Tíminn - 02.08.1946, Qupperneq 1
RITSTJÓRI:
ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON
ÚTGEFANDI:
FRAMSÓKN ARFLOKKURINN
Símar 2353 og 4373
PRENTSMIÐJAN EDDA h.I.
30. árg.
RITSTJÓRASKRIFSTOFUR:
EDEUH ' SI. Llndargötu 9 A
Símar 2353 og 4373
AFGREIÐSLA, INNHEIMTA
OG AUGLÝSINGASKRIFSTOFA:
EDDUHÚSI, Liiidargötu 9A
Siml 2323
Reykjavík, föstudaglim 2. ágúst 1946
138. blað
At/ög gott útht umfom- pyrjrh|eðsIu Þverár að verða lokið
uppS eru á ámsstö um j *600 metra langur varnargarður úr Þór-
ólfsfelli skáhallt um farveg Þverár
\i/ bygf/teyund frd Norifur-Noreyi reynist
sérstuhleya vel.
Tíðindamaður Tímans átti í gær tal við Klemens Kristjánsson
jarðyrkjufrömuð á Sámsstöðum. Lét Klemens svo ummælt, að |
útlit um kornvöxt og kartöfluuppskeru væri með allra bezta móti,
og myndi bygg til dæmis verða fullþroska upp úr miðjum ágúst-
mánuði, ef svo héldi fram sem nú horfði. Sérstaklega gerir hann
sér vonir um mjög góða uppskeru af norskri byggtegund, sem
hann ræktar nú í fyrsta skipti og er mun bráðþroskaðri en aðrar |
tegundir, sem hann hefir átt völ á hingað til. Þetta er 24. sum-
arið, sem Klemens hefir með höndum kornrækt.
Sárt er að jb/ásí og missa
Ég sáði korni í sjö hektara í
vor, sagði Klemens, höfrum í
þrjá hektara og byggi í fjóra
hektara. Er það heldur minna
en í fyrra. Byggið, sem ég not-
aði til útsæðis, er að mestu leyti
íslenzkt, ræktað hér á Sáms-
stöðum í fyrra, en auk þess fékk
ég dálítið af nýrri byggtegund
frá Norður-Noregi, svonefnt
Floja-bygg. Hefir það reynzt
mjög bráðþroska — skreið fyrst
af öllu byggi hér og verður senn
fullþroska. Hafrar þeir, sem ég
ræktaði í fyrra, spíruðu ekki,
þótt þeir reyndust ágætis fóður,
og stafaði það af slæmri nýt-
ingu. Ég gat ekki fengið efni í
hesjur í fyrrasumar, en gömlu
hesjurnar höfðu út úr vandræð-
um verið teknar í girðingar-
staura. Hefði ég haft efni í
hesjur í fyrrasumar, myndi ég
einnig hafa fengið ágæta útsæð-
ishafra.
Uppskeruvonir eru með bezta
móti. Byggið skreið um mánaða
mótin júní—júlí, viku fyrr en i
fyrra, og varð Floja-byggið
fyrst til, eins og ég hefi áður
sagt. Hafrar skriðu um 10. júlí.
ferðar. Fyrir nokkru yfirgaf flugliðið Kastrupsflugvöllinn við Kaupmanna-
höfn og flutti sig um stundarsakir til Flensborgar. — Þessi mynd var tekin
í aðaljárnbrautarstöðinni í Höfn, andartaki áður en lestin rann af stað. —
Kveðjurnar eru innilegar, og söknuður þeirra, sem á brautarpöllunum standa,
sjálfsagt sár. „Sælt er að sjást og kyssa — sárt er að' þjást og missa —
æ, æ og ó.“
Er það hvort tveggja viku fyrr|
en í fyrra.
Byggið er nú byrjað að safnal
í sig kjarna, og geri ég ráð fyrir,
aö Floja-byggið verði fullþrosk-
að upp úr miðjum ágústmán-
Uði, en annað bygg í seinni hluta j Brezki herinn, sem dvalið hefir í Danmörku, er farinn að hugsa til heim-
mánaðarins. Hafrarnir ættu að
verða fullþroskaðir um 10. sept-
ember.
í sumar verður unnið hér að
uppskerunni með nýrri vél, sem
bæði slær og bindur. Fékk ég
hana í fyrra, en gat ekki not-
að hana þá nema lítið eitt,
vegna þess, hve seint hún kom.
Líkur eru til að kartöflu-
uppskera verði einnig mjög góð.
Er þegar komið vel undir. Kart-
öflum var að þessu sinni sáð í
hálfa fjórðu dagsláttu hér á
Sámsstöðum.
Grasfrærækt er aftur á móti
lítil í ár. Er orsökin sú, að ég
þurfti að endurnýja grasfræ-
akrana í vor.
Túnaslætti er hér að verða
lokið, og er taða fyllilega í með-
allagi og nýting góð. Svo mun
yfirleitt vera hér í Rangár-
þingi.
Um þessar mundir er verið að ljúka við hleðslu mikils varnar-
garðs úr Þórólfsfelli skáhallt um farveg Þverár í Rangárvalla-
sýslu. Er garður þessi rúmlega 600 metra langur og mikið mann-
virki. Vinna við varnargarð þennan hófst ekki fyr en í júní-
mánuði í sumar, og hefir þarna ekki litlu verki verið afkastað á
skömmum tíma. Tíðindamaður blaðsins hefir snúið sér til Vega-
gerðar ríkisins, sem annazt hefir framkvæmdirnar og fenglð þar'
frá sögn um mannvirki þetta.
Leyföur innflutningur 137
sænskra og amerískra fólksbílaj
Viðskiptaráð hefir ákveðið að leyfa innflutning 137 fólksbif-
reiða frá Bandaríkjunum og Svíþjóð. Jafnframt hefir ráðið
kveðið svo á, að minnst helmingur þessara bifreiða skuli fara til
atvinnubílstjóra, og ekki minna en þriðjungur til manna bú-
settra utan Reykjavíkur og Hafnarfjarðar. — Hefir umboðs-
mönnum hinna erlendu verksmiðja hér á landi verið falið að
úthluta bifreiðunum eftir þessum reglum, nema hvað bifreið-
um til atvinnubílstjóra í Reykjavík skal úthlutað í samráði við
bifreiðastjórafélagiö Hreyfil. — Það er lofsverð ákvörðun að
atvinnubílstjórum og mönnum utan höfuðstaðarins skuli hafa
verið tryggð hlutdeild í þessum bílakaupum, þótt hitt sé aftur
nokkuð vafasamt að fela bílasölum sjálfum úthlutunina.
Síldarverksmiðjan á Skagaströnd
reynd í gærkvöldi
By^in^ii hennar verður |>ó ekki lokið til ínlls
fyrr en á nsesta ári.
Tíðindamaður blaðsins átti í gær tal við fréttaritara blaðs-
ins á Skagaströnd. Síldarverksmiðjan þar er nú að hefja bræðslu
á rúmum 2000 málum, er hún hefir tekið við í reynsluskyni. Hófst
bræðsla þessarrar sildar í gærkvöldi.
Greinargerö Viðskiptaráðs um
þennan bifreiðainnflutning, fer
hér á eftir:
Eftir ósk ríkisstjórnarinnar
leyfði Viðskiptaráðið fyrir
skömmu innflutning á fólksbif-
reiðum þeim,sem íslenzkir ríkis-
borgarar áttu í Bandarikjun-
um. Var því haldið fram að bif-
reiðar þessar hefðu verið keypt-
ar í góðri trú og eigendur þeirra
hefðu með nokkrum rétti getað
vænzt innflutningsleyfa fyrir
þær. Eftir að þessir aðilar höfðu
lagt fyrir ráðið gögn er sýndu
að þeir ættu bifreið keypta
vestra og gerðu jafnframt grein
fyrir á hvern hátt þeir hefðu
fengið gjaldeyri til kaupanna
leyfði ráðið innflutning um-
ræddra bifreiða, eins og að
framan segir.
Jafnframt samþykkti Við-
skiptaráðið að veita gjaldeyris-
og innflutningsleyfi fyrir 137
fólksbifreiðum frá Bandaríkjun-
um og Svíþjóð er skiptust niður
á umboðsmenn bandarískra bif-
reiðaverksmiðja og umboðs-
manns Volvobifreiðanna sænsku.
Var skiptingin á milli umboðs-
manna ákveðin af Viðskipta-
ráðinu i samráði við umboðin.
Umboðsmenn bandarískra
bifreiða og Volvoumboðsins eru
þessir:
Samband ísl. samvinnufélaga,
7500 mála verksmiðja.
Ef bræðslan gengur vel og
verksmiðjan virðist vera í lagi,
getur hún innan skamms farið
að taka á móti síld til vinnslu,
en áætlað er að verksmiðjan
geti unnið úr 7500 málum síld-
ar á sólarhring. Löndunarskil-
yrði hafa nokkuð verið bætt á
Skagaströnd með dýpkun við
bryggjuna, og mega nú teljast
þar allgóð löndunarskilyrði.
Húsnæðisskortur.
Mikill fjöldi aðkomufólks hef-
ir að undanförnu verið á
Skagaströnd að vinna við bygg-
ingu síldarverksmiðjunpar. En
nú er. fólkinu heldur að fækka
þar aftur, því heima fyrir er
nægjanlegur mannafli til þess
að reka verksmiðjuna. Þó eru
nokkrir fólksflutningar til kaup-
túnsins, en húsnæðisleysi er
mjög tilfinnanlegt og mjög ó-
víst, hvað hægt verður að
Ræsir, bifreiðaverzl. Rvík., Egill byggja á næstunni, vegna efn-
Vilhjálmsson, bifreiðaverzlun
Rvík., Sveinn Egilsson, bifreiða-
verzl. Rvík., Páll Stefánsson, bif
reiðaverzl., Rvík, Bílasalan c/o.
Bifreiðastöð Akureyrar, Helgi
Lárusson Packardumboðið, R.-
vík, Gísli Halldórsson h.f. Rvík,
Hekla h.f., heildv. Rvík, Jón
Loftsson, Rvík, Halldór Eiríks-
son, Volvoumboðið, Rvík, Ing-
ólfur Gíslason, kaupm., Greni-
mel 35, Rvík.
Viðskiptaráðið ákvað að. fela
áðurnefndum umboðsmönnum
úthlutun bifreiðanna eftir al-
mennum reglum er ráðið setti,
en aðalefni þeirra er sem hér
segir:
1. Að minnsta kosti helming-
ur bifreiðanna fari til atvinnu
bíistjóra og eigi minna en þriðj-
ungur af þeim til manna bú-
settra utan Reykjavíkur og
Hafnarfjarðar.
2. Úthlutun á bifreiðum til
atvinnubílstjóra í Rvík fari
að byggingu hennar sé fullkom-
lega lokið. Verður þó vinna við
bygginguna að mestu látin falla
niður í ýrumar, en hafin að nýju
í haust að sildarvertíð lokinni.
Má búast við, að ekki verði lokið
við verksmiðjubygginguna fyrr
en á næsta sumri. Það er nú
nokkuð á annað ár síðan hafizt
var handa um verksmiðjubygg-
inguna á Skagaströnd. Það var
í jún.í 1945, er vinna hófst. En
fyrirætlanir um verksmiðju-
byggingúna voru uppi mörgum
árum fyrr.
Lítil síldarsöltun í sumar.
Upphaflega var ætlazt til, að
nokkur síldarsöltun yrði á
Skagaströnd í sumar, en senni-
lega verður niðurstaðan sú, að
lítið verður saltað þar. Það
hefir gengið mjög treglega að fá
tunnur til að salta síldina í. Eru
ekki komnar til Skagastrandar
nema um 1000 tómar síldar-
tunnur.
isskorts og skorts á vinnuafli.
Undirbúningur er hafinn að
byggingu um 20 íbúða.
Ekki lokið fyrr en að ári.
Þó að verksmiðjan geti nú
tekið til starfa, vantar mikið á
fram í samráði við Bifreiða-
stjórafélagið Hreyfil.
3. Af þeim biíreiðum sem
eigi fara til atvinnubilstjóra
skal eigi minna en þriðjungur
fara til aðila utan Reykjavíkur
og Hafnarfjarðar. Þessum bif-
reiðum skal úthlutað, fyrst og
fremst til þeirra, sem hér eru
taldir og i þeirri röð er hér segir:
a. Til veiklaðra manna þeirra,
sem eiga erfitt með að komast
ferða sinna, en þurfa að vera á
ferli og þarfnast því sérstak-
lega þifreiðar af þelm ástæðum.
(Framhald d 4. siBu).
LÍTIL SILDVEIÐI
Lítil sem engin síldveiði var
fyrir Norðurlandi í gær. Veiði-
veður var þó gott. Fáein skip
urðu aðeins vör síldar á Húna-
flóa, Skagafirði og Axarfirði en
ekki var um neina teljandi veiði
að ræða hjá þeim. Mestur hluti
flotans er nú á austursvæðinu.
Nokkur skip komu með síld til
Siglufjarðar i gær. Er það síld,
sem veiddist í fyrradag og fyrri
nótt. Síldin gengur mjög
grunnt, og því erfitt oft á tíð-
um að fást við veiðarnar. Segja
sjómenn, að þeir hafi orðið varir
við síld á 10 faðma dýpi og jafn-
vel ennþá grynnra.
Þrátt fyrir það að síldveiði sé
iítil í taili, eru menn þó yfirleitt
bjartsýnir og trúa því fastlega,
að síldin komi um stórstraum-
inn í næstu viku.
Gerð garðsins,
Eins og áður er sagt, er verki
þessu uú að mestu lokiö. Aðeins
er eftir að aka nokkru af grjóti
i garðinn og fylla að á stuttum
kafla. Við framkvæmd verksins
voru notaðar stórvirkar vinnu-
vélar.
Fyrst voru lagöir vírvöndlar,
þar sem garðurinn átti aö koma,
og voru vírvöndlarnir um 2000
metrar að lengd. Slðan ýtt upp
að þeim möl og grjóti með jarð-
ýtum.
Miklu grjóti hefir svo verið
ekið í garðinn, og mun láta
nærri, að um 4000 bílfermi séu
nú komin í hann af grjóti. Um
40 manns hafa unnið við þessar
framkvæmdir með tveimur
jarðýtum,- einni vélskóflu og 4
7 bifreiðum.
Garður þessi er mikið mann
virki, eins og sjá má af því, að
hann er yfir 600 metrar að
lengd, um og yfir 2 metrar að
hæð og svo breiður, að bifreið-
um er ekið eftir honum full-
gerðum. Auk þess er flái mjög
mikill á honum. Vatnsmegin
verður garðurinn þakinn með
hnausum að ofan, til þess að
varna því, að hann blási upp, og
að vatnið ryöji burt með sér
mölinni, ef það hækkar mikið.
Landvarnarstarf.
Með varnargarði þessum hefir
verið unnið þarft og þýðingar-
mikið verk fyrir bændurna, sem
heima eiga í nágrenninu. Nú i
sumar geta bændur í Fljótshlíð
inni í fyrsta sinn beitt haglendi
það, sem liggur milli Þverár og
Markarfljóts. Garðurinn var
byggður talsvert ofar en upp-
haflega var ætlazt til, vegna
þess, að með því móti björguð
ust lönd bæjanna Barkarstaða
og Fljótsdals, sem eru innstu
bæir í Fljótshlíð. Þegar eru
eyðilögð stór engjasvæði frá
þessum bæjum.
Nú þegar þessi varnargarður
er kominn upp, rennur vatn
það, sem áður féll i Þverá, allt í
Markarfljót. ÁÖur er búið að
hlaða fyrir Affalið og Álana,
svo að með þessari fyrirhleðslu
Þverár, er öllum vötnum, er
falla fram milli Tindfjallajök-
uls og Eyjafjallajökuls, veitt í
Markarfljót og rennur það sið-
an um farveg þess til sjávar.
Með því að breyta þannig far-
veg þessara jökulvatna, gróa
upp þúsundir hektara af landi,
sem áður hafa verið berir aurar,
auk þess lands, sem bjargað er
úr yfirvofandi hættu.
Hér hefir verið unniö land-
varnarstarf, sem gerir íslenzkt
gróðurlendi einni spildu stærra
en það hefði ella orðið á kom-
andi tímum.
Seljalandsgarðurinn
styrktur.
En þessi framkvæmd veldur
því, að nokkur hætta er á, að
Markarfljót brjótist annars
staðar úr farvegi sínum, þar eð
vatnsmagnið eykst stórum.
Til þess að koma í veg fyrir,
að Markarfljót brjótist yfir
varnargarðinn hjá Seljalands-
múla og austur með Eyjafjöllum,
verður hann treystur.
Verður nú þegar í sumar
hafizt handa um að styrkja
þennan garð og lengja
hann verulega. Sá garður var
á sínum tíma byggður fyrir for-
göngu ungmennafélagsins
Drífanda undir Eyjafjöllum.
Einnig álíta sumir, að lönd
Hólmabæja í Landeyjum geti
verið í nokkurri hættu.
Ferðir Laxfoss og
um helgina
Laxfoss og Víðir fara marg-
ar aukaferðir upp á Akranes og
í Borgarnes nú um verzlunar-
mannahelgina. Sú nýbreytni
hefir verið tekin upp, hvað
snertir laugardagsferðirnar, að
kaupa verður farseðla á af-
greiðslu Laxfoss, fyrir laugar-
daginn. Þann dag verða engir
farseðlar seldir um borð í skip-
unum, eins og venja er. Á
laugardaginn verða tvær ferðir
til og frá Akranesi með Víði.
Frá Reykjavík kl. 14,00 og 18,00,
og frá Akranesi kl. 16,00 og
20,00. Á sunnudag verða einnig
tvær ferðir á Akranes kl. 7,30 og
12,00. Frá Akranesi kl. 10,00 og
20,00. Á mánudag verða tvær
ferðir til Akraness og þrjár frá
Akranesi. Til Akranes verður
farið héðan kl. 7,30 og 16,00.
Frá Akranesi kl. 10,00, 20,00 og
23,00. Til Borgarness verður
farið héðan kl. 17,00 á laugardag
og frá Borgarnesi kl. 21,00 sama
dag. Kl. 9 á sunnudag til Borg-
arness og þaðan kl. 20,00 um
kvöldið til Reykjavíkur, og á
mánudag kl. 12 til Borgarness
og kl. 21,00 frá Borgarnesi til
Reykjavíkur.
íslenzks íþróttamanns
getið í erl. blöðum
Norska blaðið Sportsmanden
birti feitletraða fyrirsögn yfir
þvera fyrstu siðu um afrek
Gunnars Huseby, þremur dögum
eftir að hann setti íslandsmet í
kúluvarpi á Svíamótinu 8. júli
s.l. Ennfremur var birt mynd af
Gunnari.
Þá getur blaðið einnig ann-
ara afreka frá þessu móti.
Ennfremur segir það frá
þingi Í.S.Í., og er þess getið, aö
íslendingar muni senda 10 menn
til keppni á Evrópumeistara-
mótið í Osló.