnapp-
dæla í að girða og friða Búð
arhraun. Sem framhald þeirra
framkvæmda keypti það, á
síðastliðnu ári, gamla verzl-
unarhúsið á Búðum og hyggst
að koma þar upp fullkomnum
sumardvalarstað fyrir félaga
sína og aðra og um leið sam-
komustað fyrir héraðsbúa.
Búðir hafa frá náttúrunnar-
hendi öll skilyrði sem slíkur
staður þarfnast. Þar er stórbrot-
in og margvísleg náttúrufegurð,
allt frá gróðursælu hrauni til
gnæfandi jökuls. Sjóbaðstaöur
er þar ágætur og öll er sveitin
fræg úr fornum sögum.
í sumar fer fram mikil breyt-
ing og viðgerð á húsinu, sem
(Framhald á 4. síSu).
Þeir, sem atkvæði greiddu
gegn tillögunni, voru Björn
Kristjánsson, Hannibal Valdi-
marsson, Helgi Jónasson, Ing-
var Pálmason, Páll Zóphónías-
son og Páll Þorsteinsson.
Þeir, sem ekki greiddu atkvæði^
voru Skúli Guðmundsson, Stein-
grímur Steinþórsson, Bernharð
Stefánsson, Gísli Sveinsson,
Halldór Ásgrímsson, Jón Sig-
urðsson, Jörundur Brynjólfsson
og Pétur Ottesen.
Fjarverandi voru Jónas Jóns-
son og Stefán Jóh. Stefánsson.
Allir aðrir þingmenn greiddu
atkvæði með tillögunni, en sum-
ir létu greinargerðir fylgja at-
kvæði sínu. Hermann Jónasson
og Bjarni Ásgeirsson, sem báð-
ir áttu sæti í utanríkismála-
nefnd, er fjallaði um málið, og
báðir greiddu tillögunni atkvæði,
létu þess getið, að þeir væru ó-
ánægðir með afgreiðslu málsins,
þótt þessi tillaga og greinargerð
sú, sem henni fylgdi, væri
skársta lausnin, er hægt hefði
verið að ná með samkomulagi
fulltrúa allra flokka í utanríkis-
málanefnd.
Álit og tillaga
utanríkismálanefndar.
Nefndarálit og breytingartil-
laga utanríkismálanefndar var
á þessa leið:
Utanríkismálanefnd hefir
haldið 3 fundi um tillögu þá
um inntökubeiðni íslands í
bandalag hinna sameinuðu
þjóða, er vísað var til nefndar
innar á fundi sameinaðs Al-
þingis í gær. Á fundunum hafa
einnig mætt ríkisstjórnin, og
auk hennar Gunnar Thorodd
sen prófessor. Auk þess hafði
nefndin haldið 2 fundi áður en
Alþingi var kvatt saman, til
þess að ræða um þetta mál og
athuga ýmis gögn, ásamt með
ríkisstjórninni. Hefir málið ver-
ið rætt ýtarlega, og nefndar-
menn hafa kynnt sér eftir föng-
um sáttmála sameinuðu þjóð-
anna og þá álitsgerð, sem fylgir
tillögunni.
Á undanförnum árum hefir
ísland tekið þátt í margvíslegu
alþjóðlegu samstarfi og gerzt
aðili að ýmsum samtökum sam-
einuðu þjöðanna. Verður það
og í samræmi við þessa þátt-
töku, að ísland sæki um inn-
göngu í bandalag sameinuöu
sjóðanna. Er það og vilji alls
iorra íslendinga og í samræmi
við hagsmuni þjóðarinnar, að
hún leggi fram til hinnar al-
þjóðlegu samvinnu þann skerf,
sem er eðlilegur frá hendi ís-
lenzku þjóðarinnar og við henn-
ar hæfi.
Um skipulag bandalagsins,
stofnanir þess og starfshætti
vill nefndin vísa til i áður
nefndrar álitsgerðar. Þar er
einnig, einkum á 9,—10. og 14.—
17. bls„ gerð grein fyrir þeim
skyldum, er ríkið takizt á hend-
ur með inngöngu í bandalagið.
í því sambandi er rétt að geta
þess, að skv. sáttmálanum er
ætlazt til, skv. 6. tölulið 2. gr„
að þau ríki, er kunna að standa
utan bandalagsins, verði að
hlíta svipuðum kvöðum og
skyldum og meðlimir þess, en
njóta hins vegar ekki félags-
réttinda.
íslendingar eru reiðubúnir til
þess að gangast undir þær
skuldbindingar, er sáttmálinn
leggur á meðlimina. Einna þýð-
ingarmest ákvæðanna um skyld-
ur og kvaðir er 43. gr. sáttmál-
ans. Sú grein áskilur meðlim-
unum samningsrétt við öryggis-
ráðið um kvaðir skv. greininni,
og leggur nefndin þann skiln-
ing i ákvæðið, að engar slíkar
kvaðir sé unnt að leggja á ís-
lenzka ríkið, nema að fengnu
(Framhald á 4. tíBu).
ísfisksölur í Bretlandi
í seinustu viku seldu 9 ís-
lenzk skip ísfisk í Bretlandi,
fyrir samstals 62.562 sterl.pd.
Skipin eru þessi: Gyllir, er
seldi í Grimsby, 3169 kit, fyr-
ir 3774 sterlingspund. Viðey
seldi í Fleetwood 2258 kit, fyr-
ir 7,458 pund. Júpíter seldi í
Fleetwood 3868 kit, fyrir 12.415
pund. Kári seldi í Grimsby 2615
kit, fyrir 6.109 pund. Baldur
seldi í Hull 2658 kit, fyrir 5,801
pund. Tryggvi gamli seldi í Fleet-
wood 2620 kit, fyrir 5.946 pund.
Venus seldi í Grimsby 3280 kit,
fyrir 10,330 pund, og Faxi seldi
að teljast í beinu framhaldi af 2577 kit, fyrir 7,331 sterl.pd.