Tíminn - 23.08.1946, Blaðsíða 4
Skrifstofa Frœnsóknarflokksins er í
Edduh.úsinu við Lindargötu. Slmi 6066
REYKJAVÍK
FRA M SÓKNA RMENN!
Komið í skrifstofu
23. ÁGÚST 1946
Framsóknarflokksins
152. blall
Mjallhvítur og mjúkur þvottur
er yndf húsmóðurinnar.
Lykillinn að leyndardóminnm er
/
GEYSIS ÞVOTTADUFT
Hagsýnar húsmætinr hiðja uiu GEYSIB.
Ensku hændurnir
(Framhald af 1. síðu).
stökum vögnum. Auk þess sem
hann forðar uppblæstri, eykur
hann uppskeruna.
Fólki kennt að nota vélarnar.
— Eru vélarnar, sem enskir
bændur nota, yfirleitt smíðaðar
í Englandi?
— Margt þeirra er frá Amer-
íku. En nú ætla Englendingar
að taka framleiðslu slíkra tækja
að mestu leyti í .sínar hendur.
Verða þau mál tekin miklu fast-
ari tökum en verið hefir. Meðal
annars ætla þeir að fækka teg-
undum véla og samræma þær,
svo að nota megi sams konar
varahluti í margar tegundir. í
þessu efni hefir ríkt hin mesta
ringulreið, eins og sjá má af
því, að notaðar hafa verið 800
tegundir plóga í landinu.
— Er fólkið þá undir það bú-
ið að nota þessar nýju vélar?
— Það á að stofna sérstaka
skóla, þar sem fólki verður kennt
að hirða, nota og gera við vinnu-
vélar. Auk þess á að stofna' æðri
skóla, þar sem megináherzlan
verði lögð á landbúnaðarvéla-
verkfræði, — þetta er nauðsyn-
legt til þess, að hinar dýru vélar
komi að fullum notum.
Allsherjarrafveitur.
— Setja menn ekki traust sitt
mjög á aukna rafmagnsnotkun?
— Eftir kosningarnar í fyrra
mynduðu einkafélög, sem hafa
með höndum rafmagnsfram-
leiðslu, allsherjarfélagsskap, og
er nú verið að gera áætlanir um
að veita rafmagni um allar
byggðir Englands og Wales.
Þykir líklegt, að rikisstjórnin
muni þjóðnýta þetta risafyrir-
tæki.
Svipaður félagsskapur er á
döfinni í Skotlandi. Gert er ráð
fyrir, að rafmagnið fáist að
nokkru leyti frá vatnsaflsstöðv-
um í Skotlandi, en að nokkru
leyti frá kolastöðvum.
— Þá munu vélar og tæki,
sem ganga fyrir rafmagni, vita-
skuld breiðast mjög út í sveit-
um?
— Það er gefið. Annars eru
slík tæki þegar orðin mjög út-
breidd. Ég get í þvi sambandi
nefnt mjaltavélar. í Englandi
er talið borga sig að nota mjalta-
vélar, ef 10—12 kýr eru í fjósi.
Hér á landi ætti það að borga
sig, þótt um enn færri kýr sé að
ræða, þar sem vinnukraftur er
hér mun dýrari.
Heyþurrkunartilraunir.
—Geturðu ekki sagt mér frá
einhverjum nýjungum á sviði
búskaparins?
— Það eru vitanlega uppi
mörg nýmæli meðal ensku
bændastéttarinnar. En mörg
þeirra hafa ekki gildi fyrir okk-
ur. Eitt af því, sem vert er fyrir
okkur að fylgjast með, eru hey-
þurrkunartilraunirnar. Um-
fangsmiklar tilraunir standa nú
yfir. Eru einkum um tvær að-
ferðir að ræða — súgþurrkun-
ina og hina svokölluðu sænsku
aðferð. Er þá heitu lofti blásið
gegnum heyið. Ég hitti að máli
mann þann, sem fyrir þessum
tilraunum stendur. Lét hann
mjög vel af árangrinum, en
kvað þó sænsku aðferðina þýð-
ingarmeiri. Allsherjarskýrslur
um tilraunirnar eru ekki enn
fullgerðar.
Vongott fólk.
— Hvaða augum lítur ensk
alþýða til framtíðarinnar?
— Ég þori að staðhæfa, að
hún er bjartsýn, þrátt fyrir allt,
sem dunið hefir yfir landið og
þjóðina. Enn sem komið er eiga
Englendingar þó við kröppust
kjör að búa allra þeirra þjóða,
sem ég gisti á meðal í þessari
utanför minni. Hvergi er jafn
knappt um mat og fatnað, og
ástandið hefir versnað síðan
Þjóðverjar gáfust.upp, því að
hernámssvæði Breta er fyrst og
fremst iðnaðarhéruð með lítilli
matvælaframleiðslu, svo að þeir
hafa orðið að miðla fólkinu þar,
auk margra annarra hungur-
þjóða, af sínum skorna skammti.
Það, sem bjargar er það, hve
skipting matvæla er vel fram-
kvæmd og undanbragðalaust í
Bretlandi.
Föðurlandið
(Framhald af 3. síOu)
staddir. Ég minnist tveggja, sem
heilsuðu mér á eftir fyrirlestr-
inum og sögðu: Mikið helvíti
ýkirðu maður! Mér fannst ein-
hvern veginn að þeir hefðu rétt
fyrir sér, og í næsta sinn reyndi
ég svo að draga úr aðdáun minni
á íslandi. Það er stundum dá-
lítið erfitt að sjá hlutina eins
og. þeir eru, þegar maður sér
föðurlandið í fjarðlæð gegnum
stækkunargler heillandi drauma
og vona.
Og nú er ég kominn að spurn-
ingunni, sem ég setti fram áð-
an en beið með að svara —-
spurningunni um það, hvort
ættjörðin geti svo staðist prófið,
þegar maður sér hana á ný eft-
ir að hún um margra ára skeið
hefir ekki aðeins verið manni
föðurland, heldur og óskaland
sálarinnar, með alla þá draum-
ljúfu fegurð og allt það heill-
andi seiðmagn, sem því fylgir?
Ég skal viðurkenna, að ég var
dálítið hræddur — hræddur við
að hafa ýkt bæði fyrir. sjálfum
mér og öðrum, og ég beið þess
með óþreyju að sjá Vatnajökul
rísa úr hafi. Það var móða yfir
jöklinum, svo ég sá hann ekki
greinilega, en þegar ég fyrir
framan Reykjanesoddann sá frá
skipsfjöl miðnætursólina yfir
Snæfellsnesfjallgarðinum, , þaut
ég niður í skipið og sótti tvo
Dani, sem höfðu sagt mér, að
það væri mér að kenna, að þeir
væru á þessu ferðalagi. (Þeir
höfðu einhverntíma heyrt mig
tala Óðinsvé á Fjóni). Og þeg-
ar þeir komu upp á þilfarið,
stóðu þeir lengi þögulir, og síð-
an heyrði ég þá aftur og aftur
endurtaka: Hvor mægtigt!. Hvor
ubeskriveligt! (Hve voldugt! Hve
ósegjanlegt!) Þá skildi ég, að ég
hafði ekkert ýkt, þvi að náttúr-
an, bæði hér og annars staðar,
er sá undraheimur, sem enginn
getur málað í öllum sínum full-
komleik. Skáld og listamenn
menn hafa þreytt sig á því um
aldir, en sjálf hin fegurstu mál-
verk og ljóð eru eins og gegn-
sæir veggir, þar sem ennþá feg-
urra land liggur bakvið.
Nei, ísland, ættjörðin mín,
stóðst prófið, bæði sem föður-
land og óskalandið fjarlæga. Ég
varð þess fullviss, þessa heiðríku
nótt yfir sofandi skipshöfn og
auðum þiljum! Ég hafði séð
þetta áður fyrir mörgum árum
við hlið félaga minna á hafinu,
en mér fannst á þessari stundu,
að ég væri eins og viðkvæmur
unglingur, sem tyllir sér varlega
Frá skákfjinginu
(Framhald af 1. slðu).
Hh7—g7f, Kg8—h8; 54. Hg7—
d7, Hc5—c2;
Nú fellur eitt hvíta peðið enn.
55. Hd7Xd5, Hc2Xa2; 56.
Hd5—b5, Kh8—h7; 57. Hb5X
b6, Kh7Xh6; 58. Hb6Xf6t, Kh6
—g5; 59. Hf6—a6, Kg5Xf5; 60.
Kf3—e3, Ha2—a3. Jafntefli.
Lærdómsrík skák á margan
hátt.
E. Rojahn tefldi á fyrsta borði
fyrir Norðmenn í Buenos Aires
1939. í keppninni um forseta-
bikarinn, sem íslendingar unnu,
var hann efstur af fyrsta borðs
mönnum, vann 80% sinna
skáka. Hvers vegna hann tefldi
ekki í landsliðsflokknum, er ekki
vitað.
Skýringarnar eru eftir
Konráð Árnason.
Reykjavikurmótib
(Framhald af 1. síðu).
Víkings, og sigraði KR með fjór-
um gegn þremur.
Næsta leik vann Valur í við-
ureign við Fram með fimm gegn
tveimur.
í þriðja leiknum vann Valur
Víking með þremur gegn tveim-
ur.
í fjórða leiknum sigraði KR
Fram með tveimur gegn einu.
í lokaleiknum gerðu Valur og
KR jafntefli — hvorir um sig
skoruðu eitt mark.
á sólheita steina af ótta við að
troða sjaldgæfan gróður niður.
Ég þorði tæplega að draga and-
ann meðan hinir ókunnu ferða-
menn virtu fyrir sér heillandi
fegurð föðurlands míns.
Framh.
(jatnta Síc
léttéðuga
MARIETTA
(Naughty Marietta)
Söngmyndin skemmtilega,
gerð eftir óperettu Victor Her-
berts.
Jeanette MacDonald,
Nelson Eddy.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
ftýja Síó
(við SUúlag&tu)
SIJLLIVANS-
FJÖLSKYLDAIV.
(Xhe Sullivans)
Sýnd kl. 9.
IIús kvíðans
(„The House of Fear“)
Óvenju spennandi og dularfull
Sherlock Holmes leynilögreglu-
mynd.
Aðalhlutverkin leika:
Basil Rathbone
Nigel Bruce
Bönnuð börnum yngri en
14 ára.
Sýnd kl. 5 og 7.
---------
TÍMINN
kemur á hvert sveitaheimiii og
þúsundir kaupstaðaheimila.enda
gefinn út í mjög stóru upplagi.
Hann er því GOTT AUGLÝ8-
INGABLAÐ. Þeir, sem ekki
hafa reynt það, ættu að spyrja
hina, er reynt hafa.
T í M I N N
Lindargötu 9A, sími 2323 og 2353
7jarnarbíc
Maffiiiriim
í Ilálfiminastræti
(The Man In Half Moon Street)
Dularfull og spennandi mynd.
Niis Asther
Helen Walker
Sýning kl. 5, 7 og 9.
■■ ■ ■■ ii ■■ i — í — ... i — i 1 i ■■ i ■■ ii — i ■(
(Tilkynning
til kaupmanna og kaupfélaga
Við getum nú afgreitt meö stuttum fyrirvara flestar
tegundirt prjónafatnaðar.
Sýnishorn liggja frammi. Gerið haustpantanir yðar sem
fyrst.
ULLARBÐJAN
Sínii 6751. Hamarshúsimi.
Geymið auglýsinguna yður til minnis.
Skrifstofustúlkur
TVokkrar stúlkur vantar til skrifstofu-
starfa hijá Tr.yggiugarstofiiiiu ríkisins
o}; Sjiikrasainlagi Reykjavlkur frá næstu
mánaðamótum um óákveðiun tíma.
Eigiuhandar umsóknir ásamt upplýs-
ingum um aldur, nám og starfsferil send-
ist fyrir 27. þ. m. til Sverris Þorbjörns-
sonar, Tryggingastofnuninni.
Reykjavík, 20. ágúst 1946.
Tryggingarstofnun ríkisins
Héraðsmót
(Framhald af 3. síðu)
Jóhannes Guðm. 13.04 m., U.
M. F. Samhyggð.
Oddur Sveinbjörnsson, 12.85
m., U. M. F. Hvöt.
Stangarstökk:
Guðni Halldórsson, 3.00 m., U.
M. F. Selfoss.
Matthías Guðm.son, 2,75 m.,
U. M. F. Selfoss.
Friðrik Friðriksson, 2.75 m.,
U. M. F. Selfoss.
FYLGIST MEÐ
Þið, sem I strjálbýllnu búið,
hvort heldur er við sjó eða 1
sveit: Minnist þess, að Tíminn
er ykkar málgagn og málsvaii.
Allir, sem fylgjast vilja með
almennum málum, verðað lesa
TÍMANN.
Vinniif ötullegu fyrir
Tímunn.