Tíminn - 26.07.1946, Side 2

Tíminn - 26.07.1946, Side 2
2 rlMIMV. föstndagtnn 26. Jáli 1946 133. blatS Föstudaginn 2S. jttlt Það, sem þurft hefði að gera Það mál, sem nú er að vonum mest rætt, er inntökubeiðni ís- lendinga I þjóðabandalagið. Málið er rætt frá ýmsum hlið- um og koma að vonum fram mismunandi sjónarmið og skoð- anir. En jjað munu samt vel- flestir sammála um, að málið hafi verið illa undirbúið meðal þjóðarinnar, svo að hún hefir lítt átt þess Völ að glöggva sig á því, hvað það er, sem hér er um að ræða. Þannig hefir sáttmáli hinna sameinuðu þjóða ekki fyrr en nú fyrir fáum dögum verið þýddur á íslenzku, svo að alþýða manna gæti kynnt sér, hvaða ákvæði hann hefði inni að halda. Um þetta hirðuleysi er mjög rætt manna á meðal. Hinu veita menn ef til vill ekki eins mikla athygli, að málið hefir ekki heldur verið undirbú- ið út á við á viðunandi hátt. Frá sjónarmiði okkar íslendinga hefði það verið eðlilegast og æskilegast, að við gætum gengið í Bandalag hinna sameinuðu þjóða með þeim skilyrðum, að við þyrftum ekki að taka þátt í hugsanlegum hernaðaraðgerð- um né láta í té bækistöðvar handa erlendum her i landi okkar. Við höfum þá sérstöðu meðal þjóðanna, að eðlilegt væri, að þessi undantekning yrði gerð um okkur. Við erum vopnlaus þjóð, sem ekki hefir neinum her á að skipa né hugs- ar sér að hafa það á komandi tímum. Og við erum svo lítil þjóð, að sá minnsti og fámenn- asti her, sem húgsanlegt væri að hinar sameinuðu þjóðir hefðu gagn af að hafa hér, myndi sliga okkur á skömmum tíma og steypa okkur í glötun sem sérstakri þjóð. Engin þjóð þolir það að hafa í landinu herlið sem er eins fjölmennt eða fjöl- mennara en landsfólkið sjálft Þannig myndi hinum stærri þjóðum sennilega einnig finn- ast allþröngt fyrir dyrum, ef tugmiljónaher útlendur sæti löndum þeirra, þótt vinveittur væri. Þetta skilja ísléndingar og óttast, og þess vegna geta þeir ekki fellt sig við, að erlendur her háfi til langframa bæki stöðvar í landinu. Þetta myndu valdamenn annarra þjóða vænt anlega einnig skilja, ef málstað ur íslendinga hefði verið ræki lega túlkaður fyrirfram við þá og öryggisráðið með aðstoð vel viljaðra ráðamanna í alþjóða samvinnu. Þá er mjög líklegt, að íslendingar hefðu nú, sökum sérstöðu sinnar meðal þjóðanna, getað fengið inngöngu í banda lagið með þvi fororði, að þeir tækju ekki þátt í hernaðarað gerðum né leyfðu herstöðvar landinu. Einmitt með þessum sömu skilyrðum var Svisslend ingum veitt þátttaka í Þjóða bandalaginu gamla á sínum tíma. En nú hefir svo gálauslega verið að farið, að ekki mun neitt hafa verið þreifað fyrir sér um þetta við þá aðila, er þar fá mestu um ráðið, hvað þá að unnið hafi veríð að þessu skipulegan og markvissan hátt, og hlutur íslands tryggður fyr irfram. Þetta sinnuleysi er enn alvarlegra heldur en skeyting arleysið heima fyrir, sem þó er mjög vítavert. Þessa dagana hafa því þing Þorsteinn M. Jónsson, skólastjóri á Akureyri, er einn af frum- herjum ungmennafélagshreyfingarinnar hér á landi og hefir hann jafnan verið ötull talsmaður aukinnar menningar og bætts þroska æskulýðsins, og jafnan barizt fyrir þeim málum, sem til bóta mega horfa í þjóðfélaginu. Tímarit ungmennafé- laganna sneri sér til Þorsteins í tilefni af 40 ára afmæli félags- skaparins nú í ár og bað hann að skrifa grein fyrir ritið og minn- ast afmælisins. Grein þessi birtist í seinasta hefti Skinfaxa, en >ar sem hún á erindi til sem flestra, er hún endurprentuð hér, svo fleiri eigi þess kost að lesa hana en lesendur Skinfaxa. Þorsteinn M. Jónsson: myndafréttir Höfum við gengið til góðs? Þegar 20. öldin gekk í garð, Dá var árroði hennar skærari en árroði nokkurrar annarrar ald- ar, er fæðst hafði, síðan íslenzka Djóðin varð til. Sá arroði boð- aði ekki eingöngu fæðingu hinn- ar nýju aldar, heldur nýs tíma- bils í lífi þjóðar vorrar. Miðöld- um íslands var lokið. En líkt og hinir miklu andar mann- kynsins í lok miðalda veraldar- sögunnar sprengdu heimsmynd miðaldamanna og opnuðu þai mannkyninu víðari heim en það hafði áður þekkt, þá höfðu Djóðræknir, gáfaðir og djarf- huga forystumenn íslendinga á 19. öld sprengt.mörg þau höft, er hamlað höfðu þróun þjóðar- innar á liðnum öldum og vakið hjá henni meiri trú á sjálfa sig og land sitt en hún hafði áður haft. Það var vor í lofti. Frjómagn- ið var leyst úr læðingi. Vaxtar- ará þjóðarinnar varð að veru- leika. Stjórn landsins var að miklu leyti flutt frá Kaup mannahöfn til Reykjavíkur, og ísland fékk sinn eigin ráðherra, gáfaðan og glæsilegan íslending. Þjóðin varð framtakssamari og stórhugaðri en áður um rekst- ur atvinnuvega sinna, og kröf- ur hennar til þess að lifa meira menningarlífi en áður stórjuk- ust. Þorsteinn Erlingsson hafði kveðið nokkurs konar herkvöt til æskunnar og framsækinna manna: „Ef æskan vill rétta þér örvandi hönd“ o. s. fvr., og Guð- mundur Magnússon kvað á 1. ári aldarinnar kvæðið: „Ég vil elska mitt land“, sem er þrunginn ástaróður til fósturjarðarinnar. Ég held, að allir þeir ungu menn, sem stofnuðu fyrsta ung- mennafélagið á íslandi 1906, hafi drukkið inn í sig þann anda, sem fólst í þessum tveim kvæð- um. Kvæði Guðmundar Magn- ússonar varð þeim nokkurs kon- ar trúarljóð. í því fólst sá andi, sem þeir vildu magna í sínu eigin brjósti og þjóðarinnar í heild, ást til landsins og þjóð- arinnar, og þrá hennar til þess að vera frjáls. Og Þorsteinn Erlingsson vakti trú þeirra á sjálfa sig og æsku landsins, og að það væri hlutverk æsku- mannanna að hefja þjóðina til vegs og frama, og þeim bæri að sýna djörfung og áræði. Sam taka áttu þeir að ryðja þeim „völum úr vegi“, er tálmað höfðu framþróun þjóðarinnar á liðnum tímum, en forðast að vera í fylgd hinnar öldruðu sveitar, er ekki þorði að brjóta forna ófrelsishlekki 'og vildi aldrei leggja á „tæpasta vaðið“, hvað sem var í húfi. Þrír af stofnendum hins fyrsta ungmennafélags landsins, Ung- mennafélags Akureyrar, þeir Þórhallur Bjarnas., Jón Helga- son og Jóhannes Jósepsson höfðu farið til útlanda og orðið fyrir áhrifum frá lýðháskólun- um og æskulýðshreyfingunum í Noregi og Danmörku. í Noregi var á þessum tíma sterk þjóð- leg vakning. Norðmenn höfðu skilið við Svía 1905 og þar með loks slitið af sér öll erlend valda- bönd, er þeim höfðu hvílt um mörg hundruð ár. Þetta tvennt, hin sterka innri vaxtarþrá þjóðarinnar, og dæmi frænda vorra, Norðmanna, voru þeir undirstraumar, sem mest réðu í stefnu hinna fyrstu ung- mennafélaga. Stefnuskrá og skuldbinding hinna fyrstu ung- mennafélaga voru merkilegar, álíka merkilegar og stefnuskrá Fjölnismanna var 70 árum áður. Einkunnarorð þeirra voru: — Sannleikurinn og réttlœtið fyr- mennirnir, fulltrúar þjóðarinn- ar, staðið í þeim sporum, að þeir hafa orðið að velja á milli þess, að sækja um inntöku í þjóða- bandalagið, treystandi á náð og skilning þeirra, sem þar ráða mestu, að þeir krefðust aldrei neins þess af íslenzku smáþjóð- inni, sem henni væri algerlega um megn að veita, eða í annan stað setja þau skilyrði fyrir inn- tökubeiðni sinni, að hætta sé á, að henni verði hafnað. Ef skyn- samlega og ötullega hefði verið að þessum málum unnið á rétt um vettvangi, hefðu menn nú vitað, hversu fast þeir hafa undir fótum og getað hagað sér í samræmi við það. Og ef málin hefðu verið rækilega skýrð, er ótrúlegt annað en við hefðum getað fengið inntöku í banda- lagið með þeim eðlilegu skilyrð- um, sem hér hafa verið nefnd, þótt á því leiki vafi eins og á málunum hefir verið haldið. Slík málsmeðferð og sú, sem hér hefir átt sér stað, er ævin- lega háskaleg og vítaverð, en því háskalegri er hún, sem um stór- vægilegra og viðkvæmara mál er að ræða. En meginógæfa er það, þegar svo er staðið að hin- um stærstu og þýðingarmestu málum. ir öllu. Ef æska allra tíma á Is- landi einsetti sér að lifa sam- kvæmt þessum einkunnarorð- um, þá væri menningu þjóðar- innar að fullu borgið. Félagar gátu þeir einir orðið, sem „treystu handleiðslu guðlegs afls“. En hér var ekki að ræða um neinar sértrúarkreddur, heldur trú þá, sem felst í vísu Steingríms Thorsteinssonar: „Trúðu á tvennt í heimi tign sem æðsta ber: Guð í alheimsgeimi, guð í sjálfum þér“. Hugsjónin var sú, að sann- leikurinn og réttlætið væru guð- leg öfl og með því að taka þau í þjónustu sína, þá gæti æska ís- lands unnið stór afrek til heilla fyrir sjálfa sig, land sitt og þjóð. Þá var það eitt í skuldbindingu félagsmanna, að þeir urðu allir að vera vínbindismenn. Vín- nautn var í augum hinna fyrstu ungmennafélaga skortur á sannri menningu. Hún veiklaði menn líkamlega og andlega, og hún var ekki um hönd höfð í þjónustu sannleika og réttlætis. Bakkus var falsguð, Loki í mann- heimi. En höfuðtilgangi sínum lýstu stofnendur ungmennafé- laganna bezt með þessari grein: „Að reyna af fremsta megni að efla allt það, sem er þjóðlegt og ramíslenzkt og horfir til gagns og sóma fyrir hina íslenzku þjóð. Sérstaklega skal reyna að leggja stund á að fegra og hreinsa móðurmálið". Fyrstu ungmennafélagarnir sýndu það í verki, að þeim var alvara með tilgang félags síns. Þeir gerðust umsvifamiklir, og stundum svo, að þeir móðguðu eldri og reyndari menn, eins og þegar þeir sendu blaðstjórum á- skorun um að vanda betur mál blaða sinna. Blaðstjórunum fannst að vonum, að þessir ungu menn ættu ekki að vera leiðbeinendur þeirra, til þess skorti þá þekkingu. En ekki er ég í vafa um, að þessi umbrot ungmennafélaganna um fegrun málsins hafi borið talsverðan ár- angur. Þeir reyndu að vanda mál sitt, o^ ég held, að það Það fer vel á með þeim þessum. Myndin er tekin í Kaup- mannahöfn á hernámsárunum og sýnir danskan kaupmann, vera að semja við þýzkan yfirforingja. Þessi mynd er líka tekin í Kaupmannahöfn, en nokkuð mik- ið seinna. Hún er af rússneskum hershöfingjum, sem fyrir nokkru voru á skemmtiferð þar í borginni. (Framhald á 4. síðu). ' Flýttu þér á fætur, svo skulum við koma út og leika okkur. Stefán Jónsson námsstjóri: Einn dagur í Finnlandi Framh. Nú var verið að byggja upp aftur sögunarverksmiðjuna og var þeirri smíði langt komið, en ennþá vantaði vélar. Kennslukonan sagði að þessi liðþjálfi, sem, átti að stjórna brennunni, hefði dvalið þarna áður og ekki fengið af sér að framkvæma þetta illvirki. En sjálf var kennslukonan ekki svona heppinn. Hennar bær lá í næsta dal og þar fóru brennuvargar um. — Þeir höfðu kveikt í bænum hennar og brennt að mestu og stólar og annað innbú brann þar en borðstofuborðið var það eina sem var lítt skemmt. Við það borð sátum við, er við drukkum kaffið, en stólana sagðist hún hafa að láni, því aö enn hefði hún ekki getað keypt sér innbú. Kaupmáttur finnska marksins er ekki mikill. Fyrir 100 mörk finsk, fást þrjár krónur sænsk- ar, en á svörtum markaði er þó sænska krónan miklu dýrari. — En hvernig komast sænskar krónur á svartan markað? Til þess liggja ýmsar ástæður. Ein ástæðan er meðal annars þessi: Vínsala er frjáls í Finnlandi, en takmörkuð í Svíþjóð. — Frá Finnlandi er hægt að smygla víni og selja fyrir sænskar krónur og þessar sænsku krónur getur svo sami maður selt fyrir tvö- falt verð í Finnlandi. Það eru allt af til menn í sér- hverju landi, sem kunna þá list að græða peninga á erfiðleik- um annarra. Þegar við höfðum lokið við kaffidrykkjuná, fórum við að heimsækja börnin. Litlu börnin 16 toiðu þá í skólastofunni, bros- andi og prúð í sætum sínum með fánana í höndum. Þau stóðu öll upp og heilsuðu, þegar við kom- um inn. Námsstjórinn, sem með mér var, talaðl nokkur orð við þau á finnsku og sagði þeim að ég vær frá íslandi, og að þar byggi þjóð, sem væri vinveitt Finnum. Ég sagði líka nokkur orð á minni sænsku, sem þarna var ágætis mál, en kennslukonan þýddi jafnóðum fyrir börnin. Námsstjórinn hafði haft með sér dálítið af súkkulaði og brjótsykri fyrir börnin er slík- ir hlutir eru fáséðir í Finnlandi. Kennslukonan skifti þessu milli barnanna og öll börnin stóðu upp hvert á eftir öðru og þökk- uðu með handabandi. Litlu stúlkurnar hneigðu sig mjúklega eins og þaulæfðar leikkonur, en drengirnir 7 og 8 ára stóðu tein- réttir, slógu saman hælum eins og á heræfingu og hneigðu sig djúpt. — Finnar leggja mikið upp úr líkamsrækt og hreysti og skara oft sem kunnugt er fram úr öðrum Norðurlandaþjóðum á kappmótum. Börnin voru hreinlega en yfir- leitt fátæklega klædd, en lífs- glöð og hraustleg að sjá. — Við kvöddum nú kennslukonuna og þennan indæla barnahóp, því að nú kom bíll að sækja okkur og vorum við boðnir til lyfsala, sem átti heima um 10 km. frá skólanum. Hann gerði okkur þau boð, að sig langaði til að sjá þessa útlendu gesti. Svíinn sagði, að þetta væri allt gert mín vegna og lét ég mér það vel líka. Þessi lyfsalahjón voru um sextugt og bjuggu í stóru húsi. Fyrir 10—12 árum hafði lyfsal- inn verið 6 mánuði í Álands- eyjum og hafði þá lært dálítið að tala sænsku, en frúin skildi ekkert sænsku. — Þessi hjón voru af gömlum finnskum ætt- um og áttu marga fáséða gripi, og þar á meðal biblíu frá 1642 sú fyrsta sem prentuð var á finnsku. Var hún mjög lík i sníðun og Guðbrandarbiblía. — Spjöld og hespur alveg eins. Hún vara prentuð í Stokkhólmi. Þessi hjón höfðu einu sinni flúið með allt lauslegt, sem þau gátu flutt með sér yfir Tornelfi og búið heilan vetur í Svíþjóð, en þýzkir hermenn tóku húsið til íbúðar. — Það heíir verið erfitt að flytja alla þá húsmuni og lyfsalavörur um 15—20 km. leið og yfir stórfljót. Margar sögur ganga um það, þegar bændurnir voru að flýja yfir ána. Þjóðverjar létu það hlutlaust, þótt þeir flýðu með húsmuni sína, en þeir drápu það, sem þeir náðu í af gripum — Bóndi einn ætlaði að flytja vænan grís með sér yfir, ásamt farangri sínum. Þýzkur hermaö- ur kom þar að og bannaði hon-

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.