Tíminn - 02.08.1946, Page 4
Skrifstofa Framsóknarflokksins er í
Edduhúsinu við Lindargötu. Sími 6066
4
REYKJAVÍK
FRAMSÓKNARMENN!
Komið í
2. ÁGtiST 1946
skrifstofu Framsóknarflokksins
138. blað
Dánarmiuning.
(Framhald af 3. tiOu)
svo annríkt, að þau hefðu
ekki ætíð nægan tima til að
taka á móti gestum og gera
þeim gott. Heimili þeirra var
orðlagt fyrir gestrisni, enda lágu
þangað margra leiðir. Sökum
hæfileika Guðbrandar og mann-
kosta hlóðst á hann fjöldi trún-
aðarstarfa. Hann var meðal
annars oddviti sveitar sinnar
næstum öll sín búskaparár. —
Þeim störfum öllum gegndi hann
með trúmennsku og réttsýni. —
Guðbrandur Björnsson var
sérstaklega vel látinn af öllum,
sem honum voru kunnugir. Ekki
var það fyrir þá sök, að hann
talaði eins og hver vildi heyra
— í einkasamtölum eða á
mannfundum. Guðbrandur sagði
meiningu sina einatt og það oft
svo einarðlega og hispurslaust,
að ókunnugir álitu stundum
að valda kynni andstöðu og ó-
vinsældum. En þessu fór fjarri.
Þrátt fyrir þessa eigihleika
Guðbrandar og mikil afskipti
hans af málefnum sveitar sinn-
ar, sem og opinberum málum
yfirleitt, hygg ég, að óvlidar-
menn Guðbrandar hafi verið
fáir eða engir. Ég held, að þetta
hafi átt rætur sinar til þess að
rekja, að kunnugir vissu, að
hann virti sjálfur orð sín og
sannfæringu og að það, sem
hann sagði væri af einlægni
talað, en aldrei af óvild né
meinfýsi. — Og Guðbrandur
Björnsson starfaði sjálfur í
samræmi við þau loforð, sem
hann gaf og þær skoðanir, sem
hann setti fram. Hann gerði
stundum strangar kröfur til
annarra, en ætíð þó ströngustu
kröfurnar til sjálfs sín.
Guðbrandur Björnsson var
maður hár vexti og svaraði sér
vel. Hann var kvikur og snögg-
ur í hreyfingum. Svipurinn var
aðsópsmikill og einbeittur, enda
var hann karlmenni og allgeð-
ríkur. Ef honum sinnaðist, urðu
svipbrigðin skjót — augun
hvöss og svipurinn jafnvel
hörkulegur. En þetta hvarf aft-
ur skjótt fyrir brosi, sem var
sérstaklega góðmannlegt —
og honum svo eðlilegt, því rik-
ustu þættir í skapgerð Guð-
brandar voru drengskapurinn og
góðvildin. —
Guðbrandur Björnsson fékk
góða mannkosti í vöggugjöf —
gekk ungur gegn um harðan
skóla vinnunnar í föðurhúsum,
en kól þó aldrei. Það sannaðist
ekki á honum spakmælið í ljóði
Steingríms: að það, sem þrek-
ið græddi, missti viðkvæmnin.
Hin harða lífsbarátta stækkaði
manninn — herti karlmanns-
lundina — en jók þó skilning og
mildi um leið. .—
Veikindin bar Guðbrandur
Björnsson með fádæma hug-
prýði. Ég hitti hann að máli,
skömmu áður en hann dó. Mér
verður lengi í minni lífsþróttur
og eldlegur áhugi hins hel-
sjúka manns. Hann ræddi fátt
um veikindi sín, hann talaði um
sumarannirnar, um margháttuð
viðfangsefni og verk, sem enn
væru óunnin. Og þegar hann
talaði um framtíðina varð svip-
urinn þrunginn fjöri og áhuga,
hendur hans hagræddu yfir-
sænginni með skjótum og á-
kveðnum hreyfingum. — Er það
ekki þessi eldur, sem þjóð vor
hefir átt, stundum sem falda
glóð, er hefir orkað því óskilj-
anlega, að halda lífinu í þess-
ari þjóð gegn um dimmar aldir
ánauðar og örbirgðar? — Víst
er það, að lífsstarf og fordæmi
Ferðir LAXFOSS og VÍÐIS
um verzlunarmannahelgina
Þeir, sem ætla að ferðast frá Reykjavík með farþegaskipunum Laxfossi og Víði n. k.
laugardag (morgunferð Víðis ekki meðtalin), þurfa að kaupa farmiða á afgreiðslu þeirra,
^Tryggvagötu 10.
, Ferðir skipanna verða þannig:
Borf/arnesferðir: Ahrunesferðir:
Frá Rv. Frá Bn. Frá Rv. Frá Akr.
Laxfoss laugardag kl. 17 kl. 21 Víðir laugardag kl. 14 kl. 16
— sunnudag kl. 9 kl. 20 — laugardag kl. 18 kl. 20
— mánudag kl. 12 kl. 21 — sunnudag kl.7,30 kl. 10
— sunnudag kl. 12 kl. 20
— mánudag kl.7,30 kl. 10
— mánudag kl. 16 kl. 20
Laxf. mánudag kl. 23
Ferð til Ahruness hl. 21 á mánudafiinn fellur niður.
H.f. Skallagrímur j
i
FARMALL
DRÁTTARVÉLAR „A“
SLÁTTU VÉLAR,
PLÓGAR,
HERFL
„Farmall“-landbúnaðarvélar eiga eftir að efla íslenzkan
landbúnað.
Umboð:
Samband ísf. samvinnuf élaga
Enrico de Nicola.
(Framhald af 3. siðu)
um þessum stjórnardeildarmeð'-
limum úr vegi, varð sú skoðun
almenn innan vinstri flokk-
anna, að Nicola hefði ekki varið
vald og virðingu deildarinnar
með' nægum , myndugleik. Eng-
inn ásakaði hann samt um
samvinnu við fasistana, en
hann þótti of hlutlaus í aðstöðu
sinni gagnvart þeim.
Þá var það, sem hann hætti
að skipta sér af stjórnmálum og
hvarf til hóglífsins í húsinu
sínu við Napólíflóann.
Þegar Mussolini var steypt af
stóli, vantaði sízt, að Nicola
væri ekki hvattur til þess að
snúa sér að stjórnmálunum á
nýjan leik, en þegar aðrir jafn-
aldrar hans hröðuðu sér sem
mest þeir máttu til Róm, hristi
hann aðeins höfuðið og sagði:
— Neí, ég fer hvergi. Ég er bú-
lnn að fá nóg af stjórnmála-
stappinu.
Þó að hann vildi sem minnst
skipta sér af örlögum Ítalíu,
kom hann þó tvisvar til skjal-
anna, þegar vandamál voru á
ferðum. Þar sem hann var bæði
málflutningsmaður og stjórn-
málamaður, var hann fenginn
til þess að semja hið sögulega
skjal, þegar Viktor Emmanúel
sagði af sér konungsstörfunum
og gerði Umberto að ríkisstjóra.
Það var hann, sem átti síðar í
kosningabaráttunni einkasam-
tal við Viktor Emmanúel og
hvatti hann til þess að segja
hreinlega af sér. Þetta síðar-
nefnda gerði hann til þess að
reyna að tryggja endurreisn
konungsvaldsins. Hann varð þó
fyrir vonbrigðum í þessu máli
eins og mönnum er kunnugt, en
framkoma hans sýndi greini-
lega, að hann tilheyrði hægfara
helmingi konungssinna. f dag
situr því konungssinni á for-
setastóli Ítalíu — með fullu
samþykki kommúnista og lýð-
ræðissinna. Enginn vafi er á því,
að hann verður dyggur þjónn
hins unga lýðveldis, en sú stað-
reynd, að hann er í rauninni
konungssinni, hefir gert sitt til
að lægja ólguna hjá skoðana-
bræðrum hans.
Guðbrandar á Heydalsá er þjóð-
inni mikils verði. Það er gott að
minnast þeirra, sem þannig
rækja lífsstarf sitt. —
H. J.
Spor Péturs.
(Framhald af 2. síðu)
Bændur trúðu varlega. Þeir
könnuðust lítillega við báða
landbúnaðarráðherrana, þann,
sem þetta sagði, og hinn, sem
frá hafði faríð, en undirbúið
áður byggingu áburðarverk-
smiðjunnar. Þeir drógu sínar á-
lyktanir af þessari þekkingu.
Áburðarsala ríkisins flutti inn
nokkuð af þessu óreynda og ef
til vill hættulega efni. Bændur
keyptu það, báru það á tún sín
óhræddir, og það reyndist vel.
Þeir hugsuðu til landbúnaðar-
ráðherrans, gáfu áburðinum
nýtt nafn og kölluðu hann
Sprengi-Pétur.
Vinnið ötulleqa fyrir
Tímann.
Leyfður
innflutitingur.
(Framhald af 1. tiðu).
b. Lækna og ljósmæðra.
c. Opinberar stofnanir, sem
þurfa á bifreið að halda og enn-
fremur þeir aðilar sem sérstak-
lega þurfa á bifreið að halda
vegna atvinnu sinnar.
Um úthlutun allra bifreið-
anna, bæði til atvinnubílstjóra
og annarra gildir sú almenna
regla áð þeir sem eiga eða hafa
nýlega selt vel nothæfa bifreið
koma að öðru jöfnu á eftir þeim
sem ekki eiga eða hafa átt slíka
bíla.
Umboðsmenn þeir er að ofan
greinir hafa fallizt á að úthluta
bifreiðunum sameiginlega og
ber umsækjendum því að snúa
sér til þeirra.
Þegar umboðin hafa ákveðið
hvernig úthlutunin skuli vera,
ber þeim að senda Viðskipta-
ráði skrá um hverjum bílarnir
hafa verið úthlutaðir og skrá
(jattila Síc
SJÁLFROÐA-
LIÐAR
(Cry Havoc)
Áhrifamlkil amerisk mynd
um hetjudáðir kvenna í styrj-
öldinni.
Margaret Sullivan,
Joan Blondell,
Ann Sothern,
EUa Raines.
Sýnd kl. 5 og 7.
Börn innan 16 ára fá ekki
aðgang.
7'jathatkíc
EINUM
OF MARGT
(One Body Too Many).
Gamansöm og skuggaleg mynd.
Jack Haley,
Jean Parker,
Bela Lugosi.
Sýning kl. 5—7—9.
Bönnuð innan 12 ára.
, .......... ■■■----- .
Tilkynning
um atvinnuleysisskráningu
Atvinnuleysisskráning skv. ákvæðum laga nr. 57
frá 7. maí 1928, fer fram á ráðningastofu Reykja-
víkurbæjar dagana 1., 2. og 3. ágúst þetta ár og eiga
hlutaðeigendur, er óska að skrá sig skv. lögunum,
að gefa sig þar fram á afgreiðslutima, kl. 10—12 f.
h. og 1—5 e. h., hina tilteknu daga.
Reykjavik, 30. júli 1946.
Borgarstjúrinn í Reykjavík.
mnmnmimamiimmnmwmaaiiiiimiiiiiiimiiiiiiiiimiiiiiiiniHiiiimmiaa
Skrifstofa barna-
varnarnefndar
verður lokuð til 1. september næstk. Fyrirspurnum
svarað í síma 1524 kl. 10—11 f. h. nema laugardaga.
ltai’iinvcriiflnrncfnd Reykjavikur.
Tilkynning
Viðskiptaráðið hefir ákveðið að frá og með 31. júlí
skuli hámarksverð í smásölu á fullþurrkuðum 1. fl.
saltfiski vera kr. 4.00 pr. kg.
Reykjavík, 30. júlí 1946.
VERÐLAGSSTJÓRUVN.
TÍMINN
kemur á hvert sveitaheimili og
þúsundir kaupstaðaheimila.enda
gefinn út í mjög stóru upplagi.
Hann er því GOTT AUGLÝS-
INGABLAÐ. Þelr, sem ekkl
hafa reynt það, ættu að spyrja
hina, er reynt hafa.
T Í M I N N
Lindargötu 9A, sími 2323 og 2353
Vijja Síc
(við suúsuaðtu)
Óðalsklukkan
(Klookan pá Rönneberga)
Sænsk herragarðssaga, hugð-
næm og vel leikin.
Aðalhlutverk:
Lauritz Falk,
Hilda Borgström.
Snd kl. 9.
LÖGVÖRÐURINN LAGVISSI
(The Singing Sheriff).
Fjörug og spennandi „Cow-
boy“ mynd.
Sýnd kl. 5 og 7.
um hverjir hafa sótt um þá,
þannig a'ð því gefist kostur á
að staðreyná að farið hafi verið
eftir settum reglum.
Eins og að framan .greinir
hefir Viðskiptaráðið engin önn-
ur afskipti af úthlutun bifreiða
þessara og er því þýðingarlaust
að sækja um þær til ráðsins eða
tala við það um þessi mál.
Tímann
vantar tilfinnanlega börn til að bera
blaðið út til kaupenda vlðs vegar um
bæinn. Heitið er á stuðnlngsmenn
blaðsins, að bregðast vel vlð og reyna
að aðstoða eftir megni við að útvega
ungllnga til þessa starfs.