Tíminn - 27.08.1946, Blaðsíða 3

Tíminn - 27.08.1946, Blaðsíða 3
bm VIV, þrigjwdaglim 27. ágúst 1927 3 154. blað T ÁTTRÆÐ: ljósmóðir. Og hún var þá glöðust, ef hún gat veitt bót og hjálpað, er þjakaði raunin. Og hún var svo óvenju handviss og fljót, — og hugsáði aldrei um launin. Hinn 9. ágúst s. 1. varð frú Pálína Guðný Björnsdóttir, ljósmóðir, á Syðri-Brekkum í Skagafirði, áttræð. Það er að vísu ekkert óvenju- legt, að fólk verði áttrætt, en hitt er óvenjulegt, að sjá átt- rætt andlit slétt og hrukkulaust, að sjá glettnisglampa æskunn- ar í áttræðu auga, að mæta ungri sál í áttræðum líkama. En þannig kom Pálína Björns- dóttir mér fyrir sjónir nú alveg nýlega. Pálína er fædd og uppalin á Hofstöðum í Skagafirði, dóttir hjónanna Björns Péturssonar, er lengi bjó þar stórbúi, og fyrri konu hans, Margrétar Pálsdótt- ur frá Syðri-Brekkum í sömu sveit. Er hún komin af kjarna- ættum skagfirzkra og svarf- dælskra bænda, enda hefir hún sýnt það glöggt í verki. Pálína nam ljósmóðurfræði innan við tvítugt. Stuttu síðar, árið 1886, giftist hún Jónasi Jónssyni trésmið, sem nú er látinn fyrir fáum árum. Þau settu bú saman á Enni í Við- víkursveit, heldur harðbýlisjörð, en fluttu að Syðri-Brekkum í Blönduhlíð 1895 og bjuggu þar æ síðan. Þ.au eignuðust sex mannvænleg börn, sem öll eru á lífi. Þau eru: Pétur, hreppstjóri á Sauðárkróki, Margrét, húsfrú á Syðri-Brekkum, Björn, bóndi sama stað, Sigurður, bóndi sama stað, Hermann, fyrrv. forsætis- ráðherra og Sigríður, bústýra hjá Birni bróður sínum. Heimili þessara hjóna var því mannmargt og þar sem efn- in voru lítil framan af, urðu hjónin að leggja á sig mikla vinnu. Auk heimilisstarfanna unnu þau mikið utan heimilis. Jónas vann að húsabyggingum, ■einkum eftir að börnin fóru að stálpast. Hann var talinn með beztu húsasmiðum og því mjög eftirsóttur smiður. Pálína sem stendur getum við flutt lif- andi kvikfénað til meginlands- ins með miklum hagnaði, því að kvikfjárstofninn hefir rýrn- að þar mjög af völdum stríðsins. Þar sem verðið. sem við fáum fyrir kvikfénaðinn, er svo hátt, getum við keypt vörur á megin- landinu fyrir tiltölulega lágt verð frá okkar sjónarmiði. Þess vegna höfum við hvarvetna á írlandi gnægð af spænskum og portúgölskum appelsínum og sítrónum á boðstólum fyrir að- eins 10 aura stykkið. Það er svo fullt af þessum ávöxtum í búðunum, að fólkið kærir sig ekki um að kaupa þá, eftir að írsku ávextirnir eru orðnir full- þroskaðir, og skemmast þeir þá unnvörpum. Jafnframt þessu seljum við niðursoðnar sardínur frá Portúgal á 80 aura til 1 kr. dósina. Ég held, að ísland ætti að geta fengið ódýrar appelsín- ur og sítrónur frá Spáni og Portúgal í skiptum fyrir salt- fisk. ★ Ég‘ hefi heyrt, að íslendingar fái á hverju vori kartöflur frá Ítalíu í skiptum fyrir fisk. ír- land er miklu nær þeim en Ítalía og gæti auöveldlega lát- ið kartöflur af mörkum, því af þeim ræktum við afar mikið og langt fram yfir þarfir lands- manna. Við flytjum geysimikið gegndi ljósmóðurstörfum í stóru umdæmi, um rúmlega hálfrar aldar skeið og leysti það prýði- lega af hendi. En nærri má geta, hversu erfitt það hefir verið að fara frá barnmörgu heimili, hvernig sem á stóð, og hafa litla húshjálp heima. En það stóð ekki á Pálínu. Það var eins og hún væri alltaf við- búin, hvenær sem kallað var, og eins þótt kallað væri á hana út fyrir umdæmið, en það var alloft gert. Þessi saga var sögð til marks um afburða röskleik hennar og dugnað: Maður nokkur, er sótti Pálínu að næturlagi til sængur- konu, hafði guðað á gluggann og borið þar upp erindi sitt, en jafnframt getið þess, að mikið lægi við, að skjótt yrði við brugðið. Hafi Pálína þá sagt honum að taka reiðtýgi sín, þar sem hún vísaði til og leggja þau á hest, er værí í hesthúsi við bæinp. Maðurinn gerði það sem fyrir var lagt og kom að vörmu spori með hestinn heim að bæj- ardyrum, en það var jafn- snemma ,að Pálína kom til dyra og var þá albúin til ferðar. En Pálína hjálpaði ekki ein- göngu sængurkonum. í fjöl- mörgum sjúkdómstilfellum hjálpaði hún bæði mönnum og málleysingjum og heppnaðist mjög vel. Hún var ávallt reiðu- búin að gera öðrum greiða, hvernig sem á. stóð og hvenær, sem til hennar var leitað. Og margt gott en erfitt handtak hefir hún tekið um dagana, ná- grönnum 'sínum til hjálpar og án þess að sjá þar til gjalda. Á meðal margra kosta Pálínu var einkum áberandi, hve hún var kjarkmikil, glaðlynd og greiðvikin. Kjarkur hennar brást aldrei, á hverju sem gekk. Kom það sér vel, því að oft reyndi mikið á hann í erfiðum vetrarferðum og svo við vanda- söm störf hennar. Glaðlyndi hennar var viðbrugðið. Hvar sem Pálína fór, fylgdi henni kátína og gamanyrði, og urðu því allir glaðir í návist hennar. (Framhald á 4. síðu). af kartöflum til Englands ár hvert. Veturnir á írlandi eru ekki frostharðir. Kartöflur, sem settar eru niður í nóvember, eru orðnar hæfar til matar í marz, en þá koma nýjar kartöflur aft- ur á markaðinn i írlandi. Á sumrin er slík gnægð alls kyns ávaxta á írlandi, að mikill hluti þeirra eyðileggst, áður en tími vinnst til að borða þá, koma þeim í geymslu eða flytja þá út. Þetta stafar af því, að á- vaxtatínslan hefir ekki verið skipulögð til fullnustu. Bróm- ber vaxa þar villt um allar jarð- ir, og eyðileggst mikið af þeim eða fer til ónýtis ár hvert, enda þótt börn séu látin tína þau í sultu. Ennfremur vaxa þar hvarvetna villt kirsuberjatré, og á afske^tum stöðum eyðileggj- ast berin á þeim, vegna þess að enginn er til þess að tína þau. Eplatínslan hefir nú verið skipulögð fullkomlega, og eru árlega sendar margar smálestir af eplum til Englands. Væri einnig hægt að senda þau til íslands í köldum geymslurúm- um. írskir bændur rækta einnig plóm.ur, perur, jarðarber hind- ber, tómata, agúrkur og kirsu- ber, allt undir beru lofti, svo að þessir ávextir eru mjög ó- dýrir. Tómatarnir kosta 1,50 pundið og kirsuberin 1 kr. pund- (Framháld á 4. slöu). HANS MARTIN: SKIN OG SKÚRIR En rétt í þessum svifum hringir síminn. Hettý og Loet hlaupa báðar til .... „Hettý — skipin byrja að sigla. Pabbi féllst á allt, sem við lögðum til.“ Það er Janni, sem talar. „Ó, hve það var gott. Loet er hérna hjá mér .... Loet — skipin eiga að byrja aftur.“ * „Nei — ég fer líka, Janni. Þú hlýtur að skilja það, að ég get ekki setið hér aðgerðalaus í skrifstofunni á þessari hátíðlegu stund. Ég stóð sjálfur á stjórnpallinum, þegar Maríönnu var lagt — og ég vil einnig standa þar, þegar skipið verður aftur tekið í notkun.“ „Jæja — það verður þá klukkan átta í fyrramálið. Ég ætlaði bara að hlífa þér við að fara svona snemma á fætur.“ „Það er sumar og hlýtt í veðri — og Wijdeveldsútgerðin er að hefja starfrækslu að nýju.“ * „Hvaða bátur er þetta?“ „Lestu áletrunina á bógnum,“ segir Janni. Þar stendur svört- um, skýrum stöfum: Wijdeveldsútgerðin. í stafni bátsins blaktir gult flagg með rauðu W-i. „Yfirbyggður vélbátur, Janni?“ „Já — þú varst einu sinni hér um bil búinn að fá lungnabólgu í gamla, opna bátnum. Við höfðum bátaskipti — borguðum að vísu dálítið á milli — en ekki svo ýkjamikið. — Komdu þér nú bara þægilega .fyrir — hér eru breiðir leðurbekkir. Og hér er upphitunartæki, sem kemur sjálfsagt í góðar þarfir, þegar vetr- ar .... Nú leggjum við af stað.“ Vélin er sett í gang — báturinn rennur frá bryggjunni. Vatn- ið sýður og leikur við borðstokkana. „Það eru orðin meira en þrjú ár síðan ég var síðast þarna úti. Ég mun hafa komið þangað síðast veturinn 1932. Vesalings skipin mín ....“ Wijdeveld andvarpar. Þeir horfa til skiptis út um kringlótta káetugluggana á bátn- um. Sólin hellir geislum sínum yfir fljótið og bryggjurnar og bátana, sem þarna eru á ferð. Það leynir sér ekki, að nú er að færast nýtt líf í siglingar og skipagöngur. „Sjást þau héðan?“ spyr Wijdeveld. „Rétt bráðum, pabbi,“ svarar Janni. Wijdeveld flýtir sér út úr skýlinu. Hann vill koma auga á þau fyrstur manna. Hressandi golan leikur um andlit hans — nú beygja þeir fyrir oddann — og þarna liggja þau — öll fjög- ur .... Hann hefir hlakkað til þess að sjá skipin sín aftur — en nú hnykkir honum við. Gátu þau verið svona blökk og lífvana — svona hræðilega leikin. Allir litir eru fölnaðir — skrokkarnir gráskellóttir — reykháfarnir ryðbrunnir. Wijdeveld er áþekkt innanbrjósts og hann hafi mætt gömlum og tryggum vinum í hræðilegum nauðum. Hann hafði hlakkað til þessarar stundar — ekki gert sér þetta í hugarlund .... * Wijdeveld og Sjoerd staijda á bryggjunni. Jakob biður við bifreiðina. Svo gellur skipsflautan — lándfestar eru leystar — svartur reykjarmökkur veltur upp úr reykháfnum .... Wijdeveld tekur ofan'hattinn — Sjoerd stendur berhöfðaður við hlið hans. Skipstjórinn, sem stendur teinréttur uppi á stjórnpallinum, ber hægri höndina upp að enninu. Viö hlið hans stendur Janni — brosandi og yfirlætislaus. Maríanna líður frá bryggjunni. Wijdeveld veifar háttinum — veifar og veifar, þar til Maríanna er komin svo langt 1 burtu, að hann greinir ekki lengur hvor er Janni og hvor er skipstjórinn. Þá snýr hann sér að Sjoerd og segir: — Loks er Maríanna komin aftur á sjó.“ * Það er kvöld í París. Occo hvilir i breiðu og mjúku rúmi í þokkalegu gistihúsi. Hanna er enn inni í baðklefanum. „Hanna — ég ætla að segja þér dálitið.“ „Ég er að koma .... “ Og andartaki síðar kemur hún inn — í hvítum silkináttfötunum .... Hún hefir alltaf notað hvit silki- náttföt síðan nóttina góðu í Aleppó. „Komdu hérna upp í til min, Hanna.“ Hún stígur léttilega upp í rúmið og hjúfrar sig upp að hon- um. Hann slekkur ljósið. „Hefir þér nokkurn tíma dottið það í hug, Hanna, að ég væri sníkjudýr, sem reyndi að framfleyta mér á þínum fjármunum, af því að ég nennti ekki að vinna heiðarlega vinnu?“ „Vinur minn ....“ „Nei — ekki svona svör. Ertu viss um, að þér fljúgi þetta aldrei í hug?“ „Nei — aldrei." „Ég veit, að þú segir satt. Þá get ég kannske fallizt á þetta, sem þú stakkst upp á í kvöld: að þú keyptir lítið hús á einhverj- um fallegum stað í Suður-Frakklandi, þar sem við getum lifað í ró og næði milli þess, sem við erum í ferðalögum. Ég veit, að mér muni vinnast betur, ef við eigum slíkan griðastað. Og þá get ég lagt blaðamennskuna á hilluna og helgað mig einvörðungu skáldsagnagerð." „Occo — Occo.“ Hún kyssir augu hans, kinnar, munn. Hún vefur hann að sér — vefur sig um hann. „Ég ætlaði að segja meira, Hanna. Hlustaðu á mig. Gætir þú hugsað*þér að eiga barn með mér?“ SABROE — vandaðar vélar í vönduð frystihús — Samband ísl. samvinnuf élaga Tímaritið STÍGANDI 1. h. 4. árg. flytur m. a.: Hið örlagaþrungná já (dr. Matt- hías Jónsson), — Aðstaðan við landbúnaðinn (Bjartmar Guðm.) — Um bækur (e. ritstjórann Braga Sigurjónsson) — Sögur og kvæði e. Guttorm J. Guttormsson) o. fl. — Myndir eftir Jón Þorleifsson. í 2. h. 4. árg., sem er nýlega komið út, er m. a.: Innanlands og utan (Br. Sigurjónsson — Frá listsýningu Lithoprents (14 myndasíður) — Smásögur, kvæði o. fl. Tímaritið STÍGANDI fæst í bókaverzlunum. Fjögur hefti koma út árlega, 5 arkir hvert, og kostar árg. kr. 24,00. Enn fáanlegt frá byrjun hjá Jóni Sigurgeirssyni, póst- hólf 76, Akureyri. »»tnnnnn««m«nnmmmn«mmmmt»8t!n»n»n»»»:o»»::m«t»m»»n»» Orðsendlng til rafvirkja og rafveitna frá rafmagiiseftirliti ríkisins. Að gefnu tilefni aðvarast allir hlutaðeigendur um að : nota ekki óskrúfaðar loftdósir — klemmdar — í huldar : pípulagnir. Fyrst um sinn mun þó verða leyft að nota óskrúfaðar. : loftdósir af viðurkenndum gerðum i innsteyptar lagnir ; — ekki timburloft — með óskrúfuðum amerískum pípum Ef út af þessu verður brugðið, munu þeir, sem hlut eiga að máli, verða látnir sæta ábyrgð fyrir. Rafmagnseftirlit ríkisius. 20. ágúst 1946. JAKOB GÍSLASOÁ. Iftmtntmttnttttttnnttttttttttttttttttitttmntttttmnttmnttttttnttttmmttttttttttm: 1—-----------------------------------------------.~2 Skrífstofustúlka óskast Rafmagnseftirlit ríkisins vantar skrifstofustúlku sem fyrst. Vélritunarkunnátta nauðsynleg. Laun samkvæmt launalögum. Eiginhandar umsóknir um aldur, nám og starfsferll, sendist fyrir 1. sept. til rafmagnseftirlitsins. RAFMAGASEFTIRLIT RÍKISIIVS, Laugaveg 118. mtmnnimntttitinnnmmnnmtmtanttmnmttintttntiitmnnmttnnnmmt TÍMANN vantar unglinga til að bera út blaðið i •ftirtalin hverfi: Lindargötu Laufásveg Afgreiösla Tímans Simi 2323. Lindargötu 9A.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.