Tíminn - 20.08.1946, Side 3
149. blað
3
Attræður:
Guðlaugur Sigurðsson
fyrr bómli að Búðarhólslijálcigu í Austur-
Landeyium.
Miðvikudaginn 14. þ. m. varð
Guðlaugur Sigurðsson fyrr
bóndi að Búðarhólshjáleigu í
A.-Landeyjum áttatíu ára. Guð-
laugur er fæddur að Litlu-Hild-
isey í A.-Landeyjum 14. ágúst
1866 og dvaldist þar til 5 ára
aldurs, en þá fluttu foreldrar
hans með hann að Efra-Hvoli í
Hvolhreppi, en aftur fluttist
hann að Litlu-Hildisey 12 ára og
hefir síðan dvalizt í A.-Landeyj-
um. Árið 1894 reisti hann bú
ásamt heitkonu sinni, Ingveldi
Guðmundsdóttur, að Oddakoti
og bjuggu þau þar nokkur ár,
en alls bjuggu þau 38 ár á ýms-
um jörðum, lengst í Búðarhóls-
hjáleigu 22 ár. Þau hjón byrj-
uðu, sem þá var algengt með
lítil efni, en dugnaði þeirra var
viðbrugðið, enda búnaðist þeim
vel, og öll síðari árin, var þeirra
heimili með þeim beztu hér í
sveit. Þau eignuðust 5 börn og
eru 2 á lífi Ágúst bóndi í Búð-
arhNlshjál^igu, kvæntur Guð-
mundu Ólafsdóttur og Sigur-
björg, gift Guðna Guðnasyni,
búsett á Stokkseyri. Þá ólu þau
og upp 2 drengi. Árið 1932 létu
þau hjón af búskap og fengu í
hendur Ágústi syni sínum og
hafa þau dvalizt hjá hon-
um síðan. Þá Guðlaugur lét
af búskap hafði hann keypt
ábýlisjörð sína og húsað að nýju
öll hús jarðarinnar ásamt stór-
felldum jarðabótum. Guðlaugur
hefir jafnan verið lífsglaður,
þrekmikill drengskaparmaður,
sem fyrst og fremst hefir gert.
kröfur til sjálfs sín, greiðvikinn
og góður heim að sækja. Enn er
hann vel ern, þótt árin séu mörg
og langur vinnudagur, og geng-
ur til verka, sem ungur væri.
Vinir hans senda honum hlýj-
ar kveðjur á þessum tímamótum
ævi hans.
Vinur.
Erlent yfirlit
(Framhald af 2. síOu)
innanlandsmálum, eins og við
mátti búast, hefir stefna henn-
ar í utanríkismálum hlotið nær
einróma lof. Bevin er tvímæla-
laust langvinsælasti ráðherrann
í stjórninni. Hann hefir haldið
á málum Breta með drenglund,
einurð og festu, sem hlotið
hefur alþjóðaviðurkenningu. —
Fyrir stjórn Attlees væri það
mikið áfall, ef Bevin. yrði að
draga sig í hlé, vegna heilsu-
brests. Ef til þess kæmi, eru þeir
Dalton fjármálaráðherra. og
Alexander flotamálaráðherra
taldir líklegastir til að verða
eftirmenn hans.
EINAR KRISTJANSSON
óperusöugvari
Ljóöa og aríukvöld
miðvikudaginn 21. ágúst kl. 7.15 í GAMLA BÍÓ.
Við hljóðfærið:
Dr. v. IJrbaiitschitscb.
Aðgöngumiðar seldir í ritfangaverzlun ísafoldar, Banka-
stræti, sími- 3048, og hjá Eymundsson, sími 3135.
Pantanir sækist fyrir hádegi á miðvikudag.
nmnwnn»»mnmnt»nm»»wnun»nimnninnnHi»nnm»»»nnwmgmnnni
TMkynning
• Afgreiðum aftur vörusendingar til
Þýzkalands, Ungverjalands og Austurríkis,
LÚLLÁBÚÐ
Hverfisgötu 61. — Simi 2064.
FYLGIST MEÐ
Þlð, sem í strjálbýllnu búlB,
hvort heldur er vlB sjó eBa 1
sveit: Minnist þess, að Tíminn
er ykkar málgagn og málsvari.
Allir, sem fylgjast vllja meB
almennum málum, verSað lesa
TÍMANN.
Tímann
vantar tilfinnanlega börn til að bera
blaðlð út til kaupenda viðs vegar um
bæinn. Heltið er á stuðningsmenn
blaðsins, að bregðast vel við og reyna
að aðstoða eftir megni við að útvega
SHIP/IUTCERD
„Fagranes”
til Bolungarvíkur og ísafjarðar
Vörumóttaka á fimmtudag'.
TÍAIIVA. þrigjudaginu 30. águst 1946
HANS MARTIN:
SKIN OG SKÚRIR
Bókhald — umboðslaun, vinnulaun, alls konar útgjöld og kostn-
aðarliðir. Reikningar, vöruskrár, innheimtubréf. Eftirlit með vinnu
^eirra, sem sauma heima — finna að, laga það, sem illa er
gert ....
Hettý er orðin dauðþreytt. Klukkan er orðin hálfníu, þegar
Hettý leggur af stað heimleiðis. Það hefir verið erfitt þennan dag
— kvenfólk er örðugt viðfangs. Það er einkennilegt starfssvið,
sem hún hefir valið sér. En fyrirtækið skilar arði, viðskiptavin-
unum fjölgar sífellt, tekjurnar aukast. Eftir eitt ár verður hagn-
aðurinn áreiðanlega fimm hundruð gyllini á mánuði. í
Eftir eitt ár? Skyldi hún ekki gefast upp áður? Hana sárverkjar
í fæturnar og bakið .... •
Hvernig skyldi Sjoerd annars kunna við sig, þegar hann kemur
heim? Og skyldi faðir hennar nú taka hann í þjónustu sína?
Hún óskar þess heitt og innilega ....
*
Roosendaal .... tollskoðun. Tollvörðurinn lítur yfir farangur
hans, spyr ýmsra spurninga — lætur það gott heita.
Lestin fyllist af fólki, sem er að koma heim frá Indíum —
teknu fólki og undarlega búnu. Börnin eru hávær og óþekk —
tvær indónesískar barnfóstrur eiga í miklu stríði við hópa þessara
óþekku barna ....
Sjoerd finnst hann vera útlendingur — ekki eiga hér heima.
Fötin, sem hann er í, eru of þröng — þau eru líka sjö ára gömul.
Hann hefir ekki þurft á slíkum fötum að halda fyrr en nú.
Honum finnst hann vera í spennitreyju — lokaður inni og ekki
geta sprengt af sér haminn ....
Moerdijk — Dordrecht .... Lítil og smekkleg hús, skrautlegir
garðar, rigning .... Nú nálgast lestin Haag, þar sem móðir hans
og Marta bíða komu hans .... Nú er Marta orðin tuttugu og fimm
ára — móðir hans hefir oft getið þess í bréfum sínum, hve hún
sé fáskiptin síðan hún lenti í ástarævintýrinu með þessum Hugo.
Hún er líka að miklu leyti hætt að kenna, en í stað þess fer hún
langar gönguferðir til Meyendell og út með ströndinni ....
Rotterdam. Þarna sér hann þá fyrstu, sem biða eftir langferða-
fólkinu. Margt af samferðafólki hans fer hér úr lestinni.
„Sæll, Sjoerd.“ Það er Wijdeveld, sem ávarpar hann — ellilegur,
gráhærður, magur.
„Komdu sæll, Wijdeveld. En hvað mér þykir vænt um að sjá
þig. Það er skemmtileg tilviljun, að fundum okkar skuli bera hér
saman."
„Það er ekki nein tilviljun. Ég kom hingað á móti þér, og ég
vil gjarna fá að verða þér samferða til Haag .... Það er naumast,
að það er kominn á þig höfðingjabragur. En helzt til fölur. Þú
ættir að jafna þig, nú þegar þú kemur i kaldara loftslag . .
Ertu í þessum klefa? .... Já — þú skrifaðir mér, Sjoerd . ...“
„Já — ég skrifaði þér . ...“
„Eins og þú veizt, þá er ekki síður hart í ári hér en austur í
Indíum — en ég held samt, að ég hafi fundið stöðu handa þér.“
„Er það mögulegt, Wijdeveld?"
„Ég hefi rætt um þetta við Janna. Þú getur fengið framtíðar
stöðu í útgerðarfyrirtæki okkar, ef þú sættir þig við lág laun fyrst
í stað.“
„Það er betra heldur en ég þorði að vona.“
„Þú skalt samt ekki gera þér of bjartar vonir. Sem stendur
eru öll okkar skip aðgerðalaus — svo að við erum ekki mikils
megnugir. En koma dagar — ég trúi á framtíðina. Ég kann ekki
að spá í kaffikorg og legg það ekki heldur fyrir mig — en senn
hlýtur að batna í ári. En ég ætla ekki að tala meira um það núna.
Nú vilt þú sjálfsagt flýta þér heim með móður þinni og systur.“
„Ég kem þá í kvöld og tala betur við þig, ef þú mátt vera að
því.“
„Þú ætlar ekki að láta það dragast .... Jæja — gott og vel —
komdu í kvöld.“
*
Sjoerd kemur auga á þær í mannþrönginni á brautarpöllun
um ....
Hann lætur berast með straumnum að skýlinu, þar sem litið
er yfir farseðlana. Loks kemst hann út úr þrönginni, og allt
einu stendur hann andspænis mæðgunum. Hann faðmar
hina gömlu, grönnu konu að sér — augu hans fyllast tárum,
kökkur situr í hálsinum á honum. Ekkert þeirra mælir orð frá
vörum. Svo þrýstir hann Mörtu að sér ....
Loks er náð í burðarmann. Hann rogast með koffort og töskur
upp þrepin. Móðirin leiðir son sinn. Síðan er útveguð leigu-
bifreið . ,, ,
„Við þurfum ekki að aka i bifreiðinni nema á torgið — þaðan
getum við farið með strætisvagninum,“ segir gamla konan.
„Nei — mamma, Við ökum i bifreiðinni alla leið heim. Ég kem
ekki nema einu sinni heim frá Austur-Indíum,“
Þetta eru fyrstu orðin, sem falla þeirra á milli. Hér er auð-
heyrilega spart á haldið, —< Marta mælir ekki orð frá vörum
hún er opineyg, föl og annars hugar. En um varir hennar leikur
dauft bros.
Það rignir. Göturnar eru votar, en það er heitt i veðri, svo að
eiminn leggur upp af þeim. Hann starir fullur eftirvæntingar út
um gluggann. Hér eru komnar nýjar búðir — almenningsgarður-
inn hefir verið lagfærður dálítið — Hjartarskógurinn er alveg
eins og hann var. Allt ber í rauninni nákvæmlega sama svipinn
og fyrir sjö árum — sjö ár breyta ekki miklu. Hann gæti haldið
að hann hefði verið hér á ferð í gær ....
Hér hefir gatan verið bikuð og breikkuð — nú beygir bifreiðin
inn á þvergötu — enn er ekiö meðfram skrautlegum garði ....
hér er allt óbreytt. -— Og þarna sér hann hið stóra hús Wijde-
velds — autt. Flatirnar eru þaktar óræktargrasi, runnarnir hafa
ekki verið klipptir langa-lengi. Hann tekur sárt að sjá þessa
vanhirðu .... En þarna birtist húsið þeirra — hér — hér er
heimilið hans ....
SABROE
— vandaðar vélar
í vönduð frystihús —
Samband ísl. samvinnuf élaga
Vélsmiðjan BJARG
Höfðatúni 8,
biður heiðraða viðskiptivini sína að veita því athygli,
að símanúmer hennar verður framvegis
sjötíu og einn átta fjörir
7 18 4.
Vinsamlegast klippið auglýsinguna úr og festið hana í
símabókina yður til minnis.
tm»»mnm»»nnmmninn:nnnnmnnmnnnnnmitt:mnnnnmmnn:mmnn
Skurðasprengiefni
Eigum væntanlegt til landsins skurðasprengiefni
ásamt hvellhettum og þræði.
Þeir, sem hafa í hyggju að tryggja sér birgðir
af þessu sprengiefni til notkunar í haust, eru á-
minntir að gera pantanir sínar símleiðis sem fyrst.
Minni pantanir en 10 pund koma ekki til greina.
IIEILDVERZLlim IIEKLA II/F
Sími 1275. — Reykjavík.
TIVOLI
Fyrst um sinn vprður Tivoli aðeins opið á kvöldin frá
kl. hálf-átta til hálf-tólf, nema laugardaga og sunnudaga,
þá er opnað kl. tvö síðdegis.
Orðsendíng
411 iuiiheimtuuiaiiiia Tímans.
Innheimtumenn Tímans eru vlnsamlega beðnir að
senda áskriftargjöld blaðsins hið allra fyrsta.
Gjalddagi var 1. júlí.
Verð blaðsins utan Reykjavlkur og Hafnarfjarðar, er .
kr. 45,00.
Iunlieimta Tfimans.
TlMANN
vantar unglinga
til að bera út blaðið í eftirtalin hverfi:
Liudargötu
Vesturgötu
Þlus'holtsstrwti
Afgreiðsla
Sími 2323.
Lindargötu 9 A.