Tíminn - 27.07.1946, Blaðsíða 4
Skrifstofa Framsóknarflokksins er l
Edduhúsinu við Lindargötu. Sími 6066
4
REYKJAVÍK
FRAMSÓKNARMENN!
Komib í skrifstofu Framsóknarflokksins
27. JÚLÍ 1946
134. blað
Réttlwtismúluni
btentla ehtei sinnt
(Framhald af 1. síOu).
ar atkvæðagreiðslu, sem fram
hefir farið um það, verður að
líkindum kunn í dag. Á hvorn
veginn sem hún verður, munu
bændur landsins áreiðanlega
sætta sig við hana og hefja
þessa félagsstarfsemi sína i
eindrægni og bróðerni. Eitt
þeirra verkefna, sem nú verða
fyrst fyrir, er að heimta bænd-
um sama rétt í þjóðfélaginu og
öðrum stéttum. Það er sannar-
lega hart aðgöngu, ef um það á
að standa löng og hörð barátta,
en reynist svo, þá sýnir það fyrst
og fremst, að bændur landsins
hafa ekki komið á stéttarsam-
tökum sín á meðal fyrr en þess
var orðin brýn þörf.
V estmannaeuia-
fréttir
(Framhald af 1. síöu).
ast um kvöldið verður brenna
og flugeldar. Á laugardaginn
heldur hátíðin áfram, þá verður
til skemmtunar ræðuhöld,
söngur, íþróttir og að lokum
dans.
Heyskapur gengur^vel.
Heyskapur hefir gengið vel í
Vestmannaeyjum að þessu sinni.
Búið er að hirða meginið af
túnum og hefir spretta veriö í
bezta lagi. Talsverður landbún-
aður er stundaður í Vestmanna-
eyjum, þó heldur hafi hann
dregist saman í seinni tíð.
Bærinn rekur kúabú.
Vestmannaeyjabær hefir nú
um nokkurt skeið rekið kúabú
og hefir jafnan þótt ganga á
ýmsu um rekstur þess og mjólk-
in orðið dýrari með bæjar-
rekstrinum, en bændum er
greitt fyrir hana. Þannig er nú
varla um meira talað meðal
manna í Vestmannaeyjum en
bróður forseta bæjarstjórnarar,
og starfsemi hans Þ sambandi
við mjólkurbúið. Hann vann 31
dag hjá Dalabúinu, en svo
nefnist bæjarbúið og fékk í
laun 5299,37 og auk þess er sagt,
að gleymst hafi að draga frá
100 lítra af mjólk er sami mað-
ur fékk þannig í kaupbæti.
Vestmanneyingar harma það,
að maður þessi skuli nú vera
stunginn af til Reykjavíkur, svo
ekki sé einu sinni hægt að
leggja útsvar á hinar fljótteknu
tekjur hans hjá bænum. Hvað
ætli bændur þyrftu aö selja
mjólkurlítennn, ef þeir ættu að
reikna sér 180 kr. á dag fyrir
vinnu sína, eins og þessi starfsm.
bæjarbúsins í Vestmannaeyjum.
Daaur í Finnlandi
(Framhald af 3. síðu)
Stokkhólmi. Þeir eru þar bæði
konur og menn í sufnar aö
vinna sér fyrir fötum og sænsk-
um krónum, en heim til Finn-
lands segjast þeir ætla i haust.
„Þar eigum við að vera. Finn-
land þarf okkar með“, sagði ung
finnsk kona við mig, þegar ég
spurði hana hvort hún ætlaði til
Finnlands aftur.
Vonandi fær Finnland friðinn,
sem allir þrá. Frið til að vinna,
yrkja land, elskast og þjást og
eflast að menningu og mann-
fjölda. — Er það lega landsins,
sem veldur því að finnska þjóð-
in hefir þjáðst meira af styrjöld-
um en flestar aðrar þjóðir —
eða er eitthvað í eðli þjóðar-
innar, sem veldur þessu?
Ég sleppi því að svara þessum
spurningum, en ég vildi óska
þess, að Finnland fengi eins og
aðrar þjóðir varanlegan frið. —
Þjóðin finnska trúir á landið
sitt og ann því af heilum huga.
ENDIR.
Raf magnseldavélar
frá GENERAL MOTOISS CORPORATION.
Einkaumboðið getur séð um afgreiðslu eftir því sem innflutningsleyfi iiggja fyrir.
/
Samband Isl. Samvinnufélaga
Drenaiamótið
(Framhald af 1. siðu).
son HÞ, Örn Clausen ÍR, Sigur-
jón Ingason Hvöt, Grétar Jóns-
son KR, Ásmundur Bjarnason
KR, Steingrímur Hermannsson
KR, Snorri Karlsson KR, Vil-
hjálmur Vilmundarson KR,
Þórður Sigurðsson KR, Ófeigur
Eiríksson KA, Halldór Magnús-
son Ums. K.
Langstökk:
Óli Páll Kristjánsson HÞ,
Örn Clausen ÍR, Kristþór Helga-
son ÍR, Þorbjörn Pétursson Umf.
Ld., Björn Vilmundarson KR,
Hörður Ingólfsson KR, Ás-
mundur Bjarnason KR, Þórður
Sigurðsson KR, Halldór Lárus-
son, Ums. K.
110 metra grindahlaup:
Ólafur Nielsen Á, Haukur ÍR,
Örn Clausen ÍR, Björn Vil-
mundarson KR, Ásgeir Einars-
son KR.
Sleggjukast:
Pétur Kristbergsson FH, Sig-
urjón Ingason Hvöt, Vilhjálmur
Pálmason KR, Snorri Karlsson
KR, Þórður Sigurðsson KR, ís-
leifur Jónsson ÍBV.
Kristjánsson HÞ, Vilhjálmur
Pálsson HÞ, Ásgeir Torfason
HÞ, Haukur og Örn Clausen ÍR,
Sigurjón Ingason Hvöt, Grétar
Jónsson KR, Ásmundur Bjarna-
son KR, Steingrímur Her-
mannsson KR, Snorri Karlsosn
KR, Vilhjálmur Vilmundarson
KR, Þórður Sigurðsson KR, Ó-
feigur Eiríksson KA, Halldór
Magnússon Ums. K.
3000 metra hlaup:
Stefán Gunnarsson Á, Hauk-
ur Hafliðason Á, Snæbjörn
Jónsson Á, Jónas Jónsson HÞ,
Ásgeir Einarsson KR.
Þrístökk:
Óli Páll Kristjánsson HÞ,
Kristþór Helgason ÍR, Björn
Vilmundarson KR, Magnús
Jónsson KR, Ásmundur Bjarna-
son KR.
Spjótkast:
Árni Friðfinnsson FH, Árni
Gunnlaugsson FH, Óli Páll
Kristjánsson, HÞ, Tryggvi
Gunnarsson HÞ, Vilhjálmur
Pálsson HÞ, Haukur og Örn
Clausen ÍR, Grétar Jónsson KR,
Ásmundur Bjarnason KR, Már
Elísson KR, Adolf Óskarsson
ÍBV, Ófeigur Eiríksson KA.
"Höfum við aenaið til
aóðs?“
(Framhald af 2. síðu)
sér sem aðallífshugsjón, er að
gera þjóð sína að merkilegri og
mikilli þjóð í augum annarra
þjóða. Enginn þjóð verður mikil
vegna fólksfjölda eins, heldur
vegna mennigarlegra afreka
og siðferðisþroska. Menningar-.
leg afrek forfeðra vorra á 12. og
13. öld hafa gefið þjóðinni til-
verurétt. Þjóðin á enn hæfileika
til þess að geta orðið merkileg
þjóð, en til þess að svo verði, þá
verða æskumenn íslands að efla
siðferðisþroska sinn og sjálfs-
virðingu. En verði íslenzk æska
hirðulaus, nautnasjúk, eyðslu-
söm og ábyrgðarlítil í orðum og
verkum, þá á þjóðin ekki lífs-
möguleika í framtíð. En slíka
æska er í raun og veru engin
æska, heldur er hún nokkurs
konar umskiptingur, átján
barna faðir úr álfheimum. Hún
er fædd gömul, úrkynjuð. Lif-
andi hugsjónir og hugsjónaeld-
ur eru einkenni lífrænnrar,
sannrar æsku. Ungmennafélög
(jatnla Síó
I leymþjónnstii
Japana
(Betroyal from the East)
Amerisk njósnarmynd byggð á
sönnum vlðburðum.
Aðalhlutverk:
Lee Tracy
Nancy Kelly
Bichard Loo.
Bönnuð börnum innan
16 ára.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Wifja Síó
(við Shúkugðtu)
Á ieiksviðinu
(„Bowery to Broadway")
Skemmtileg mynd full af fall
egum söngvum.
Aðalhlutverk:
Maria Montez,
Turham Bay,
Jack Oakie,
og söngkonan kóða
Susanna Fostei'.
Sýnd kl. 3, 5, 7 og 9.
Sala hefst kl. IX f. h.
TjarHarbíc
TÍMINN
kemur á hvert sveitaheiinili og
þúsundir kaupstaðaheimila, enda
gefinn út í mjög stóru upplagi.
Hann er því GOTT AtJGLÝS-
INGABLAÐ. Þeir, sem ekki
hafa reynt það, ættu að spyrja
hina, er reynt hafa.
TÍMINN
Lindargötu 9A, simi 2323 og 2353
§kal eða skal ekki
(I Love a Soldier)
Bráðfjörugur ameriskur gam-
anleikur.
Paulette Goddard,
Sonny Tufts,
Barry Fitzgerald.
Sýning kl. 5—7—9.
—--------—----—----—--------i
Einar Benediktsson
er höfuðskáld Islendinga
» p
Ljóð hans öll hafa þó aldrei fyrr en nú verið
fáanleg á sama tíma. En nú er ljóðasafn hans
komið út í vandraði útgáfu. Pétur Sigurðsson
háskólaritari hefir séð um útgáfuna. Ekki þarf
að mæla með ljóðum Einars Benediktssonar.
Hvert mannsbarn á íslandi kannast við þau. En
varla getur það talist bókamaður, sem ekki á ljóð
Einars, meðan þau eru fáanleg.
Fást hjá bóksölum um allt land.
BÓKAVERZLUN ISAFOLDAR
Að keppninni lokinni fara
fram undanrásir í 400 m. hlaupi.
Á morgun hefst mótið kl. 2
síðdegis og verða þá keppendur
í hinum einstöku íþróttagrein-
um þessir:
4X100 metra boðhlaup:
Ármann 1 sveit, ÍR 1 sveit,
KR 2 sveitir.
Stangarstökk:
Sigursteinn Guðmundsson
FH, Vilhjálmur Pálsson HÞ, ís-
leifur Jónsson ÍBV, Adolf Ósk-
arsson ÍBV.
Kúluvarp:
Sigurður Kristjánsson FH,
Sig. Júlíusson FH, Óli Páll
400 metra hlaup:
Stefán Gunnarsson Á, Jón Kr.
Gunnarsson FH, Reynir Sig-
urðsson ÍR, Björn Guðmunds-
son ÍR, Pétur Sigurðsson KR,
Sveinn Björnsson KR, Grétar
Jónsson KR, Halldór Magnús-
son Mms. K.
Hrossasala til Póilantls
(Framhald af 1. síðu).
og flutt til Póllands með tveim-
ur skipum. í Póllandi verða
hrossin einkum notuð til land-
búnaðarstarfa, því pólskir bænd-
ur eru miklir hestamenn og
nota hross mikið við landbúnað-
arstörf.
nútíma og framtíðar þurfa aö
kynda þann hugsjónaeld, er
varöveitir æskuna, ekki ein-
göngu á unglingsárum manna,
heldur allt þar til, er að árum
gamall hnígur að velli.
FYLGIST MEÐ
Þið, sem 1 strjálbýllnu búið,
hvort heldur er við sjó eöa í
sveit: Minnist þess, að Tíminn
er ykkar málgagn og málsvari.
tJtbreiðlð Tímaim!
Ferð um Hnappadal
Snæfellingafélagið efnir til skemmtiferðar um
Hnappadal dagana 3.-^5. ágúst, ef næg þátttaka
fæst.
Þátttaka tilkynnist í Skóbúð Reykjavíkur fyrir
31. júlí. Þar liggur frammi ýtarleg ferðaáætlun.
Ferðanefndiii.